Færsluflokkur: Mannréttindi
17.5.2014 | 17:41
Bí Bí Sí og sannleikurinn
Það er afar furðulegt að sjá fangavörðinn fyrrverandi, Hlyn Þór Magnússon, tjá sig á BBC. Fyrir nokkrum árum hélt hann því fram á athugasemdasvæði á bloggi, að Karl Schütz hinn þýski hefði verið Gestapo-maður á Ítalíu.
Upphaflega var þeirri bagalegu mýtu fylgt úr hlaði í grein eftir Óttar "Mayday" Sveinsson í DV (http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=2937852), þar sem síra Guðjón Skarphéðinsson hélt þessu fram í viðtali við Óttar inn auðtrúa. "Gestapómaðurinn Karl Schütz", sem Guðjón hvað hafa yfirheyrt skæruliða á Ítalíu, var allt annar maður en Karl Schütz sem kom til Íslands. Gestapo-maðurinn hét Karl Theodor Schütz.
Hlynur baðst velvirðingar á ruglinu, þegar ég greindi honum frá þessari meinloku hjá honum, en Síra Guðjón hefur aldrei leiðrétt þau ósannindi sem hann fóðraði einfeldninga í blaðamannastétt með árið 1996, nýorðinn Drottins boðberi á Snæfellsnesi.
Simon Cox, sem gerist hæstaréttadómari á BBC er svo fréttamaður sem er frægur fyrir allt annað en nákvæma eða fágaða fréttamennsku: http://bbcwatch.org/tag/simon-cox/
Mannréttindi | Breytt 7.7.2015 kl. 13:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.5.2014 | 16:47
Nú fokið í flest kjól
Íslensk þjóðfélagsmynd breytist ótt. Ekki er langt síðan konan kom út á atvinnumarkaðinn, fór að ganga í buxum og taka allar bestu stöðurnar frá körlunum. Einstaka embættismaður þorði að ganga eins og mamma, en þá frekast á börum erlendis, þar sem talað var um list og menningu.
Pollapönkarar sýna nú veginn fyrir íslenskan karlpening. Við munum aldrei fá frið og umburðarlyndi í heiminum fyrr en karlar taka alfarið yfir eldhúsið og matseldina.
Pollapönkarar og Wurst í kjól | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 17:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.5.2014 | 13:00
Hinn þögli ráðherra
Nú þegar fram hefur farið óháð lögreglurannsókn á svokölluðu lekamáli í innanríkisráðuneytinu er ljóst, að skýrslunni sem lekið hefur verið var ekki lekið til fjölmiðla í tölvupósti. Það liggur því í augum uppi að einhver starfsmaður í ráðuneytinu hefur lekið skýrslunni til fjölmiðla í öðru formi. Hverju breytir það?
Það gerir ábyrgð háttvirts ráðherra ekkert minni og þögn hans ekkert betri. Þegar Hanna Birna situr enn sem fastast með lokað fyrir rifuna er hún kannski í þögn sinni að undirbúa laaaangt frí sitt frá stjórnmálum. Í hvaða siðmenntaða landi sem er væri ráðherra og hæst settu embættismennirnir í ráðuneytinu hans búnir að taka poka sinn í sömu stöðu. En við erum vitaskuld ekki í hvaða landi sem er. Við eru í landi undantekninganna. "Bestasta" landinu í heimi - með "verstasta" siðgæðið á köflum.
Fyrir 70 árum síðan
Mál þetta minnir mig á ákveðinn hátt á mál Marokkómanna sem Danir vísuðu úr landi fyrir meira en 70 árum síðan. Marokkómennirnir voru skemmtikraftar í fjölleikahúsum. Sumir þeirra höfðu eins og gerist átt í sambandi við danskar stúlkur sem heilluðust af hinum spengilegu stökkvurum, og þeir af ljóshærðum og bláeygum dönskum stúlkum. Einhverjar stúlkur gengu með börn þeirra. Listamönnunum frá Marokkó var á stríðsárunum tvisvar vísað úr landi fyrir engar ástæðu aðrar en að kynþáttahatarar, lögfræðingar og lögreglumenn í Danmörku, höfðu horn í síðu þeirra. Danskar barnsmæður þeirra einnig sendar úr landi. Áður en það gerðist voru þær kallaðar á fund lögreglu og ráðuneytis reynt var að fá stúlkurnar ofan af því að giftast Marokkómönnunum í Lahrssa Troup.
Dönsk yfirvöld reyndu einnig að hræða foreldra kvennanna. Eftir að fólinu var vísað úr landi, án aðkomu Þjóðverja vel að merkja, var það lokað í fangabúðum en Þjóðverjar notuðu einnig listamennina til að skemmta þýskum hermönnum sem voru að myrða gyðinga vítt og breytt um Austur-Evrópu. Málsgögnum úr málum þeirra var ekki lekið og birtust fyrst í bók minni Medaljens Bagside (2005) um útvísanir danskra yfirvalda á gyðingum og öðrum landflótta á stríðsárunum. Málsmeðferðin sýndi, að embættismennirnir voru fullir fordóma og kynþáttahaturs í garð Marokkómannanna. Einn lögfræðingur í dómsmálaráðuneyti Dana skrifaði t.d.:
" Er Udsendelse til Frankrig haabløs?? Bør vi ikke tage det Skridt. Det er skrækkeligt som de avler Børn - Skal vi dog ikke have fat i Kvinderne og hegardere dem, at disse Folk ikke faar Lov til at blive her - selvom de gifter sig".
Þá voru ekki til ljósritunarvélar, fax eða tölvur, snjallsímar o.s.fr. svo gögn og upplýsingar áttu ekki eins auðvelt með að "leka". Embættismennirnir voru þó ekki eins ólmir að sýna "ágæti" sitt í málefnum hælisleitanda og lögfræðingar innanríkisráðuneytisins á Íslandi árið 2013, sem greinilega eiga vini á Morgunblaðinu og Fréttablaðinu sem telja skyldu fjölmiðils að vera armur yfirvalda í stefnu gagnvart hælisleitendum sem til Íslands koma.
Gyðingar áttu minni möguleika en aðrir á að fá hæli eða landvistarleyfi á Íslandi á 4. áratug síðustu aldar. Í dag finnst mér einhvern veginn að þeir sem þeldökkir eru eigi minni möguleika á að fá hæli á Íslandi en aðrir. Hefur þetta verið rannsakað? Ég held að lítið hafi breyst - bara liturinn?
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 13:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.5.2014 | 08:35
Góð íþrótt gulli betri?
Fjölmiðlar tala öðru hvoru um barnaníðingskortið sem hægt er að finna á netinu. Síðast var frétt um þetta kort á RÚV í gær. Ég skoðaði þetta kort, sem ég tel vera frekar þunnan þrettánda, meðan að fólk sem setur það út á netið gerið það ekki undir nafni. Hvað eru aðstandendur kortsins hræddir við? Líklegast óttast þeir að almenningur komist að því, hvers konar fólk stendur á bak við síðuna.
Vitaskuld eru upplýsingar á þessu korti og listar yfir missjúka, dæmda ólánsmenn, sem nýst gæti fólki sem er hrætt um börnin sín. En þegar maður les hæstaréttardóm við mynd eins mannsins sem negldur hefur verið á kortið fær maður nú frekast þá tilfinningu að á Íslandi sé einnig kynferðislegt móðursýkiskast í gangi. Persónulega tel ég dóminn furðulegan og Hæstarétti til lítils sóma.
A var brotaþoli, þar sem hún varð fyrir kynferðislegu aðkasti þar sem hún lá drukkin á dýnu með þeim dæmda, sem einnig var drukkinn. Þetta var í Svíþjóð og þeir drukknu voru á ferðalagi í Svíþjóð að sýna glímu á Norðurlöndunum. Sá dæmdi var þjálfari og fararstjóri:
"A gaf skýrslu hjá lögreglu hinn 4. júní 2010. Hún sagðist hafa farið með hópi ungmenna sem æfðu [...] í [...]ferð til Danmerkur og Svíþjóðar í lok ágúst 2007, en hún hafi þá verið 16 ára gömul. Ákærði og C hafi verið fararstjórar í ferðinni. Í Svíþjóð hafi þau gist í íþróttahúsi og kvöldið sem um ræðir hafi þau öll verið búin að neyta áfengis. Þau hafi sofið á hörðum frjálsíþróttadýnum, en ákærði hafi hins vegar verið með betri dýnu, sem hafi rúmað tvo. Hann hafi boðið þeim að sofa hjá sér á dýnunni og sagðist A hafa þegið boðið og lagst við hlið hans. Hún hafi síðan orðið þess vör að ákærði fór með hönd inn á hana og hafi hann káfað á kynfærum hennar og brjóstum. A sagðist hafa reynt að færa sig frá ákærða, en hann hafi alltaf komið nær. Hún hafi þá snúið sér á magann og hliðina, en ákærði ekki látið af háttseminni. Síðan hafi virst sem ákærði sofnaði áfengisdauða. Hann hafi vaknað aftur og haldið áfram að káfa á henni, en síðan sofnað með höndina yfir hana. A sagðist hafa farið inn í búningsklefa og hringt til D, frænku sinnar, og rætt þetta við hana. Hún hafi verið grátandi og hafi piltur að nafni E komið að henni og spurt hvort ekki væri allt í lagi. Hún hafi öskrað á hann og sagt honum að koma sér í burtu. A sagðist síðan hafa sent C sms-skilaboð og beðið hana um að koma og tala við sig. C hafi hins vegar verið sofnuð og því ekki svarað. A sagðist hafa verið svo hrædd að hún hafi ekki þorað annað en að leggjast aftur á dýnuna við hlið ákærða. Morguninn eftir hafi hún svo sagt C hvað hefði gerst.
Þá skýrði A frá öðru tilviki sem hefði átt sér stað á heimili foreldra hennar [...] í janúar 2008. Hún hafi haldið þar teiti í tengslum við [...]mót, sem haldið var fyrir austan. Hafi ákærði komið í samkvæmið og þau orðið tvö ein eftir í húsinu eftir að samkvæminu lauk. Ákærði hafi þá leitað á hana, þrýst henni upp að vegg og byrjað að kyssa hana. Hann hafi kastað henni upp í rúm, afklætt þau bæði, legið ofan á henni og káfað á henni eins og í fyrra skiptið. Hann hafi síðan spurt hana hvort hún væri hrein mey" og hún svarað því játandi. Hann hafi þá klætt sig og farið."
Þess ber að geta að frásögn af þessu máli er mjög öðruvísi í fjölmiðlum en í yfirheyrslugögnum lögreglu og dómsorði Hæstaréttar. Á Bleikt.is er grein nemanda í kynjafræði við Verkmenntaskóla Íslands, sem greinilega hefur ekki getað lesið dómsgögn sér til gagns. Lýsing á því sem gerðist í teiti á heimili brotaþola er alls ekki eins og í dómsorði. Hópurinn á bak við barnaníðingskortið notar grein verkmenntaskólanemans sem heimild. Þetta sýnir að mínu mati tilgangsleysi slíkrar kortagerðar.
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 08:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.4.2014 | 16:18
Kraftaverk í ESB
Í löndum ESB, t.d. Ungverjalandi og Eystrasaltsríkjunum, vex nasisma og fasisma fiskur um hrygg. ESB sækist eftir samskiptum við fasistastjórnina í Úkraínu og telur Úkraínu líklegri til að verða ESB-ríki en t.d. Ísland, þótt nóg sé vitaskuld af vinstri-nasistum á Ísland, sem ólmir reyna að líkja öllum með ESB-óbeit við fasista og nasista.
Sagan um nasistann og gyðingahatarann Szegedi Csánad er góð til að minna fólk á tilgangsleysi kynþáttahaturs. Á Íslandi andmæla menn eins og Egill Helgason og Guðmundur Andri Thorsson því að frægir Íslendingar hafi verið nasistar. Egill gerist karaktervitni fyrir Davíð Ólafsson nasista og bankastjóra. Halda þessir karlar, að menn séu bara nasistar ef þeir stunda þjóðarmorð? Þá ætti Egill að hrópa hærra þegar Íslendingar ásaka Ísraelsmenn um þjóðarmorð og þjóðarhreinsun um leið og Palestínumenn og aðrir lýsa því endalaust yfir að þeir ætli sér að útrýma Ísraelsríki og gyðingum.
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 22:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.4.2014 | 23:33
Vitnið Gijsen var barnaníðingurinn
Þessi niðurstaða hollenskra rannsóknaraðila sýnir enn betur, það sem ég hef áður skrifað, að rannsóknarnefnd kaþólsku kirkjunnar á Íslandi var ekki starfi sínu vaxin.
Rannsóknarnefndin klúðraði rannsókninni á málinu. Fyrir utan að ræða ekki við alla sem þekktu til í Riftúni, leitaði hún til Gijsens fyrrv. biskups, þrátt fyrir að það væri vitað í Hollandi að hann lægi undir grun fyrir barnaníð löngu fyrir biskupstíð sína á Ísland. Þeir leyfðu þessum Gijsen að bera vitni gegn undirmönnum sínum sem hann lagði fæð á. Gijsen var barnaníðingurinn, en hann lét skýrsluhöfunda krossfesta prest sem slíkan, þótt engar sannanir lægju fyrir um sekt hans.
Gijsen biskup var líka gyðingahatari af verstu gerð. Hann kasti öskubakka í höfuð trúbróður síns sem minnti hann á að Jesús hefði verið gyðingur og að kristni ætti gyðingdómi mikið að þakka.
Skoðum svo mismuninn á frásögn Morgunblaðsins nú:
Hann hefði afhent biskupi umslag sem hefði verið geymt í skjalasafni biskupsembættisins. Séra Jakob sagðist hafa afhent Gijsen umslagið eftir að hann tók við biskupsembættinu. Þegar Gijsen var búinn að kynna sér efni þess hefði hann eyðilagt bréfið.
og hjá RÚV árið 2012:
Nú hefur RÚV betur í heimildavinnunni. Geta sumir blaðamenn alls ekki umgengist heimildir heiðvirðislega? Blaðamaður Moggans sem hefur framreitt þessa frétt er heimildaníðingur og mann grunar hver tilgangur hans með því að skrifa hálfan sannleikann var. Hann vitnar ekki rétt og fyllilega í skýrslu þá sem hann notar.
Hvert hlutverk Jakobs Rollands, (sem heitir ekki Roland eins og Mbl. telur), í þessu máli var, væri gaman að vita. Mér hefur verið tjáð, að hann og séra Georg hafi ekki verið bestu vinir og er þá ekki mikið sagt. Honum er velkomið að skrifta hér í athugasemdunum.Gijsen lét eyðileggja bréf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mannréttindi | Breytt 13.4.2014 kl. 00:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.3.2014 | 18:37
Svona fara þeir Geert Wilders og Skúli Skúlason að
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 18:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.3.2014 | 08:28
Egill Helgason falsar silfrið fyrir ESB
Það hefur ekki farið fram hjá mönnum, að svæsnustu aðdáendur ESB-veldisins meðal Íslendinga eru duglegir þessa dagana að líkja Íslandi við Úkraínu. Maður sér Sigmundi Davíð í sífellu líkt við Pútín, en hvergi sér maður ESB-áhangendur líkja Árna Páli Árnasyni við nasistann, fasistann og ESB-aðdáandann Oleh Tyahnybok í Svobodaflokknum, sem fékk álíka mikið fylgi og Samfylkingin í síðustu kosningum og situr nú í ríkisstjórn Úkraínu sem stefnir inn í ESB með aðstoð Catherine Ashton, útvíkkarans og fyrrv. kommúnistans Stefáns Füle og illa upplýstra Bandaríkjamanna til hægri og vinstri.
Egill Helgason birti í gær mynd frá Krím á bloggi sínu við predíkun sem hann kallar "ógnvekjandi ljósmynd". Hann segir hana sýna mann í búningi sovésku KDVK-sveitanna, og hinn í búningi hvítkósakka í þjónustu Zarsins. Egill upplýsir ekki, hvaðan hann hefur myndina, hvenær hún var tekin eða hvað var að gerast þegar hún var tekin. Það er ekker nýtt. Tilgangur Egils er sögufölsun og það kemur í ljós í því hvernig hann leggur út frá myndinni og hvernig fólk skrifar athugasemdir sínar hjá hinum útbelgda Búdda ESB-sinna á Íslandi.
Egill Helgason upplýsir, að Kósakkar hvítliða hafi sérstaklega sérhæft sig í að drepa gyðinga á Krím. Þetta alrangt hjá Agli. Allar ríkjandi og herjandi þjóðir og öfl á þessu svæði hafa sérhæft sig í drepa gyðinga og kenna þeim um allt. Reyndar drápu kósakkar ekki gyðinga í svo miklum mæli á Krím eins og t.d. Lenín, Stalín og Hitler og meðhjálparar þeirra. Stalín sendi ashkenas-gyðinga, sem hann ekki drap á Krím, til Síberíu, með Tatörum og öðrum minnihlutahópum, þar með talið Karaítum og tyrkneskumælandi gyðingum Krymsjökkum. Mér sýnist á öllu, að Egill Helgason viti yfirleitt ekkert um það sem hann er að skrifa, og það gerist nokkuð oft þegar hann predikar sem heitast fyrir ESB-söfnuðinum.
Í athugasemdum við færslu Egils má sjá að fólk elur á sömu fordómunum og grýlunum og hann.
Egill gleymdi hins vegar að segja blindum og heilaþvegnum lesendum sínum meira um hina raunverulegu gyðingamorðingja. Margar ógnvekjandi myndir eru til af þeim í morðæði. Eftirfarandi myndir eru ekki af tveimur "drag-hermönnum" og ''Pútín-áhangendum" á Krím, heldur af morðingjum sem hylltir eru af fólki/þjóðum sem vilja ganga í ESB með Agli og Árna Páli.
Kósakkar börðust ekki bara í herjum keisarans eða kommúnista. Stríð og gyðingadráp var lífsstíll þeirra. Hér má sjá kósakka í þjónustu herrarþjóðarinnar í ESB, sem skipuleggja dráp á gyðingum í gettóinu i Varsjá árið 1939. Þegar Egill og aðrir gyðingahatarar á Íslandi líkja Gaza við gettóin, þá gleyma þeir að Ísraelsmenn njóta ekki aðstoðar allra þeirra þjóða sem Þjóðverjar nutu, ÞAR MEÐ TALIÐ ÍSLENDINGA!!!!!!
Hér má sjá Úkraínumenn í þjónustu SS. Neðri myndin sýni úkraínska Waffen-SS liða í útrýmingarbúðunum í Belzec. Afkomendurnir þessara manna eru ugglaust ólmir ESB-áhangendur.
Hér má sjá stjórnarliða í nýrri ríkisstjórn Úkraínu. Þetta verða líklega samherjar prestsonarins úr Kópavoginum sem vitaskuld er ekki neinn nasisti eða gyðingahatari - þ.e.a.s. ef Ísland gengur í ESB, en það vill meirihluti Íslendinga ekki. ESB-sinnar skíta á meirihluta, líkt og fasistarnir í Kíev skíta á meirihlutaskoðun íbúa Úkraínu - sem vilja ekki í ESB.
Hér má sjá Úkraínumann, og ESB-SINNA, í búningi SS við minningarathöfn í Úkraínu í fyrra (sjá hér)
Meðan að ESB, útópía Egils Helgasonar og annarra lýðskrumara á Íslandi, leyfir meðlimum ESB að hylla SS og aðra gyðingamorðingja, t.d. síðastliðinn sunnudag í Ríga og í tvígang í Litháen i febrúar og mars, er það heldur þunnt að sjá sama fólkið líkja saklausum þjóðernisrómantíker eins Sigmundi Davíð við Pútín keisara. Meirihluti vinstrimanna á Íslandi iðkar reyndar líka gyðingahatur í dag og styður öfl sem ætla sér að útrýma ríki gyðinga. Slíkt fólk hefur engan rétt á því að taka gyðinga sem gísla í myndafölsunarleik á einni helstu áróðurssíðum ESB á Íslandi, Silfir Egils á Eyjan.eu.
Þeir sem láta ginnast af billegum hópæsingatilburðum Egils Helgasonar, sem vill greinilega gera ESB-sinna að ofsóttum gyðingum, þá má reyndar upplýsa, að NKVD-liðar sem Egill líkir við SS voru meðal þeirra sem frelsuðu gyðinga í útrýmingarbúðunun Auschwitz. ESB leyfir hins vegar fasistum í Austur-Evrópu að þramma og minnast "dásemda" SS. Er nema von að sumir tali um 4. ríkið þegar ESB á í hlut?
Egill Helgason skal allra mann síst afskræma sögu gyðinga.
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 16:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.3.2014 | 21:49
Að misnota börn í skriftarkennslu
Enn bætast við nýir kaflar í hina stóru og miklu hörmungasögu barnamisnotkunar á Íslandi, ljóta sögu sem menn keppast við að skrá á síðustu árum, en oft án sannana, löngu eftir lát meintra gerenda, án þess að lögregluyfirvöld hafi rannsakað málin og að gerendur hafi verið dæmdir fyrir verknað sinn. Mál þessi þjóna best hástemmdri blygðunarsemi samtímans og er safaríkur biti fyrir afkomendur Gróu á Leiti.
Nú er Skeggi Ásbjarnarson (1911-1981) nýjasta "málið", nýjasti "perrinn" sem ákærður er post mortem. Hann er m.a. ásakaður um að hafa misnotað drengi í miðjum kennslustundum, nánar tiltekið í skriftartímum. Ef einhver getur greint mér frá því, hvernig það gat farið leynt í nær 50 ár, að kennari hafi farið í buxur drengja í miðri kennslustund, án þess að það yrði umtalsefni meðal nemenda, væri ég þakklátur fyrir skýringar.
Björg Guðrún Gísladóttir stingur nú á enn einu kýlinu í hinu kynferðislega brenglaða íslenska skandalaþjóðfélagi. Hún hefur leyst frá skjóðunni í bókinni Hljóðin í nóttinni. Hún átti ömurlega æsku og segir marga menn í föðurfjölskyldu sinni hafa verið barnaníðinga. Hún var í "tossabekk" með nágrönnum sínum úr Höfðaborginni, sem að hennar sögn voru misnotaðir í tímum í Laugarnesskóla. En þýðir þetta að hún var svo félagslega niðurlægð að hún gat ekki sagt "ojbara" og "ullabjakk" fyrr en nær 50 árum eftir að Skeggi renndi niður buxnaklaufinni á nágrannadrengjum hennar úr Höfðaborginni til að leika sér með kynfæri þeirra í miðjum skriftartíma? Eða hvernig fór hann að þessu? Réðst Skeggi á félagslega bágstadda drengi meðan hann hygldi þeim sem betur máttu sín? Guðrún lýsir þessum meintu aðförum kennarans á þennan hátt:
"Hann stoppar hjá einum drengjanna og beygir sig yfir hann. Fyrr en varir sé ég höndina á honum renna niður buxnaklaufinni hjá stráknum og hverfa inn um klaufina. Í eldrauðu drengsandlitinu er eins og sálin hverfi, höndin sem liggur á skriftarbókinni og heldur á blýantinum hreyfist ekki. Ég og bekkjarsystir mín, sem situr við hliðina á mér, fylgjumst með kennaranum og stráknum þar til hann dregur höndina út úr klaufinni."
Höfðaborgin, þegar Björg Guðrún var 6 eða 7 ára
Því er haldið fram, að Laugarnesskóli hafi á 6. og 7. áratugnum verið mjög stéttskiptur skóli. Börn úr Höfðahverfi og annar "lýður" var settur í D og C bekki, en betri manna börn í A og B bekki. En gátu börn í C og D bekkjum sem urðu fyrir meintum glæpum ekki tjáð sig og andmælt? Voru börn svo harkalega niðurlægð í Laugarnesskóla að það tók þau nær 50 ár að vinna í sínum vandamálum?
Lýsingar á Skeggja Ásbjarnarsyni
Ég þekkti ekki manninn Skeggja Ásbjarnarson og gekk ekki í Laugarnesskóla. Ég var sjálfur svo heppinn að ég gekk í skóla þar sem ekki var "sýnileg" stéttarskipting og engir kennarar sem sýndu nemendum kynferðislega tilburði. Samt er ég ekki meira en 4 árum yngri en höfundur Hljóðanna í Nóttinni. Var svo mikill munur á milli nokkurra ára og á milli borgarhverfa?
Hins vegar hafði ég bekkjakennara í 9 ára bekk sem varð mjög hneykslaður á því að sonur borgastjórans í Reykjavík teiknaði samfaramynd af stúlku og dreng í bekknum, en kennarinn ræddi við okkur börnin á siðmenntaðan hátt um að við ættum ekki að gera vera velta slíku fyrir okkur og bætti svo við að hann yrði að tala við föður drengsins.
Ég man eftir Skeggja Ásbjarnarsyni úr útvarpinu og heyrði af honum úr unglingavinnunni í Reykjavík og Kirkjugörðunum, þar sem hann var verkstjóri á sumrin. Þar þótti unglingum hann afburða gamaldags og dálítið sérvitur.
Skeggi Ásbjarnarson hefur hingað til verið lýst sem góðum kennara og góðum manni. Ef maður les minningargreinar um hann er þar eintómt lof eins og gengur í slíkum greinum. En allt í einu árið 2014, 33 árum eftir dauða hans breytist þessi mynd. Lýsingar Bjargar Guðrúnar Gísladóttur og Guðrúnar Ögmundsdóttur (sjá neðar) veita nýja mynd sem kemur mörgum að óvörum. Þeir sem efast er lýst sem vitorðsmönnum að glæp, glæp sem hvorki er sannaður eða nokkur dæmdur fyrir, nema af skyndidómstóli götunnar.
En hverju ber að trúa? Ég get ekki leyft mér að trúa áburði á menn sem eru löngu látnir og sem ekki geta varið sig. Saga Bjargar Guðrúnar er ekki undirbyggð þó að Guðrún Ögmundsdóttir stígi fram og segist geta staðfest hana.
Ég les hins vegar minningarorð um Skeggja sem hlédrægan mann af gamla skólanum, einfara og fagurkera. Til dæmis minningu Baldurs heitins Pálmasonar, sem ég man vel eftir á RÚV þegar ég starfaði þar sem sendill. Ég hef enga ástæðu til að ætla að allir sem skrifa með hlýju um Skeggja hafi fengið ranga mynd af manninum.
Styrmir Gunnarsson ritar t.d. um Skeggja í minningargrein í Mbl:
"Skeggi Ásbjarnarson var einstaklega vel til þess fallinn að kenna börnum. Framkoma hans og umgengni við nemendur var með þeim hætti, að hvatti til samvizkusemi í námi. Hann kom sér upp kerfi, sem var í því fólgið, að nemendur fengu sérstaka viðurkenningu fyrir að ná ákveðnum árangri í hverri grein. Þessi viðurkenning var fallega lituð stjarna á stóru spjaldi. Það var okkur mikið kappsmál að ná öllum stjörnunum eftir veturinn. Ef erfiðlega gekk að ná þessu árangri átti Skeggi það til að bjóða þeim, sem áttu við þann vanda að stríða heim til sín til þess að taka sérstakt próf í þessum stjörnuleik og bauð upp á appelsín og kex. Það þótti vegsemd og virðingarauki að vera boðinn heim til Skeggja."
Ýmsir aðrir merkismenn minntust Skeggja í blöðum árið 1981 og þegar ég leitað á gamla góða netinu fann ég t.d. minningar Ómars Ragnarssonar og athugasemd Halldórs Blöndals.
Mest athygli mína vekur frábær grein Önnu Kristjánsdóttur vélstýru. Anna, sem ólst upp í Höfðaborg, lýsir því hvernig hún kom af barnaheimilinu Reykjahlíð í Mosfellssveit árið 1963 í Laugarnesskóla. Þá var hún sett í C bekk og Skeggi var umsjónakennari. Anna skrifar:
"Ég var þarna komin í C-bekk. Aðalkennarinn var Skeggi Ásbjarnarson. Hann kunni að hrósa nemendum og á hverjum degi hrósaði hann mér í hástert fyrir færni mína. Eftir tvær vikur var haldið skyndipróf í reikningi og ég fékk tíu í einkunn enda prófið létt. Skeggi lýsti því þá yfir frammi fyrir öllum nemendunum að ég ætti ekki heima í þessum bekk. Nokkrum dögum síðar var haldið annað skyndipróf og aftur var ég langefst í bekknum. Daginn eftir var ég færð yfir í A-bekk þar sem á meðal samnemenda minna var Ragnar Þorsteinsson núverandi fræðslustjóri Reykjavíkur."
Svo gerist það í A bekknum að Anna er eitt sinn veik og mætir í skólann eftir veikindi og er niðurlægð fyrir það af kennara A-bekkjarins. Anna lýsir þessu þannig:
"Nýi aðalkennarinn sparaði hrósið mun betur en Skeggi og eitt sinn er ég var lasin heima hélt hann langa tölu yfir hópnum þess efnis að ég ætti ekkert heima í A-bekk frekar en önnur börn úr Höfðaborginni. Hinir krakkarnir voru fljótir að segja mér hvað hann hefði sagt daginn eftir er ég mætti aftur í skólann og það tókst aldrei vinátta á milli mín og umrædds kennara, en það leystist er komið var í gagnfræðaskóla og hinn ágæti kennari Ásmundur Kristjánsson tók við hópnum það sem eftir lifði skólaskyldunnar."
En sjá: Allir þeir sem leyfa sér að vera í vafa um ásakanirnar á hendur Skeggja verða umsvifalaust ásakakið um afneitun og þaðan af verra. Dómur götunnar er það sem blífur í dag.
Guðrúnar þáttur Ögmundsdóttur
Egill Helgason ræddi við Guðrunu Björgu Guðrúnu Gísladóttur í Kiljunni og talaði Egill eins og Skeggi Ásbjarnarson væri dæmdur barnaníðingur. Pressan.is hefur einnig farið mikinn, þannig að halda mætti að það sé uppvíst og öruggt að Skeggi hafi framið glæpi. Skólastjóri Laugarnesskóla kom einnig fram á RÚV og harmaði það líkt og æð lægi fyrir full vissa um glæpi Skeggja: "Kynferðisofbeldið er orðin að bletti á sögu skólans": Greinilegt er að siðapostular samtímans eru búnir að dæma og afgreiða Skeggja Ásbjarnarson með hjálp hungraðra fjölmiðla.
RÚV birti einnig frétt sem kölluð var "Kerfið brást", en nú er fréttin horfin af vef RÚV. Fleiri kerfi en skólakerfið virðast því bresta á Íslandi.
Svo stígur fram á sjónarsviðið Guðrún Ögmundsdóttir, tengiliður vistheimila ríkisins, og segir að þolendur hafi upplifað mikla angist þegar Skeggi leitaði á þá í skriftartímum. Upplýsingarnar fékk hún upprunalega frá Björgu Guðrúnu og fór svað "leggja inn" spurningar um efnið þegar hún talaði við unga menn sem höfðu verið í Laugarnesskóla. Yfirskriftirnar og yfirlýsingarnar eru nú mjög fjörugar."Fjölmargir nemendur urðu fyrir broti"; "Fleiri en tíu lýsa ofbeldi Skeggja"; "Skeggi misnotaði marga nemendur", og ": RÚV upplýsir: að fórnalömbin hafi verið "fjöldi" og"Það voru allmargir" sem Guðrún talaði við. Mér finnst Guðrún heldur margsaga í þessum fjölda fórnarlamba, nema að það séu blaðamennirnir sem hún hefur samstarf við sem enn eru ekki búnir að gera upp við sig hvort fjölmargir, allmargir, fjöldi og fleiri en 10 séu sama stærðin.
Þetta verður að upplýsast, því ekki er hægt að vega að minningu látins manns með þeim hætti sem Guðrún gerir. Hún og tímenningarnir verða að segja söguna. Einn maður hefur vissulega haft þor og getu til að segja sína sögu, m.a. þetta:
"Já, hann sagðist þurfa að ræða við mig. Hann fór alveg í klofið á manni. Hann fitlaði við typpið á manni og hann reyndi að kyssa mann. Maður sat stjarfur og þorði ekki að hreyfa sig fyrr en í restina. Þegar maður þorði loks að taka sprettinn var maður kallaður fyrir daginn eftir og fékk svo skammir. Síðan fengu foreldrarnir kvartanir þó maður væri að flýja. Maður flosnaði eiginlega upp eftir þetta. Ég var kominn á togara fimmtán sextán ára og var þar næstu sautján árin."
Guðrúnu grunar að í sumum tilfellum hafi misnotkunin staðið yfir alla skólagönguna. Hún upplýsir " þeir sem hún ræddi við hafi lent í því sama og Björg segir frá í bók sinni, að kennarinn hafi leitað á þá í skriftarkennslu. Þá þurfi nemendurnir að sitja stífir og stjarfir og ekki hreyfa sig. Ég hef ekki fengið þá sem lentu í heimili Skeggja, en aðallega gerðist þetta inni í skólastofunni og maður getur rétt ímyndað sér þá angist sem þessir drengir hafa þurft að kljást við.""
Að nemendur hafi þurft að sitja stjarfir og hafi ekki geta hreyft sig árið 1965, en ekki árið 1970 þegar ég fékk skriftarkennslu, tel ég af og frá. Skriftartímar í mínum skóla voru ekki hljóðlátari en aðrir tímar.
Hvernig það er yfirleitt hægt að bogra yfir nemanda og færa fullorðna hönd inn í buxnaklauf 11-12 ára drengs á ég erfitt með að sjá að sé líkamlega mögulegt. En bekkjasystir Bjargar sem sat við hliðina á henni sá þetta líka. Vonandi er hún enn til frásagnar. Eða er fólk úr Höfðaborginni svo andlega og félagslega kramið vegna skólavistar sinnar í Laugarnesskóla fyrir nær 50 árum síðan, að það þorir ekki að segja neitt enn.
Við leit af "teacher putting/puts hand into studens pants" á netinu fann ég ekki neinn kennara úti í hinum brenglaða heimi sem hafði gert slíkt í skólastofu meðan á tíma stóð. Skeggi Ásbjarnarson kennari var greinilega á undan sínum tíma. Eða er hann fórnarlamb hópæsingar og kynóra í hálfbrengluðu þjóðfélagi? Ísland er á góðri leið að verða nýtt ríki í Bandaríkjunum, þar sem vart má koma við barn án þess að það sé tengt kynferðisáreitni. Ég las þessa grein um bandarískan kennara sem fjölmiðlarnir ásökuðu fyrst fyrir að hafa komið við drengi, en það reyndust vera stúlkur. Hann á nú yfir höfði sér 20 ára dóm fyrri að hafa komið við tvær stúlku, þó svo að það komi ekki fram í fréttum hvar og hvernig. Hann getur að öllum líkindum varið sig fyrir dómstólum (þó maður hafi ekki mjög hátt álit á réttarkerfi BNA) ef hann er saklaus, en það getur Skeggi Ásbjarnarson ekki.
Á litla Íslandi hefur Guðrún Ögmundsdóttir hins vegar tekið að sér að dæma Skeggja Ásbjarnarson í hjáverkum - í hlutverki æðsta dómara sem fær að dæma dauða menn í fyrstu frétt í aðalkvöldfréttum ríkisfjölmiðils. Hún nýtur dyggrar aðstoðar blaðamanna sem margir virðast hafa óhemjuáhuga, jafnvel sjúklegan áhuga á öllu kynferðislegu, ef þeir eru ekki uppteknir af órum um framtíð sína í ESB. En eitt er víst að RÚV og Guðrún Ögmundsdóttir eru ekki æðsta dómsstig í landinu.
Mannréttindi | Breytt 23.3.2014 kl. 12:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.2.2014 | 09:49
Dear Ambassador Pinkus
Att. His Excellency Mr. Vytautas Pinkus
Dear Ambassador Pinkus,
On February 16, I sent a letter of protest to you as the Lithuanian representative in Iceland. My protest was aimed at the Lithuanian State for allowing neo-Nazi marches in Kaunas. While I was in the Netherlands, I received news about another Icelandic citizen, who also sent his personal protest to you. You responded to his protest, but my letter you didn't bother to reply to. You might, dear sir, want to explain this difference in your attitude toward two Icelandic citizens who are concerned about Lithuania.
You informed my countryman, who protested against the march, that the protest in Kaunas last Sunday was only attended by a fringe group protesting against the EU. To quote your information to my friend: "The demonstration this year in Kaunas was mainly anti-European (anti-EU) and focused on the possible referendum on the right to sell land to foreigners." Why then, Mr. Ambassador, were the protesters carrying a large banner praising Juozas Ambrazevicius-Brazaitis the puppet prime-minister of Lithuania in 1941, who signed laws which removed the rights of Jews and enabled the killing of Jews in Lithuania during WWII?
I know very well the aims of the groups represented at the march, one of which has had representatives in the EU, where they have mainly used their presence to express their hateful views towards minorities in Lithuania.
The Lithuanian Government funded the reburial of the remains of Juozas Ambrazevicius-Brazaitis in Kaunas in May 2012, as well as a conference in honour of him. I was in Kaunas, where I attended a conference on the legacy of the Danish-Jewish-Icelandic philanthropist Aage Meyer Benedictsen. I paid a short visit to the conference on Ambrazevicius-Brazaitis sponsored by your government. In my first letter of protest to you, I added a link to my eye-witness account from that conference. Please read my account and be assured that both your government, members of the Lithuanian Church and neo-Nazis praise the memory of Lithuanians who collaborated with the Nazis during WWII. You cannot blame the objectives of the participants in the 16 February March on their EU-antipathies.
Furthermore, I find it frightening to see how the Lithuanian Police acted towards young Lithuanian natives, who gathered in protesting against the march last Sunday. They were harassed by the police. The police demanded their personal information, names and addresses. That conduct is not acceptable in a democratic state. At the same time Latvian nationals participated in the march. No Lithuanian police checked their identities.
Please, Mr. Ambassador, realize that the praise of the Lithuanian collaborators in the Holocaust is not an acceptable behaviour in the 21st century. Please forward my protest to your government, which must know that there are Icelandic citizens, who do not find it acceptable that Lithuanian streets bear the name of Iceland (Islandijos Gatvé), while Nazis and anti-democratic groups can march the streets of Lithuania and praise murderers!
Yours sincerely,
Dr. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Albertslund, Denmark
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 13:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 44
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 37
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007