Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

The Brown Darling Action

 
Oh my darling

 

Is English becoming the blogging language in Iceland? Who knows? Not on this blog, but one controversial blogger in Iceland, Jón Valur Jensson, who usually is the guardian bulldog of extreme Vatican interests on the Icelandic blogosphere, sent a message to the world last night. So, I must make amends, although my English is not Oxford and I will probably insult British grammar like my nationals fucked up the British financial stability.

The Brown-Darling action against the flush down of the IceSave criminals was pathetic, stupid but not unexpected. It is hilarious to see a former Trotskyite activist like Alistair Darling treating Icelandic financial criminals like terrorists, when Britain practically invites Islamist rule into the remains of the Empire.

The Icelandic financial terrorists are pathetic as well. They were treated by most Icelanders as gods. They acted like deity.  Those of us, who new that they were only magicians juggling money they didn't own, are not loosing our minds in the present situation. The Icelandic authorities should have apprehended them, grounded their golden jets and treated them like every other criminal. But no, the Icelandic government is still blaming the surrounding world, or anyone they can blame, except the financial fuckers of Iceland. 

Jón Valur Jensson, the blogger gone English, wrongly blames the British authorities for bringing down Kaupthing.  He is absolutely wrong in his evaluation. The Brown- Darling anti-terror measure against Iceland was not the real reason. Kaupthing was brought down by the executives of Kaupthing, the Icelandic magicians. The sooner Jón and his likeminded realize that, the sooner they will be able to live with the new situation in Iceland. The financial circus is over. The egotistical and ethnocentric era is history, and the 300.000 Icelanders have to realize that they are not better, greater, richer or cleverer than the rest of the world.

The Icelandic President, Ólafur Ragnar Grímsson fancies talking about "The Role of Iceland among the Nations". Iceland has no such role. Grímsson's role as a president is probably also history. This soft spoken silk glove socialist was the most prominent promoter of Icelandic financial gluttony - the ringmaster of the Circus. He must be looking for a new job. His new biography Útrás, athafnir, átök og einkamál (never to be translated) will probably secure steady income for some weeks, if the Icelanders can afford to buy a book which probably doesn't tell the whole story.

However, there is a reason for optimism in the the purgartory. The Icelanders are a lucky nation. They have lots of resources they forgot for a while, when they were counting the money they lent from Japan and Germany. Unfortunately the Icelanders started to believe that the money they borrowed was their own.

If the British authorities think the Icelanders are terrorists, they are stupid as stupid does. Icelanders only had a small role to play among the nations, and were minor players in a global financial system gone bad due to the old flaws in the character of the Human race. "Blame it on someone else".

The picture, by the way, was shot when Alistair Darling was cought illegally catching cod in Icelandic waters few years ago, or so we believe in Iceland.


mbl.is Hryðjuverkalög gegn Landsbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Farbann og stofufangelsi

 

12376655

 

Nú er því miður ekkert annað í stöðunni en að fá erlenda ráðgjafa til Íslands.

Þá aðila sem óskundanum hafa valdið og sem hafa eyðilagt orðstír Íslendinga meðal þjóðanna, ber að hneppa í varðhald hið fyrsta og láta þá vinna þjóðinni til heilla, en ekki aðeins sjálfum sér.

Það er búið að ljúga að þjóðinni síðustu vikuna.

Forseti Íslands, sem fremstur hefur farið með rugl um hlutverk Íslendinga á meðal þjóðanna meðan þjóðin var í vímunni, ætti að segja af sér.

Setja ber þjóðstjórn, þar sem þjóðin kýs 4 óháða sérfræðinga og einn stjórnmálamann úr hverjum stjórnmálaflokki.

Nú er Kaupþing/London líka til þurrðar gengið. Trúið þið enn á spámanninn Sigga Einars?


Hórmangarar i Køben safna handa Íslandi

Mega Jackass på Dansk

Ég var að enda við  að sjá hjá Fjólu Ragnars að Ekstra Blaðið hefði verið með söfnun til handa Íslendingum fyrir framan Magasin du Nord, verslun Jóns Ásgeirs. Ágóðann var farið með í íslenska sendiráðið á Christianshavn og þar sögðu menn bara "takk".

Fallegt af Dönum að hugsa svona vel til okkar. Eitt sinn söfnuðu Íslendingar handa stríðshrjáðum Dönum, en fengu litlar þakkir fyrir. Danir voru allt stríðið búnir að selja vörur sínar til nasista á hæsta verði, svo hægt var að fóðra stríðsvélina og þá sem myrtu gyðinga í útrýmingarbúðum. Lát var hins vegar á greiðslunni fyrir danskan varning handa böðlunum, því fínu frændurnir og ættingjar Dana í suðri, sem Danir sverja sig frekar í ætt við en hinar Norðurlandaþjóðirnar, borguðu ekki fyrir fleskið og smjörið.

Men, mange tak Danmark, eða réttara sagt bestu þakkir til ráðuneytis hórmangara og mellna á Ekstra Blaðinu. 

 

Jeg har lige læst på Fjóla Ragnar blog, at Ekstra Bladet har forestået en indsamling for Islændingene uden for Magasin du Nord. Overskuddet gik ubeskåret til den islandske ambassade på Christianshavn, hvor man sagde pænt tak.

Det var en smuk gestus hos danskerne, at tænke så positivt på os. En gang samlede islændingene ind til de krigsbelastede danskere, men modtog kun en sølle utak. Under hele krigen solgte danskerne deres produktion til nazisterne, så de kunne holde mordmaskinen gående og myrde jøder i udryddelseslejrene. Betalingen for de danske goder lod vente på sig, fordi danskernes fine slægtninge i syd, som danskerne jo slægter mere til end de andre nordiske nationer, betalte ikke for flæsket og smørret.

Men, mange tak Danmark, eller rettere sagt tak til ministeriet for den danske alfonseri- og luderbranche på Ekstra Bladet.


Ísland undir umsjón erlendra sérfræðinga, annar hluti

 

Sherlock_Holmes

Hagfræðiprófessorinn Robert Wade við LSE, kom fram í fréttum sjónvarps í gær. Hann sagði nokkurn veginn að íslenska þjóðin hefði verið á efnahagslegu LSD trippi. Sjónvarpið kynnti fréttina svona: "Sakar stjórnvöld um óðagot".

Wade sakaði engan um neitt. Hann sagði bara blákaldan sannleikann og kom með vinsamlega, en nauðsynlega ábendingu.

Honum lýst ekki, frekar en öðrum, á óðagot íslenskra stjórnvalda og gefur íslenskum eftirlitsstofnunum falleinkunn. Það ætti að vera fólki ljóst að íslenskir "bankamenn" eru fallistar, eins nú er í efni komið.

Wade stakk á því, að ráðnir yrðu 10 óháðir sérfræðingar frá mismunandi löndum til að endurskoða. Wade gæti hugsanlega orðið einn þeirra.

Eru menn virkilega svo stoltir og forstokkaðir, að þeir sjái ekki í gegnum ofstopafullt sjálfsálit sitt? Íslendingar verða að treysta öðrum og hætta að trúa á íslenska ævintýramenn og pólitíska skussa.

Á sjóinn með Lárus Welding og Björgúlf og sendum svo Sigga Einars í sveit. Þeir verðar örugglega dyggir við það að draga þorsk úr sjó og þurrmjólka beljurnar. Ingibjörg Sólrún getur lokað sendiráðum og hætt óráðsíu sinni. Svo gæti hún hæglega fengið sér vinnu hjá Íslandspósti. Hægt væri að virkja rausið í Steingrími J. Nokkur megavött af óstöðugri orku fengjust við það. Össur gæti orðið heillagripur fyrir knattspyrnulið eða einfaldlega kynnst atvinnuleysinu.

Nú ætti að vera búið að senda seðlabankastjórana heim, án launa, en einn þeirra er enn þá aðalskemmtiefnið í sirkus Kreppu. Davíð Oddsson var í Kastljósi í gær. Hvað eru menn að hugsa? Stjórnmálamenn eiga ekki erindi í sæti seðlabankastjóra. Það andlýðræðislegt.

Menn bíða svo eftir snuðinu frá Pútín, en sjálfsálitið og gorgeirinn er samt svo mikill, að ekki er opnað fyrir þann möguleika að láta óháða erlenda sérfræðinga fara yfir reikningana.

Það segir mér, vasahagfræðingnum, að ástandið gæti verið mun verra en menn vilja viðurkenna.  Ef til vill var það líka ástæða þess að stjórnvöld afþökkuðu afskipti Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins. Er meira óhreint mjöl í pokahorninu?

 

útlenskur endurskoðandi


Alltaf öðrum að kenna

Móðgun

Það er hreint út sagt sorgleg að sjá hve erfitt skussapólitíkusarnir okkar eiga að sætta sig við hrun Íslandssirkusins. Síðastliðinn áratug eru þeir auðvitað búnir að vera í hlutverki hvíta trúðsins, sem alltaf veit allt betur en aðrir. En sirkusinn var ekki lengur skemmtilegur, tjaldið er fallið og fílahirðirinn, áhættufulli ljónatemjarinn og aparnir eru að koma sér burt úr vondum málum. Sirkustjaldið fell bara niður á þjóðina, sem sat sem fastast og bjóst við því að sjóvið myndi halda áfram.

Útfararstjórinn Geir Haarde hélt ræðu sína til þjóðarinnar klukkan fjögur í gær. Því miður byrjaði hann að því að bendla atburði á Íslandi við það sem gerst hefur í Bandaríkjunum og "annars staðar".  Skilja mátti á honum, að við hefðum aldrei verið herrar yfir okkar eigin örlögum. Það er nú ekki efnilegt fyrir "sjálfstæða þjóð".

Össur Skarphéðinsson er greinilega sama markinu brenndur. Hann grenjar og segir "að Bandaríkjamenn hafi gefið Íslendingum fingurinn þegar leitað hafi verið eftir aðstoð bandarískra stjórnvalda við þeim efnahagsþrengingum sem ganga yfir landið". Hann er svo svekktur yfir því hversu fáa vini Íslendingar eiga og hafði búist við meiru frá Bandaríkjamönnum eftir að Íslendingar hefðu verið í áratugagömlu sambandi við þá. Ja, ég var eftir að sjá þann dag að Össur og fólk af sama sauðahúsinu sáu eftir Ástandinu.

Ef bankaliðið og stjórnmálamennirnir halda að þeir afgreiði málin, eða leysi þau, með því að kenna öðrum um, þá leysist enginn vandi.

Syndahafurinn er ódýr lausn, en efnahagur Íslendinga kemst ekki á réttan kjöl þótt Össur sýni BNA óæðri endann.

Lausn á þeim vanda sem Íslendingar eiga við að stríða, er ekki fólginn í því að leita að einhverjum í útlandinu sem maður getur kennt um. Ef horfst er í augu við vandann, er hins vegr mögulegt að Geir og Co fái plástur á meiddið.


Njet Spasibo, Rossja

 putinitup 

 

Dear Prime Minister Putin, 

Happy Birthday President Putin. Who could have imagined that when little Vladimir Vladimirovitch Putin was born in Leningrad on 7 October 1952, he would become the savior of Iceland in 2008, when the Icelanders lost their independence once again. 4000.000.000 Euros. A birthday loan. What a guy! Well, you know what they say, Putin’s love for humankind heats up the planet by 2.35 degrees annually.

Please Mr. Putin, the money you are lending Iceland, would have been better spent on the paupers of your empire. It's your birthday, treat your people well. Release your enemies from prison and fight crime in your country.

By the way, do you want to buy some nice, Icelandic Jeeps?

Нет спасибо, Россия


mbl.is Seðlabankinn fær lán frá Rússlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland undir umsjón erlendra sérfræðinga, STRAX!

Ekkert aðgerðarými í þessum pakka
Úff, það var ekkert andrými í þessum aðgerðapakka.
 

Nú þegar Geir Haarde hefur birst fólkinu sínu aftur eftir löng og erfið fundahöld í Ráðherrabústaðnum, segir hann að ekki sé þörf á aðgerðapakka eftir að hann fékk aðeins meira andrými. 

Geir segir bara hókus pókus simmsalabimm, meðan Danir og Þjóðverjar, já allur heimurinn, gerir ráðstafanir. Ísland ætlar að spyrja hin Norðurlöndin og ESB, og hnuplar svo lífeyri landsmanna.

Eftir kraftaverkið í Ráðherrabústaðnum, er greinilegt að Íslendingar þurfa bráðaaðstoð erlendis frá.

Auðvitað er mjög erfitt að kyngja slíku fyrir þjóð sem alin hefur verið upp í því, að gagnrýni erlendis frá væri frá vondu fólki komin. Síðastliðin ár höfum við séð hvernig allri gagnrýni og aðvörunum frá útlöndum var vísað á bug sem dómadags rugli og vitleysu. Þeir sem tóku undir erlenda gagnrýni voru kallaðir landráðamenn. Eru prófessorar í HÍ og HR, sem gerðu það, starfi sínu vaxnir. Er ekki hægt að spara nokkrar stöður þar? Hvernig í ósköpunum halda menn að þeir fá inngöngu í ESB með slíkan hugsunarhátt?

Mikið er nú annars gott að hafa bloggið. Þetta er hinn besti aðgerðapakki fyrir þjóð í vanda. Hér er alltaf mikið andrými, að minnsta kosti meira en hjá Ríkisstjórn vorri.


Íslendingar eru kaupóðir fíklar

  The good times

Lengi er síðan að ég sá eins áhugaverða fréttaútsendingu í sjónvarpinu eins þá sem var í gær klukkan 19.

Siggi í Kaupþingi iðraðist einskis og telur mistökin færri en góðan árangur. Hann sagði, eins og hann hefur alltaf sagt, að 12 næstu mánuðir yrðu góðir.  Siggi Einars er enginn spámaður. Þetta er bara hann Siggi, sonur framsóknarráðherra. Ég slóst við hann Sigga í barnaskóla. Segðu mér hve margar ferðatöskur Siggi er búinn að pakka í, og þá skal ég segja þér hvort 12 næstu mánuðirnir verði góðir.

Aumingjarnir vilja í ESB en Geir sagði það ekki til umræðu.  Ríkisútvarpið er greinilega orðið að fremsta talsmanni þeirra, sem eins og smákrakkar krefjast þess að komast í ESB. Svo virðist að boðskapurinn hjá þessu fólki sé, að ef við sækjum ekki um fyrir mánudaginn, þá fari þau öll í fýlu.

ESB metur auðvitað slíka umsókn, ef hún kemur. Það tekur tíma og ESB hleypir, eins og allir vita, ekki hverjum sem er inn í sínar raðir. Halda menn á Íslandi, að allt sé í sómanum í ESB? Fóru menn út að pissa, þegar fréttin um G-4 fundinn kom?

Lífeyrissjóðirnir ætla að kasta fé í glapkistuna. Þeir um það. Ég hélt að Kaupþing gæti kannski frekar gert það. Þar gengur svo vel næstu 12 mánuðina. Eða er sú velgengni háð því að við verðum leidd inn í ESB til slátrunar?

Svo kom Gylfi Zoëga, hagfræðiprófessor, og talaði eins og félagsráðgjafi á meðferðaheimili fyrir fíkla.  Ég hefði haft meira gagn og gaman af því að sjá hvað Gylfi hefur fyrir sér í stöndugheitum þjóðarinnar. Þjóðin er ekki gjaldþrota sagði Gylfi. Á ég að vera sammála honum? Að mínu mati eru þeir gjaldþrota, sem tekið hafa þjóðina í gíslingu og tala um um ESB og Evrur sem lausn á vanda þjóðar, sem virðist upp til hópa vera alvarlega veruleikafirrt.  

Já, ég endurtek veruleikafirrt, því svo var farið í verslunarferð í nýja risaverslun,  og það var eins og við manninn mælt, og Gylfi Zoëga hefur greinilega rétt fyrir sér, þjóðin er ekkert gjaldþrota. Við opnun nýju þursaverslunarinnar á Krepputorgi virtust þúsundir manna vera að eyða, eyða, eyða, eyða og eyða. Er þetta lúxuskreppa?

Það var loks ein góð frétt, svona til að bæta skapið eftir allt krepputalið og sigur KR í bikarnum. O.J. Simpson er loksins að fara í fangelsi. En hann er auðvitað líka veruleikafirrtur.

Þessi færsla var í boði Andy Rooneys, sem ekki skilur neitt í Íslendingum og leyfði mér því að nota blöðruhálskirtilsstíl sinn. Hann á 20 sparibauka, sem fólk hefur sent honum og hann hefur fyllt þá alla. Hann telur það vera þjóðráð fyrir Íslendinga að fylla sparibauka sína.


Jón goes to the movies

Nú er komið í ljós að Jón Gerald Sullenberger hefur margt meira en fjármálavit til að bera. Þarna hefur greinilega farið frægur Hollywood producer i glatkistuna. Nýjasta myndband hans, Glitnir í höndum Stoðaeða Sweet Revenge I, telst til hryllingsmynda, nánar tiltekið finance horror geirans. Lýsingin mætti hafa verið betri, en allir leikararnir fengu að þessu sinni vel greitt fyrir ómakið. Ég bíð óþreyjufullur eftir framhaldinu á þessu listaverki Jóns, sem vísir.is og DV.is greina frá.

 

 

Ekki undrar það mig að Jón Sulllenberger sé margt til lista lagt. Þetta gengur oft í ættir. Ég man vel eftir afa hans, sem ég tel víst að hann hafi þó aldrei hitt.  Hann hét Gunnar (d. 1990) og bjó á Hringbrautinni í Reykjavík. Hann bjó í sama húsi og afi minni og amma. Þetta var ágætis maður, nema þegar hann drakk. Þá gekk ekki svo lítið á. Gunnar var fátækur maður, sem vann á Eyrinni, en var ýmislegt annað til lista lagt. Hann var menntaður járnsmiður og var líka mjög músíkalskur og spilaði oft slagara á slaghörpu/orgel sem hann átti. Ungur vildi hann verða músíkkant en komst  oft í kast við lögin og framdi fjölda innbrota sem hann var dæmdur fyrir árið 1946. Á 4. áratug aldarinn gerðist hann laumufarþegi á einu skipi Eimskipa og komst til Leith á Skotlandi með manni sem síðar varð frægur söngvari. Síðar, 1934, laumaðist Gunnar með öðrum félaga til Kaupmannahafnar, þar sem þeir fengu þó ekki að ganga á land. Fjöldkylda hans borgaði fargjaldið fyrir hann (100 krónur), svo hann gæti komist heim og tekið út dóm sinn fyrir innbrot, m.a. hjá Kommúnistafélaginu. Gunnar var aldrei ánægður með hlutskipti sitt í lífinu og þegar hann var drukkinn sagði hann gjarnan mönnum frá því, að hann væri sonur sýslumanns nokkurs í Vestmannaeyjum. Það var dagsatt. Sýslumaðurinn var einnig Alþingismaður um tíma og gæslumaður Landsbankans í níu daga árið 1909. Síðar á ævinni vann langafi Jóns í Fjármálaráðuneytinu. Hann varð allra manna elstur. 

Þetta var nú bara ættfræðiútúrdúr um ættir Jóns Geralds, ef einhverjir myndu gera heimildamynd um ættgarð hans og afrek. Upphaflega uppgötvaði ég skyldleika Jóns við afann, þegar ég sá myndir á Jóni í fyrsta sinn. Hann er eiginlega næstum því eins og afinn

Áðurnefnd stuttmynd Jóns er vissulega alveg ágæt. Hún sýnir okkur, hvítt á svörtu, að menn kunnu sér ekki hóf í neinu í þessu útrásarævintýri. Mér þykir nú samt enn betra atriði Fóstbræðra um vandann í bankanum. Ég er á því að Indriði í atriðinu hafi haft rétt fyrir sér. Hann hefur líklega lesið vefsíðu Jóns


Kreppa, hvað?

 

great_depression_soup_line

 

Með hluttekningu og samúð fylgist ég með kreppunni á Íslandi, um leið og ég útfylli umsóknareyðiblöð um ríkisborgararétt í ýmsum löndum sem betur eru stödd en Ísland. Ýmis Afríkulýðveldi heilla. Green Card umsóknin til BNA er auðvitað komin í pappírstætarann.

En nú þegar allir eru líklega farnir að sjá að "útrásin" var bara árás á þjóðina í frumskógarstríði fyrirtækjagamma, langar mig að benda á að kreppa getur leitt af sér góða hluti. Í stað þess að grenja og heimta patentlausnir eins og sterkan mann (sem er ekki til), þjóðstjórn eða Evru, er miklu nær að sérhver Íslendingur sé sterkur og stjórni þjóð sinni í átt að betri tímum. Ég er ekki að tala um neitt alþýðulýðveldi Steingríms J., þar sem dansað verður á líkkistu síðasta kapítalstans með undirspili Bubba Mortensis sveitasönglara og þar sem traktorar verða aðalfararskjótarnir. Eyðsla, bruðl, græðgi og ránseðli það sem einkennt hefur Íslendinga, vinstri menn sem og hægri, síðan um 1980, verður að dempa. Ímyndunarveikina verður að lækna.´

Ísland gegnir ekki hlutverki á meðal þjóðanna og ætti strax að stöðva allt rugl um setu í Öryggisráðinu. Öryggið heima fyrir er miklu mikilvægara en stuðningur við hryðjuverkamenn í öðrum heimsálfum. Flottræflaháttur kostar 300.000 manna þjóð dágóðan skilding. Hægt væri að kaupa olíu fyrir það sem sparast og dálítinn mat fyrir afganginn. Loka ber helmingi allra sendiráða landsins. Safnast þegar saman kemur.

Gleymið ekki að mótmæla


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband