26.5.2012 | 07:45
Sönglkeppni Stór-Evrópu að niðurlotum komin
Við getum ekki ætlast til þess að grillbrúnaðar ljóskur frá Íslandi, með hrossatennur, hafi vit til þess að sjá, að þær taka þátt í mannréttindabrotum Azerbaijans með því að syngja Never forget í 40 þóknanlegum stíltegundum ofan á rústum fátæklinganna í Bakú.
Jónsi og Gréta Salóme geta auðvitað ekkert gert að því að blondínur hafi einatt bláeygð gen og geti hvorki hugsað gagnrýnið, afstætt né sjálfstætt. En Amnesty International er hins vegar of seint á ferðinni í mótmælum sínum, og sér til skammar sem oft áður.
Eins vegar vekur það undrun manns, að fulltrúi Íslands hjá ECRI, hinn hjartahreini síra Baldur Kristjánsson, í Þorlákshöfn, geri ekki neitt út af málinu hjá ECRI. Azerbaijan er einnig meðlimur í þeirri stofnun sem berjast á gegn kynþáttafordómum og öðru óþoli og mismunum og órétti fyrir Evrópuráðið (Council of Europe). Baldur blandar oft saman Samfylkingarpólitík og ýmsum öðrum hlutum, og ætti því að geta haldið eldræðu yfir Salóme og Jónsa sem eru að skemmta lýðnum, meðan Azerbaijönsk yfirvöld traðka á honum fyrir utan loftkælda söngvahöllina í Bakú.
Er annars nauðsynlegt að hafa Síra Baldur á endalausum mannréttindafundum í Strasbourg ef hann gerir ekkert neitt á Íslandi nema verja Samfylkinguna og sjálfan sig gegn offorsi Vantrúarfylkingarinnar, og það jafnvel þótt almenningur þessa lands finnist hann fótum troðinn eins og fólk í Azerbaijan. Með botnrotna íslenska stjórnmálamenn og löggu on the teik er ekki við öðru að búast en að brátt verði farið að berja á Íslenskum "lýð"sem leyfir sér gagnrýni á Jóhönnu og áhöfn hennar TF-HOR.
Söngvakeppni Evrópu ber að leggja niður. Þetta er, og hefur lengi verið, dýr skrautsýning fyrir tildurrófur, fábjána og kjánalega uppblásinn þjóðernisrembing fyrrverandi Austantjaldslanda.
Meginflokkur: Ómenning | Aukaflokkar: Mannréttindi, Menning og listir | Breytt s.d. kl. 12:38 | Facebook
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 6
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 76
- Frá upphafi: 1352817
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 60
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
"Við getum ekki ætlast til þess að grillbrúnaðar ljóskur frá Íslandi, með hrossatennur, hafi vit til þess að sjá...... Jónsi og Gréta Salóme geta auðvitað ekkert gert að því að blondínur hafi einatt bláeygð gen og geti hvorki hugsað gagnrýnið, afstætt né sjálfstætt...."
Þarna talar semsagt maðurinn sem er stöðugt að berjast gegn kynþáttafordómum, a.m.k. þegar þeir að hans mati beinast gegn gyðingum. Hvernig þætti þér Vilhjálmur ef þessum texta væri snúið upp á fólk af gyðinglegum uppruna, það væri ekki fallegt er það? Skiftir kanski máli hver kynþátturinn er? Það fanst nazistunum a.m.k. það skyldi þó aldrei vera að þar ættirðu skoðanabræður, ja, svona í prinsippinu!
Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 26.5.2012 kl. 09:35
Sérstaklega ósmekklegt og illa orðað. Svona skrif segja meira um hversu þú ert illa haldinn af fordómum og illa þenkjandi yfirleitt...........
Jóhann Elíasson, 26.5.2012 kl. 10:00
Bjarni ertu kannski ljóshærður, góurinn?
Svona til upplýsingar þá eru ljóskurekki skilgreindar sem kynþáttur, og ég er ekki einu sinni viss um að Samfylkingarfólk sé kynþáttur, þótt ég sé stundum í vafa. Svo vantar mig sýni til að vera viss um að hún Gréta Salóme sé ekta ljóska. Hennar löngu lokkar eru dálítið einkennilegir á litin. Man ekki hvað númer þessi litur hefur, en hann er ekki tengdur neinum kynþætti sem ég hef lært um.
Ég veit ekki alveg hvert þú ert að fara, en þessi færsla mín kemur gyðingum einfaldlega ekkert við, nema að þeir séu tilbúnir að mótmæla óréttlæti í Azerbajan.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 26.5.2012 kl. 10:01
Jóhann, ég vona að fólkið sem er barið í Bakú muni aldrei gleyma þér. Never forget!
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 26.5.2012 kl. 10:02
Þú ert nú meiri "rugludallurinn".....................
Jóhann Elíasson, 26.5.2012 kl. 10:29
Vilhjálmur; verulega ósmekkleg færsla hjá þér og illa vegið að okkar fólki.
Gef þér gott ráð; vertu bara í þinni fýlu en haltu henni innandyra hjá þér og lokaðu öllum gluggum.
Það væri ýmislegt hægt að setja út á þitt útlit en ég sleppi því að þessu sinni.
Það er fullt af fólki sem hefur gaman af þessari keppni og bara hreinlega ekkert að því.
Láki (IP-tala skráð) 26.5.2012 kl. 10:43
Já það er sannarlega víða pottur brotinn. Það er til dæmis alveg lygilegt hvað þér lætur vel að hæðast að og draga dár að hverjum þeim sem verður á vegi þínum og er ekki af kynstofni hinna útvöldu. Það var líklega einmitt þetta sem gyðingurinn Jesú var að meina um þegar hann talaði um manninn sem sá flísina í auga náungans, en ekki bjálkann í sínu eigin auga. Þú sérð mannréttinda-brot og gyðingahatur út um allar jarðir, nema í Fyrirheitna landinu, en þar er víst "allt til fyrirmyndar og í stakasta lagi"
Jónatan Karlsson, 26.5.2012 kl. 11:09
Ykkur smekkmönnunum hér að ofan, sem eruð greinilga mikið að velta kynþáttum fyrir ykkur, (sem ég nefndi reyndar ekki á nafn í bloggi mínu) er vonandi ljóst að mannréttindi eru fótum troðin í Azerbaijan? Kannski að fréttaflutningur RÚV sé orðinn svo lélegur, að slíkt sé ekki nefnt.
Útlitið kemur þessu máli ekkert við. Það er innrætið sem er skítt, og það er líka ljótt hjá ykkur og þeim sem tilbúnir eru að syngja "Never Forget", þegar minnið er eins og gatasía.
Í stað þess að mótmæla Eurovision í fasistaríki, eruð þið tilbúin að svína yfir almenning í Azerbaijan, þar sem mannréttindi eru fótum troðin, og eruð þar að auki með rasistaskítkast út í fólk sem hefur aðrar skoðanir en þið.
Ljóskur eru ekki kynþáttur og heldur ekki trúarbrögð. Ég skrifaði ekkert slíkt.
Never Forget!!! Munið þið hvað fólkið sem dýrkaði "ljóshærða kynstofninn" gerði fyrir um 70 árum í Evrópu?
Nei. ekki býst ég við því. Syngið bara með á viðlaginu með Grétu Salóme og Jónsa meðan fólk er barið bak við höllina.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 26.5.2012 kl. 12:02
Já Vilhjálmur ég játa, ég var einu sinni ljóshærður, svo reyndar dökkhærður og svo núna að verða gráhærður langt fyrir aldur fram finst mér a.m.k. Þú rærð undir gamla fordóma gagnvart ljóshærðum konum vegur að fólki á grundvelli útlits, svo sem hvernig tennurnar eru og það hafi eitthvað að gera með gáfnafar þess. Svo segirðu blákalt að fólk með gen fyrir bláeygum augnlit (ég er bláeygður og tek þetta m.a. til mín) geti ekki hugsað gagnrýnið, afstætt né sjálfstætt.
Hvað þetta hafi að gera með gyðinga, það er furðulegt að þú skulr spyrja. Hvað sögðu t.d. nazistarnir um gyðinga, hvernig litu þeir á þá?
http://www.ushmm.org/wlc/en/article.php?ModuleId=10007457
"To define a race, the social Darwinists affixed stereotypes, both positive and negative, of ethnic group appearance, behavior, and culture as allegedly unchangeable and rooted in biological inheritance..."
Hevernig er það Vilhjálmur lítur þú á Gyðinga sem yfirburðaþjóðflokk en fólk af germönskum stofni (t.d. ljóshært og bláeygt) sem hafi ekki "vit til að sjá" og geti ekki hugsað gagnrýnið,afstætt eða sjálfstætt?
Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 26.5.2012 kl. 12:05
Get alveg verið sammála þér að ekki sé mikið varið í söngvakeppnina og mannréttindabrot eru ömurleg hvar sem þau eiga sér stað og gegn hverjum sem þau beinast, enn það er alveg óþarfi af þér að blanda þínum eigin kynþáttafordómum inn í gagnrýni á meint mannréttindabrot!
Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 26.5.2012 kl. 12:28
Bjarni Gunnlaugur, spurningar þínar eru svo kjánalegar, að það tekur því ekki að svara þeim, en ég á marga vini sem eru ljóshærðir gyðingar, og sem og aðra ljóshærða kunningja og vini. Ég lít ekki á þá sem kynþátt.
Ég endurtek: ljóskur eru heldur ekki "kynþáttur", trúarbrögð eða "ethnic group". Það sem þér hefur tekist að lesa út úr orðum mínum bendir til einhverrar áráttu.
Ég skal segja þér hvað ég móðgaði hjá þér Bjarni Gunnlaugur. Það var Þjóðerniskenndin.
Svei mér þá, ég held að þú sért á góðri leið að sanna fyrir alþjóð að ljóskur, karlkyns og kvenkyns (ég geri engan greinarmun á), séu oft frekar tregar til skilnings.
Fólk, sem telur að það sé með allt á hreinu inni í tónleikahöllinni í Bakú, og hefur enga samvisku gagnvart því sem úti fyrir gerist, hugsar hvorki gagnrýnið, afstætt né sjálfstætt.
Nú vill svo til, að ljóskan sem syngur fyrir Ísland sagði í gær, að hún blandaði sér ekki í stjórnmál. Þegar helstu dýrkendur þeirra ljóshærðu voru að drepa milljónir mann í Evrópu, voru líka milljónir ljóska sem sögðu það sama og hún Gréta Salóme.
Með því að líta til hliðar þegar náungi manns er drepinn, svívirtur eða fjarlægður, þá er maður siðferðislega afvegaleiddur.
Gyðingar eru fyrst og fremst meðlimir í trúarhóp, en meirihluti þeirra er af mjög blönduðum uppruna, sem blandast hefur þar sem hann hefur dreifst um heiminn meðal annar vegna haturs þeirra sem sáu ekki neitt nema einn guð, einn sannleika, einn keisara og meira segja einn yfirburðaháralit, þann sem valist hefur út sem algengasti háraliturinn á Íslandi vegna lítilsháttar skyldleikaræktar. Það síðastnefnda getur einnig valdi tregðu í almennum skilningi.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 26.5.2012 kl. 12:31
Ég geri ráð fyrir að fýla þín væri látin afskipta laus ef þú værir ekki að dreifa henni. En hversvegna er þér svo mikið í nöp við Íslensku flytjendurna þarna Baku? Söngvakeppnin veldur því að þarna koma saman margir fréttamenn sem sjá og skilja og eiga svo eftir að vinna úr á næstu vikum og mánuðum. Erindi íslensku fulltrúanna er ekki að blanda sér í innanlands pólitík í Azerbaijan, þeir eru ekki pólitískir fulltrúar okkar íslendinga.
Hrólfur Þ Hraundal, 26.5.2012 kl. 13:33
Það er einmitt það, þú klikkir út með að fitla við eitt af uppáhaldshugtökum nazistanna,úrkynjuninni sem m.a. getur orðið við skyldleikaræktun! Mikil er aðdáun þín á þessum ómennum!
Ég held Vilhjálmur að þú sem stórfróður maður og víðlesinn gætir víkkað sjóndeildarhring okkar margra mörlandanna, varðandi t.d. sögu gyðinga,ástandið við botn Miðjarðarhafs og svo maður tali nú ekki um lifandi greinar um fornminjar en til að auka trúverðugleika þinn þá mæli ég með því að þú dragir úr fordómum,illmælgi,hlutdrægni,heiftrækni,áróðri og mögulega almennri geðvonsku. Þá ferðu kanski að verða lesandi.
Bendi þér svo vinsamlegast að lesa stórgóðan pistil Ómars Ragnarssonar um svipað efni þ.e að blanda ekki saman pólitík og ólimpíuleikum (nú eða evrovision)
http://omarragnarsson.blog.is/blog/omarragnarsson/#entry-1241931
Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 26.5.2012 kl. 13:37
Ertu eitthvað ergilegur yfir að Ísrael komst ekki í úrslit með rehash af Nina pretty Ballerina, sem Abba samdi fyrir einhverjum áratugum síðan? Er svona Ad hominem árás á keppendurna til að bæta örlítilli sætu í þá beiskju?
Hvar er nú metnaður Ísraelsmanna? Hvar er þjóðernisrembingurinn sem skein svo vel í Hallelújah forðum? Hvar er allt þetta A Ba Ni Bi?
Jón Steinar Ragnarsson, 26.5.2012 kl. 14:05
Ég er samt sammála þér í heildina að þessi keppni er að niðurlotum komin. Andlaus kakófónía og óoriginal. Þegar ég hlustaði á þetta, var ekki einn hljómur sem greip og ég spurði sjálfan mig hvort þetta væri virkilega creme de la creme af tónlistarsköpun heillrar heimsálfu. Það er virkilega niðurdrepandi tilhugsun og varla virði landtöku yfirvalda í landinu undir tröllvaxinn lampaskerm.
Jón Steinar Ragnarsson, 26.5.2012 kl. 14:42
Konukornið sem á að syngja hefur rétt fyrir sér. Menn eiga ekki að blanda sér í það sem fram fer í fjarlægum löndum, ef stjórnvöld þar eiga enga íslenska stuðningsmenn, eins og hér er raunin. Allt öðru máli gegnir um þær stjórnir sem hafa átt og eiga skipulega hópa Íslendinga, sem réttlæta og styðja ódæðin og vilja jafnvel koma kúgunarkerfinu á. Hér hafa í marga áratugi verið starfandi hópar og heilir stjórnmálaflokkar sem hafa stutt og réttlætt alræðiskúgun. Það merkilega er, að margt af þessu fólki hefur jafnframt alltaf hrópað hæst allra um „lýðræði“ og „mannréttindi“. „Vináttufélög“, sem forsprakkar íslenskra vinstri manna hafa stofnað við t.d. Norður- Kóreu, Kúbu, Austur- Þýskaland o.fl. o.fl. eru ágætt dæmi um Íslendinga, sem styðja miskunnarlausa kúgara og böðla með alveg óumdeilanlegum hætti. En sem fyrr sagði finnst mér allra verst að þurfa að sitja undir hrópum þeirra í háværri síbylju um „lýðræði“ og „mannréttindi“.
Vilhjálmur Eyþórsson, 26.5.2012 kl. 15:21
1936 fjarlægðu nasistar Roma-fólk (sem þá voru kallaðir sígaunar) og fluttu þá út fyrir Berlín, svo gestir og nasistar á Ólympíuleikunum yrðu ekki varir við fólkið sem síðar var tekið af lífi. Það sama er gert með "óæskilegt" fólk í Azerbajan og við vitum lítið um afdrif þess fólks.
Jón Steinar, ég horfi ekki á þennan ósóma og skil ekkert í Ísrael að taka þátt í þessu í heimsálfu þar sem gyðingar eru enn hataðir. En ef þarna var sungið eins og oft áður er þetta ekki ómissandi skemmtun fyrir mig.
Að blanda ofbeldi og kúgun ofan í listrænan hroða er einfaldlega of mikið fyrir mig. Skemmtikraftar eins og Ómar Ragnarsson geta greinilega skemmt sér í höllinni Bakú, meðan menn eru slegnir niður fyrir utan. Það segir nú mest um Omma eða alla þá homma sem sækja í þennan ófögnuð eins og mý á mykjuskán.
Nafni, lýðræði og mannréttindi eru til, en það er ekki of mikið af því þarna í austasta afkima Evrópu. Þeir eru enn undir hæl Sovétsins og haga sér enn á sama hátt og lögregluveldið þar gerði.
Ad Hominem athugasemd á einmitt við hér, þar sem konan sem ég m.a. nefni segist ekki blanda list sinni saman við pólitík, þó svo að pólitíkin í því landi sem hún singur í sé ískyggileg fantastjórn.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 26.5.2012 kl. 15:37
Ég endurtek: Stjórvöld í Aserbajistan eiga ekki hópa íslenskra stuðningsmanna, sem helst vilja koma kúgunarkerfinu á eins og t.d. liðsmenn Kúbuvinafélagsins hér, sem enn starfar á fullu. Ég er yfirleitt á móti afskiptum af innanríkismálum í öðrum löndum, því mér leiðast vandlætarar og siðapostular. Öðru máli gegnir þegar Íslendingar styðja viðurstyggðina, eins og raunin er. T. d. fór Birna Þórðardóttir alla leið til Norður- Kóreu til ð krjúpa við fótstall böðulsins og vegsama hann. Ekkert slíkt er á ferðinni í Bakú.
Vilhjálmur Eyþórsson, 26.5.2012 kl. 15:43
http://azerireport.com/index.php?option=com_content&task=view&id=3606&Itemid=42
NEVER FORGET
Hrólfur Hraundal, íslensku þátttakendurnir eru að styðja stjórn einræðisherrans í Azerbaijans. Íslenskar blondínur sem ekki sjá ósómann, hafa stóreflt völd ógnarstjórnar í Azerbaijan, vegna þess að þær vilja halda partí, og vilja ekki láta einhver mótmæli stöðva það.
Það er vestræn samkennd og mannréttindatilfinning í hnotskurn. Innantómt húmbúkk.
Jón Steinar nú, NEVER AGAIN!
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 26.5.2012 kl. 15:46
Rangt Vilhjálmur Eyþórsson, allir þeir sem horfa á þetta ruslasjóv styðja einræðisherrann og ógnarstjórn hans í Azerbaijan! Það eru miklu fleiri en nokkru sinni voru í Kúbuvinafélaginu.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 26.5.2012 kl. 15:47
Hvað bölvað bull er þetta í þér nafni minn sæll. Ekki styð ég ástandið þar eystra og horfi þó á úrslitin. (ég meika ekki að hlusta á „músíkina“). Það er auðvelt og ódýrt að jesúa sig yfir ranglæti heimsins. Hitt er verra þegar Íslendingar taka sig saman um að styðja viðbjóðinn og þó allra, allra verst að þurfa að sitja undir því að þessir sömu Íslendingar hrópa hæst allra um „lýðræði“ og „mannréttindi“. Þannig eru nú liðin um þrjátíu ár síðan ég varð þess var að forkólfar í fyrrnefndum „vináttufélögum“ voru orðnir áberandi, ef ekki beinlínis ráðandi í Amnesty.
Vilhjálmur Eyþórsson, 26.5.2012 kl. 15:54
Þetta er þá bara eins og fótbolti í þínum augum, VE ... ég skil.
Ég vona ekki að þú sért fylgjandi fjarlægingu mannréttinda og lýðræðis, því þá værir þú efnilegur í skinheilagleika Samfylkingarinnar og VG.
En er ekki stundum margt líkt með ykkur á vinstri og hægri vængsprotanum. Mér sýnist það, þar sem mér er skipað að vera, aftan við mark.
Framtíðin mun fordæma eigingirni og skemmtanarfíkn Íslendinga árið 2012 sem vann yfir samkennd með kúguðum þjóðum.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 26.5.2012 kl. 16:03
Annars eru Aserar tyrkneskættaðir múslimar og má gera ráð fyrir því að svonefndir „mótmælendur“ séu af sama sauðahúsi og „vormenn Islams“ í „arabíska vorinu“ svokallaða, þ.e. fyrst og fremst islamistar. Nái þessir „mótmælendur“ sem „mannréttindin“ er svo voðalega brotin á, völdum má ganga út frá því að gyðingar þurfi ekki að kemba hærurnar.
Vilhjálmur Eyþórsson, 26.5.2012 kl. 16:06
Jæja, nú er sjóvinu lokið, og ég hlustaði með öðru eyranu á stigagjöfina.
Ef Greta Solóme og Jónsi hefðu gagnrýnt vel og lengi, líkt og sænski þátttakandinn í Eurovision Söngvakeppninni, þá hefðu þau líklega unnið, því ekki var lag hennar mikið merkilegra en það íslenska, aðeins þó.
Gagnrýni er holl, og í lokinn getur sá sem gagnrýnir staði uppi sem sigurverarinn.
Gagnrýnum ESB!
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 27.5.2012 kl. 04:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.