Færsluflokkur: Trúmál og siðferði
2.4.2007 | 19:58
Jesús Jósefsson
Nýlega kom út páskabók í Danmörku eftir lækninn Niels Svensson. Bókin, sem ber heitið Det sande ansigt, fjallar um líkklæðið í Jóhannesarkirkju í Torino. Svensson er meðlimur í alþjóðlegum félagi kristinna manna, sem helst vilja trúa því, að það sem hefur myndast á líkklæðinu í Torino sé sjálfur Meistarinn frá Nazaret.
Ýmsar myndir af Jesú hafa fests á nethimnu manna. Við þekkjum vestfirska sjómanninn á íslensku altaristöflunum. Guðmundur Jaki sat fyrir hjá Einari Jónssyni. Einari þótti skriffinnskufingur Jakans tilvaldir þegar hann var að skapa hendur meistarans. Einar ku annars hafa haft Torinoklæðið að fyrirmynd þegar hann mótaði andlit Krists. Þetta sýnir okkur að klæðið er miklu eldra en Guðmundur Jaki.
Bók Svenssons er afar yfirborðskennd. Hann sniðgengur marga hluti og fer ekkert inn á það sem ég tel afsanna á afgerandi hátt, að það sé negatívan af Jesú, sem sé að finna á línstranganum í Torino.
1) Ef maður málar andlit sitt með einhverjum smitandi lit, leggur sig, og leggur klæði yfir og lætur það falla eins og líkklæði, pressar dálítið á allar hliðar andlitsins og skoðar svo þrykkimyndina. Hver er útkoman? Spegilmynd þín? Nei aldeilis ekki. Það sem fram kemur er útflatt hringlaga andlitsmynd. Ekkert í líkingu við það sem sjá má á klæðinu í Torino.
2) Látnir gyðingar voru, og eru, settir í líkklæði (sérstök föt, tachrich bitz) áður en þeir voru vafðir laki (sovev), sem mjög líklega leit ekki út eins og líkklæðið í Torino.
En kannski var Jesús bara ekki gyðingur. Palestínumaður segja sumir!
Allt virðist benda til þess að trúaðir kristnir geti alls ekki sætt sig við annað en Appolónískt útlit Guðs eða einhvern Jesús, sem gæti hafa verið fjölskyldumeðlimur þeirra eða fyrirliði í knattspyrnuliði á Skaganum.
Segðu mér hvaða Kristur hefur búið um sig í huga þínum, og ég get kannski sagt þér eitthvað um sjálfan þig?
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 22:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.3.2007 | 09:00
Jesús - 485.460 kaloríur
Súkkulaði Kristur í Nýju Jórvík, sem kaþólskir telja til helgispjalla, og sem ég sagði frá í gær, er ekki meira né minna en 480.000 kaloríur. Hvort einhverjir leggja sér meistarann til munns um Páska veit ég ekki, en þá verða þeir að vara sig, því að hann inniheldur 7020% meira af kólestróli en hollt þykir í daglegan skammt manns. Ekkert C vítamín er í Kristi.
"Maður lifur ekki á súkkulaði einu saman" .... Það get ég alveg.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 09:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.3.2007 | 20:26
Súkkulaði Kristur
Allt er að verða vitlaust í heimi kaþólskra, því að stytta af Kristi krossfestum verður afhjúpuð næstkomandi mánudag í New York.
Styttan er eftir matarly(i)stamanninn Cosimo Cavallaro, og er hún alfarið búin til úr gæðasúkkulaði. Þykir kaþólskum það miður. Líkami og blóð Krists er, eins og kunnugt er, étið í miklum mæli í formi obláta og víns, en súkkulaði hefur hingað til ekki verið notað mikið sem sakramenti. Ekki einu sinni í Sviss.
Talsmaður pápískra, Bill Donohue, segir að Súkkulaði Kristur sé alversta móðgun við kristna menn frá fæðingu meistarans. Eins og dönsk Múhameðsteikning.
Það sem mest fer fyrir brjósin á Donohue er að hlutföll öll á Súkkulaði Kristi eru rétt og mun hann einnig vera umskorinn og líkur gyðingi.
En hvaða mórall er þetta? Það er ekkert nýtt undir sólinni. Jesús súkkulaði hefur verið selt í áraraðir.
Hvað með svona oblátur í íslenskar kirkjur? I am Cerious, Nói!
GLEÐILEGA PÁSKA
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.3.2007 | 09:23
Ráðstefna um vandamál
Danska öryggislögreglan, Politiets Efterretningstjeneste, (PET) býður til ráðstefnu. Ráðstefnan, sem haldin verður 25. og 26. apríl, á að fjalla um hvernig hægt er að nota Kóraninn, þá helgu bók, til að koma í veg fyrir hryðjuverk (terror) og ofbeldi. Maður hlýtur að spyrja: Er þetta vegna þess að flest hryðjuverk eru framin af múslimum og hlutfallslega mest ofbeldi í Danmörku er beitt af múslimum?
PET hefur boðið múslimaprestum (imömum) á þessa lokuðu ráðstefnu til að ræða málin. Yfirmaður PET, Lars Findsen, hefur nefnilega fundið nýja strauma í útlandinu og segir: Í útlöndum ræða menn til dæmis, hvort skriftlærðir geti leikið hlutverk í að bjóða upp á mótrök og sýna fram á aðrar lausnir fyrir ungt fólk, sem finnur sér sjálfsímynd í öfgafullri túlkun og iðkun á Íslam. Lars Findsen veit vonandi að prestlærðir og predíkarar eru oftast þeir sem mest kynda undir öfgar í nafni Guðs og heilags anda.
Spurningar sem vakna: Væri ekki líka hægt að nota Biblíuna og önnur helg rit, eða eru rök í þeim helgu bókum ólánsorð í eyrum Imama? Er svörin á vanda öfgafullra múslima aðeins að finna í Kóraninum? Gæti sálfræði og þjóðfélagsfræði ekki skýrt ýmislegt í hegðun múslima með alvarleg hegðunarvandamál? Gæti hugsast að svörin sé frekar að finna án ítarleitar í helgum ritum frá fornöld? Hvers vegna að lesa Kóraninn spjaldanna á milli til að undirbyggja þá skoðun að Kóraninn geti komið í veg fyrir hryðjuverk og glæpi?
Kóranin inniheldur mörg boð um hvað gera skuli við vantrúaða, gyðinga, kristna og aðra heiðingja. Þessum hópum er oft lýst á mjög ófallegan hátt og eru þeir færðir í gervi óæðri dýra. Ýmsar lausnir eru gefnar í Kóraninum á því hvernig hægt er að koma heiðingjunum fyrir kattarnef, jafnvel útrýma þeim. Þessar fornaldarkreddur eru oft teknar fram af æsingaprestum nútímans, sem lesa á milli línanna. Prestar múslima æsa ungviðið til hefnda, morða, og hryðjuverka. Þeir sitja flestir í löndum einræðisherra, þar sem engin önnur leið er til þjóðfélagsúrbóta nema með Kóranninn í einni hendi og vopn í hinni. Kóraninn er lesinn bókstaflega af milljón manns, t.d. súrur, þar sem limlestingar á gyðingum og kristnum eru réttlættar í nafni Guðs. Það eru ekki bara öfgafullir múslimaprestar, sem misnota slíka bókstafstrú til að koma á stað erjum og óöld. Mahmoud Abbas, forseti Fatah-Palestínumanna gerir það í sífellu. Síðasta dæmið um slíkt var þegar hann sagði eftirfarandi á 42. ára afmæli Fatah hreyfingarinnar: Að skjóta bræður ykkar er bannað. Að munda riffli að landnámi (Ísraela) er lögmætur réttur okkar, en að miða byssum á hvern annan er er bannað. Við ættum að setja innbyrðis bardaga til hliðar og miða rifflum okkar að ísraelsku landnámi". Abbas bætti við með tilvitnun í Kóranvers og móttók mikið lof fyrir: Synir Ísraels eru þeir kallaðir sem spilla manngæsku á jörðinni.
Prestar múslima í Danmörku eru svo heppnir að búa ekki löndum einræðisherra. Þeir búa nú í litlu lýðræðisríki. Þeim, sem og öðrum, ber að fylgja lögum landsins, en ekki setja lög, boð og bönn sem byggð er á hatursboðskap í fornum ritum. Þess vegna er þeim boðið á ráðstefnur af dönsku öryggislögreglunni. Þeir njóta trausts á við aðra borgara í Danmörku. Hatursboðskapurinn sem leynist í afkimum helgirita þeirra á aðeins upp á pallborðið hjá þeim vesturlandabúum, sem óska eftir glundroða og skálmöld. Slíkir karakterar eru örugglega líka undir smásjá dönsku öryggislögreglunnar. Auðvelt er að sjá hverjir það eru, og það er einkennilegur andskoti að sjá slíkar kenndir á 21. öld og jafnvel gamla vinstrimenn sem lofsyngja og réttlæta eitthvað óeðli og hatursmóral í miðaldatrúarbrögðum vegna þess að þeir styðja frelsisbaráttu þjóða í Miðausturlöndum. Það er hrein tímaskekkja - eða kannski dæmi um dómgreindarleysi.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 09:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2007 | 16:24
Danska svínið og hin heilaga pølse
Úr þessum forláta pulsuvangi seldi útlendingaráðherra Dana, Rikke Hvilshøj, heitar, pólitískar pylsur fyrir síðustu kosningar. Nú sendir hún múslimi úr landi.
Í gær birti Nyhedsavisen, sem að hluta til er í eigu Íslendinga sem þessa dagana verma stóla Reykvískra réttarsala, afar merka grein. Greinin fjallaði um pulsuvagna, þetta rammdanska menningarfyrirbæri, sem sumir Danir myndu deyja fyrir.
Greinin fjallar um gæði og vinsældir ákveðinna pulsuvagna í Kaupmannahöfn. Ég get ekki frætt ykkur um þetta, enda hef ég ekki étið á þeim stöðum sem nefndir eru til sögunnar í grein Nyhedsavisen. En Nyhedsavisen bregður á leik, ef svo má að orði komast, og biður leigubílstjórann Turkan Daminovski, sem er múslimur um að dæma pusluvagnana. Turkan þessi mun vera mikill pylsugleypir og áhugamaður um svínakjötsát.
Það er einmitt þetta atriði í greininni, frekar en gæði pulsuvagnanna, sem ég hef mannfræðilegan áhuga á . Turkan er nefnilega múslimur og alla jafnan borða múslimir ekki svínakjöt. Eins og í fréttinni stendur: Turkan er nútíma múslimur, eins og hann segir sjálfur. Enginn annar í fjölskyldu hans borðar svínakjöt ..... << Synir mínir sem eru 16 og 18 ára kasta upp af svínakjöti og pabbi minn segir að ég verði að borða svínakjötið utan heimilisins og ekki taka það með mér heim>>, segir Turkan.
Ekki veit ég hvaða leigubílastöð pulsusérfræðingurinn Turkan ekur fyrir, en tel víst, að það sé ekki hann sem hefur neitað að aka með gyðinga í Kaupmannahöfn (sjá fyrri færslu).
Kannski grísakótilettan og danskar pulsur muni brúa það bil sem er á milli þeirra menningaheima, sem harðast takast á um þessar mundir.
Ekki mæli ég þó með dönsku útflutningsátaki á pulsum í heimi múslima, nú í kjölfarið á hamaganginum með teikningarnar af Múhameð spámanni. Það gæti orðið svínslegt.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 19:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2007 | 14:31
Leigubílastöðin 4x35 harmar mismunun
Í bréfi, sem Anne Kilde Bawja þjónustufulltrúi leigubílafyrirtækisins 4x35 í Kaupmannahöfn ritaði söfnuði gyðinga þar í borg þann 14. þ.m., er það harmað að einstakir bílstjórar fyrirtækisins hafi mismunað gyðingum og neitað að aka þeim til safnaðarheimils þeirra í hjarta Kaupmannahafnar.
Anna Kilde Bawja skrifar, að það verði gerðar ráðstafanir geng þeim bílstjórum sem verða uppvísir af slíkri mismunum og óviðeigandi hegðun, þar sem þannig framkoma brýtur í bága við reglur fyrirtækisins og dönsk lög.
Nú geta danskir gyðingar aftur ekið óhultir með 4x35.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 14:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.3.2007 | 17:58
Für Juden verboten
Er hér verið að biðja um réttu farþegana?
Nú er það svart maður. Öryggisfulltrúi gyðingasafnaðarins í Kaupmannahöfn hefur sent frá sér yfirlýsingu um að gyðingum sé ekki óhætt að panta leigubíl frá ákveðnu leigubílafyrirtæki í Kaupmannahöfn. Sumir bílstjórar hjá fyrirtækinu 4x35, sem eru fylgjendur Íslams, trúar friðar og virðingar, neita að aka fólki að heimilisfanginu Ny Kongensgade 6 í hjarta Kaupmannahafnar. Ástæðan er, að þar er safnaðarheimili gyðinga til húsa. Sumir bílstjórar 4x35 vilja greinilega ekki aka þangað samkvæmt öryggisverði safnaðarins Jerry Hessner. Kvenfélag safnaðarins, sem hefur orðið fyrir barðinu að trúuðum bílstjórum, hefur því sent út tilkynningu og beðið fólk um að nota önnur fyrirtæki en 4x35.
Bar ég þetta af forvitni undir leigubílastöðina, sem neitaði alfarið að svona lagað gæti átt sér stað, en ætluðu menn þar á bæ þó að rannsaka málið hið fyrsta. Ef það er rétt, að leigubílstjórar mismuni fólki vegna trúar, varðar það við hegningarlög.
Þegar ég frétti þetta minntist ég fréttar af múslimi af sómalískum ættum, sem starfaði í BNA. Ók hann tvo námsmenn niður vegna þess að hann deildi við þessa tvo farþega sína um trúarbrögð.Stór hluti leigubílstjóra í Minneapolis, sem eru múslimir, tóku upp á því í fyrra að neita að aka með farþega, sem annað hvort höfðu neytt áfengra drykkja (sjá hér), eða með þá sem höfðu áfengi í fórum sínum. Bílstjórarnir komust upp með þetta um skeið, og flugvallar- og borgaryfirvöld leyfðu þeim að framfylgja Sharíalögum sínum. Nú er búið að afnema þetta leyfi og snúa kvæðinu í kross. Ef menn neita að aka með fyllibyttur og fólk með þunga plastpoka, varðar það sektum.
Svona bönn voru líka mikið notuð af nazistum.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 19:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.3.2007 | 14:21
Endalok Íraks
Ef Nuri el Maliki meinar eitthvað með beiðni sinni um hjálp frá nágrannaríkjum Íraks, eru endalok Íraks loks orðin að veruleika. Landið er, eins og mörg ríki í Miðausturlöndum, hreinn tilbúningur sem orðið hefur til á teikniborðum evrópskra nýlendufursta. Í Írak, hefur t.d. aldrei verið hægt að tala um írakska þjóðerniskennd, eins og þá sem t.d. hefur orðið til meðal þess mjög fjölleita hóps sem í dag kalla sig Palestínumenn. Mismunandi trúarfylkingar og þjóðarbrot gerir það nærri ómögulegt að tala um ríkið Írak og írakska þjóð. Það sama er tilfellið á Sýrlandi, í Afganistan og víðar.
Slík ríki hafa hingað til verið útópíur fyrir einræðisherra og "flokka" þeirra, sem venjulega taka Guð í gíslingu. Svoleiðis menn hafa fyrst og fremst hyglt ættbálki sínum á kostnað annarra hópa sem búa á landsvæði, sem hefur fengið tæknileg nöfn og landamæri hjá kortagerðum herforingjaráða í Evrópu.
El Maliki biður um hjálp frá röngum aðilum. Frá Sýrlandi og Íran hefur hingað til aðeins komið sundrung og eyðileggin inn í Írak. Kannski langar El Maliki að ljúka þessu af og láta Íran og Sýrland skipta eyðimörkinni á milli sín?
Ég tel mig ekki sjá ofsjónir og heyra raddir þegar ég upplifi landa mína tala um "Stríð BNA" í Írak og sé þá krefja að vestrænar hersveitir hverfi á brott frá Írak.
Kæru vinir á vinstri væng vitleysunnar. Bandaríkin og aðrir sem stunda friðargæslu í Írak, eftir að einræðisherranum Saddam var steypt af stóli, eru ekki ástæðan fyrir því að 30-200 manns eru myrtar daglega í Bagdað. Þau hryðjuverk eiga upptök á Sýrlandi og í Íran. Í hvert sinn sem þið krefjið heri vestrænna ríkja frá Írak komið þið nær eyðingu írakskar "þjóðar" og einingar í ríkinu Írak.
Írakar kalla eftir aðstoð við að kveða niður ofbeldið í landinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 14:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.3.2007 | 09:32
Til hamingju með daginn (2)
Milljónir kvenna halda ekki upp á baráttudag kvenna. Þær eru pakkaðar inn í burqa, chador og hijab og er seldar eins og dýr hæstbjóðandi karlpeningi, margar þeirra aðeins á barnsaldri. Hulinshettan er til þess að óviðkomandi karlpeningur lokkist ekki til að stela "eigninni" frá þeim sem hefur keypt vöruna. Það er ekkert "bleikt" í tilveru þessarra kvenna.
Þessi innpökkun á sér stað víða um lönd. Sumir vesturlandabúar virðars vera dálítið veikir fyrir þeirri menningu sem alið hefur þessa niðulægingu af sér. En kannski eru þessar tuskur líka Bandaríkjamönnum, Zíonistunum og ómenningu þeirra að kenna?
Munið eftir kynsystrum ykkar undir hulunni, og hugsið um hvernig blóðþrýstingurinn er í 40 stiga hita undir þéttri hulu!
Trúmál og siðferði | Breytt 13.3.2007 kl. 13:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 49
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 40
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007