Leita í fréttum mbl.is

Nýr hundur í Hvíta Húsið af íslenskum ættum

Snati

Barach Obama næsti forseti BNA er búinn að finna sér hund sem ekki veldur ofnæmi. Þetta er alíslenskur hundur, Snati, sem unnið hefur til fjölmargra verðlauna vestra, m.a. fyrir að hafa ofnæmi fyrir fólki.  Að sama skapi veldur Snati ekki ofnæmi hjá mannfólkinu. Snati er mjög greindur hundur. Hann hefur t.d. gefið út skáldsögu. Beinabygging hans þykir um margt svipa til mannfólksins. Hann er meðallanghöfði.

Snati er söngelskur, góður við börn og hefur áhuga á þyrlum. Hann hefur vakið athygli fyrir verk sín í Oregon. Ekki er enn vitað hver þau eru. Hann tilheyrir ekki neinum þrýstihópi. Hann er rólegur, spyr ekki spurninga og tekur sér langan tíma til að gelta. Hann bítur ekki í annað en bein sem otað er að honum. Varast ber þó að láta Snata annast bankaviðskipti.  Þegar hann er kátur á hann það til að offjárfesta og taka lán sem hann getur alls ekki borgað. Hann verður oft mjög hátíðlegur á góðri stundu og telur sig geta gengt hlutverki á meðal bílanna. Sérstakur ráðgjafi verður ráðinn til að annars öll bankaviðskipti Snata meðan hann býr í Hvíta Húsinu.


Vaselín- og Vodkadraumur

 

Russia!Putin

 

Þótt fréttir af hádegisverðarfundi Ólafs Ragnars á föstudaginn var séu afar óljósar og óstaðfestar, er auðvitað einkar athyglisverð tenging rússaláns við herstöðina á Miðnesheiði.  Vonandi er ekki komið kalt stríð í miðri alheimshitnuninni. Menn spyrja sig náttúrulega, hvor slagorðið verði , Ísland úr NATÓ og rússneska herinn upp á Völl.

Þeir sem vilja gerast rússamellur, ættu kannski að fara að taka fram vaselínið og vodkann. Rúblureikninga og vodkaverðbréf. 10% þjóðarinnar getur lagst í vímu eins og góðum Rússum er einum lagið.

Nei, þetta er martröð í svarthvítu, með rússneskum herstöðvum og olíuvinnslum, stóriðnaði og gaffalbitum í matinn. Ef ég væri sálfræðingur, sem ég er sem betur fer ekki, myndi ég kalla þessi meintu viðbrögð Ólafs Ragnars Post Traumatic Stress. Þeir sem hafa valdið þessu ástandi hjá Óla eru gamlir kunningjar hans og ganga þeir enn lausir. Líklega er orðið tímabært að hneppa slatta af þeim í varðhald, þangað til málin verða rannsökuð niður í kjölinn.

Danir hafa verið mjög harðir við nokkra fjárglæframenn eins og Riskjær og Thorsen. Á Íslandi urðu á nokkrum árum til 200 karakterar af sömu gerð og þessir dönsku glæpamenn. Danir notuðu engin vettlingatök á þá og vörpuðum þeim í fangelsi. Við verðum að beita sömu aðferðum. Það ganga menn lausir sem eyðilagt hafa Íslenska lýðveldið svo mikið, að menn eru að rausa um nána vináttu við Pútín-Rússland. Er hægt að leggjast lægra?

Myndin efst er af ríkum fasista, sem nú er verið að sleikja upp, og myndin hér að neðan gæti verið af íslenskum þjóðernissinnum og Ólafi Ragnari í skrúðgöngu á 1. maí eftir nokkur ár, ef menn hugsa sig ekki tvisvar um.

Ísrússneskir .þjóðernissinnar

Það er greinilega engin hugarfarsbreyting í gangi

Meðan beðið er eftir "láninu", sem lofað hefur verið, svo Íslendingar geti haldið uppteknum hætti og neysluvenjum, er lítið annað að gera en að minnka við sig. Menn geta gengið í vinnuna eða tekið strætó.

Svo væri líka hægt að boykotta vörur frá Stóra Bretlandi og Hollandi; Hætta að rápa til London og Amsterdam. Margir eru vanir slíku og hafa hætt að kaupa allt frá Ísrael, vegna þess að stuðningurinn við hryðjuverkasamtök er talin til dyggða.

Boykot

Union Jackoff

Boykot

Nederland

Bretar, Hollendingar og aðrar þjóðir sýna nú gamla nýlendutakta. Það er ekki við öðru að búast.  Það gengur heldur ekki vel hjá þeim. Þetta eru gömul heimsveldi, þar sem peningar hafa ávallt skipt meiru máli en mannslíf. Við þekkjum sögu Breta. Saga Hollendinga er líka blóði drifin líkt og Breta og þetta eru meiri nasistaskinn en þeir segjast vera. Af hverju haldið þið að helmingur þeirra 10% gyðinga frá Hollandi sem lifðu helförina af hafi yfirgefið landið 5-10 árum eftir stríð?

Svo er annar lærdómur, sem hægt er að draga af þessu: Nú verður að fá nýja ríkisstjórn. Eyðsluklóin, okkar í utanríkisráðuneytinu, sem ætlaði sér að stjórna öryggi heimsins frá New York, sem ekki sá hvernig sirkustjaldið féll yfir hana og sem ekki getur á fljótan hátt bjargað öryggi þjóðarinnar með pólitískum aðferðum, ætti að fara að leita sér að starfi hjá Póstinum. Forsætisráðherrann ætti að fara á námskeið í persónulegu öryggi. Hann er eins og feitu og duglausu persónurnar í Latabæ.  Af hverju þarf maðurinn alltaf að koma fram með einhvern við hliðina á sér? 

Fyrrverandi auglýsingastjóri FL Group, einhver Kristján, sem síðast hefur starfað fyrir Latabæ, hefur reyndar þegar verið ráðinn í Stjórnarráðið. Betra væri að senda stjórnarráðið eins og það leggur sig í æfingar hjá þeim ofurhressa, og kannski eina sanna útrásarvíkingi sem við eigum, Magga Scheving. Hann hefur að minnsta kosti svitnað á því að græða milljónirnar sínar. Hinir hafa bara safnað snekkjum eða fitnað eins og þessi framsóknarvíkingur er gott dæmi um:

Buddah

Gleðifrétt gærdagsins: Bjarni Harðarson er farinn, og er það vel. Vonandi fer Valgerður líka hið fyrsta. Skrílslæti Framsóknamanna í hinu háa Alþingi eru ekki á allt hitt bætandi.


mbl.is Afgreiðslu umsóknar frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auschwitz-teikningar fundnar

  gaskammer-bild

Ekki held ég að til séu til margir Íslendingar sem eru í vafa um að Helförin hafi átt sér stað með gasklefum, brennsluofnum og hvaðeina. En þarna úti á meðal ykkar eru samt nokkrar sjúkar sálir, sem draga þetta allt í efa í einhverri forpúlaðri, trúarlegri andagift. Nokkrir þessa aðila eru einnig á fullu í samsæriskenningum um Twin Towers og öðru kukli. Slíku fólki er víst ekki við bjargandi.

Nú fá vantrúarmenn (nei, ég meina ekki þig Matti antikræst) eitthvað að hugsa og búa til samsæriskenningar um. Nú hafa nefnilega fundist nokkrar uppmælingar af elsta hluta búðanna í Auschwitz. Uppmælingar þessar voru teiknaðar á árunum 1941 - 1943 og sumar hverjar af föngum í búðunum eftir að viðbætur og ný hús höfðu verið byggð við gömlu herbúðirnar í Auschwitz. Sjá einnig hér.

Á sumar teikningarnar hefur hinn litli, ljóti Heinrich Himmler meira að segja skrifað nafn sitt og lagt blessun sína yfir verkið. En það sem er áhugaverðast er, er að hlutverk bygginganna er einnig ritað inn á teikningarnar. Þar kemur því greinilega fram hvaða bygging í búðunum hafi verið gasklefi (sjá mynd), hvar líkkjallarinn hafi verið, og allt auðvitað með þýskri nákvæmni.

Sérfræðingur hjá Bundesarchiv, Ríkisskjalasafni  Þýskalands, hefur þegar lýst þessum uppmælingum sem mikilvægum fundi, svo ég býst við að ekki sé þarna um hrekk eða fölsun að ræða.

Í dag eru líka 70 ár frá því að Þjóðverjar gengu berserksgang gegn gyðingum á Kristalnóttinni. Þjóðverjar minnast margir þessa svarta bletts á sögu sinni með mikilli andargift og virðingu. Ekki er hægt að segja það um aðrar þjóðir. Litháar, sem margir hverjir stunduðu gyðingamorðin grimmt, hafa hingað til ekki fengist til að draga einn einasta litháískan nasistaböðul fyrir dómara. En nú vilja þeir hins vegar ólmir draga þrjú gamalmenni fyrir dóm. Þetta eru gyðingar, sem börðust með kommúnistum gegn nasistum og skósveinum þeirra. Litháar telja þremenningana vera stríðsglæpamenn.

Mér þykir alltaf gott að koma til Litháen og þar býr margt gott fólk. En þjóðin þarf að taka sig mikið á ef taka á hana alvarlega. Lágkúrulegt gyðingahatur er enn mjög almennt í landinu. Mótmælið áformum litháískra ráðamanna hér.


Á vígvelli siðmenningar MMVIII

 

Halla Gunnarsdóttir

 

Núna, rétt áður en míní-borgarastyrjöldin hefst á Íslandi þar sem réttlætið og sannleikurinn mun vinna, er Björn Bjarnason herforingi greinilega farinn að velta fyrir sér, hvort lýðræðið sé of dýrkeypt fyrir sig og vini sína.

Það er auðvitað af sem áður var, þegar Moggablaðamenn eru farnir að auglýsa múgæsingu í Iðnó og jafnvel verklegar æfingar með spælegg og tómatsalat frá Bónus á Austurvelli. „Halla Gunnarsdóttir (Sigurðssonar)" væri líklega búin að missa vinnuna, hefði Mogginn enn verið málgagn Sjálfstæðisflokksins. Þessi Rósa Luxemborg Íslandskreppunnar sagðist á fundi í Iðnó að hún hefði aðeins krækt sér í örbylgjuofn í íslenska kaupæðinu. Hún á ekki einu sinni sjónvarp stúlkukindin. Er hún ekki Íslendingur?

General Björn er í öngum sínum og skrifar laugardaginn 8. nóvember:

Í dagbókarfærslu í gær velti ég fyrir mér, hvort unnt væri að treysta á óhlutdrægni fjölmiðlafólks í þessari orrahríð allri. Ég hef fengið ábendingar um, að fleiri velti þessu fyrir sér.

Fjölmiðlaliðið, sem Björn Bjarnason er að tala um, er auðvitað gallagripir og fífl upp til hópa (Haarde 2008), dauðadrukknir kommar, menntaðir í Svíþjóð, ef þá nokkuð. Til hvers að hafa fjölmiðla? Þeir gera málið bara flókið með öllum þessum spurningu. Bloggið er enn verra. Þar er fólk með þráhyggju að básúna sig um það sem það veit ekkert um, þegar það er ekki í kaupæði.

Ég veit ekki um hvaða ábendingum vinir Björns eru að gauka að honum, en ég vona að það sé ekki það sem ég held að það sé. Annars held ég ekki að Björn eigi svo marga vini einmitt núna.

Ekki þótti mér þetta nú beysnir byltingamenn sem ég sá í sjónvarpsfréttum frá Iðnó, eða þeir sem spændu upp malbikið fyrir framan Alþingishúsið. Mér er spurn, væri ekki nær að búa til ommelettu og tómatsalat fyrir fátæka fólið, með skyrböku í eftirrétt, í stað þess að vera að sletta mat á friðað og hljóðlátt, gamalt hús?


Way to go

Hasidi ballet

Núna þegar hinn fíni, "aríski" kynstofn á Íslandi er búinn að sýna alheiminum að góðu genin hans Kára í deCode eru aðeins nothæf í ömurleg fjárglæfrashow, ölmusubetl og undirgefni, er gott til þess að vita að blökkumaðurinn Bragi O'bama fyllir Hvíta Húsið af dansandi gyðingum, negrum, Mexíkönum, Pólverjum og jafnvel vestur-Íslendingum með Rambógen. Þeirra tíma er kominn. Mér lýst bara vel á Obama. Ég er viss um að hann er ekki af íslenskum ættum.

Annars langaði mig bara að segja, að þýðingablaðamaður Moggans ættu kannski að hafa betri sögumenntun en sá sem sullað hefur þessari frétt saman. Irgun (Etzel), samtök þau sem faðir Rahm (Lofts) Emanuels var með í, stefndu ekki að stofnun Stór-Ísraels, heldur Eretz Israel, landsins Ísraels. Stór-Ísrael er eiginlega ekkert annað en eitthvað heilaæxli í fólki sem hatar Ísrael. Irgun-samtökin stefndu að stofnun Ísraelsríkis og börðust mest við breska lygalaupa og löðurmenni sem reyndu að koma í vef fyrir stofnun þess. 

Það er nú líka of mikið sagt að tala um strangtrúaðan uppruna Rahms Emanuels. Strangtrúaðir gyðingar senda ekki syni sína í balletttíma.

Guðmundur bloggari Magnússon, fyrrverandi yfirmaður minn, leitaði um daginn að íslenskum Obama. Ég leita að íslenskum Rahm. Nú væri ég alveg til í veislu með einum slíkum, þar sem nöfn ýmissa karla yrðu þulin upp og hnífum stungið í borðið um um leið og sagt væri "Litla-Hraun, Litla-Hraun, Litla-Hraun" og jafnvel "dauður".

Myndin hér að ofan er ekki frá balletttímabili Rahms litla.


mbl.is „Rahm-bo" mun stýra Hvíta húsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggpíslavættir Íslands

 
Bloggpíslavættir Íslands bera saman bækur sínar

 

Síðan ógæfan hellti sér yfir  Ísland, hefur borið dálítið á sjúklegri sjálfsmeðaumkun, þar sem hræðilegum örlögum annarra þjóða er líkt við það óvenjulega ástand sem nú ríkir á Íslandi. Enginn hefur dáið vegna þessa ástands á Íslandi, en samt sér maður fólk lýsa því eins og heimsendir sé í nánd. Einnig er í gangi sjúkleg tilhneiging til að kenna útlendingum um ástandið. Eftir feitu árin, þar sem flestir trúðu á bankasnáðana og mátt þjóðarinnar á meðal þjóðanna, er veruleikaflóttinn farinn að grípa um sig.

Hér koma þrjú dæmi, sem ég ætla mér að skrifa um í erlendu tímariti, vegna þess að mér þykir það sem fram kemur í hæsta máta óeðlilegt. Ef þessar skoðanir eru almennar, og það veit ég ekki enn, þá  lýsa þær afar sjúkri þjóðarsál.

Farið á blogg Páls Vilhjálmssonar blaðamanns, sem skrifaði mjög góða grein, sem hann kallaði Samsærið gegn Íslandi  og lauk henni með þessum góðu orðum: „Í útrásarandrúmsloftinu kafnaði dómgreind þjóðarinnar. Samsærið er innlent, ekki útlent."

Þessi grein Páls fékk allmörg viðbrögð, en flestir virtust hafa misskilið hana. Hún kallaði t.d. á greiningu hins fjölbreytta karakters Jóns Steinars Ragnarssonar. En þegar einhverjir heita: Salomon, David, Green, Lipsky, Bear eða Stern, þá sér Jón Steinar eitur og telur slíka menn vera á bak við allt sem miður fer á Íslandi og víðar. Davíð í Seðlabankanum og gulldrengirnir í bönkunum fá greinilega syndaaflausn hjá netpáfanum Jóni Steinari gegnum hatur hans á ákveðnu fólki.

Skýringuna á Mósaiískum (gyðinglegum) vanda heimsins deilir Jón greinilega með jafnaldra mínum Gunnari Th. Gunnarssyni, leigubílsstjóra m.m. austur á Reyðarfirði, sem oft bloggar mjög skemmtilega. Í miðri sálarkreppu íslenskrar þjóðar, sýndi hann nýja hlið á sér og fann sig knúinn til að skrifa færslu sem hann kallar Gyðingar stýra 75%. Þar skrifar Gunnar þetta, en dregur reyndar í land í svörum við athugasemdir við færsluna:

"Sagt er að Gyðingar í veröldinni, sem eru um 6% mannkyns, ráði yfir 75% alls fjármagns sem er í umferð. Þegar þetta hlutfall minnkar niður fyrir 75%, þá setji þeir atburðarrás í gang til að rétta kúrsinn."

Ég get bara sagt eitt. Maður sem er leigubílstjóri á Reyðarfirði, hlýtur sjálfur að vera gyðingur. 

ghetto islandica
 

Aðrir leita á náðir gyðinganna í stað þess að trampa á þeim, og líkja ástandinu á Íslandi við verstu reynslu gyðinga. Á bloggi umhverfisefnafræðingsins Ingibjörgu Elsu Björnsdóttur, eru Íslendingar komnir í gettó og svo að segja á leið í gasklefana - og samkvæmt henni er þetta allt útlendingum að kenna, fyrst og fremst Bretum og IMF. Í grein sem Ingibjörg skrifar á (lélegri) ensku,  og sem hún kallar The latest news from the icelandic ghetto!, er notast við samlíkingu við örlög gyðinga í stað þess að hata þá eins og venjan er. En slík samlíking og relativismi er reyndar næsta stig við afneitun helfararinnar. Ætli Ingibjörg viti að Þjóðverjar ætluðu gyðingum að lifa af 184 hitaeiningum á dag?  Hvað ætli bíllinn hennar Ingibjargar gæti hafa fætt marga gyðinga í gettóum Evrópu? Ég skrifaði líka grein á ensku um daginn, en hún var ádeila á þetta hugarfar sem fram kemur í rausi réttlátu rauðliðanna Þar lét ég meistara Bob Dylan kyrja minni örmu þjóð hentuga þulu. Hlustið, lesið og skammist ykkar ef þið getið.

Þeir þrír sem hafa verpt athugasemdum sínum hjá frústreraða efnafræðingnum, eru þrír af verstu siðvöndurum íslenskra bloggheima (fyrir utan mig). Nú eru þau ekki að fárast yfir Tíbet og Palestínu, dægurverkefnum hinna réttlátu. Nú eru örlög þeirra sjálfra aðal dægradvölin.


Heilög Jóhanna af Reikniörk og bankaellur

 

Jóhanna túberuð
 

Mikið er ég hjartanlega sammála Jóhönnu Sigurðardóttur varðandi laun nýju bankastjóranna. 

Þau eru einfaldlega of há. Laun forsetans og ráðherra eru það líka. Voru menn ekki að tala um að þjóðin ætti að sýna samstöðu og sameiginlegt átak. Ég sé ekki ábyrga stefnu til að taka á málum blásnauðrar og snuðaðrar þjóðar, með því að greiða gæðingum í ríkisbönkum óeðlilega há laun miðað við aðstæður.

Jóhanna fær fimm trukka fyrir þennan reiðilestur sinn yfir hálaunafólki kreppunnar. Hlusti þeir sem talað er til!

Myndin efst sýnir Jóhönnu á hárgreiðslustofu við Ísafjarðardjúp á yngri árum. She wasn't always a Platinum Blonde. Myndin hér að neðan er hins vegar af Bankstjóra Landsbankans, þegar ein kók var alveg nóg til að gera hana ánægða. Núna er hýran hennar barasta hernaðarleyndamál - leyndó eins og það hét í dentíð.

Bankella

Mismunað sem Íslendingi

 

Racist_sheep

 

Talsmaður neytenda, Gísli Tryggvason, er að leita að haldbærum tilfellum á mismunun . Jæja, lesið þið þá þetta:

nýlega var ég síðla sunnudags staddur í sjoppu Pakistana hér í hverfinu mínu í Danmörku. Þar hef ég oft verslað. Ég er alveg viss um að hann grunaði mig um að vera Íslending og sá efnahagshrunið fyrir. Ég þurfti að kaupa "krem fress" í skyndingu, sem kostaði 14 DKK. dollan. Þá segir hann "Du kobe fur havtruds (50)  krunner". Hann meinti að lágmarks kaup í versluninni væru 50 krónur. Ég hváði og varð svo móðgaður og spurði hvort hann væri með plön um að eyðileggja reksturinn hjá sjálfum sér.  Ég beindi síðan kaupum mínum til Shell bensínstöðvar sem selur matvörur og fékk meira að segja lífrænt krem fress á hagstæðu verði. En mig grunar auðvitað að Pakistaninn hafi gert þetta vegna þess að ég er Íslendingur. Pakistanar voru lengi í umsjá Breta og hafa auðvitað lært dónaskapinn af þeim.

Langsótt, en ég nú einu sinni Íslendingur.....

Fyrir um það bil tveimur árum sótti ég um stöðu á Þjóðminjasafni Dana. 8 sóttu um og dómnefnd var sett á laggirnar. Ég var einn þeirra þriggja sem "dæmdir" voru, og heldur harkalega að því er mér finnst. Ég fékk afrit af umsögninni eins og hinir þrír, án þess að geta séð hverjir þeir væru. Í umsókninni um mig var allt gott og blessað, ég var meira að segja með hærri prófgráðu en sú sem fékk stöðuna. En það sem mér var lastað fyrir var þetta. "Han har i de senere år mest beskæftiget sig med jøder".  Þar var líklega átt við, að ég hef skrifað bækur og greinar um afdrif gyðinga og annarra sem dönsk stjórnvöld sendu úr landi 1940-43, og starfa í ýmsum félögum innan gyðingasafnaðarins í Kaupmannahöfn.  Trú mín og önnur störf er auðvitað ekki mikið tengt þeirri fræðigrein sem ég er menntaður í og því starfi sem ég sótti um.  Þetta kalla ég mismunun.  Fyrrverandi þjóðminjavörður Dana, Olaf Olsen, er reyndar gyðingur, en hann hefur aldrei haft sig mikið í frammi sem slíkur. Hann hefði nú örugglega ekki úthýst mér með fyrrnefndum rökum.

Haldið ykkur enn fastar: Þegar ég missti stöðu mín á Þjóðminjasafni Íslands árið 1996, upplýsti fyrrverandi þjóðminjavörður þetta. "ekki er framvegis óskað eftir störfum þínum á Þjóðminjasafni Íslands" . Ætli "sök" mín hafi verið í samræmi við þann Stóradóm, sem kveðinn var upp af manni sem aðeins kunni að stýra fjármálum safnsins í strand?  Ég held ég sé eini Íslendingurinn, sem settur hefur verið í ævilangt ("framvegis") atvinnubann, m.a. vegna skoðana minna á hæfileikalausum stjórnanda, sem síðar var settur af.  Það kalla ég líka mismunun.

Vita Íslendingar hvað mismunun er? Þeir ættu nú að gera það, þar sem þeir hafa sumir hverjir stundað hana sjálfir í mörg ár.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband