Leita í fréttum mbl.is

856 illa undirbúin störf í biđstofu ESB

shoveling sand in Sahara
 

Í gćr horfđi ég á prestsoninn úr Kópavogi međ vćmna gleiđgosabrosiđ kynna 856 NÝ STÖRF FYRIR NÁMSMENN OG ATVINNULEITENDUR. Mér sýnis ađ ţetta séu mestmegnis störf, ţar sem ungmenni fá ađ moka sandi í eyđimörkinni. Ţetta eru 856 afar illa undirbúin störf.

Í dag eru flennistórar auglýsingar í blöđum, ţar sem hćgt er ađ lesa eina setningu um hvert ţessara 856 "starfa". Í innleggi í Fréttablađinu eru stutt lýsing á hverju starfi og sagt hve marga starfsmenn sé vćnst í hvert ţeirra. Ekkert er sagt um tímalengd vinnunnar. Ţá er upplýst, ađ nánari upplýsingar um störfin, tengiliđi hjá hverri stofnun og fleira sé ađ finna á vef Vinnumálastofnunar, www.vmst.is. Ţar klikkađi ég mig inn, en engar upplýsingar er ţar enn ađ finna. Ađeins stór fyrirsögn og upplýsing um ađ hćgt sé ađ byrja ađ sćkja um stöđurnar ţann. 12. maí. Engin upplýsing er ţar um heildartíma ráđningar. Ég hélt ađ ţađ vćri ólöglegt ađ auglýsa tímabundin störf, án ţess ađ gera grein fyrir lengd starfstíma og kjörum.

Ţar sem ţetta  "átak" er greinilega gert til ađ sćkja atkvćđi til námsmanna, sem ţegar eru helstu kjósendur Samflykkingarinnar og Frambođs stuđningverkaflokks grćna litarins, ţá má búast viđ ţví ađ ýmis vandamál muni rísa viđ ráđningar í ţessi störf, svo sem gamli góđi klíkuskapurinn sem ávallt hefur tíđkast á Íslandi!. Hann hefur ekki horfiđ í kreppunni, nema síđur sé.

Ef fariđ er inn á heimasíđu einnar af ţeim stofnunum, sem hafa ţessi "störf" í bođi, ţ.e. Ţjóđminjasafns Íslands, er enn ekkert ađ finna um ţau 14 störf sem ţar á ađ vinna, tengiliđina eđa neitt annađ, ekki frekar en á síđu Vinnumálastofnunnar. Hvađ fór eiginlega mikill undirbúningur eđa hugsun í ţetta átak?  

Mér sýnist ađ ţćr 14 stöđur, sem Ţjóđminjasafniđ býđur upp á, séu ţess eđlis ađ ţó nokkurn tíma ţurfi til ađ setja "námsmennina" eđa atvinnulausan menntamann inn i verkin. Sum störfin munu ţví skila afar litlum árangri, og ţví verđur eytt ráđstöfunarfé, sem betur vćri nýtt í fasta starfsmenn stofnananna, sem auđvitađ eru ađ drukkna í skriffinnsku og leiđsögn fyrir námsmenn í starfsátaki ríkisstjórnarinnar.

Fyrir utan algjörlega glórulaus verkefni er hćgt ađ sjá hvađ legiđ hefur á hakanum á sumum stofnunum.

Mér líst best á starf ţađ sem Ţjóđskjalasafn Íslands bíđur upp á: "Almenn ţrif á lóđ og plani. Sópa hreinsa illgresi, mála stćđi, hreinsa veggjakrot. Ofl." Ţetta verkefni hefur hagnýtan og estetískan tilgang eins og t.d. gjóskuhreinsun, enda lóđ stofnunarinnar ein sú ljótasta á Íslandi og í verksmiđjuumhverfi Austur-Evrópu.

walking_on_broken_glass
 

Sum verkefni vekja hreinlega undran og kátínu, eins og:"Verkefniđ felist í ţví ađ búa til skrá á tölvutćku formi um gler og járngripi (ca. fjöldi gripa úr gleri og járni er 7000) sem hafa fundist viđ uppgröftinn á Hólum í Hjaltadal". Ţađ er Háskólinn á Hólum sem bíđur tveimur námsmönnum ţann starfa. Hvađ er annars búiđ ađ gera fyrir ţćr tugi milljóna króna sem fariđ hafa í fornleifarannsóknír ađ Hólum? Kannski fóru of margar ţeirra í ráđstefnur og ferđalög? Venjulega er ógreinanlegt gler og járn skráđ saman eftir ţeim lögum eđa svćđum sem ţađ finnst í, og lenda ţá nokkur hundruđ gripa í hverjum kassa, sem svo er skráđur mjög almennt. Ég hlakka til ađ sjá skýrslu um dreifingu glerbrota og járnarusls ađ Hólum í Hjaltadal. Ţvílíkur akkur fyrir fornleifafrćđina! Kannski verđur hćgt ađ sjá hvar biskupsbokkan brotnađi helst? 

Einnig er er stórfurđulegt verkefniđ, ţar sem námsmađur á ađ skrá kirkjugripi í gagnagrunninn SARP. Ţađ á ađ gera međ ţví ađ skrá ţá gripi, sem ţegar eru skráđir "í bókunum: Kirkjur Íslands". Gripi á ađ skrá af bókum!?!

CharlieChaplinTheModernTimes2

Nú er bara ađ sjá, hvernig gengur ađ grafa sand í eyđimörkinni ađ hćtti Árna Páls Árnasonar. Til hamingju međ ríkisstjórnina námsmenn og atvinnuleysingjar.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Gripi á ađ skrá af bókum!?!" ţeim hefur greinilega ekki komiđ til hugar ađ skanna bćkurnar inn og keyra textann beint inn í gagnagrunn ;-)

Tómas (IP-tala skráđ) 8.5.2010 kl. 10:18

2 Smámynd: Rauđa Ljóniđ

Get ekki sé ađ sandverkefni skili einu né neinnu inn.

Rauđa Ljóniđ, 8.5.2010 kl. 13:02

3 Smámynd: Finnur Bárđarson

Auđvelt ađ lifa í vellystingum praktuglega í Köben og gera lítiđ úr ţví sem reynt er ađ gera hér.

Finnur Bárđarson, 8.5.2010 kl. 14:07

4 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Tómas, ég vitna ađeins í ţađ sem stóđ. Frekari upplýsingar hefur Fornleifavernd Ríkisins, ef ţú hefur áhuga á ţessu starfi.

Sigurjón, nei ţetta verđur ekki ţungt á vogarskálunum, en ţađ friđar ungmennin. 856 ţeirra munu kjósa "rétt" í nćstu kosningum.

Finnur, hvađ veist ţú um vellystingar mínar í Köben, ţar sem ég er atvinnuleysingi? Ég veit vel hvađ ţađ er, ţví ţađ er heldur almennara og alvarlegra vandamál í ESB löndum en ţađ hefur nokkurn tíma veriđ á Íslandi. Á Íslandi hafa menn nú fengiđ nasaţefinn af ţví, en ţegar gengiđ verđur í ESB (megi hćrri máttaröfl varđveita okkur frá ţví), búist ţá ekki viđ ađ vinna ţađ sem eftir er ćvinnar. Í ESB er fólk sett út af sakramentinu ef ţađ hefur veriđ atvinnulaust í einhvern tíma.

Ţessi vinnumiđlun íhaldsdrengsins Árna Páls og CO. er í tveimur orđum sagt:

BÖLVAĐ LÝĐSKRUM.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 9.5.2010 kl. 07:20

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband