Bloggfærslur mánaðarins, maí 2010
29.5.2010 | 07:02
Kjósum Æra Tobba
- Vambara þambara þeysingssprettir
- því eru svona margir sjálfstæðiskettir,
- agara gagara vinstrigrænum,
- illt er að hafa þá marga á bænum.
- Rabbabara affþíbara Kratalið
- nú vantar aftur rekavið,
- rólegan hóflegan laugardag
- allt gengur Ólafi ó í hag.
- Finn ekki sé ekki Framsóknarsokk
- helvítis djöfulsins fukking fokk,
- er borginni borgið frá því í dag
- eða ber hún aldrei sitt Gnarr eftir það.
Samþykkjum aldrei fátækt segja fulltrúar VG fyrir bæjarstjórnakosningarnar. Allir geta verið sammála um það, og þetta hljómar vissulega líka eins og útrásavíkingar í afneitun.
En eitt er greinilegt, og það er að andleg fátækt er orðin verulega útbreidd á Íslandi. Þar býr þjóð sem lætur viðgangast að stolið sé af henni aleigunni í þrígang og að ráðherra hendi 7 milljörðum á glæ vegna þess að hann vill verða attaníossi í ESB.
Andleg fátækt sýnir sig í stjórnmálum, enda ekki um auðugan garð að gresja, hvað varðar dugmikla menn. Þetta er innantómt femínistalið og sjálfofmetnir smáguttar með froðu í hárinu, fyrir utan þá sem eru með skalla og sem er illt, einstaka menn sem hafa fengið uppreist og einn og einn með Borderline heilkenni.
Því er engin furða að Reykvíkingar ætli sér að kjósa gleðifífl í stað eintómra aumingja. Það getur ekki orðið miklu verra. Fólk heimtar greinilega enn sína skemmtun. Þetta er líka drepfyndið. Íslenskt þjóðfélag í hnotskurn. Einn langur veruleikaflótti fyrir framan sápu í sjónvarpinu eða í jeppa uppi á fjalli.
Myndirnar eru af Jóni Gnarr og hundinum hans, honum Æra Tobba, sem hlakkar til að verða borgastjórafrú. Hann er af tegundinni Borderline og getur sagt Gnarr. Tobbi gerir sér von um sæti í Borgarstjórn. Kjósum Æra Tobba!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
20.5.2010 | 18:27
Mosk(v)u strax!
Ég las í Fréttablaðinu í dag, að múslímar á Íslandi vilji fá úthlutað lóð fyrir mosku. Hér og þar og alls staðar á bestu stöðum í bænum. Auðvitað eiga menn að fá úthlutað lóð undir trúariðkanir sínar. Ég stakk reyndar sjálfur upp á mosku árið 1994, og mér sýnist að ég hafi verið fyrstur til að minnast á það á Íslandi. Ég reit í Moggann, n.t. 14. des 1994, bls. 44: Það er ekki nóg að yrkja landið, fólkið verður einnig að fegra. Ég fagna þeim degi, að moska rís í Mosfellssveit eða sýnagóga á Selfossi og að bænir á Alþingi verði ekki aðeins kristnar". Ég vona að múslímar þakki mér spámannsviskuna og hugmyndina á tilheyrilegan hátt - en það verður áfram leyfilegt að teikna mig.
Það vekur undrun mína, að eins fámennur hópur og múslímar Íslands vilji reisa risamosku á besta stað í bænum. Á Degi Fjölskyldunnar (15. maí) voru hræðilega fáir múslímar í skrúðgöngunni. Palestínudeildin sendi þrjá-fjóra afdankaða íslenska komma í gönguna fyrir sig. Þegar fámennið hrjáir múslíma svo mikið, að þeir þurfa að senda varalið sitt, t.d. mann sem líktist Þorleifi Gunnlaugssyni ?? (með skegg), sem tapaði fyrir Sóleyju Tómasdóttur í kerlingasvindlkosningu VG í Reykjavík, og ágætan bókavörð og mikinn friðarsinna, Einar Ólafsson, þá er varla ástæða til að reisa stóra mosku. Sella ætti betur við. Varla eru meintur Þorleifur og Einar múslímar? En maður veit það svo sem ekki. Kommúnismi og Íslamstrú eiga nefnilega margt sameiginlegt. Mikið af öllu eða engu og blóðugu uppgjöri þegar menn eru í ham.
Mikið er nú gott að gyðingar á Íslandi hafi aldrei krafist lóðar undir trúariðkanir sínar og reist samkunduhús. Það hefði ekki boðað neitt gott. Í þýskalandi er það þannig þessa dagana, að menn hella olíu á samkunduhús gyðinga og kveikja í til að krefjast þess að Ísrael verði lagt niður. Þetta gerðist um daginn og þá grunar Þjóðverja strax öfgamúslíma, komma og nýnasista. Ekki endilega í þessari röð. Já margt er líkt með skildum, ef rétt er ályktað í Þýskalandi.
18.5.2010 | 16:56
Hin íslenska firring
Sverrir Jakobsson sýnir okkur í dag í Fréttablaðinu (bls. 17), svo um munar, hvernig sumir "menntamenn" lifa í allt öðrum heimi en almenningur. Sverrir hefur, eins og svo margir aðrir, áhyggjur af niðurskurði, t.d. í skólakerfinu og ekki minnst í heilbrigðisgeiranum, þar sem læknar eru nú sendir í 12 vikna sumarfrí til að spara. Engir mjaðmaliðir verða t.d. settir í aldrað og lúið fólk í sumar, fólk sem er búið að greiða skattana sína í 50-60 ár og skila því sem það þarf til samfélagsins. Það þarf að bíða sárþjáð svo mánuðum skiptir til að komast í lífsnauðsynlega aðgerðir, meðan Össur Skarphéðinsson fórnar milljörðum á brennslualtari ESB firringarinnar.
En aukning skatta á Íslandi mun ekki bæta ástandið eins og Sverrir Jakobsson sagnfræðingur heldur. Hvorki sá skattur sem er lagður er á almenning, né á t.d. álver.
Framleiðsla í landinu hvarf og var eyðilögð eftir að peningaverksmiðjur svindlaranna urðu nær eina von þjóðarinnar og framtíðarsýn. Helsta framleiðsla Íslendinga í áratug voru loftkastalar og veruleikafirring. Sá tími er liðinn, Sverrir Jakobsson.
Niðurskurður er því nauðsynlegur, ekki bara á útrásarvíkingum. En spyrja má, hvort hann sé nauðsynlegur á spítölum og í skólum að framhaldsskólastigi. Í stað þess að setja 90% skatta á þá hæst launuðu, sem Sverrir segir menn hafa haft frábæra reynslu af í BNA milli 1950 og 1960, eru hér nokkrar sparnaðarleiðir, sem ég tek ekkert fyrir.
1. Auknir skattar verði lagðir á hverja bifreið sem keypt er umfram 1. bíl á sérhverju heimilisfangi. Bílafloti Kreppuíslendingsins er í engu samræmi við ástandið. Hærri skattar og gjöld verði einnig á þeim bifreiðum sem sé til á heimili umfram fyrsta bíl.
2. Deildir Háskóla Íslands og annarra háskóla sem framleiða nemendur sem enda í atvinnuleysi að námi loknu verði lokað tafarlaust.
3. Fækkun prófessora og lektora . Árlegt endurmat á hæfi manna til kennslu.
4. Háskólum verði fækkað. Hér eru allt of margar menntastofnanir miðað við fólksfjölda. Hvað hefur það skilað Íslendingum? Já, útrásarvíkingum.
5. Bitlingar til fyrrv. forseta og embættismanna verði skornir verulega niður.
6. Stöðvun ESB-firrunnar. Ekki fleiri peninga í umsóknarferlið til ESB. Það er alveg eins hægt að kasta þeim peningum í ruslið, ... eða nota þá í að styrkja skóla- og heilbrigðiskerfið.
7. Fækkun ráðuneyta niður í fimm.
8. Hætta að senda fé til þróunarlanda, sem eru ríkari en Ísland.
Svo er spurningin, hvort Siggi Einars og Jón Ásgeir skili meiru flegnir og roðflettir, eins og þjóðin vill sjá þá dag. ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ DREPA KAPÍTALISMA OG VILJA HAFA HANN SAMT. Því þú getur ekki fengið 90 % skatta eins og í BNA á 6. áratugnum, Sverrir Jakobsson, nema að hafa góðan kapítalisma.
Þegar Bónus er farinn á hausinn, fá Sverrir Jakobsson og aðrir firrumeistarar minna fyrir launin sín og finna meira fyrir sköttunum, sem hann Sverrir vill svo ólmur fá yfir sig nú, til að skólakerfið, (sem hann vinnur í), haldi áfram að blómstra og heilbrigðiskerfið, (sem getur læknað firringu hans), geti tekið hann í meðferð.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 19.5.2010 kl. 17:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.5.2010 | 10:10
15. maí í lit og mannfræðistúdía
Reykjavík var litsksrúðugri í gær en oftast á þessum tíma á vorin. Í gær var Alþjóðlegur dagur fjölskyldunnar. Ekki vissi ég neitt um hann. Ég gekk fram á skrúðgöngu á Skólavörðustíg í tilefni dagsins og fylgdi henni niður að Ráðhúsi Reykvíkinga. Þarna voru allra þjóða kykvendi, sem sest hafa að á þessu aflóga skeri, þar sem frumbyggjarnir telja sig aumasta allra þjóða. Ekki getur ástandið verið alslæmt, fyrst nýbúarnir ganga glaðir í skrúðgöngu.
Litskríkastir allra voru Tælendingarnir, mest konur, sem klæddust fallegum litum sem sjaldan sjást á götum úti í allsherjargráma Reykjavíkur. Sumar þeirra stigu tælandi þjóðdansa og bændur þeirra horfðu stoltir á af gangstéttunum. Það var upplífgandi. Þarna voru líka öflugir trymblar úr Afríku og íslenskar savannadansmeyjar, sem stigu trylltan afrískan dans eins og formóðir þeirra í Olduwai áður en hún hélt í gönguna löngu norður til Asíu og Evrópu. Litlir hópar ýmissa þjóða, sem á Íslandi búa, gengu svo á eftir í halarófu. Meira að segja þrír Palestínumenn, líklega fjölskyldumenn, en gazalega voru þeir þeir nú fölir. Stóri pilturinn með ljósrauða hárið, sem horfir á íslensku arabana skyldi þó ekki vera gyðingur? DNA-radarinn minn segir það að minnsta kosti.
Þarna voru t.d. tveir Skotar, sem ég gæti svarið að hafi farið í gegnum nýbúaskeið á Skotlandi áður en þeir urðu að skotheldum Skotum. Ég sá að minnsta kosti ekki keltneska útlitið sem Íslendingar halda að sé rautt hár og freknur (sem eru reyndar norsk einkenni). Það var gaman að stúdera fólk í blíðunni í gær. Margar typur á ferli og misjafnt höfuðlag.
Skotar
Tvær lúðrasveitir léku undir og gerðu það vel og lögreglan, vinir okkar og verndarar, voru með blá, blikkandi partýljós á hjólhestum sínu og sáu til þess að allt færi vel fram. Þetta var næstum því alveg eins skrúðganga og í Kardimommubænum. Það vantaði bara ræningjana Ziggy Tukthouse, Jón Á. Ekkert og Bjargálf Thor, til þess að allir væru glaðir og hamingjusamir í litla bænum við sundin blá.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 13:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.5.2010 | 09:06
Ziggy Tukthouse
Fréttamiðlum er tíðrætt um endurreisn ræflarokksins í Lundúnum. Aðalstjarnan þar í augnablikinu er Ziggy Tukthouse, sem nú fer að ráðum Amy Winehouse og ræður sér lögfræðinginn Ian Burton, sem er sérfræðingur í að koma frægu fólki úr bráðum vanda.
Ziggy er eftirlýstur um allan heim án þess að honum hafi verið afhent kæra. Ziggy segir að það sé Hard-Core dauðarokkarar á Íslandi, sem vilji ná í líkama sinn, höfuð og hanakamb á silfurfat til að friðþægja æstan lýð. Það er nokkuð til í því. Sigurður spýtir á þetta og berar hér mallann til að sýna yfirvaldinu á Íslandi, að það stendur sig ekki í stykkinu.
Ziggy var nýlega á bar í Chelsea i þessum klúra bol.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
11.5.2010 | 21:36
COUNTERFEITING/FORGERY, FRAUD
Jæja, þá er gamall skólafélagi kominn á listann yfir heimsins eftirsóttustu menn, fyrir sakir þær sem nefndar eru í fyrirsögninni. Það er þó margt rangt í eftirlýsingunni á Sigga. Hann hefur t.d. aldrei verið 1,80. Siggi hefur bætt nokkrum sentímetrum við. Hann er ekki bláeygur heldur píreygur, og svo er hann ekki sköllóttur, allir geta séð það.
Þarna er illa komið fyrir ágætis dreng, sem ég þekkti nú aldrei vel og hafði lítið samneyti við, því hann var alltaf í "verri bekknum" og hafði önnur áhugamál en ég. Verst er þetta fyrir fjölskyldu hans og maður vonar að hún hafi styrk til að komast í gegnum vandamálin. Eins vona ég að Sigurður gerist ekki flóttamaður í 3. heiminum, og axli sem fyrst þá ábyrgð sem réttlátur dómstóll leggur á herðar honum á ættjörð hans.
Ef íslenska þjóðin yrði einhvern tíma eftirlýst af Interpól, yrði það líka fyrir COUNTERFEITING/FORGERY, FRAUD. Mjög fáir eru saklausir af hruninu á Íslandi. Íslendingar lifðu lengi um efni fram, og það löngu áður en Sigurður gerðist þjónn í musteri Mammons. Munum það þegar Siggi og vinir hans í veruleikafirringunni verða dæmdir.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 21:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.5.2010 | 20:50
Gámahótel í stað burstabæjar
Austur i Öræfum er búið að ryðja burtu þriggja bursta torfbæ og fleiru, vegna þess að roskinn hæstaréttarlögmann, Bruun að nafni, langar til að byggja "gámahótel" á jörð þeirri sem hann hefur búið á í átta ár. Hann rekur gistiheimilið Frost og Funa á Hofi í Öræfum.
Hvað fær menn til að ryðja niður torfhúsum og reisa gáma nærri friðaðri torfkirkju á einum merkasta minjastað í Öræfum? Einhver brenglun virðist vera í gangi, en ég giska á að systurnar Græði og Fáviska reki staðarhaldarann á Hofi í Öræfum í að byggja gámakassa ofan í friðlýstum minjum.
Ferðaskrifstofa í Bandaríkjunum, sem nú virðist vera lok og læs, hefur lengi auglýst hjólreiðar um Ísland. Í auglýsingum ferðaskrifstofunnar var greint frá Hofi sem er: owned by Knütur Bruun- a patron of Icelandic art, and the chairman of the National Gallery.
Þessa skrauttitla gat fyrrverandi bæjarstjóri Hveragerðis skreytt sig með, en nú er líklega meira við hæfi að finna aðra titla. Hvað með Patron of vandalism?
Fyrst og fremst er svona lagað sorglegt, en nú verða lög að gilda og sýna verður að mark er á Þjóðminjalögum takandi. Bruun hefur framið glæp og er ekki hæfur að stunda ferðaþjónustu, því hann eyðileggur það sem ferðamenn koma til að sjá. Besti dómur sem þessi eyðileggingarseggur gætir fengið, er bann við að stunda ferðaþjónustu og hótelrekstur. Verðmæta- og fegurðarskyn hans er gallað og maður verður að spyrja sig hvernig svona skemmdavargur getur hafa setið í stjórn Listasafns Íslands? Væntanlega var það pólitísk klíka, og hún er ekki ósvipuð gámahóteli.
Myndin er handa Knúti Bruun. Tvær danskar frá gámaöld sem hnykla vöðvana í nánd við Skóga. Svona lagaðar væru nú líka fínar í Öræfasveit. Þær gætu gengið til beina í gámum Bruuns bónda.
Menning og listir | Breytt 12.5.2010 kl. 08:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hjá Þjóðverjum, Frökkum og Dönum er business as usual. Þessi ríki hafa allra ríkja Evrópu mest viðskipti við Íran. Þjóðverjar stunda viðskipti upp á 4 milljarða evra við Íran og má nefna stór fyrirtæki eins og Linde group, sem fara fremstir í Íran, þar sem fólk er hengt í byggingarkrönum og konur eru grýttar fyrir það sem íslenskum konum þykir sjálfsögð kvenréttindi. Frakkar stunda enn útflutning á tæknibúnaði til Íran og olíufélagið Total er alltaf í jafngóðum viðskiptum við Íran. Danskir verktakar eru sem fyrr mikilvægari fyrir Danmörku en góð samviska og mannréttindi. Síðasti danski sendiherrann á Íslandi, sem laug að Politiken um atburði í kreppufárinu á Íslandi, var ekki fyrr kominn frá Íslandi, að hann var sendur út á Kastrupflugvöll til að kyssa Amadinejad á höndina, þegar litli skíthællinn kom og prumpaði á loftlagsráðstefnunni á síðasta ári.
Nú þegar drottnunareðli Þjóðverja hefur sýnt ógeðslegt háttalaga gegn Grikkjum undir sakleysislegri ásjónu Angelu Merkel með stóru hundsaugun, leyfir maður sér að spyrja hvernig það fer saman, að Þjóðverjar minnast Helfararinnar á gyðingum um leið og þeir stundi þjóða mest viðskipti við Íran, þar sem stjórnin segir opinberlega að Helförin hafi ekki átt sér stað.
Hvernig má það vera að Þjóðverjar, sem leggja svo mikla áherslu á að minnast Helfararinnar, séu í viðskiptum við hryðjuverkastjórnina í Teheran, sem telur Helförina vera lygi og vill útrýma ríki Gyðinga, Ísrael?
Græðgi og yfirgangur hefur aldrei horfið í Þýskalandi og það hvarflar að manni, að sumir Þjóðverjar noti sér "minninguna um Helförina" til að fá goodwill. Menn muna enn eftir 2. Heimsstyrjöld, og öll iðrun frá Þjóðverjum leggst vel í aðrar þjóðir. En er hægt að eiga viðskipti við stjórn hryðjuverkaríkis sem afneitar helför þeirri sem Þjóðverjar ollu með hatri sínu og græðgi?
Þjóðverjar keyptu sér áður fyrr goodwill. Þeir hafa örugglega borgað vel fyrir að gera nasista að dýrðlingi, þegar Georg Ferdinand Duckwitz var tekinn í dýrlinga tölu, þó svo að engar heimildir væru til stuðnings góðverkum þessa eina þýska diplómatans sem á að hafa verið góður á stríðsárunum (sjá hér).
Æ fleiri eru byrjaðir að draga góðan vilja Þjóðverja í efa og telja að hinn mikli áhugi þeirra á að efla minningu á Helförinni sé ekki einlægur. Minnismerkið um Helförina við Adlon hótelið í Berlín var líklegast fyrst og fremst hugsað sem friðþæging fyrir Þjóðverja sjálfa, meira en minnismerki um fórnarlömbin. Það sést vel á yfirlýsingum frá þýskum stjórnmálamönnum í aðdragandanum að gerð minnismerkisins. Í þeirri umræðu sem varð um stóra stöplaminnismerkið um Helförina, sagði þýskur diplómati við Der Spiegel: "Við þörfnumst þessa minnisvarða til að koma okkur á framfæri við heiminn, og sér í lagi við BNA".
Nú eru leiðtogar Gyðinga í Evrópu farnir að boða fjarveru sína, þegar á að halda upp á 10 ára afmæli þessa mikla minnisvarða í Berlín. Þeir benda á að það geti ekki farið saman minning fórnarlamba Helfararinnar og stórfelld viðskipti við hryðjuverkaríki, sem afneitar að þessi helför hafi átt sé stað.
Ef Þjóðverjar vilja minnast fórnarlamba forfeðra sinna, ættu þeir að einangra Íran á alþjóðavettvangi. Annað er og verður tvískinnungsháttur. 6 milljónir gyðinga hvíla þungt á samvisku Þýskalands meðan landið á í viðskiptum við öfgastjórnina í Íran upp 4 milljarða Evra.
Ein Teil der Deutchen Wirtschaft?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.5.2010 | 09:34
856 illa undirbúin störf í biðstofu ESB
Í gær horfði ég á prestsoninn úr Kópavogi með væmna gleiðgosabrosið kynna 856 NÝ STÖRF FYRIR NÁMSMENN OG ATVINNULEITENDUR. Mér sýnis að þetta séu mestmegnis störf, þar sem ungmenni fá að moka sandi í eyðimörkinni. Þetta eru 856 afar illa undirbúin störf.
Í dag eru flennistórar auglýsingar í blöðum, þar sem hægt er að lesa eina setningu um hvert þessara 856 "starfa". Í innleggi í Fréttablaðinu eru stutt lýsing á hverju starfi og sagt hve marga starfsmenn sé vænst í hvert þeirra. Ekkert er sagt um tímalengd vinnunnar. Þá er upplýst, að nánari upplýsingar um störfin, tengiliði hjá hverri stofnun og fleira sé að finna á vef Vinnumálastofnunar, www.vmst.is. Þar klikkaði ég mig inn, en engar upplýsingar er þar enn að finna. Aðeins stór fyrirsögn og upplýsing um að hægt sé að byrja að sækja um stöðurnar þann. 12. maí. Engin upplýsing er þar um heildartíma ráðningar. Ég hélt að það væri ólöglegt að auglýsa tímabundin störf, án þess að gera grein fyrir lengd starfstíma og kjörum.
Þar sem þetta "átak" er greinilega gert til að sækja atkvæði til námsmanna, sem þegar eru helstu kjósendur Samflykkingarinnar og Framboðs stuðningverkaflokks græna litarins, þá má búast við því að ýmis vandamál muni rísa við ráðningar í þessi störf, svo sem gamli góði klíkuskapurinn sem ávallt hefur tíðkast á Íslandi!. Hann hefur ekki horfið í kreppunni, nema síður sé.
Ef farið er inn á heimasíðu einnar af þeim stofnunum, sem hafa þessi "störf" í boði, þ.e. Þjóðminjasafns Íslands, er enn ekkert að finna um þau 14 störf sem þar á að vinna, tengiliðina eða neitt annað, ekki frekar en á síðu Vinnumálastofnunnar. Hvað fór eiginlega mikill undirbúningur eða hugsun í þetta átak?
Mér sýnist að þær 14 stöður, sem Þjóðminjasafnið býður upp á, séu þess eðlis að þó nokkurn tíma þurfi til að setja "námsmennina" eða atvinnulausan menntamann inn i verkin. Sum störfin munu því skila afar litlum árangri, og því verður eytt ráðstöfunarfé, sem betur væri nýtt í fasta starfsmenn stofnananna, sem auðvitað eru að drukkna í skriffinnsku og leiðsögn fyrir námsmenn í starfsátaki ríkisstjórnarinnar.
Fyrir utan algjörlega glórulaus verkefni er hægt að sjá hvað legið hefur á hakanum á sumum stofnunum.
Mér líst best á starf það sem Þjóðskjalasafn Íslands bíður upp á: "Almenn þrif á lóð og plani. Sópa hreinsa illgresi, mála stæði, hreinsa veggjakrot. Ofl." Þetta verkefni hefur hagnýtan og estetískan tilgang eins og t.d. gjóskuhreinsun, enda lóð stofnunarinnar ein sú ljótasta á Íslandi og í verksmiðjuumhverfi Austur-Evrópu.
Sum verkefni vekja hreinlega undran og kátínu, eins og:"Verkefnið felist í því að búa til skrá á tölvutæku formi um gler og járngripi (ca. fjöldi gripa úr gleri og járni er 7000) sem hafa fundist við uppgröftinn á Hólum í Hjaltadal". Það er Háskólinn á Hólum sem bíður tveimur námsmönnum þann starfa. Hvað er annars búið að gera fyrir þær tugi milljóna króna sem farið hafa í fornleifarannsóknír að Hólum? Kannski fóru of margar þeirra í ráðstefnur og ferðalög? Venjulega er ógreinanlegt gler og járn skráð saman eftir þeim lögum eða svæðum sem það finnst í, og lenda þá nokkur hundruð gripa í hverjum kassa, sem svo er skráður mjög almennt. Ég hlakka til að sjá skýrslu um dreifingu glerbrota og járnarusls að Hólum í Hjaltadal. Þvílíkur akkur fyrir fornleifafræðina! Kannski verður hægt að sjá hvar biskupsbokkan brotnaði helst?
Einnig er er stórfurðulegt verkefnið, þar sem námsmaður á að skrá kirkjugripi í gagnagrunninn SARP. Það á að gera með því að skrá þá gripi, sem þegar eru skráðir "í bókunum: Kirkjur Íslands". Gripi á að skrá af bókum!?!
Nú er bara að sjá, hvernig gengur að grafa sand í eyðimörkinni að hætti Árna Páls Árnasonar. Til hamingju með ríkisstjórnina námsmenn og atvinnuleysingjar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.5.2010 kl. 07:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 79
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 51
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007