Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
17.1.2008 | 18:50
Stórlaxinn og Íslandsvinurinn Uffe Ellemann-Jensen
Íslandsvinurinn Uffe Ellemann-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmörku, (sem upphaflega var blaðamaður eins og Gandhi hér í færslunni fyrir neðan), á marga vini á Íslandi. Á Íslandi hefur Uffe Ellemann Jensen nokkrum sinnum rennt línu fyrir lax og telur sig þess vegna þekkja Íslendinga út og inn.
Uffe yfir höfði sér dómsmál. Í stjórnmálum hefur karlinn verið gjarn á að renna á rassinn. Nú hefur það gerst enn einu sinni. Ellemann-Jensen er nefnilega gjarn á að snapa sér ódýra punkta í stjórnmálum, og jafnvel oft á skjön við pólitík þess flokks sem hann er meðlimur í, og sem hann sat á þingi fyrir. Það er eins og kunnugt í tísku að hallast að siðferðilegri afstæðishyggju og vera pólitískt korrekt og jafnvel sætta sig við öfgahyggju fjarlægra þjóða. Þegar Ellemann-Jensen sá að gjörvallur heimur múslíma var að brenna danska fánann og nokkur sendiráð Danmörku, ákvað hann að gerast "heiðursíslamisti" og ákæra ritstjóra á danska dagblaðinu Jyllands-Posten fyrir að hafa vísvitandi beðið 10 teiknara um að "teikna skopmyndir af Múhameð fyrir blaðið". Þessu hélt hann ítrekað fram í opinberum fyrirlestrum og síðast í ævisögu sinni "Vejen, jeg valgte" sem út kom í lok síðasta árs.
Þessi ummæli hefur hann nú endurtekið í útvarpsþætti, sem fer í loftið síðar í mánuðinum og hafa forsvarsmenn Jyllands-Posten krafist þess að fá að svara ásökunum í útsendingunni. Þeirri ósk hefur verið hafnað af Danska Ríkisútvarpinu. Uffe-Ellemann ullar bara framan í ritstjóra blaðsins og segir þeim að fara í mál við sig. Hann heldur því fram, að þegar blað biður skopteiknara um að teikna teikningu, þá fái blaðið skopteikningu.
Jyllands-Posten heldur því hins vegar fram, að teiknurunum "hafi verið boðið að teikna Múhameð, eins og þeir sæju hann og að árangurinn yrði birt næstu helgi", og er það bókfest. Nú íhugar Jyllands-Posen málaferli geng laxveiðimanninum Uffemanden, sem hann er oft uppnefndur hér í Danmörku.
Uffe er maður meininga sinna, og fer greinilega ekkert ofan af þeim, nema að verða höggvinn með korða hermannsins eins og hundurinn með augu svo stór sem Sívalaturn, sem sat á fjársjóðnum undir hola trénu í ævintýri H.C. Andersens.
Fyrir nokkrum árum kom Uffe Ellemann-Jensen fram í sjónvarpsþætti um baltnesku ríkin, Eistland, Lettland og Litháen, þar sem hann lýsti vinsældum sínum þar, sem ekki munu vera minni en frægð hans Jóns Baldvins okkar. Í einni senu þessa þáttar stillti Uffe Ellemann sér upp við minnissteina um SS-menn í Bláfjöllum (Vaivara Sinimäed) í Eistlandi og lýsti af mikilli hlýju og andargift hversu fræknir þessir Waffen-SS liðar höfðu verið og hve misskildir þeir væru. Þetta fór fyrir brjóstið á mörgum hér í Danmörku og einnig á þeim sem misstu fjölskyldumeðlimi í búðum, þar sem Eistlendingar, Lettar og Litháar voru böðlar. Enginn Dani eða gyðingur brenndi þó sendiráð og hótaði að drepa Uffe og dönsku þjóðina fyrir þessi ummæli hans.
Ég skrifaði árið 2002 til sendiráðs Dana í Eistlandi og spurðist fyrir um þessa steina og um hvort dönsk yfirvöld gætu ekki hugsað sér að vinna að því að bautasteinarnir yfir morðsveitir SS yrðu fjarlægðir. Viti menn, í stað þess að fá bréf frá sendiherranum eða utanríkisráðuneytinu í Kaupmannahöfn, fékk ég viðskotaillt bréf, sem lá við hótun um málsókn, frá Uffe Ellemann Jensen himself, þar sem hann endurtók lof sitt á Waffen-SS og gerði því skóna að ég væri með í samsæri gegn sér. Ég varð að skúffa Úffa með því að ég væri bara einn á báti.
ER manni, sem er einlægur aðdáandi Waffen-SS, stætt á því að gangrýna danskt dagblað fyrir að biðja skopteiknara um að teikna Múhameð? Hvaða veruleikabrengl hrjá laxveiðimanninn og Íslandsvininn Uffe Ellemann-Jensen?
Mér sýnist, þegar öllu er á botninn hvolft, að Uffe Ellemann-Jensen sé bara spældur tækifærissinni og aðdáandi einræðis (tótaleterisma), sem hefur orðið viðskila við flokk sinn, Venstre, vegna þess að hann varð ekki forsætisráðherra. Aðalvandi hans er þó örugglega, að hann er bara blaðamaður. Blaðamenn verða sem betur fer ekki oft forsætisráðherrar, nema að illt hljótist af, en í stjórnmálum geta þeir gert mikinn usla. Fólk ætti ekki að kjósa yfir sig einhvern, sem hefur haft tök á því að dáleiða það í sjónvarpinu í nokkur ár á undan.
Myndin efst er af Uffe við einn minnissteinanna um hina fræknu hermenn SS. Hin myndin sýnir stúlku, Lepa Radic, sem SS menn hengdu 19 ára gamla í Bosanska fangabúðunum í Bosníu. Myndin fannst í fórum dansks SS manns sem handtekinn var í stríðslok. Danski SS-maðurinn útskýrði við yfirheyrslur: "En það var ekki ég sem hengdi hana upp". Ætli drengurinn sá hafi verið einn af þeim "professionelt/teknisk gode soldater" sem Ellemann-Jensen rómaði í bréfi sínu til mín dags. 28. águst 2002?
Uffe Ellemann-Jensen hefur ekki beitt sér fyrir því að minnissteinarnir um SS-menn í Eistlandi yrðu fjarlægðir. Forseti Eistlands svaraði heldur ekki bréfum mínum árið 2002. Kannski vill Ingibjörg Sólrún gera eitthvað í málinu?
Myndin hér fyrir neðan er frá hátíðarhöldum aldinna SS-manna i Eistlandi síðasliðið sumar. Hvers konar land er Eistland eiginlega?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.1.2008 | 13:24
Ef ég fer, þá fer ég ber og ferðast eins og Gandhi
Maður er nefndur Arun Gandhi (f. 1934). Hann er barnabarn Mahatma Gandhis og stýrir M.K. Gandhi Institute for Non-Violence við kaþólska stofnun, Christian Brothers University, við háskólann í Memphis Tennessee. Arun hefur nýlega boðað nýja stefnu í "Non-Violence", speki sem afi hans setti fram, en sem þjóð hans hefur greinilega ekki breytt eftir. Arun Gandhi kennir nú, eins og Hitler, gyðingum um allt sem miður fer í heiminum.
Á bloggi um trúmál á vef Washington Posts ásakaði hann "Ísrael og gyðinga" fyrir að leika "stærsta hlutverkið" (biggest players) í alþjóðlegu ofbeldi. Hann skrifaði m.a. þetta á blogg sitt: "Jewish identity in the past has been locked into the Holocaust experience," og um Helför gyðinga skrifaði hann: "It is a very good example of how a community can overplay a historic experience to the point that it begins to repulse friends."
Næstum 500 manns hafa lýst skoðun sinni á orðum og skoðun barnabarns stórmennisins Ghandis.
Arun Gandhi hefur sett fram frekar óþrifalega afsökunarbeiðni, þar sem hann biður fólk um að líta fram hjá orðinu gyðingur, því hann meinti bara Ísrael. Árið 2004 hvatti Arun Gandhi 50.000 Palestínumenna að vaða fyrir ána Jórdan og snúa aftur til heimalands þeirra. Hann sagði líka að örlög Palestínumanna væru tíu sinnu verri en svartra í Suður-Afríku á dögum Apartheidsins.
Greyið hann Gandhi fer greinilega oft á tíðum mikla gandreið. Memphis hefur ekki hrists eins mikið síðan Elvis var og hét. Gandhi gleymir líka öllum gyðingunum sem voru hraktir úr Arabalöndunum um miðbik 20. aldarinnar, og leituðu heimilislausir og allslausir til Ísraels. Þeir voru rændir af múslimum á sama hátt og gyðingar voru rændir af nasistum á árunum 1933-1945.
En það er auðvitað skýring á öllu og hér er málið útatað í olíu og tjöru. Maður kemst ekki eins langt á galloninu af flóttamönnum gyðinga eins og á dropa af flóttamönnum arabaheimsins.
Afi Aruns, Mahatma Gandhi, skrifaðist reyndar á við Adolf Hitler og var mótfallinn stofnun Ísraelsríkis.
Ekkert er nýtt undir sólinni. Mahatma skrifaði líka "God is Truth" á mynd af sér. Það er allt í lagi, ef trú og "sannleikur" verður ekki að guði eins og hjá Arun Gandhi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
12.1.2008 | 21:01
Skoðunarkönnun
Pólverjar eru orðnir margir á Íslandi, en ekki líkar öllum þessi innrás þeirra. Þeir líta örugglega sjálfir á þetta sem útrás. Ekki kvarta ég eða get, útflytjandi af innflytjendaættum. Þegar minnihlutahópur er orðinn nógu stór í sannkölluðum fjölþjóðaþjóðfélögum, er allt í lagi að koma með eins og einn brandara án þess að vera kærður til postulanna sem stýra Mannréttindastofu, Alþjóðahúsi, Amnesty International, Rauða Krossinum o.s.fr. Hér er svo brandarinn:
Íslenska ríkisstjórnin lét nýlega gera allsherjar skoðunarkönnun. Spurt var: "Er búseta Pólverja á Íslandi til vandræða?
35% svöruðu: "Já það er alvarlegt vandamál"
65% svöruðu: "absolutnie kurwa zaden!"
Myndin að ofan er af Pawel pólska píparanum í París. Hann er draumaverkamaður framtíðarinnar (þyggur lág laun og lélegt fæði). Myndin að neðan er hins vegar af tveimur félögum, sem ekki eru enn búnir að kaupa miða til Íslands.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
10.1.2008 | 19:02
Þurrkaðar döðlur
Ég heyri, og sé, að Ingibjörg Sólrún er skærasta stjarnan á Egyptalandi þessa dagana. Þar hitti hún meðal annars starfsbróður sinn sem heitir Geit. Þau hafa örugglega um margt að ræða. Í dag tjáði hún sig um friðarferlið í Miðausturlöndum í hádegisfréttum á RÚV. Al Jasíra var líka með hálftíma frétt um heimsókn Ingibjargar Sólrúnar, sem varð til þess að nýjasta ræða Osoma Bin Ladens var frestað.
Ég hef oft velt fyrir mér, af hverju friðarferli séu svo mikilvæg fyrir Ingibjörgu og almenning á Íslandi? Er ekki nær að leysa hnútinn sem er kominn á slaufuna hans Þorsteins Davíðssonar eftir greiðann sem Matthiesen gerði honum.
Af hverju tuðar konan á "landnemabyggðum" gyðinga sem aðalvandamálinu á svæðinu, meðan hún segir lítið sem ekkert um árásir öfgafullra íslamista á saklausa íbúa Ísraelsríkis og annarra landa.
Er ekki nóg af vandamálum á Íslandi sem væri nærri lagi fyrir Ingibjörgu og samráðherra hennar að leysa, í stað þess að þeysast um á drómedara og upp á pýramída og ætla sér að leysa vandamál sem engar líkur eru á að leyst verði meðan að nær allur heimur Íslams, og vinstrimenn á Vesturlöndum þar að auki, leggja fæð á Ísraelsríki og hata lýðræði?
Myndin að ofan er af fararskjóta ráðherrans, sem er af gerðinni Jassir. Þetta er rykþétt lúxorbikkja með leðursætum, innbyggðu kælikerfi og vatnstanki. Sú neðri er bara lík Abdul Geit, utanríkisráðherra Egyptalands.
P.s. gleymdi Imba nokkuð að mótmæla mannréttindabrotum í Egyptalandi?

Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.1.2008 kl. 18:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
5.1.2008 | 22:17
Góður vinur kvaddur
Ég fylgdi góðum vini til grafar á miðvikudaginn var. Paul Aron Sandfort yfirgaf þennan heim þann 29. desember síðastliðinn. Ég kynntist Paul fyrir allmörgum árum í tengslum við rannsóknir mínum á sögu gyðinga í Danmörku. Upp úr því tókst vinskapur og hann hringdi reglulega í mig síðustu árin til að tala um daginn og veginn. Eitt sinn við slíkt karlaslúður, sem gat tekið drykklanga stund, kom einnig í ljós að tengdasonur hans (nú fyrrverandi) var góðvinur minn á námsárunum í Árósum. Fyrir liðlega 10 árum, þegar Paul bjó í Róm, hittumst við tvisvar fyrir hreina tilviljun á Kastrup flugvelli þar sem ég hjálpaði honum með farangurinn, því Paul var illa haldinn af liðgigt. Paul var mjög forvitinn um Ísland, þótt hann hefði aldrei til Íslands komið, en hann var þó einn af fáum Dönum sem gátu borið nafnið mitt rétt fram.
Danskir gyðingar, sem ekki tókst að flýja til Svíþjóðar voru teknir af nasistum og aðstoðarmönnum þeirra og sendir til fangabúðanna í Theresienstadt. Paul var 13 ára þegar hann var tekinn, þar sem hann faldi sig á kirkjulofti í Gilleleje á Norðursjálandi. Theresienstadt í Tékkóslóvakíu voru "fyrirmyndarfangabúðir" nasista. Þar reistu þjóðverjar leiktjöld árið 1944 þegar yfirmönnum Rauða Krossins og dönskum embættismönnum voru sýndar búðirnar. Þeir létu blekkjast og óskuðu ekki, og kröfðust ekki, að skoða aðrar búðir.
Paul og danskir gyðingar voru í hópi þeirra heppnu i Theresienstadt, sem ekki voru sendir til útrýmingarbúðanna eftir leiksýningu nasista, sem einnig var fest á filmu.
Paul komst vegna hljómlistahæfileika sinna í barnahljómsveit búðanna sem trompetleikari og var með í barnaóperunni Brundibar, eftir Hans Krása, sem sett var á svið í búðunum. 60 árum eftir stríðlok var óperan endurflutt í búðunum með inngangskafla eftir Paul Sandfort.
Faðir Pauls var rússneskur gyðingur, Aron Rabinowitch að nafni. Paul hitti aldrei föður sinn, sem bjó lengst af í Frakklandi. Hann var myrtur í Auschwitz árið 1943.
Paul Sandfort starfaði sem menntaskólakennari og var einnig tónskáld. Hann var sannkallaður fjöllistamaður, en síðustu árin helgaði hann sig einnig skriftum lesendabréfa í dönsk dagblöð, þar sem hann skar ekki utan af skoðunum sínum. Heilagir húmanistar myndu væntanlega ekki hafa veigrað sér við að kalla skoðanir hans öllum illum nöfnum. Hann gaf út minningar sínar frá Theresienstadt í skáldsögunni Ben, sem hefur verið gefin út á ýmsum tungumálum og tók þátt í útgáfu á ýmsum ritum. Fyrir mánuði síðan kom út síðasta grein eftir Paul í tímaritinu Rambam sem ég sit í ritstjórn fyrir ásamt öðrum. Hún fjallaði einnig um þau tvö ár í prísund sem áttu eftir að verða ör á lífi allra sem komust þaðan lifandi.
Svarthvíta myndin hér að ofan var tekin í Theresienstadt árið 1944 og sést Paul Sandfort, lítill að vexti, í dökku prjónavesti. Nýlega greindi hann frá dvöl sinni í fangabúðunum í sjónvarpsþáttinum 60 Minutes.
Paul trúði ekki lengur á Guð eftir dvöl sína í Theresienstadt og skilgreindi sjálfan sig sem ótrúaðan gyðing. Það var þó ekki nein mótsögn í því að fylgja honum til grafar að hætti gyðinga. Annað kom ekki til greina eftir það sem hann hafði þurft að þola sem gyðingur. Örlög sín flýja menn ekki.
4.1.2008 | 16:44
Íslam á Njálsgötunni

Kjaftasíðan visir.is, sem er aðalheimild mín í dag, greinir frá bókakynningu í dag í einhverri holu á Njálsgötunni, þar sem menn telja sig vera avant garde, en eru það ekki.
Þarna á Njálgsgötunni verða hengdar upp myndir og gert grín af því sem Íslendingum þykir heilagast. Væntanlega myndir af SS-pulsum og fínu bílunum. Ha,ha, ha. Þetta er gert í samstöðu við Íslam og vegna "hættulegra einfaldana í umræðunni um Íslam á Íslandi og víðar í heiminum".
Myndin hér að ofan er eftir Lóu Hlín og er með í bókinni sem á að kynna. Lóa hefur greinilega verið í Bónus að versla. Ef Lóa litla væri á slóðum þess Íslams, sem notað er til að brenna dönsk sendiráð og hóta gjörvöllum heiminum með ragnarökkri, væri Lóa litla á Brú svona:
Eða er það ekki svo, að ef konur eru með einhvern kjaft í löndum sem stýrt er eftir ÍSLAM eða klæða sig rangt, eru þær grýttar og hengdar. Það er enginn einföldun, heldur bláköld staðreynd. Ætli vinir Íslams á hinum síðustu dögum heilögum ræði eitthvað um það á Njálsgötunni á eftir.
Samkvæmt fréttinni verður boðið upp á íslamskt snakk. Hvað ætli það sé? Kóransnittur, fötvur eða afskornir al Dimmah-limir?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 5.1.2008 kl. 10:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
4.1.2008 | 10:11
Bónus One and Viking II
Jón Ásgeir er ekki verðviðkvæmur. Ég las á kjaftasíðu vísir.is, að Jón Ásgeir Jóhannesson sé búinn að fá sér nýja þotu upp á tvo milljarða, alsvarta, og hafi flogið í henni til Jamaíku með frúnni til að vígja nýja lúxussnekkju.
Ég óska Jóni til hamingju með tækin og þjóðinni fyrir stuðning hennar til tækjakaupanna. Ég leyfi mér að minna á kjörorð íslenskra milljarðamæringa: Best að njóta meðan maður hefur.
Svartir fátæklingar á Jamaíku bíða nú eftir fyrstu Bónusversluninni. Allt er hægt á þotuöld.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
4.1.2008 | 00:44
Hæfni kvenna

Stjórn Kvennanefndar Verkfræðingafélags Íslands hefur sent Össuri Skarphéðinssyni, iðnaðarráðherra opið bréf, þar sem harmað er að gengið hafi verið fram hjá Ragnheiði I. Þórarinsdóttur aðstoðarorkumálastjóra við skipan í stöðu orkumálastjóra.
Bréfið er hægt að lesa hér http://www.visir.is/article/20080103/FRETTIR01/80103102
Er ekki kominn tími til að konur setjist í allar stöður hjá Ríkinu? Svo geta karlarnir setið heima og lakkað á sér táneglurnar og bloggað um óréttlæti, eða farið í sund.
Ætli það hefðu ekki verið kröftugari mótmælin, ef hæf kona hefði sótt um dómarastöðuna sem nýlega var úthlutað til einhvers aðstoðarmanns, sem reyndar hefur sótt slaufunámskeið hjá sama meistara og Össur?
Þessi mótmæli kvennanefndarinnar endurspegla viðbrögð hjá þjóð sem er orðin vön því að búast við hinu versta og ósiðlegasta frá hendi stjórnmálamanna. Mat nefndarinnar er kannski ekki rétt (ekki ætla ég að dæma um það), en traust manna á heilindum ráðherranna er á núlli.
Ef svona mál kæmu upp í nágrannalöndum Íslands, sem samanburður er gerður við, og í ljós kæmi að Össur var að ráða karl í stöðu fram fyrir hæfari konu, yrði Össur að fara að leita sér að nýju starfi. En hann fengi örugglega nýja stöðu í gegnum klíku eða vegna þess að hann er með svo flotta slaufu.
3.1.2008 | 22:28
Verðviðkvæmni
Ég hlustaði á fréttir á RÚV í dag. Það geri ég harla sjaldan, því það eru svo margir postular sem vinna á þeirri fréttastofu, sem frekar ættu að vinna í einhverju áróðursráðuneyti í Norður Kóreu.
Í dag var greint frá nýrri íslenskri doktorsritgerð í hádegisfréttum. Doktorinn sem hefur skrifað hana kemst að þeirri niðurstöðu, skv. RÚV, að Íslendingar séu ekki verðviðkvæmir og að vöruverð hafi engin áhrif á kauplöngun (græðgi) Íslendinga.
Það þýðir á mannamáli að Íslendingum er sama hvernig svindlað er á þeim. Bara að það sé svindlað á þeim. Verðlækkanir geta jafnvel orðið til þess að þjóð flottræflanna á hjara veraldar kaupi ekki vöruna sem lækkuð hefur verið. Svo segir að minnsta kosti nýi doktorinn í verðskyni Íslendinga.
Mig grunar að fréttastofa RÚV hafi kannski ekki alveg náð innihaldi doktorsritgerðarinnar. Samkvæmt fréttaflutningi RÚV byggði rannsóknin á athugunum doktorsins á verðlagi á hárnæringu og hársápu. Er hægt að verða doktor í sápu og balsam? Vitaskuld ekki. Valdimar Sigurðsson er með doktorspróf í markaðsfræði með áherslu á neytendasálfræði við Cardiff University, Wales, Bretlandi, skv. háskólanum í Reykjavík.
Verðviðkvæmni hlýtur að vera alveg nýtt orð í íslensku. Og ef ég hef skilið það rétt er ég mjög verðviðkvæmur. Enda á ég ekki einkaþotu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.1.2008 kl. 00:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.12.2007 | 13:49
Benazir Bhutto - minning
Frá Rawalpindi, nærri því í beinni útsendingu, fylgdist ég í gær með hræðilegum endalokum Benazir Bhuttos. Maður er harmi lostinn yfir slíkum hryðjuverkum. Eru þetta örlög allra stjórnamálamanna, sem vilja aðeins meira lýðræði í heimi Íslams? Íslamistar, nánar tiltekið Al Quaída, eru þegar búnir að taka heiðurinn fyrir ódæðið, sem mun vera hryðjuverkaárás íslamista númer 10.262 síðan að þeir flugu inn World Trade Center árið 2001.
Ég fylgdist líka með viðbrögðum fáeinna góðhjartaðra sála á Íslandi , sem létu sig málið varða á bloggum sínum. T.d. birti vinstri grænn menntskælingur og femínisti eldgamla ljósmynd af Bhutto eins og hún leit út fyrir 30 árum. Einn af gestum hennar, stjórnmálamaður, slær föstu að stjórnarliðar í Pakistan séu sáttir við verknaðinn! Önnur sómakona kennir Bush um það sem gerist í Pakistan. Hvaða sjúkdómur herjar eiginlega á fólk?
Ef einhver er sáttur við verknaðinn í Rawalpindi eru það þeir sjóndöpru vesturlandabúar, sem styðja baráttu íslamista og eiga sömu óvini og þeir: Bush, Vesturlönd, Ísrael, gyðinga og Danmörku, svo eitthvað af því "vonda" sé nefnt.
Benazir Bhutto var því miður ekki neinn engill, femínisti eða friðardúfa, jafnvel þótt hún hafi verið kvenmaður.
Þegar Benazir var forsætisráðherra studdi hún útrýmingarherferð gegn Pandítum, friðsömum trúarflokki í Kasmír. 12.000 þeirra voru myrtir af múslimum á síðasta áratug 20. aldar. Ekki var skrifað og skrafað mikið um það á Íslandi. Pandítar eru hindúar sem hafa þurft að flýja fósturjörð sína, Kasmír, vegna ofríkis múslima í Kasmír.
Ef "friðarúfur" og femínistar á Íslandi syrgja Benazir, væri þeim hollt að minnast þeirra Pandíta sem var útrýmt í stjórnartíð hennar, svona til að fá smá jöfnuð á móti heilagleikanum og hatrinu gagnvart Vesturlöndum (okkur) og ræflinum honum Bush.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Viðreisnarklappstýran
- Tapað-fundið á DV
- Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.
- Trumpur Eyjajarl
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.9.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 53
- Frá upphafi: 1356184
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 44
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007