Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál
20.1.2019 | 05:32
Samningur DV og Metoo JBH
Afkomendur Gróu á Leiti komumst í feitt nú eftir hátíðirnar. Síðasta flísin af hamborgarahryggnum hafði vart verið skorin af beini, er nýr og feitari göltur hlammaðist upp á fatið. Ef þið eruð í vafa um ættartengslin við heiðurskonuna Gróu, leitiði hana uppi á Íslendingabók. Hafið þið hins vegar á síðustu dögum heilögum kíkt með og blaðrað um ósamlynda fjölskyldu Jóns Baldvins og Bryndísar Schram, þurfið þið ekki að ómaka ykkur við leit; Þið eruð örugglega komin af maddömu Gróu á Leiti og síra Ólafi Besserwisser eiginmanni hennar.
Sá afkomandi afkomandi Gróu sem þetta ritar, er ekkert öðruvísi en svo margir afkomendur kellingarinnar. Ég er ólmur í svæsnar og söftugar kjaftasögur þegar mér leiðist. Þær staðfesta hve leiðinlegu lífi maður lifir.
Systir Bryndísar spurði mig um daginn á athugasemdasvæði við grein um Jón Baldvin og Fam. hvort ég væri að "perrast með Jóni". Nú er ég svo gamall að ég veit ekki hvað sögnin að perrast þýðir. Orðabækur mínar eru líklega forngripir, því ég finn heldur ekki orðið þar. En við frekari leit á nýrri uppfinningu sem mér var sagt frá nýlega, sá ég að þetta orðskrípi á ekki við um mig. Ég er að bara að lesa "fjölmiðla" gamla heimalandsins míns, og að reyna að raðgreina hvað sé eiginlega að, þegar kolruglað fólk getur stjórnað bönkum, setið á Alþingi orðið ráðherrar og stýrt allri umræðu í landinu. En í landi þar sem ekki fellur á silfur sem hefur verið 1000 ár í jörðu, geta víst ýmis undur gerst.
Þó ég viðurkenni tengslin við Gróu gömlu, er ég er líka komin af fólki sem þótti svo gagnrýnið að því hefur ekki verið neins staðar vært. Þegar ég les kjaftasögurnar á prenti byrja ég sjálfkrafa að detta um alls kyns ósamfellur, þó ég geri mér grein fyrir því að söguhetjan JBH sé vitaskuld helsta ósamfellan í jöfnunni. Á Íslandi er víst aðeins til einn "graðan satírikon" eins og hans sagðist vera í bréfi frá íslenska sendiráðinu í Washington hér um árið, sem er þó ekki skráð í bréfasafn Utanríkisráðuneytisins, þó svo ætti með réttu að vera.
Um daginn gerðist það hins vegar á athugasemdasvæði á DV við grein að einn af meginleikurunum í hinu laaannga tragíkómíska ættardrama Jóns Baldvins Hannibalssonar, að stúlka sú sem hann sannarlega ritaði nokkuð furðuleg bréf þegar hún var komin vel yfir fermingu, birtist í athugasemdunum og sagðist vera með samning við DV. Nokkrum mínútum síðar var greinin horfin af DV og þar með safarík saga um/eftir nafnlausa konu sem átti í ástarsambandi við Jón rektor fyrir Vestan. Nafnlausa konan fékk samkvæmt sögunni eintak af skáldsögunni Lólítu, áritaða af Jóni, sem vitanlega er ekki höfundurinn. Það var hann Nabukov. Sagan á DV greindi frá því að Jón hefði verið barinn af skólapilti fyrir Vestan, sem einnig bar hlýjan hug til nafnlausu konunnar.
Kannski var ég að perrast þegar ég algjörlega óvart sló á þrjá hnappa á tölvunni minni, þá sem á stendur ctrl, alt og prt sc. Ég geri það stundum ósjálfrátt, þegar ég er kominn með ritkrampa og fæ spasma. Ég hef síðan uppgötvað að í hvert sinn sem ég rekst svona á lyklaborðið með fingurna, þá hleð ég niður mynd af skjánum. Þannig er það nú að ég á mynd af þessum athugasemdum við greinina, og athugasemdina, sem hvarf.
Ég spyr mig nú, hvort íslenskri "fjölmiðlar" geri samninga við fólk á Íslandi um safaríkt efni? Ef svo er, vil ég ekkert með þetta hafa, og skila þessari skjámynd af mér til DV, sem kannski hefur týnt þessu og greininni sem hvarf. Mér finnst þetta allt frekar dularfullt og óþægilegt og vill ekkert frekar blandast inn í þessi mál hinnar ósamlyndu fjölskyldu.
Ég óska fjölskyldunni alls hins besta og vona að þau geti komið sér saman um að fara í allsherjar hóptherapíu til að leysa sín einkamál og ættarhöfðingjans. Kannski væri málið að fá skólapiltinn að Vestan til að berja sönsum í þetta slekti. Á meðan getur þjóðin snúið sér að mikilvægari og vitsmunalegri málum fyrir ofan mitti.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.3.2018 | 07:27
Mótmæli til Lettlands
Til að mótmæla dýrkun á nasistum og gyðingahöturum sem færst hefur mjög í vöxt í Eystrasaltsríkjum, hef ég ritað utanríkisráðherra Lettlands bréf, sem ég hef sent sendiráði Lettlands á Íslandi (sem hefur aðsetur í Osló) og beðið um að erindi mínu verði komið til Riga.
Hér efst sjáið þið Utanríkisráðherra Lettlands með utanríkisráðherra Íslands er sá síðastnefndi leiddi þing Eystrasaltsráðsins á júní 2017 í Hörpunni: Þar sem Ísland er með í Eystrasalsráðinu, ásamt löndum sem leyfa árlegar göngur nasista, tel ég mig til neyddan til að mótmæla og vona að lesendur mínir geri það einnig. Hægt er að senda mótmæli sín til lettneska sendiráðsins í Osló: embassy.norway@mfa.gov.lv. Þið megið nota mín mótmæli óbreytt, en setið ykkar nafn undir. Til að lesa ykkur til um hvernig Eystrasaltsríki leyfa göngur nasista og fólks sem afneitar helförinni getið þið lesið ykkur til á þessari síðu.
Dear Ambassador of Latvia to Iceland, H. E. Judite Dobele
Is it the new normal for Latvia´s foreign minister Edgars Rinkevics - a foreign minister in a EU and NATO member state - to publicly recommend for high honours a book that spews anti-Semitism and expresses understanding for various aspects of the genocide that all but wiped out Latvia´s Jewish community?
Mr. Edgars Rinkevics has recommend a new book on a pre war Latvian diplomat, Ludwig Seya. Please read here information for the reason for my question : http://defendinghistory.com/did-latvias-foreign-minister-just-honor-a-nazi-cheerleader-and-proven-antisemite/93928.
I certainly do not hope the recommendation of your countries foreign minister of a book that honours the ugliest form of anti-Semitism is the normal in Latvia. Annual Nazi marches in Latvia´s major cities in later years, where Latvian Nazi collaborators are praised as heroes is enough an insult to citizens of countries that supported Latvian independence in 1991.
As an Icelandic citizen, a citizen of a nations who supported Latvia´s freedom in 1991, I see Latvia´s foreign ministers praise of a book on a an Latvian anti-Semite as an strange attack on democracy and minorities. It is an act, which I hope the EU will soon realise is much too common in you good country. An anomaly which I think the Latvians could very well live without. When I supported your independence in 1992. I didn´t expect free Latvia´s politicians to praise anti-Semites who since 1998 gather in huge annual marches in major cities, and where former Latvian Waffen-SS members, neo-Nazis and other extremist, who praise murders of Jews and racism, gather on the main streets of Riga. I didn´t support such a state in 1991!
Dear Ms. Ambassador, please forward these views and my question to your foreign minister in Riga. I hope he will respond to my question. My views will also be published on different websites, where I will publish the response of Mr. Edgars Rinkevics if I receive one.
Yours Sincerely,
Dr. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
An Icelandic citizen living in the EU
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 10:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2017 | 05:59
Erdogan spældur á heimavelli
Það er greinilega ygglibrún á Erdogan eftir glæstan sigur íslenska landsliðsins á því tyrkneska. Hver getur ekki skilið það?
Erdogan er, fyrir utan að vera forseti Tyrklands og Kúrda fram í rauðan dauðann, einnig verndari allrar stór-tyrkneskrar knattspyrnu. Þeirri vernd er nú lokið og eru tyrkneskir landsliðsmenn í fótbolta hvergi óhultir fyrir fýlunni í Erdogan. Á heimasíðu einni í Tyrklandi hafa nú þegar verið færðar sönnur fyrir því að 7 fyrrv. landsliðmenn Tyrklands séu í raun Kúrdar og einn laungyðingur.
Helst hefði Erdogan viljað lýsa stríði á hendur Íslandi, en þá rann upp fyrir honum sú bitra staðreynd að landið, þar sem 11 menn eru betur þroskaðir til fótanna en höfuðsins, eru meðfélagar hans í NATO.
Erdogan lét þau orð falla eftir kvöldbænir sínar í gær, að engum væri lengur treystandi, og að greinilegt væri að hann yrði að leika alla landleiki Tyrklands einn og hjálparlaust.
Eins og hann sagði: Gürgel ürgun boklava Tÿrkiet lokum bömmer Islandiet futüllumkum Solo Tayiip Sosiijs!!
Slagorð nýs landsliðs Tyrklands hefur verið hannað af yfirgrátkonu Erdógan-veldisins og verður HÜ,HÜ,ÜH. ühühüh......
Landsliðið stelur erlendum fyrirsögnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 06:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.9.2016 | 06:29
Dómgreindarleysi, vanþekking eða hatur Íslendinga?
" No Israeli Leader Was More Respected Around the World"
Þannig skrifar fjöldi fjölmiðla í dag þegar Shimon Peres er allur 92 ára að aldri. Hann hlaut friðarverðlaun Nóbels ásamt Arafat árið 1994.
Árið áður, í ágúst 1993, var Peres svínaður til þegar hann heimsótti Ísland. Hópur íslenskra stjórnmálamanna, þar á meðal Ólafur Ragnar Grímsson, Steingrímur Hermannsson, Eyjólfur Konráð Jónsson og Kristín Ásgeirsdóttur fundu ýmislegt því til foráttu að hitta Shimon Peres. Sumt að þessu fólki flaðraði síðar upp um Arafat eins og lóðatíkur á júlíkvöldi og gleymum ekki að sumir lærðu aldrei af mistökum sínum. Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, sem var sonur mannsins sem leysti "gyðingavanda Íslands" með brottvikningu gyðinga frá landinu, gerðist á tímabili talsmaður lygaherferðar Arafats (sjá hér). Fyrr í ár kenndi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður sama flokks, gyðingnum George Soros um pólitískt fall sitt. Við getum talað um hefð í Framsóknarflokknum.
Davíð Oddsson og Vigdís Finnbogadóttir sýndu þó að í þeim bjó heiðarlegt fólk og tóku þau á móti Peres ásamt nokkrum öðrum heiðursmönnum. 500 manns púuðu hins vegar á Peres þegar hann kom út úr Stjórnarráðinu eftir að hafa hitt forsætisráðherra.
Ingibjörg Sólrún varði stríðglæpamanninn Mikson en sótti síðar stuðning fyrir setu stóra-Íslands í Öryggisráðu SÞ hjá morðhundinum Assad (les hér). Enginn samreiðarmanna hennar á Íslandi sá neitt athugavert við það. Enginn mótmælti. Hún taldi þó allt í sómanum að hitta Peres sem forseta Ísraels árið 2007.
Mogginn hafði árið 1993 mestar áhyggjur á að Peres tæki ekki upp mál Eðvalds Hinrikssonar, þar sem hann hefði ekki næg sönnunargögn. (sjá Moggann 21.ágúst 1993).Þau komu öll fram í dagsljósið og Eðvald Hinriksson (Evald Mikson) var eins og allir vita stríðglæpamaður sem myrti gyðinga og börn og fékk hæli á Íslandi í stríðslok meðan að gyðingar fengu það ekki í lok 4. áratugarins. Þannig mismunuðu Íslendingar. Þannig er dómgreindin í landinu. Gyðingar eru vondir samkvæmt flestum Ísendingum og eyðileggja fyrir frábærum snillingi eins og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, og Íslendingar dæma ávallt rétt, bæði stríðglæpamennina sína og hryðjuverkamenn og íslenskir morðingjar eru vitaskuld allir saklausir og óréttlætislega dæmdir.
Shimon Peres á Íslandi 1993
Alþýðublaðið var helsti gagnrýnandi félaga Verkamannaflokksins ísraelska.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 07:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
17.8.2016 | 05:36
... þótt fyrr hefði verið
Þjóðverjar skulda ekki bara Grikkjum. Vestur-Þjóðverjar gerðu afar lítið til að leita að og lögsækja stríðglæpamenn eftir síðari heimsstyrjöld. Dómar böðla voru styttir og menn sem myrt höfðu tugi þúsunda gyðinga og annarra lifðu til æviloka í lystisemdum. Það er fyrst nú, á síðustu mánuðum lífs sumra böðlanna, að farið er að skoða mál morðingjanna. Hingað til hafa þeir verið hylltir á sama hátt og Hitler af Þjóðverjum, annað hvort með þögninni, en oftast ljóst og opinberlega.
Í bókinni Das Amt, sem út kom fyrir nokkrum árum má lesa hvernig skítseyði úr nasistakerfinu byggðu upp Utanríkisþjónustu Vestur-Þýskalands sem gerði allt til að komast hjá því að finna og lögsækja menn eins og t.d. Adolf Eichmann.
Það sem menn vita kannski ekki er að fasistar og kommúnistahatarar í BNA gerðu þetta kleyft. Stjórnvöld í BNA ákváðu að Þjóðverjar með rófuna á milla fótanna yrðu besti og tryggasti samstarfsaðilinn í Evrópu. Þýskaland varð kjölturakki BNA. Þar skýrir saga NATÓ í hnotskurn. Furstar ESB upplifðu efnahagsundur og framgang vegna þess að þeir tóku aldrei afleiðingum gerða sinna! Vinna og elja Þjóðverja er mýta. Íbúar morðveldisins voru bornir á gullstólum til ríkidóms sem þeir stálu af öðrum.
Íslendingum ber siðferðileg skylda til að styðja kröfur Grikkja um bætur frá Þýskalandi. Þýskalandsslepja margra Íslendinga er óholl og nærri því sjúkleg. Grikkland er ein af vöggum menningar okkar, það er Þýskaland ekki. Þýskaland var hins vegar svínstrog öfga sem nær eyðilögðu menninguna - og nærri því heilu þjóðirnar með.
Lágmenning Evrópu fyrir 70 árum síðan á rústum menningar sem færði okkur ljós. Í dag er fólk, t.d. á Íslandi, farið að eltast við dauðamenningu Íslams á sama hátt og feður þeirra gældu við nasismann. Það kennir meira að segja sama fólkinu um "ófarir" sínar og heimsins. Sjálfeyðingarhvöt sumra Evruþjóða er skiljanleg í ljósi þess hlutverks sem þær léku á 20. öld við að eyðileggja Evrópu og í morðum á 6. milljónum gyðinga - sem og við nauðgunina á löndum eins og Grikklandi.
Vilja stríðsskaðabætur frá Þjóðverjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 05:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
6.4.2016 | 07:22
Sigmundur er aðeins einn af X þúsundum svikahrappa á Íslandi
Mossack Fonseca, glæpafyrirtækið sem aðstoðað hefur um 600 Íslendinga við að vanvirða reglur lýðræðisríka, er ekki stærsta "fyrirtæki" á sínu sviði í okkar rotna heimi.
Dellufólk á Íslandi, sem fór að leika sér í bankaleik með glæpafasistum í Úkraínu, Pútín hinum siðlausa, vopnasölum og dauðakaupmönnum og ólíusheikum og hryðjuverkakaupmönnum í Arabíu, gæti alveg eins átt falið fé sem önnur fyrirtæki en Mossack Fonseca hafa falið fyrir þessa gráðugu kynslóð. Mossack Fonseca er 5. stærsta "fyrirtækið" á sínu sviði.
Íslenskir viðskiptavinir svikamyllunnar í Panama eru hugsanlega aðeins brot af þeim "Íslendingum" sem falið hafa fé sitt í sandinum á pálmaeyjum og í öðrum skattaskjólum. Jafnvel fjármuni sem íslenskir bankaræningjar rændu frá saklausu fólki.
Slíkt fólk borgar ekki fyrir landsins gögn og gæði. Það á því t.d., sem skattsvikarar engan rétt á því að fá ókeypis læknisþjónustu. Sennilegast er einnig að það leiti hennar annar staðar áður en það fer með stolnum gullvagninum beint til helvítis.
Eitt af verkum nýrrar ríkisstjórnar á Íslandi verður að láta hefja skipulega leit af þeim sem ekki vilja taka þátt í uppbyggingu landsins. Þeir hafa stolið frá fólkinu sem ekki á fyrir kvöldmatnum og getur ekki sent börnin sín í frístundarstarf. Þessir ræflar, sem fela jafnvel stolið fé, eiga sök á því að gamalmennin, sem alltaf greiddu sína skatta, deyja úr lungnabólgu á göngum spítalanna. Þessir verstu þjófar Íslandssögunnar hugsa aðeins um sjálfa sig. Hegðunarmynstur eins þeirra, sem á einhvern furðulegan hátt gat orðið forsætisráðherra eftir Hrunið, þótt hann hefði m.a. logið um nám sitt erlendis, sýnir okkur sjálfsánægju þessa fólks og ofmetnað. Nú upplifir það vonandi allt nemesis sitt eftir linnulaust hybris.
Virðing Alþingis er í molum, ásjóna Íslands í heiminum er illa farin og afskræmd vegna þessa fólks. Nú verður að lækna sárin og höfða til fólks sem veit upp á sig sakir um að láta sig hverfa frá löggjafasamkomu landsins. Þar á siðlaust fólk ekki að starfa.
Með dramatískustu dögum í pólitík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
4.5.2014 | 16:05
Wer ist der Brinkmann?
Eins og þið getið lesið í fyrri færslu minni kom ýmislegt í ljós, sem sýndi að mikið ósamræmi var á milli þess sem stendur í ferilskrá sendiherrans og því sem ég gróf upp. Ég hnaut fyrst og fremst um þá upplýsingu sendiherrans að hann hefði starfað í ráðuneyti í Danmörku árið 1987-90, ráðuneyti sem var reyndar enn ekki til þegar hann sagðist hafa unnið þar.
Nú er ég einnig búinn að fá þær upplýsingar frá dómsmálayfirvöldum í Hamborg, að Brinkmann hafi verið dómari þar í borg árið 1994. Það þykir mér skondið, en samkvæmt ferilskrá Brinkmanns á vef ESB var hann þá háttsettur yfirmaður ESB-skrifstofunnar í Stokkhólmi og hafði unnið þar síðan 1992. Kannski ók Dr. Brinkmann á milli ESB skrifstofunnar í Stokkhólmi og réttarsalsins í Hamborg á hraðskreiðum Audi til að dæma mann og annan? Það verður auðvitað ekki skafið af Þjóðverjum, þeir eru afkastamiklir á mörgum sviðum. Á leið sinni im Gericht hefur hann kannski komið við í gamla ráðuneytinu sínu í Kaupmannahöfn, sem var nýorðið til árið 1993.
Wo ist der Brinkmann?
Nú kunna vitaskuld að vera náttúrulegar skýringar á öllum því ósamræmi sem ég hef fundið milli ferilskrár Brinkmanns og þeirra upplýsinga sem ég hef aflað.
Þess vegna hafði ég samband við skrifstofu sendiráðs ESB í Reykjavík til að fá betri upplýsingar straight from the horse's mouth. Fyrst talaði ég við rúmenska konu, sem lofaði að rannsaka málið, en heyrði svo ekkert frá henni. 24 mars sl. ritaði ég Klemens Þrastarsyni, (fyrrv. blaðamanni), sem vinnur hjá ESB-sendiráðinu.
Klemens svaraði mér loks þann 7. apríl, en hann hafði verið erlendis og ekki haft aðgang að tölvu. Hann bað mig að senda erindi mitt á ensku eða þýsku til að flýta fyrir svörum. Það gerði ég strax þann 8. apríl - á báðum tungumálunum, kannski ekki á fullkominni Oxfordensku eða Heidelbergþýsku, en það sem ég skrifaði ætti að skiljast. Kom svo ESB-starfsmaðurinn Klemens Þrastarson erindi mínu til sendiherrans, sem hlýtur að vera mjög önnum kafinn, því enn hef ég ekki fengið svör. Er þetta alltaf svona seinvirkt í ESB?
Það hlýtur að vera hægt að fá þær upplýsingar sem ég hef beðið um. Sjáið til dæmis á síðu þýska sendiráðsins í Reykjavík. Þar liggja allar nauðsynlegar upplýsingar um sendiherrann Thomas Herrmann Meister frammi, efst til hægri á síðunni í pdf skjali. Brinkmann gæti bara sent mér slíkt skjal með upplýsingum um sig. Menn verða að eiga slíkt þegar þeir sækja nýjar vinnur.
Það verður að minnsta kosti að skýra ósamræmið á milli veruleikans og þess sem stendur í ferilskrá sendiherra ESB á Íslandi. Hvernig í andsk.. starfa menn í dönsku ráðuneyti sem ekki var til á þeim tíma sem þeir segjast hafa unnið þar, og hvernig er hægt að vera yfirmaður á upplýsingastofnun um ESB í Svíþjóð um leið og maður starfar sem dómari í Hamborg? Ég spurði sendiherrann einnig um annað.
Sjá fyrri færslu um Brinkmann.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 5.5.2014 kl. 02:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.3.2014 | 08:28
Egill Helgason falsar silfrið fyrir ESB
Það hefur ekki farið fram hjá mönnum, að svæsnustu aðdáendur ESB-veldisins meðal Íslendinga eru duglegir þessa dagana að líkja Íslandi við Úkraínu. Maður sér Sigmundi Davíð í sífellu líkt við Pútín, en hvergi sér maður ESB-áhangendur líkja Árna Páli Árnasyni við nasistann, fasistann og ESB-aðdáandann Oleh Tyahnybok í Svobodaflokknum, sem fékk álíka mikið fylgi og Samfylkingin í síðustu kosningum og situr nú í ríkisstjórn Úkraínu sem stefnir inn í ESB með aðstoð Catherine Ashton, útvíkkarans og fyrrv. kommúnistans Stefáns Füle og illa upplýstra Bandaríkjamanna til hægri og vinstri.
Egill Helgason birti í gær mynd frá Krím á bloggi sínu við predíkun sem hann kallar "ógnvekjandi ljósmynd". Hann segir hana sýna mann í búningi sovésku KDVK-sveitanna, og hinn í búningi hvítkósakka í þjónustu Zarsins. Egill upplýsir ekki, hvaðan hann hefur myndina, hvenær hún var tekin eða hvað var að gerast þegar hún var tekin. Það er ekker nýtt. Tilgangur Egils er sögufölsun og það kemur í ljós í því hvernig hann leggur út frá myndinni og hvernig fólk skrifar athugasemdir sínar hjá hinum útbelgda Búdda ESB-sinna á Íslandi.
Egill Helgason upplýsir, að Kósakkar hvítliða hafi sérstaklega sérhæft sig í að drepa gyðinga á Krím. Þetta alrangt hjá Agli. Allar ríkjandi og herjandi þjóðir og öfl á þessu svæði hafa sérhæft sig í drepa gyðinga og kenna þeim um allt. Reyndar drápu kósakkar ekki gyðinga í svo miklum mæli á Krím eins og t.d. Lenín, Stalín og Hitler og meðhjálparar þeirra. Stalín sendi ashkenas-gyðinga, sem hann ekki drap á Krím, til Síberíu, með Tatörum og öðrum minnihlutahópum, þar með talið Karaítum og tyrkneskumælandi gyðingum Krymsjökkum. Mér sýnist á öllu, að Egill Helgason viti yfirleitt ekkert um það sem hann er að skrifa, og það gerist nokkuð oft þegar hann predikar sem heitast fyrir ESB-söfnuðinum.
Í athugasemdum við færslu Egils má sjá að fólk elur á sömu fordómunum og grýlunum og hann.
Egill gleymdi hins vegar að segja blindum og heilaþvegnum lesendum sínum meira um hina raunverulegu gyðingamorðingja. Margar ógnvekjandi myndir eru til af þeim í morðæði. Eftirfarandi myndir eru ekki af tveimur "drag-hermönnum" og ''Pútín-áhangendum" á Krím, heldur af morðingjum sem hylltir eru af fólki/þjóðum sem vilja ganga í ESB með Agli og Árna Páli.
Kósakkar börðust ekki bara í herjum keisarans eða kommúnista. Stríð og gyðingadráp var lífsstíll þeirra. Hér má sjá kósakka í þjónustu herrarþjóðarinnar í ESB, sem skipuleggja dráp á gyðingum í gettóinu i Varsjá árið 1939. Þegar Egill og aðrir gyðingahatarar á Íslandi líkja Gaza við gettóin, þá gleyma þeir að Ísraelsmenn njóta ekki aðstoðar allra þeirra þjóða sem Þjóðverjar nutu, ÞAR MEÐ TALIÐ ÍSLENDINGA!!!!!!
Hér má sjá Úkraínumenn í þjónustu SS. Neðri myndin sýni úkraínska Waffen-SS liða í útrýmingarbúðunum í Belzec. Afkomendurnir þessara manna eru ugglaust ólmir ESB-áhangendur.
Hér má sjá stjórnarliða í nýrri ríkisstjórn Úkraínu. Þetta verða líklega samherjar prestsonarins úr Kópavoginum sem vitaskuld er ekki neinn nasisti eða gyðingahatari - þ.e.a.s. ef Ísland gengur í ESB, en það vill meirihluti Íslendinga ekki. ESB-sinnar skíta á meirihluta, líkt og fasistarnir í Kíev skíta á meirihlutaskoðun íbúa Úkraínu - sem vilja ekki í ESB.
Hér má sjá Úkraínumann, og ESB-SINNA, í búningi SS við minningarathöfn í Úkraínu í fyrra (sjá hér)
Meðan að ESB, útópía Egils Helgasonar og annarra lýðskrumara á Íslandi, leyfir meðlimum ESB að hylla SS og aðra gyðingamorðingja, t.d. síðastliðinn sunnudag í Ríga og í tvígang í Litháen i febrúar og mars, er það heldur þunnt að sjá sama fólkið líkja saklausum þjóðernisrómantíker eins Sigmundi Davíð við Pútín keisara. Meirihluti vinstrimanna á Íslandi iðkar reyndar líka gyðingahatur í dag og styður öfl sem ætla sér að útrýma ríki gyðinga. Slíkt fólk hefur engan rétt á því að taka gyðinga sem gísla í myndafölsunarleik á einni helstu áróðurssíðum ESB á Íslandi, Silfir Egils á Eyjan.eu.
Þeir sem láta ginnast af billegum hópæsingatilburðum Egils Helgasonar, sem vill greinilega gera ESB-sinna að ofsóttum gyðingum, þá má reyndar upplýsa, að NKVD-liðar sem Egill líkir við SS voru meðal þeirra sem frelsuðu gyðinga í útrýmingarbúðunun Auschwitz. ESB leyfir hins vegar fasistum í Austur-Evrópu að þramma og minnast "dásemda" SS. Er nema von að sumir tali um 4. ríkið þegar ESB á í hlut?
Egill Helgason skal allra mann síst afskræma sögu gyðinga.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 16:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2014 | 05:51
Lettar hylla SS
Vinaland Íslands, sem Íslendingar eru með í Eystrasaltsráðinu, landið sem það sem fyrrverandi íslenskur utanríkisráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson, hefur m.a. verið sérlegur ráðgjafi ungra, frjálslyndra meyja, heldur í dag enn einu sinni minningarhátíð um SS. Þetta óeðli er árlegur viðburður.
ESB gerir ekki neitt. Norðurlöndin gera ekki neitt. Ísland gerir ekki neitt. Studdu Íslendingar sjálfstæði þjóðar, sem getur ekki farið öðruvísi með það en að hylla morðsveitir?
Geta Íslendingar verið í sambandi við ESB-þjóð sem telur SS-liða meðal þjóðhetja sinna? Hvað ætla íslenskir stjórnmálamenn að gera? Við þekkjum svarið. Marga þeirra langar í ESB og þeir hljóta því að taka undir með yfirvöldum í Lettlandi sem leyfa nasistadýrkun.
Árni Páll Árnason, nú átt þú leikinn, og einnig þú Bjarni Ben! Kannski getur Jón Baldvin komið fram ber fyrir góðan málstað? Þeir sletta skyrinu sem geta það.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 06:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.3.2014 | 14:44
Nasistar þramma enn og aftur í Litháen
19 febrúar sl. greindi ég frá hinni árvissu göngu nasista og öfgamanna í Kaunas í Litháen sem fer fram með fullu leyfi yfirvalda í Litháen og undir vernd þeirra. Ég kvartaði persónulega við sendiherra Litháens á Íslandi, sem sagði mér í svari sínu að gangan hafi fyrst og fremst verið mótmæli gegn ESB. ESB andstæðingar í Litháen, sem hata Rússa, Pólverja, gyðinga og samkynhneigða, báru hins vegar borða sem hylla ráðherra litháískrar leppstjórnar nasista, sem árið 1941 undirritaði lög sem gerðu útrýmingu gyðinga mögulegar í Litháen. Samkvæmt sendiherra Litháa á Íslandi eru þeir sem mæra þann glæpamann að mótmæla gegn ESB. Ekki kaupi ég þau vafasömu rök og mótmæli þessari opinberu skýringu umboðsmanns Litháa á Íslandi.
Sl. þriðjudag, 11. mars, fóru nasistarnir enn í gönguskóna og þrömmuðu nú um götur Vilnius til að minnast fullveldisdags landsins. Nasistarnir fengu að halda ræður sínar á besta stað í borginni. Borðinn sem hyllir morðingjann Juozas Ambrazevicius-Brazaitis var aftur með í för. Lesið frásögn Prófessors Dovid Katz af uppistandinu, sem hann birti á Defending History. Ég ætti víst frekar að skrifa fyrrverandi prófessor. Litháísk yfirvöld boluðu Dovid Katz úr embætti prófessors á Jiddishdeild háskólans í Vilnius fyrir fáeinum árum. Litháar þola ekki gangrýni Katz og annarra á þeirri sögufölsun sem fer vísvitandi fram í landinu á ógeðfelldan og subbulegan hátt.
Einn þeirra stjórnmálamanna sem tók þátt í göngu nasista var Gintaras Songailas. Þann rudda hef ég hitt persónulega. Samtök sem vilja efla minningu Aage Meyer Benedictsens kríuðu peninga út úr einhverjum ESB-sjóði sem þessi Songailas, sem er mest þekktur fyrir hatur sitt í garð samkynhneigðra, sat í. Peningarnir voru notaðir til að halda ráðstefnu til minningar Aage Meyer Benedictsen sem hvatti til sjálfstæðis Litháen um aldamótin 1900. Meyer Benedictsen var af íslensk-dönskum-gyðingaættum. Eitthvað minnkaði víst áhugi þessa litla karls, Songailas, á norrænu samstarfi þegar hann uppgötvaði að Aage Meyer var af gyðingaættum. Á ferð til þorps, sem Benedictsen dvaldi löngum í þegar hann var í Litháen, fór þessi Songailas og annar meðlimur í litháiskum þjóðernissinnaflokki að útlista skoðunum sínum á "the little dirty country in the middle east" við erlenda gesti ráðstefnunanr. Aðrir þátttakendur lentu í orðaskaki við manngarminn og flokksfylgju hans út af þessum öfgum hans í garð Ísraels, því meirihluti þorpsbúa höfðu fyrir helförina verið gyðingar. Flestir þeirr féllu fyrir hendi Litháa.
Við síðari ráðstefnur vina Aage Meyer Benedictsens hefur Songailas sem betur fer ekki sést, en félagsskapurinn sem vill heiðra minningu hans í Litháen hefur barist í bökkum. Yfirvöld og stjórnmálamenn í Litháen styðja frekar öfgar eins og þær sem við sjáum í þessum árlegu nasistagöngum, þar sem SS-liðar, meðreiðarsveinar og böðlar meðal Litháa í síðara stríði er minnst. Fyrir utan norskan sendiherra hafa Norðurlandaþjóðirnar ekki hreyft mótmælum. Ekki einu sinni samkynhneigður prófessor frá Íslandi, sem kenndi í Vilnius í fyrra, lét í sér heyra. Um daginn var samkynhneigð kona stungin með hnífi í kviðinn í Vilnius, þar sem hún mótmælti.
SS-manna minnst í "menningarhöfuðborg" ESB
Næstkomandi sunnudag 16. mars þramma nasistar einnig í Lettlandi með stuðningi ríkisstjórnar Lettlands til að minnast SS-manna Letta sem Lettnesk yfirvöld líta á sem þjóðhetjur. Sú ganga er einni árlegur viðburður. Riga er Menningarborg ESB árið 2014. Riguborg heldur m.a. upp á það með göngum sem heiðra SS og morðingja gyðinga og þúsunda annarra. ESB, sem margir örvingla Íslendingar vilja tilheyra, segir ekkert.
Grænklæddi maðurinn sem talar í míkrófóninn á myndinni er helfarar-afneitarinn Ricardas Cekutis sem til nokkurra ára var upplýsingafulltrúi á Þjóðarmorðastofnum (Genocide center) Litháens. Það segir eitthvað um fullveldishátíð þegar einn af aðalræðumönnunum þar er gyðingahatari og helfararafneitari. En samkvæmt Litháískum yfirvöldum á Íslandi er hann að mótmæla ESB. Gintaras Songailas er í svörtum frakka.Hér ræðir Dr. Efraim Zuroff við Vitas Tomkus ritstjóra dagblaðsins Respublika sem ítrekað birtir svæsið gyðingahatur. Zuroff, góðvinur minn í 20 ár, er Íslendingum vel kunnur sem sumir vinstri menn á Íslandi útúðuðu, þegar hann vildi fá Íslensk yfirvöld til að rannsaka mál Eðvalds Hinriksson. Hér er góð grein eftir Zuroff.
Lesið um öfgar ESB á
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 14:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 89
- Frá upphafi: 1352318
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 58
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007