Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Mannréttindi

Falleg mynd

vagn
 

Þessa fallegu mynd tók Moggabloggari sem kallar sig Gorgeir, réttu nafni heitir hann Hjálmtýr V. Heiðdal. Við vitum öll að Heiðdal er einn öfgafyllsti stuðningsmaður Palestínumálstaðarins. Fyrr á lífsleiðinni, áður en falsmynd Ríkiskommúnismans féll, var hann víst líka mjög sterkur talsmaður ýmissa fjöldamorðingja úti í heimi. Eftir að það rann allt í vaskinn, fann hann sterkum tilfinningum sínum nýjan farveg í hatri á Ísraelríki, sem hann ásakar reglulega um verstu glæpi sögunnar, líkir gyðingum við nasista og telur að gyðingar nútímans eigi ekkert skylt við þá gyðinga sem lesa má um í Biblíunni.

Heiðdal líkar ekki að samkynhneigðir hafi hengt upp ísraelska fánann á vagn í Gleðigöngunni sem hyllti þau ríki sem standa vörð um réttindi samkynhneigðra. Heiðdal veit vel að þjóð sú sem hann berst fyrir, og þar sem stærsti hluti hennar vill útrýma Ísraelsríki, er bölvanlega aftan á merinni hvað varðar öll mannréttindi. Einhvern daginn mun þeirra fáni hanga á vagni samkynhneigðra í rigningunni í Reykjavík. En það verður líklega fyrst þann dag, að Palestínumenn viðurkenna Ísraelsríki og hætta að tala um að útrýma því. Þá munu aðrar haturskenndir líklega víkja mjög fljótlega og Hjálmtýr verður blíður sem lamb.

En mynd Hjálmtýs vinar míns er falleg. Ef veðrið hefði verið betra, hefði Gleðigangan orðið örlítið léttklæddari. Einhvern daginn mun hinn reiði Guð, sem fordæmir öll hjón sem ekki eru karl og kona, blíðkast og senda nokkra sólargeisla á þessar gleðigöngur sem líta svo sorglega út vegna grámyglunnar. En stjarnan sem Hjálmtýr fann, var á við sól fyrir mig.


Tvískinnungsgangan

Gleðiganga 3
 

Baldur Þórhallsson básúnaði nýlega vanþekkingu sína á landi sem hann hefur dvalið í. Ég leyfði mér að skrifa um það um daginn í pistli sem ég kallaði Skugga-Baldur á Lithaugalandi. Baldur vill ekki svara.

Baldri leið vel í Litháen, þar sem hatur í garð minnihluta er daglegur viðburður og þar sem fyrrverandi forseti landsins stundar gyðingahatur og hatur gegn samkynhneigðum í ESB. Baldur var nýverið stjarna í landi þar sem mismunun, fordómar og ofsóknir gegn minnihlutum eru örugglega í öðru sæti á eftir Rússlandi Pútíns og Kína Núbós, sem Samfylkingarmenn geta vart haldið vatni fyrir.

Ég hvet Baldur til að fara í gleðigöngu í ESB-ríkinu Litháen!

Gleðiganga 2
Baldur gæti alveg eins hafa farið í gervi Landsbergis fulltrúa Litháa í ESB
998775_10152140949974478_1880520299_n
Dr. Baldur og Felix 

 

Eru hjónin Baldur og Felix blind eða siðblind?

Til að kóróna þessa fáviskuopinberun sína, gengur Baldur og maðurinn hans, Felix Bergsson, í Gleðigöngunni í gervi vondra Rússa með vígtennur, með rússneska fánann sem skikkju og með kross og íkon í hendi fyrir utan kylfur.

Frumstæðir fordómar í Rússlandi gegn samkynhneigðum í Rússlandi eru gífurlegir, svo ekki sé talað um fordóma gegn örðum minnihlutahópum, því þeir eru til. T.d. sá sem Þjóðverjum og samverkamönnum þeirra um Evrópu tókst að myrða 6 milljónir með.

En þega menn beita sama hatrinu gegn þeim sem hata, erum við að tala um frumstæða hegðun. Háskólakennari og starfsmaður RÚV ganga um götur Reykjavíkur sem ömurlegar Rússagrýlur  í Samfylkingarjakkasettum til að mótmæla fyrir sinn minnihluta. Fyrr má nú ofgera.

Tvískinnungur Bandaríska Sendiherrans

Hér þarf ekki að fara mörgum orðum um málið, myndirnar tala sínu máli. Kanadíski sendiherran kom hreinna til dyranna en bandaríski starfsbróðir hans. Sá kanadíski var mættur með manninum sínum, og sendiherrann er vitaskuld maður og örugglega af Vestur-Íslenskum ættum. Fyrst Snowden er Gay, þá bið ég fyrir honum í Rússíá.

Tvískinnungur Luis
USA ISLAND ISLAM
Þetta er ekki úr gleðigöngunni. Er fólk búið að gleyma hvað nýverið var haft eftir manninum með rauðu og hvítu húfuna? Hér má lesa um viðkunnanlega sendiherrann við Laufásveginn.
Kristinn Hrafn og Bradley
Þessir herrar gengu fyrir Bradley og Snowden. Ef Snowden er samkynhneigður eins og Bradely, þá bið ég fyrir honum þarna heima hjá Pútín. Gvööð, er þessi hvíthærði ekki talsmaður Assange, þess sem nauðgaði konum í Svíþjóð og sem felur sig í sendiráði í London? Hvaða mannréttindi ætli Kristinn hafi verið að ganga fyrir? Réttinn til að nauðga? Fyrir aftan hann er Vormaður Íslands og aðalsérleyfishafi réttra skoðanna á Íslandi, Illugi Jökulsson. Hann hefur oft ferðast með móður sinni og öðrum til þeirra landa þar sem réttindi samkynhneigðra eru engin og þeir eru t.d. hengdir úr ljósastaurum og byggingarkrönum.

Eina mosku með öllu nema hatri

wagenstraat_synagogue_1023640
 

Nú er moskuumræðan blossuð upp aftur. Það er beljandi gúrkutíð. Fólk er að verða satt af því að fara hamförum yfir því sem forsetinn gerir eða gerir ekki. Málsmetandi menn hamast þess í stað gegn mosku, eða með. Læknir og fyrrum borgarstjóri er á móti og sonur Jóns Baldvins er með.

Sama er mér um þá karla. Moska er einfaldlega mannréttindi þeirra sem eru múslímar á Íslandi. Ef þeir vilja byggja hana, þá gera þeir það eftir tilskildum reglum. Mér finnst þó alltaf einkennilegt hvernig fjöldi múslíma á Íslandi er ýktur. Ég held að það verði fremur fámennt í moskunni. Svo mun vera til annar tilbeiðslustaður múslíma í Öskjuhlíðinni, sem ku vera í hrópandi andstöðu við hópinn sem vill reisa mosku í Sogamýrinni.

Hvað veldur því að fólki líður svo illa við tilhugsunina um mosku í Reykjavík? Jú, sjáið til, á Íslandi hefur alltaf ríkt útlendingahræðsla og fordómar. Kynþáttahatur ríkir þar jafnt á meðal vinstri og öfgahægrimanna. Íslam er, eins og Kristindómur, lélegt afbrigði af Gyðingdómi, sem einnig er hægt að gagnrýna. En fólk hefur frelsi til að trúa, þó svo að það fari í taugarnar á trúleysingjum og kynþáttahöturum - og sumum kristnum mönnum.

Í landinu er trúfrelsi og enginn getur komið í veg fyrir mosku, ef menn vilja reisa hana. Um að gera að fá sýnagógu í leiðinni. Því stakk ég upp á fyrir all nokkru síðan (1994) og ekki veit ég til þess að aðrir hafi gert það fyrr. Ég skrifaði m.a.: „Það er ekki nóg að yrkja landið, fólkið verður einnig að fegra. Ég fagna þeim degi, að moska rís í Mosfellssveit eða sýnagóga á Selfossi og að bænir á Alþingi verði ekki aðeins kristnar". 

Á næsta árið held ég upp á 20 ára moskuyfirlýsingu mína og vænti að einhver sendi mér grísakótelettur í bréfi.

Hins vegar, ef kirkja, moska eða önnur musteri eru notuð til að boða hatursboðskap í garð annarra trúarbragða og þjóða, þá höfum við Íslendingar lög, sem taka á slíku. Það varðar við lög á Íslandi að boða hatur gegn trúarbrögðum og kynþáttum. Vissulega hefur hatur verið mikið í Íslam, en einnig í Kristni.

Myndin efst er af Mosku i Wagentraat i den Haag í Hollandi. Þegar faðir minn var ungur og bjó í borginni með foreldrum sínum, var þetta hús sýnagóga, samkunduhús gyðinga. Hatur, sem átti rætur í aldagömlu gyðingahatri kristinna fór úr böndunum og olli því að ekki var grundvöllur fyrir að halda uppi söfnuði gyðinga í þessu húsi lengi eftir síðara stríð. Íslendingar hafa líklega heyrt um Helförina, þó þeir séu nú mest upptekin af sjálfum sér.

Sams konar hatur er víða boðað í dag, ma. í moskum. Ég vona að við þurfum aldrei að hlusta á slíkt hatur í moskum á Íslandi. Ég vona að vinstri menn, sem venjulega lýsa frati á trúarbrögð (nema þegar þeir fá ólmir að lesa gyðingahatur í Passíusálmunum í kirkjum landsins), styðji ekki moskubyggingu til þess eins að ala á hatri. Ekki býst ég við því að þeir fari að beygja sig til Mekka eftir að beygingar í átt að Moskvuborg lögðust af, en maður veit nú aldrei. Þeir fara enn hamförum.

Bendi svo á þessar fyrri færslur mínar frá 2008  og 2010:

Mosku hér og nú (2008) Mosk(v)u strax ! (2010), Trú friðar og umburðarlyndis skal vera velkomin (2010)

Wagenstraat 

Samkunduhúsið í Wagenstraat í den Haag um 1950, og moska í sama húsi í dag

Wagenstraat moska


Gyðingaofsóknir Fréttablaðsins

Csatary

Í Fréttablaðinu í gær var greint frá því að 98 ára ungverji, Lazslo Csatary, hafi verið "sakaður um gyðingaofsóknir".  Það er víst aðeins meira en gyðingaofsóknir sem þessi óþverri er ákærður fyrir í tveimur löndum (sjá hér). 

Í 15 ár hefur verið hægt að dæma þennan mann. En eins og margir vita er Ungverjaland orðin gróðrarstía fyrir öfgafullt gyðingahatur. Þetta er hatur sem höfðar mjög til fólks sem ólst upp við "kommúnisma", enda var gyðingahatur hluti af hugmyndafræði austantjaldslandanna. Nasismi og kommúnismi ásamt mörgum öðrum öfgastefnum eiga það sameiginlegt að geta ekki lifað nema að kenna einhverjum um allt sem miður fer í samfélaginu.  

Í ESB er gyðingahatur í sókn, enda ekki nóg gert til að gera nýjum ríkjum og t.d. þeim "sérleyfishöfum réttlætis og sannleika" á Íslandi sem sækja í þetta ógeðfellda Efnahagssamband, að gyðingahatur sé glæpur en ekki nútímastjórnmál.

Morð og ofsóknir orsakast af sama hatrinu

Csatary er morðingi, en Fréttablaðið er hins vegar reglulega með gyðingaofsóknir og stendur fyrir bullandi pógrómi suður á Bessastöðum. Hvenær hefur blaðið ráðist með því offorsi á Íslendinga í sömu stöðu og Dorrit Moussaieff?

Fréttablaðið má þó eiga, að það hefur sýnt okkur hve íslensk lög eru aftarlega á merinni og mótsagnakennd, er blaðamenn þess vilja skilja forsetann og eiginkonu hans að og jafnvel þjóðnýta ættarfyrirtæki hennar í útlöndum vegna meintra skattsvika síðan hún flutti heimilisfang sitt. Hafa þau orð Sigurðar Líndals fyrir því að slíkt sé löglegt. Mikið er ef þess verður ekki krafist af Ólafi Þ. Stephensen að Dorrit breyti nafni sínu samkvæmt íslenskum lögum í Guðmunda Salómonsdóttir

Gyðingahatur, er það sem á endanum hrindir af stað gyðingaofsóknum og gyðingamorðum, einnig þegar það er notað til að koma sér niður á íslenskum forseta sem stendur upp í nefinu á spilltum valdaklíkum á Íslandi.


Genginn í Samfylkinguna

depardieu

Hinn heimsfrægi franski leikari og flóttamaður Gerard Depardieu, sem hefur gamalt Green card frá BNA og fölsk vegabréf frá öðrum hverjum einræðisherra í Sovétríkjunum fyrrverandi, vill nú fá sér íslenskt vegabréf. Hann safnar nefnilega vegabréfum og ríkisföngum og hefur heyrt að Íslendingar séu sérstaklega einfaldir og gjafmildir á slík skilríki fyrir fólk sem ekki er í neyð samkvæmt alþjóðarsáttmálum.

Sigurður Líndal, fyrrverandi, fyrrverandi lagaprófesseur segist hafa fundið því lagastöð í Rómarrétti, að gefa beri mönnum sem ekki passa lengur í föt sín hæli. Depardieu hefði ekkert á móti Æli í Reppum.

Depardieu bendir sjálfur á að hann sé álíka vitlaus og Bobby Fischer, sé t.d. heimsmeistari í kappáti í truflum, sem og að hann geti fyrir enga muni haldið neinu leyndarmáli í heilan dag frekar en Assange. Depardieu er genginn í Samfylkinguna og ber því við að erfðamengi sítt sé úr Fljótunum að hluta til og að hinn hlutinn sé lokkandi og safarík ESB-skinka. Hann ætlar að taka sér íslenska nafnið Geirharður Valtýsson, ef það er ekki upptekið.

Nú er hann svo svangur að hann gæti étið hval ef hjólastóllinn þyldi álagið. Sannur Íslandsvinur !

Gerard_Depardieu_an_875790m

RasistaPressan

RasistaPressan

Pressan.is greinir svínslega frá stofnun nýs heimavistaskóla (efterskole) í Danmörku fyrir múslíma. Án nokkurrar skýringar eða sjáanlegrar ástæðu setur Pressan mynd í sína frétt sem ekki var við frétt Kristeligt Dagblads sem greinir frá þessum nýja skóla. Pressan setur inn mynd af litlum dreng í hópi þriggja kvenna sem klæðast niqab-hulu. Það gerir Kristeligt Dagblad ekki. Það segir sig sjálft, að ef þessi nýi skóli er fyrir bæði kynin munu þar engir verða sem klæðast niqab.

Þessi mynd á ekkert skylt við skólann sem sagt er frá, og er ekki einu sinni tekin í Danmörku, þar sem maður sér mjög sjaldan konur í niqab með hanska.

Léleg blaðamennska, sem ber keim af fleiri ljótum fordómum, m.a. þegar hátíðin ramadan er kölluð "ramöndin", ekki ósvipað og þegar Illugi Jökulsson skrifar Egiftaland. Ég óska nú þegar fíflinu sem skrifaði þetta Gleðilegra Júlla. Blaðamaðurinn ætti frekar að hafa sagt frá íranskfædda prestinum sem ekki er velkominn í sumar danskar kirkjur, þar sem kristnir eru hræddir við að það leiði af sér öfgar múslíma (sjá hér).

Slæðufræði

Aumingja Egill

Egils Rauðaritskoðun
 

Í fyrradag var Egill Helgason með ónot um fornmenningaráhuga nýju ríkisstjórnarinnar og skrifaði pistil á Silfrinu um það. Hann sagðist vera á ferðinni í Vesturheimi.

Ég setti litla, saklausa athugasemd við bloggið og bað fyrir kveðju til fjarskylds frænda míns Bob Bournes sem er einn af frægari Vestur-Íslendingunum um þessar mundir.

Egill skvetti strax í mig ónotum, sem sýnir kannski hvers kyns mann hann hefur að geyma.

Svo gerði ég einnig fræðilega athugasemd við bloggið og við ágæta athugasemd annars lesanda. Enginn dónaskapur þar. Aðeins staðreyndir. Það fjarlægði Egill líka. Því athugasemdin sýndi fávisku Egils.

Hér sjáið þið athugasemdirnar þegar ég var þar síðast, og getið þið séð hvernig Egill stundar staðreyndaútrýmingu og skoðanaskipti.

Þessi handhafi rétthugsunar þolir greinilega ekki tjáningar- og skoðanafrelsi.

Menn hafa vitanlega rétt á því að fjarlægja orð manna, ef þeir eru með aðdróttanir, persónulegt skítkast, fordóma og þess háttar. En það var ég ekki. Það var Egill hins vegar, og hann ritskoðaði mig líka, því ég leyfði mér að sýna lesendum hans fram á vankunnáttu hans.

Mig langaði að deila þessu með ykkur, sér í lagi þeim ykkar sem ekki eruð búnir að sjá í gegnum þennan karl.


Daníel í ljónagryfju skussanna

Landsbankinn með vöndinn

Kæra ber atvinnuvegaráðuneytið fyrir brot á lögum í þessu máli Daníels Jónssonar bónda á Ingunnarstöðum. Öll ráðuneyti undir stjórn Samfylkingar og VG eru greinilega óstarfhæf, án þess að neysluvatnið sé mengað. Þau eru líklega of upptekinn í vinnu við að koma Íslandi inn í ESB.

Ráðuneytisstarfsmenn eru hins vegar örugglega mengaðir af öðru. Þessi skussaháttur er með ólíkindum. Veljast alltaf fífl og amlóðar í íslensk ráðuneyti?

Landsbankinn er hér fljótari gegn lítilmagnanum en þegar bankinn lætur ræningja innan veggja bankans sleppa með því að segja af sér.

Þegar maður heyrir af svona máli, er maður er mjög í vafa um að íslenskt þjóðfélag muni nokkru sinni komast upp úr þeirri lægð sem hún náði þegar Mammonsveislan stóð sem hæst og allt hrundi.

Á að bera Daníel af jörðinni svo einhver ríkisbubbinn geti sest þar að með hesta og þyrlu til að ná í pulsur og kók?

Ég skora á sveitunga Daníels að hjálpa honum og sýna náungakærleikann ómengaðan. Það gerir gott fólk. 750 lítrar af mjólk í niðurfallið á degi hverjum er mengunarvandamál sem atvinnuvegaráðuneytið og Landsbankinn valda. Kærið kerfið og sýnið náungakærleikann í verki.


mbl.is Krafa um að Daníel verði borinn út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar hafa gleymt smáfuglunum

665347
Hér þarf ekkert að skrifa, myndin nægir!

Ræfilsráðherrann og aumingjasamkundan

Mary Luz Islandia

Auðvitað er Mary Luz Suarez Ortiz  ekki heimsmeistari eins og Bobby Fischer, gyðingahatarinn og iðjuleysinginn sem fékk íslenskan ríkisborgararétt fyrir utan öll lög og skynsemi.

Mary Luz er að mínu mati heimsmeistari. Hún hefur sýnt heimsmeistaralega tilburði til að bjarga sér og fjölskyldu sinni, þrátt fyrir vinnuleysi. Hún hefur komið á fót dagpössun og verið í starfsnámi á veitingahúsi. Hún hefur sýnt að hún er virkur þjóðfélagsþegn sem er öll að vilja gerð til að verða hluti af þeirri þjóð sem þarf að hafa ræfilinn Ögmund og aumingjasamkunduna Alþingi yfir sér.

Nú er okkur sagt að Mary Luz Suarez Ortiz uppfylli ekki lög, og í ljós er komið að Pósturinn getur ekki komið bréfum yfirvalda á leiðarenda - að sögn Ögmundar. Það bréf skulu yfirvöld sýna fram á að hafi verið sent.

Meðan Mary Luz er talin ólögleg á Íslandi eftir fimm ára búsetu, fékk Bobby vitleysingur óhindrað að brjóta hegningarlög á Íslandi og var gerður að Heiðursíslendingi áður en hann kom til landsins.

Ögmundur Jónasson, þú ert víst örugglega ömurlegasti "sósíalistinn" sem lifað hefur og Alþingi sýnir aftur og sannar, að það er alla jafnan hin mesta aumingjasamkoma.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband