Leita í fréttum mbl.is

Für Juden verboten

Muslim Cabbie

Er hér veriđ ađ biđja um réttu farţegana?

Nú er ţađ svart mađur. Öryggisfulltrúi gyđingasafnađarins í Kaupmannahöfn hefur sent frá sér yfirlýsingu um ađ gyđingum sé ekki óhćtt ađ panta leigubíl frá ákveđnu leigubílafyrirtćki í Kaupmannahöfn. Sumir bílstjórar hjá fyrirtćkinu 4x35, sem eru fylgjendur Íslams, trúar friđar og virđingar, neita ađ aka fólki ađ heimilisfanginu Ny Kongensgade 6 í hjarta Kaupmannahafnar. Ástćđan er, ađ ţar er safnađarheimili gyđinga til húsa. Sumir bílstjórar 4x35 vilja greinilega ekki aka ţangađ samkvćmt öryggisverđi safnađarins Jerry Hessner. Kvenfélag safnađarins, sem hefur orđiđ fyrir barđinu ađ ”trúuđum” bílstjórum, hefur ţví sent út tilkynningu og beđiđ fólk um ađ nota önnur fyrirtćki en 4x35.

Bar ég ţetta af forvitni undir leigubílastöđina, sem neitađi alfariđ ađ svona lagađ gćti átt sér stađ, en ćtluđu menn ţar á bć ţó ađ rannsaka máliđ hiđ fyrsta. Ef ţađ er rétt, ađ leigubílstjórar mismuni fólki vegna trúar, varđar ţađ viđ hegningarlög.

Ţegar ég frétti ţetta minntist ég fréttar af múslimi af sómalískum ćttum, sem starfađi í BNA. Ók hann tvo námsmenn niđur vegna ţess ađ hann deildi viđ ţessa tvo farţega sína um trúarbrögđ.Stór hluti leigubílstjóra í Minneapolis, sem eru múslimir, tóku upp á ţví í fyrra ađ neita ađ aka međ farţega, sem annađ hvort höfđu neytt áfengra drykkja (sjá hér), eđa međ ţá sem höfđu áfengi í fórum sínum. Bílstjórarnir komust upp međ ţetta um skeiđ, og flugvallar- og borgaryfirvöld leyfđu ţeim ađ framfylgja Sharíalögum sínum. Nú er búiđ ađ afnema ţetta leyfi og snúa kvćđinu í kross. Ef menn neita ađ aka međ fyllibyttur og fólk međ ţunga plastpoka, varđar ţađ sektum.

Svona bönn voru líka mikiđ notuđ af nazistum. 

Für Juden verboten 

 


Endalok Íraks

Endalok Íraks innsigluđ

Ef Nuri el Maliki meinar eitthvađ međ beiđni sinni um hjálp frá nágrannaríkjum Íraks, eru endalok Íraks loks orđin ađ veruleika. Landiđ er, eins og mörg ríki í Miđausturlöndum, hreinn tilbúningur sem orđiđ hefur til á teikniborđum evrópskra nýlendufursta. Í Írak, hefur t.d. aldrei veriđ hćgt ađ tala um írakska ţjóđerniskennd, eins og ţá sem t.d. hefur orđiđ til međal ţess mjög fjölleita hóps sem í dag kalla sig Palestínumenn. Mismunandi trúarfylkingar og ţjóđarbrot gerir ţađ nćrri ómögulegt ađ tala um ríkiđ Írak og írakska ţjóđ. Ţađ sama er tilfelliđ á Sýrlandi, í Afganistan og víđar.

Slík ríki hafa hingađ til veriđ útópíur fyrir einrćđisherra og "flokka" ţeirra, sem venjulega taka Guđ í gíslingu. Svoleiđis menn hafa fyrst og fremst hyglt ćttbálki sínum á kostnađ annarra hópa sem búa á landsvćđi, sem hefur fengiđ tćknileg nöfn og landamćri hjá kortagerđum herforingjaráđa í Evrópu.

El Maliki biđur um hjálp frá röngum ađilum.  Frá Sýrlandi og Íran hefur hingađ til ađeins komiđ sundrung og eyđileggin inn í Írak.  Kannski langar El Maliki ađ ljúka ţessu af og láta Íran og Sýrland skipta eyđimörkinni á milli sín?

Ég tel mig ekki sjá ofsjónir og heyra raddir ţegar ég upplifi landa mína tala um "Stríđ BNA" í Írak og sé ţá krefja ađ vestrćnar hersveitir hverfi á brott frá Írak.

Kćru vinir á vinstri vćng vitleysunnar. Bandaríkin og ađrir sem stunda friđargćslu í Írak, eftir ađ einrćđisherranum Saddam var steypt af stóli, eru ekki ástćđan fyrir ţví ađ 30-200 manns eru myrtar daglega í Bagdađ. Ţau hryđjuverk eiga upptök á Sýrlandi og í Íran. Í hvert sinn sem ţiđ krefjiđ heri vestrćnna ríkja frá Írak komiđ ţiđ nćr eyđingu írakskar "ţjóđar" og einingar í ríkinu Írak.

 


mbl.is Írakar kalla eftir ađstođ viđ ađ kveđa niđur ofbeldiđ í landinu
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Falleg mynd á laugardagskvöldi

Bush and Lulita

Bush fór međ nesti og nýja skó til Suđur-Ameríku. Hann hefur greinilega deilt út af nestinu. 

Ţetta er fallegt. Hjartnćmt! Vildi deila ţessu međ ykkur áđur en ég fer í háttinn. Batnandi börnum er best ađ lifa! Ekki allir sem hata Bush og BNA eins og á Íslandi.  


Daniel Pipes í Kaupmannahöfn

Daniel Pipes in Copenhagen

Ég fór í dag til ađ hlusta á súpermann zíonistanna, Daniel Pipes, sem er staddur í Kaupmannahöfn. Hann hélt erindi í kjallaranum á safnađarheimili gyđinga í Kaupmannahöfn. Ekki ćtla ég ađ endurtaka ţađ sem mađurinn sagđi, ţví ađ miklu betra er ađ upplýsast á heimasíđu Daniels Pipes sjálfs

Eftir fyrirlesturinn fékk ég áhugaverđar fréttir. Upplýsingar ţćr sem ég lét Simon Wiesenthal stofnuninni í Jerúsalem í té um danska stríđsglćpamanninn Sřren Kam, eftir ađ Ţjóđverjar neituđu ađ taka mál hans fyrir rétt,  hafa valdiđ ţví ađ danskir gyđingar krefjast ţess ađ danska dómsmálaráđuneytiđ flýti rannsókn á ţeim glćpum Kams sem ég benti mönnum á. Áđur en ţađ gerđist var danski dómsmálaráđherrann búinn ađ biđja dönsku lögregluna um ađ ganga í máliđ. Ţýsk yfirvöld ţegja og ţýskt sendiráđsráđunaut hér í Kaupmannahöfn tjáđi dagblađinu Politiken nýlega, ađ hann hefđi skipun ađ ofan um ađ tjá sig ekki um máliđ.

Nú, aftur í veruleikann, ţegar ég hélt heim á leiđ var eitthvađ um ađ vera. Lögreglan hafđi safnast saman í flokkum međ brynvarđa bíla á Gammel Torv og viđ norđuhliđ Vorrar Frúar Kirkju. Sá ég ekki betur en ađ danska löggan vćri komin međ bíla frá hollensku löggunni. Kallađi ég af gamni blótsyrđi á hollensku, sem sýndi mér ađ hollenskar löggur höfđu ekki fylgt lánsbílunum, ţví engin viđbrögđ voru viđ skrćkjum mínu. Tvćr ţyrlur voru á sveimi yfir miđborginni. Ekki ţćtti mér ólíklegt ađ einhver muni snapa sér fćting í kvöld og lögreglan geti kýlt kúlu á hausinn á nokkrum unglingum.


Til hamingju međ daginn (2)

Burqa

Milljónir kvenna halda ekki upp á baráttudag kvenna. Ţćr eru pakkađar inn í burqa, chador og hijab og er seldar eins og dýr hćstbjóđandi karlpeningi, margar ţeirra ađeins á barnsaldri.  Hulinshettan er til ţess ađ óviđkomandi karlpeningur lokkist ekki til ađ stela "eigninni" frá ţeim sem hefur keypt vöruna. Ţađ er ekkert "bleikt" í tilveru ţessarra kvenna.

Ţessi innpökkun á sér stađ víđa um lönd. Sumir vesturlandabúar virđars vera dálítiđ veikir fyrir ţeirri menningu sem aliđ hefur ţessa niđulćgingu af sér.  En kannski eru ţessar tuskur líka Bandaríkjamönnum, Zíonistunum og ómenningu ţeirra ađ kenna?

Muniđ eftir kynsystrum ykkar undir hulunni, og hugsiđ um hvernig blóđţrýstingurinn er í 40 stiga hita undir ţéttri hulu!


Konur, til hamingju međ daginn

Anna i Gardshorni

 

Fjarlćgiđ beizlin eins og Anna í Garđshorni gerđi forđum.  En fariđ nú varlega međ karlmennina. Ađgát skal höfđ í nćrveru sálar eins og málshátturinn segir. 


Stokkurinn og gríman

Maskubaru

Japanskir ferđamenn á kínverskum veitingastađ í Reykjavík. "Japanarnir taka vart af sér grímurnar ţegar ţeir borđa" segir Teitur Fong veitingamađur.

 

Í fréttum Sjónvarpsins í gćrkvöldi var greint frá mengun í höfuđborginni og kröfum um ađ fá Kringlumýrarbraut og Miklubraut niđur í stokk. Hefur einhver hugsađ um, hvernig mengunin í stokknum yrđi? Hvar á ađ lofta út? Ef til vill úti í Viđey?

Ein af mörgum smámćltum, eđa andstuttum, fréttakonum Sjónvarpsins rabbađi svo fram og aftur og klikkti út međ myndskeiđi, sem kvikmyndatökumađur hafđi náđ af ferđamanni međ ÖNDUNARGRÍMU.

Nú er ţađ svart mađur, hugsađi ég, og bjóst viđ ţví ađ sjá ferđamann međ súrefnihylki og öndunargrímu vegna mengunar í Reykjavík. Svo var skúb tökumannsins sýnt, og ţađ sem ég sá á myndinni var japönsk kona međ kvefgrímu, sem Japanir setja á sig, fyrst og fremst til ađ varnar ţví ađrir fái ekki kverkaskítinn sem er ađ krauma í ţeim sjálfum. Tökumađurinn ofsótti ungt japanskt par međ myndavél sinni og japanski mađurinn uppgötvađi myndatökuna. Tiplađu pariđ, ađ hćtti Japana, undan í flćmingi inn á nćsta kaffihús. Ég held ađ ţau hafi veriđ á flótta undan Íslendingum, sem héldu ađ konan vćri fárveikur útlendingur međ pest – eđa svona óánćgđ međ mengunina í Reykjavík, höfuđborg hreinasta lands í heimi.

Í Japan setja menn á sig grímur til ađ varna ţví ađ öll ţjóđin fái ekki kvefiđ, sem ţađ gengur međ. Gríman er hugsuđ sem tillitssemi viđ náungann. Á Íslandi telja menn ađ grímur séu settar upp vegna ţess ađ ţađ er kominn tími til ţess ađ setja Kringlumýrarbraut og Miklubraut í stokk.

Ég hef aldrei veriđ spámađur í mínu eigin landi. Ég á ekki lengur bíl og hjóla bara. Ef fólk á höfuđborgarsvćđinu ćki meira í almenningsvögnum, vćri öll umrćđa um stokka komin undir stein. Í strćtó gćti fólk bara skellt á sig andlitsgrímu ađ hćtti Japana, ţegar ţví vćri illt í hálsinum og grímulausir gćtu óskađ grímuklćddum góđs bata á ţeim 20 mínútum sem ferđin tćki. Öndunargrímur eru ađeins fyrir fólk sem ferđast mikiđ í stokkum og ţarf ađ komast í vinnuna á 2 mínútum.

En hvađ veit ég? Veit bara ađ á Íslandi ţarf hugafarsbreytingu í sjálfsánćgukastinu og ţađ ţýđir ekkert ađ flýja niđur í stokk á jeppanum sínum.

 


McDonalds í ólátaseggina - Róar ţađ ţá?

Hans og Gréta danskir aktivistar

Hans og Gréta, forđum aktívistar á Norđurbrú, nú nýtir samfélagsţegnar

Danska lögreglan gefur ólátaseggjunum frá Norđurbrú, sem eru í fangageymslum ţeirra, McDonalds hamborgara í matinn. Ţví hafa tvćr dömur frá Svíţjóđ mótmćlt harđlega og fara líklega međ máliđ fyrir mannréttindadómsstólinn í Strassbúrg. Í Svíţjóđ er nefnilega alltaf hćgt ađ velja um 7 rétti í gćsluvarđhaldi. Sćnsku flikkurnar eru nefnilega grćnmetisćtur, sem ekki borđa mjólkurafurđir – eins konar kanínur.

Danskur óróaseggur á Norđurbrú, Thomas Greve, borđađi ţó matinn frá McDonalds međ bestu lyst og lét ţetta eftir sér hafa um McDonalds keđjuna: “Ég borđa á henni stundum, ţegar ég er í bćnum. Ţađ er ekki svo ađ ég hati hana eins og sumir öfgafullir aktívistar. En ţađ er enginn vafi á ţví, ađ ţađ er eitthvađ pólitískt á bak viđ ţetta hjá löggunni.”

Lögreglan neitar ţessum ásökunum unga mannsins, sem klárađi borgarann sinn. Ţetta er bara óskaplega venjulegur matur í dönskum fangelsum segir löggan.  Kannski ekki nema von, ađ ţađ séu svo margir glćpir hér í landi. Fólk langar bara í ókeypis ruslamat á rólegum stađ.

Talsmađur lögreglunnar, Michael Bćk, skýrir skođun sína á matvendni sćnsku stúlknanna. “Ţćr gćtu bara hafa fjarlćgt kjötiđ og borđađ restina”.  Lesiđ meira um máliđ á fréttastođ Politikens.

 


Ungr var ek forđum

vovveryyoung

 

Minningar borgarskćruliđans:

Ungr var ek forđum. Líkt og unga fólkiđ á Norđurbrú. Ţó ekki alveg eins vitlaus, enda var lögreglan sćtari viđ okkur ţá. Einn septemberdag í haustfrosti söfnuđumst viđ saman, herstöđvaandstćđingar, í Sundahöfn til ađ láta illa viđ herskip sem ţar lágu viđ hafnarbakkann. Hétu ţau Karlsruhe og Nipigon. Eiginlega var ţađ ekki ćtlunin ađ láta illa, heldur ćtluđum viđ ađeins ađ syngja "Ísland úr NATO" og hlusta á Árna Björnsson halda rćđu inni í Lödu Sport, sem hann sat inni í.

Ég fór beint úr latínutíma í MH og var međ ţýđingar mínar á Gallastríđinu eftir Júlíus Cćsar í plastoka og Lívíus. Ţarna voru líka nemar úr Iđnskólanum og MS, sem höfđu óspektir í huga. Sumir voru međ kassa fullan af boltum, sem höfđu veriđ fylltir af rauđri og blárri málningu. Ţeim átti ađ henda í herskipin. 

Nokkrar löggur voru mćttar á stađinn, svo liđiđ hélt ađ ţađ kćmist upp međ óspektir. En viti menn, skyndilega opnađist rennihurđ á kornsílói og út kom varaliđ löggunnar, sem hafđi beđiđ inni í kornsölunni eftir ţví ađ komast í slag viđ ungviđiđ. Ţarna voru gamlir kallar međ Bjarka Elíasson í fararbroddi og veifuđu ţeir kylfum sínum dólgslega. Ţá hófst auđvitađ slagurinn. Hér er hćgt ađ lesa um hann í túlkun Moggans.

Ég var auđvitađ alltaf jafnheppinn og Óli K. Mag. tók ţessa mynd af mér "ađ safna grjóti", og sagđi eftir ađ hann gerđi ţađ. "Hvađ ćtli hann afi ţinn segi ţegar hann sér myndina af ţér". Ţetta tók úr mér allan ţrótt. Ég var ekki handtekinn eins og sum skólasystkini mín.

Daginn eftir, og í nokkurn tíma á eftir, var ég uppnefndur borgarskćruliđinn. Ţađ ţótti mér mjög miđur enda friđarsinni fram í fingurgómana.

 


Berserkurinn á Nyhedsavisen

 

 Rone Friedensburg

Nú er hann orđinn frćgur, René Fredensborg, gćđablađamađurinn á Nyhedsavisen. Kominn á Wikipediu


mbl.is Blađamađur Nyhedsavisen tók ţátt í mótmćlum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband