Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
1.2.2008 | 19:12
Trúverðugleiki Gallup á Íslandi = 0,0
Um það bil viku eftir að nýr borgarstjóri tók til starfa í Reykjavík, birtir Gallup skoðanakönnum þar sem menn hafa verið spurðir hvort þeir séu ánægðir með nýjan borgarstjóra.
16% eru ánægðir með manninn. Hinir hafa greinilega dæmt Ólaf K. Magnússon á grundvelli einhvers annars en starfa hans sem borgarstjóra
Trúverðugleiki Capacent Gallup = 0%
Ótrúverðugleiki Reykvíkinga = 64 %
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.1.2008 | 23:07
Hinn margsaga Johnny Bosnitch
Ég leyfi mér að furða mig á þessari yfirlýsingu Hr. Bosnitchs um að hann hafi verið vitni við brúðkaup Bobby Fischers og Myoko Watais.
Þegar Fischer var leystur úr haldi sagði Hr. Bosnitch aldrei annað en að Myoko Watai væri unnusta Fischers. Hann talaði um að hann ætlaði í mál við japönsk yfirvöld fyrir Bobby Fischer, þessi viðbjóðslegu yfirvöld, sem Fischer kallaði svo, um það leyti sem Bobby Fischer vildi gerast þýskur borgari.
Það var kannski ástæða til að leyna þessum hjúskap þangað til nú? Sér John Bosnitch einhverja sérstaka þörf á því að segja Íslendingum sannleikann nú?
Þegar Hr. Bosnitch talaði við umsjónarmann ástralsks útvarpsþáttar, sem ber nafnið PM kl. 18:29 þann 4. mars 2005 sagði hann þetta:
Þegar Bosnitch talaði við PM, virðist brúðkaupið sem talað var um árið áður enn ekki hafa átt sér stað. Hvenær giftist þá Watai Bobby Fischer? Þegar þessi frétt Reuters var skrifuð var brúðkaupið ekki orðið að veruleika. Meira að segja þegar þetta var skrifað virðast menn ekki hafa verið í vafa um það á Íslandi að Myoko Watai væri aðeins unnusta Fischers.
Allur vafi ætti samt að vera úr sögunni á næstu dögum. Frumgögn úr japanska fangelsinu eru væntanleg til Íslands, hins hugrakka lands hins sannarlega frjálsa manns, eins og Bosnitch orðar það. Hugrakkt land (Serbía) og frjálsir menn hafa reyndar líka verið drifkrafturinn í öðrum skrifum Bosnitch um óskir alþjóðasamfélagsins um réttarhöld yfir serbneskum stríðsglæpamönnum. Bosnitch hefur í mjög tilfinningaríkum bréfum um skoðanir sínar á því að Serbía eigi að halda sig utan Evrópubandalagsins lýst þessu yfir: "Let's stay in step with people like the British UKIP (Independence Party), Switzerland, and Iceland... people who know the difference between a con and a good deal".
Gera Íslendingar það?
![]() |
Segist hafa verið vitni að giftingu Fischers og Watai |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.1.2008 kl. 08:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
26.1.2008 | 09:17
Stuðningshópur Jinky Ong Fischers
Síðustu daga hefur verið rætt opinberlaga um arfinn eftir Róbert J. Fischer. Í umfjöllun fjölmiðla virðist sem Jinky Ong Fischer, meint dóttir Fischers á Filippseyjum, hafi þegar verið útilokuð frá því að erfa eitt eða neitt eftir föður sinn.
Miðað við aðrar upplýsingar um Jinky Ong, verður þó að gera ráð fyrir því að hún geti verið dóttir hans. Það verður auðvitað að sanna, líkt og Watai, meint eiginkona Fischers, þarf að sanna að hún hafi gifst Fischer.
Greta Björg Úlfsdóttir kom með mjög áhugaverða punkta á bloggi sínu í gær, og á síðustu færslu mína um dóttur Fischers. Hún stakk upp á stuðningshópi fyrir Jinky Ong Fischer.
Ég leyfi að taka undir þá tillögu og legg til að fólk skrifi hér í athugasemdir eða á bloggsíðu Gretu, að það vilji styðja slíkan hóp. Í framhaldi af því yrði hægt að stofna stuðningshópinn formlega og finna lögfræðing sem gæti varið rétt Jinky Ong.
Markmið hópsins myndi vera:
- Að komast úr skugga um hvort Jinky Ong er dóttir Fischers.
- Að stuðla að því að haft verði upp á henni hið fyrsta.
- Að stuðla að því að hún komist til Íslands.
- Að stuðla að því að hún erfi föður sinn (reynist meint faðernið rétt), samkvæmt íslenskum lögum.
Ef slíkur hópur er þegar til, ber að fagna því og myndu þeir sem styðja slíkt átak hér væntanlega ganga í og styðja þann hóp.
24.1.2008 | 15:48
Rænt frá barni - peði fórnað fyrir "drottningu"
Stöð 2 heldur því fram að Miyoko Watai hafi verið löglega gift Fischer og að dóttirin, Jinky Fischer á Filippseyjum, eigi ekki heimtingu á grænum eyri.
Ef Watai var löglega gift Fischer, gerðist það eftir ágúst 2004 og reyndar eftir að hann kom úr fangelsi í Japan og fór til Íslands. Sbr. gögn á þessari síðu . Það er að segja á Íslandi, og því hljóta íslensk yfirvöld að hafa pappíra sem sanna að til hjúskapar hafi verið stofnað. Gaman væri að sjá þau gögn.
140 millur og íbúð til japönsku konunnar og ekkert til barns Fischers. Þetta mál á líklega eftir að draga dilk á eftir sér.
Í erfðalögum 1962 nr. 8 fæ ég ekki séð hvernig er hægt að sniðganga barn Fischers, nema að hún hafi haft í hótunum við hann og misgert erfðarétti. Hún er 7 ára.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
23.1.2008 | 18:15
Hverju hafa Katarar áhuga á?
Ég er hér með góða útflutningshugmynd fyrir Íslendinga. Í Quatar er mikil eftirspurn eftir fálkum.
Vinur minn, hann Al Ali í Qatar, kaupir fálka. Opnið heimasíðu Alis og sannfærist. Hann er svo sannarlega Smooth Operator.
Össur getur örugglega gefi nokkrar undanþágur á Íslandsfálka til Quatar. Undanþágur á friðanir eru hans sérgrein (meira um það seinna). Hér er upplýsingasíða þar sem Össur getur fundið sér upplýsingar á áhuga Katara.
Svo er líka hægt að gefa Emírnum fálkaorðuna!
![]() |
Stjórnvöld í Katar hafa áhuga á náinni samvinnu við Íslendinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.1.2008 | 08:37
SVINDL HABIBI - Fjölmiðlasirkus Hamas
Hér er myndasyrpa frá Gaza. Ísraelsmenn halda því fram að "hörmungarnar" hafi verið settar á svið. Eitt er víst að Hamas lokuðu sjálfir fyrir raforkuverið, sem Ísraelum var kennt um að hafa stöðvað vegna tímabundinnar lokunar á birgðir til Gaza. Hvenær mun RÚV segja frá því?
En skoðum nú nokkrar myndir frá Gaza. Reuters og AP fréttastofurnar er heimildirnar. Kl. 6.49 í gær 22. janúar var þessi mynd tekin.
Myndin sýnir þing Hamas við kertaljós. En huggulegt! Hvernig væri að draga frá gluggatjöldin. Það er hábjartur dagur, eins og sést á myndinni. Lesið svo hvað Reuters skrifar við myndina: "Palestinian lawmakers attend a parliament session in candlelight during a power cut in Gaza January 22, 2008."
Hér eru aðrar myndir frá sömu samkomu og undir tíminn sem gefinn er af ljósmyndaranum og fréttastofunni:
Reuters 6:23 um morguninn 22.01.2008
Reuters 6:22 um morguninn 22.01.2008
Reuters 6:16 um morguninn 22.01.2008
Það er farið snemma á þing á Gaza. Öfgar eða fjölmiðlashow?
Hér eru svo myndir sem teknar voru sama dag, í sama húsi. Enn er myrkur á Gaza klukkan að verða 10 um morgun.
Reuters 9:29 um morguninn 22.01.2008
AP 9:50 um morgunninn 22.01.2008
Reuters 9:28 um morguninn 22.10.2008
Það er ekki nema von að þessir menn geti ekki stöðvað árásir Hamas á Ísrael. Þeir geta ekki einu sinni dregið gluggatjöldin frá.
Hér getið þið skoðað myndirnar og ég mæli með þessu
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
21.1.2008 | 13:28
RÚV er útibú fyrir HAMAS
Þessi frétt á vefsíðu RÚV er tilbúningur fréttamannsins. Því er haldið fram að Ísraelsmenn hafi skrúfað fyrir rafmagnið í Gaza og þar með komið af stað allsherjar neyðarástandi.
Þetta er alrangt. Það rétta er, að Ísraelsmenn hafa í nokkra daga lokað fyrir flutning olíu til eins raforkuvers á Gaza, sem framleiðir minna en 1/3 af rafmagni Gazverja. 80% rafmangs Gaza kemur beint frá Ísrael og 5% frá Egyptalandi og ekki hefur, samkvæmt staðfestum fréttum, verið lokað fyrir það rafmagn enn.
Það voru Hamas-samtökin sjálf sem slökktu á rafölum raforkuversins, áður en að olía versins var búin.
Ísraelsmenn ásaka nú þegar Hamas fyrir að fara með rangt mál og segja mykrafréttir frá Gaza hluta af stórfelldri áróðursherferð.
Ef það er rétt, og þetta er lygaherferð, hefur herferðin tekist á Íslandi og reyndar víða.
Hvers vegna hafa myndir og fréttir af fórnarlömbum eldflaugaárása Hamas ekki eins mikið samúðargildi hjá lélegum fréttamönnum RÚV?
Hvers konar fréttmenn skrifa frétt, þar sem sannleikurinn er tekinn úr sambandi? Gaman væri að vita hver kauði er. Er Ríkisútvarpið farið að vinna fyrir Hamas?
RÚV heldur því líka fram nú í hádegisfréttunum að Ísraelar hafi skotið upp nýjum njósnahnetti. Þetta er líka afbökuð frétt. Indverjar hafa skotið upp gervihnettinum fyrir Ísraelsmenn.
Myndin sýnir nokkur af fórnarlömbum eldflaugaárása Hamas. Við getum sagt að fórnalömbin séu myrkrið á Gaza. Stefna Hamas er eyðing Ísraelsríkis og útrýming gyðinga. Hamas, og allt fólkið sem kýs hryðjuverk sem lausn síns vanda, lifir greinilega í myrkraveröld.
http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item187190/
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.1.2008 kl. 06:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
20.1.2008 | 14:55
Dóttir Fischers
Hvað erfir dóttir Róberts Fischers?
Nú þegar menn virðast farnir að rífast um hvar eigi að jarðsetja Bobby Fischer, er kannski best að spyrja hver á að sjá um dóttur hans á Filippseyjum? Hún er dóttir Íslendings og ætti að geta sest að á Íslandi, sérstaklega ef eitthvað er eftir af búi Bobba.
Sýnum nú stórhug og bjóðum þessum nánasta ættingja hans og barnsmóður hennar til Íslands!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
20.1.2008 | 12:51
ÞýSSki vandinn
Á síðasta ári minntist ég á eftirlýstan danskan nasista, Søren Kam, og þátt minn í að upplýsa að glæpir hans voru fleiri en að skjóta danskan ritstjóra til bana. Sjá hér og hér.
Kam var liðsmaður í Waffen-SS og einn tveggja Dana sem fengu járnkrossinn fyrir frammistöðu sína á austurvígstöðvunum. Í síðustu færslu minni laðaði ég að röndótta fiskiflugu úr vesturbænum í Reykjavík, KR-ing, sem heldur því blákaldur fram að SS-liðar hafi bara verið óbreyttir hermenn og heiðursmenn. Skrítið að menn geti dáðst að þessum skíthælum.
Nýlega birti BBC viðtal við Soeren Kam, þar sem hann skokkaði um með göngustafi, 86 ára unglingurinn, frjáls ferða sinna í Bæjaralandi. Hann lýsti klökkur yfir sakleysi sínu og ást sinni á gyðingum. Þýsk yfirvöld virðast líka staðráðin í því að friða hann. Hann neitaði auðvitað harðlega að hafa gert svo mikið sem einum gyðingi mein. Hann var bara hermaður og gentelman. Eitt morð, hvað er það á milli vina? Honum var lýst á annan hátt við vitnaleiðslur eftir stríð í Danmörku. Þýsk yfirvöld ætla að virða það að vettugi.
Professor David Cesarani skrifaði líka um málið nýlega í The Guardian. Ég setti inn smá athugasemd og leiðréttingar við skrif Cesaranis, sem tíndust kannski meðal allra húmanistanna og gyðingahataranna, sem skrifa athugasemdir um allt annað en það sem blogg Cesaranis fjallar um.
Fyrir utan ýmsan óskunda á ættjörð sinni barðist Soeren Kam fyrir Hitler og framlengdi þar með hörmungar annarra. Allir Waffen SS-menn voru dæmdir stríðsglæpamenn, en margir þeirra sátu aldrei inni.
Það er Þýskalandi til háborinnar skammar að vernda danskan morðingja.
Myndin sýnir Kam á SS-teiti fyrir nokkrum árum og sýnir að hann er enn stoltur af Járnkrossinum sínum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.1.2008 kl. 06:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
19.1.2008 | 14:46
Muslim SS
Þessi mynd sýnir albanska múslíma, sem voru meðlimir í Waffen-SS, hryðjuverkasveitum nasista. Einn þeirra er hér að þýða boðskapinn úr þýsku fyrir félaga sína.
Stórmúftinn í Jerúsalem, Haj Amin al-Husseini, faðir Hamas hreyfingarinnar og hugmyndafræðingur vopnaðrar baráttu Palestínumanna, var góðvinur Hitlers og heimsótti hann í Þýskalandi á stríðsárunum. Þriðja ríkið sendi vopn til Palestínumanna á 4. tug 20. aldar til að drepa gyðinga sem bjuggu í Palestínu. Hér getið þið lesið meira um það.
Þessi ljósmynd sýnir að mínu mati hetjur allra þeirra sem styðja vopnaða baráttu sem er ætlað að afmá Ísraelsríki af landakortinu, og eyða mörgu öðru sem Íslendingum er heilagra en þeir halda. Útrýming Ísraelsríkis er enn stefna öfgaafla Palestínumanna, Íranstjórnar og SS nútímans, sem kallar sig Al Qaida. Á landabréfum múslímalanda hefur Ísrael þegar verið afmáð.
Ert þú, lesandi góður, öfgahyggjumaður og stuðningsmaður Al Qaida og Hamas og litla gerpisins Ahmadinejads i Íran? Gefðu þig þá fram við lögregluyfirvöld, því einhverja stefnu hljóta íslensk yfirvöld að hafa búið sér til um hver sé hryðjuverkamaður og hver ekki. Gaman væri nú að fá þá stefnu á hreint áður en Víkingasveitin verður sér að voða. Annars verður hún, fyrr en varir, komin með hatta eins og víkingasveitin á myndinni.
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Viðreisnarklappstýran
- Tapað-fundið á DV
- Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.
- Trumpur Eyjajarl
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.9.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 43
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007