Leita í fréttum mbl.is

Eru Íslendingar greindastir meðal hvítra manna?

But the Icelanders are the most intellegent 

 

Kári Stefánsson, vísindamaðurinn íslenski, er fyrst nú orðinn heimsfrægur. Og það fyrir að gera negra úr James D. Watson nóbelsverðlaunahafanum, sem lítur niður á svart fólk. Kári virðist hafa verið svo uppveðraður af "uppgötvun" sinni, að hann hoppaði á einum fæti um hálfa Ameríku og montaði sig af henni í nóvember síðastliðnum.

Hann  kom t.d. við á skrifstofu tímaritsins Scientific American og þar greindi hann mönnum frá hinni fögru nýju þjónustu, sem hann er farinn að bjóða upp á fyrir minna en 1000 $ á manninn. Nikhil Swaminathan (sem er dulnefni fyrir léttgeggjaðan, en skemmtilegan mann, sem heldur úti bloggi á síðum Scientific Americans) skrifar þetta um heimsókn Kára:

" File Under: Hearsay:Earlier this week, Kari Stefansson, a well-known geneticist and the founder of deCODE, an Icelandic company specializing in translating human genetics into drug development and diagnostic tools, stopped by the Scientific American offices to talk about a new project: For less than $1,000, anyone can send his company a cheek swab and get his or her genome scanned. Then, via the decodeme.com website, they can review a number of predetermined complex genetic disorders to assess his or her relative risk for developing maladies such as diabetes, myocardial infarction and even restless leg syndrome.

In addition, you can check your ancestry to get an idea of the geographical distribution of their forefathers. According to Stefansson, when he put in James Watson's genome, which was sequenced earlier this year and made publicly available, the legendary geneticist turned out to be 20 percent African. (When we checked his claim, it was more like 16 percent, but with rounding, fine.) Stefansson remarked that the ancestry test suggests that Watson had at least one African ancestor within two or three generations of his birth.

Like I said, this is just gossip. But it would be ironic. Don't cha think? A little too ironic. "

Þið getið lesið alla greinina á Scientific American http://science-community.sciam.com/thread.jspa?threadID=300005381 og eins grein í The Scientist 

Á þessu sést að Kári var að tala um 20% negragen þegar hann var í heimsókn hjá Scientific American. Nú er hann búinn að draga í land og talar um 16%. Bíðið við, hvað hefur gerst?

Kári gleymir orðum sínum um nauðsyn ættfræðinnar. Því miður, fyrir Kára og þá sem trúa á túlkun hans á erfðamengi Watsons, eru ættir James Watsons nokkuð vel þekktar aftur á 19. öld. Engir "svartir" þar eða "asískir".  Til að fræða Kára Stefánsson og ykkur hin "sem á hann trúið", þá er hér ágæt úttekt á ætt James Watsons og hér getið þið lesið fyrsta kaflann í sjálfsævisögu mannsins.

En hvernig varð þá þekktasta niðurstaða Kára, fyrr og síðar, til? Kári vill ekki tjá sig um neitt samkvæmt Scientific American.

Kári verður að fara að sýna þá skrafreifi sem hann sýndi nýlega af sér á skrifstofu Scientific American og skýra málið. Í leiðinni gæti hann útskýrt fyrir okkur hvernig stendur á því að hann er komminn af einum eða einhleypum Víkingi: "Kari Stefansson can trace his lineage back to a single Viking". Ja, því er að vísu haldið fram á http://www.time.com/ og segir þar að margir Íslendingar séu í sömu skóm og Kári. Ég er ekki einn af þeim. Víkingarnir í mínum ættum voru sko ekki single.

Ef ég yrði einhvern tíma svo aðþrengdur, að ég þyrfti að sækja mér þjónustu hjá Kára Stefánssyni og Co, þá myndi ég velta 1000 dollurunum aðeins í lófanum áður en ég afhenti þá. Það kæmi mér hins vegar alls ekki að óvart ef töluvert væri af svörtum, gulum og áður ófundnum genum innra með mér mér. En hverju skiptir það?

Eitthvað í blóðinu í mér er nú farið að búa til rapp-vísu með dillibossum, gullkeðjum, köggum og öllu tilheyrandi um þessi merku tíðindi, en ég læt ykkur sleppa við það í þetta sinn. Þið fáið það kannski seinna.

Þangað til getið þið lesið um málið í tveimur fyrri færslum mínum hér og hér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

það sem stendur uppúr eftir þessa færslu er að ég er komin með alanis morrisette á heilann! takk

halkatla, 13.12.2007 kl. 17:38

2 Smámynd: Vilhelmina af Ugglas

Kári er ekki vísindamaður. Hann er fyrst og fremst klár í viðskiptum og duglegur að fá góða vísindamenn til liðs við fyrirtækið.

Vilhelmina af Ugglas, 13.12.2007 kl. 21:23

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Kári er klár, enginn vafi á því. Vísindamennsku hans þekki ég ekki, og hef ekki fylgst nógu vel með því sem fólk hefur verið að skrafa um það.

Anna, þú nefnir Morrisette. Ég fatta ekki alveg hvert þú ert að fara, þar sem ég þekki ekki nógu mikið til þeirrar ágætu söngkonu. Hefur hún sungið eitthvað lag sem heitir deCODE eða hefur hún líka fengið svört gen í tækifærisgjöf frá deCODE?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 13.12.2007 kl. 23:45

4 Smámynd: halkatla

But it would be ironic. Don't cha think? A little too ironic. "

þessi orð eru næstum alveg einsog textinn í laginu ironic með Alanis M, mér fannst bara fyndið að þegar ég stóð upp eftir að hafa lesið hjá þér þá hljómaði það skyndilega í huganum. Greinin sjálf var samt mjög góð en þetta stóð uppúr (það getur verið pirrandi að fá lög á heilann, þakkirnar áttu að vera ironic en það komst ekki alveg til skila kannski vegna hláturs)

halkatla, 14.12.2007 kl. 05:52

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Já nú birti upp. Ég man bara lög, en gleymi textunum. Eða eins og meistari Dylan orti: I remember their faces but forget their names. Ég er líka dálítið ironic í greininni, neita því ekki.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 14.12.2007 kl. 08:36

6 Smámynd: Egill

skemmtilegt nokk er að það er kaldhæðni í þessu lagi hennar Alanis, því það sem hún talar um í laginu er alls ekkert kaldhæðni. kaldhæðnin væri í raun sú að kona semji lag um þetta hugtak og veit ekki hvað það þýðir

Egill, 14.12.2007 kl. 13:29

7 identicon

"Kari Stefansson can trace his lineage back to a single Viking", þetta þýðir að hann getur rakið ættir sín aftur til eins staks víkings, með áherslu á "einn stakann".

Það þýðir ekki að víkingurinn hafi verið einhleypur, heldur mætti túlka það þannig að ekki er vitað hver formóðirin var. 

Elís (IP-tala skráð) 14.12.2007 kl. 13:31

8 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Veit ég vel Sveinki (Elís), en maður má nú leika sér að orðum þegar blaðamenn eru svo ónákvæmir. En þetta hefur Kári nú sagt honum og hef ég líka heyrt Kára halda þessu fram á hóteli hér í Kaupmannahöfn sem nýlega komst í hendur Íslendinga.

Víkingar eru fræðiheiti fyrir Skandínava á "Víkingaöld" og ekki er alveg vitað hverju þeir voru og tæpast hafa verið margir þeirra á meðal Íslendinga. Mikið þætti mér gaman að sjá og heyra um þennan eina Víking sem Kári er kominn af.  Er hann með í Íslendingabók eða Landnámu? Það var kannski Hálfdan Svarti eða Moldar Gnúpur?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 14.12.2007 kl. 14:17

9 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Egill, er þú ekki örlítið ungur til að vera að blogga hér (sbr. myndina úr skírnarveislunni þinni) og hvað segja mamma og pabbi? En þar sem þú ert efnilegur snáði held ég að þú þolir að heyra að  írónía, eins og Sókarates notaði hana, er venjulega ekki þýdd sem kaldhæðni. Það er frekar gríska orðið sarkasmi sem dekkar kaldhæðnina. En það hlýtur að vera kaldhæðni örlaganna, að að ég skil heldur ekki hvert þú ert að fara með hana Alanis og það sem hún skilur ekki.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 14.12.2007 kl. 14:38

10 Smámynd: Aðalbjörn Leifsson

Það er alveg augljóst að Íslendingar eru ekki greindastir af hvítum, þar sem allir eru að misskilja hvern annan. Annars er þetta fínn svartur húmor hjá þér.

Aðalbjörn Leifsson, 14.12.2007 kl. 19:49

11 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Kannski er misskilningur til marks um greind, Aðalbjörn

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 14.12.2007 kl. 23:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband