Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál

Gyðingaofsóknir í sósíalistaparadísinni

 
artsynagoguemesscnn

Í Venesúela eiga gyðingar ekki sjö dagana sæla. Frumskógardýrið Hugo Chavez, einn frumstæðasti einræðisherra Suður-Ameríku um þessar mundir, sleit nýlega stjórnmálasambandi við Ísrael, líkt og Steingrímur Sigfússon afdalaráðherra á Íslandi vildi gera þegar hann var enn í stjórnarandstöðu. Nú er kannski lag að gera eins og Hugo, Steini. Lýsa stuðningi við Hamas og önnur hryðjuverkasamtök á þinn einstaklega siðmenntaða hátt.

Það hefur kannski farið fram hjá sumum, að það eru ekki bara nasistar og hægriöfgamenn sem hatast út í gyðinga. Sósíalistar kunna líka þá list að kenna gyðingum um allt sem miður fer í heiminum.

Reiðhjólasali á Íslandi lét hinn sunnræna pasa doble y loco en cabeza-anda nýju ríkisstjórnar hýru stýru á Íslandi hafa áhrif á sig í síðustu viku, þegar hann bannaði gyðingum aðgang í verslun sína og braut með því lög.

caracas_synagogue

Í Venesúelu ráðast menn hins vegar inn í  á samkunduhús gyðinga og félagsheimili og svívirða helg rit og mála er alls kyns frumstætt níð á veggi, eins og "dauði yfir gyðingana". Gyðingar á Íslandi eiga engin guðshús og samastaði og ganga hræddir meðfram veggjum. Þeir vilja ekki láta mála hakakrossa á bílinn sinn, eins og gerðist víst hér um árið.

Hvenær munu íslensk yfirvöld lögsækja gyðingahatara? Hvað ætli BBC muni segja um gyðingahatarana á Íslandi?  Hér má sjá frétt BBC um árásina í Caracas.

ahmadinejad_chavez-300x232
Vildi ekki einn ráðherrann í nýju íslensku ríkisstjórninni
taka upp nánara stjórnmálasamband við Íran?

The Gay Cabinet

 Litur gay stjórnar

er nafn nýju ríkisstjórnarinnar?

Ég var að dunda mér við að litgreina ríkisstjórnina. Hér eru nokkrar glaðir litir. Samkvæmt litaprufunni lengst til hægri, er Jóhanna gjörsamlega númer 613. Toppstykkið á Geir var líklega númer 6. Ég treysti mér ekki litgreina Steingrím J. Hjálp, Heiðar!

Nú eftir stjórnarslitin, eftir að ungliðarnir flýja og segja af sér vegna dugleysis eða anna, og fjörið byrjar, hef ég ekki bara verið að velta fyrir mér litrófinu, heldur líka  nafni næstu ríkisstjórnar.  Á visir.is las ég að ef Jóhanna Sigurðardóttir yrði forsætisráðherra yrði hún fyrsti gay forsætisráðherrann í heiminum. Þetta mun auka túrismann. Ég var svo saklaus, að ég uppgötvaði mjög seint, að maður gæti kallað homma og lesbíur gay.

Kannski væri best að kalla ríkistjórnina The gay cabinet, þangað til hún molnar í maí. Ekki veitir af gleðinni, fjörinu og bjartsýninni núna, þegar eftir sitja gamlir og farlama stjórnmálajálkar, og mestur tími þeirra sem ætla að mynda þessa stjórn hefur farið í pólitíska moldvörpustarfsemi í stað þess að vinna að úrbótum í kjölfar hruns íslenska efnahagsundursins.

Ef The Gay Cabinet þykir of enskuslett, væri hægt að kalla þetta Gleðistjórnina. Það verður að vera mikill optímismi hjá stjórn, þar sem mun sitja kollóttur, rauður hrútur, sem vill skila öllu aftur til AGS (IMF).  

Kaffi á Grund Kaffiboð á Grund í dag. Hvar er hýra stýra?

Ég hef reyndar aldrei séð Jóhönnu S. glaða (gay), en það tel ég henni þó ekki til  lasts. Það gæti bent til þess að hún taki öll vandamál þjóðarinnar inn á sig og sé eins konar andlit þjóðarandans. Ástandið er ekki gott, samkvæmt síðustu myndum af henni.

Var Jesús ekki líka gay? Margt gæti bent til þess. Hann var með 12 mönnum í klúbbi.


Í svörtum skugga vopnahlés og SÞ

 

Svo kallað vopnahlé er nú komið á á Gaza. Nú eins og áður berast okkur ekki allar fréttir af því sem gerist. Fréttamenn með fyrirlitningu í röddinni, þegar þeir tala um Ísrael og fordóma í skoðunum á Ísrael, er engin ný bóla. Ekki minnkar það hatur og sú fyrirlitning í skugga vopnahlésins. Við fáum ekki alla söguna, og þaðan af síður rétta.

Ég hef frétt að Ísraelsmaður búsettur á Íslandi, sem Kastljós vildi hafa í viðtal, hafi verið hafnað af Kastljósi, því hann þorði ekki að koma fram nema ef hann yrði skyggður og rödd hans breytt. Hann var hræddur við þá hatursbylgju sem hellist yfir Íslendinga þessa dagana. Samtímis er farið í eldhúsið heima hjá einum að fremsta stuðningsmanni Hamas á Íslandi, og hún látin hvæsa framan í þjóðina, að Ísraelsmenn stundi þjóðarmorð og hafi útrýmingu Palestínumanna á dagsskránni. Fréttamenn Ríkisfjölmiðilsins hafa ekki rænu á að benda áhorfendum á, að það hefur verið opinber stefna Hamas í 20 ár, að útrýma gyðingum og Ísraelum um heim allan.

Og þótt stórskotahríð Ísraelsmanna hafi verið hætt, virðast fleiri og fleiri börn deyja á hverjum degi. SÞ ber að rannsaka mannsfall á Gaza, en er SÞ treystandi til þess? Ban Ki Moon, framkvæmdastjóri SÞ, skipar rannsóknir á sprengjum Ísraela sem féllu á stofnanir SÞ, en hann hugsar ekki um börnin og fórnalömbin. Byggingar SÞ virðast skipta hann meira máli en rannsókn á mannfalli á Gaza. Vitanlega hefur það veri mikið, en ekkert nærri þeim tölum sem berast frá heimildamönnum Hamas-samtakanna. 

Aðeins eru örfáir tímar eru síðan þetta „vopnahlé" var brotið/rofið af einhverjum öfgahópi á Gaza, sem skaut á Ísraelsmenn. Vopnahlé virðist vera eitthvað einhliða fyrirbæri, sem Hamas-samtökin skilja ekki og geta ekki fyrir neina muni virt.

Liðsmenn Fatha flokksins, sem hafa verið ofsóttir á Gaza af Hamas, hafa nú haft samband við Ísraelska fjölmiðla og alþjóðlegar stofnanir og upplýsa að Fatah-liðum sé nú smalað saman af Hamas og þeim haldið föngnum í skólum og á spítölum. Þetta gerist beint fyrir framan nefið á starfsmönnum SÞ og þeir og SÞ gera ekki neitt.

Ísraelska utanríkisráðuneytið birti í gær fréttaskot, sem lak út frá Al-Arabiya stöðinni, þar sem fréttaritari stöðvarinnar, hún Hanan Al-Masri (sem reyndar er aðalskutlan á svæðinu),  segir að Grad flaugum hafi verið skotið frá stað nærri upptökuveri í Al-Shuruk háhýsinu í Gaza-bæ, þar sem hún sat við gluggann (svaka útsýni) og vissi ekki að neinn væri að horfa á hana þegar hún gladdist yfir því að Hamas væri að skjóta flugskeytu við háhýsið. Í síðustu viku var Ísrael bölvað og ragnað fyrir að hafa skotið að þessari byggingu og því haldið fram að Hamas hefði ekki aðhafst eitt eða neitt í nágrenni við hana. Allur heimurinn heyrði þá lygi, og ærðist með, en nú keppast samstarfsmenn Hamas, sjálfsútnefndir fréttapostular heimsins, að þaga sannleikann í hel. Hamas skaut við byggingu, sem var notuð af erlendum fréttamönnum, og Al-Arabiya er heimildin. Þessi frétt með Hanan Al-Masri verður örugglega aðeins sýnd af zíonískri fréttastofu PostDocs á Íslandi.

Lífið heldur áfram sinn vana gang á Gaza undir ógnarstjórn Hamas og með vernd SÞ og einfeldninga á Vesturlöndum. Hamas er að sleikja sárin, því lokatakmarkið, útrýmingu gyðinganna og tortýmingu Ísraels, trúa þeir enn á. Þeir hafa verk að vinna.


Hamas hefur hótað þjóðarmorði í 20 ár

 

1231655138519_705

Ósamræmi á milli lista Al Jazeera yfir látin börn á Gaza og þess einhliða fréttaflutnings sem við höfum verið bombaderuð með síðustu vikurnar, var efni færslu minnar í síðustu viku. Ég hef fengið þó nokkrar heimsóknir vegna þessarar færslu, en enginn getur eða engan langar til að skýra ósamræmið. Skítkast og dónaskap er það eina sem stuðningsmönnum Palestínumanna á Íslandi er fært að stunda.

Það koma alls konar furðufuglar í heimsókn, til að segja mér til syndanna og kalla mig öllum illum nöfnum. Sumt verð ég að fjarlægja vegna stefnu moggabloggsins. Hatrið er greininga mikið í nafni stuðningsins við Palestínumenn. Einn félaginn, Þorsteinn Scheving Thorsteinsson, telur að gyðingar stundi trúarleg barnamorð sér til dægravalar. Það eru bersýnilega sterk rök sem "stuðningslið" Palestínumanna á Íslandi hefur. Gamall gyðingahatursáróður, nasistaklisjur og kjaftæði.

Einn af þeim sem líka kom í heimsókn var Hörður Þ., sem vitnar í miður áreiðanlegan fréttamiðil um litla stúlku, sem mun hafa fallið fyrir kúlum Ísraelsmanna og á síðan að hafa verið étin af hundum. Ég hef beðið Hörð um að útskýra fyrir mér af hverju þessi litla stúlka er ekki með á lista Al-Jazeera. Hörður hefur ekki svarað mér.

Þegar stéttarfélög kalla til mótmælafundar í dag í Háskólabíó og segjast ætla „mótmæla þjóðarmorði", kippi ég mér ekki upp við það. Þegar menn trúa fölsuðum fréttum, er ekki nema von að menn viti ekki hvað þjóðarmorð er og hvernig það er skilgreint samkvæmt alþjóðarlögum.

Það sem Hamas hefur hótað Ísraelum og gyðingum í 20 ár er þjóðarmorð. Furðar það nokkurn að slík samtök noti börn í baráttu sinni, ljúgi um fjölda fallinna (barna) og brjóti vopnahlé um leið og það hefur verið samþykkt, lýsi svo yfir vopnahléi sem enginn hafi samþykkt (og bróti það líklega einnig)?

Myndin er frá Noregi, þaðan sem flestir Íslendingar eru ættaðir. Þar notar maður líka börn í baráttunni, blóðug börn, sem alin eru upp í hatri. Ætli börn Palestínuvina á Íslandi séu alin upp í svona hatri líka?


Hamas kynnir stefnu sína

Ekki þarf frekari skýringa við, en yfirtaka heimsins er greinilega á næsta leyti.
Skoðið MEMRI

« Fyrri síða

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband