28.8.2007 | 13:32
Palestínumenn fremja skemmdaverk á fornleifum
Ég er fornleifafræðingur, og sem fornleifafræðingur fordæmi ég Palestínumenn fyrir skemmdaverk á fornminjum og vanvirðingu þeirra á heilögum stöðum annarra.
Myndu Íslendingar grafa skurði yfir þvera og endilanga Þingvelli? Palestínumenn grafa skurði á óhemjulegan hátt í helgustu borg heims.
Palestínumenn hafa umsjón með musterishæð í Jerúsalem. Gyðingar eru ekki velkomnir þar og hundruð saklausra manna hafa verið myrtar vegna æðis sem greip um sig er forsætisráðherra Ísraels leyfði sér að fara í heimsókn á Musterishæð. Fornleifavernd Ísraels þorir ekki að hvessa klærnar gegn þeim sem hafa umsjón með musterishæð.
Nú virðist sem frændi einhvers háttsetts preláta á Musterishæð hafi unnið útboðið í framkvæmdir á hæðinni. En Það er greinilega engin skipulagsstofnun til staðar og enginn áhugi á fornleifunum.
Sagt er að Musterishæð sé einn af heilögustu stöðum Íslam. En fer maður svona með heilaga staði?:
Eða svona?
Eða svona?
Það þurfti meira rafmagn í Al Aqsa moskuna. Þess vegna fór þessi eyðilegging fram.
Fornleifar, m.a. byggingarbrot með skreyti, gólfhellur úr marmara og öðrum aðfluttum steintegundum, og brot úr fornum gler- og leirílátum voru grafin upp án eftirlits fornleifafræðinga.
Svona skemmdaverk eru aðeins unnin í þjóðfélagi, þar sem eitthvað mikið er að. Hvers konar trú leyfir svona helgispjöll? Hvers konar virðingarleysi er rótin að þessum skemmdaverkum?
Gamla Jerúsalem hefur síðan 1981 verið tilnefnd til World Heritage listans, sem Þingvellir eru komnir á (ég var meðhöfundur að fyrstu skýrslunni til að kynna Þingvelli fyrir UNESCO apparatinu). En enn heyrist ekkert frá World Heritage bákninu (UNESCO) um eyðileggingar Palestínumann á fornleifum. UNESCO hefur einungis verið upptekið af því að banna Ísraelsmönnum að stunda fornleifarannsóknir í hinni fornu borg.
Hér getið þið séð nýjasta glæpavídeóið frá Musterishæð.
Hér getið þið mótmælt eyðileggingunni.
PostDoc hefur áður skrifað um þetta efni: http://www.postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/124173/
Meginflokkur: Menning og listir | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Trúmál og siðferði, Vísindi og fræði | Breytt 2.12.2007 kl. 23:31 | Facebook
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 2
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 1352575
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 38
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Til hamingju, þér hefur tekist að fá mig til að taka þátt í bloggi, eitthvað sem ég ætlaði aldrei að gera og vona að gerist ekki aftur.
En..
"Svona skemmdaverk eru aðeins unnin í þjóðfélagi, þar sem eitthvað mikið er að."
Vá hvað ég varð reiður að lesa þessa einu settningu. Miklu reiðari en yfir skemmdunum sem þú fjallar um, sem ég er alveg sammála um að eru á engan hátt afsakanlegar.
Þú ert hinsvegar að tala um Palestínu, þjóð sem hefur verið haldið í flóttamannabúðum í fjölda ára (man ekki hvort það eru þrjátíu ár eða fjórtíu, einhverstaðar þar á milli eða jafn vel meira) þar sem þar er skortur á öllu. Og þá er ég ekki bara að tala um kúgun af völum ísraelsmanna og afskiptaleysi alþjóðasamfélagsins heldur býr þessi þjóð við borgarastríðjöld, sem virðist ekki vera mikill vilji til að stoppa. Fyrir utan þetta ástand er náttúrulega skortur á allir opinberi þjónustu (td. heilbrigðisþjónustu), vatni, matvælum og svo mætti lengi telja.
Svo, já, það er eitthvað mjög mikið að í Palestínu. Svona ef þú hefur ekki tekið eftir því. Fornleifar eru örugglega ekki ofarlega á blaði í hugum fólks þar.
Arnar (IP-tala skráð) 28.8.2007 kl. 14:22
þetta er bara annað dæmið um hatrið sem Arabar og trú þeirra hefur í garð Ísraela/Gyðinga. Þeim þykir óþolandi að vita til þess að nánast alfarið eru það menjar Gyðinga sem koma upp þegar grafið er á þessu svæði sem vitanlega sannar bara það sem þeir vilja ekki gangast við að þetta er helga landið. það stendur í ritningunni að það munu koma tímar að jafnvel steinarnir munu hrópa sannleikan, sem fornleifafræðingur þá skilur þú væntanlega hvað er átt við hér.
Þakka þér fyrir að skrifa um þetta, ég bið Guð að blessa þig og varðveita.
Linda, 28.8.2007 kl. 14:39
Til hamingju með það Arnar, og vertu velkominn.
Við erum að tala um Austur-Jerúsalem! Ekki Gaza. Við erum að tala um svæðið sem er 20 metrum yfir hausmótunum á gyðingunum sem biðja við Grátmúrinn og sem endrum og eins eru grýttir ofan frá af skríl sem nýkominn er úr guðshúsum sínum á hæðinni. Náungakærleikurinn virðist ekki kenndur í þeim guðshúsum. Arabar í Austur-Jerúsalem hafa allt til alls, en eyðileggja samt fornleifar. Það er með öllu óskyljanlegt!
Mig langar að minna þig á, að þegar Íslendingar voru að drepast úr hor og óáran, gátu þeir jafnvel hugsað um fornleifar og sendu um það skýrslur til Kaupmannahafnar. Að hafa áhuga á fortíð sinni og menningu og sjá hana í ljósi annarra menningaheima, án þess að vilja kremja aðra menningaheim undir járnhæl fávisku, öfga og illkvittni, er merki um að í landinu sé menning.
Fornleifar ættu að vera ofarlega í hugum Palestínumanna. En því miður virðist aðeins eitt koma að.
Þessi óvirðing við minjar annarra menningarheima en Íslams fer reyndar ekki aðeins fram í Palestínu. Hún hefur verið skipulögð aðgerð Íslams. Eyðilegging Talibana á minjum Búddatrúarmanna í Afganistan er gott dæmi og hvað var gert við einn elsta grafreit gyðinga í Bagdad á Sýrlandi? Honum var ýtt burtu með jarðýtum þegar byggður var nýr vegur út á flugvöll borgarinnar.
Arnar, þú virðist styðja baráttu Palestínumanna, það skil ég. En þú gerir það sama hvað það kostar. Það er mjög auðvelt þegar maður situr uppi á Íslandi og tilheyrir þjóð sem aldrei hefur verið sótt að. Mér þykir það miður. En engin þjóð hefur rétt á því að eyðileggja menningarminjar, sama hvað hún er hrjáð og vesæl.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 28.8.2007 kl. 15:06
Man ekki betur en íslendingar hafi étið þessi merkilegu handrit eða saumað úr þeim skó, amk. þeim sem grotnuðu ekki niður í skítugum moldarkofum, þanngað til ónefndur Árni hóf að safna þeim með skipulögðum hætti.
Ég er svo sem engin sérstakur stuðningsmaður málstaðs palestínu, aðgerðir þeirra sjálfra eru ekki líklegar til að afla stuðnings hjá mér alla vega. En ég get vel ímyndað mér að þeim líði svipað og okkur ef Norðmenn kæmu or hernæmu ísland á þeirri forsendu að það hafi jú verið norskir landnámsmenn sem námu hér land með skipulögðum hætti, smöluðu öllum íslendingum saman á td. Melrakkasléttu og reistu gaddavírsgirðingu í kring.
En það var svo sem ekki það sem ég ætlaði að nöldra yfir heldur þessi settning:
"Svona skemmdaverk eru aðeins unnin í þjóðfélagi, þar sem eitthvað mikið er að."
Jú það er mikið að Palenstínsku þjóðinni. Kúgun elur af sér hatur, hatur leiðir til ofbeldis, ofbeldi leiðir til kúgunar.
Hefði ég tekið mér smá tíma til að skoða síðuna þína áður en ég svaraði þá hefði ég örugglega fattað að þegar samskipti Ísraels og Palestínu lítur málið svoldið einhliða út gagnvart þér. Ég mun því ekki eyða meiri tíma í að reyna að útskýra fyrir þér hversu fáránleg þessi settning hljómar í eyrum þess sem sjá ekki heimin bara í svörtu og hvítu.
Arnar (IP-tala skráð) 28.8.2007 kl. 16:30
Nei Arnar, þú sérð líklega hlutina í öllum regnbogans litum, enginn vafi á því. "Kúgun, hatur og ofbeldi" er það sem Ísraelar stunda og Palestínumenn eru saklaus lömb, sem verða að sprengja börn og aðra saklausa málefnum sínum til stuðnings. Greinilega ekkert svart og hvítt hjá þér. Hvað með að kynna sér málin aðeins betur.
Ísraelsmenn hafa margoft boðið Palestínskum yfirvöld aðstoð við framkvæmdir á Musterishæð. Það er ávallt afþakkað. Þess vegna hlýtur þessi eyðilegging að fara fram að yfirlögðu ráði. Er það barátta við ofbeldi Ísraela? Eða er þessi skemmdaverk örþrifaráð vegna ofbeldis Ísraelsmanna? Ja, hvað heldur þú? Kannski hefurðu litað of mikið í litabók hugaróranna.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 28.8.2007 kl. 16:52
Vilhjálmur, þú segir réttilega:
Málið er samt það, að ekki er bara um að ræða "þjóðfélag" (Palestínu-manna) heldur heilan "menningarheim", þar sem mönnum er tamt að vinna skemmdarverk. Þetta er heimur múslima. Þessu fólki er "mörgu hverju" byrgt allt andlegt útsýni. Við fáum stöðugt að heyra hvað allt sem viðkemur þessum aumkunarverðu trúarbrögðum er heilagt. Allt utan þessa heims er af múslimum talið vanheilagt og réttdræpt.
Þetta á svo sannarlega við um menningar-minjar. Múslimar leggja gjarnan á sig erfiði til að eyðileggja það sem öllu mannkyni er heilagt. Búdda stytturnar í Bamiyan héraði í Afganistan er gott dæmi. Engum nema múslimum hefði getað dottið í hug að eyðileggja þessar styttur, hvað þá heldur að framkvæma þá hugdettu. Hér er frétt af þessu "afreki" Talibana: Footage shows Buddhas blast
Svo lesum við að einhver Arnar á Íslandi er voða reiður, við að lesa setninguna hans Vilhjálms. Hann segir:
Mér er sem ég heyri hann einnig muldra:
Eru engin takmörk fyrir mannlegri lágkúru ?
Loftur Altice Þorsteinsson, 28.8.2007 kl. 18:05
Hva. Hvenær fór Gunnar Birgisson til Palestínu?
Sigurður M Grétarsson, 28.8.2007 kl. 21:16
Þökk fyrir góðan pistil dr. Vilhjálmur Örn. Þörf ábending.
Musterishæðin er í raun Heilagur staður okkar allra, þ.e. hafi musteri Salómons í raun og veru staðið þarna. Eitthvert merkasta musteri Guðs okkar sem erum af þessari góðu Hebreatrú.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 29.8.2007 kl. 03:11
Hryllilegt að sjá. Þessi gröftur er ekki eins og siðmentuð þjóð stæði að þessu, og er það furða að þessar framkvæmdir skulu ekki hafa verið stöðvaðar strax á svona viðkvæmu svæði sem tilheyrir okkur öllum. Við þessar aðstæður færi betur að nota spaða og teskeið en vélskóflur og slík tæki.
En því dýpra sem ég stúdera íslamstrú, er ég þess samfærðari um að ráðgjafi Múhameðs hafi verið fallin engill.
Gestur Halldórsson, 2.9.2007 kl. 23:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.