Leita í fréttum mbl.is

Tapað-fundið á DV

Screenshot 2025-03-10 at 06-28-40 DV - Frjáls og óháður miðill

Íslenska fávitapressan leysir oft erfiðustu gátur mannkyns-sögunnar - án þess að vita það.

Á sömu síðu á Fjasbók DVs er lýst eftir Bandaríkjamanni, Granger Taylor að nafni, sem er talinn hafa tekið "tíuna". Tían er fljúgandi furðuhlutur sem oft kemur við í Brjáluðu Ríkjum Norður Ameríku. Tían kemur með furðuverur úr slími og gasi eins og Trump og Musk, en fjarlægir saklaust fólk eins og Grange Taylor.

Allt fór þó vel fyrir Granger, því geimverur eru svikahrappar sem lengi hafa dreift rusli Brjáluðu Ríkjanna víða um heim.

Granger Taylor skilaði sér grenjandi sem Þorsteinn V. kynjafræðingur (sjá mynd efst). Þorsteinn var í annarlegu ástandi og á milli ekkasoganna kvartaði hann sáran yfir því að hafa ekki verið ekki boðið í veislu fyrir karlmennsku, eða öllu heldur fyrir gegnsæja karla með síminnkandi sjálfsálit, sem aldrei komast lengra en á forsíðu DVs.

Er nema von að ritstjórar taki sér hærri laun en gráðugar borgastjórakerlur í sjúklegri sjálftöku. Þetta er sama þjóðin, og sumir eru sannarlega hvítt úrhrak sem flugdiskurinn "Tían", losar ólöglega á Íslandi án þess að hafa samband við Sorpu.


Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.

481813669_1305065021314632_7082674381784564400_n

Þorgerður Katrín er kjaftstopp og borðar hvorki Cheerios á morgnana, né Cocoa Puffs á kvöldin, sjá hér.

Ljóst má þó vera, að meðan Danir koma ekki aflagðri sprengjuverksmiðju sinni í gagnið fyrir 2027, dugar ekkert annað en sterkur og kjarngóður gjaldmiðill í öll mál, því Zelenskij er sjálfur farinn að prjóna sínar eigin hosur - Sokkar þeir sem síðasti utanríkisráðherra sendi voru götóttir, grænir garmar.


Á mér stendur ..... Bjarni Ben

Hjá mér stendur

"O, sorry, is it Halla T???" ; "I thought it was the mud kake maker" ; "Honestly, I thought so". "He wanted some dough"..."I feel Corona is coming on..."


mbl.is Bjarni: „Hrikaleg mismæli“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu

Konnman

Baldur skynjar mikinn meðbyr og hefur því sent Konna í sveitina svo hann haldi kjafti.


Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II

1471143

Gamlir menn nota sagnmyndina að fokka sér í boðhætti er þeir tala til ungra kvenna - og einna helst er þeim er heitt í hamsi eða þeir útúrdrukknir að berjast fyrir mannréttindum í miðbæ Reykjavíkur. Nú er ég orðin hálfgamall fauskur, en hef aldrei heyrt þetta orðbragð notað. Er þetta algengt í málinu, eða hef ég búið of lengi erlendis?

Þegar ég var að alast upp fyrir hálfri öld síðan var nafnorðin fokka og fokkusegl vel þekkt og er það orð ættað úr hollensku. Á hollensku voru þeir sjóliðar sem sáu um stafnsegl kallaðir fokkers, sem síðar endaði sem heiti á flugvélum, sbr. Fokker Friendship. Sá sem smíðaði Fokker flugvélar kvæntist konu af íslenskum ættum sem hann komst upp með að myrða (sjá hér).

Ég man að menn fengu sér bokku í ÁTVR, sem er komið úr latínu, boca/bocca, og þýðir munnur. Menn kysstu stútinn.

Er málþekking á undanhaldi í gamla landinu mínu? Kannski er maðurinn, sem bað þingmanninn að fokka sér, gamall latínuláki, en á latínu er focca það sama og kaka. Mér þykir þó líklegra að hann hafi horft á of margar bandarískar kvikmyndir, uppfullar af fucki, frekar en að hann hafi boðið þingkonunni kleinu. Veit einhver, hvenær Íslendingar fóru fyrst að fokka sér?


mbl.is Mótmælandi réðst að Diljá Mist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Icelandic Police Bared

giphy

Dear friends,

Icelandic Police authorities, which in the second half of the 20th century were led by two prominent members of the Icelandic Nazi Party of the 1930s, are still making headlines for stupidity and breach of morality.

Icelandic web-news Heimildin and daily Morgunblaðið report that three female members of the Reykjavík district Police (Lögreglan á Höfuðborgarsæðinu) attended a seminar in Poland, to be more precise in Oswiecim - the town adjacent to the Auschwitz extermination camp. The seminar was held by the Icelandic Polish authorities in October and November. The visit to Poland Poland was a part of a course on fighting hate crimes.

During the seminar, three Icelandic Police-women ordered a Polish male stripper to their own amusement at a hotel they were staying at.

The course for Icelandic Policemen on Hate-crimes started in Reykjavík last October. A part of the course was the visit to Auschwitz. The purpose of the (s)trip to Poland was described in the following terms in the program for the course, which was written in an exceptionally bad Icelandic:

"The first part of the course deals with prejudice, hate and extremist by investigating how prejudice towards Jews and other groups increased during the Nazi era in Germany. During that time policemen were participants in the approach to exterminate Jews, and their role was to implement laws which in fact made Jews "illegal". Actions against Roma-people, people with disabilities, gay people and others was undertaken in the same manner."

The Icelandic Police authorities are still pondering what to do with the three sex-crazed policewomen, who were so "needy" that they had to order a Polish male stripper during a course on hate crimes and genocide. Where these poor women drunk during the course, or does the  Reykjavík police force consist of people with some mental problems which causes need for seeking  saucy sexual services in foreign lands? Whatever the reason is, Icelanders never stop to amaze me.

Back in 2010 some British tourists got high from sexual services in the neighbourhood of Auschwitz-Birkenau, after having visited the camp (see here).

It has to be mentioned, that few years back the Reykjavík Police Force has been engaged in American-Style extreme Police enforcement by using illegitimate emblems (Blue Line and similar symbols) which they had received from extremist colleagues in the USA and Sweden. The emblems had been  attached illegally to their Icelandic uniforms. NO legal measures were taken against the member of the Reykjavík Police that engaged in the American emblem perversities, some of them also active in rouge actions against Roma immigrants in Iceland.

While the Reykjavík Police teaches about the fate of the Roma in Auschwitz, they might consider a discussion about the situation of the Roma people who are living and working in Iceland. 

The questions which must be asked are: 1) Are racists and Nazis still working in the Icelandic Police force? 2) Can Icelandic Police be customers of strippers in other countries, when Icelandic law forbids strip all together?

The real reason for the craving of the three Icelandic Police-women is most likely to be found in the exceptional double standards of their home country. In March 2010, Iceland outlawed striptease under a law passed by the Icelandic Parliament (Alþingi). It is an offence in Iceland, for any business, to profit from the nudity of its employees. No other European country has subsequently implemented a strip club ban. Strip clubs and nudity among their employees remains legal in most of Europe.

Most likely the real problem in Iceland, as usual, are double standards. 


Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu

1415254

Stríðssöngvakeppni Evrópuráðsins er lokið í Reykjavík. Lítil umfjöllun var sem betur fór um þessa ómerkilegu söngvakeppni úti í hinum stóra heimi. En stigin hafa verið talin:

Enginn sigraði líkt og oftast gerist í stríði. Sumir þáðu krampakoSS hjá Kötu. En aðeins einn, Petr Pavel, fyrrverandi hershöfðingi frá Tékklandi, og sonur njósnafulltrúa sem tók mjög virkan þátt í ofsóknum kommúnistastjórnarinnar í Tékklandi 1968, fékk sér SS pylsu með öllum hergögnunum, og pilsner með.

Pétur Páll komst þó fljótt að þeirri niðurstöðu, að Tékkland væri enn fremsta pylsulandið í Evrópu. Hann var einnig lítið hrifinn af nafninu á íslensku pylsunni - og það vantaði súrkál. Pétur Páll, sem er mikill áhugamaður um pylsur, lét þau orð falla, að þetta hlytu að vera pylsur fyrir Íslendinga, enda það sem Danir kalla oft "Dødens Pølse" og vita upp sig skömmina.

Á stórskjá frá Kív birtist Volodymyr líkt og skúrkurinn í Dr. Strangelove forðum, og kvartaði yfir því að hafa misst af SS-pulsunum. Hann hafði þegar fengið sinnepsgas og þakkaði fyrir það, og vildi miklu meira, t.d. nokkrar sendingar af SS-pulsum, sem hann telur vera príma Kosher fæði. Hann vildi halda stríðinu áfram og það vill hin herskáa Evrópa greinilega einnig. Hún er búin að gleyma þýsku SS-pylsudrengjunum og hjálparkokkum þeirra frá ýmsum löndum.

En nú vitum við hvað leynivopn Ísland gaf Zelenskyj: SS-pylsur, fyrir fremstu bragðarefi Evrópu. Þið þekkið þá á brögðunum.

Þetta var svo sem allt sem kom út úr skattfé almennings og helmingi fjárlaga á Íslandi. Hægt var að rannsaka glæpi Rússa, en ekki er til nóg til að rannsaka glæpi Úkraínumanna, og Íslendingar fá frest frá ESB (sem einnig stjórnar öllu í Evrópuráðinu) til að bæta losun sinneps- og hláturgass.

Myndin hér fyrir neðan er tekin af fyrrv. formanni BHM, sem var fylgisveinn Petr Pavels, og er í boði Utanríkisráðuneytisins (Dísu hjá prjónastofu Dísu og Kötu) sem hann vinnur nú fyrir við að staga í græna sokka sem gefnir eru til Úkraínu.

Munið FRIÐINN, sem greinilega var úthýst í tvo daga alla leið út í Örfirisey, fyrrv. óðal ættar minnar.

1415411 Pétur Páll fær sér pylsu


mbl.is Forseti Tékklands fékk sér pylsu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana

Forseti Ukraínu, Volodomir Zelenskyj gekk um borð í ranga flugvél á alþjóðaflugvellinum í Berlín. Hann flaug til Þórshafnar í Færeyjum snemma í morgun, þar sem hann verður næstu 5 daga vegna þoku.

Högni Hoydal hefur bannað öllum dónum flug um eyjarnar þá daga sem Volodymyr býr á Hótel Hafnia í Þórshöfn. Danir skipuðu honum strax að afhenda Úkraínuforseta helming alls fjár til varnarmála í Færeyjum. Högni Hoydal segir, að Færeyjar megi ekki við því að missa 1000 kr. úr varnamálafjárlögunum eyjanna.

Þar sem mjög lítið kosherfæði fyrir gervigyðinga er á boðstólum í eyjunum, þá bíður Hoydal Zelenskyj til hátíðarmáltíðar á Fish & Chippastandinum á Vaglinum kl. 19 í kvöld, þar sem Volodymyr verður afhent myrkamógræn troyggja með krossi. Á Vaglinum hittir Volodymyr einnig hóp íslenskra gamalmenna sem ganga við staf um söguslóðir Færeyingasögu. Katrín Jakobsdóttir hefur hvatt gamlingjana til að gefa Zela lífeyri sinn út þennan mánuð.

Volodymyr upplýsir fréttaveitur Reuters og Drónans, að honum þyki fyrir þessum mistökum. Zeli bætir við, að skattfé Íslendinga, (það sem eftir er), sé sem áður hægt að leggja inn á reikning Zelenskyjs í Flórída. Katrín Jakobsdóttir tekur einnig á móti persónulegum aukafjárframlögum, sem öll verða sett inn á öruggan reikning Zelenskyjs í Banaríkjunum.

Heimild: D(r)óninn


Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu

Screenshot 2023-04-12 at 13-19-35 Antisemitism’s deep roots Horsey cartoon

Þann 3. apríl sl. birti ég hér á þessu bloggi, sem og á Moggabloginu Fornleifi, grein um bloggsíðu íslensk sálfræðings, Arnars Sverrissonar, sem síendurtekur hatursræðu af þeirri gerð sem varðar við íslensk hegningarlög. Í þessu tilfelli var hatursræðan gyðingahatur.

Ég hafði samband við umsjónarmann bloggsins, sem ekki svaraði erindi mínu. Í ljós kom að nýr maður sér nú um bloggið og virðist hafa aðrar áherslur en forverar hennar. Gagnrýni á blaðamenn Morgunblaðsins er t.d. ekki leyfð án ákveðinna aðgerða.

Síðan ég ritaði um hatursræðu á bloggi Arnars Sverrissona, hafa aðrir lýst furðu sinni á hatri bloggs hans - og að það sé yfirleitt mögulegt að dreifa gyðingahatri af verstu gerð á blog.is. Þeirra á meðal var hinn dómharði Egill Helgason. Já, jafnvel frjálslyndustu menn geta fengið nóg.

Blogg geta verið vandmeðfarið verkfæri. Hins vegar er það gífurlega gefandi, ef fólk heldur sig frá að nota þennan ágæta vettvang sem frjáls fjölmiðill á Íslandi veitir fólki, til að tjá hatursfullar skoðanir sínar. Fáir eru sammála um alla hluti, en hatur er ekki umræða. Hatur er andleg uppgjöf.

Sumt fólk getur þó greinilega ekki tjáð sig nema með hatri og ofstæki. Slíkt fólk þarf að ráðast á minnihlutahópa í þjóðfélaginu, líkt og Arnar Helgason gerir, er hann svínar gyðinga til - eða þegar hann hraunar yfir fólk með aðra kynímynd en þessa gömlu góðu með tveimur kynjum, sem lifa í ólýsanlegri lukku til æviloka og nota aðeins eina stellingu - fyrir jólatréð sitt.

Sem ábyrgðarmaður tveggja blogga á Moggablogginu, langar mig hér opinberlega og vinsamlegast að biðja umsjónarmann blog.is að kynna sér hatursræðuna á bloggi Arnars Helgasonar. Arnar sér greinilega ekki, að hann geri nokkuð rangt. Ég vona að umsjónamaðurinn geri sér grein fyrir því að margt af því sem Arnar hefur skrifað að undanförnu varðar örugglega við hegningarlög.

Kannski er gyðingahatrið sem leyfist á Moggablogginu birtingarmynd einhvers, sem nú gerjast í íslensku þjóðfélagi, en ég trúi því og treysti að lögbrot þau, sem Arnar Sverrisson fær að stunda á blogginu, séu ekki almennt talin vera eðlileg umræða á Morgunblaðinu. Mæli ég með því að umsjónarmaður bloggsins hafi samband við lögfræðinga fjölmiðilsins og leiti ráða hjá þeim ef hún er í vafa um lagalegu hliðina.

Blog.is er vissulega litskrúðugur garður sem flestir eru þakklátir fyrir. En því miður er farið að bera á ofvexti á hægri öfgum og af og til á mikilli blómstrun á hatursrósum. Kannski er það það sem Morgunblaðið óskar í þjóðfélaginu á 21. öld?

Davíð, þú reddar þessu.


Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband