Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Lygaherferð íslenskra lækna

medicine-money.jpg

Í "kjarabaráttu" best stæðu stétta Íslands er oft notast við sjónhverfingar og lygaherferðir til að halda tekjum sínum yfir tekjum allra annarra í þjóðfélaginu. Þetta er hörð barátta.

Oft er bent á að læknar neyðist til að flytja úr landi og til að finna sér vinnu erlendis og er Noregur ekki svo ósjaldan nefndur í því samhengi. Þar mun vera gósenland í heilbrigðiskerfinu samkvæmt íslenskum læknum og allt miklu betra en á Íslandi, sem er vitaskuld aftast allra ríkja á merinni .

Lítum þá á nokkrar norskar fréttir árið 2014:

Hvergi í Vestur-Evrópu eru eins fá sjúkrarúm og í Noregi. Lesið þetta. Þetta hljómar víst aðeins öðruvísi en áróður íslenskra lækna.

Í Noregi þurfa læknar enn að nota forgamlar faxvélar. Það eru þannig vélar sem íslenskir læknar sækja greinilega í að nota. Líklega einhver rómantík. Lesið hér

40% lækna sem menntaðir eru í Norður-Noregi flytja í burtu frá Norður-Noregi. Lesið hér. Á háskólasjúkrahúsinu í Harstad er 70 milljón króna halli á rekstri á þessu ári. Þar ætla íslenskri læknar líkast til að fá sér vinnu. Skyldi það vera að þeir valdi hallanum.

Lesið um tölvukost norskra sjúkrahúsa hér og hér. Norðmenn skara greinilega fram úr.

Það er flott ástandið í draumlandinu handan við hafið, þangað sem íslenskir læknar ætla að leita, þegar þeir yfirgefa eymdina og betlið í sínu eigin landi til að láta ríkustu þjóð heimsins njóta góðs af snilld sinni.

l5fvsiyll3njhqmq4efyiarmyommrhef6q49oxjrypiq_1251828.jpg

Á norskum sjúkrahúsum eru oft sundlaugar fyrir lækna í kjöllurum

Einhvern veginn fær maður á tilfinninguna að íslenskir læknar muni ugglaust svara þessu með því að norski ríkisfjölmiðillin Norsk Kringkastning sé ótrúverðugur miðill líkt og RÚV, sem stundar áróður fyrir íslenska lækna, því tilgangurinn helgar meðalið í baráttu fréttastofunnar að koma vanskapaðri ríkisstjórninni frá. NRK þarf þó ekki lengur að notast við faxvélar líkt og margir sérfræðingar sjúkrahúsa í olíuveldinu Noregi.

Nú í byrjun 2015, þegar á ný verður leikið með líf íslenskra sjúklinga með verkfallsaðgerðum, vegna þess að íslenskir læknar vilja hlutfallslega meira en allir aðrir þegnar þessa fátæka lands, er gott að hugsa til Noregs. Ja, vi elsker dette landet!

Gleðilegt græðgisár beiningarmenn Íslands

doctor-money-2.jpg

Klínísk almenn læknisfræði (fagheiti: Kleptomanía)

Fyrri greinar um íslensku læknafátæklingana hér og hér.

Tekið skal fram, að höfundur er ekki sósíalisti, heldur raunsæismaður.


Og svo segja menn að ekki sé fært...

funnar_og_fabius_1251421.jpg

Gunnar Bragi er í París. Var ekki annars kolófært út á Keflavíkurflugvöll? Sjáið  sveitamanninn, búinn að tileinka sér franska siði á einum degi, t.d. lausa úlnliðinn. Hann er farinn að tala með höndunum, Si vous plait! Svo hefur utanríkis fengið sér bindi í stíl við Fabius, perlulitað. Uhlala. Les boys skemmta sér greinilega í París.

En leitt þykir mér, að í allri munnræpunni sem fór þeirra á milli, og þar sem þeir leystu gyðingavandamálið í Palestínu og Gunni fullvissaði Fabius um hvað Íslendingar væru smáir og sérstæðir, þá gleymdi Gunnar Bragi að nefna hrútinn Erlend og ána Vigdísi, sem voru íslensk fórnarlömb franskrar Upplýsingar á 18. öld.

Þau Erlendur og Dísa voru verðlaunadýr sem franskir landmælinga- menn numdu á brott snemma sumars 1760. Gunnar Bragi var búinn að lofa að spyrjast fyrir um meint örlög þessara merkisdýra sem Fornleifur hefur nú afhjúpað að ákveðnu marki. Bæði voru þau frá Skagaströnd, úr kjördæmi Gunnars Braga. Dísa endaði sem súpukraftur í Versaille og Erlendur sem ragout í Bastillunni.

Nú fá sauðasmalar Íslands aldrei að vita smáatriðin um örlög þessa ólöglega útflutnings árið 1760.

Gunnar Bragi, þú brást. Þú ert jarmandi fíaskó.

rollan.jpg_rihyrndur_hrutur_b_1251420.jpg

In Memoriam Disa og Erlendur


mbl.is Gunnar Bragi fundaði með Fabius
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólasveinar Tamimis kalla ekki á fleiri hríðskotabyssur

jolasveinar_muslum_style.jpg

Ef Íslendingar hafa horft á fréttir Sjónvarps á milli vindkviðanna í gær, hafa þeir vafalaust uppgötvað að Íslam og Ísland eru að þróast til miklu betri vegar.

Hafa múslímar á hjara heims nú tekið heilagan Nikulás í sínar raðir í stað þess að ofsækja hann og myrða sem trúleysingja, guðsspottara og klæðaskipting. Tilbeiðsla á íslenskum jólasveinum er nú leyfð á meðal íslenskra múslíma á þar til gerðum heimilisaltörum sem á arabísku eru kallaðar Chommodah.

Þrátt fyrir þessar trúbætur eru Hurðaskellir og Hummusseikir þó ekkert á leið til IS-lendinga á Sýrlandi, enda er menntunarstigið miklu hærra á meðal jólasveina á Íslandi en t.d. í Danmörku að sögn Tamimis. Danmörk er þróunarland. Grýla og Leppalúði hafa alið drengina sína upp sem smákrimma og hrekkjalóma, en "enginn þeirra mun leika knattspyrnu með afhöggna hausa hermanna Assads, meðan þeir geta ybbað gogg við Ísraelsmenn", segir Tamimi í óspurðum fréttum.

wallabilly.jpg

Íslenskir jólasveinar eru nefnilega langt frá því að vera haldnir ofstæki. Hér er ljósmynd af einum af fréttasveinum RÚV, Fatahskiptingi, uppeldissyni Grýlu. Eitt sinn um jól í Landinu helga sótti á hann óhemjumikil löngun að vefja sig í Fatahföt. Hann notaði mynd af slíkum höfuðföthum á moggabloggi sínu, sem alltaf var frekar óvirkt og öfgalaust. Ekki var að spyrja að því.Ísraelsher skaut á hann úr skriðdreka. Það eru ekki eru til öfgar í þeim sveini.

Byssur, pístólur og hólkar eru aðeins nauðsynlegar í löndum eins og Noregi, þar sem þær eru notaðar til að drepa blómann af flóru verðandi krata. Eins og allir vita, flýðu íslensku jólasveinarnir Noreg árið 871 plús mínus 2 ár. Eftir í landinu langa urðu fúlmenni og fantar, allt norður í Berangur. Ekki er því ólíku saman að líkja. Menntunarstigið í Noregi er vitaskuld enn lægra en í Danmörku. Við erum að tala um frumstæðar öfgaþjóðir.

santa_protester.jpg

Giljagaur og Stúfur.


Sápan af Landsspítalanum

tommi_laeknir.jpg

 

Myglulæknirinn

Í 80 ára byggingu er enginn korkur. Ef mygla er komin í kork í vegg Landspítala er það vegna síðari framkvæmda við gluggaumgjörðir. Það gæti afi Tómasar Guðbjartssonar yfirlæknis (f. 1965) og nafni hans hafa getað sagt honum. Hann var líka iðnaðarmaður og byggði mörg húsin. Prófessor Tommi er ekki að segja satt í sápu Sjónvarpsins frá Landspítalanum. Má biðja um nöfn þeirra lækna sem veikst hafa af myglu á Landspítalanum? Nei, allar upplýsingar um lækna á Íslandi eru hernaðarleyndamál. Orð þeirra eru orð guða, og við eigum bara að trúa þeim og halda svo kjafti.

geymsla.jpg
Rauða örin sýnir að ekki er þetta geymsla eða gæsla. Þetta er sjúkrastofa sem hefur verið notuð undir hirðuleysi á Landsspítalanum.

 

Kompur og geymslur

Árið 1971 voru sjúklingar líka settir inn í kompur, og það miklu minni en "tækjageymslan" (gæslustofan)  með súrefnisinntakinu á Landspítalanum nú. Skilti er hægt að taka af og setja á að vild. Tækjageymslan sem Tommi læknir sýndi okkur er greinilega upphaflega stofa fyrir sjúklinga.

Afi minn fékk eitt sinn mikla bólgu í hálsinn. Mig minnir að það hafi verið um 1972 og einhver læknalalli var búinn að ákveða að hann væri með krabbamein. Allir voru kvaddir til til að kveðja afa á Landspítalanum. Hann átti ekki langt eftir samkvæmt lækninum en samt hafði hann verið settur inn í litla kompu, því fínni maður þurfti að vera á stofunni sem hann kom upphaflega á.

Síðan kom í ljós að læknaljósið sem taldi afa vera með krabbamein, hafði ekki sóst bóklega námið sérlega vel, því afi var bara með hressilega ígerð og spýttist gröftur út um alla skurðstofu er læknarnir ætluðu að skoða krabbameinið. Afi lifði í 20 ár í viðbót og hlaut sem betur fer engan skaða af dvöl sinni á Landsspítalanum, þar sem hann var dæmdur krabbameinsdauða, áður en hann hafði verið rannsakaður að ráði.

Faraómaurar

Faraómaurar, sem einnig hrjá íslenska lækna í launakapphlaupi þeirra við sjálfa sig, eru vottur um lélegt hreinlæti. Það hefur lengi verið vandi á Landspítalanum, og hefur sá vandi ekkert minnkað þó laun lækna hafi hækkað verulega eftir árið 2000. Læknar gera ekki hreint, þeir heimta bara hærri laun.

Launabarátta íslenskra lækna er hins vegar ekki trúverðug. Tvær vesalings læknamúmíur sem áður unnu á Íslandi, allar gegnblautar af myglu og maurbitnar, réðu sig í föst störf í Noregi í fyrra. Líklega hafa ekki fleiri vafningar komist til fyrirheitna landsins vegna verkfalls flugumferðastjóra og flugmanna. Sögur af íslenskum faraómaurum gætu hafa orðið til þess að færri læknar fóru frá Íslandi en þeir sem lofuðu okkur því í síðustu atrennu.

Sápan af Landsspítalanum heldur örugglega áfram... í boði lygaveitunnar RÚV.


Stuttlegar fréttaskýringar

771861.jpg

 

310+ byssur:

Hríðskotabyssur þær sem Noregur hefur gefið, selt, gefið, selt, gefið, selt ?? Íslendingum áttu upphaflega að fara til Gaza. Stoltenberg ætlaði sér í fyrstu að senda mikið magn vopna til Gaza, en tókst það ekki. Síðar fékk hann þá flugu að senda vopnin til þeirra sem gerðu uppreisn gegn Assad Sýrlandsforseta. T.d. 335 hríðskotabyssur til IS. Fyrir misskilning norsks embættismanns í varnarmálaráðuneyti Noregs, sem heitir Cohen, voru þær í staðinn sendar til Íslands.

saxi-laeknir_1248453.jpg
 

Læknar í verkfall:

Þótt íslenskum læknum líði mjög illa í verkfalli, og að nú sé í fyrsta sinn sem þeir fara yfirleitt í verkfall, hefur þeim aldrei liðið betur, nema ef til vil rétt fyrir 2008. Vanlíðan þeirra nú er fyrst og fremst vegna þess að launin hafa ekki hækkað óeðlilega mikið síðan 2008. Þótt bóklegt nám sé mikið í iðnnámi þeirra, hafa þeir dregist aftur úr öðrum iðnaðarmönnum hvað laun varðar. Þeir sem setja inn forláta eldhúsinnréttingar í hús lækna eru til að mynda með 150% hærri mánaðarlaun en læknar að meðaltali. Það getur auðvitað ekki gengið. Fyrri frétt um málið hér.


Annie get your hríðskotagun

annie_machine_gun.jpg

Nú er svo komið á hinu háa Alþingi, að þar er ekki bara saman komin kynslóðin sem spilaði Tetris og gráðuga gleypikarla, heldur einnig litlir karlar með tagl sem hafa drepið miljónir vondra Ameríkana í tölvuleikjum. Það er ekki nema von að slíkir taglhnýtingar vilji ekki banna hetjum ISIL að hafa lén á Íslandi.

Hins vegar er spurningin með allar þessar hríðskotabyssur frá Noregi. Hvern á að drepa, eða hræða? Gengur íslenskur Breivik laus (byssurnar norsku dugðu skammt á hann). Eru múslímarnir í Öskjuhlíðinni kannski farnir að vígbúast? Á að skjóta niður byltinguna þegar hún kemur?

Meðan að íslenskir lögreglumenn eru ekki reglulega athugaðir af sálfræðingi, og ekki er enn krafist lágmarksgáfnafarsprófs fyrir menn sem starfa í rannsóknarembættum lögreglu, er víst ekki óhætt að hafa þessar hríðskotabyssur nema í lokuðum skápum og gefa friðsemdarmönnum lyklavöldin.

Svo þegar IS kemur til Íslands og brjálaður Breiðavíkurriddari birtist á Laugaveginum með 5 ára gísl, er hægt að blaffa þá niður svo þeir ráðist ekki á þetta frábæra kauplýðræði sem við höfum á Íslandi. Þegar öll afnotagjöldin að lýðræðinu hækka og hlutur sjúklinga verður æ stærri, er kannski ekki svo óvisst að norsku byssurnar komist í gagnið fyrr en síðar. Munið að smyrja þær reglulega.

En munið einnig, að frændur okkar Vesturíslendingarnir búa margir í landinu þar sem Nathan Cirillo var myrtur af hundóðum öfgamúslim fyrir tveimur dögum síðan. Í eina lýðræðisríkinu í Miðausturlöndum eru öfgamenn, hryðjuverkamenn sem Íslendingar hafa stutt að séu leystir úr fangelsi, enn að aka niður 3ja mánaða stúlkubörn eins og Chayu Zissel Braun. Í nágrannalöndum Ísrael stunda ungir múslímar frá Danmörku, Noregi, Þýskalandi og öðrum siðmenntuðum löndum fjöldamorð, jafnvel þjóðarmorð. Þeim gengur betur en í tölvuleik taglhnýtinganna.

Er það goðgá að halda því fram að slíkir morðingjar geti einnig komið frá Íslandi?  Enn er þó ekki tími til kominn að gefa fjallkonunni hríðskotabyssu. Hún hefur ekki einu sinni ráð á tölvu og nýjum mjaðmalið.

jerusalem24n-11-web.jpg
Chaya Zissel Braun 2014-2014

Össur píningur

Össur Skarphéðinsson (S) vill "pína Ísraelsmenn" til að sætta sig við útrýmingarherferð á Ísrael og gyðingum. Þessar píningarhugleiðingar sínar, það er viðskiptabann á Ísrael, afhjúpaði hann á hinu háa Alþingi um daginn. 
papa_gazaroni_1246553.jpg

Sjáið bara hér (8:50 mínútur inn í fréttatímann). Núverandi utanríkisráðherra útilokaði ekki að "Pína"  gyðinga ef heimurinn allur tæki þátt í slíkri "píningu".  Píning og útilokun á gyðinga var líka yfirlýst stefna forráðamanna Framsóknar á 4. áratug síðustu aldar. Allur heimurinn er sem betur fer ekki farinn aftur á sama menningarstig og Össur Skarphéðinsson, þar sem píningar og hryðjuverk eru verkfæri í mannlegum samskiptum.

Íslendingum má vera ljóst, að hagsmunir Íslendinga eru í húfi ef Ísland fer í sóló píningarherferðir gegn Ísraelsríki. Land sem leyfir einhverju braskfyrirtæki að veiða hval í óþökk siðmenntaðra þjóða, sama hve mikið slíkar þjóðir menga og drepa af fólki og hnísum, þá er stuðningur við "píningar" gegn þjóðum sem þegar eru fórnarlömb hryðjuverka, útrýmingarherferðar og haturs heilla heimstrúarbragða ekki sniðug aðferð til að gæta hagsmuna Íslendinga. Munið hverjir kaupa íslenskan fisk? Það gera hvorki Framsóknarmenn né píningarmeistari Samfylkingarinnar, flokks sem leitaði fulltingis hjá Assad Sýrlandsmorðingja, þegar Samfylkingin ætlaði inn í Öryggisráð SÞ, þar sem ætlunin var að ganga frá Ísrael.

Píningarmeistarar og sadistavinir Össurar í Samfylkingunni eru sjálfum sér verstir, þótt þeir fái "læk" á smettiskruddur sínar frá fólki sem kallar gyðinga "djöfla" og íslenska stuðningsmenn Ísraels "helvítis gyðinga".


Andskotar

ap625976846732.jpg

Þegar maður sér þessa mynd af Skotum sem fagna því að þeir séu ekki orðnir sjálfstæðir, sýnist mér ljóst, að töluverður skyldleiki sé með sumum Íslendingum og Skotunum á myndinni. Það eru sumir andskotar á Íslandi sem fyrir alla muni vilja láta af sjálfstæði sínu og ákvörðunarrétti fyrir nokkrar evrur í budduna og félagsskap við sterku þjóðirnar með mikla atvinnuleysið í ESB. Megi andskotinn hirða þá!


"Helvítis gyðingur"

hrop_imamsins.jpg

Ég var fyrstur manna til að stinga upp a mosku á Íslandi og styð byggingu hennar heils hugar. Ég tel enga trú  vera verri en einhverja aðra. Það er aðeins fólkið sem er mismunandi. Þess vegna sjáum við öfgaíslam blómstra í blóðbaði, og menn hafa einnig í gegnum aldirnar sýnt það ljótasta í sér gegnum kristnina.

Það syrgði mig hins vegar að sjá og heyra, að imam safnaðarins sem fékk gefna lóð undir mosku hafi hrópað að íslendingum sem voru með við sömu "iðju" og hann sjálfur í Laugardalnum í gær. Þar mótmæltu fáeinir íslenskir stuðningsmenn Palestínu því að kvennalandslið frá Ísrael leyfði sér að leika á Íslandi. Nokkrir vinir Ísraelsríkis, voru einnig komnir á staðinn með andmótmæli. Þeir sem mótmæltu fyrir Palestínumenn töldu sig hafa ákveðið svæði, sem þeir töldu stuðningsmenn Ísraels hafa ráðist inn á. Þetta leiddi meðal annars til ljótra hrópa og kalla meðal stuðningsmanna Palestínumanna. Ekki kom til steinskasts.  Imaminn, Salman Tamimi, kallaði alíslenskan og þrautkristinn aðdáanda Ísraelsríkis "helvítis gyðing"

Nú held ég að flestir stuðningsmenn Ísraels á Íslandi séu frekar upp með sér heldur en hitt, þegar einhverjir kalla þá gyðinga. En þegar "helvíti" er sett í samhengið, er allt annað mál. Þessi hegðun Tamimis þykir mér ekki sæma trúarleiðtoga múslíma á Íslandi. Slík köll og hróp sýna að andlegur leiðtogi múslíma á Íslandi óski gyðingum helvíti og að hann sé hugsanlega ekki í andlegu jafnvægi. Þó hann sé Palestínumaður, þá er það ekki hlutverk hans að brjóta íslensk hegningarlög í hlutverki andlegs leiðtoga múslíma. Íslensk hegningarlögin gilda í Laugardalnum en ekki sharía lög.  Íþróttamannleg var þessi gusa Tamimis ekki og hefði mönnum verið vísað af velli og settir í leikbann fyrir minni sakir. Salmann verður að vara sig.

Þrátt fyrir ágætan stuðning varðliða Ísraels á Íslandi unnu íslensku stelpurnar þær ísraelsku með glæsibrag. Ætli kuldinn hafi ekki verið að drepa dætur Ísraels. Ég sé að á myndinni eru ýmsir smettisskrudduvinir þessa heiðingja. "Helvíti" voruð þið góð. Elskið Friðinn, Shalom!

_fram_srael.jpg
Varðliðar Ísraels á Íslandi. Ljósmynd. Eva Björk.

Hvert í rauðglóandi

rau_gloandi.jpg
Á bak við Pantheon-hof í Róm hitti ég fyrir þessa félaga. Indverjar og Síkar eru margir á Ítalíu, líkt og Afríkumenn og Roma-fólk (sígaunar). Þetta fólk eru flest flóttamenn, sem ekki drukknuðu á leið til Lampedusa.  Ef þeir hafa vinnu eru þeir í illa launuðum störfum, og allir reyna að framfleyta sér á ýmsan annan hátt, m.a. með götusölu. Margir Indverjar vinna líka erfiðisvinnu í landbúnaði. Það sést nær ekki lengur Ítali að störfum í sveitum Ítalíu. Mikið ber á Indverjunum í sölumennskunni. Í Róm fylla þeir t.d. notaðar vatnsflöskur með venjulegu vatni, líma tappann á með hraðlími og frysta síðan flöskurnar.  Þeir reyna svo blessaðir að selja flöskuna fyrir 1 evru. Þegar lögreglan nálgast sér maður þá hlaupa á brott með vatnspokana sína. Minnir þetta óneitanlega á suma Íslendinga, sem gera allt til að fá sér evru.

Aðrir vinna fyrir sér með "töfrum" eins félagarnir á myndinni. Þeir leika forna íhugunarlist sem ginnkeyptir Vesturlandabúar hafa aldrei skilið. Það kallast "Sterki gúrúinn sem rekur staur í bakhlutann á Himalayamunki". Sá sem undir situr lítur út fyrir að hann haldi á félaga sínum með miklum erfiðismunum og framkallar grettur og stunur, en sá efri, sem á staurnum "situr" er greinileg í djúpri íhugun, sem er nauðsynleg þegar annar eins gaur fer upp í gilið.

Nokkrum klukkustund síðar hittum við aðra Indverja með sama töfranúmer nærri Forum Romanum.  Þá er kannski vatnssalan betri til að sjá sér farborða í þjóðfélagi sem er mjög hatursfullt í garð innflytjenda. En allt er reynt. Vinnumiðlunin skaffar ekki mörg störf og fólk fer ekki á atvinnuleysisbætur sí sona á Ítalíu.
_spitunni.jpg

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband