Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Kynning

Rænt frá barni - peði fórnað fyrir "drottningu"

 
Miyoko Ono Fischer

Stöð 2 heldur því fram að Miyoko Watai hafi verið löglega gift Fischer og að dóttirin, Jinky Fischer á Filippseyjum, eigi ekki heimtingu á grænum eyri.

Ef Watai var löglega gift Fischer, gerðist það eftir ágúst 2004 og reyndar eftir að hann kom úr fangelsi í Japan og fór til Íslands. Sbr. gögn á þessari síðu . Það er að segja á Íslandi, og því hljóta íslensk yfirvöld að hafa pappíra sem sanna að til hjúskapar hafi verið stofnað. Gaman væri að sjá þau gögn.

140 millur og íbúð til japönsku konunnar og ekkert til barns Fischers. Þetta mál á líklega eftir að draga dilk á eftir sér.

Í erfðalögum 1962 nr. 8 fæ ég ekki séð hvernig er hægt að sniðganga barn Fischers, nema að hún hafi haft í hótunum við hann og misgert erfðarétti. Hún er 7 ára.


Hverju hafa Katarar áhuga á?

 
Emir, Emir and Vesir

Ég er hér með góða útflutningshugmynd fyrir Íslendinga. Í Quatar er mikil eftirspurn eftir fálkum.

Vinur minn, hann Al Ali í Qatar, kaupir fálka. Opnið heimasíðu Alis og sannfærist. Hann er svo sannarlega Smooth Operator.

Össur getur örugglega gefi nokkrar undanþágur á Íslandsfálka til Quatar. Undanþágur á friðanir eru hans sérgrein (meira um það seinna). Hér er upplýsingasíða þar sem Össur getur fundið sér upplýsingar á áhuga Katara.

 

Emírinn og Íslendingurinn
Þetta er mynd af verndara Qatar og friðaða fuglinum hans

Svo er líka hægt að gefa Emírnum fálkaorðuna!

 


mbl.is Stjórnvöld í Katar hafa áhuga á náinni samvinnu við Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SVINDL HABIBI - Fjölmiðlasirkus Hamas

Hér er myndasyrpa frá Gaza. Ísraelsmenn halda því fram að "hörmungarnar" hafi verið settar á svið. Eitt er víst að Hamas lokuðu sjálfir fyrir raforkuverið, sem Ísraelum var kennt um að hafa stöðvað vegna tímabundinnar lokunar á birgðir til Gaza. Hvenær mun RÚV segja frá því?

En skoðum nú nokkrar myndir frá Gaza. Reuters og AP fréttastofurnar er heimildirnar. Kl. 6.49 í gær 22. janúar var þessi mynd tekin.

Svindl Habibi 2

Myndin sýnir þing Hamas við kertaljós. En huggulegt! Hvernig væri að draga frá gluggatjöldin. Það er hábjartur dagur, eins og sést á myndinni. Lesið svo hvað Reuters skrifar við myndina: "Palestinian lawmakers attend a parliament session in candlelight during a power cut in Gaza January 22, 2008."

Hér eru aðrar myndir frá sömu samkomu og undir tíminn sem gefinn er af ljósmyndaranum og fréttastofunni:

Svindl Habibi 3

Reuters 6:23 um morguninn 22.01.2008

Svindl Habibi 5

Reuters 6:22 um morguninn 22.01.2008

SVINDL HABIBI

Reuters 6:16 um morguninn 22.01.2008

Það er farið snemma á þing á Gaza. Öfgar eða fjölmiðlashow?

Hér eru svo myndir sem teknar voru sama dag, í sama húsi. Enn er myrkur á Gaza klukkan að verða 10 um morgun. 

Svindl 8

Reuters 9:29 um morguninn 22.01.2008

Habibi Svind 7

AP 9:50 um morgunninn 22.01.2008

Svindl Habibi 4

Reuters 9:28 um morguninn 22.10.2008

Það er ekki nema von að þessir menn geti ekki stöðvað árásir Hamas á Ísrael. Þeir geta ekki einu sinni dregið gluggatjöldin frá.

Hér getið þið skoðað myndirnar og ég mæli með þessu


ÞýSSki vandinn

Maðurinn með krossinn

Á síðasta ári minntist ég á eftirlýstan danskan nasista, Søren Kam, og þátt minn í að upplýsa að glæpir hans voru fleiri en að skjóta danskan ritstjóra til bana. Sjá hér og hér.

Kam var liðsmaður í Waffen-SS og einn tveggja Dana sem fengu járnkrossinn fyrir frammistöðu sína á austurvígstöðvunum. Í síðustu færslu minni laðaði ég að röndótta fiskiflugu úr vesturbænum í Reykjavík, KR-ing, sem heldur því blákaldur fram að SS-liðar hafi bara verið óbreyttir hermenn og heiðursmenn. Skrítið að menn geti dáðst að þessum skíthælum.

Nýlega birti BBC viðtal við Soeren Kam, þar sem hann skokkaði um með göngustafi, 86 ára unglingurinn, frjáls ferða sinna í Bæjaralandi. Hann lýsti klökkur yfir sakleysi sínu og ást sinni á gyðingum. Þýsk yfirvöld virðast líka staðráðin í því að friða hann. Hann neitaði auðvitað harðlega að hafa gert svo mikið sem einum gyðingi mein. Hann var bara hermaður og gentelman. Eitt morð, hvað er það á milli vina? Honum var lýst á annan hátt við vitnaleiðslur eftir stríð í Danmörku. Þýsk yfirvöld ætla að virða það að vettugi.

Professor David Cesarani skrifaði líka um málið nýlega í The Guardian. Ég setti inn smá athugasemd og leiðréttingar við skrif Cesaranis, sem tíndust kannski meðal allra húmanistanna og gyðingahataranna, sem skrifa athugasemdir um allt annað en það sem blogg Cesaranis fjallar um.

Fyrir utan ýmsan óskunda á ættjörð sinni barðist Soeren Kam fyrir Hitler og framlengdi þar með hörmungar annarra. Allir Waffen SS-menn voru dæmdir stríðsglæpamenn, en margir þeirra sátu aldrei inni.

Það er Þýskalandi til háborinnar skammar að vernda danskan morðingja.

Myndin sýnir Kam á SS-teiti fyrir nokkrum árum og sýnir að hann er enn stoltur af Járnkrossinum sínum.


Stórlaxinn og Íslandsvinurinn Uffe Ellemann-Jensen

 

Uffe Ellemann Jensen in Estonia

 

Íslandsvinurinn Uffe Ellemann-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmörku, (sem upphaflega var blaðamaður eins og Gandhi hér í færslunni fyrir neðan), á marga vini á Íslandi.  Á Íslandi hefur Uffe Ellemann Jensen nokkrum sinnum rennt línu fyrir lax og telur sig þess vegna þekkja Íslendinga út og inn. 

Uffe yfir höfði sér dómsmál. Í stjórnmálum hefur karlinn verið gjarn á að renna á rassinn. Nú hefur það gerst enn einu sinni. Ellemann-Jensen er nefnilega gjarn á að snapa sér ódýra punkta í stjórnmálum, og jafnvel oft á skjön við pólitík þess flokks sem hann er meðlimur í, og sem hann sat á þingi fyrir. Það er eins og kunnugt í tísku að hallast að siðferðilegri afstæðishyggju og vera pólitískt korrekt og jafnvel sætta sig við öfgahyggju fjarlægra þjóða. Þegar Ellemann-Jensen sá að gjörvallur heimur múslíma var að brenna danska fánann og nokkur sendiráð Danmörku, ákvað hann að gerast "heiðursíslamisti" og ákæra ritstjóra á danska dagblaðinu Jyllands-Posten fyrir að hafa vísvitandi beðið 10 teiknara um að "teikna skopmyndir af Múhameð fyrir blaðið".  Þessu hélt hann ítrekað fram í opinberum fyrirlestrum og síðast í ævisögu sinni "Vejen, jeg valgte" sem út kom í lok síðasta árs.

Þessi ummæli hefur hann nú endurtekið í útvarpsþætti, sem fer í loftið síðar í mánuðinum og hafa forsvarsmenn Jyllands-Posten krafist þess að fá að svara ásökunum í útsendingunni. Þeirri ósk hefur verið hafnað af Danska Ríkisútvarpinu. Uffe-Ellemann ullar bara framan í ritstjóra blaðsins og segir þeim að fara í mál við sig. Hann heldur því fram, að þegar blað biður skopteiknara um að teikna teikningu, þá fái blaðið skopteikningu.

Jyllands-Posten heldur því hins vegar fram, að teiknurunum "hafi verið boðið að teikna Múhameð, eins og þeir sæju hann og að árangurinn yrði birt næstu helgi", og er það bókfest. Nú íhugar Jyllands-Posen málaferli geng laxveiðimanninum Uffemanden, sem hann er oft uppnefndur hér í Danmörku.

Uffe er maður meininga sinna, og fer greinilega ekkert ofan af þeim, nema að verða höggvinn með korða hermannsins eins og hundurinn með augu svo stór sem Sívalaturn, sem sat á fjársjóðnum undir hola trénu í ævintýri H.C. Andersens.

Fyrir nokkrum árum kom Uffe Ellemann-Jensen fram í sjónvarpsþætti um baltnesku ríkin, Eistland, Lettland og Litháen, þar sem hann lýsti vinsældum sínum þar, sem ekki munu vera minni en frægð hans Jóns Baldvins okkar. Í einni senu þessa þáttar stillti Uffe Ellemann sér upp við minnissteina um SS-menn í Bláfjöllum (Vaivara Sinimäed) í Eistlandi og lýsti af mikilli hlýju og andargift hversu fræknir þessir Waffen-SS liðar höfðu verið og hve misskildir þeir væru. Þetta fór fyrir brjóstið á mörgum hér í Danmörku og einnig á þeim sem misstu fjölskyldumeðlimi í búðum, þar sem Eistlendingar, Lettar og Litháar voru böðlar. Enginn Dani eða gyðingur brenndi þó sendiráð og hótaði að drepa Uffe og dönsku þjóðina fyrir þessi ummæli hans.

Ég skrifaði árið 2002 til sendiráðs Dana í Eistlandi og spurðist fyrir um þessa steina og um hvort dönsk yfirvöld gætu ekki hugsað sér að vinna að því að bautasteinarnir yfir morðsveitir SS yrðu fjarlægðir.  Viti menn, í stað þess að fá bréf frá sendiherranum eða utanríkisráðuneytinu í Kaupmannahöfn, fékk ég viðskotaillt bréf, sem lá við hótun um málsókn, frá Uffe Ellemann Jensen himself, þar sem hann endurtók lof sitt á Waffen-SS og gerði því skóna að ég væri með í samsæri gegn sér. Ég varð að skúffa Úffa með því að ég væri bara einn á báti.

ER manni, sem er einlægur aðdáandi Waffen-SS, stætt á því að gangrýna danskt dagblað fyrir að biðja skopteiknara um að teikna Múhameð?  Hvaða veruleikabrengl hrjá laxveiðimanninn og Íslandsvininn Uffe Ellemann-Jensen?

 

Hanged by SS

Mér sýnist, þegar öllu er á botninn hvolft, að Uffe Ellemann-Jensen sé bara spældur tækifærissinni og aðdáandi einræðis (tótaleterisma), sem hefur orðið viðskila við flokk sinn, Venstre, vegna þess að hann varð ekki forsætisráðherra. Aðalvandi hans er þó örugglega, að hann er bara blaðamaður. Blaðamenn verða sem betur fer ekki oft forsætisráðherrar, nema að illt hljótist af, en í stjórnmálum geta þeir gert mikinn usla. Fólk ætti ekki að kjósa yfir sig einhvern, sem hefur haft tök á því að dáleiða það í sjónvarpinu í nokkur ár á undan.

Myndin efst er af Uffe við einn minnissteinanna um hina fræknu hermenn SS. Hin myndin sýnir stúlku, Lepa Radic, sem SS menn hengdu 19 ára gamla í Bosanska fangabúðunum í Bosníu. Myndin fannst í fórum dansks SS manns sem handtekinn var í stríðslok. Danski SS-maðurinn útskýrði við yfirheyrslur: "En það var ekki ég sem hengdi hana upp". Ætli drengurinn sá hafi verið einn af þeim "professionelt/teknisk gode soldater" sem Ellemann-Jensen rómaði í bréfi sínu til mín dags. 28. águst 2002?

Uffe Ellemann-Jensen hefur ekki beitt sér fyrir því að minnissteinarnir um SS-menn í Eistlandi yrðu fjarlægðir. Forseti Eistlands svaraði heldur ekki bréfum mínum árið 2002. Kannski vill Ingibjörg Sólrún gera eitthvað í málinu?

Myndin  hér fyrir neðan er frá hátíðarhöldum aldinna SS-manna i Eistlandi síðasliðið sumar. Hvers konar land er Eistland eiginlega?

 

SS Estonia 2007


Íslam á Njálsgötunni

Dansk grín 

Kjaftasíðan visir.is, sem er aðalheimild mín í dag, greinir frá bókakynningu í dag í einhverri holu á Njálsgötunni, þar sem menn telja sig vera avant garde, en eru það ekki.

Þarna á Njálgsgötunni verða hengdar upp myndir og gert grín af því sem Íslendingum þykir heilagast. Væntanlega myndir af SS-pulsum og fínu bílunum. Ha,ha, ha. Þetta er gert í samstöðu við Íslam og vegna "hættulegra einfaldana í umræðunni um Íslam á Íslandi og víðar í heiminum".

Myndin hér að ofan er eftir Lóu Hlín og er með í bókinni sem á að kynna. Lóa hefur greinilega verið í Bónus að versla. Ef Lóa litla væri á slóðum þess Íslams, sem notað er til að brenna dönsk sendiráð og hóta gjörvöllum heiminum með ragnarökkri, væri Lóa litla á Brú svona:

Grín

Eða er það ekki svo, að ef konur eru með einhvern kjaft í löndum sem stýrt er eftir ÍSLAM eða klæða sig rangt, eru þær grýttar og hengdar. Það er enginn einföldun, heldur bláköld staðreynd. Ætli vinir Íslams á hinum síðustu dögum heilögum ræði eitthvað um það á Njálsgötunni á eftir.

Samkvæmt fréttinni verður boðið upp á  íslamskt snakk. Hvað ætli það sé? Kóransnittur, fötvur eða afskornir al Dimmah-limir?


Fyrsta flugeldasýningin á Íslandi

lofteldar konungs

800 tonn (800.000 kg og jafnvel meira) af flugeldum og öðru púðri fúttar út í bláinn á Íslandi um áramótin að sögn alþjóðlegra fréttastofa. Það er að segja, ef veður leyfir. Ég verð fjarri góðu gamni og læt mér nægja smá stjörnuljós eins og Danir.

Á Íslandi fara þúsundir brennuvarga frekar óðslega um borg og bý og glampi frummannsins sést í augum karlpenings á öllum aldri. Fallostákn þeirra feykjast upp á himininn í öllum regnbogans litum og út sprautast gríðarlegar gusur, eldtungur, eimyrjudropar og jafnvel fossar. Hver er með stærstu kúlurnar og hver á flottasta batteríið? Sumum konum þykir skiljanlega líka mjög gaman af þessum látum í strákunum.

Ég leyfi mér að óska landsmönnum til hamingju með að brenna nokkra milljarða króna á andartaki og sumir eru ekki einu sinni í annarlegu ástandi þegar þeir fremja þann verknað. Þvílík gleði. Líkt og hálftími í Bagdað með alKætu.

Myndin er af fyrstu þekktu lofteldasýningunni á Íslandi árið 1874. Hún birtist í The Illustrated London News, 12. september það ár. Sýningin árið 1874 var auðvitað bara fyrir fína fólkið og í boði danska kóngsins. Alþýðan lét sér nægja að gleðjast yfir stjörnum, norðurljósum og ef vel áraði, þremur sólum á lofti. Svo þuldu menn rímur í stað þess að blogga.

Einhvers staðar hef ég lesið um óðan munk, sem kringum Siðbót tók svo miklum stakkaskiptum, að hann bjó til hólka úr kaþólskum bænabókum, tróð í hólkana púðri sem hann hafði búið til úr hlandi og brennisteini. Kom hann svo knallhettum sínum fyrir í pápískum líkneskjum sem hann sprengdi í tætlur fyrir utan kirkjur. Hann varð af einhverjum furðulegum ástæðum afar vinsæll  meðal kvenþjóðarinnar fyrir þetta athæfi sitt og eignaðist helmingi fleiri börn en hann hafði gert í skírlífi sínu. Undan honum eru komnir sumir af frægustu Vantrúarmönnum Íslands, svo og eldflauga- og brennusérfræðingar áramótanna.

Hvað gáfu svo Íslendingar sveltandi og þjáðum bræðrum sínum úti í hinum stóra heimi árið 2007?  800.000 kg. af púðri?

Eins og segir í stökunni gamalkunnu: Do they know it's New Year's Eve AT ALL?

GLEÐILEGT ÁR

 

Raketta

 


Í Betlehem er barn oss fætt - En í hvaða Betlehem?

 Vitringarnir frá Billund

Hingað til hafa kristnir menn trúað því sem heilagasta sannleika, að Betlehem (Beit Lehem, sem þýðir Brauðbær á hebresku og á arabísku Kjötbær) í Júdeu, suður af Jerúsalem sé fæðingarbær Jesú Krists.

Finnst ykkur líklegt, að María mey hafi riðið kasólétt á asna 200 km leið frá Nasaret í Galileu til að fæða Jesúbarnið suður í Betlehem í Júdeu?

Í Betlehem í Júdeu hafa aldrei fundist neinar leifar frá dögum Jesú! Allt sem finnst er miklu yngra. Betlehem í Júdeu varð hugsanlega ekki að borg fyrr en nokkrum öldum eftir Krists burð.

Ísraelski fornleifafræðingurinn Aviram Oshri hefur hins vegar með margra ára rannsóknum sýnt, svo líklegt sé, að Betlehem sem Jesús fæddist í sé í raun í Galileu, ekki alllangt frá Nasaret.

Oshri hefur grafið í báðum Bethlehemum og er nú þeirrar skoðunar að rústin borgarinnar Betlehem í Galileu sé bærinn þar sem Jesús mun hafa fæðst. Oshri hefur meira að segja rannsakað rúst mjög stórrar Kirkju við í Betlehem í Galileu, sem kom í ljós við vegagerð fyrir nokkrum árum.

Hér getið þið lesið um hið eina sanna Betlehem á vefsíðu Aviram Oshri og fræðst.

Jesús umskorinn

Jesús umskorinn í Galileu á áttunda degi lífs sýns. Atburðurinn túlkaður með dönskum Lego-kubbum.

Mörgum finnst fornleifafræðingar til vandræða. Íslenskir sagnfræðingar telja sig vita nóg af bókum og vilja aðeins að fornleifafræðingar staðfesti það sem skruddurnar segja. Aðrir bókstafstrúarmenn úti í heimi eru hatrammir út í stétt fornleifafræðinga fyrir að rústa viðteknum hugmyndum og jafnvel trúarbókstaf. Ætli kirkjan viðurkenni nokkurt tíma kenningu Avirams Oshri? Það er allt of mikið í húfi. Þar á meðal má nefna Minjagripasöluna við Fæðingakirkjuna og misnotkun Palestínumanna á helgi borgarinnar.

Bærinn Betlehem i Galileu hefur líklegast fallið í gleymskunnar dá vegna óeirða og óaldar sem ríkt hefur í landi Gyðinga, síðan að þeir voru flæmdir í burtu af ýmsum ofstækismönnum. Og það hefur örugglega legið pólitísk ákvörðun bak við skrif guðspjallamannanna, sem "fluttu" fæðingabæ Jesú nær Jerúsalem.

"Hefð og trú ætti að vera nóg til þess að menn trúi því að fæðingabær Krists sé þar sem hann er nú", segir Michel Sabbah, erkibiskupinn sem ég fjallaði um í síðustu færslu. Ætli hann sé nú dómbær á það?


In nomine Jesu vel Fatah?

 
Sabbah kyssir Pabba

Nú stingur kaþólska kirkjan aftur. Heldur illilega og rýtingurinn er langur. Ég leyfi mér að kvarta, hvað sem Jón Valur Jensson, patríarkinn okkar í íslenskum bloggheimum, kveinar. Rómversk-kaþólski patríarkinn í Jerúsalem, Michel Sabbah, hefur lýst því yfir að hann sé mótfallinn Ísraelsríki. Hann segir að Ísrael yrði að "gefa upp á bátinn gyðingleg einkenni sín" og í stað þess beita sér fyrir "stjórnmálalega, eðlilegu ríki fyrir kristna, múslimi og gyðinga".

Sabba og Abu Mazen

Patríarkinn er Palestínumaður, svo orð hans eru kannski skiljanleg. En geta Kirkjan og Íslam ekki lifað ágætu lífi í Ísrael, alveg eins og það er pláss fyrir allar trúarstefnur á Íslandi, þrátt fyrir að þjóðkirkjan sé lútersk? Af hverju alltaf þessir afarkostir.

Hvers konar "Herrenvolk" hugsunarháttur er þetta hjá patríarkanum. Gyðingar mega ekki búa í smábyggðum í Palestínu og nú mega þeir heldur ekki eiga sér ríki nema að þeir gefi upp gyðingleg einkenni sín. Yfirgangur þessi er óhemjulegur og ég vona svo sannarlega að kaþólska kirkjan taki ekki þátt í honum og ávíti patríarkann.

 

Sabbah og Hamas

Sabbah ætti heldur að gæta að hjörð sinni í íslamistaríkinu Gaza, þar sem kristnir hafa verið ofsóttir af Hamas og myrtir. En frá því er vitaskuld EKKI SAGT í íslenskum fjölmiðlum frekar en því að kristnir menn eru ofsóttir af Múslimum á Vesturbakkanum. Íslenskir fjölmiðlar eru eins og strútar með hausinn á bólakafi í kviksyndi.

Ég fann því miður ekki mynd af Sabbah með Ísraelsmanni.


Finnar eru orðnir hringavitlausir

Eimskipahringurinn
 

Hörkusala hefur verið í hakakrosshringjum í Finnlandi fyrir jólin. Mætti halda að þetta fyrirbæri væri aðaljólagjöfin þar í landi í ár. Að minnsta kosti halda menn ekki vatni í þúsund landa vatninu fyrir þessu baugsilfri.

Upphaflega var þessi hringur seldur árið 1940 til að safna peningum vegna stríðsins við Rússa. Nú er verið að reyna að safna peningum með hringaframleiðslu til að gefa gömlum finnskum hermönnum náðugt ævikvöld. Sumir þeirra börðust "frækilega" með nasistum.

60.000 hringar hafa nú verið búnir til, og seljast þeir grimmt fyrir rétt rúmar 5000 krónur íslenskar.

Forstöðukona sölunnar, Pia Mikkonen, greinir erlendum fjölmiðlum frá því, að ýmsir frægir Finnar auglýsi hringana í sjónvarpi og í öðrum fjölmiðlum, og að þeir séu vinsæl gjöf fyrir unga karla. Talskonan segir: "There hasn't been confusion here in Finland," she said. "For us Finns, it's not a negative symbol."

Vita Finnar ekki að þegar Eimskip droppaði hakakrossinum fór allt að ganga betur hjá Eimskip?

Miður frægðarleg samvinna Finna við Þýskalands nasismans gerir óneitanlega marga undrandi á þessu hakakrossastandi í þeim. En greinilegt er að mörgum þykir þetta svaka flott merki.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband