Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
19.3.2009 | 14:58
Fyrst og fremst gyðingahatari
Bo Harder Weymann, (upphaflega Weimann), heitir maður nokkur í Danmörku. Hann vinnur í stjórnunarstöðu hjá tölvufyrirtækinu DBC í Ballerup og er 53 ára. Eitt sinn tilheyrði hann hryðjuverkahóp sem kallaður hefur verið Blekingegade-banden. Hópur þessi varð fyrst og fremst til vegna haturs meðlimanna á Ísraelsríki og "baráttu" þeirra fyrir Palestínuþjóðina, þ.e.a.s, hryðjuverkasveitir Palestínumanna.
Blekingegade-banden styrkti Palestínumenn með ránum og ofbeldi sem enduðu í ósköpum. Árið 1989 myrtu meðlimir hópsins lögreglumann sem reyndi að hindra pósthúsrán hópsins í miðborg Kaupmannahafnar.
Hópurinn var handtekinn og dæmdur fyrir ýmsar sakir, en enginn í hópnum viðurkenndi morð og önnur voðaverk sem þeir höfðu framið ... fyrir Palestínumenn.
Út hefur komið heilmikið ritverk blaðamannsins Peter Øvig Knudsens og málið hefur verið mikið til umræðu nýlega í Danmörku, enda komin ný kynslóð blaðamanna, sem sátu í barnavagni þegar glæpir hópsins voru framdir, og eiga því heilmikið ólært.
En í gær hélt einn af félögum hópsins, Bo Weymann, blaðamannfund í tengslum við nýja kvikmynd um hópinn, sem ber heitið Blekingegade-banden, og sem Øvig Knudsen hefur verið ráðgjafi fyrir.
Bo sagðist ætla að leysa frá skjóðunni og biðjast afsökunar. Hann dró heldur ekkert úr. Hann sagðist hafa tilheyrt hryðjuverkahóp. Greindi frá aðild sinni að vopnuðum ránum, smygli á vopnum og öðrum glæpum, og er nú glaður yfir því að hafa sagt Dönum allt af létta.
En einu gleymdi þessi tölvufræðingur og fyrrverandi hryðjuverkamaður, sem reyndar var ekki lengur með í Blekingegade-banden þegar hópurinn myrti ungan lögreglumann. Hann gleymdi að biðjast afsökunar á blóði drifnu hatri sínu í garð Ísraelsríkis. Eitthvað segir mér, að hann sé enn haldinn því hatri.
Hann safnaði einnig skipulega nöfnum á fólki í Danmörku sem tengdust Ísrael á einn eða annan hátt. Fyrst og fremst nöfnum og heimilisföngum gyðinga, og þeim sem hann taldi óvini Palestínumanna. Hann hafði fólk til að aðstoða sig og njósna fyrir sig og hópinn. Hann bjó til spjaldskrá yfir "fjendur" Palestínumanna í Danmörku. Það var í fyrsta sinn síðan í síðari heimsstyrjöld, að Dani safnaði nöfnum á gyðingum. Síðast þegar það gerðist, var það til að koma þeim fyrir kattarnef.
Ég er ekki í vafa um að Bo Weymann og samverkamenn hans ætluðu sér að nota lista yfir gyðinga og stuðningsmenn Ísraels til glæpsamlegra aðgerða. Ef ungur lögreglumaður hefði ekki verið myrtur við rán í þágu PFLP, hefði hópur þessi framið glæpi gegn gyðingum í Danmörku.
Danir hafa hins vegar fyrst og fremst áhuga á lögreglumorðinu 1989 og bæði fjölmiðlar og höfundur ritverksins um Blekingegade-banden og kvikmyndarinnar um hryðjuverkahópinn hafa skautað létt yfir z-listann, sem spjaldskráin með nöfnum "óvinanna" er kölluð. Z er þar skammstöfun fyrir zíonista.
Því miður hefur metsölubók Øvig Knudsens ekki varpað ljósi á þennan lista, sem var geymdur með vopnum í Blekingegade á Amager. Kvikmyndin um danska hryðjuverkahópinn gerir það heldur ekki. Til hvers var listinn? Söfnuðu hryðjuverkamennirnir gyðingum, eins og aðrir safna plötum eða Andrés Andar blöðum?
Bo Weymann hefur iðrast hryðjuverkastarfsemi sinnar, en hann hefur ekki iðrast haturs síns á Ísrael og afbrigðlegum stuðningi sínum við Palestínuþjóðina.
Hvorki morð á lögreglumanni, né listar yfir gyðinga hjálpa Palestínumönnum.
Danir gleyma flestir, að félagarnir í Blekingegade-banden myrtu lögreglumanninn vegna haturs síns í garð Ísraels.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
12.3.2009 | 09:07
Circus Iceland
Áður en varir er stjórnskipanin gengin úr skorðum", segir Líndal. Spurningin er, hvort hún sé það ekki þegar. Ríkisstjórn með ráðsstjórnartakta, eins og sú sem nú er við völd, skítur á stjórnarskrár og vill breyta henni að geðþótta.
Media Circus Egils Rauða í Sirkus Silverado hefur bjargað Sirkus Stjórn um sinn. Stóri rauðhærði trúðurinn kallaði á lögfróða norska trúðinn, Joly Paragraf, sem talar embættisfrönsku með reim. Nóg silfur er víst enn til hjá Sirkus Stjórn til að ráða fína, franska skemmtikrafta.
Þó svo að Joly hafi verið mötuð með Baugsmálinu, er ég er viss um að hún muni þefa uppi allan ósómann hjá íslenskum stjórnmálatrúðunum, sem þáðu ölmusur frá spillingarliðinu The Magnificent Flying Viking Clowns sem féll flatt á gólfið - og þá verður henni sennilega sparkað úr Cirkus Iceland Association (CIA). Maður vill ekki heyra um óþægilegar uppgötvanir í sirkus, þar sem slysin" hafa verið mörg.
Nú þegar vondi fíllinn Do Banco er farinn, The Soft Haarde Clown er hættur og valti Línudansarinn Sólrún komin í veikindafrí, sitja skeggjaða albínókonan og sköllótti græni maðurinn og reyna að skemmta þjóðinni með vinstri hendinni fram að kosningum. Svein og Joly eru því auglýst grimmt, enda fersk atriði frá Sirkuslandinu mikla, Noregi. Hvað verður það næsta Fleksnes eða Ah Ha?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.3.2009 | 14:09
Nýr sendiherra Ísraels
Nýr sendiherra Ísraels afhenti Ólafi Ragnari Grímssyni forseta trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum í gær.
Hann heitir Michael Eligal og var áður sendiherra Ísraels á Kýpur. Hann hefur aðsetur í Ósló.
Eligal sendiherra er fæddur í Argentínu árið 1948.
Strax eftir komu sína til Noregs hefur hann gagnrýnt læknana Mads Gilbert og Erik Fosse á Fedrelandsvennen og hann segir þá ljúga. Ég verða að taka undir það með sendiherranum eins og má lesa hér. Verið er að rannsaka lygar þeirra og kannski verður að fá Evu Joly til að dæma þá fyrir spillingu.
Hvað ætli nýja sendiherranum þyki um íslenskan hjólasala, sem neitar að afgreiða gyðinga og íslenska kúnna hans sem telja það bara smámistök; eða um heimsþekkta hljómsveit (Mezzoforte) sem lýgur því að þeim hafi verið boðið til Ísraels (sjá einni hér) til að geta sagst hafa afþakkað boðið vegna hernaðaraðgerða Ísraelsmanna; eða bankastjóra í Landsbankanum sem líkir starfsmönnum við fangaverði í Auschwitz, eða fólk sem kennir gyðingum og Ísraelsríki um fjárhagslegar ófarir Íslendinga??
Velkominn til Íslands hr. Michael Eligal!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.3.2009 | 08:36
Eva Joly
Það er óneitanlega skipbrot ef íslenska þjóðin getur ekki ráðið fram úr spillingu þeirri sem hnésetti Ísland, án þess að fá norsk-franskan au pair" lögfræðing til að veita sé ráð.
Eva Joly er vafalaust fyrirtaks lögfræðingur og dómari og mun örugglega segja Íslendingum vel til syndanna.
Eru íslenskir stjórnmálamenn, sem margir voru on the take" hjá íslenskum fjárglæframönnum, tilbúnir að heyra það frá Joly. Ef eitthvað er sem (Gro) Eva (Farseth) Joly líkar ekki, þá eru það spilltir stjórnmálamenn, nema vera skildi blaðamenn sem hafa ásakað hana sjálfa um að vera gráðuga og spillta.
Ferill Gro Evu er glæsilegur. Frá því að vera alin upp í verkamannahverfi í Osló, af góðu fólki sem komið var af afdala- og jarðaberjabændum, þar til hún tekur að sér að vaða í eðju spillingar á Íslandi. Við getum vonað að hún sökkvi ekki upp að háls í þann forarpytt, og að hún sé enn eftir að ná hámarki ferils síns á Íslandi.
Og fyrst búið er að ráða Evu Joly, væri þá ekki þjóðráð að fá frændkonu hennar Sylvie Joly (Madame Touschard etc.), sem frönsk fyrirmynd Eddie Izzards (eða er það öfugt), til að skemmta þjóðinni. Hér er hún í hlutverki lögmanns. En Sylvie Jolie lærði til lögmanns áður en hún gerðist gamanleikari. Stundum er ekki mikill munur þar á. Vonandi sækir hún sér ekki fyrirmynd í Evu í þessu atriði.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.3.2009 | 14:17
Ég hef keypt mér norska orðabók
8.3.2009 | 08:10
Skýrsluskussinn Ingibjörg
Fréttir herma, að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafi haldið fundi, sem mikilvægir voru fyrir framtíð þjóðarinnar, án þess að skrifa línu um þá. Ingibjörg hefur enn einu sinni sýnt, að hún hefur einkennilega forgangsröðun.
Hún hafði til að mynda tíma á gamlársdag til að skrifa skammarbréf til Tzipi Livni í Ísrael sem fyrst var birt á þessu bloggi. Gaza er greinilega málið sem fær suma íslenska pólitíkusa í vinnufötin.
Ísland var hins vegar lengra niður á verkefnalista Ingibjargar en ávítur í garð Ísraels. Hún hafði greinilega ekki tíma í desember og janúar til að skrifa smáskýrslu um leynifund sinn með David Milliband um Icesave, þar sem tekist var á um beitingu hryðjuverkalaganna. Þetta gæti hafi verið örlagaríkur fundur fyrir Íslendinga.
Það vantar jafnvægi í þetta. Þetta sýnir þá firringu sem oft var í starfi Ingibjargar sem utanríkisráðherra. Hún baðaði sig í sviðsljósinu með hryðjuverkahöfðingjum en hélt leynifundi með mönnum sem settu Íslendinga á hryðjuverkalista. Hún hnakkreifst við Davið Milliband, en skrifar ekki um það skýrslu. Svo hefur hún tíma til að senda harðorðar yfirlýsingar til þjóðar, sem er umkringd ríkjum sem hýsa allar helstu hryðjuverkahreyfingar heims.
Flott Ingibjörg. Skrifaðu nú skýrsluna!
7.3.2009 | 09:02
Grófasti gaurinn í bankanum
Ekki þarf maður að spyrja að því. Misnotkun á örlögum gyðinga og lítilsvirðing við fórnarlömb nasismans er orðið vinsælasta sportið hjá vinstrimönnum. Þegar þeir eru ekki að styðja við hryðjuverkahópa sem útrýma vilja Ísraelsríki, eru örlög gyðinga í síðari Heimsstyrjöld notuð í alls konar tækifærishjal. Ef vinstrimenn eru ekki að líkja Gaza við gettó, sitja þeir á fundum í Landsbankanum og líkja venjulegum starfsmönnum þar við fangaverði í Auschwitz.
Ásmundur Stefánsson, nýráðinn bankastjóri, mun hafa gert það á fundi með starfsmönnum sl. fimmtudag (5.3.2009).
Að sögn starfsmanna lögfræðisvið bankans mun Ásmundur hafa sagt þeim, að þeir ættu að vera auðmjúkari í störfum sínum fyrir bankann. Þau orð lét hann falla, þegar einn þeirra sagði telja að í bankakerfinu bæru menn mismikla ábyrgð. Tók sá sem dæmi, að ekki væri hægt að kenna þeim sem seldu farmiða um borð í Titanic um hin hörmulegu endalok skipsins. Þá mun Ásmundur sagt að samlíking við fangaverði í Auschwitz væri nærtækari.
Samkvæmt visir.is svaraði Ámundur þessu: Ég ætla ekkert að fara að rekja trúnaðarsamtöl mín við starfsfólk bankans við fjölmiðla. Eina sem ég get staðfest er að það er alrangt að ég hafi líkt starfsfólkinu við fangaverði,". Hann vildi hins vegar ekki svara því hvort hann hafi nefnt útrýmingarbúðir á einhvern hátt í máli sínu.
Ef Ásmundur hefur sagt þetta, sýnir það dómgreindarleysi og skort á mannúðlegri afstöðu. Vafalítið hefur maðurinn sem þetta segir ekki lagt í vana sinna að vera auðmjúkur í störfum sínum. Hann verður að bera ábyrgð á þessum ummælum sínum.
Samlíking bankablóka við böðla nasismans er lítilsvirðing við milljónir manna, ættingja þeirra og afkomendur. Bankahrunið á Íslandi, og afleiðingar þess fyrir Íslendinga er eins og skógarferð í Þrastarlundi í líkingu við útrýmingarherferð nasista. Venjulega starfsmenn Landsbankans á ekki að hengja fyrir afglöp Hrunadans útrásarsvína, en í honum tóku íslenskir vinstrimenn líka þátt, og ekki tel ég alólíklegt að Ásmundur Stefánsson sé örlítið samsekur í því hvernig fór á Íslandi.
Nú á Ásmundur leik, hann þarf að sýna hvers konar vörður hann verður í Landsbankanum. Hann var nú einu sinni framkvæmdastjóri Íslandsbanka. Kannski er hægt að finna rót kreppunnar í störfum hans þar?
Ég leyfi mér að lokum að vitna í Jónas (8.2.2009 á www.jonas.is), sem lýst hefur Ásmundi sem Grófasta gaurnum":
"Ásmundur er grófasti gaur gamals kerfis, sem nú er verið að afnema. Hann lítur á hlutverk sitt sem aðferð við að koma sér sem bezt fyrir við trogið. Öll nýju bankaráðin eru því miður í gamla stílnum, skipuð flokkspólitískum kommissörum. Þeirra grófastur er þó Ásmundur Stefánsson."
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
5.3.2009 | 13:19
Á Íslandi má hjóla yfir gyðinga
Nýlega setti hjólasali nokkur í Reykjavík miða í gluggann á verslun sinni á Hverfisgötunni, þar sem hann sagði að gyðingar væru ekki velkomnir í búðinni hans. Fréttin barst til heimsfjölmiðla og má rekja það til þess að ég sendi fréttina til gyðinga á Norðurlöndunum. Þingmaður í Danmörku sendi meira að segja erindi til danska utanríkisráðherrans og bað hann að gera eitthvað í máli þessu sem upp var komið á Íslandi, frændþjóð Dana.
Hitt hefur ekki komist í heimsfjölmiðlana, að hjólasalinn á Hverfisgötunni tók miðann úr glugganum eftir að tveir lögregluþjónar heimsóttu hann í verslunina á Hverfisgötunni og bentu honum á að miðinn væri stjórnarskrárbrot.
Hjólasalinn var bara frekar rogginn yfir heimsfrægðinni og greindi hróðugur frá. Einn allra besti kúnni hans, Mörður Árnason hjá Samfylkingunni, tjáði sig um málið: Ég hef enga ástæðu til að halda að hann sé kynþáttahatari eða neitt í þá veru. Ég held að þetta hafi verið klaufaskapur hjá honum," DV greindi einnig svo frá: Mörður segist telja að ástæðan fyrir því að Magnús setti miðann upp hafi verið tíðindi af árásum á Gaza-svæðið nýverið. Ég get vel skilið slík viðbrögð en þau mega auðvitað ekki koma út sem kynþáttahatur, og allra síst gyðingahatur sem er ákaflega ógeðfelld tegund af þeim tilfinningum því gyðingahatur á sér langa og blóði drifna sögu," segir hann og ítrekar að Magnús sé fyrst og fremst góður hjólaviðgerðamaður.
Magnús er ekki nasisti eins og sumir bloggarar úti í heimi hafa haldið. Hann kýs líklega Samfylkinguna. En Kratar og kommar geta líka verið kynþáttahatarar, eins og kunnugt er.
Var það kannski líka klaufaskapur hjá Bobby heitnum Fischer, þegar hann hélt úti andgyðinglegri vefsíðu í Japan, meðan hann bjó á Íslandi? Það athæfi var kært til Ríkissaksóknara. En Ríkissaksóknari taldi enga ástæðu til að framfylgja lögunum og senda ekki svo mikið sem eina löggu heim til heimsmeistarans til að skáka honum aðeins fyrir brot á íslenskum hegningarlögum.
Er allt hægt á Íslandi þegar að gyðingum kemur? Maður nokkur Scheving Thorsteinsson að eftirnafni heldur uppi ofsafengnum andgyðinglegum áróðri á bloggum ýmissa manna. Margir hafa hreinlega þurft að fjarlæga þennan mann og ruglið í honum. Ætlar enginn að gera neitt við því? Menn hafa verið fjarlægðir af Moggablogginu fyrir að hafa vitnað beint í Kóraninn. En Scheving Thorsteinsson má vitna í vefsíður gyðingahatara og halda með áróður fyrir þá inn á blogg annarra Íslendinga.
Kannski er það eðli Íslendinga að fara ekki að lögum, eða kannski gilda lögin ekki þegar óhróðri og andstyggð er breitt út um, eða hreitt í gyðinga á Íslandi.
Tvö ungmenni ferðast nú á vegum Rauða Krossins í Palestínu. Ekki eru þau andgyðingleg. Þetta eru bara góðir krakkar frá Íslandi sem eru að kynna sér starf Rauða Krossins. En þau skreyttu aðeins ferðalýsingu sína með því að halda því fram að þau hefðu verið vitni að innrás Ísraelsmanna og skotárás þeirra þann 3. mars sl. Þessa fásinnu hrakti ég á bloggi þeirra og í færslu minni hér á undan. En móðir eins ungmennisins, Salvör Gissurardóttir, segir kannski það sem einkennir Íslendinga mest þegar þeir þykjast ekki þurfa taka afleiðingum gjörða sinna: Látið ekki fá á ykkur þó að Vilhjálmur Örn gagnrýni frásögn ykkar, það er bara ein leið til að komast hjá gagnrýni og hún er sú að gera ekki neitt.
AÐ GERA EKKI NEITT. Já, það hljómar eins og alíslensk lausn!!
Ætli þetta sé líka mottó hjá Ríkissaksóknara og þeim sem gera ekki neitt gegn síendurteknu gyðingahatri á Íslandi? Halda menn bara, eins og Mörður Árnason, að þetta sé klaufaskapur?
Hér er lítil mynd af manni sem líka hjólar yfir gyðinga á klaufalegan hátt. Sumir segja að þetta sjálfur Tom Cruise. Mér þykir líklegra að það sé Tóm Krús á Mission Impossible:
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.3.2009 kl. 12:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
4.3.2009 | 14:10
Ungliðar Rauða Krossins á afvegum
Nú eru tvö íslensk ungmenni, Gunnlaugur Bragi og Kristín Helga, á vegum Rauða Krossins i Palestínu, nánar tiltekið á Vesturbakkanum, þ.e.a.s. í Júdeu og Samaríu. Þessi ágætu ungmenni voru í gær í bænum Qalqylia, sem liggur mjög nærri Ísrael. Skrifuðu þau um það á bloggi sínu undir fyrirsögninni Innrás og Skotárás í Qalqylia: Eftir heimsóknir til fjölskyldnanna má segja að við höfum falið okkur í dýragarði borgarinnar en í dag komu her Ísraelsmanna inn í borgina og skutu þar nokkrum skotum. Dýragarðurinn í borginni er talinn nokkuð öruggur og því vorum við aldrei í neinni hættu. Alþjóða Rauða krossinn fylgdist með ferðum okkar og sá til þess að við kæmumst auðveldlega út úr borginni eftir heimsókn okkar í dýragarðinn. En garðurinn er mjög fallegur og þar eru fjölmörg dýr. Einnig eru þar þrjú ólík söfn.
Nú vill svo til, að ísraelski herinn var ekki inni í Qalqiylia í gær og skaut þar ekki.
Í dag hafði ég samband við Sólveigu Ólafsdóttur frá Rauða Krossinum, sem er fararstjóri ungmennanna, og gat hún ekki staðfest þessa frásögn ungmennanna og hafði á orði, að vera Ísraelsmanna hafi líklega vaxið þeim í augum. Hún vissi ekkert um skotárásir.
Danskir þátttakendur á vegum danska Rauða Krossinn í þessari ferð greina heldur ekki frá neinum atburðum í líkindum við það sem ungmennin frá Íslandi segja frá á bloggi sínu, en Danirnir greina frá ferð sinni á Facebook.
Hins vegar er móðir eins íslenska ungmennisins þegar búin að blogga um "árás" Ísraelsmanna. Það er Salvör Gissuraradóttir. Hún skrifar um Snjóflóð á Vestfjörðum, skothríð í Palestínu. Hun segir m.a.: Ég er ekki mjög hrædd um Kristínu Helgu þó þarna sé skothríð og stríð. Ég held að Rauði krossinn passi vel upp á krakkana, þar er fólk sem veit alveg hvernig ástandið er og er vant að vinna á átakasvæðum. Ekki er Salvör samt alveg ósmeik, því á bloggi ungmennanna skrifar hún þetta: Ég er sem sagt núna bæði hrædd um ættingjana á Bolungarvík og svo elsku dótturina sem er í skotlínu átakasvæða heimsins þarna út í Palestínu.
Ég get fullvissað Salvöru um, að þarna var ekki skothríð í gær og þarna hefur úlfaldi verið gerður úr mýflugu, eins og oft gerist í óðagoti þeirra vesturlandabúa sem í raun styðja óhrjálegan málstað, sem á einn og annan hátt er hluti af viðleitni manna til að útrýma Ísraelsríki.
Ég get hins vegar uppllýst áhyggjufulla móður og móðursjúka stuðningsmenn hernaðarsamtaka Palestínumann, að íslensku ungmennin heimsóttu í gær borgarstjórann í Qalqylia sem er liðsmaður Hamas og hefur verið grunaður um aðild að hryðjuverkum. ESB skilgreinir Hamas sem hryðjuverkasamtök. Íslensku ungmennin ræddu því við liðsmann hryðjuverkasamtaka í gær.
Hve uppbyggilegt starf Rauða Krossins er í Palestínu, skal ég láta liggja á milli hluta. Rauði Krossinn er misnotaður og lætur misnota sig, eins og þegar þeir lána sjúkrabíla sín til Hamas. En það er líka alvarlegt mál, að fólk á vegum samtakanna eru að breiða út óra og jafnvel lygar um einn af aðilum í ófriði þeim sem hrjáir þetta svæði. Menn mega ekki láta hatur sítt í garð Ísraels fara með sig, þegar menn eru að vinna í nafni blóðrauða krossins.
Hér má sjá hvernig Hamas notar það sem rétt er að þeim:
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
2.3.2009 | 12:21
Hinn dularfulli bankasveinn
Svein Harald Øygard man ekki hvenær hann var fyrst beðinn um að taka að sér stöðu seðlabankastjóra. Var það kannski meðan hann beið einn á hótelherbergi í Reykjavík? Það er frekar alvarlegt mál, að muna svona lítið. Getum við treyst manni í svona hárri stöðu, sem ekki man eftir því sem gerðist fyrir viku? Getum við treyst honum fyrir að snúa íslenskum mínus í plús?
Ég held að Svein Harald, sem lætur ráða sig án þess að kynna sér hvað íslensk lög segja um ráðningu útlendinga í hæstu embætti þjóðarinnar, sé í vondum málum.
Svein Harald veit vel, að í Noregi er það algjörlega ómögulegt fyrir útlendinga að setjast í embætti Sentralbankdirektørs. Af hverju telur hann það eðlilegt að taka slíkt embætti á Íslandi? Svein Harald sýnir dómgreindarleysi og ábyrgðarleysi með því að láta ráða sig án þess að lagaleg hlið ráðningarinnar sé í lagi.
Norskir fjölmiðlar hafa spurt Stefán Jóhann Stefánsson upplýsingafulltrúa Seðlabankans:
- Hvordan kom dere i kontakt med Øygard?
- Det kan jeg ikke svare på, men vi er ikke tvil om at vi har funnet rett mann.
Stefán bætti við er hann er spurður frekar: - Ja, han er rett mann på rett plass, sier Stefansson. Selv møtte han Øygard for første gang i dag.
- Vi i sentralbanken er veldig glad for å ha ham her, og jeg tror det islandske folk vil være enig med oss, sier han.
Hvernig veit Samfylkingarmaðurinn (borgarfulltrúi í leyfi) Stefán Jóhann Stefánsson það? Hvaða forsendur hefur Stefán til því að segja þetta? Síðan hann gerðist upplýsingafulltrúi Seðlabankans hefur hann aldrei svarað neinu af eða til. En nú veit hann allt um óskir þjóðarinnar. Er annars rétt að pólitíkus sé í því starfi sem Stefán er í?
Af hverju þessi leynd kringum ráðningu Sveins Haralds? Er verið að leyna því að ákvörðunin um að ráða hann var tekin á síðustu stundu, þegar ríkisstjórnin var með buxurnar niðrum sig, á fullu að hrekja Davíð úr bankanum, án þess að hafa nokkurn annan í staðinn. Einhver hringdi svo í Stoltenberg, sem segir nú öllum sem heyra vilja að hann hafi teflt Svein Harald fram til bjargar Íslendingum.
Þjóðin verður að fá að vita hverju Svein Harald hefur verið lofað og hvað íslenskir flokksfélagar hans hafa sagt honum. Samfylkingarmaðurinn Stefán Jóhann virðist vita það. Lát heyra Stebbi!
Vera má að Svein Harald hafi komist lítillega í kast við norsk lög. Það var ekki alvarlegt mál eins og ég hef greint frá í færslunni hér á undan. Alvarlegra er, að hann telur sér stætt á því að taka að sér stöðu seðlabankastjóra á Íslandi í trássi við lög og venjur á Íslandi.
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Viðreisnarklappstýran
- Tapað-fundið á DV
- Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.
- Trumpur Eyjajarl
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.9.): 3
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 55
- Frá upphafi: 1356165
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 45
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007