Færsluflokkur: Trúmál og siðferði
14.12.2009 | 23:55
21. öldin á fullu
Trúmál og siðferði | Breytt 25.12.2009 kl. 14:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
5.12.2009 | 16:21
Jinky Express
Jinky, dóttir Bobby J. Fischers heitins, er kominn heim og farin aftur. Menn tóku úr stúlkunni sýni. Enginn fékk að sjá hana (viðbót: nema allir sem horfðu á RÚV eftir að þessi færsla var skrifuð). Gaman hefði verið að sjá hvort hún er orðin meira lík karli föður sínum en hún var árið 2004.
Ég skrifaði í byrjun síðasta árs fjölmargar færslur ásamt öðru góðhjörtuðu fólki sem vildi vernda hag dóttur skákmeistarans. Ég komst í sambandi við ýmsa kunnuga menn á Filippseyjum til að finna hvað vakti fyrir skákeistarunum Torre og lögfræðingi hans. Þar vildu menn sem minnst segja (nema fyrir peninga), en flestum þótti líklegt að græðgi Torres væri fremri kærleika í garð meints barns Fischers. Á Filippseyjum verður manni ekki mikið ágengt ef maður borgar ekki undir borðið fyrir greiða. Svo ég hafði ekki árangur sem erfiði.
Nú, þegar búið er að taka sýni úr Jinky litlu, hún komin og farin, kemur vonandi í ljós hvort hún er dóttir skrítna karlsins sem boðið var til Íslands fyrir ómælda duttlunga þjóðfélags sem var í skýjunum af eintómri sjálfsánægju og afneitun.
Eitt er þó víst, að þegar Jinky var hér í fyrsta sinn með móður sinni, vildi Fischer ekki einu sinni hafa þær í íbúð sinni. Þær voru látnar dúsa á gistiheimili að Brúnavegi 8, þar sem þær voru hræddar. Filippseysk kona í Reykjavík bauð þeim að búa hjá sér.
Annað er víst, en það er að íslenska kirkjan, þar sem sumir prestar halda að Jesús hafi fæðst í Palestínu, leyfir dýrlingadýrkun. Þar sem Fischer er jarðsettur austanfjalls, er verið að færa alls kyns skurðgoð og líkneski inn í kirkjuna til minningar um skákkónginn, sem holað var niður við stétt utarlega í kirkjugarði.
Trúmál og siðferði | Breytt 7.12.2009 kl. 08:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
4.12.2009 | 10:46
Andri Snær bannar mér að nota ljósmynd af sér
Í gær var mér bannað að nota ljósmynd. Ljósmynd af Andra Snæ Magnasyni, sem í upphafi prýddi síðustu færslu mín, hefur verið fjarlægð að ósk einhverra veflögregluaðila sem hafa haft samband við bloggumsjónarmenn www.mbl.is.
Ég hef rætt við ljósmyndarann, sem reyndist eiga myndina, en ekki hafði hann haft samband við Morgunblaðið og heldur ekki rit það, gefið út af Iceland Express, sem keypt hefur myndina af honum (en ekki einkaréttinn). Ég fjarlægði myndina stax þegar mér barst erindið frá www.blog.is.
Greinilegt er að færsla mín hefur farið fyrir brjóstið á einhverjum. Þessum "einhverjum", sem eru búnir að skíta í leðurbuxurnar, og Andra Snæ til heiðurs birti ég nýja mynd af ekta þýskum náttúruverndarmanni sem ekki er ósvipaður Andra í Draumalandinu:
Ljósmyndin, sem ég mátti ekki nota, var þangað til rétt áðan notuð af Alfred Töpfer Stiftung. En hver gaf þeim leyfið. Samkvæmt starfsmanni sjóðsins, Gielke, var það Andri sjálfur er sendi þeim myndina og samkvæmt umsjónarmönnum blog.is var það Andri Snær sem vildi setja "lögbannið" á mig. Andri sendi hins vegar mynd í leyfisleysi til Alfred Toepfer Stiftung.
Alfred Toepfer Stiftung er nú búin að fjarlæga myndina af heimasíðu sinni, eftir að ég hafði samband og í ljós kom, að mynd sem mér er bannað að birta er ekki eign og copyright Andra.
Ef Andri Snær vill fá lögbann á gangrýnar raddir, getur hann tekið þátt í umræðunni á bloggi mínu. Hann er fjandakornið ritfær!
Ljósmyndin hér fyrir neðan sýnir að bönn og ritskoðun eru ekki ný bóla.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 13:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
26.11.2009 | 13:54
Veni Vidi Vici
Alltaf finnst eitthvað skemmtilegt í jörðinni. Í vor fannst forláta gullhringur vestan við Þingvallakirkju. Þetta kom í fréttum og í sumar var gripurinn kosinn gripur mánaðarins á vefsíðu Þjóðminjasafns Íslands. Þar, eins og í frétt Morgunblaðsins, var því haldið fram að þetta væri innsiglishringur og að á honum stæði F og I, og að þar væri jafnvel hægt að sjá kórónu og skjöld.
Ég var nýlega spurður um álit mitt á þessum grip. Ég var sammála því að hringurinn væri úr gulli og að steinninn væri blóðsteinn (heliotrop). Ég taldi af myndum að dæma, að gullkarat hans væri mjög lágt.
Ég er hins vegar ekki sammála sérfræðingi Seðlabankans um áletrun þá sem skorin er í stein hringsins. Sérfræðingurinn er oft fenginn til að tjá um sig um áletranir og myntir.
Í stein hringsins er skorið A w og I sem ekki þýðir neitt annað en Alfa, Omega (með litlum staf) og Iesous, skrifað upp á grísku. Skammstöfun fyrir Jesús, Upphafið og Endinn.
Til að kóróna þetta, er það sem sérfræðingur Seðlabankans taldi vera kórónu, þrjú vöff. V V V, sem samkvæmt þessum fornleifafræðingi er skammstöfun fyrir Veni, Vidi, Vici. Þessi fleygu orð Cæsars hafa oft verið tengd Jesús, sem kom sá og sigraði.
Þjóðminjasafn Íslands sættir sig örugglega ekki við þessa túlkun, þar sem þar var ekki óskað eftir störfum mínum og skoðunum framvegis árið 1996. Það gildir væntanlega fyrir niðurstöður mínar og álit líka.
Innsiglishringur, er gripur mánaðarins í júlí 2009 kannski ekki, og ekki hringur Jesús. En næsta líklegt tel ég að hann sé frá 18. eða 19. öld. og gæti jafnvel verið frímúrara- eða regluhringur.
Leyfi ég mér að minna á önnur innsigli sem ég hef skrifað um. Sjá hér.
wTrúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 19:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
23.11.2009 | 13:50
Jesú haldið í gíslingu nærri Kringlunni
Borgarleikhúsið er enn með látalæti og trúðshátt. Nú í leikriti sem kallast Jesús litli. Samkvæmt leikskrá fæddist Jesús litli í Palestínu. Ef svo er, er Jesús litli líklega týndur, því hann fæddist ekki í Palestínu.
Það fer ýmsum sögum af því hvar hann fæddist hann Jesús, en ekki var það í Palestínu. Heitið Palæstina var fyrst notað formlega yfir það land sem Jesús fæddist í á 2. öld eftir Krists burð. Þá varð Provincia Judea að Syria Palaestina, og var sú breyting bara einn liður í kúgun Rómverja á Gyðingum.
Hvernig þetta slys" með Palestínudrenginn Jesús er komið inn í leikrit í Borgarleikhúsinu get ég nú vel gert mér í hugarlund. Menn hamast mikið í þessu nafni.
En það er stórfurðulegt að höfundar leikritsins hafi ekki getað notið aðstoðar íslenskar þjóðkirkjupresta til að fá haldgóðar upplýsingar um hvar Jesús litli fæddist. Samkvæmt leikskrá aðstoðuðu prestar, prelátar og prestslærlingar eins og Auður Eir, Bernharður Guðmundsson og Davíð Þór Jónsson, ásamt fleirum, höfundana og leikara Jesúsar Litla.
Er það opinber stefna Þjóðkirkjunnar á Íslandi, að Jesús hafi fæðst í Palestínu? Ef svo er, þá var Jesús væntanlega ekki til. Og gleðjast nú Vantrúarmenn. Já, ef hann fæddist í "Palestínu", er hann líklega bara hluti af hatursfullum áróðri, öfgum og hryðjum eins og nafnið Palestína er oft á okkar dögum. Nú urðu Vantrúarmenn óglaðir, því þeir eru líka mikið fyrir Palestínu, en auðvitað ekki i nafni Aðalsteins ósýnilega og Múhammaðs PR-meistara hans.
Ég vona að Jesús litli komist aftur heim til sín úr þeirri gíslingu sem Borgarleikhúsið hefur tekið hann í í Palestínu. Síðast þegar ég vissi, var Jesús litli með dekkra hár en á meðfylgjandi mynd, en hann er enn með slöngukrullur (ekki slöngubyssu). Þeir sem gætu gefið upplýsingar um ferðir hans, ættu að hafa samband við Þjóðkirkjuna hið fyrsta. Þar var mér tjáð í dag, að ekki væri hægt að gefa einhlýtt svar við því hvar Jesús hefði fæðst. En hugsanlegt má telja að einhverjir prestar hafi þetta á hreinu og geti hjálpað Jesú (Jesúsi, Jesum) litla heim til sín.
Hafið endilega ekki samband við lögregluna. Hún sendir alla útlendinga frá Miðausturlöndum úr landi með fyrstu flugvél.
Trúmál og siðferði | Breytt 24.11.2009 kl. 23:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (43)
17.10.2009 | 13:18
Ef holdið er veikt, er andinn það líka
Mál síra Gunnars Björnssonar hefur ekki vakið sérstakan áhuga minn fyrr en nú. Presturinn hefur verið sýknaður af ásökunum og hefur orð Hæstaréttar sér í hag.
Veraldlegir dómarar eru auðvitað ekki óskeikulir, en síra Gunnar hefur verið sýknaður af dómurum Hæstaréttar og landslög hafa verið virt. Þrátt fyrir það dæmir biskup Íslands Gunnar og rænir hann ærunni og vinnunni.
Maður gæti ætlað að biskupinn talaði á vegum hins óskeikula Guðs, sem hann og Gunnar eiga að boða trúna á. En það er langt því frá. Biskupinn er greinilega orðin æðri Guði þeim sem honum ber að þjóna og setur lög og boðorð að eigin hentugleika, og heldur þau fram yfir lögmál Guðs.
Mér sýnist að mál Gunnars Björnssonar sé orðið að nútíma nornabrennu. Vera má að hann hafi átt, eða eigi við einhvern "veikleika" holdsins að stríða, eins og margir karlmenn, en hann braut engin lög, hvorki mannanna eða Drottins. Biskup Íslands talar ekki í umboði Guðs né laga íslenska ríkisins þegar hann dæmir hempuna af síra Gunnari og skipar honum að "vinna heima". Hann hefur ekkert umboð til þess nema dóm götunnar. Hann hefur hins vegar rétt til þess að veita mönnum fyrirgefningu í nafni Guðs og á góðum degi að biðjast afsökunar á fjölmörgum syndum kirkjunnar.
Biskup Íslands hagar sér eins og æsingameistari á miðöldum á tímum farsótta og andlegrar fátæktar. Honum ber að minnast þess, að forveri hans í starfi var ásakaður um sitt að hvoru tagi, en hvar var blessaður biskupssonurinn þá? Nú vitum við reyndar hvernig hann tók á því máli, og það sýnir sig, að það er ekki sama hver er, síra Gunnar eða Ólafur biskup.
Hræsni kirkjunnar og yfirmanna hennar er hennar versti óvinur. Hvað gerir kirkjan t.d. við presta sína, sem lýsa yfir stuðningi við hryðjuverkasamtök úr pontu? Það er menn sem hylla morðingja. Hýsir íslenska kirkjan vitorðsmenn morðingja? Því miður verður að svara því játandi. Í þjóðkirkjunni hylja miklu siðlausari menn sig með hempu og helgislepju en presturinn, sem hefur verið sýknaður af þeim stóra glæp og perversjón að vilja halda utan um fólk og knúsa það.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 13:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
29.9.2009 | 07:50
Á
Ég ætla ekki að dæma friðartrúarbrögðin Íslam, sem sumir leyfa sér meira að segja að kalla Múhameðstrú. Þau dæma sig nefnilega sjálf og þeir seggir sem misnota trúarbrögðin til skítverka.
En lýðurinn fær það sem lýðurinn vill. Þeir styðja það sem vilja það. Þeir vesturlandabúar sem lýsa stuðningi við öfgaíslam, eins og þeir sem styðja Hamas og Hizbollah og mæla Íranstjórn bót, eru meðsekir að hrottalegum limlestingum. Ég vona að engin sé eftir að rassskella heilaga fábjána á Íslandi fyrir að fá sér kollu af öli. En kannski væri í lagi að kaghýða og raðflengja þessa kjána fyrir stuðning þeirra við verstu fjendur lýðræðis á byggðu bóli.
Múslímar í löndum sem ekki eru enn undir oki Íslam, vilja að sharíalög séu jafngild landslögum. Kannski erum við á Vesturlöndum eftir að sjá fleiri opinberar flengingar og hýðingar eins og aftur í forneskju, og það allt í nafni skilnings. En það verður aldrei á Íslandi. Alkinn Grýla og bjórbumban Leppalúði mun flengja alla sharíaböðla með vendi áður en þeir geta sagt sh..
Þessi tók vendina í eigin hönd á ráðstefnu sem útrásavíkingarnir Ólafur Ragnar Grímsson og Össur Skarphéðinsson sátu nýlega í Qtar. Respect:
Verður hýdd vegna bjórdrykkju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.8.2009 | 17:03
Hólaræða Steingríms í hnotskurn
Nú gefur ríkisstjórnin möguleika á því að menn biðjist afsökunar á syndum sínum fyrirvaralaust. Sérstakir skriftastólar Fjármálaráðuneytisins verða settir upp um land allt, á Tortolu og í London. Steingrímur mun gefa mönnum syndaflausn, ef þeir eru ekki að blanda sér í opinbera umræðu. Nú þurfa þeir sem syndgað hafa ekki að fara til helvítis, þótt að meginþorri íslensku þjóðarinnar sé á leiðinni til ESB, vegna duglausra stjórnmálamanna og bankaræningja. "Með Lögum Skal Land Byggja, en látum þau liggja", segir séra Steini.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 17:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
31.7.2009 | 07:56
Færeyingar hafðir að fíflum
Gárungar úr Danaveldi ferðast nú um Færeyjar og fá frændur okkar til að taka þátt í sjónvarpsrugli, sem gengur út á að venjulegt fólk leikur hlutverk persóna í sjónvarpsþáttaröðinni Dynasty, sem í Danmörku og Færeyjum gekk undir nafninu Dollars. Dynasty er staðfært á Færeyjar. Árangurinn af þessu verki, sem örugglega er styrkt með peningum danskra skattborgara, verður svo hægt að sjá á vefnum (www.dollars.fo).
Tvö dönsk idjót með myndavélar, Tue Biering og Jeppe Kristensen, hafa lýst þessu framtaki sínu fyrir blaðamanni Berlingse Tidende. Þeir hlæja mikið af sjáfum sér, enda eru þessir menn greinilega enn á skólastrákastiginu. Það vekur undrun að Berlingske Tidende sé að auglýsa þennan skrípaleik.
Í Berlingske Tidende lýsa þessir apakettir þeirri einlægu skoðun sinni að Danir tengi Færeyinga skyldleikarækt, þjóðbúningum, vikivökum, hommahræðslu, harðfiski og lunda. Þessir dönsku hálfvitar ætla með þessum kvikmyndahappening sínum að gera Færeyinga meira "kynæsandi".
Skyldleikarækt, Jeremías minn! Danir ættu ekki að tala. Á ákveðnum svæðum í Danmörku er fólk miklu meira skyldeikræktað en Færeyingar, en flestir eru Danir vitanlaga hálfgerðir Þjóðverjar og restin er á góðri leið að verða þegnar í fjórða ríkinu, Ummah.
Ég held að Tue og Jeppi ættu að byrja með því að spóla einhverju inn í myndavélina heima hjá sér. Þeir tilheyra þjóð sem að mestu leyti er kominn af drykkfelldum Þjóðverjum og sem beygði sig eins og lóða tík þegar þýski nasistahundurinn tók þá í rassinn í síðasta stríði. Samarbejdspoliltik kalla Danir þær merku samfarir og minnast þeirra með mikilli gleði. Það er efni í margar grínmyndir, sem hægt væri að setja á vefinn. Hvað eru menn að álpast til Færeyja til að fá "billigt grin"? Af nógu er að taka heimavið.
Ég mæli með því að Færeyingar setji þessa dönsku pilta á næsta skip til Kaupmannahafnar og taki kvikmynd af því.
Sá hlær best sem síðast hlær, og það verða Færeyingar.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 09:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.7.2009 | 12:35
Lausnir á vanda
Áður en ég fer í smá frí, ætla ég að koma með lausn á tveimur vandamálum sem ég sá í fréttatíma RUV í gær.
Hljóðið í Ríkharðshúsi á Hjalteyri: Hefur einhver reynt að svara og banka á móti? Ef þetta er ekki skrattinn að morsa til Íslendinga um að ganga í ESB, er ég viss um að byggingameistarinn á húsinu hefur verið danskur eða danskmenntaður. Ef byggingarmeistara húsa í Danmörku er ekki haldið reisugilli þegar hús er fokhelt, hefur það þekkst að þeir múri flösku eða einhvern sívalning innan á skorstein hússins. Í smávindi hvín í þessu og klúkkar. Gætti þetta verið skýringin á hinu undarlega hljóði á Hjalteyri? Eða er þetta bara tilgangsleysi hlutanna undir hjúp hégómans á Íslandi, sem er að láta í sér heyra
Atvinnulausi Englendingurinn á Seyðisfirði: Blessaður maðurinn á samúð mína alla, en það á íslenska kirkjan ekki. Hún sér sér aðeins fært að veita þessum manni og öðrum í sömu stöðu 3 x15.000 króna lán á ári - á sama tíma og þessi helv..is samkunda sendir peninga til svæða í heiminum sem stjórnað er af hryðjuverkasamtökum. Jesús þyrfti víst að fara að banka upp á hjá biskupsstofu? Íslenska ríkið er auðvitað líka máttlaust og allslaust og getur ekki aðstoðað fjölskyldumann í neyð, því það sendir einnig milljónir til hryðjuverkasamtaka, þegar það er ekki að bjarga bönkum og ESB-aðild. Það er víða sem hljóð heyrist úr iðrum jarðar.
Kannski er hljóðið dularfulla á Hjalteyri tómahljóð úr ríkiskassanum.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 17:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 10
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 90
- Frá upphafi: 1352311
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 57
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007