Leita í fréttum mbl.is

Einstakur viđburđur

Í kvöld sýndi sćnska sjónvarpiđ fyrsta ţáttinn í nýrri ţáttaröđ sem ber heitiđ Vrakletarna.

Hćgt er ađ sjá ţáttinn í heild sinni hér: http://svt.se/svt/play/video.jsp?a=971670

Og ţessa frábćru stuttmynd og frétt á hollensku:

Fyrir fornleifafrćđing er fundur ţessa 17. aldar skips eins og ađ drekka eđalkoníak eftir fimmstjörnumáltíđ. Ég naut ţáttarins til fulls og gerđist drukkinn af upplifuninni.

Međ nýjustu tćkni og vísindum, sem lýst er ţokkalega í ţćttinum, og ţegar ekki var veriđ ađ mynda freigátuna sem stjórnar ţćttinum, Jonnu Ulin fornleifafrćđing, fengu áhorfendur mynd af flaki, sem hugsanlega er heillegra en Wasa, konungsskipiđ, sem sökk áriđ 1628 og var lyft á land áriđ 1961.

vrakletarna_ny175

Wreck 

Skipiđ, sem fannst á 125 metra dýpi úti fyrir suđausturhluta Svíţjóđar, sést hér á mynd sem er unnin úr gögnum dýparmćlinga. Ţetta virđist vera kaupfar. Ekki sáust neinar fallbyssur viđ ţćr frumathuganir sem fóru fram í sumar. Sérfrćđingarnir telja ađ ţarna sé á ferđinni hollensk flauta (fluit) frá 17. öld.  Skipiđ er ađeins 20-25 metrar ađ lengd og mjög vel varđveitt. Útskurđur og annađ skreyti er enn varđveitt. Skipiđ Melkmeyt, sem sökk viđ Flatey áriđ 1659 var einmitt af ţessari gerđ skipa. Flautur sigldu fyrst um 1590 og er skipiđ sem var sýnt í kvöld í sćnska sjónvarpinu af eldri gerđ slíkra skipa. Ţađ er óneitanlega eitthvađ 16. aldarlegt yfir ţví. Hiđ dćmigerđa flautuskip var miklu ávalara en ţađ skip sem skuggamyndin af botni Eystrasalts sýnir.

plastik

Ţetta er einstakur viđburđur. Eins og veisla fyrir fornleifafrćđing. Ađrir hljóta ađ hrífast međ. Horfiđ á ţáttinn.


mbl.is Sjónvarpsmenn fundu skipsflak frá sautjándu öld
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sonur minn leikur sér mikiđ í sjórćningjaleik. Ekki laust viđ ađ sjórćninginn komi upp í manni ţegar svona fley sigla aftur úr forneskju. Ég er enn ađ ná mér.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 15.11.2007 kl. 21:40

2 identicon

Meiriháttar flott skip.

Man eftir ađ hafa notađ svona hollenska flautu í gömlum tölvuleik sem heitir ,,Pirates.'' Vart nothćf til orrustu ef ég man rétt.

Pétur Guđmundur Ingimarsson (IP-tala skráđ) 16.11.2007 kl. 08:25

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ţađ verđur ađ koma ţví upp og fara út í nýtt Wasa-ćvintýri. Nú kunna menn betri ađferđir viđ varđveisluna. Ţetta skip er tćpur helmingur af stćrđ Wasa, svo "björgun ţess" ţarf ekki ađ vera eins stór í sniđum og tímafrek og tilfelliđ var međ Wasa.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 16.11.2007 kl. 11:01

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Alveg magnađ Vilhjálmur. Takk fyrir ţetta. Hér deili ég svo sannarlega međ ţé áhuganum.  200.000 flök á ţessum slóđum. Ţetta hlýtur ađ skođast sem gullnáma.  Heimildamyndin er vel gerđ og gott hvađ upplausnin var góđ. Mađur gat horft á hana og notiđ í fullri stćrđ án miska.

Ţetta minnti mig einnig á ađ fara nú ađ drullast til ađ skođa Vasa flakiđ, eins og mig hefur alltaf langađ til ađ gera. Ţađ var mikiđ afrek ađ ná ţví upp, sem seint verđur toppađ.

Annars í tilefni dagsins hans Jónasar:  Merkilegt ađ umrćđan um beinin hans skuli ekki hafa komiđ upp aftur á ţessum tímamótum og rifjađur upp sá vafi, sem vaknađi viđ jarđsetningu ţeirra.  Ekki munu ţau einu sinni öll hvíla á Ţingvöllum eftir ţví sem mig minnir.

Gćtu fornleifafrćđin og lćknisfrćđin ekki tekiđ af allan vafa um ţetta nú. Genetíkin og svo ekki sé talađ um ađ kíkja á ţađ augljósa atriđi ađ á öđrum leggnum á ađ vera brot, sem illt hefur hlaupiđ í.

Kannski gćtir ţú skrifađ greinarkorn um ţetta?

Jón Steinar Ragnarsson, 17.11.2007 kl. 09:41

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sćll Jón Steinar, 

er ekki bara eintómur danskur skítaleir í gröfinni? Kannski eru líka nokkur bein úr dönskum niđursetningi? Ég held ađ ţađ gćti orđiđ nokkuđ flókiđ ađ finna bein og samanburđarefni fyrir genarannsóknir. Ţađ er fyrir löngu búiđ ađ tćma koppana á Hrauni og hrákadallana í St. Pederstrćde og ţvo blóđ og beinmerg af tröppunum ţar sem hann hrasađi. En ef til vill vćri hćgt ađ spyrja Kára Klón nú ţegar hann fćr ekki ađ skođa erfđamassan úr íslensku sakafólki.

Ég lćt mér nćgja lýsingu Konráđs Gíslasonar á Jónasi. Hún er betri en allt DNA. 

„Jónas var gildur međalmađur á hćđ, ţrekvaxinn og limađur vel, en heldur feitlaginn á hinum seinni árum sakir vanheilsu, vel rjettur í göngu, herđamikill, baraxlađur, og nokkuđ hálsstuttur, höfuđiđ heldur í stćrra lagi, jarpur á hár, mjúkhćrđur, lítt skeggjađur og dökkbrýnn. Andlitiđ var ţekkilegt, karlmannlegt og auđkennilegt, enniđ allmikiđ, og líkt ţví, sem fleiri enni eru í hans ćtt. Hann var rjettnefjađur og heldur digurnefjađur, granstćđiđ vítt, eins og opt er á Íslendingum, og vangarnir breiđir, kinnbeinin ekki eins há og tíđast er á Íslandi, munnurinn fallegur, varirnar mátulega ţykkvar; hann var stóreygđur og móeygđur, og verđur ţví ekki lýst, hversu mikiđ fjör og hýra var í augum hans, ţegar hann var í góđu skapi, einkum ef hann rćddi um eitthvađ, sem honum ţótti unađsamt um ađ tala“.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 17.11.2007 kl. 12:44

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Jónas međ eigin hendi

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 17.11.2007 kl. 12:58

7 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Jamm. Heyrt hef ég svipađ um uppruna beinanna. Menn hafa ţó getađ boriđ saman genetík úr ćttlegg viđkomandi og taka mćtti ţví vefsýni ef einhver eru úr fótlegg skáldsins og bera saman viđ ćttlegginn.  Einhvernvegin ţannig báru ţeir kennsl á nafna ţinn rússakeisara og famelíu hans.

Annars held ég ađ máliđ sé of viđkvćmt til ađ menn hafi áhuga á ađ komast ađ sannleikanum. Ţannig er jú oft fariđ međ sagnfrćđina líka.

Jón Steinar Ragnarsson, 17.11.2007 kl. 13:57

8 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Eigum viđ bara ekki ađ leyfa honum ađ hvíla í friđi undir ţyrluflugpallinum á Ţingvöllum, eđa bakaranum sem sumir segja ađ hafi veriđ í kassanum.  Jónas var ekki keisari og viđ ţurfum ekki ađ sanna eitt og neitt međ hann. Hann stóđ fyrir sínu. Heldur vildi ég ađ einhver grćfi upp fötin hans bláu sem heilluđu kvinnurnar í Reykjavík. Alltaf gott ađ eiga svoleiđis dress. Svo var hann fornleifafrćđingur líka, mađur lifandi..........

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 17.11.2007 kl. 18:15

9 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Jamm. Sennilega hefurđu rétt fyrir ţér Villi.  Menn verđa líka ađ fá ađ hafa eitthvađ til ađ ţrátta um annađ en Biblíbókstafinn.

Jón Steinar Ragnarsson, 18.11.2007 kl. 06:56

10 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Var virkilega hýra í augum Jónasar? 

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 18.11.2007 kl. 21:01

11 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Já Sigurđur, "but he was only gay in his eyes" og Konráđ vissi örugglega hvađ hann var ađ tala um.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 22.11.2007 kl. 14:47

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband