Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, apríl 2010

A Holy Bridget Jones Co-production

 

Hörmulegir atburđir, sem gerđust áriđ 2007, sjást á myndbandi, sem nokkrir Íslendingar hafa tekiđ ţátt í ađ "framleiđa" fyrir Wikileaks, samtök sem fyrir hátíđir taldi og hélt fram um allan heim, ađ íslensk yfirvöld vćru ađ ofsćkja ţau.

Birgitta Jónsdóttir, sem notar tíma sinn í kreppunni á Alţingi til ađ vera vikastelpa fyrir Wikileaks, vill nú knýja fram afsökunarbeiđni Alţingis til írösku ţjóđarinnar. En hvađ gerđi Ísland er Saddam og synir hans brytjuđu niđur ţjóđir ţćr sem búa í Írak? Hvar er afsökunarbeiđni heilögu Birgittu til Kúrdanna í Halabja fyrir ađ hafa ekki stutt ţá sem steyptu fjöldamorđingjanum Saddam Hussein af stóli?

Myndin, sem Wikileaks lak í gćr, sýnir m.a. tvo eđa ţrjá unga menn međ vopn, skjálfvirka AK-47 riffla og hugsanlega hlađnar RPG-7 sprengivörpur. Ţví er frekar langsótt, ađ halda ţví fram ađ ţyrluskyttan og áhafnir tveggja ţyrla hafi veriđ ađ fremja stríđsglćpi. Ţeir gátu tćknilega séđ orđiđ fyrir skoti áđur en ţeir skutu sjálif. Ekki er veriđ ađ greina frá ţví ađ mennirnir međ vopnin voru liđsmenn Maehdi-hers Moqtada al Sadr. Myndbandiđ úr ţyrlunni er frá ţví ađ leitarađgerđ bandaríska hersins ađ ţeim stóđ yfir í Adamiyah hverfinu í Bagdad.

Wikileaks túlkar ţetta svona: It appears that a man in this frame is holding something that might be a weapon. He however never appears to mount it or show any attempts to use it.

RpG7
Sprengjuvarpa á svćđinu?

Gćti veriđ ađ flugmenn ţyrlu bandaríska hersins hafi orđiđ fljótari til en mennirnir međ sprengjuvörpuna?

Framkvćmdastjóri Amnesty International á Íslandi gaf sér ţađ í Kastljósi RÚV í gćr, ađ ţyrluflugmennirnir hafi séđ ađ börn voru í bláa sendibílnum áđur en ţeir skutu á bílinn. Amnesty International er vonandi eftir ađ sanna ţađ. Ţađ var greinilega ekki fyrr en börnin eru tekin sćrđ út úr bílunum, ađ ţeir gera sér grein fyrir ţví. Flugmennirnir ályktuđu og gáfu sér hluti á svipađan hátt og fólk sem vinnur fyrir Wikileaks og RÚV gefur sér og ályktar, enda er ţađ fólk líka í stríđi, en stundum er erfitt ađ sjá viđ hvern eđa fyrir hvađa málstađ.

Börnin, sem lifđu árásina af, áttu föđur, sem bar greinilega litla virđingu fyrir lífi ţeirra. Ţó svo ađ hans eina ćtlunarverk hafi veriđ ađ bjarga tveimur blađamönnum (sem voru á eigin ábyrgđ á svćđinu), ţá fer enginn fađir međ tvö börn inn á svćđi, ţar sem skothríđ hefur átt sér stađ. Eđlilegur fađir fer međ börnin í burtu frá slíkum stađ og ţađ í miklum flýti. En ekkert er eđlilegt i Írak og ţađ geta menn sem heimta afsakanir í sífellu skrifađ á reikning Saddams.

Myndbandiđ frá WikipLeaks lćtur engan mann ósnortinn. En nokkrar geđveikar og/eđa hrćddar bandarískar ţyrluskyttur eru ekki allur bandaríski herinn, og síđan 2007 hefur löglega kosin stjórn í Írak beđiđ Bandaríkjaher og ađra heri ađ vera áfram í Írak. Ţar ríkir skálmöld, sem ekkert hefur međ veru Bandaríkjanna eđa annarra herja í landinu ađ gera.  Vandi Íraks og fjölda annarra ţjóđa á ţessum slóđum eru ekki Bandaríkin eđa stjórnmálamenn á Íslandi, sem tóku ţátt í ađ fjarlćgja einn versta níđing heimsbyggđarinnar síđan Hitler var og hét. 


Sonardóttir Svanfríđar Torfadóttur á leiđ til Kína

Hafrún Edvards
 

Ţađ er ekki lengur óalgengt, ađ íslenskar píur verđi módel í Asíu. En ţegar sonardóttir Svanfríđar Torfadóttur fer til ađ sitja fyrir í Kína verđur uppi fótur og sundfit.

Fjölskylda hennar vill ekki ađ hún leggi land undir sporđ og telur sig grćđa miklu meira á henni viđ fyrirsćtustörf í Kaupmannahöfn.

Margir Íslendingar hafa lengi vitađ ţađ sem flestir Danir vita ekki, ađ Litla Hafmeyjan á steininum viđ Löngulínu í Kaupmannahöfn er alíslensk í ađra ćttina, ţ.e. í móđurćttina, sem oftast er talin öruggari en hin ćttin. Hafmeyjuna frćgu í Kaupmannahöfn skóp Edvard Erikssen, sonur Svanfríđar Torfadóttur Magnússonar prests á Brekku í Langadal viđ Djúp og fjórđu konu hans sem ég man ekki hvađ hét. Fađir Edvards var bara einhver ómerkilegur skóari í Kaupmannahöfn.

Edvard Andersen 

Íslenski myndhöggvarinn Edvard Eriksen Svanfríđarson. Hárgreiđslan er eftir Brósa.

Margir Danir vilja alls ekki međtaka ćttfćrslu ţessa, eins örugg og hún er, eđa heyra ađ Bertil Thorvaldsen hafi átt íslenskan pabba. Hefur komiđ til handalögmála á milli Íslendinga og Dana út af deilum um fađerni hafmeyjunnar á Löngulínu. Annálađur Íslendingur, sem eitt sinn var handtekinn ásamt Fćreyingi, ţar sem ţeir voru ofurölvi ađ fleygja reiđhjólum í Holmens Kanal, mun einnig hafa komiđ ađ slagsmálum í Nýhöfn, ţar sem Dani nokkur var nefbrotinn vegna deilu um móđerni Edvards Eriksens. Nýlega börđust menn á Biennalinu í Feneyjum vegna deilna um ţjóđerni Ólafs Elíassonar. Íslenskur nýlystamađur hélt kverkartaki á dönskum málara og öskrađi á Ólaf sem ţar var staddur, „sýndu honum ađ ţú ert Íslendingur ... segđu eitthvađ á íslensku Óli". Ólafur svarađi „hva‘ ska jeg si‘?"

Danir sakna Hafrúnar Edvardsdóttur, og í gćr voru lesendur Politiken látnir hlaupa apríl, ţegar blađiđ hélt ţví fram ađ beinagrind hennar hefđi veriđ komiđ fyrir á Löngulínu, međan hún verđur í Kína. 

havfrue_430000y

Ítarefni um Hafrúnu Edvardstóttur má finna í skemmtilegri grein Elínar Pálmadóttur í Lesbók Morgunblađsins frá 1986. Betri ćttfćrslu á Svarfríđi, móđur Edvards Eriksens, er ađ finna í Velvakanda í Morgunblađinu áriđ 1990 í svari til Péturs heitins Péturssonar frćđaţuls, og áđur en  hafmeyjan á pollinum í Reykjavík var sprengd í loft upp um áramótin 1960, varđ Vilmundi Landlćkni umhugsađ um blóđblöndun íslenskrar snilli í Frjálsri Ţjóđ. Litla Hafmeyjan er á leiđ til Kína, ţar sem hún verđur sett upp í sundlaug fullri af fúlu vatni úr Kaupmannahafnarhöfn.

Ćtli Kínverjar viti ađ Hafrún sé íslensk í ađra ćttina frekar en hina?


« Fyrri síđa

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband