Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Spaugilegt

Rænt frá barni - peði fórnað fyrir "drottningu"

 
Miyoko Ono Fischer

Stöð 2 heldur því fram að Miyoko Watai hafi verið löglega gift Fischer og að dóttirin, Jinky Fischer á Filippseyjum, eigi ekki heimtingu á grænum eyri.

Ef Watai var löglega gift Fischer, gerðist það eftir ágúst 2004 og reyndar eftir að hann kom úr fangelsi í Japan og fór til Íslands. Sbr. gögn á þessari síðu . Það er að segja á Íslandi, og því hljóta íslensk yfirvöld að hafa pappíra sem sanna að til hjúskapar hafi verið stofnað. Gaman væri að sjá þau gögn.

140 millur og íbúð til japönsku konunnar og ekkert til barns Fischers. Þetta mál á líklega eftir að draga dilk á eftir sér.

Í erfðalögum 1962 nr. 8 fæ ég ekki séð hvernig er hægt að sniðganga barn Fischers, nema að hún hafi haft í hótunum við hann og misgert erfðarétti. Hún er 7 ára.


Dóttir Fischers

 Baby Fischer

 

Hvað erfir dóttir Róberts Fischers?

Nú þegar menn virðast farnir að rífast um hvar eigi að jarðsetja Bobby Fischer, er kannski best að spyrja hver á að sjá um dóttur hans á Filippseyjum? Hún er dóttir Íslendings og ætti að geta sest að á Íslandi, sérstaklega ef eitthvað er eftir af búi Bobba.

Sýnum nú stórhug og bjóðum þessum nánasta ættingja hans og barnsmóður hennar til Íslands!

 

baby_chess

 


Þurrkaðar döðlur

 le maccam el

Ég heyri, og sé, að Ingibjörg Sólrún er skærasta stjarnan á Egyptalandi þessa dagana. Þar hitti hún meðal annars starfsbróður sinn sem heitir Geit. Þau hafa örugglega um margt að ræða. Í dag tjáði hún sig um friðarferlið í Miðausturlöndum í hádegisfréttum á RÚV. Al Jasíra var líka með hálftíma frétt um heimsókn Ingibjargar Sólrúnar, sem varð til þess að nýjasta ræða Osoma Bin Ladens var frestað. 

Ég hef oft velt fyrir mér, af hverju friðarferli séu svo mikilvæg fyrir Ingibjörgu og almenning á Íslandi? Er ekki nær að leysa hnútinn sem er kominn á slaufuna hans Þorsteins Davíðssonar eftir greiðann sem Matthiesen gerði honum.

Af hverju tuðar konan á "landnemabyggðum" gyðinga sem aðalvandamálinu á svæðinu, meðan hún segir lítið sem ekkert um árásir öfgafullra íslamista á saklausa íbúa Ísraelsríkis og annarra landa.

Er ekki nóg af vandamálum á Íslandi sem væri nærri lagi fyrir Ingibjörgu og samráðherra hennar að leysa, í stað þess að þeysast um á drómedara og upp á pýramída og ætla sér að leysa vandamál sem engar líkur eru á að leyst verði meðan að nær allur heimur Íslams, og vinstrimenn á Vesturlöndum þar að auki, leggja fæð á Ísraelsríki og hata lýðræði?  

Myndin að ofan er af fararskjóta ráðherrans, sem er af gerðinni Jassir. Þetta er rykþétt lúxorbikkja með leðursætum, innbyggðu kælikerfi og vatnstanki. Sú neðri er bara lík Abdul Geit, utanríkisráðherra Egyptalands.

P.s. gleymdi Imba nokkuð að mótmæla mannréttindabrotum í Egyptalandi?

 

mummy

Íslam á Njálsgötunni

Dansk grín 

Kjaftasíðan visir.is, sem er aðalheimild mín í dag, greinir frá bókakynningu í dag í einhverri holu á Njálsgötunni, þar sem menn telja sig vera avant garde, en eru það ekki.

Þarna á Njálgsgötunni verða hengdar upp myndir og gert grín af því sem Íslendingum þykir heilagast. Væntanlega myndir af SS-pulsum og fínu bílunum. Ha,ha, ha. Þetta er gert í samstöðu við Íslam og vegna "hættulegra einfaldana í umræðunni um Íslam á Íslandi og víðar í heiminum".

Myndin hér að ofan er eftir Lóu Hlín og er með í bókinni sem á að kynna. Lóa hefur greinilega verið í Bónus að versla. Ef Lóa litla væri á slóðum þess Íslams, sem notað er til að brenna dönsk sendiráð og hóta gjörvöllum heiminum með ragnarökkri, væri Lóa litla á Brú svona:

Grín

Eða er það ekki svo, að ef konur eru með einhvern kjaft í löndum sem stýrt er eftir ÍSLAM eða klæða sig rangt, eru þær grýttar og hengdar. Það er enginn einföldun, heldur bláköld staðreynd. Ætli vinir Íslams á hinum síðustu dögum heilögum ræði eitthvað um það á Njálsgötunni á eftir.

Samkvæmt fréttinni verður boðið upp á  íslamskt snakk. Hvað ætli það sé? Kóransnittur, fötvur eða afskornir al Dimmah-limir?


Verðviðkvæmni

 

Bónus

Ég hlustaði á fréttir á RÚV í dag. Það geri ég harla sjaldan, því það eru svo margir postular sem vinna á þeirri fréttastofu, sem frekar ættu að vinna í einhverju áróðursráðuneyti í Norður Kóreu.

Í dag var greint frá nýrri íslenskri doktorsritgerð í hádegisfréttum. Doktorinn sem hefur skrifað hana kemst að þeirri niðurstöðu, skv. RÚV, að Íslendingar séu ekki verðviðkvæmir og að vöruverð hafi engin áhrif á kauplöngun (græðgi) Íslendinga.

Það þýðir á mannamáli að Íslendingum er sama hvernig svindlað er á þeim. Bara að það sé svindlað á þeim. Verðlækkanir geta jafnvel orðið til þess að þjóð flottræflanna á hjara veraldar kaupi ekki vöruna sem lækkuð hefur verið. Svo segir að minnsta kosti nýi doktorinn í verðskyni Íslendinga.

Mig grunar að fréttastofa RÚV hafi kannski ekki alveg náð innihaldi doktorsritgerðarinnar. Samkvæmt fréttaflutningi RÚV byggði rannsóknin á athugunum doktorsins á verðlagi á hárnæringu og hársápu. Er hægt að verða doktor í sápu og balsam? Vitaskuld ekki. Valdimar Sigurðsson er með doktorspróf í markaðsfræði með áherslu á neytendasálfræði við Cardiff University, Wales, Bretlandi, skv. háskólanum í Reykjavík.

Verðviðkvæmni hlýtur að vera alveg nýtt orð í íslensku. Og ef ég hef skilið það rétt er ég mjög verðviðkvæmur. Enda á ég ekki einkaþotu.


Finnar eru orðnir hringavitlausir

Eimskipahringurinn
 

Hörkusala hefur verið í hakakrosshringjum í Finnlandi fyrir jólin. Mætti halda að þetta fyrirbæri væri aðaljólagjöfin þar í landi í ár. Að minnsta kosti halda menn ekki vatni í þúsund landa vatninu fyrir þessu baugsilfri.

Upphaflega var þessi hringur seldur árið 1940 til að safna peningum vegna stríðsins við Rússa. Nú er verið að reyna að safna peningum með hringaframleiðslu til að gefa gömlum finnskum hermönnum náðugt ævikvöld. Sumir þeirra börðust "frækilega" með nasistum.

60.000 hringar hafa nú verið búnir til, og seljast þeir grimmt fyrir rétt rúmar 5000 krónur íslenskar.

Forstöðukona sölunnar, Pia Mikkonen, greinir erlendum fjölmiðlum frá því, að ýmsir frægir Finnar auglýsi hringana í sjónvarpi og í öðrum fjölmiðlum, og að þeir séu vinsæl gjöf fyrir unga karla. Talskonan segir: "There hasn't been confusion here in Finland," she said. "For us Finns, it's not a negative symbol."

Vita Finnar ekki að þegar Eimskip droppaði hakakrossinum fór allt að ganga betur hjá Eimskip?

Miður frægðarleg samvinna Finna við Þýskalands nasismans gerir óneitanlega marga undrandi á þessu hakakrossastandi í þeim. En greinilegt er að mörgum þykir þetta svaka flott merki.


Black Magic Woman

Black magic woman 

Kári Stefánsson gerir nú nóbelsverðlaunamóttakandann James Watson að konu!

Kári Stefánsson segir nú  http://www.slate.com/id/2180067/, samkvæmt vefblaðinu SLATE, að meira en vel geti verið að Nóbelsverðlaunahafinn James D. Watson sé líka kona. Þetta er með ólíkindum. Fyrst var Kári að gera því skóna að hann væri negri og nú bætir hann svörtu ofan á grátt með því að segja að hann geti verið kona.

Hvert er Kári að fara?  Mér er hugsað til orða John Lennons, "Woman is the Nigger the World", og er farið að gruna að Tina Turner, Eartha Kitt, Grace Jones og Ophra Winfrey séu farnar að starfa sem meinatæknar í genabransanum og hafi mengað sýnin með hárlosinu?

Watson virðist vera tilvalinn sem forseti í Bandaríkjunum, fyrst hann er svona fín blanda af frú Clinton og herra Obama?

Það verður bara að vera lag við svona heimsfrétt!

Kári er að draga í land. En mikið lifandi er ég nú búinn að hafa gaman af þessu upphlaupi vísindamannsins.


Eru Íslendingar greindastir meðal hvítra manna?

But the Icelanders are the most intellegent 

 

Kári Stefánsson, vísindamaðurinn íslenski, er fyrst nú orðinn heimsfrægur. Og það fyrir að gera negra úr James D. Watson nóbelsverðlaunahafanum, sem lítur niður á svart fólk. Kári virðist hafa verið svo uppveðraður af "uppgötvun" sinni, að hann hoppaði á einum fæti um hálfa Ameríku og montaði sig af henni í nóvember síðastliðnum.

Hann  kom t.d. við á skrifstofu tímaritsins Scientific American og þar greindi hann mönnum frá hinni fögru nýju þjónustu, sem hann er farinn að bjóða upp á fyrir minna en 1000 $ á manninn. Nikhil Swaminathan (sem er dulnefni fyrir léttgeggjaðan, en skemmtilegan mann, sem heldur úti bloggi á síðum Scientific Americans) skrifar þetta um heimsókn Kára:

" File Under: Hearsay:Earlier this week, Kari Stefansson, a well-known geneticist and the founder of deCODE, an Icelandic company specializing in translating human genetics into drug development and diagnostic tools, stopped by the Scientific American offices to talk about a new project: For less than $1,000, anyone can send his company a cheek swab and get his or her genome scanned. Then, via the decodeme.com website, they can review a number of predetermined complex genetic disorders to assess his or her relative risk for developing maladies such as diabetes, myocardial infarction and even restless leg syndrome.

In addition, you can check your ancestry to get an idea of the geographical distribution of their forefathers. According to Stefansson, when he put in James Watson's genome, which was sequenced earlier this year and made publicly available, the legendary geneticist turned out to be 20 percent African. (When we checked his claim, it was more like 16 percent, but with rounding, fine.) Stefansson remarked that the ancestry test suggests that Watson had at least one African ancestor within two or three generations of his birth.

Like I said, this is just gossip. But it would be ironic. Don't cha think? A little too ironic. "

Þið getið lesið alla greinina á Scientific American http://science-community.sciam.com/thread.jspa?threadID=300005381 og eins grein í The Scientist 

Á þessu sést að Kári var að tala um 20% negragen þegar hann var í heimsókn hjá Scientific American. Nú er hann búinn að draga í land og talar um 16%. Bíðið við, hvað hefur gerst?

Kári gleymir orðum sínum um nauðsyn ættfræðinnar. Því miður, fyrir Kára og þá sem trúa á túlkun hans á erfðamengi Watsons, eru ættir James Watsons nokkuð vel þekktar aftur á 19. öld. Engir "svartir" þar eða "asískir".  Til að fræða Kára Stefánsson og ykkur hin "sem á hann trúið", þá er hér ágæt úttekt á ætt James Watsons og hér getið þið lesið fyrsta kaflann í sjálfsævisögu mannsins.

En hvernig varð þá þekktasta niðurstaða Kára, fyrr og síðar, til? Kári vill ekki tjá sig um neitt samkvæmt Scientific American.

Kári verður að fara að sýna þá skrafreifi sem hann sýndi nýlega af sér á skrifstofu Scientific American og skýra málið. Í leiðinni gæti hann útskýrt fyrir okkur hvernig stendur á því að hann er komminn af einum eða einhleypum Víkingi: "Kari Stefansson can trace his lineage back to a single Viking". Ja, því er að vísu haldið fram á http://www.time.com/ og segir þar að margir Íslendingar séu í sömu skóm og Kári. Ég er ekki einn af þeim. Víkingarnir í mínum ættum voru sko ekki single.

Ef ég yrði einhvern tíma svo aðþrengdur, að ég þyrfti að sækja mér þjónustu hjá Kára Stefánssyni og Co, þá myndi ég velta 1000 dollurunum aðeins í lófanum áður en ég afhenti þá. Það kæmi mér hins vegar alls ekki að óvart ef töluvert væri af svörtum, gulum og áður ófundnum genum innra með mér mér. En hverju skiptir það?

Eitthvað í blóðinu í mér er nú farið að búa til rapp-vísu með dillibossum, gullkeðjum, köggum og öllu tilheyrandi um þessi merku tíðindi, en ég læt ykkur sleppa við það í þetta sinn. Þið fáið það kannski seinna.

Þangað til getið þið lesið um málið í tveimur fyrri færslum mínum hér og hér.


Hver verður Svarti Pétur?

DeCODE 

Ekki er allt sem sýnist.

Ég sagði frá þessu í morgun kl. 11:44. http://www.postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/388330/ og var farinn að halda að Kári Stefánsson hefði ekki heldur frétt af þessu.

Það er ekki rétt að Kári hafi rannsakað erfðamengi Watsons. Hann hefur aðeins skoðað niðurstöður rannsóknar annars fyrirtækis.

Ekki eru allir sáttir við alhæfingar Kára Stefánssonar.

Nú verðum við bara að bíða og sjá hver er Svarti Pétur í þessu upphlaupi. Greinilegt er samkvæmt rannsókninni, að Watson er líka 9 % Asíubúi.  Hvernig hefur öll þessi kynblöndun farið framhjá ættinni hans?


mbl.is Nóbelsverðlaunahafi með svört gen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kári Svartlitningur

 

16 % 

how I love you, how I love you...... Ó, ó, ó Kári

Kári Stefánsson er búinn að gera eins konar svertingja úr Dr. James Watson, sem deildi nóbelsverðlaununum árið 1962 með Crick og Wilkins fyrir að lýsa byggingu DNAsins

Nýlega talaði  hann illa um negra (svarta, blökkumenn) og sagði þá vera minna greinda en hvíta manninn. Það þurfti Watson að éta ofan í sig aftur.

Nú berast fréttir utan úr heimi um að einhver Kari Stefansson sé búinn að greina erfðamassann í Watson fyrir blaðið Independent og segir niðurstaða Kara, að Watson sé 16 % negri (svartur, blökkumaður, black American, you name it).

Kannski komu þessi vitlausu og ógreindu ummæli Watsons um blökkufólk út úr honum vegna þess að hann er 16% blakkur?

Nú getur víst enginn verið óhultur fyrir Kára Svartlitningi.

Sjá: http://news.independent.co.uk/sci_tech/article3239366.ece


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband