Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Menning og listir

Stúdentar hafa of mikið á milli handanna

nemi_i_h.gif

Það er ávallt gott þegar háskólaborgarar sýna okkur að þeir stíga ekki í vitið og eru engu betri, og jafnvel vitlausari en hinn grásvarti almenningur sem gengur í skóla lífsins.

Hvers vegna eru menn annars að þjófstarta bæverskri þjóraveislu fyrir miðjan september á stormskeri sem kallast Ísland, þegar slíkar Þjóðverjasamkomur hefjast ekki venjulega fyrr en í lok síðustu viku september?

Eru stúdentar orðnir svona háðir öli, að drykkjumennska þeirra þrýstir á? Hafa námslánin kannski hækkað?

Eins og menn vita, féllu heilu fjölskyldurnar í ónáð í Þýskalandi eftir stríð vegna glæpa karlpeningsins í fjölskyldunum. Voru þá þýskar kerlingar og meyjar úr slíkur blóraættum sendar út um heim til að hefja nýtt líf. Sumar þeirra voru dregnar til Íslands til að gagnast einsetumönum á Íslandi og margar þeirra breyttu koti í fallegustu býli vegna heraga sem þeim var í blóð borinn. Ari Trausti Guðmundsson var svo frakkur að kalla þær flóttakonur hér um daginn í athugasemd hjá almenningsálitstilbúningsmanninum Agli Helgasyni. Mér datt eitt andartak í hug að þær hefðu verið svo frjósamar, að undan þeim og íslenskum einbúum væri runninn heil sveit arískra drykkjusvola. Varla - líklega er bara allt of kalt að sitja í Lederhosen afa gamla í Þýskalandi í október á Íslandi og hrópa sinn stuðning við flóttafólk og Hamas þegar kominn er hávetur. Íslendingar eru fyrst og fremst eftiraparar og svo tilfinningalega samhnepptir að þeir komast ekki í stuð og geta ekki stundað kynlíf nema að vera ófærir um að aka.

Íslenskir námsmenn hljóta að vita að bjórdrykkja veldur offitu og alls kyns sjúkdómum nútímans og það er ekki nema að maður drekki Carslberg, að einhverjir aurar af sullinu fara til rannsóknar í lifrarkrabba eða öðru böli sem drykkja hefur í för með sér - í Danmörku.

Ég er alveg sammála formanni Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík, þegar hann varar við að endurskapa bæverskan öl-lager á mesta vindarassgati í Reykjavík. Stúdentunum væri nær að vera heima hjá sér og lesa lexíuna og fá sér smá Maltöl eða bland eða óáfengan pilla og naga með því harðfisk og söl. Sundlaugarnar eru líka ágætur staður til samveru. Meðan Mutter Merkel og Göthe stofnunin borga ekki fyrir svona útþýska menningu, er engin ástæða að eyðileggja heilbrigði þjóðarinnar með þessari siðleysu.

stacks_image_20543.jpg


mbl.is Varhugavert að reisa annað tjald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bylting Arnar Ólafssonar

_rn_lafsson.jpg

Flugruslafélagið Ryanair hefur verið hnésett hér í Kaupmannahöfn og flýgur nú aðeins frá Tirstrup utan við Árós. Danir vilja ekki sætta sig við fyrirtæki sem ekki borgar fólki mannsæmandi laun og sem lætur starfsmenn sína borga einkennisbúningana.

Slíkt óeðli sannar vitaskuld líka að Íslendingar eru ekki komnir af þjófóttum, illa innrættum, írskum dvergum. Einn aðalíkoninn í baráttunni við Ryanair er Íslendingur. Mynd af Erni Ólafssyni, sem var íslenskukennari minn í menntaskóla, hefur prýtt forsíðurnar í mörgum fjölmiðlum síðustu mánuðina.

Eins og hann hefði aldrei verið annað en flugvallarpökkunarmaður á Kastrup, stóð gamli Trotskíistinn Örn vaktina fyrr í ár með rauðan fána, í rokkbuxum og á brúnum ballskóm. Bestu þakkir, Örn!

Lifi Byltingin! Og klukkan er 4 mínútur í (byltinguna). Nú finnst mér að SAS eigi að gefa Erni nokkra vildarpunkta fyrir að hafa komið samkeppnisaðila fyrir kattarnef.

_rn_rote_armee.jpg

Assgot, ég er að verða of seinn í næstu byltingu


Hið vandmeðfarna tjáningarfrelsi

books.jpg

Bókabrennur, þörf fyrir guðlast og vanvirðingu og eyðileggingu menningar annarra er aftur komin í tísku. Allt frá eyðingu ISIS á menningar- og trúarminjum annarra til Íslands, er eyðilegging og vanvirðing á gildum annars fólks varin með tjáningarfrelsi.

Sjálfstæðisflokkurinn safnar eins og aðrir flokkar vinsældum með eflingu "tjáningarfrelsisins" (sjá hér). Í skjóli þess vanmeðfarna frelsis er hægt að gera margt. Saga Sjálfstæðisflokksins er verulega menguð af ógeði nasismans. Það virðist ekki horfið úr gróðrarstíum í Valhöll.

Nú á að brenna lögmálið - það er tjáningarfrelsi

Í Lundúnum ætlar frændur sannra Sjálfstæðismanna að þramma í gegnum hverfi gyðinga á laugardegi (hvíldardeginum) og brenna eintak af Talmud (skýringum á lögmáli Torah gyðinga). Nýnasistarnir hafa boðað þennan gjörning sinn þ. 4. júlí í nafni tjáningarfrelsisins.

20090325144750694_1263196.jpg

Hof eyðilagt í "Menningar"byltingunni. Skurðgoðadýrkun kommúnismans þoldi ekki aðra guði.

Íslenskir vinstrimenn, trúleysingjar og siðmenntarfólk fagna vitaskuld tillögu sjálfstæðismanna um afnám guðlastsákvæða íslenskra laga. Sjúkleg þörfin fyrir ærlegu guðlasti hefur elt slíkt fólk í áraraðir. Ekkert hefur í raun hindrað gyðingafordóma og andkristilegt athæfi á Íslandi. Íslensk yfirvöld aðhafast ekkert. Andlegir frændur vinstrimanna hafa eins og kunnugt er líka stundað bókabrennur, skurðgoðaeyðingu, Margir vinstrimenn er til í að vernda þá sem eyða menningu annarra og tala um eyðingu þjóða, t.d. Isis og Hamas. 

Mótmælum !

Vilji menn mótmæla göngu nasista þ. 4. júlí í Lundúnum mæli ég með því að það sé gert hér.

(Hér geta menn mótmælt Jóni Val Jenssyni, sem telur að hann geti lastað guðum annarra, en að hans Guð sé sá eini sem ekki megi lasta).


No Shoes Beyond This Point

no_shoes.jpg

Ég skil vel ákvörðun eins stjórnarmanna Kynningarmiðstöðvar Íslenskrar Myndlistar (KÍM) þegar hún segir af sér af "prinsípástæðum" í kjölfar þóttafullrar yfirlýsingar forstöðukonu KÍM um endalok moskusýninguna á Tvíæringnum í Feneyjum.

Þó svo að stjórnarmaðurinn hafi opinberlega sagt sig úr stjórninni vegna þess að yfirlýsingin var ekki borin undir stjórnina, þá má sérhverjum manni vera ljóst af hverju þessi matrónuyfirlýsing veldur ólgu í KÍM. Hún er óyfirveguð, þvælukennd og uppfull af rökleysum. Einnig vantar mjög allan sannleikann í sögu þeirra samskipta sem KÍM hafði við borgarstjórn Feneyja. Alvarlegast er þó að bein ósannindi koma fyrir í yfirlýsingunni. Björg Stefánsdóttir framkvæmdastjóri KÍM er enn að reyna að gera lokunina að trúarspursmáli, þó svo að yfirvöld í Feneyjum hafi gert sér far um að koma í veg fyrir það.

Björg heldur þessu fram í yfirlýsingunni sem fékk Hönnu Guðrúnu Styrmisdóttur (Gunnarsson) til að yfirgefa stjórn KÍM:

  1. Visitors to THE MOSQUE project are NOT required to remove their shoes nor cover their heads with veils. Inside the exhibition in the Pavilion there is a sign SUGGESTING that visitors remove shoes as a part of the exhibition and the installation, and as a way to respect the cleanliness of the site. Veils are provided for OPTIONAL use by anyone wishing to use them. It is entirely left up to visitors to choose whether to remove or wear their shoes, and whether to try wearing a veil. (Sjá hér).

Skoðið þá myndina efst. Á skiltinu stendur: No Shoes Beyond This Point. (Sjá hvar myndin var fengin hér). Við skiltið stendur svo Íbrahím sýningarstjóri, sem einnig hefur haldið því fram að fólk gat gengið á skónum út á bænateppið. Af hverju stendur þá annað á skiltinu og af hverju sér maður ekki á nokkurri ljósmynd einn einasta mann standa á teppinu á skóm?

Hvern eru menn að reyna að plata? Er Björg Stefánsdóttir ekki starfi sínu vaxin eða hefur verið logið að henni? Það verða yfirvöld á Íslandi að skýra.

Kaupmennska í Guðs húsi

Það hefur einnig verið upplýst, þó svo að íslensk yfirvöld greini ekki íslensku þjóðinni frá því, að ein af ástæðum fyrir lokun sýningarinnar hafi verið ólögleg sölumennska á sýningunni. Þessu hefur verið neitað af íslenskum aðstandendum sýningarinnar.

810235.jpg

Lítum þá á þessa mynd. Þarna er söluvarningnum stillt upp. Allt sem þarf til, til að vera góður múslími. Á uppsláttartöflunni á bak við er, ef vel er að gáð, mynd af aðal"mosku" Reykvíkinga. Ég er farinn að halda að Menntamálaráðuneytið telji fólkið í landinu vera vitleysinga. Og þarna var líka selt Mecca, sem ég held að sé nú ekki brýn nauðsyn ef maður vill gerast múslími, nema að maður hati USA og Coca Cola og Co.  Mecca Cola svalar víst afar vel þorstanum í eyðimörkinni:

3e3b3449-6411-46dc-9ce6-46c1d8b4a5ba-392x600.jpg

Ráðherra mennta og menningarmála, Illugi Gunnarsson, hefur lýst því yfir "að moskan sé listaverk sama hvað fólki finnst um það". Væntanlega með eða án Mecca Cola. Já, vissulega er þetta listaverk. En af hverju var þá bænahald í húsi þar sem ekki mátti fara fram bænahald? Hvers vegna "No Shoes Beyond This Point" skilti og síðar lygar um það? Er það hluti af list að stunda trúarbrögð í listaverki. Flestar deildir Íslam myndu ekki taka það í mál að bænir færu fram sem hluti af listagjörningi.

Mín skýring á gerningnum í Feneyjum er einföld: Viðvaningsháttur og heimalningshegðun stjórnar aðgerðum KÍM. Íslendingar verða víst seint heimsborgarar í þorparaskap sínum. Þessi óstjórn á líklega eftir að koma óorði á Íslam jafnt sem Ísland.

Líklega á Ísland (að mínu mati) í fátækt sinni ekkert erindi á dýrar sýningar eins og Tvíæringinn í Feneyjum, þegar ekki er til neitt bitastætt í landinu nema einher Svisslendingur sem aðeins er á Klakanum með annan fótinn. Það er mjög aumt og illa fyrir íslenskri list komið ef enginn íslenskur myndlistamaður hafi lengi burði til að ögra og örva með list sinni.

Miklu nær hefði verið fyrir listamanninn að leggja verk sitt fram fyrir hönd Sviss sem er þekkt fyrir grimma andstöðu við bænaturna múslíma sem þykja skyggja á Alpana og bænirnar yfirgnæfa jóðlið í fjallasal.

Hver fjármagnaði listina í Feneyjum

Það var ekki bara íslenska ríkið sem þurfti að eyða skattkrónum borgaranna í Feneyjum. Ein ríkasta kona landsins, Ingunn Wernersdóttir, studdi framlag Íslands í Feneyjum. Hún hefur sjálf verið kennd við ýmsa gjörninga, t.d. kaup á Stradivaríusarfiðlum og mikla skuldseiglu, sem og góða sölu á réttum tíma og stund. Hún greiddi heldur ekki krónu í útsvar árið 2009. Eitthvað á klóin því eftir á kistubotninum og hún velur að setja klinkið í buddunni í mosku á Tvíæringi í stað greiðslu skatta og gjalda til samfélagsins á Íslandi. Nýlega var Sverrir Agnarsson (Íbrahím) samt látinn fjúka á 365 miðlum, þar sem frúin á tæp 4% af fréttunum. Líklega eyddi hún engu í Íslam þrátt fyrir allt.


"Moskunni" í kirkjunni verður lokað

moschea.jpg

Samkvæmt þessari frétt er Feneyjarborg búin að banna "moskuna" í Santa Maria della Misericordia, þ.e. íslenska skálanum á Tvíæringnum: http://nuovavenezia.gelocal.it/…/moschea-il-giorno-della-so…

Ástæðan fyrir lokuninni eru m.a. þau atriði sem ég benti á í bloggum mínum (hér og hér), en ekki múslímahatur eins og menn reyna nú að gefa í skyn, t.d. á FB Gísla Gunnarssonar sagnfræðings. Þar hefur verið ráðist ómaklega á mig með niðrandi og meiðandi umtali vegna þess að ég leyfði mér á bloggum mínum að að benda á að íslenski hópurinn kynni ekki ítölsku. M.a. hefur Samann Tamimi sagt að ég sem yfirlýstur síonisti, sé "nemandi Göbbels".

tamimi_gestapolli.jpg

Samann Tamimi, Imam íslenskra múslíma hefur hrópað "bölvaður gyðingur" að Íslendingi. Nú segir hann mig vera "nemenda Göbbels" í blindri einstefnuumræðu um gjörning Íslands í Feneyjum á FB Gísla Gunnarssonar fyrrv. sagnfræðiprófessors.

Íslendingar, svissneskur listamaður og menntmálaráðuneytið gátu ekki lesið sér til gangs þau skjöl frá 1973, sem þeir settu sjálfir fram máli sínu til stuðnings.

Þetta er hið alvarlegasta mál fyrir íslensk yfirvöld. Menn verða að vinna undirbúningsvinnuna betur en gert var í þessu máli og kunna tungumálið í því landi sem þeir eru að vinna í. Kynningarmiðstöð Íslenskrar Myndlistar er ekki verkefnum sínum vaxin.

Mig grunar samt, að málinu verði lent á einhvern vitsmunalegan hátt, því Ítalía er nú einu sinni Ítalía, og í því felst ekkert nema raunsæ skoðun á því landi. Þar er á ýmsan máta hægt að miðla málum. Nú er Sverrir Agnarsson kominn til Kúvæt svo kannski hafa hlutirnir róast lítillega.

culto_venziana.jpg

Þessir týndu reyndar augnlinsunum sínum - Nei bara að spauga, þetta er list.


Jesús handtekinn í Torino

fiat_delux_torino.jpgJesús hefur nýlega verið handtekinn fimm sinnum í borginni Torínó á Ítalíu.

Þessi klæðaskiptingur er náttúrlega ekki Jesús, frekar en að Sverrir Íbrahím yfirprestur og sýningargripur í Mosku Miskunnarinnar í Feneyjum er Imam. En ítölsk yfirvöld taka hart á þeim sem þykjast vera synir Guðs eða háttsettir á hans vegum.Jesús fær vatn, brauð, næturgistingu og sekt í hvert skipti sem hann er handtekinn.

Þannig eru íslensk yfirvöld ekki. Á Íslandi ríkir nefnilega virðing fyrir trúarbragðarefum og mikið umburðarlyndi gangvart trú og klæðaskiptingum hvers konar. Sverrir Imam fær t.d. dagpeninga frá íslenska ríkinu og þarf sko ekki að óttast vatn og brauð í neðansjávardýflissum Feneyja.

Kannski er þessi Gúmmíjesús í Tórínó kominn til að vitja líkklæðis þess sem er kennt við hann og borgina sem lætur handtaka hann í sífellur fyrir loddarahátt. En líklegast er hann bara að safna sér fyrir Fiat deLux.

gesus_alla_stazione_1260570.jpg

"Komdu með okkur væni".


Múslímar í Feneyjum snúast gegn bænahaldi Íbrahíms Sverris í Santa Maria della Misericordia

moschea_dell_misericordia.jpg

Samkvæmt blaðinu Corriere del Veneto í Feneyjum harmar Samfélag múslíma í Feneyjum að sýning Íslands á Tvíæringnum sé notuð til bænahalds og bendir á, eins og ég gerði í gær, að ekkert trúarlegt bænahald megi fara fram í húsinu. Það var þegar samþykkt árið 1973. Patríarkinn í Feneyjum og síðar Jóhannes Páll páfi fyrsti lagði blessun sína yfir þá ákvörðun.

Íslensku múslímarnir og Kynningarmiðstöð Íslenskrar Myndlistar (KÍM) fara greinilega á bak orða sinna við samfélag múslíma í Feneyjum og virða ekki samþykktir Feneyjarborgar eða blessanir annarra trúarbragða.

Ráð múslíma í Feneyjum sendi því frá sér tilkynningu, samkvæmt frétt Corriere del Veneto þar sem upplýst er að :

"Með virðingu fyrir Feneyjarborg, og til þessa halda góðu sambandi við allt samfélagið og til að milda samvisku allra meðlima samfélags múslíma, telur samfélagið sig skuldbundið að biðja meðlimi sína um að stunda ekkert helgihald í íslenska skálanum, til þess að koma í veg fyrir misskilning og misnotkun, sem getur í stað þessa að efla samræðu trúarbragða sín á milli í borginni, spillt henni (mengað hana). "

Í grein Corriere del Veneto er stutt kvikmynd af bænahaldi undir stjórn Sverris Íbrahíms, sem á Ítalíu heitir Íbrahím Sverrir og er talinn vera Imam. Meira en 100 múslímar báðu til Allah í gær. Konurnar voru faldar á bak við grindur. Í salnum voru einnig blaðamenn og óeinkennisklæddir lögreglumenn.

Sverrir Agnarsson stundar bænahald í húsi, þar sem bænahald má ekki fara fram, og á skjön við viðtektir yfirvalda í Feneyjum. Hann stundar brot á lögum þess lands sem hann er staddur í. Hann stundar bænahald í fyrrverandi kirkju á skjön við óskir samfélags múslíma í Feneyjum. Sverrir er greinilega í einhvers konar heilögu stríði, og það á kostnað íslenskra skattborgara. Það gengur vitaskuld ekki.

Uppihald "Imamsins" Sverris í Feneyjum er nefnilega kostað af íslenska ríkinu. Íslenska ríkið borgar líka undir frekjugang Bjargar Stefánsdóttur hjá KÍM, sem ekki kann stakt orð í ítölsku, nema kannski pizza og si. Hún lýgur á kostnað íslenskra skattborgara um skjöl varðandi afhelgun kirkjunnar (sjá hér). Þar kemur þó greinilega fram, að bygginguna, þar sem íslenska sýningin er haldin, megi ekki nota til bænahalds.

Eiga Íslendingar erfitt með að skilja? Erum við að sjá dæmi um það vel þekkta fyrirbæri, að Íslendingar skíti á allar reglur vegna yfirganglegrar frekju sinnar? - Eða eru svissneski listamaðurinn og aðalsýningargripur hans á listsýningunni, Sverrir Íbrahím, svona góðir að snúa mönnum um fingur sér? Ég veðja á síðustu tilgátuna.

Moskuævintýrið í Feneyjum kemur trú og virðingu ekkert við. Æsinga- og ævintýramenn frá Íslandi, sem eru ólæsir á menningu Ítalíu, eru að skaða málastað múslíma í Feneyjum. Svo einfalt er málið.

Það er ekki gott til þess að vita að moska sú, sem ég stakk fyrstur manna upp á að yrði byggð á Íslandi, verði notuð til æsingastarfs. En þegar forsvarsmenn moskunnar ganga um og kalla Íslendinga "helvítis gyðinga" og ljúga í nafni trúar sinnar í öðrum löndum, má búast við hinu versta. Ég er því miður ekki vongóður, þegar mennirnir í brúnni vekja ekki traust.

Vitanlega er moska í Feneyjum, en ekki í gömlu borginni sem er friðuð með World Heritage friðun. Hér má sjá þegar listakona gefur moskunni í Feneyjum verk eftir sig. Vandamál múslíma í Feneyjum er nefnilega helst það að sumir múslímar vilja ekki koma í þessa mosku. Múslímar í Feneyjum eiga í innbyrðis erjum og stríði.


Moska í kirkju - en hvað með kirkju í mosku?

640x392_23222_213249_1259239.jpg

Lesið grein mína á Fornleifi: Ófrumlegur "Svissari" á tvíæringnum.

Múslímar vilja mosku í Feneyjum sem er friðlýst borg og á heimsminjaskrá SÞ. Í annarlegum tilgangi er endalaust hamrað á "hatri" Ítala í garð múslima. Nú tekur Svisslendingur, listamaður frá landi, þar sem Íslamhatur er mest á byggðu bóli, að tengja þennan áróður gegn Feneyingum við Ísland. Þó múslímar hafi fengið lóð á besta stað í Reykjavík, þá eru íslenskir múslímar einnig með ásakanir um að múslímahatur á Íslandi sé almennt.

Moskan í kirkjunni í Feneyjum er eins og steinkast í glerhúsi. Það er verið að ráðast á kristna í heimi múslíma og má út önnur trúarbrögð, lífs eða liðin, og eyðileggja heimsminjar i nafni Íslam og ryðja þeim og sprengja af yfirborði jarðar. Samúðin með múslímum sem vilja mosku í Feneyjum í heimsminjum eða eru að ásaka landsmenn sína á Íslandi, þó þeir hafi fengið lóð undir mosku á besta stað bæjarins, er skiljanlega afar lítil.

Ef Múslímar í Feneyjum geta ekki beðið nema að reist sé moska á friðuðum minjum, þá er kannski hægt að biðja á botni fenjanna. Við strendur Sádi Arabíu er moska á hafsbotni, sem sjá má mynd af hér efst.

Sýning Íslands í Feneyjum er kjánaleg og vanhugsuð.

Lesið svo meira um ófumlega Svisslendinginn sem er greinilega það besta sem Íslendingar gátu séð sér fært að senda á Tvíæringinn í ár.


mbl.is Moska í íslenska skálanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Marco litaði bloggið mitt

geysir_small4.jpg

Marco Evaristti hellti rauðum matarlit á bloggið mitt, áður en hann hélt af landi brott.

Menn hafa spurt mig, hvort ég ætli ekki í mál. Nei, ég ætla ekki í mál við Evaristti. Á þessu bloggi hefur fjöldi manna úthellt eldi og brennisteini, látið illa og slett skyri og verið með óþvegið gyðingahatur. Sumir hafa reynt að hella lút og sápu, svo ég gjósi.

Smá ávaxtasafi á PostDoc.blog.is gerir miklu minni skaða en svínsleg framkoma sumra Íslendinga. Menn hafa skilið hér eftir verri leðju í athugasemdum en rauðrófusafann sem Evaristti hellti hér inn á síðuna. 

Fornleifur frændi er hins vegar ekki glaður þessa stundina, því Marco sletti líka ávaxtalit á gleraugun hans (sjá hér).


mbl.is „Ég borgaði ekki“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fräulein Hauptmann á Iceland Review

frl_hauptmann.jpg

Ung þýsk kona, Katharina Hauptmann að nafni, hefur skrifað fyrir Iceland Review og t.d. Wall Street International, og er víst sérfræðingur í gyðingahatri, þegar hún er ekki barþjónn í Reykjavík. Hún kemur líka frá því menningarsvæði þar sem fyrirbærið gyðingahatur hefur náð hæstum hæðum á síðari tímum. Er því nokkur furða, að hún sé sérfræðingur í þessu ljóta fyrirbæri? En fyrir gyðingahatri hefur stúlkan víst aldrei orðið, svo hvernig hún veit hvernig það er, er mér ekki fyllilega ljóst.

Í hvert sinn sem gyðingar gangrýna Ísland fyrir gyðingahatur sem fram kemur á alþjóðlegum vettvangi er þessi kona, sem býr á Íslandi, farin á kreik til að segja öllum að gyðingahatur sé alls ekki til á Íslandi og að ekkert vandamál sé þar til staðar.

Þetta gerði hún árið 2011(sjá hér) og aftur á FB sinni í sl. mánuði, þegar birtist frekar léleg grein eins af deildarstjórum SWC (Simon Wiesenthal Center), sem hafði uppgötvað sjúkt myndband eftir íslenskan listamann. (Sjá skjámynd af FB Hauptmanns  neðst).

Kona þessi telur greinilega ekki að gyðingahatur getir verið til staðar í landi ef í því búi engir eða mjög fáir gyðingar. Þó samlandar hennar fyrr á árum hafi nær verið búnir að myrða alla gyðinga Evrópu með dyggri aðstoð ýmissa annarra þjóða, og að gyðinga sé næri aðeins að finna á söfnum í sumum löndum þar sem Helförin fór fram, þýðir það þó ekki að gyðingahatrið hafi horfið. Það er enn til í Þýskalandi og fjölda landa í mið og austur-Evrópu. Maður verður svo sannarlega var við það. Önnur rök hennar eru eins og eitthvað glamur í drukkinni menntaskólapíu. "Aðeins 2 % Íslendinga eru kaþólikkar" skrifar Hauptmann. "Þrátt fyrir það hata aðrir Íslendingar ekki íslenska kaþólikka". Þetta á, að mati Fräulein Hauptmann, að sýna það fjarstæðukennda í að nokkur á Íslandi sé gyðingahatari.

Nú vill svo vel til, að kona þessi sankar að sér vinum á Facebook sem deila með henni skoðunum sem verður hreint út sagt að gera Wall Street International viðvart um og það við fyrsta tækifæri. Þýsk Fräulein með slíka vini getur vitanlega ekki skrifað fyrir Wall Street International.

Meðal þeirra er bandaríski ríkisborgarinn Ted Theewen að nafni. Í mars sl. skrifaði þessi maður, sem er greinilega er satanisti og gyðingahatari í ofanálag þetta á FB Katharinu Hauptmanns, og hún lét það óáreitt:

Jews are all for making fun of other religions until it´s their turn. There is an old Polish proverb: The harder a Jew hits you, the louder he cries out in pain. I´ve noticed that Iceland is under a systematic attack by Zionist interests. I´m sure the attacks will stop once you give them something. A Holocaust museum usually shuts them up for a while.

Svo mörg voru orð FB-vinar Katharinu Hauptmann. Skrif hennar og dómur hennar um gyðingahatur á Íslandi voru hér vegin og léttvæg fundin. Fräulein Hauptmann, greinarhöfundur á Iceland Review og Wall Street International er alls ekki dómbær á gyðingahatur frekar en þeir gyðingahatarar sem hún vingast við á FB.

Iceland Review er lítill sómi í að ráð slíka manneskju til að rýna í íslenskt þjóðfélag Benedikt Jóhannesson, ESB sinni í öðru veldi, ræður þar ríkjum og ætti að vita það. Nýlega greindi hann sannarlega ástandið rétt er hann sagði að Þýskaland réði öllu í ESB (sjá hér). Það má líka til sanns vegar færa, að langt er of gengið þegar þýskar fraukur eru farnir að tjá sig um tilfinningar gyðinga í íslenskum þjóðernisglansblöðum á ensku, líkt og þær væru sérfræðingar í þeim efnum. Ætli Hauptmann hafi boðið Wall Street Journal greinar sínar um gyðinghatrið á Íslandi, þar sem hún segir m.a. að sérfræðingur Simon Wiesenthalstofnunarinnar sé bjáni? Nei, ætli það? En best er að spyrja...

fraulein_hauptmann3_1257536.jpg


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband