Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Evrópumál

Siegesmund Mossack Gunnlaug Alles von Sekur

sigmundur_mossack_gunnlaugsson_von_sekur_1280169.jpg

Frenólogía heita fjarstæðukennd fræði sem ganga út á að tengja útlit manna eðlisfari þeirra og jafnvel heiðarleika, eða vöntun á því síðarnefnda. Langt fram á 20. öld töldu áhangendur þessara gervivísinda að hægt væri að finna glæpamenn út frá andlitsfallinu og jafnvel nefinu. Ég er hræddur um að útlit stærstu glæpamanna sögunnar hafi afsannað þetta rugl.

prime_minister.jpg

Um daginn tel ég víst að BBC hafi ruglað saman fráfarandi forsætisráðherra og alsaklausum fréttamanni útvarpsins, Gunnari Hrafni Jónssyni. Þarna var dulin frenólógía á ferðinni, en þar sem Gunnar Hrafn, þessi öðlingur, er engum líkum nema einstaka drykkfelldum teiknimyndafígúrum, er þetta tómt rugl, enda fór BBC mannavillt og ruglaði saman Gunnari og milljónum Panama pappíra.

Hins vegar fá fylgismenn frenólogíunnar byr undir báða vængi þegar í ljós kemur að grútspilltur forsætisráðherrann fyrrverandi á Íslandi er steyptur í svipað mót og fjárhirðir hans í Panama, Jurgen Mossack. Sá er ekki af suðrænum ættum frekar en Sigmundur. Gæti Mossack verið fjósamaður úr hvaða afdal á Íslandi sem vera skyldi. Líkt og Sigmundur á vafasaman föður sem seldi sjálfum sér ríkiseignir fyrir slikk, þá á Jurgen blessaður einnig fína að, því faðir hans var í SS Totenkopf, sem var á sínum tíma álíka heimsbölvun og ISIS og Taliban eru okkur í dag. Jurgen getur þó vitaskuld ekkert gert að því að faðir hans var nasisti, frekar en að faðir Jurgens, SS-maðurinn gat gert að því að sonur hans yrði aðalhjálparhella stórþjófa heimsins á okkar tímum.

Frenólógían er vitaskuld rugl, eins og myndin af Gunnari Hrafni sýnir okkur best. En enn meiri vitleysa er þegar maður sér fólk sem tók Sigmund Davíð Gunnlaugsson í dýrðlingatölu, því hann hafði sig frammi í InDefence hópnum. Þessir tilbeiðendur forsætisráðherrans fyrrverandi geta fyrir enga muni skilið að Sigmundur Davíð var loddari sem hafnaði ESB og evru, boðaði tilbeiðslu á krónunni, sem allt er gott og ágætt  -  en fór svo sjálfur með peninga sína og kerlu sinnar og faldi þá úti í heimi á góðum dollarareikningum og evruvildarbréfum.  Gaman væri að athuga hvort frenólógían passar á einfeldninga þá sem ærast á síðustu dögum vegna himnafalls dýrlingsins SDG, og trúa því einlægt að hann muni rísa upp frá dauðum eftir kosningar í haust.

Einn fremstur tilbeiðenda SDG er ofsatrúarmaðurinn Jón Valur Jensson, sem fór hamförum um daginn, gegn mér með fúkyrðum og staðlausum aðdróttunum fyrir að hafa skoðanir á SDG (sjá hér). Í þetta sinn var það ekki fyrir að ég var fyrsti Íslendingurinn sem á undan múslímum stakk upp á því að íslenskir múslímar reistu sér mosku sem fyrst.

Skoðum andlitið á Jóni Vali Jenssyni (sjá neðar) einum helsta sérfræðingi þjóðarinnar í "kynvillu", munnmökum og annarri "afbrigðilegri" hegðan. Þekkið þið aðra einfeldninga með öfgakenndar trúarskoðanir, sem eru líkir Jóni, sem umbreytast allir í framan eins og Kamelljón þegar pattaralegir englar sem hafa logið alla fulla falla af himnum? Ljótleiki þarf ekki að lýsa manninum undi skinninu, því oftast ef flagð undir fögru skinni, eins og við hin forljótu vitum öll. Hvað fær þennan fríðleiks og andans mann, Jón Val, sem tilbúinn er með skoðun og fordæmingu á öllu "afbrigðilegu", til að vera svo vondan og sakna manns sem hefur logið að honum?

Það er víst kölluð einföld trú. Frenólógían á víst engin svör við henni, nema að helgislepja og tvískinnungur lýsi sér á einhvern sameiginlegan hátt hjá líkamlega líku fólki.

jesuit.jpg


Einu sinni var kona ...

Marta

Færsla þessi er tileinkuð Agli Helgasyni, þó hún fjalli mest um konuna á myndinni hér að ofan og eins og sést er hún í engu lík Agli. Egill er er ekki með "Bette Davis Eyes" eins og þessi glæsilega kona. Egill er hins vegar einn helsti Hetzmacher Samfylkingarinnar og ESB á Íslandi, en grein mín er skrifuð vegna þessarar færslu hans á Silfrinu hans um auman, ungverskan kynþáttahatara, þar sem hann reynir enn einu sinni, og í þessu tilfelli frekar aulalega, að gera andstæðinga ESB á Íslandi að öfgafólki og gyðinghöturum. Egill skrifar: "Szegedi hefur hatað bókstaflega allt, Evrópusambandið, Slóvaka, Sígauna, en aðallega gyðinga." Ef Egill léti sér nægja sanngjarna gagnrýni á þá sem efast um gæði ESB og evrunnar, flykktust ekki á blogg hans fólk sem eru laumurasistar líkt og flugur sækja á kúadellu.

Já, einu sinni var kona sem hét Marta. Hún giftist góðum Íslendingi, Braga Ólafssyni sem hafði haldið til Manchester árið 1939 í starfsþjálfun hjá fyrrtæki sem Fálkinn, fyrirtæki fjölskyldu Braga, var með umboð fyrir. Það var undanfari þess, að hann ákvað að fara í til náms við tækniháskóla staðarins, þaðan sem hann lauk prófi í vélaverkfræði. Hann kynntist Mörtu í Manchester og þar bjuggu þau fram til 1947. Þá fluttu þau til Íslands, alkomin, og var Marta þá barnshafandi. 

Marta fæddist í Ungverjalandi, eða þess hluta landsins sem nú tilheyrir Slóvakíu og átti ættir að rekja til merkra gyðinga. Hún var reyndar gyðingur í báðar ættir og ætt hennar öll. En á Íslandi þorði hún ekki að segja það nokkrum manni. Hún lét útbúa fyrir sig gögn í fyrrverandi heimalandi sínu, sem sýndu að hún hefði verið kristin. Börnin hennar töldu að hún hefði fæðst kaþólikki, en á Íslandi fylgdi hún manni sínum í Fríkirkjuna.

Árið 1983, þegar ég var staddur á skrifstofu yfirrabbínans í Lundúnum í erindagjörðum, hitti ég mann frá Ísrael, Eliahu Arbel að nafni, sem ég heimsótti þar síðar. Arbel, sem var fyrrverandi yfirmaður endurskoðunar í innanríkisráðuneyti Ísraels (og margt annað merkilegt), spurði mig hvort ég þekkti konu á Íslandi sem héti Marta og sem væri frá Slóvakíu. Það gerði ég ekki, en hafði tök á að ganga úr skugga um það og fann þessa konu og setti hana í samband við Eliahu Arbel, sem var sömu ættar og hún, fjarskyldur henni, og fæddur í sama bæ, Ruzomberok (Rosenberg) í Slóvakíu, sem áður var í Ungverjalandi.

Var ég harðánægður með það að hafa fært fólk saman á þennan hátt og hef gert það tvisvar síðan. Mörgum árum síðar hafði Eliahu upp á mér í Kaupmannahöfn og hafði haft af því mikla fyrirhöfn. Hann vildi nú í samband við fjölskyldu Mörtu, sem lést árið 1989. Ég lofaði að hjálpa honum með það og hafði samband við elsta son Mörtu heitinnar, sem var á fimmtugasta aldursári.

Sonur Mörtu tók erindi mínu frekar illa í byrjun, og taldi mig veri einhvern grínara, því hann var nær fullviss um að móðir hans hefði verið kristin og hún væri komin af góðu kristnu fólki. Ég ritaði hr. Arbel þetta:

Mr. Bragason argues that his mother was never a Jew!  According to him she was baptized, confirmed and practiced Christianity (Roman Catholic) her entire life. Her father and mother were both Christians, although to Mr. Bragason knowledge her mother had some remote Jewish ancestors. Her father's family were, according to Bragason, Catholics way back. Furthermore, Mr. Bragason has never heard about your correspondence with his mother, although he does not doubt that "you might have known her when she was young". Thus, he is unfortunately not interested that I write about her in my book, simply because she was not Jewish and because he "doesn't think she would have liked that someone wrote about her life".

Arbel Lea Malka og v
Eliahu Arbel, sem upphaflega hét Elemer Günsberger,  Lea Bang Vilhjálmsdóttir, Malka sambýliskona Eliahus heitins, og höfundur stendur í allri sinni fitneskju fyrir aftan. Myndin er tekin í Ramat Gan haustið 2000.

 

Er ég greindi hr. Arbel frá þessari afstöðu sonar Mörtu, sagðist hann ætla að senda mér upplýsingar frá nánustu ættingjum mannsins í Ungverjalandi, Ísrael og Bandaríkjunum, sem hann og gerði og því miðlaði ég til afkomenda Mörtu og fjölskylda hennar sá hvernig hún hafði valið að leyna uppruna sínum á Íslandi. Hún hafði meðal annars útvegað falsað fæðingavottorð frá Tékkóslóvakíu, sem sýndi að hún var upphaflega kristin. Afkomendur Mörtu fengu nú upplýsingar um sögu fjölskyldu sinnar, um áður óþekkta ættingja, fjölskyldur eins og Lakner, Duschnitz og Porges í Ungverjalandi og Ísrael. Þeim varð nú ljóst að frændur í BNA, sem voru kaþólskir, höfðu tekið þá trú til að fá stöður við háskóla og möguleika í Bandaríkjunum. Allir voru gyðingar á bak við huluna, sem skapast hafði vegna gyðingahaturs og -öfundar og einskis annars.

Rozomberok Schul

Samkunduhúsið í Ruzomberok sem í dag stendur tómt eins og samviska Slóvaka. Í dag er bærinn mest þekktur fyrir uppþot nasista á knattspyrnuvöllum þar sem menn heilsa að hætti nasista.

Duschnitz

Fjölskylda Mörtu, Meðlimir Duschnitz og Porges fjölskyldnanna 1939-40

1103030838142012

Legsteinn ættingja Mörtu í Ruzomberok

Áður en Marta lést árið 1989 var hún í bréfasambandi við fjarskyldan frænda sinn Eliahu Arbel. Hún bað hann vænstan um aldrei að senda bréf til sín beint frá Ísrael. Öll bréf urðu að fara gegnum sameiginlegan ættingja í Lundúnum eða sendast þegar Arbel var á einum af mörgum utanlandsferðum sínum. Marta greindi Arbel frá því að á Íslandi væru menn ekki vinveittir í garð gyðinga og Ísraels. 

Saga Mörtu er ekki einstök. Aðrir gyðingar á Íslandi földu uppruna sinn eins og hún, og margir frægir einstaklingar af gyðingaættum geta sagt svipaða sögu. Til dæmis er margfræg saga Madeleine Albright  utanríkisráðherra Bandaríkjanna (hjá Clinton), sem að eigin sögn uppgötvaði ekki ættir sínar fyrr en á gamals aldri. Hún fæddist í Prag árið 1937 og gekk í 11 ár undir nafninu Marie Jean Korbel, áður en hún og fjölskylda hennar fluttist til BNA.

Ég held að Marta hafi dæmt ástandið á Íslandi rétt, og ekki hefur það batnað ef dæma má út frá flórunni sem skrifar athugsemd við færslu Egils. Nasistum á Íslandi var hyglt ellegar var þvertekið fyrir það að menn sem umgengust helstu morðingja 3. Ríkisins hefðu verið nasistar, eins og tilfellið með Gunnar Gunnarsson sýnir. Fyrir utan ekta nasista í valdastöðum allt frá lögreglustjórum, bankastjóra sem laug til um menntun sína í Þýskalandi nasismans og þingmönnum Sjálfstæðisflokks, til smærri peða eins og yfirmanns ÁTVR, gat maður líka fundið öfgafulla gyðingahatara á meðal krata. Einn þeirra, Jónas Guðmundsson (1898-1973), sem um tíma var alþingismaður gaf út svæsið andgyðingleg rit og trúði því að Íslendingar væru meðal ættkvísla hinna eiginlegu gyðinga og Ísraelsþjóðar, og að þeir sem drepnir hefðu verið í helförinni gætu sjálfum sér um kennt enda ekki gyðingar.

Nú er svo komið að vinstrimenn telja fínt að vera með skítkast í garð Ísrael og gyðinga, aðallega vegna heilags stuðnings og meðaumkvunar þeirra með Palestínuaröbum og hryðjuverkasamtökum þeirra sem hafa að markmiði að útrýma Ísraelsríki. Tilgangurinn helgar meðalið.

Egill Helgasson keyrir hins vegar um þverbak, því hann notar mál um ungverskan rasista sem reynist vera af gyðingættum í Ungverjalandi, líkt og Marta, til að klína óorði á samlanda sína sem eru andvígir ESB. Er það rétta aðferðin?

Við sem ekki trúum á Útópíur, aumt Evruhræ ESB-sinna eða ágæti póetísks Heimsvaldakínverja á öræfum erum nasistar samkvæmt snillingnum Agli Helgasyni. Umræðan á Íslandi er greinileg mjög frumstæð.

Marta leyndi uppruna sínum, líklega af hræðslu við skoðanir Íslendinga. Rasistinn í Ungverjalandi, sem átti ömmu sem lifði af dvöl í Auschwitz, ólst upp í þjóðfélagi þar sem gyðingar voru hataðir jafnmikið fyrir og eftir Síðari heimsstyrjöld, og skyldi það hafa verið öðruvísi á Íslandi?

Frekari lesning hér og hér á dönsku


Dankjewel Professor Eijffinger

bordvoorjodenverboden

Kæru lesendur, ég gat ekki setið á mér og skrifaði Dr. Eijffinger, sem er maður enn stærri orða en ég.

Myndin hér að ofan er af Sylvester Catharina Willem Eijffinger.

 

Professor
Sylvester Catharina Willem Eijffinger
Tilburg University


Dear Professor Eijffinger
 
I am appalled and saddened by your unbalanced statement to the Icelandic daily Morgunbladid (1) today. In fact, I see that your statement is at the end of a line of similar statements uttered by you during the past two years. I am forwarding this letter to the central authorities of your University, to let them know what kind of "learned" statements come out of their University. You are seemingly a man of strong words and your advice to the Icelanders to change out the president of the Republic of Iceland is very worrying, taken into account that the statement comes from professor of an University in a member state of the EU, who is also the assistant of the Prime minister of that the Netherlands, Mr. Mark Rutte.

For your information Icelandic presidents are elected for a term of 4 year in national elections. The present president, Professor Dr. Ólafur Ragnar Grímsson has in no way violated the laws which are the fundaments of his office. Your statement can thus only been seen as an unbalanced reaction, not appropriate to your status in academia. I recommend everyone to read Dr. Grímssons statement of April 10, 2011. (2)

I have advised my countrymen to learn from the history of the Dutch. From your Tulipomania in the 17th century, as well as from the quite recent fight which the remaining Jewish population in the Netherlands had to fight for over 50 years, to retrieve the assets belonging to Dutch Jews who were killed in the Shoah. It took the Dutch authorities, in fact the ministry of Finance, which administrated much of the stolen assets of Jews, over 50 year to return them to the rightful owners or appropriate foundations. Fifty years it took the Dutch to return stolen assets, while the same authority, who created such a long and beneficial repayment scheme for itself, is demanding from the general public in Iceland that they return the looting of financial criminals, who were allowed to play in the Netherlands by rules and theories, which your University taught by. The collaboration between criminal bankers and Dutch savers didn't kill 100.000 investors, and still the Icelanders are not supposed to benefit from the wonderful crisis management policy which the Dutch authorities applied for themselves after WWII. Imagine what had happened if several generations of Dutch had been made accountable for the atrocities of the few.

When you know contemporary Dutch history, the "reputatieverlies" [Dutch for loss of reputation] of the Icelanders, you have spoken about in public, will be minute compared to the Dutch loss of reputation with assets stolen from the Jewish citizens of the Netherlands.

Most Icelanders do not wish to join the EU for apparent reasons. The EU-house is crumpling apart and from my personal point of view, I find the evermore apparent eradication of Dutch nationality in favour of a Pan-EU identity quite depressing to witness. Thus, your announced efforts to prevent that Iceland joins your exclusive club is a welcomed move for all of us who are against an Icelandic EU membership, against an Icelandic star in a circle, which would merely proof to be the final spike in the coffin of the Icelandic state and its sovereignty. For that you receive a big Dankjewel from me and most likely from more than 60% of my fellow countrymen

With best wishes,

Dr. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Denmark


(1) http://www.mbl.is/frettir/innlent/2011/04/11/hota_ad_standa_i_vegi_adildar_ad_esb/
(2) http://forseti.is/media/PDF/2011_04_10_Statement1.pdf

Copies to:

Mr H.M.C.M. van Oorschot (1952), president of the Executive Board, Tilburg University
Professor dr. Philip Eijlander (1957), Rector
Professor dr. Frans de Roon, CenterER


mbl.is Hóta að standa í vegi aðildar að ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Feitasti köttur landsins sýnir ESB-klærnar og Icesave-stýrið

SA og AS verða að SS

Vilhjálmur Egilsson er flámæltur og getulaus höfðingi á Íslandi, sem eitt sinn heiðraði Icesave-svindlarana fyrir stórverk þeirra. Nú ætlar þessi fursti að taka alþýðu manna á Íslandi í gíslingu fram yfir helgi, því hann vill svo gjarna láta almúgann á Íslandi greiða fyrir glæpi vina sinna í Icesave sem hann hyllti hér um árið.

Vilhjálmur Egilsson skilar bara fleiri atkvæðum gegn Icesave-lögunum með þessari hálffasísku hegðun sinni. Takk nafni!

Árið 2007 heiðraði Vilhjálmur Egilsson Icesave fyrir bestu viðskiptin. Vilhjálmur Egilsson er persónulega abyrgur fyrir Icesave skuldinni. Í nefndinni sem valdi Icesave sátu Ingólfur Bender frá greiningardeild Glitnis, Edda Rós Karlsdóttir frá greiningardeild Landsbankans, Svava Grönfeldt rektor HR, Ólafur Ísleifsson lektor við HR, Halla Tómasdóttir frá Auði Capital, Finnur Oddsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Ágúst Einarsson rektor á Bifröst, Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson frá Saga Capital, Jafet Ólafsson frá VBS, Katrín Pétursdóttir frá Lýsi, Ásta Dís Ólafsdóttir dósent á Bifröst, Þorsteinn Þórgeirsson skrifstofustjóri efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins, Þórður Friðjónsson frá Kauphöll Íslands, Hafliði Helgason ritstjóri Markaðarins, Gunnar Ólafur Haraldsson formaður Hagfræðistofnunar, Friðrik Már Baldursson prófessor í HR, Hrund Rúdólfsdóttir framkvæmdastjóri hjá Milestone, Jón Þór Sturluson aðstoðarmaður viðskiptaráðherra, Guðjón Rúnarsson framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja og stórmennið flámælta Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Allt þetta fólk er velkomið til að greiða fyrir Icesaveglæpina - úr eigin vasa.

SA Obersturmbannführer Vilhjálmur Egilsson, sem hótar smælingjunum á Íslandi ásamt Jóhönnu og Gunnarsstaða-Móra, er tilvalinn í húsdýragarðinn sem feitasti jólaköttur landsins í gnarrískri uppákomu.

SS
SS hjálmur ?

Sannir Evrópumenn borga brúsann

Það gerðu Neanderthalsmenn líka, en þeir dóu drottni sínum fljótlega eftir að þeir punguðu út. Hér eru nokkrar myndir af þeim íslendingum sem ætla að borga skuldir annarra. Það er svipur með þeim og aumingja Neanderdalamönnunum, sem misstu allt og hurfu við það af sjónarsviðinu.

174_millur_985660
 

Bjarni Ben er hér afar brúnaþungur, í bakgrunninum sést Þorsteinn Pálsson. Ekki laust við að hann sé kominn á hærra stig.

9A534E6D44D2EF43C3689B7935F76 

Össur er glaður

 

Bergmann

Eiríkur Bergmann, sem fann upp grautinn og þvæluumræðuna, þar sem öllu er blandað saman, borgar líka.

Betri mynd

Hér er aðeins betri mynd af Eika.

Svavavavarsdóttir

Náttúrukvendið Svavarsdóttir hefur allt á spjótum sér, ef maður borgar ekki eins og pabbi hennar segir.

steini og jóga

Steingrímur og Jóhanna, eru borgunarfólk, alveg inn að beini. Takið eftir brosinu. Falskt segja sumir.

Fellar og Hólar

Þessi vinstrigrænu hjón í Fellahverfinu hlakka til að borga, með lífi sínu.

Borgunarmaður og skuldari

Óli kúlupungur, formaður Icecavemanna, er auðvitað þakklátur fyrir að Evrópufólkið ætlar að borga fyrir hann skuldirnar.

Bargabara

Meðlimir VG og Samtyppinga borga alltaf að fullu.  

Ríkisstjórnin 

Ríkistjórnin er öll sammála, en á nálum í málinu 

Neanderthals vs Homo Sapiens Ihaldensis

Prófessor á Akureyri lýsir hér Hannesi Hólmsteini af eintómri öfund

Ögmundur heljarskar 

Og nú skil ég af hverju Ögmundur vill halda í búrkuna -

Gnarr tattoo

- og Gnarr fær sér meira Múmínskraut.

Jón Jónsson borgunarmaður

Jón Jónsson hinn ríki, thalsmaður Neandertalsmanna, sem hafði ráð á því að greiða skuldir annarra. Margur verður af aurum api.


Lélegir fjárfestar

508px-Blik_1967_200

Varla var blekið í síðustu færslu minni um ágæti þess að fá mosku þornað, er Fréttablaðið greindi frá því að Menningarmiðstöð Múslíma á Íslandi hefði fest kaup á húseign nærri Slökkvistöðinni í Öskjuhlíð. Húsið gengur undir nafninu Ýmishúsið, og er að mig minnir 6-kantað hús og forljótt.

Þeir sem kaupa húsið eru kallaðir fjárfestar. Tekið var fram i fréttinni, að þeir sem keyptu þetta hús hefðu ekkert með Félag múslíma á Íslandi að gera. Er það vel fyrir Félag múslíma, því þeir sem eru sagðir vera fjárfestar í þessu húsi eru wahabistar á Norðurlöndum og í Sádí Arabíu, sem sumir eiga ekki bót fyrir rassinn á sér, en miðla samt hundruðum milljóna frá samtökum í Sádí Arabíu, sem Sameinuðu Þjóðirnar telja til hryðjuverkasamtaka. Peningarnir koma frá samtökum wahabista. wahabismi er öfgastefna, sem er andsnúið mestu því frelsi og mannréttindum sem við höfum barist fyrir og fengið í Evrópu á sl. 200 árum. Wahabistar hatast út í gyðinga, samkynhneigða, kristna og menningu Vesturlanda. Ef eitthvað er, þá er wahabismi á skjön við íslensku stjórnarskrána og lög.

Í hluthafaskrá er þannig greint frá félaginu, sjálfseignarstofnuninni, á bak við kaupin á Ymishúsinu  The Islamic Endowment in Iceland: "Tilgangur félagsins er að stuðla að því að viðhalda íslömskum einkennum úr samfélagi múslima. Að auka mikilvægi og verja íslömsk einkenni múslimskra barna".En það er nú lítið brot af því sem samtökin á bak við The Islamic Endowment in Iceland standa fyrir. En hvernig ver maður einkenni múslímskra barna, spyr sá sem ekkert veit?

 

Sandra Moe
Sandra Maryam Moe ein af fjárfestunum í Öskjuhlíðinni. Al Daoudi vill ekki láta ljósmynda sig og Alshiddi heldur sig frá samskiptum við vesturlandabúa.

 

Fjárfestarnir eru: Milljónamæringurinn Sulaiman Abdullah Alshiddi  frá Sádí Arabíu, og skólastjóri Alsalams skólans í Örebro í Svíþjóð, Hussein Al Daoudi. Þriðji "milljónamæringurinn" er Maryam Moe (sögð heita Moue í íslenskum fjölmiðlum), sem býr norður í Þrumu í Noregi og stjórnar þar Alnour sentret og einni af moskum bæjarins, sem einnig er búið að dæla hundruðum milljónum króna í frá ríkum "frænda" í Sádí, sem aðhyllist wahabisma. The Islamic Endowment in Iceland þyggur fjárframlög frá stofnun í Sadí Arabíu, sem tengist مؤسسة الحرمين الخيرية,  Það er að segja Al Haramain. Samtökunum, sem eru á lista Sameinuðu Þjóðanna yfir hryðjuverkasamtök.

Kari Maskari Karim Askari í Öskjuhlíðinni

Líklega verða Karim Askari, atvinnulaus rafsuðumaður, og fiskvinnslumaðurinn Redouane Adam Anbari, sem sagðir eru umboðsmenn þessara samtaka, að skýra hlutina fyrir okkur, og hvernig þeir félagar tengjast samtökum sem boða wahabisma. Þið þekkið kannski ekki neinn wahabista í hverfinu hjá ykkar, en Bin Laden ólst upp í wahabisma, þegar hann var ekki að dansa diskó í Svíþjóð.

Pilagrímur Askari Askari á pílagrímsför

Karim Aksari staðarhaldari í Ýmishúsi lætur hafa það eftir sér á Facebook http://www.facebook.com/karim.askari , að honum líki boðskapur klerksins Sheikh Abdul Azis Al Fozan í Sádí Arabíu  Og hvað er sá maður, sem er Wahabisti, svo þekktur fyrir. Al Fozan, sem Karim Askari á Íslandi er hrifinn af, hatar gyðinga, Ísrael, kristna og Bandaríkin. Alveg eins og ungliðarnir VG. Sjón er sögu ríkari:

 

Svona er skoðun Sheiksins sem Askari mælir með á Facebook. Hatar Karim Askari kristna íslendinga og konur eins og sheikinn í Sádí, eða var það slys að hann segist halda upp á þennan al Fozan sem elur á "jákvæðu hatrið í garð kristinna"? Rannsaka ætti dvöl hr. Askaris á Ítalíu áður en hann kom til Íslands. Maðurinn er hrifinn af öfgaklerkum sem er andsnúnir öllum almennum mannréttindum, sérstaklega kvenréttindum. Vonandi spyr einhver fjölmiðill á Íslandi Karim Askari og Reduane Anbari, hvaðan peningarnir til kaupa Ýmishússins koma."Tilgangur félagsins er að stuðla að því að viðhalda íslömskum einkennum úr samfélagi múslima. Að auka mikilvægi og verja íslömsk einkenni múslimskra barna". Á að gera það svona?????

 

Íslam-fjárfestarnir á Íslandi verða að teljast afar vafasöm viðbót við íslenskt þjóðfélag nú í kreppunni. Það sem þetta fólk stendur fyrir, undir falsyfirskriftum sem „frið" og" kærleika", er andstætt allri hefð á Íslandi. Þessi samtök á ekki að leyfa á Íslandi, enda eru SÞ búnar að bannlýsa þau.

Ég er fyrsti Íslendingurinn sem hvatti til að byggð yrði moska á Íslandi. Það var ekki moska wahabista sem mér var efst í huga, þegar ég stakk upp á því. Það sem þeir boða veldur því að líf mitt er í hættu. Fjöldi múslíma er líka á sömu skoðun. Quillian stofnunin á Bretlandseyjum varar við þessum öfgamönnum.  

Ég vona að Íslensk yfirvöld og sérstaklega skemmtikrafturinn með rauða nefið í ráðhúsinu sjái að sér, því það er ekki nóg með eina slökkvistöð til að slökkva það hatur sem wahabistar boða í heiminum.

Hér er góð grein um whabisma á norsku.

Hnappurinn á teikningunni efst er líklega frá fyrstu kynnum Íslendinga af Öfgaíslam. Hann fannst í Vestmannaeyjum.

Neðst getið þið lesið skilgreining bandarískra yfirvalda á Al Haramain í Sádí Arabíu, sem gefa fé til kaupanna á Ýmishúsinu. Ég bíst nú við því að vinstri menn á Íslandi trúi frekar á hryðjuverkyfirlýsingu Gordon Browns á hendur Íslendingum en á þetta, því allt vont kemur frá USA eins og við vitum. Það er sameiginlegur arfur wahhabista og margra vinstri manna. Íslensk yfirvöld, Ríkisstjórnin, verða nú að taka afstöðu til þeirra samtaka sem eru að hreiðra um sig í Öskjuhlíðinni, Það er engir spörfuglar í því hreiðri:

There is evidence that field offices and representatives operating throughout Africa, Asia and Europe have provided financial and logistical support to the al Qaida network and other terrorist organizations designated by the United States, and, in some cases, included on the UN 1267 Committee's consolidated list of individuals/entities subject to Security Council Sanctions. Some of these organizations include the Egyptian Islamic Jihad (EIJ), Jemaah Islamiyah, Al-Ittihad Al-Islamiya (AIAI), Lashkar E-Taibah, and HAMAS - all of which are designated terrorist organizations and all of which have received funds from AHF, its branches, or local intermediaries.


Gnarr Muminthal kom loks út úr skápnum

Screen-shot-2010-08-05-at-10_05_15-PM_300x200
 

Þetta er hinsegin blogg, og þið eruð hér með aðvöruð.

Það hefur líklega ekki farið fram hjá neinum að Gnarr kom út úr skápnum í Múmíndal. Ekki eru því allar ferðir íslenskra stjórnmálamanna fýluferðir. Við óskum Gnörr til hamingju. Hver vill ekki sjá Svavar Gestsson og Össur koma saman út úr skápnum? Jafnvel Egil Helgason - sem múmínmömmu.

Ha, er hann það ekki þegar? Nei, hann er Seifur.

Reiðir múmínálfar hafa hins vegar dæmt Gnarr til grýtingar in absentia. Segja að Gnarr hafi leitað á Múmínsnáða. Múmínpabbi segist ekki geta fyrirgefið Gnarr, þann smánarblett sem hann hafi sett á allan dalinn þegar hann hélt því fram að dalurinn væri hluti af ESB. Við snertum ekki evruna, segir Múmínpabbi, sem segir að öll viðskipti í dalnum fari fram í fríðu.

Menn töldu sig snemma sjá að kvisturinn var kynlegur, þá er Gnarrinn hélt sýningu á helgimyndum sínum í Fríkirkjunni hér um árið.

Gnarr Muminthal

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband