Færsluflokkur: Trúmál og siðferði
4.7.2009 | 22:13
Lars Christensen har talt
... og han har ret som altid.
Mennirnir sem við elskuðum að hata hafa talað. Davíð hefur rænt sviðsljósinu í kvöld. En hlustum nú líka á Banka Lása án þess að hata hann og fordæma eins og Davíð gerði.
Lars Christensen hjá Danske Bank, sem allir hötuðu fyrir að segja sannleikann í litríkum skýrslum sínum hér um árið, þar sem hann líkti íslenskum efnahag við goshveri. Hann hafði á réttu að standa. Nú álítur hann réttast að við lýsum yfir þjóðargjaldþroti.
Hvað er hægt að gera annað með ríkisstjórn eins og þá sem nú er við völd, sem vill selja okkur í þrælkun?
Ráðum Lars Christensen og setjum hann á skrifstofu við hliðina á Joly. Lars Christensen verði þrotabússtjóri Íslands.
Í alvöru talað, Ísland er á kúpunni. Viðurkennum það og byrjum upp á nýtt, án skuldbindinga við skallakomma og upplitaðar kratakerlingablækur með vota ESB-drauma. Höfnum Icesave frumvarpinu með rökhugsun og raunsæi.
Við erum ekki mikilvægari en það, þótt sumir hafi haldið að við hefðum hlutverki að gegna á meðal þjóðanna og værum rétttæk í Öryggisráð SÞ og önnur leiðtogahlutverk. Sjáið hvert sá hybris leiddi okkur.
Lars bendir okkur á Argentínu. Argentínumenn halda tign sinni og dansa enn tangó, þótt allt hafi farið á hausinn. Það getum við líka og sleppt við að verða þrælar.
Og ef George Brown vill setja okkur á hryðjuverkalistann sinn, sá hlægilegi manngarmur, þá gerir hann það í einu af æðisköstum sínum og við munum hlæja að honum eins og allir hlæja af kækjum hans.
Ísland er gjaldþrota. En enginn er dáinn. Enginn missti lífið í Hollandi né Bretlandseyjum. Sumir þeirra sem komu okkur á hausinn ættu að fá 4000 ára fangelsi ef réttarkerfið væri eins og í BNA. Kæmust út eftir 2000 ár fyrir góða hegðun. Þeir munu borga með því að fá aldrei að koma nálægt viðskiptum aftur.
Tak Lars Christensen, nu er jeg enig med dig! Du er faneme en god ven af Island! Lad os håbe nogen lytter til dig denne gang.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 23:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
16.6.2009 | 19:11
Sýnum stuðning þeim sem frelsa vilja Íran
Hvar er íslenska ríkisstjórnin nú? Þegar Palestínumenn öskra og krefjast útrýmingar Ísraelsríkis, eru margir Íslendingar tilbúnir með alls kyns aðstoð. Peninga, gervilimi, sjálfsblekkingu og jafnvel hreinræktað gyðingahatur.
En þegar ein elsta menningarþjóð í Asíu, Íranar, þurfa á hjálp heimsins að halda, er forsætisráðherrann okkar víðs fjarri að skála við kollega sína á Norðurlöndum í Arnarhreiðri nasistaskálds austur á Héraði. Þeir munu víst styðja okkur inn í Fata Morgana morgunlandsins (ESB). En styður Jóhanna baráttu frelsisafla í Íran? Eða í það minnsta réttindi samkynhneigða þar í landi?
Þegar stríðið geisaði á Gaza um áramótin voru bloggarar og fréttamiðlar á Íslandi oft meira uppteknir af því en naflaskoðuninni í sambandi við hrun íslenska efnahagsundursins .
Nú, þegar íbúar eins kúgaðasta land heimsins eru hugsanlega að kasta af sér okinu, heyrist vart í Íslendingum. Þeir eru skriðnir inn í naflann á sér til að leita að kuski. Ekki einu sinni heilög Birgitta, þingmaðurinn sem grætur Þjórsá fyrir Tíbet og er tilbúinn að deyja fyrir Palestínumenn. Nei, hún er að reyna skilja Icesave og bjóða landsmönnum í ókeypis Tíbetbíó.
Egill Helgason, maðurinn á bak við Joly Co la la, og margt, margt fleira, sem er svo stór að alltaf sést í hann á bak við allt það sem hann stendur á bak við (og það er ekki lítið), hefur ekki úthellt galli um Amadinejad eins og hann hellir jafnan sýru og eitri í skál Ísraelsmanna.
Styðjum þau öfl í Íran, sem vilja losna undan vitleysingnum, sem Íslensk yfirvöld, eitt fárra ríkja í Evrópu ákvæðu að heiðra á ráðstefnu SÞ um mannréttindi í Genf í apríl sl.
Frjálsara Íran þýðir aukinn heimsfrið og öryggi.
Ekki tel ég víst, að Mirhossein Mousavi sé það sem menn leggja líf sitt að veði fyrir í Íran þessa dagana. Mig grunar að ungt fólk í Íran sé að andmæla því afbrigðilega Íslam sem eyðilagt hefur hið merkilega og gamla ríki, Íran.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 21:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.5.2009 | 14:03
Útrásarsvínainflúensa
Vart hefur orðið við útrásarsvínainflúensu, HINIR40. Ef maður fær hita, er best að fara úr öllu.
Svínaflensa á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 14:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.3.2009 | 10:57
And so what ?
Múslímum er illa við Anders Fogh Rasmussen.
Hafa múslímar tölu yfir þá sem illa er við þá sjálfa?
Múslimum illa við Anders Fogh | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.3.2009 | 00:14
Al-Dura leikþættinum er lokið
Einn helsti píslavottur Palestínumanna er Mohammad al-Dura, drengurinn sem sagður er hafa verið myrtur af Ísraelskum hermönnum árið 2000.
Sjónvarpsstöðin France 2 sýndi upphaflega sundurklippta upptöku sína frá meintum dauðdaga drengsins. Dauði hans var sagður hafa orðið er hann og faðir hans lentu í skothríð á milli Ísraela og Hamas-liða við landamæri Gaza.
Síðan þá hafa margir haldið því fram, að mynd France 2 hafi verið klippt þannig að halda mætti að drengurinn hafi látist. Aðrir hafa sýnt fram á að ekki sé hægt að sýna fram á að drengurinn hafi í raun dáið. Enn aðrir hafa sýnt fram á að drengurinn hefði ekki getað verið skotinn af ísraelskum hermönnum, heldur aðeins af Palestínumönnum.
Hér er hægt að lesa um málið.
En nú hefur ARD sjónvarpsstöðin þýska gert enn eina rannsókn, sem sýnir að frétt fransk-ísraelska sjónvarpsmannsins Charles Enderlins, hafi verið svindl og prettir frá upphafi. Áður hafði verið sýnt fram á að fráklippur sem Enderlins sagði sýna dauðateygjur drengsins sýndu ekki dauða hans. Þvert á móti. Mælingar á myndum af drengnum sem sést í skotárásinni hafa verið bornar saman við mynd af andliti drengsins sem sýndur var fréttamönnum í líkhúsi og því haldið fram að væri Muhammad al-Durra. Sérfræðingar sem ARD hefur leitað til segja að ekki um sama dreng að ræða.
Kvikmyndin var sýnd 4. mars sl. á ARD. Ætli RÚV þori að sýna þessa heimildamynd?
Hér er það helsta sem fram kemur fram í myndinni:
Thanks to a biometric analysis of the faces, it has been proven that the boy who was filmed by France 2 is not the boy presented at the Gaza morgue and buried later. The eyebrows and the lips are very different.
The German TV used the lip-reading technique to read the father's lips. They discovered that Jamal al Dura gave instructions to the people who were behind France 2's cameraman during the filming of the scene.
The boy filmed by France 2 moves a red piece of cloth down his body for no specific reason.
In France 2's news report, there is no blood - neither on Mohammed nor on Jamal al Dura's body, whereas the two were supposed to have received 15 bullets all together.
The boy shown at the funeral as Mohammed al Dura arrived at the hospital before 10am, whereas France 2's news report was filmed after 2:30pm.
Úti er ævintýri. En lygin mun örugglega lifa áfram og verða notuð til að deyða fólk og sannleikann.
Ég treysti ekki Boga Ágústsyni og RÚV, svo hér getið þið horft á heimildamyndina í fimm hlutum:
1. hluti:
2. hluti http://www.youtube.com/watch?v=rs8mhfSWmbc&feature=related
3. hluti http://www.youtube.com/watch?v=BoJeHz2QHtE&feature=related
4. hluti http://www.youtube.com/watch?v=kuo_SOKhxEw&feature=related
5. hluti http://www.youtube.com/watch?v=Ds0XEoMh4mM&feature=related
Hér einnig eldri analýsa: http://www.youtube.com/watch?v=DzsCBFhCsyY&feature=related
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 11:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
24.2.2009 | 12:25
Handlækningar á þriðjudegi
Loks sá ég myndir af krumlunum á Árna Kanelás Johnsen. Það er kartnögl á hverjum fingri og ekki beint kræsilegt á að líta ! Árni fær ekki lengur starf sem "handmodel", svo mikið er víst. Brekkusöngurinn verður líklega dálítið eitraður.
Það fyrsta sem mér datt í hug, eftir að hafa stundað lækningar í hjáverkum með annarri hendinni og handaálagningar með hinni, er að Árni sé með Yellow Nail Syndrome, Gulnaglaheilkenni, eða annan sjúkdóm sem tengist sýkingu sem hann hefur fengið inn í eitlakerfi sitt. Sykursýki datt mér líka í hug. Þetta hlýtur Árni að hafa athugað, áður en hann fékk þá flugu að eitrað hefði verið fyrir honum með DDT. En hver veit, kannski vinnur einhver brjálæðingur í mötuneyti Alþingis, sem lítur á íslenska stjórnmálamenn sem kakkarlakka og pöddur?
Það verður líka að teljast fyrir neðan allar hellur að menn séu að lauma skordýraeitri í fæðubótaefni. Í fyrsta lagi hefur Árni lengi verið í svo góðu holdum, að furðu sætir að hann sé að innbyrða eitthvað duft sem flutt er inn dýrum dómum frá henni Ameríku, og sem í getur verið hvað sem er. Í öðru lagi hreinsar stólpípa í Póllandi ekki skordýraeitur og einkenni þess úr líkömum manna.
Krumlurnar á sumum á Alþingi eru þó ekkert minni en á Árna. Sjáið t.d. hendurnar á Össur á þessari mynd. Mér hefur líka alltaf þótt Össur dálítið eitraður. T.d. hér um árið þegar hann reddaði apótekarar sumarhúsi sem byggt var á í trássi við þjóðminjalög og náttúrverndarlög. Ég skoðaði einnig nýlegar myndir af höndum Ólafs Ragnars Grímssonar. Greinilegt er, að ekki hefur enn verið eitrað fyrir honum.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 12:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.2.2009 | 11:04
Þjóðarásakanir
Hvor er betri, maðurinn sem bannar júðum" aðgang að verslun sinni vegna stuðnings síns við Hamas, eða maðurinn sem segir Dorrit Moussaieff að vera heima og telja demantana sína", þegar hún segist vilja hjálpa íslensku þjóðinni? Sjá hér . Hvortveggja höfum við séð nýlega. Sá sem bað Dorrit um að vera heima og telja demantana hræsnaði meira að segja og fordæmdi, þegar hann skrifaði um hjólasalann sem ekki vildi júða í búðina sína".
Ég veit sannast sagna ekki hvor er verri, hinn franskmenntaði ættarlaukur, sem sér forsetafrúna á kafi í demöntum, ellegar hjólasalinn á Hverfisgötunni sem hefur lengi hatað gyðinga milliliðalaust. Fordómar þeirra lýsa hins vegar fordómum stórs hóps á Íslandi, sem á uppruna í gamalli hefð: Að kenna útlendingum um allt sem illa fer. En verra er, að íslensk yfirvöld láta þennan ósóma viðgangast og magnast.
Jafnvel sumir mestu stuðningsmenn friðar og réttlætis eru að sletta ósómanum í forsetafrúna Dorrit Moussaieff, sem ég geng út frá að fái heldur ekki viðgerð á hjólhesti sínum hjá rauða rasistanum á Hverfisgötunni.
Einn af Heiðdalsbloggurunum, sem eru frændur sem eru afar sannfærðir um réttmæti skoðanna sinna og einir helstu stuðningsmenn Hamassamtakanna á Íslandi, telur að Dorrit sé í tygjum við morðingja Palestínumanna og í vinfengi við Philip Green, svo notuð séu orð Björns Heiðdals. Það samsæri virðist líka hrjá ýmsar mektarmenn í íslensku þjóðfélagi, síðast Jón Ásgeir Jóhannesson. Heiðdal skrifa líka þetta um gyðinga og Dorrit. Ég þarf auðvitað ekki að nefna það sem þessir bráðskörpu frændur hafa skrifað um mig og aðra zíonista.
Þótt flestir Íslendingar haldi því fram, að þeir séu trúlausir eru þeir á fullu í samsæristrú. Því meira trúleysi, því meiri trú á samsæri og rugl. Ein helsta gyðja samsæristrúarinnar er hatrið. Dorrit Moussaieff hefur ekki farið varhluta af því. Þrátt fyrir öll huggulegheitin við Ísland, er hún bendluð við samsæri og er þá til tekinn gyðingdómur hennar, sem hún gat greinilega ekki losað sig við við það að taka upp íslenskan ríkisborgararétt.
Þegar breska blaðið Times skrifaði um kreppuna og Dorrit í október sl. hljóðaði það svona, og var ruglið auðvitað haft eftir Íslendingum á götunni: "That gold rush, at the beginning of this century, has spun the illusion of wealth. Dorrit Moussaieff, the jet-setting jewellery-designer wife of President Ólafur Ragnar Grimsson, set the tone, with her coterie of girlfriends". Hver mataði blaðamann The Times á þessu rugli? Er virkilega til fólk sem er að bendla Dorrit við orsakir kreppunnar? JÁ!
Við megum ekki gleyma Ástráði forsetaefni. Hann hefur svo sannarlega lagt orði í belg. Við sjáum vel hvert hann er að fara. Hann telur að stríðið í Miðausturlöndum sé greinilega á ábyrgð og í boði Dorritar, eins og allt annað. Hann lét sér ekki nægja að skrifa þetta á sínu eigin bloggi. Hann verpti ósómanum á blogg annarra sem þekktir eru af samsæristrú gegn útlendingum. Ástráður skrifaði til Dorritar:
Ég skrifaði þér bréf fyrr á þessu ári og bað þig um að aðstoða okkur við að kynna boðskap Friðar 2000 í Mið Austurlöndum. Að kynna nýja hugmyndafræði í friðarmálum. Þú svaraðir ekki bréfinu? Hversvegna? Er hjarta þitt jafnkalt og steinninn sem þú keyptir á uppboðinu í London fyrir 735 milljónir?
Þrátt fyrir að forsetafrúin sé öll að vilja gerð til að hjálpa hinni nýju þjóð sinni í kreppunni, er mikið neikvæð viðbrögð. Hún skjallar Íslendinga í sífellu og sauðkindina, hefur fengið sér íslenskt ríkisfang, hallmælt Ísrael og hvað eina til að safna stigum í litla sveitaþjóðfélaginu. Hún bauð meira að segja mótmælendum inn til sín í kaffi! Samt eru margir sem fúlsa við henni og á svo ógeðslegan hátt, að maður fer að skilja af hverju menn vilja ekki versla við gyðinga í landi þar sem gyðingar eru sárafáir og jafnvel í felum og afneita uppruna sínum.
Jafnvel þegar 9/11 árásin var gerð árið 2001 mátti lesa þetta á bloggi ungs menntamanns, Egils G.:
"11.9.01 Svakalegt!
Ég ætlaði ekki að trúa Sigga þegar hann sagði mér frá hryðjuverkunum í Bandaríkjunum fyrr í dag. Við vorum nokkur að læra í hópvinnuherbergi í Þjóðarbókhlöðunni þegar Halli hringdi í Sigga og sagði honum tíðindin. Siggi emjaði af undrun og sagði okkur frá þessu en við áttum auðvitað bágt með að trúa honum. Ég hringdi því í mömmu mína sem var að horfa á fréttirnar á breiðtjaldi niðri í vinnu hjá sér. Hún staðfesti þetta fyrir mér og hinum og þá fyrst gerði maður sér grein fyrir alvarleika málsins. Sú skynsamlega ákvörðun var tekin að ekki væri hægt að læra meira þegar svona hrikalegir hlutir hafa hent og því brunuðum við okkur heim til mín til þess að horfa á sjónvarpið. Fréttaflutningurinn þynntist svo eftir því sem á leið og varð fljótt lítið spennandi. Þetta er náttúrulega allt alveg fáránlegt. Hver verða eftirmálin? Burt með Dorrit!
Egill klukkan 17:52
14.9.2001
Á Íslandi í dag er Gyðingur á Bessastöðum. Öfgamenn í Mið-Austurlöndum hafa undanfarið verið að sækja í sig veðrið eins og öllum er ljós og þeim er svo sannarlega mjög illa við Gyðinga. Það væri því lítið mál fyrir þá að ræna Flugleiðavél og stefna henni á Kringluna.Er hag Íslands borgið með Gyðing í farabroddi?
21.9.2001
Það er alveg greinilegt hvað fólki hér finnst um Gyðinga. Þjóðin hefur talað! "
Flestum þykir þó forsetafrúin krúttleg. Hún á sem betur fer marga aðdáendur, og hvað mig varðar (þó ég hafi afklætt hana á listrænan hátt eins og frægt er orðið), verð ég að segja að ef Ólafur væri beðinn um að hætta á morgun vegna meints sambands við útrásarvíkinga og of litla gagnrýni í garð þeirra, fengi hún mitt atkvæði eins og skot og ég myndi verja Ólaf hennar vegna.
Myndin við færsluna er að finna á þessari vefsíðu.
Trúmál og siðferði | Breytt 8.2.2009 kl. 00:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.1.2009 | 12:11
Hjólarasistinn á Hverfisgötunni
Á 4. áratug 20. aldar var brandari nokkur í umferð í Hollandi. Hann hljóðaði þannig: "Hvað er það hraðasta sem þú hefur séð nýlega?" Svarið var: "Gyðingur frá Þýskalandi á hjóli"
Nú eru gyðingar ekki velkomnir á reiðhjólaverkstæði í Reykjavík (Borgarhjóli), þar sem eigandinn, Maggi, er vinstrisinnaður. Sjá
Hvað ætli verði fyrsta utanríkispólitíska verk nýrrar ríkistjórnar? Stjórnarslit við Ísrael?
Gott að flestir gyðingar á Íslandi eigi bíl, ég segi ekki annað, svo þeir þurfi ekki að versla við Magnús Örn hinn súra sósíalista í Borgarhjólum á Hverfisgötunni, sem ekkert vill fyrir gyðinga gera.
Ætli Ingibjörg Sólrún geri ekki þennan hjólvitlausa mann að utanstjórnar-utanríkisráðherra?
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 13:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
16.1.2009 | 18:44
Hamas kynnir stefnu sína
11.1.2009 | 12:13
3 bíó fyrir stuðningsfólk Hamas
Bíó-Villi á PostDoc sýnir í dag myndina Hræsni Hamas. Þetta er ekki nein söngvamynd og það er ekki Omar Sharif sem talar. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Þeir sem þurfa að
kasta upp óþverra og gyðinghatri, eru beðnir að gera það á eigin bloggum.
AUKAMYNDIN í dag
ný kvikmynd frá Kaupmannahöfn í gær, 9.1.2009. Gyðingum hótað útrýmingu. Myndinni er hælt af stuðningsmönnum Hamas um allan heim.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 18:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 83
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 52
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007