Leita í fréttum mbl.is

Osló express

Ég byrjaði nýlega í nýrri vinnu sem safnvörður. Það væri ekki í frásögur færandi, ef ég þyrfti ekki að aka 180 km daglega til og frá vinnu minni. Það er vont, en það venst.

Hér er mynd frá staðnum þar sem ég vinn.

 

Lodret

Engar frekari upplýsingar verða gefnar í bili.

Í byrjun vikunnar fór ég með vinnufélögum mínum til Noregs. Það var skotferð með ferjunni frá Kaupmannahöfn og svo smá sætsýni í Osló. Annars voru þetta mest fundarhöld um borð á ferjunni og svo endalaust át og vellystisemdir. Í Osló fórum við út á Bygdoy, þar sem ég gekk fram á bústað íslenska sendiherrans, sem ég hef ekki séð áður, þótt ég hafi oft verið á Bygdoy áður. Þar gekk ég inn á lóðina, á "íslenskri jörð", og skoðaði burstabæina sem eru ofan á stoðunum við innkeyrsluna upp að húsi sendiherrans.

 

Islands Ambassade

Hvergi sá ég Íslending utandyra. Líklegast var sendiherrann, Stefán Skjaldarson, farinn í vinnuna, eða kannski var hann í Kuwait. Hann er líka sendiherra Íslands í Íran. Ekki má það minna vera. Sendiherrann hefur væntanlega heyrt að Íran er að smíða sér eldflaugar sem ná skotmörkum í allt að 6000 km. fjarlægð. Þær munu alveg geta náð til Óslóar. Þegar farið verður að nota þær, í einhverri bölvaðri móðgunargirni og hatri aftan úr forneskju, eru líklega komnar aðrar flaugar sem ná alla leiðina til Reykjavíkur. Best að segja sem minnst.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband