Leita í fréttum mbl.is

Á hælunum á dr. Dauða

 

 

Mikill stuðningsmaður Palestínumanna í Chile, senor David Mardones, sem líka er leiðtogi nasista (PNZ) í hafnarbænum Puerto Montt syðst í Chile er hér að segja skoðun sína á gyðingum, nasistaveiðum og "þjóðarmorðinu á  Palestínumönnum".

davidmardones

 

Nasistinn Mardones sem hér sést á fundi með stuðningsmönnum sínum úthúðaði góðum vini mínum Efraím Zuroff, sem var í Chile og Argentínu til að athuga upplýsingar um Aribert Heim, hinn morðóða lækni, sem Simon Wiesenthal stofnunin telur að sé á lífi þarna syðra. Ef svo er, er hann 94 ára gamall. Dóttir hans, Waltraut Boser, býr einmitt í Puerto Montt. Sjá enn fremur hér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Yfirleitt hef ég samúð með gömlu fólki en þó ég sé ekki hefnigjarn að upplagi finnst mér þessir glæpir svo .......................að fyrir þá verður að refsa.  Mér finnst líka dapurlegt og reyndar hábölvað að þessir nasistar skuli nota sólkrossinn (svartur á rauðum fleti) sem ég held mjög upp á.  Þjóðarmorð eins og glæpir nasista gegn gyðingum voru eru andstyggilegustu glæpir sem ég get hugsað mér. Það er þó ekki sólkrossinum að kenna.  Svona fólki er ekkert heilagt.  Svei þeim!!!

Sigurður Þórðarson, 18.7.2008 kl. 10:10

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ef kallhelvítið, dr. Dauði, 94 ára gamall verður dæmur fyrir glæpi sína heldurðu að hann fái þá ekki ævilangt fangelsi?

Sigurður Þór Guðjónsson, 18.7.2008 kl. 18:55

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sigurður, nei hann fær því miður ekki ævilangt fangelsi. Hann hefur leikið á réttvísina og verið frjáls ferða sinna allt sitt líf. Ef hann er á lífi og næst, er dómurinn eina réttlætið sem eftir er. Annar dómur verður væntanlega kveðinn upp af guði Ariberts Heims, eftir að honum hefur verið vísað frá Paradís. Satan mun örugglega taka vel á móti honum . Ef Heim er trúleysingi, er það nógu harður dómur í sjálfu sér.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 18.7.2008 kl. 19:54

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ein spurning sem ég hef hugsað mikið um. Er það sama refsing að dæma 18 ára mann til dauða og 94 ára?

Sigurður Þór Guðjónsson, 18.7.2008 kl. 23:18

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hann fær að dingla, Sigurður. Hissa á því?

En Vilhjálmur, þarftu ekki að rifja upp, að einnig hér á Íslandi töluðu ekki allir vel um Efraím Zuroff? Makalaust sagði það margt um suma hérlenzka.

Jón Valur Jensson, 19.7.2008 kl. 02:24

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Jú, Jón Valur, þar var köld kveðjan sem Effi fékk hér um árið. Fréttablaðið sáluga kallaði hann einu sinni óvin Íslendinga númer 1. Blaðaönnum var bannað að birta efni um málið og svona lengi mætti telja. Í því máli snuðuðu Elli kerling og íslensk yfirvöld réttlætið í samvinnu við eistnesk yfirvöld.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 19.7.2008 kl. 13:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband