Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Gyðingdómur

Jesú haldið í gíslingu nærri Kringlunni

Jesuah ben Josaf Kahan

Borgarleikhúsið er enn með látalæti og trúðshátt. Nú í leikriti sem kallast Jesús litli.  Samkvæmt leikskrá fæddist Jesús litli í Palestínu. Ef svo er, er Jesús litli líklega týndur, því hann fæddist ekki í Palestínu.

Það fer ýmsum sögum af því hvar hann fæddist hann Jesús, en ekki var það í Palestínu. Heitið Palæstina var fyrst notað formlega yfir það land sem Jesús fæddist í á 2. öld eftir Krists burð. Þá varð Provincia JudeaSyria Palaestina, og var sú breyting bara einn liður í kúgun Rómverja á Gyðingum.

Hvernig þetta „slys" með Palestínudrenginn Jesús er komið inn í leikrit í Borgarleikhúsinu get ég nú vel gert mér í hugarlund. Menn hamast mikið í þessu nafni.

En það er stórfurðulegt að höfundar leikritsins hafi ekki getað notið aðstoðar íslenskar þjóðkirkjupresta til að fá haldgóðar upplýsingar um hvar Jesús litli fæddist. Samkvæmt leikskrá aðstoðuðu prestar, prelátar og prestslærlingar eins og Auður Eir, Bernharður Guðmundsson og Davíð Þór Jónsson, ásamt fleirum, höfundana og leikara Jesúsar Litla.

Er það opinber stefna Þjóðkirkjunnar á Íslandi, að Jesús hafi fæðst í Palestínu? Ef svo er, þá var Jesús væntanlega ekki til. Og gleðjast nú Vantrúarmenn. Já, ef hann fæddist í "Palestínu", er hann líklega bara hluti af hatursfullum áróðri, öfgum og hryðjum eins og nafnið Palestína er oft á okkar dögum. Nú urðu Vantrúarmenn óglaðir, því þeir eru líka mikið fyrir Palestínu, en auðvitað ekki i nafni Aðalsteins ósýnilega og Múhammaðs PR-meistara hans.

Ég vona að Jesús litli komist aftur heim til sín úr þeirri gíslingu sem Borgarleikhúsið hefur tekið hann í í Palestínu. Síðast þegar ég vissi, var Jesús litli með dekkra hár en á meðfylgjandi mynd, en hann er enn með slöngukrullur (ekki slöngubyssu). Þeir sem gætu gefið upplýsingar um ferðir hans, ættu að hafa samband við Þjóðkirkjuna hið fyrsta. Þar var mér tjáð í dag, að ekki væri hægt að gefa einhlýtt svar við því hvar Jesús hefði fæðst. En hugsanlegt má telja að einhverjir prestar hafi þetta á hreinu og geti hjálpað Jesú (Jesúsi, Jesum) litla heim til sín.

Hafið endilega ekki samband við lögregluna. Hún sendir alla útlendinga frá Miðausturlöndum úr landi með fyrstu flugvél.


Er Ólafur Ragnar kvæntur dóttur Mafíubófa?

DeCODEd

Eftir að Dorrit var testuð hjá DeCODE er komið í ljós að það rennur mikið „ítalskt" blóð í æðum hennar. Þetta kemur auðvitað á óvart og mest forundruð er Dorrit sjálf. Sjáið frásögn hennar hér. Hún skýrir frá pastagenunum síðast í frásögninni.

Kári litli hafði allt gott að segja Dorrit, nema að hún sé mjög ítölsk, average, terribly uninteresting og jafnvel scary. Þetta skýrir ýmislegt.

Nú verður að biðja Jewish Agency að fara á kreik til að athuga hvor Dorrit sé ekki í raun tökubarn frá New York eða Sikiley.

Því má ekki gleyma að Dorrit hefur áður verið berrössuð á þessu bloggi. En ekki sást þá að hún væri ítölsk.

Vinur minn, læknir og gyðingur eða öfugt, sem ég bar hreysti Dorritar undir, segir af og frá að Dorrit geti verið gyðingaættar, því þá væri hún með minnst fimm arfgenga sjúkdóma og tvo króníska. Hún hlýtur að vera ítölsk!

Mamma Mia

One Day

Ég hef áður skrifað um Matisyahu. Mér finnst hans góður. Góð krepputónlist.

Knut Hamsun er mælikvarði á siðferði

Hamsun loved Hitler

Þótt Norðmenn haldi upp á dæmdan landráðamann, sem var aðdáandi gyðingamorðingjans Hitler, er þá nokkur hæfa fyrir Íslendinga að gera það sama? Hamsun á sér þó greinilega einvala lið aðdáenda á Íslandi.

Kannski gerir Avigdor Liberman, umdeildur utanríkisráðherra Ísraels, sér ekki grein fyrir því, að frændur Norðmanna, sumir Íslendingar, eru líklegast ekki minni gyðingahatarar en Norðmenn. Sjáið til dæmis skrif sumra þeirra manna, sem lagt hafa orð í belg í umræðunni við þessa frétt Morgunblaðsins.

Einn þeirra segir, að maður sé ekki gyðingahatari þótt maður sé nasisti. Þessi maður, sem hefur greinilega farið illa út úr íslenska skólakerfinu, hefur hér á blogginu gert það að köllun sinni að vara við "Villa í Köben" (þ.e.a.s. mér), í bloggkynningu á sjálfum sér, vegna þess að ég ver málstað Ísraels og segi stundum sögu gyðinga á bloggi mínu. Menn geta þó líka verið gyðingahatarar, þó þeir séu ekki nasistar.

Jú, nasistar eru allir gyðinghatarar og gyðingahatur er stoðarsteinn nasismans. Nasisminn í Þýskalandi var drifinn áfram af gyðingahatri. Gyðingahatur er líka helsta iðja nýnasista. Og nú hafa vinstri menn bæst í hópinn, eftir að fasistaríkin, sem þeir studdu austantjalds, voru afhjúpuð. Gyðingahatur kommúnistaríkja var ofsafengið og flótti gyðinga frá Póllandi á 7. áratugnum, sem og mikill fjöldi gyðinga í Gúlagi Sovétsins er til marks um það.

Hamsum, sem hataði Breta, og sem hyllti Hilter, var gyðingahatari per exelance. Nóbelsverðlaunin, sem hann fékk árið 1920, eru ekki bólusetning við gyðingahatri. Arafat fékk eins og allir vita friðarverðlaun. Hvenær var hann friðarsinni? Hamsun gaf Göbbels Nóbelsmedalíuna sína í hrifningu yfir nasismanum.

Frá því ég byrjaði að blogga, hef ég öðru hvoru bent mönnum á, að skrif þeirra flokkist undir gyðingahatur. Flokkunina sem ég nota er skilgreind af t.d. Evrópuráðinu og stofnunum ESB. Flestir þeirra sem ég hef gangrýnt sjá ekki galla sína og telja að þeim sé heimilt að skrifa sora og ærumeiðingar um gyðinga. En Það er bannað samkvæmt íslenskum hegningarlögum.  Vegna spillingar í íslensku þjóðfélagi, sem er algjör, þar sem ættmenn þeirra sem sendu gyðinga úr landi á Íslandi á 4. áratug síðustu aldar, hafa t.d. gengt stöðu saksóknara, finnst enginn sem vill taka á gróðrarstíu gyðingahaturs á Íslandi. Gyðingahatur er því miður orðin lenska á Íslandi.

Jón Valur Jensson, mikill baráttumaður fyrir frelsi, sem nýlega bað um að gerast bloggvinur minn, segist ekki kannast við gyðingahatur Hamsuns. Maður, sem í ræðu á stríðsárunum lýsir Roosvelt Bandaríkjaforseta á þennan hátt:  "Gyðingur í þjónustu Gyðinga", er kannski ekki gyðingahatari? Hvað finnst þér Jón Valur?

Þó svo að sumir Norðmenn verji glósur Hamsuns um gyðinga á þann hátt að þær hafi verið "til siðs" á þessum tíma, þá eru þessar glósur jafnt sem áður, GYÐINGAHATUR. Þetta var hatur sem tíðkaðist fyrir þann tíma að brjálæðingur nokkur í Þýskalandi, sem Hamsun dýrkaði, kom því í kring að 6 milljónir gyðinga voru myrtar, meðan mestur hluti heimsins horfði á án þess að segja nokkuð eða gera. Þó svo að Hamsun hafi grenjað á vitleysingahælinu þegar hann heyrði um örlög gyðinganna, þá breytir það ekki því að hann var stuðningsmaður morðingjanna sem myrtu þá.

Stundum hvarflar það að mér, að það sem var til siðs að segja um gyðinga á tímum Hamsuns, sé komið aftur í tísku, eins og Hamsun.

Hér fáið þið minningarorð Hamsuns um Hitler:

Jeg er ikke verdig til at tale høirøstet om Adolf Hitler, og til nogen sentimental Rørelse indbyder hans Liv og Gjerning ikke.

Han var en Kriger, en Kriger for Menneskeheden og en Forkynder av Evangeliet om Ret for alle Nasjoner. Han var en reformatorisk Skikkelse av høieste Rang, og hans historiske skjebne var den, at han virket i en Tid av eksempelløseste Raahet, som tilslut fældte ham.

Slik tør den almindelige Vesteuropæer se på Adolf Hitler. Og vi, hans nære tilhengere, bøier nu vaare hoder ved hans død.

Knut Hamsun

Þetta var birt í Aftenposten 07. 05. 1945. Nú er Aftenposten að ráðast á ríki Gyðinga. Lengi lifir í gömlum glæðum.

Ef íslensk skítseyði vilja hylla slíka norskan föðurlandssvikara, sem lýsir Hitler eins og hetju, þá er kannski kominn tími til að hafa samband við "Villa öfgamann í Köben", til að láta hann stinga gyðingahatursmælinum í afturendann á ykkur. Þið eru að minnsta kosti með verulegan hita. Svínainflúensu er auðvitað ekki hægt að útiloka, en siðferðið er að minnsta kosti bágt.

Ætli Íslendingar muni halda upp á afmæli landráðamannanna sem settu íslensku þjóðina á hausinn? Nei, ég held ekki að Íslendingar séu eins vitlausir og Norðmenn, enda flýðu þeir Noreg fyrir 1100 árum. Hver vill láta skipa sér í sveit með þjóð, sem telur að makríllinn tali norsku?


mbl.is Segir Norðmenn hata gyðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á Íslandi má hjóla yfir gyðinga

verboten_806108[1]

Nýlega setti hjólasali nokkur í Reykjavík miða í gluggann á verslun sinni á Hverfisgötunni, þar sem hann sagði að gyðingar væru ekki velkomnir í búðinni hans.  Fréttin barst til heimsfjölmiðla og má  rekja það til þess að ég sendi fréttina til gyðinga á Norðurlöndunum. Þingmaður í Danmörku sendi meira að segja erindi til danska utanríkisráðherrans og bað hann að gera eitthvað í máli þessu sem upp var komið á Íslandi, frændþjóð Dana.

Hitt hefur ekki komist í heimsfjölmiðlana, að hjólasalinn á Hverfisgötunni tók miðann úr glugganum eftir að tveir lögregluþjónar heimsóttu hann í verslunina á Hverfisgötunni og bentu honum á að miðinn væri stjórnarskrárbrot.

Hjólasalinn var bara frekar rogginn yfir heimsfrægðinni og greindi hróðugur frá. Einn allra besti kúnni hans, Mörður Árnason hjá Samfylkingunni, tjáði sig um málið: „Ég hef enga ástæðu til að halda að hann sé kynþáttahatari eða neitt í þá veru. Ég held að þetta hafi verið klaufaskapur hjá honum," DV greindi einnig svo frá: Mörður segist telja að ástæðan fyrir því að Magnús setti miðann upp hafi verið tíðindi af árásum á Gaza-svæðið nýverið. „Ég get vel skilið slík viðbrögð en þau mega auðvitað ekki koma út sem kynþáttahatur, og allra síst gyðingahatur sem er ákaflega ógeðfelld tegund af þeim tilfinningum því gyðingahatur á sér langa og blóði drifna sögu," segir hann og ítrekar að Magnús sé fyrst og fremst góður hjólaviðgerðamaður.

Magnús er ekki nasisti eins og sumir bloggarar úti í heimi hafa haldið. Hann kýs líklega Samfylkinguna. En Kratar og kommar geta líka verið kynþáttahatarar, eins og kunnugt er.

Var það kannski líka klaufaskapur hjá Bobby heitnum Fischer, þegar hann hélt úti andgyðinglegri vefsíðu í Japan, meðan hann bjó á Íslandi? Það athæfi var kært til Ríkissaksóknara. En Ríkissaksóknari taldi enga ástæðu til að framfylgja lögunum og senda ekki svo mikið sem eina löggu heim til heimsmeistarans til að skáka honum aðeins fyrir brot á íslenskum hegningarlögum.

Er allt hægt á Íslandi þegar að gyðingum kemur? Maður nokkur Scheving Thorsteinsson að eftirnafni heldur uppi ofsafengnum andgyðinglegum áróðri á bloggum ýmissa manna. Margir hafa hreinlega þurft að fjarlæga þennan mann og ruglið í honum. Ætlar enginn að gera neitt við því? Menn hafa verið fjarlægðir af Moggablogginu fyrir að hafa vitnað beint í Kóraninn. En Scheving Thorsteinsson má vitna í vefsíður gyðingahatara og halda með áróður fyrir þá inn á blogg annarra Íslendinga.

Kannski er það eðli Íslendinga að fara ekki að lögum, eða kannski gilda lögin ekki þegar óhróðri og andstyggð er breitt út um, eða hreitt í gyðinga á Íslandi.

Tvö ungmenni ferðast nú á vegum Rauða Krossins í Palestínu. Ekki eru þau andgyðingleg. Þetta eru bara góðir krakkar frá Íslandi sem eru að kynna sér starf Rauða Krossins. En þau skreyttu aðeins ferðalýsingu sína með því að halda því fram að þau hefðu verið vitni að innrás Ísraelsmanna og skotárás þeirra þann 3. mars sl.  Þessa fásinnu hrakti ég á bloggi þeirra og í færslu minni hér á undan. En móðir eins ungmennisins, Salvör Gissurardóttir, segir kannski það sem einkennir Íslendinga mest þegar þeir þykjast ekki þurfa taka afleiðingum gjörða sinna: Látið ekki fá á ykkur þó að Vilhjálmur Örn gagnrýni frásögn ykkar, það er bara ein leið til að komast hjá gagnrýni og hún er sú að gera ekki neitt.

AÐ GERA EKKI NEITT. Já, það hljómar eins og alíslensk lausn!!

Ætli þetta sé líka mottó hjá Ríkissaksóknara og þeim sem gera ekki neitt gegn síendurteknu gyðingahatri á Íslandi? Halda menn bara, eins og Mörður Árnason, að þetta sé klaufaskapur?

Hér er lítil mynd af manni sem líka hjólar yfir gyðinga á klaufalegan hátt. Sumir segja að þetta sjálfur Tom Cruise. Mér þykir líklegra að það sé Tóm Krús á Mission Impossible:


Þjóðarásakanir

images%5CMain_Gold3_3_lv

Hvor er betri, maðurinn sem bannar „júðum" aðgang að verslun sinni vegna stuðnings síns við Hamas, eða maðurinn sem segir Dorrit Moussaieff að „vera heima og telja demantana sína", þegar hún segist vilja hjálpa íslensku þjóðinni? Sjá hér . Hvortveggja höfum við séð nýlega. Sá sem bað Dorrit um að vera heima og telja demantana hræsnaði meira að segja og fordæmdi, þegar hann skrifaði um hjólasalann sem ekki vildi „júða í búðina sína".   

Ég veit sannast sagna ekki hvor er verri, hinn franskmenntaði ættarlaukur, sem sér forsetafrúna á kafi í demöntum, ellegar hjólasalinn á Hverfisgötunni sem hefur lengi hatað gyðinga milliliðalaust. Fordómar þeirra lýsa hins vegar fordómum stórs hóps á Íslandi, sem á uppruna í gamalli hefð: Að kenna útlendingum um allt sem illa fer. En verra er, að íslensk yfirvöld láta þennan ósóma viðgangast og magnast.

Jafnvel sumir mestu stuðningsmenn friðar og réttlætis eru að sletta ósómanum í forsetafrúna Dorrit Moussaieff, sem ég geng út frá að fái heldur ekki viðgerð á hjólhesti sínum hjá rauða rasistanum á Hverfisgötunni.

Einn af Heiðdalsbloggurunum, sem eru frændur sem eru afar sannfærðir um réttmæti skoðanna sinna og einir helstu stuðningsmenn Hamassamtakanna á Íslandi, telur að Dorrit sé í tygjum við morðingja Palestínumanna og í vinfengi við Philip Green, svo notuð séu orð Björns Heiðdals. Það samsæri virðist líka hrjá ýmsar mektarmenn í íslensku þjóðfélagi, síðast Jón Ásgeir Jóhannesson. Heiðdal skrifa líka þetta um gyðinga og Dorrit. Ég þarf auðvitað ekki að nefna það sem þessir bráðskörpu frændur hafa skrifað um mig og aðra zíonista.

Þótt flestir Íslendingar haldi því fram, að þeir séu trúlausir eru þeir á fullu í samsæristrú. Því meira trúleysi, því meiri trú á samsæri og rugl. Ein helsta gyðja samsæristrúarinnar er hatrið. Dorrit Moussaieff hefur ekki farið varhluta af því. Þrátt fyrir öll huggulegheitin við Ísland, er hún bendluð við samsæri og er þá til tekinn gyðingdómur hennar, sem hún gat greinilega ekki losað sig við við það að taka upp íslenskan ríkisborgararétt. 

Þegar breska blaðið Times skrifaði um kreppuna og Dorrit í október sl. hljóðaði það svona, og var ruglið auðvitað haft eftir Íslendingum á götunni:  "That gold rush, at the beginning of this century, has spun the illusion of wealth. Dorrit Moussaieff, the jet-setting jewellery-designer wife of President Ólafur Ragnar Grimsson, set the tone, with her coterie of girlfriends". Hver mataði blaðamann The Times á þessu rugli? Er virkilega til fólk sem er að bendla Dorrit við orsakir kreppunnar? JÁ!

Við megum ekki  gleyma Ástráði forsetaefni. Hann hefur svo sannarlega lagt orði í belg. Við sjáum vel hvert hann er að fara. Hann telur að stríðið í Miðausturlöndum sé greinilega á ábyrgð og í boði Dorritar, eins og allt annað. Hann lét sér ekki nægja að skrifa þetta á sínu eigin bloggi. Hann verpti ósómanum á blogg annarra sem þekktir eru af samsæristrú gegn útlendingum. Ástráður skrifaði til Dorritar:

Ég skrifaði þér bréf fyrr á þessu ári og bað þig um að aðstoða okkur við að kynna boðskap Friðar 2000 í Mið Austurlöndum. Að kynna nýja hugmyndafræði í friðarmálum. Þú svaraðir ekki bréfinu? Hversvegna? Er hjarta þitt jafnkalt og steinninn sem þú keyptir á uppboðinu í London fyrir 735 milljónir?

Þrátt fyrir að forsetafrúin sé öll að vilja gerð til að hjálpa hinni nýju þjóð sinni í kreppunni, er mikið  neikvæð viðbrögð. Hún skjallar Íslendinga í sífellu og sauðkindina, hefur fengið sér íslenskt ríkisfang, hallmælt Ísrael og hvað eina til að safna stigum í litla sveitaþjóðfélaginu. Hún bauð meira að segja mótmælendum inn til sín í kaffi! Samt eru margir sem fúlsa við henni og á svo ógeðslegan hátt, að maður fer að skilja af hverju menn vilja ekki versla við gyðinga í landi þar sem gyðingar eru sárafáir og jafnvel í felum og afneita uppruna sínum.

Jafnvel þegar 9/11 árásin var gerð árið 2001 mátti lesa þetta á bloggi ungs menntamanns, Egils G.:

"11.9.01 Svakalegt!
Ég ætlaði ekki að trúa Sigga þegar hann sagði mér frá hryðjuverkunum í Bandaríkjunum fyrr í dag. Við vorum nokkur að læra í hópvinnuherbergi í Þjóðarbókhlöðunni þegar Halli hringdi í Sigga og sagði honum tíðindin. Siggi emjaði af undrun og sagði okkur frá þessu en við áttum auðvitað bágt með að trúa honum. Ég hringdi því í mömmu mína sem var að horfa á fréttirnar á breiðtjaldi niðri í vinnu hjá sér. Hún staðfesti þetta fyrir mér og hinum og þá fyrst gerði maður sér grein fyrir alvarleika málsins. Sú skynsamlega ákvörðun var tekin að ekki væri hægt að læra meira þegar svona hrikalegir hlutir hafa hent og því brunuðum við okkur heim til mín til þess að horfa á sjónvarpið. Fréttaflutningurinn þynntist svo eftir því sem á leið og varð fljótt lítið spennandi. Þetta er náttúrulega allt alveg fáránlegt. Hver verða eftirmálin? Burt með Dorrit!

Egill klukkan 17:52

14.9.2001

Á Íslandi í dag er Gyðingur á Bessastöðum. Öfgamenn í Mið-Austurlöndum hafa undanfarið verið að sækja í sig veðrið eins og öllum er ljós og þeim er svo sannarlega mjög illa við Gyðinga. Það væri því lítið mál fyrir þá að ræna Flugleiðavél og stefna henni á Kringluna.Er hag Íslands borgið með Gyðing í farabroddi?

21.9.2001

Það er alveg greinilegt hvað fólki hér finnst um Gyðinga. Þjóðin hefur talað! "

Flestum þykir þó forsetafrúin krúttleg. Hún á sem betur fer marga aðdáendur, og hvað mig varðar (þó ég hafi afklætt hana á listrænan hátt eins og frægt er orðið), verð ég að segja að ef Ólafur væri beðinn um að hætta á morgun vegna meints sambands við útrásarvíkinga og of litla gagnrýni í garð þeirra, fengi hún mitt atkvæði eins og skot og ég myndi verja Ólaf hennar vegna.

Myndin við færsluna er að finna á þessari vefsíðu.


Gyðingaofsóknir í sósíalistaparadísinni

 
artsynagoguemesscnn

Í Venesúela eiga gyðingar ekki sjö dagana sæla. Frumskógardýrið Hugo Chavez, einn frumstæðasti einræðisherra Suður-Ameríku um þessar mundir, sleit nýlega stjórnmálasambandi við Ísrael, líkt og Steingrímur Sigfússon afdalaráðherra á Íslandi vildi gera þegar hann var enn í stjórnarandstöðu. Nú er kannski lag að gera eins og Hugo, Steini. Lýsa stuðningi við Hamas og önnur hryðjuverkasamtök á þinn einstaklega siðmenntaða hátt.

Það hefur kannski farið fram hjá sumum, að það eru ekki bara nasistar og hægriöfgamenn sem hatast út í gyðinga. Sósíalistar kunna líka þá list að kenna gyðingum um allt sem miður fer í heiminum.

Reiðhjólasali á Íslandi lét hinn sunnræna pasa doble y loco en cabeza-anda nýju ríkisstjórnar hýru stýru á Íslandi hafa áhrif á sig í síðustu viku, þegar hann bannaði gyðingum aðgang í verslun sína og braut með því lög.

caracas_synagogue

Í Venesúelu ráðast menn hins vegar inn í  á samkunduhús gyðinga og félagsheimili og svívirða helg rit og mála er alls kyns frumstætt níð á veggi, eins og "dauði yfir gyðingana". Gyðingar á Íslandi eiga engin guðshús og samastaði og ganga hræddir meðfram veggjum. Þeir vilja ekki láta mála hakakrossa á bílinn sinn, eins og gerðist víst hér um árið.

Hvenær munu íslensk yfirvöld lögsækja gyðingahatara? Hvað ætli BBC muni segja um gyðingahatarana á Íslandi?  Hér má sjá frétt BBC um árásina í Caracas.

ahmadinejad_chavez-300x232
Vildi ekki einn ráðherrann í nýju íslensku ríkisstjórninni
taka upp nánara stjórnmálasamband við Íran?

Um Jónas

 
Kotel velvel

 

Jónas Kristjánsson hefur alltaf staðið í huga mér sem maður sem hataði mjög mikið. Kannski hef ég misskilið hann. Mér líkar margt af því sem hann hefur skrifað. En orðið gyðingur veldur honum greinilega miklum vanda. Andlegum frekar en stílfræðilegum.

Hér fyrr á árum í dagblöðum, sem hann ritstýrði og skrifaði í, var hatrið gegn Ísrael magnað. Jónas notaði rýtinginn óspart á gyðinga, og sagði þeim, þótt nær engir væru til á Íslandi, ærlega til syndanna.

Jónas heldur því nú fram, að "Orðið gyðingahatur sé notað til að hindra frjálsa umræðu um hættulegustu ríki heims". Eitt af þeim ríkjum, ef ekki það einasta, mun að sögn Jónasar vera Ísraelsríki. Hann hvetur svo menn til að hætta að kaupa vörur frá Ísrael.

Jónas kallar hins vegar smádeilur á Íslandi gyðingaofsóknir. Leiti maður að orðinu gyðingur og t.d. í þolfalli á bloggi Jónasar, www.jonas.is, má fljótt sjá að Jónas hefur Gyðingaþjóðina alla, nú og forðum, á hornum sér.

Jónas situr enn við sinn sama keip. Nú tjáir hann okkur, að í Ísrael sé ríkjandi Hitlerismi og að hann kaupi þess vegna ekki ísraelskt.  Reyndar held ég, að enginn maður skrifi meira um gyðinga en Jónas, nema vera skildi ég.

Jónas vitnar meira að segja í mig, og Johnny heitinn, rasistakúreka sem ég fékk sheriffinn af Bloggheimum til að gera útlægan af moggabloggi vegna gyðingahaturs. Það þótti Jónasi gott! .... en Jónas segist hins vegar vera á móti ritskoðunum á afneiturum Helfararinnar. Mig minnir líka að Johnny hafi afneitað helförinni.

Stundum veit maður ekki hvað gamli Jónas er eiginlega að fara. Hann skrifar líklega ekki mikið á tölvur sínar ef hann verslar ekki á einn eða annan hátt við hið vonda "hryðjuverkaríki" Ísrael, sem hann kennir við Hitler. Það er kannski ekki  INTEL INSIDE  í tölvunni hans Jónasar Kristjánssonar?

Er yfirleitt Intel Inside Jónas?

Eða er þetta eins og menn segja í Póllandi. Intel indide - Idiot outside?

 

P.s. ég fann ekki neina góða mynd af Jónasi Kristjánssyni. Nokkrar fann ég, en þær voru ekki góðar.  Ég vona að hann fyrirgefi mér myndina sem ég notaði í staðinn, sem tekin var í Jerúsalem síðast þegar ég var þar. Getið þið fundið mig á myndinni þarna mitt í Hitlerismanum?


Hjólarasistinn á Hverfisgötunni

 
Judar_jpg_280x600_q95

Á 4. áratug 20. aldar var brandari nokkur í umferð í Hollandi. Hann hljóðaði þannig: "Hvað er það hraðasta sem þú hefur séð nýlega?" Svarið var: "Gyðingur frá Þýskalandi á hjóli"

Nú eru gyðingar ekki velkomnir á reiðhjólaverkstæði í Reykjavík (Borgarhjóli), þar sem eigandinn, Maggi, er vinstrisinnaður. Sjá

Magnus_Orn_jpg_550x400_q95
Maggi hjólarasisti með skeifu

 

Hvað ætli verði fyrsta utanríkispólitíska verk nýrrar ríkistjórnar?  Stjórnarslit við Ísrael?

Gott að flestir gyðingar á Íslandi eigi bíl, ég segi ekki annað, svo þeir þurfi ekki að versla við Magnús Örn hinn súra sósíalista í Borgarhjólum á Hverfisgötunni, sem ekkert vill fyrir gyðinga gera.

Ætli Ingibjörg Sólrún geri ekki þennan hjólvitlausa mann að utanstjórnar-utanríkisráðherra?

 

Gyðingar á hjólatúr
Hjólasveit gyðinga er til í slaginn

Gyðingar á Grænlandi

Pesach i Thule-zoom2lille

Frá páskahátíð gyðinga í Thule

Það hljómar vissulega framandi, en það var engu að síður tilfellið. Þeir voru líka þar. Það var þó ekki stofnaður nasistaflokkur á Grænlandi til að stemma stigu við veru þeirra, líkt og gerðist meðal ýmissa dáindisdrengja á Íslandi, sem vildu Nýtt Ísland líkt og menn vilja í dag, enda Grænlendingar sjálfir fórnarlömb þjóðar sem telja sig betri en alla aðra. Já, ég á við Dani, sem höfðu mikið samneyti við Þýskalands nasismans, bæði nauðugir, en aðallega þó viljugir.

Fyrir fáeinum árum skrifaði ég grein á dönsku, sem má lesa hér í tímaritinu Rambam (12:2003), sem ég ritstýri nú, um þá gyðinga sem dvalið höfðu á Grænlandi í lengri eða skemmri  tíma fyrir 1970. Þeir voru margir þegar Bandaríkjamenn voru enn með stórar herstöðvar á Thule Air Base og í Søndre Strømfjord. Nyrstu guðsþjónustur gyðinga, sem sögur fara af, voru líklega haldnar á Thule Base fyrir 40-50 árum. Ég komst í samband við manninn sem fyrstur stóð fyrir helgihaldi meðal gyðinga í bandaríska hernum í Thule.

GR3
Fritz Löwe tálaus i snjóhúsi á Grænlandsjökli

 

Einn þeirra gyðinga er dvaldi á Grænlandi, áður en bandaríkjamenn komu, var Fritz Löwe (1895-1974), sem var samstarfsmaður jarðfræðingsins fræga Alfred Wegeners, þess sem setti fram landrekskenninguna. Fritz Löwe lenti í hremmingum á Grænlandjökli veturinn 1930-31 og kól á tám. Skera varð flestar tær hans af með vasahníf, og þurfti Löwe að kúra í snjóhúsi á Grænlandsjökli þar til voraði. Wegener dó hins vegar á ísnum í þessum rannsóknarleiðangri ásamt grænlenskum aðstoðarmanni. Síðar, er Löwe slapp frá Þýskalandi Hitlers, gerðist hann þekktur jarðfræðingur í Ástralíu.

Þetta og margt annað getið þið lesið um í grein minni um gyðingana á Grænlandi. Góða skemmtun.

 

Kosher selur

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband