Leita í fréttum mbl.is

Deyr barn tvisvar á Gaza?

Barnamorð gyðinga er gömul saga 

Heimildir Al Jazeera eru athyglisverðar. Samkvæmt einum heilagasta bloggara moggabloggsins, Birgittu Jónsdóttur, hefur Al Jazeera birt lista yfir börnin sem hafa misst líf sitt á Gaza.

CNN og norski læknirinn Mads Gilbert héldu því fram, að þann 7. janúar hefði bróður kvikmyndatökumanns á Gaza látist í árás Ísraelsmanna.  Sjá http://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/766468/ (bæði á íslensku og ensku).

Þessi drengur var nefndur á nafn í fréttinni og við sáum þegar hann dó og þegar verið var að greftra hann. Skoðið það aftur. Þetta átti að gerast miðvikudaginn 7. Janúar 2009.

Þann 7. 1. 2009 er Mahmoud Mashharawi (drengurinn sem dó) ekki á þessum lista, sem Al Jazeera hefur nú birt!

Það er hins vegar drengur sem heitir Mahmoud Khalil Al-Mashharawi á listanum þann 1.1.2009.

Samkvæmt fréttinni á CNN var Mahmoud drepinn þann 7.1.2009.  Samkvæmt CNN og kvikmynd um dauða drengsins, dó hann 7.1. 2009. En samkvæmt Al Jazeera, dó drengur með þetta nafn þann 1.1. 2009.

Undur og stórmerki. Ég skil ekkert í þessu! Annað hvort er eitthvað að fréttinni frá CNN, eða það er eitthvað að fréttinni frá Al Jazeera og hjá Birgittu. Kannski er líka eitthvað að Mads Gilbert, hinum frækna norska lækni.

Hvernig væri að ræða þetta á fundinum á Háskólabíói næsta sunnudagskvöld? Hvernig geta börn dáið/verið myrt tvisvar á Gaza?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Ingi Jónsson

Hjúkked. Ég sem var svo hræddum um að það væri eitthvað skelfilegt að gerast á Gaza. Mikið er ég feginn að þú skulir afhjúpa þetta samsæri gegn orðspori hinnar friðelskandi útvöldu þjóðar.

Sigurður Ingi Jónsson, 16.1.2009 kl. 12:39

2 identicon

Vilhjálmur, þú ættir allavega að vera ánægður með að það er þó búið að myrða drenginn.

Steini (IP-tala skráð) 16.1.2009 kl. 13:24

3 Smámynd: Billi bilaði

Þú ert svo sálardrepandi bloggari að ég fæ óbragð í munninn í hvert sinn sem ég sé nafnið þitt.

Billi bilaði, 16.1.2009 kl. 13:35

4 Smámynd: Vilhjálmur Þorsteinsson

Tjah, hvenær drepur maður barn, og hvenær drepur maður ekki barn?  Það væri örugglega hægt að týna sér lengi í þessum pælingum, ef maður er siðblindur á annað borð.

Vilhjálmur Þorsteinsson, 16.1.2009 kl. 13:55

5 identicon

Þér finnst e.t.v. í lagi að þjóð, sem er umkring múrvegg og hátækniher, þurfi að tvítelja og leggjast flöt fyrir her, sem hikar ekki við að skjóta á og drepa sjúkraflutningafólk, kveikja í matvælageymslum SÞ, spítölum, skólum og notar fjöleyðingarvopn verri en Napalm (=fósfór) til að teppaleggja íbúðarsvæði með eldi.

Í raun og veru finnst mér óhóf Ísraelshers minna mig óþyrmilega á bæði loftárasir síðara stríðs og eyðingu gettósins í Warsjá. Hvort tveggja stríðsglæpir, sama hver fremur. Hví ætti Ísraelsríki að skera sig úr, mætti spyrja?

En ekkert af þessu er réttlætanlegt. Ekkert!

Carlos Ferrer (IP-tala skráð) 16.1.2009 kl. 13:57

6 Smámynd: Morten Lange

Nafnar, hgugsanlega ?

Morten Lange, 16.1.2009 kl. 14:05

7 identicon

Birgitta þessi hefur margsinnis lyst yfir stuðningi sinum við logbrot motmælenda Harðar Torfa eins og t.d. eggjakasti. Þegar einhver hefur gagnrynt hana hefur hun bannað þvi folki að tja sig a siðu sinni.

Þvi kemur mer ekkert a ovart að slik kona skuli styðja lyð sem er ekkert heilagt eins og islomsku hryðjuverkamennina sem voru svo osvifnir að þeir skutu a Israelska borgara ur skrifstofum Sameinuðu Þjoðanna.

Halldor (IP-tala skráð) 16.1.2009 kl. 14:24

8 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Vill enginn ræða það sem ég set fram á vitrænum nótum.

Síra Carlos Ferrer, Gaza er ekki umlukið múrvegg! Er ekki kominn tími til að þú skoðir landið helga aðeins betur og sjáir hlutina með eigin augum. Hefur þú nokkurn tíma komið þangað?

Billi bilaði, leyfðu nú líka hinum á Kleppi að komast að, og læknunum líka. Verður hópferð á fundinn í Háskólabíó á sunnudag.

Vilhjálmur Þorsteinsson,ásökun mín fyrir siðblindni gerir ekkert gagn. Getur þú skýrt þetta sem ég skrifa um. Þú ert talinn svo klár. Það hlýtur að vera skýring á þessu. Hvenær skrifaðir þú um blessuð börnin sem drepin hafa verið í Darfúr?

Steini, ég gleðst yfir þessu ósamræmi í reikningum öfgamannanna, því það er mögulegt að drengurinn sem við sáum í CNN fréttinni sé enn á lífi.

EN ÞIÐ, SIÐAÐA FÓLK (-Halldór, sem hefur lesið óritskoðaðar fréttir) HYLLIÐ DAUÐA BARNIÐ!

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 16.1.2009 kl. 15:55

9 Smámynd: Linda

Voðalega er fólk, svart hvítt í hugsun, ég hélt að flestir gerðu sér grein fyrir því að ekki er alltaf allt eins og það sýnist. Ég verð alltaf svo hissa þegar fólk er svona stíft.  Ég hef sagt, að ég syrgi hvern einasta sakleysing á Gaza, en ekki einn Hamas liða, þeir eru ekkert annað en djöflar í mansmynd, og hvernig þeir hafa farið með sitt eigið fólk, ég ætla sko ekki einu sinni að byrja á þeim ósköpum.  En hér fyrir neðan her hlekkur á vid af ungri stúlku á Gaza...

http://www.youtube.com/watch?v=fLIdxF-GHWw

Linda, 16.1.2009 kl. 16:01

10 identicon

Þetta er hið dularfyllsta mál og mikill léttir að Vilhjálmur Örn hafi nú komið upp um þessi ótrúlegu vinnubrögð í fréttaflutningi. Þetta er ugglaust mikilvægasta fréttin af ástandinu á Gaza til þessa og legg ég til að Vilhjálmi verði veittur stórriddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir þetta afrek sitt í rannsóknarblaðamennsku.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 16.1.2009 kl. 16:16

11 Smámynd: Haukur Nikulásson

Ertu í alvöru að gera veður út af hugsanlegum skráningarmistökum eins og um eitthvert meiriháttar samsæri sé um að ræða?

Haukur Nikulásson, 16.1.2009 kl. 16:23

12 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Mjálm.

Georg P Sveinbjörnsson, 16.1.2009 kl. 16:23

13 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Eva Hauksdóttir, Stórriddarakross með Davíðsstjörnu. En getur nornin skýrt talnagaldurinn frá Gaza?

Haukur Nikulásson, skráningarmistök. Nú skil ég hvernig allt fór á hausinn á Íslandi: Sáningarmistök!

Goggi: Gazalegt gól er þetta í þér.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 16.1.2009 kl. 16:30

14 identicon

Vilhjálmur. Þú hefðir sómt þér vel í SS búningi fyrir 65 árum. Hugarfarið sem þú sýnir í skrifum þínum hér sýnir það svart á hvítu. 

Ég bara trúi því varla að þú skulir vera sagnfræðingur að mennt, þú sýnir svo mikinn skort á gagnrýnni hugsun og hlutlægni, að ég tali nú ekki um skortinn á mannúð.

Steini (IP-tala skráð) 16.1.2009 kl. 16:45

15 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Steini Ó, mér hefði ekki verið hleypt inn í SS. En Hamas, sem t.d. ESB skilgreinir sem hryðjuverkasamtök, hefur morð á gyðingum á stefnuskrá sinni. Það eru því Hamas og aðhlæjendur þeirra á Íslandi sem eru nasistarnir og SS mennirnir. Hamas hefur heimsyfirráð á stefnuskrá sinni og sérstaklega útrýmingu gyðinga.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 16.1.2009 kl. 16:56

16 identicon

Ég held að það sé rangt að agnúast útí Birgittu hún segir á heimasíðu sinni "ég styð ekki Hamas og hef aldrei gert". Listinn sem hún birtir hefur birst á nokkrum fréttastofum þ.m.t CNN og einnig verið sendur hér í Bretlandi sem dreifipóstur á milli háskólanema. Googlið eitthvert nafnanna og þið fáið slatta af heimasíðum. Mér finnst ekki vera hægt að kenna henni um. Hinsvegar sýnir þetta vinnubrögð fjölmiðla. Það er alvanalegt að sjá fjölmiðla apa upp eftir hverjum öðrum og minni á umfjöllunina um Söru Palin fyrrum varaforseta efni.

Tómas (IP-tala skráð) 16.1.2009 kl. 18:02

17 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Málið er einfalt - fyrst myrða þeir sálina, svo líkamann.

Ásgeir Kristinn Lárusson, 16.1.2009 kl. 18:40

18 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Já Ásgeir, Hamas eru morðsveitir! Þeir vilja myrða heilu þjóðirnar.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 16.1.2009 kl. 18:44

19 identicon

Heimsyfirráð!!! Ég vona að þú sért að grínast, af öllum heimskulegustu samsæriskenningum sem ég hef heyrt þá er þessi ein sú heimskulegasta. Ef engum hefur tekist það ennþá finnst mér afar ólíklegt að nokkrir Hamasliðar með heimatilbúin flugskeyti séu einhver ógn. Hef meiri áhyggjur af síónísku sadistunum við völd í Ísrael sem halda því fram að þeir hafi leyfi til þess frá guði að drepa þá sem standa í vegi fyrir þeim. Og ertu í alvörunni að reyna að halda því fram að fréttaflutningur af Gaza svæðinu sé allur lygi og hluti af þessari heimsyfirráðastefnu Hamas? Occams razor, mistök við skráningu, sem ég skil ekki alveg hvað hefur með gjaldþrot á Íslandi að gera.

Arnór (IP-tala skráð) 16.1.2009 kl. 20:07

20 Smámynd: Alma Jenny Guðmundsdóttir

Asskotans nagli er Vilhjálmur!

Ég skora á þig að senda þessar bloggfærslur þínar til danskra fjölmiðla.

Miklu nær fyrir þig að að sýna skrif þín þar.  Fleiri að ná til!

Gætir örugglega snúið mörgum manninum sem gagnrýnt hefur og mótmælt þjóðarmorði Israela á Palestínumönnum.

Danir yrðu þér væntanlega þakklátir fyrir að benda þeim á þennan ósóma sem fram fer í Palestínu.  Þarf að drepa sama krakkann tvisvar - svei attann -

Alma Jenny Guðmundsdóttir, 16.1.2009 kl. 23:15

21 identicon

Vilja þeir nokkuð myrða fleiri þjóðir en Ísraelsmenn? Og er einhver hissa þótt þeir vilji myrða þá? Ég hugsa nú að flestir eðlilegir menn væru tilbúnir til að myrða þá sem hafa svipt fjölskylduna heimili sínu og atvinnu, gert hluta henna landflótta, lokað suma inni í fangelsi og pyntað þá, hneppt aðra í átthagafjötra og sallað enn aðra niður með kúlnahríð jarðsprengjum og efnavopnum.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 00:05

22 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Eva Hauksdóttir, þeir vilja myrða Ísraelsmenn og útrýma öllum gyðingum. Þeir tala um að gera það sama við Bandaríkjamenn og Dani. Þú ert ekkert hissa? En það er líklega vegna þess að þú ert blindur stuðningsmaður Hamas, sem líka myrðir aðra Palestínuaraba og börn. Morðhótanirnar hefur Hamas haft í frammi síðan 1987. Ef þú blandar líka öllu saman þegar þú ert að galdra, tel ég víst að þú skaðir sjálfa þig á kuklinu.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 17.1.2009 kl. 00:42

23 Smámynd: Hörður Þórðarson

Hvernig getur barn dáið mörgum sinnum? Ég vill fullyrða að í augum foreldra þess dó þetta barn nokkur hundruð sinnum:

http://www.islamonline.net/servlet/Satellite?c=Article_C&cid=1231760488574&pagename=Zone-English-News/NWELayout

"The emergency doctor could not believe himself seeing the remains of what was days back Shahd, a full-fleshed 4-year-old Palestinian girl.

She died when an Israeli shell was fired at the backyard of her home in the Jabalya refugee camp northern Gaza strip, where she was playing.

When her parents attempted to rush to the rescue of their kid, who fell to the ground amid a pool of her blood, rains of Israeli bullets kept them a distance.

For the next five days Shahd's which was left lying in the open left for dogs to tear out."

Hörður Þórðarson, 17.1.2009 kl. 07:45

24 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Hörður, Í fyrsta lagi vitnar þú í vefsíðu sem styður Íslamisma og aðrar öfgar s.s. grýtingar og hengingar, og sem getur aldrei talist góð heimild. Þar er talað um stúlku sem ber nafn, Shahd.  "A full-fleshed 4-year-old" eins og ógeðin skrifa.

"The emergency doctor could not believe himself seeing the remains of what was days back Shahd, a full-fleshed 4-year-old Palestinian girl"

Farðu svo á Al Jazeera eða til Sankti Birgittu Jónsdóttur og skoðaðu listann yfir fallin börn á Gaza, sem ég verð að telja mjög óáreiðanlegan. Þar finnur þú eina Shahd, 15 ára. Þín Shahd komst því ekki á listann, Hún var 4. ára "full fleshed Palestinian girl".

Því miðu Hörður. Þú og vinir þínir eru í vondum málum.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 17.1.2009 kl. 09:45

25 Smámynd: Óskar Steinn Gestsson

Þú ert eins og allir aðrir zíonistar blindur á staðreyndir. hamas gera miklu meira en að ráðast á ísrael, þeir vinna þrekvirki á Gaza, Samtökin Council on foreign relations segja að hamas noti 90% af fjármagni sínu til að reka heilsugæslustöðvar, skóla og aðra félagslega þjónustu. hamas eru vissulega með eyðingu ísraels á stefnuskránni og styð ég það vel, samt er ég ekki íslamisti. Staðreyndin er sú að í dag fyrirfinnst varla palestínumaður sem ekki hefur misst náin ættingja af völdum hryðjuverka zíonista. Átökin byrjuðu ekki í gær þau eru búin að standa í meira en 60 ár! 60 ár! samt situr gamall zíonista leppur við tölvuna sína á íslandi og bloggar af ákafa um hvað hamas séu vondir menn, en um leið lítur þú algerlega fram hjá þeim staðreyndum að tug þúsundir palestínumanna hafa verið myrtir af sama afli og þú reynir nú að verja. Þú ert ekki góð manneskja, þú ert siðblindur og tekur þau atriði sem henta þínum málstað en lítur fram hjá meirihluta ástæðnanna fyrir þessum átökum, ég ætla ekki að munnhöggvast við þig, þú ert eins og allir aðrir zíonistar, trúir blint á augu fyrir auga, tennur fyrir tönn! Ef það er til guð og hann dæmir okkur, þá vildi ég ekki vera þú!

Óskar Steinn Gestsson, 17.1.2009 kl. 15:27

26 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Deyr fé, deyja frændur.

deyr sjálfur ið sama.

En orðstír deyr aldregi.

hveim er sér "illan" getur.

Guðmundur Jónsson, 17.1.2009 kl. 15:54

27 identicon

Vilhjálmur ég held að þú þurfir að leita þér hjálpar,það er ekkert sem réttlætir þessi dráp á saklausu fólki,á hvorn vegin sem er,menn sem halda öðru fram hljóta að vera verulega veikir að geta réttlæt þvílíkan viðbjóð er sjúkt.

Hafþór (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 17:20

28 identicon

Vilhjálmur Örn

Hvers vegna ert þú hér með þekkta mynd af Talmud-isku Ritual barna drápi? Nú og afhverju ertu ekki með eitthvað meira um þessi barna dráp Zionista? Eða var Mahmoud Mashharawi (drengurinn sem dó) á lista yfir börn sem átti að fórna eftir Talmud-iskum Rituali Zionista?

Jewish Ritual Murders - Part 1

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 18:57

29 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Enn enginn sem getur tekið þátt í málefnalegri umræðu og svarað þeim spurningum sem settar eru fram: 

Óskar Steinn, af hverju ertu að álpast hingað fyrst þú fyrirlítur mig svo mikið?

Guðmundur Jónsson: Gott að sjá að forn kveðskapur er aðgengilegur á netinu. En hvað kemur hann þessari færslu við. Skýrir hann svikamyllu Hamas og stuðningsmanna þeirra. Skýrir hann gyðingahatur.

Hafþór, vertu ekki að gera mér upp skoðanir. Getur þú skýrt af hverju drengurinn Mahmoud er ekki á lista Al Jazeera eða stúlkan sem Hörður Þórðarson er með miður kræsilegar lýsingar á hér að ofan?

Þorsteinn Scheving Thorsteinsson: Ég hef alltaf gaman af því að sjá þegar "fínar" ættir enda í rugli og innrækt. Stungan sem er við færslu mína er ekki af "Talmúdísku barnadrápi", því slík barnadráp hafa aldrei verið til. Þau eru hugarburður sjúks fólks. Þetta er mynd af trylltum og hatursfullum hugarheimi miðaldarklerksins. Þetta hatur er greinilega enn til á Íslandi. Þessi teikning er við færslu mína, því það er enn verið að kenna gyðingum um barnamorð sem þeir fremja ekki. Hamas er ábyrgt fyrir þeim börnum sem missa líf á Gaza.

Ekki útiloka ég að fjöldi barna hafi misst lífið á Gaza. En miðað við ósamræmi í heimildum og hvernig Hamas hefur áður starfað, vona ég að þau séu færri en þessi listi Al Jaszeera gefur til kynna.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 17.1.2009 kl. 20:03

30 identicon

Vilhjálmur Örn

Þú getur ekki neita staðreyndum sem liggja fyrir

Jewish Woman Admits To Sacraficing a Baby on Oprah!

Jewish Ritual Murder Revisited

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 21:53

31 identicon

Vilhjálmur

Þetta er ekki hugaburður, heldur hafa þessi Talmud-isk Ritual barnadráp átt sér stað

Ritual satanic killings

Í Russlandi 2006 http://www.nogw.com/download/2006_ru_ritual_murder.pdf

og einnig http://judicial-inc.biz/ridtual_murder.htm

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 22:05

32 identicon

Réttlætir barnamorð og biður svo um málefnalega umræðu. Þú ert virkilega veruleikafirrtur maður. Getur ekki verið að þetta eina dæmi sem þú talar um sé skráningarvilla? Getur sýnt fram á fleiri misræmi?

Arnór (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 14:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband