Leita í fréttum mbl.is

Ástand fyrri alda bjargaði íslensku þjóðinni

 

Setuliðið og Kvenfólkið

Í framhaldi af umfjöllun minni um kvikmyndina Iceland, er ætlun mín kynna eitt minna "lista"verk. 1940-41 gaf S.S. út þrjá bæklinga í Reykjavík sem báru titilinn "Setuliðið og Kvenfólkið". S.S. var ekki Sláturfélag Suðurlands eða Stormsveitin, heldur Steindór nokkur Sigurðsson rithöfundur (1901-1949). Steindór skrifaði líka aðrar predikanir undir dulnefninu Arnór Liljan Krossness um dáta sem dufluðu "stúlkukrakka". Steindór var íslenskur karlmaður sem ástandið fór mjög illa með.

Steindór karlinn var hræddur við það sem hann kallaði "þjóðernislega tortímingu". Skriftir hans voru greinilega knúnar af kenndum sem Siegmund Freud hefði getað skýrt betur en ég. En ekki myndi það undra mig ef Steindór hefði aldrei verið við kvenmann kenndur þegar ruglið lyppaðist úr honum á blað og inn einhverja kjallaraprentsmiðju, sem gaf óra hans út.

Tökum eitt gott dæmi um kvennalýsingar í einu af heftum Steindórs:

"En það verðum við þó að hafa hugfast, eins og áður hefur verið tekið fram, að ennþá er mikill meiri hluti ísl. kvenþjóðarinnar, sem betur fer, hrein af þessum málum.  En daglega fjölgar þeim dætrum Íslands, sem ganga á hönd hins útlenda setuliðs. Það er eins og illkynjaður bráðsmitandi sjúkdómur sé að grafa um sig í Þjóðarlíkamanum".

Ef hin kvenmannslausi Steindór hefði verið uppi á 17. öld hefði hann væntanlega sýnt af sér vasklega framgöngu í Spánverjavígunum og í dag er andlega ættingja hans kannski að finna í Frjálslynda flokknum.

Að mínu mati bættu "kerlingar og stúlkukrakkar" og margar aðrar tegundir kvenna, sem Steindór skrifar um, kynstofninn. Setuliðið í Seinna Stríði og á Miðnesheiði var kærkominn möguleiki til þess að bæta kynstofninn. (Fantafemínistar geta mótmælt ef þær vilja, en aðeins með brjóstmynd og fullu nafni). Ef þjóð á stærð við Íslendinga, sem oft var í útrýmingarhættu vegna harðinda og skyldleikaræktar, hefði ekki gegnum tíðina fengið um 3% + nýjung í upphaflega erfðamassann, væru Íslendingar ekki til í dag. Karlar eins og Hermann Jónasson og konur hans sýndi okkur hvað lítill "fjölbreytileiki" og takmörkuð nýjungagirni gat verið í dreifingu hins íslensks erfðamengis.

Ekki veit ég hvernig konur skipuleggja þetta. Konur eru náttúrulega vandfúsar, og rannsaka vel gripinn áður en hann er settur á bás, nema að mikil harðindi séu fyrir dyrum. En þökk sé þeim, dóu Íslendingar ekki út í afdölum á 15. öld. Konur björguðu, og bjarga líklega enn, íslensku þjóðinni. Gekk þetta hjálparstarf oft undir ljótum heitum, eins og t.d. saurlifnaður. Þegar náskylt fólk af "alíslenskum" ættum var að fjölga sér saman, var hins vegar talað um ástir.

En nú eru aðrir tímar. Herir manna, sem gengu í pressuðum fötum og höfuð nælonsokka, tyggjó og annað gott í vösunum, er farnir og í stað þeirra komnir afkomendur öreigalýðs Rússnesku byltingarinnar, sem eru á lágmarkslaunum hjá íslenskum þjófahyski. Það þykir greinilega lítið varið í erfðamengi farandverkamanna frá Eystrasaltslöndunum og menn þaðan, sem kannski eru staddir hér í öðrum erindagjörðum en að láta arðræna sig af íslenskum kollegum, virðast vera fremur iðnir við að nauðga sig fram úr kvenmannsleysi sínu á Íslandi. Það er ljót þróun.

 

Þvottur

Þessi mynd er frá 19. öld og sýnir íslenskar stúlkur afklæða franskan ferðalanga og þvo honum hátt og lágt, líkt og japanskar geishur gera í ákveðnum hafnarhverfum Yokohama. Mitt sauruga ímyndunarafl segir mér að eitthvað gæti hafa gerst eftir þennan þvott, sem ekki var teiknað, en sem t.d. leiddi til þess að brún augu og brátt skap eru líka til á Íslandi. Í kirkjubókum var ávöxtur samfaranna "feðraður rétt", til að koma í veg fyrir óþarfa vandamál. Allar kirkjubækur Kára Klóns eru því rugl.

Ástandið er, og var, harla gott frá mínum bæjardyrum séð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Þetta er að hluta bull hjá þér.

Kirkjubækur fyrir vestan gerðu því skil ef um börn útlendra manna var að ræða.

Svo nefnd ,,svarta ættin" við djúp er að hluta komin vegna blöndunar við Habsborgara, sem versluðu mjög við stórbændur við Djúp, þar komust danskir ekki til áhrifa, þar sem þýskir ( að vísu blandaðir Katalóníumönnum = Habsborgarar) buðu miklu betri kjör.

Einnig var svo, að samkvæmt framburði stúlkna og kvenna, sem ,,komust undir manna hendur" og gáfu skýrslur, bæði lögreglu og læknum, var oftar um nauðgun að ræða en la´tið er í veðri vaka í þessu innleggi þínu.

Það er talið til nauðgunar, að hella áfengi í barnungar stúlkur og nýta sér ástand þeirra til kynlífsathafna, jafnvel af íbúum heils bragga.

Það skín út úr mörgum skrifum þínum, að þér er ekki mjög annt um ísl þjóðerni né menningu.  Miklu frekar leggur þú þig í framkróka um, að sverta nokkuð minningu manna hér og upphefja Gyðinga, hvar á bóli sem þeir eru.

Sálmaskáldið okkar íslendinga nefndi þá Júða (frá Júdeu) og svo gerði einnig Kirkjufaðir okkar Lúther.  Finnst mér ekkert athugavert við þá nafngift og bið þig vera sem lengst ytra, þar sem þér er frekar í nöp við það sem íslenskt er og er ég því þess viss, að þér muni líða miklu betur þarna en hér.

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 11.12.2007 kl. 11:01

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Já, Ástandið gat verið slæmt, ekki neita ég því, en í hvaða annarlegu ástandi Bjarni Kjartansson er í, hef ég ekki menntun til að skera úr um. 

Ég þekki ekki þennan mann, en hann ræðst á mig mig fúkyrðum og segir mig ver í nöp við það sem íslenskt er og að mér sé ekki annt um ísl. þjóðerni né menningu. Hann þeytist úr kirkjubókum fyrir vestan, yfir í Habsborgara og Katalóníumenn, þaðan í hópnauðgun í bragga og svo til "Júða", sem er fólk sem Bjarni hatar greinilega af öllu hjarta sínu.

Ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei heyrt um verslun katalónskra Habsborgara á Íslandi. Veiðar Baska/Spánverja eru vel skráðar, en ekki verslun Habsborgara. 

Ég kvitta fyrir þennan orðsöfnuð Bjarna með þeirri vangaveltu minni, að hugsanlega hafi ekki orðið nógu mikil blöndun, (eða ekki nógu margar nauðganir, ef tekið er mið af áliti hans á framferði útlendra manna) í framættum hans.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 11.12.2007 kl. 16:46

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mér finnst nú óþarfi að gera því skóna að "ruglið" í Steindóri hafi verið út af því að hann hafi aldrei verið við kvenmann kenndur. Margt ágætisfólk hefur aldrei verið við hitt kynið kennt, fyrr og síðar, án þess að það fari að rugla. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 12.12.2007 kl. 15:10

4 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Alveg rétt Sigurður, ég var bara að tala út frá eigin reynslu. Áður en ég komst á fast, þ.e. hitti mínu góðu konu og lífsförunaut, var ég hálfgerður terroristi.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 12.12.2007 kl. 16:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband