Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Dćgurmál

Viđ lifum alltaf á Klámöld

Ég hef, sem Íslendingur búsettur erlendis, fylgst nokkuđ áhyggjufullur međ ofbeldinu sem virđist hafa fćrst í aukana heima á Fróni. Ţetta var örugglega ekki svona í gamla daga? Svo er ţađ allt klámiđ, barnaklámiđ, nauđganirnar og nú klámráđstefna á landinu hreina. Í dag las ég um íslenskan klámjöfur, Westuríslending, sem hreinlega skammast sín fyrir uppruna sinn vegna neikvćđra viđbragđa viđ ráđstefnunni á Íslandi.  willendorfervenus 

 

Einu sinni var ţetta örugglega klám! Fyrir svona rúmum 20.000 árum. Klám er afstćtt fyrirbćri í tíma og séstaklega rúmi.  Ég held ekki ađ neinn andmćli mér, ţegar ég held ţví fram ađ klám er notađ alveg eins mikiđ á Íslandi og alls stađar annars stađar, nema vera skyldi í Norđur Kóreu (ţó ég hafi ekki haft tök á ţví ađ kynna mér ţađ). Ekki á ég verđbréf í klámiđnađinum og sćki ekki klámráđstefnur sem hér í Danmörku eru árlegur viđburđur. Ég get ekki séđ, hvernig einhver ráđstefna erlendra klámkaupmanna á Íslandi misbjóđi blygđunarkennd nokkurs manns. Kastiđ fyrst steini ađ klámbúllunum og dansstöđunum, sem fyrir eru í eigu Íslendinga. Oft er gott er ađ líta í eigin barm frekar en á ađra.

Upptökur á eđlunarmyndum af mannfólkinu er örugglega afar leiđinlega atvinna. Ef sú iđja varđar viđ íslensk lög, getur löggan bara handsamađ fólk, sem fer í sleik viđ Gullfoss og hefur samfarir viđ Geysi og vísađ ţeim úr landi. Viđ búum í lýđrćđisríki og virđum lög. Bjóđum ţví klámkalla og –kerlingar velkomin, en gerum ţeim ljóst, ađ lög á Íslandi banna ţeim ađ hafa verklegar framkvćmdir nema í hjónasćnginni, bak viđ gardínur og lćstar dyr og ađ ţađ sé synd ađ gera ţađ uppi á fjöllum og á förnum vegi. Hvađ gćti sauđkyndin ekki haldiđ? Viđ megum ekki missa sérstöđu okkar á međal ţjóđanna!

Ný tegund af handsprengjum í Danmörku

Negrakoss

Ţađ fylgir víst fréttinni ađ segja frá ţví, ađ talsmađur listamannanna sagđi viđ danska ríkisútvarpiđ í morgun, ađ ef lögreglan réđist til inngöngu til ađ fjarlćgja listamennina á Charlottenlund, yrđu ţeir grýttir međ "negrakossum". Stundum er gaman ađ vera lögregla. Mćli ekki međ ţessum "hryđjuverkatólum" á Íslandi, ţó svo ađ "negrakossar" séu á "tilbođi".


mbl.is Listamannaumsátur í Kaupmannahöfn
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Nćrföt hryđjuverkamannsins

 

 Nćrföt hryđjuverkamannsins

Ţegar veriđ er ađ rćđa um tísku. Hvađ finnst ykkur um ţetta lúkk, nćrföt hryđjuverkamannsins? Ţetta var afar vinsćlt á Norđurbrún (Nřrrebro) síđastliđiđ sumar


Meira um tísku

Ţegar ég hafđi rétt lokiđ síđustu innfćrslu helltist yfir mig grunur um ađ ég gćti hugsanlega hafa vađiđ í villu í fyrri skrifum mínum. Nýlega frćddi ég mbl-bloggara um íslenskar frúr sem fóru í sínu fínasta pússi til Antwerpen anno Domini 1521.

Hćgan, hćgan, hvađ nú ef ţetta voru karlar í kvenklćđum? Gott ađ ekki voru til B&O verslanir í den tíđ. Íslendingar hafa alltaf ţurft grćjur.

Fru eđa Herra

Ţorleifur eđa Guđríđur ?


Óla kjóli bannađ ađ kaupa B&O grćjur

Ole Kjole

Nú er illt í efni. Ađ minnsta kosti ef mađur heitir Óli. Ole Steen Mortensen, kallađu Kjole Ole, hefur safna Bang & Olufsen grćjum í háa herrans tíđ.  Óli hefur keypt allt milli himins og jarđar, bara ef -ţađ stendur B&O á ţví sem hann kaupir. En ţegar Óli kaupir B&O er hann í kjól. Ţann ósóma hefur hann greinilega komist upp međ í mörg ár - ţangađ til ađ verslun ein međ B&O vörur í Viborg neitađi ađ selja honum B&O grćjur - VEGNA ŢESS AĐ HANN GENGUR Í KJÓL.

Jótlands Pósturinn segir frá ţessu í dag. Ţetta gćti greinilega valdiđ nýrri árás á Danmörku í löndum ţar sem menn ganga t.d. í pilsum. Reiđir Skotar munu brenna dönsk sendiráđ og brenna myndir af danska forsćtisráđherranum eđa hćtta ađ kaupa danskt smjör og B&O.

Kjóla Óli, sem var orđinn úrkula vonar um ađ mál hans yrđi tekiđ fyrir, er glađur yfir ţví ađ mál hans fćr nú farsćla lausn. Ţađ er sannarlega bannađ ađ mismuna karlmönnum í kjól í Danmörku, eđa konum í karlmannsfötum, fólki án fata, eđa kappklćddum. Ţađ er annađ sem skapar manninn en fötin.

Mér fynnst pils Óla gasalega smekklegt, en ég hefđi nú örugglega valiđ annađ belti, ef ég hefđi vitađ ađ ég vćri ađ komast í blöđin.

 


Bćnir gefa engan styrk

Truerholl en

Heittrúađir gyđingar geta margir hverjir hlaupiđ í spik viđ lestur, ţótt heilinn sé ţaulţjálfađur.

Framtaksamur mađur í Ísrael hefur opnađ heilsurćkt fyrir heittrúa gyđinga, ţar sem ţeir geta losađ sig viđ aukakílóin eđa styrkt líkamann - án ţess ađ horfa upp á stinnar meyjar, sem leika sér af huga Adams eins og Lilith forđum, áđur en Herrann skapađi Evu.

Ţetta er auđvitađ eitthvađ annađ en ţegar ég var í öftustu röđ í steppi hjá Hrafni og Ágústu. En ţá fékk mađur nú oft á tíđum opinberun beint upp í andlitiđ. 

Those were the days.

 


ECCOTI LE MIE SCUSE

berlusconi 

Cara Veronica .. Já, já

Veronica Berlusconi ćtti ađ biđja ítölsku ţjóđina, eđa ađ minnsta kosti heimabć sinn, afsökunar á ţví ađ hún giftist ţessum trúđ, sem stjórnađ hefur Ítalíu eins og sirkus. En ţarf Veronica ađ hafa áhyggjur. Sjón er sögu ríkari http://static.twoday.net/peneun/images/berlusconi.jpg Ţađ ţyrfti ekki stóran skáp fyrir ţetta á typpasafninu á Húsavík.


mbl.is Berlusconi biđur konu sína auđmjúklega fyrirgefningar
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Skarinn

Bier 

Takiđ eftir vaffinu - V for Victory!

Danir eru harla ánćgđir međ ađ kvikmyndaleikstjórinn Susanne Bier hafi veriđ tilnefnd til Óskarsverđlauna. Kvikmyndina “Efter Bryllupet”, sem til greina kemur sem besta mynd erlends kvikvmyndagerđarmanns, hef ég ţví miđur ekki séđ. En ég hef hins vegar séđ flestar fyrri kvikmyndir Bier og mér ţykir hún ţess leg á myndinni hér ađ ofan, ađ hún vinni ađ minnsta kosti einn Skara. Hljómsveitin Sigur Rós spilar músík í myndinni og er ţađ ekki lakara.

Takiđ eftir vaffinu, sem myndast hefur yfir fallega, grćna kjólnum hennar Susanne. Ég tel mig sjá “V for Victory!”  Ég vona ţó ađ ég hafi ekki fariđ fram úr leyfilegum velsćmismörkum hér á Mbl. blogginu. Svona myndir ţykja hćfar í dönskum kirkjum.  Viđ Norđurlandaţjóđirnar verđum ađ halda međ Susanne og minnast á hana í kvöldbćnum okkar, svo hún fái Skara.

« Fyrri síđa

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband