Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
5.6.2010 | 12:20
Shut up, go back to Auschwitz
Ekki eru þetta mín orð heldur ykkar, sem fóruð í andanum og taumlausum öfgum ykkar á skipum "friðar" til Gaza. Þetta var þá allur friðarviljinn.
Til hamingju með friðarbaráttuna! Þið eruð eftir að fara með hana alla leið til Auschwitz. Þið ætlið að halda helförinni áfram. Þið eigið bágt og hér er svo nýjasta myndbandið um ykkur
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (45)
4.6.2010 | 06:57
Vændiskaupendur Íslands sameinist !
Old lady judges watch people in pairs
Limited in sex, they dare
To push fake morals, insult and stare
While money doesn't talk, it swears
Obscenity, who really cares
Propaganda, all is phony.
Bob frændi
Vændismálið er skrítið mál, og því mun seint ljúka. Persónulega er ég á þeirri skoðun, að ekki sé rétt að banna vændi. Það er ekki einu sinni hægt að afnema það. Það hefur ávallt fylgt mannkyninu. Í mannfélaginu, eins og í dýraríkinu, verða alltaf til karldýr sem verða útundan í baráttunni um að finna sér maka. Sumir karlar hafa hins vegar margar í takinu eins og rostungar og fílar. Eigum við að fara ofsækja þá menn, t.d. stjórnmálamenn, sem svo er komið fyrir? Ef einhverjir þurfa að kaupa sér blíðu kvenna vegna þess að þeir geta ekki fundið hana á annan hátt, verður komið í veg fyrir að sumir þeirra grípi til nauðgana eða annarrar kynferðislegrar hegðunar, sem samfélagið telur afbrigðilegt á sérhverjum tíma.
Ef kerlingarhlussur þær sem kalla sig femínista, og karlaumingjar sem hanga í pilsfaldi þeirra ætla að stjórna kynhegðun manna og kvengera alla karla, verða þær að koma með betri rök en þau, að allar konur sem stunda vændi séu hnepptar í þrældóm og allir menn sem kaupa vændi séu ótíndir glæpamenn
Ef skoðaður er dómur gegn Catalinu Ncogo í Héraðsdómi, er greinilegt að starfssemi hennar í vændisgeiranum hefur ekki,svo sannað verði, tengst mansali. Blökkukonan E, sem sakaði hana um að hafa flutt sig nauðuga til Íslands, hefur reynst ótrúverðug.
Mig grunar, að E sé meira ótrúverðug en svo. Breyting í afstöðu réttarins til E er furðuleg og ekki undirbyggður á neinn hátt í dóminum. E hlýtur að hafa aðhafst eitthvað sem dómarar taka tillit til í svo breyttri afstöðu sinni.
E hefur þó aldrei stundað fjárkúgun gegn einhverjum að þeim mönnum sem nú eru eltir á röndum sem glæpamenn fyrir að borga vændiskonum frá Afríku 20.000 krónur fyrir blíðu og drátt, sem þeir gátu væntanlega ekki fengið heima hjá sér? Hún hefur þó ekki krafið þá um peninga með hótunum um að hún myndi annars segja til nafns þeirra í opinberum miðlum? Hvað segir lögreglan og dómaraliðið um þá tilgátu mína?
Þeir menn, sem hafa verið gerðir að glæpamönnum vegna þessa að þeir höfðu kynlífsþörf, ættu allir að standa fram undir nafni. Íslenska þjóðfélagið hefur ekki efni á því að fordæma þá. Alls kyns vændissala, hórmang og siðleysi hefur tíðkast á Íslandi, og það miklu verra en að borga 20.000 krónur fyrir drátt hjá afríkanskri portkonu við hliðina á lögreglustöðinni.
Þið ákærðu kaupendur kynlífs, þið hafið ekkert að fela, (nema að þið hafið verið að halda framhjá konunni ykkar). Látið ekki stimpla ykkur af fólki með miðaldahugarfar eða útkulnuðum eða freðnum kvenmönnum sem ekki skilja kynþörf karla, vegna þessa að þær eru sjálfar ekki alveg eðlilegar, eða af blaðamönnum DV sem eru auðvitað siðvönduðustu menn Íslandssögunnar, fyrr og síðar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
3.6.2010 | 07:28
Og þá er komið að íþróttum ...
Mikið er talað um neyð og vöntun á Gaza þessa dagana. Ali Musselmani á Gaza tjáði mér, að sterar væru hátt skrifaðir á óskalista Hamas, langt á undan lýðræði og frelsi. Hann vill fá stera á skipin til Gaza. Stera strax!
Íslensk vöðvabúnt munu á næsta ári taka þátt í Gazakroppasýningunni í boði Össurar. Sterkustu menn á Íslandi sýna samstöðu með Palestínumönnum í neyð.
Musselmani sendi mér einnig myndir frá markaði á Gaza, svona rétt til að sýna mér að áróður Ísraels um Gaza væri ekki á rökum reistur. Þetta er eintómur lygaáróður sagði Ali. Það er eitthvað til í því.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
2.6.2010 | 05:08
Ísland er nýjasta öfgaríkið
Barefli og teygjubyssur og söngur um að drepa gyðinga eins og Múhammeð gerði það er nóg til þess að hefja þjóðarmorð. Íslenskur maður var í gær dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að slá mann í höfuðið með skiptilykli. Það voru aðeins stærri bareflin sem friðarsinnarnir á ferjunni Mavi Marmara létu dynja á hermönnum Ísraels í gær, áður en þeir vörðu sig. Er í lagi að fólk sem er tengt hryðjuverkasamtökunum IHH, Múslímska Bræðralaginu og Hamas og sem fer til Gaza til að verða píslarvættir (að eigin sögn), berji menn til óbóta? Á að láta slíkt fólk valsa laust? Mega Ísraelsmenn ekki sitja fólk sem ber með járnstöngum þrjú ár bak við lás og slá, líkt og gert er við árásarmenn á Íslandi?
RÚV kallaði vopn árásamannanna PRIK í fréttum í gær. Ef einhverjir eru PRIK þá eru það fréttamenn RÚV. Nú er komið í ljós að skipverjar á Mavi Marmaris voru, fyrir utan "prik", með skotvopn:
Hættulegustu vopnin um borð á Mavi Marmara voru þó söngvarnir um að útrýma gyðingum að hætti spámannsins og útlenskir einfeldningar og æsingafólk og aðrar tikkandi bombur.
Íslenskir stjórnmálamenn ganga miklu lengra en kollegar þeirra í nágrannaríkjunum. Einn dýpsti haturstónninn kemur t.d. úr Bolungarvíkurbassanum Einari K. Guðfinnssyni. Líklega er þetta vegna þess að sumir íslenskir stjórnmálamenn er enn í sjokki út af þeirri kreppu sem þeir áttu beint eða óbeint þátt í. Þeir þurfa að dreifa athyglinni. Meira segja Össur utanríkisráðherra dregur í land og segir Einar K. ganga of langt í yfirlýsingum sínum.
Össur vill ekki taka neina áhættu, enda á leiðinni inn í ESB, þar sem fíflalæti eins og tíðkast í íslenskri pólitík eru fátíð. Hann var líka búinn að heyra um að á friðarskipinu Mavi Marmara hefði verið mikið af vopnum, af þeirri tegund sem hægt er að senda menn í þriggja ára fangelsi fyrir að nota á Íslandi.
Flestir íslenskra þingmanna vilja greinilega útiloka eina lýðræðisríkið í Miðausturlöndum frá samskiptum við Ísland. Það segir mér eitt og annað. Ef það gerist, getur Ísrael líklegast lifað það af eins og svo marga aðrar árásir og mótbáru. "Einlægan stuðning" Einars K. við Ísraelríki er víst hægt að vera án. Íslendingar geta sent Hamas fleiri prik.
Yfirvöld í Ísrael, sem bera mikla virðingu fyrir Íslandi og muna þann tíma er Ísland varði stofnun Ísraelsríkis, vita hins vega vel að á Íslandi er gömul hefð fyrir gyðingahatri jafnvel þótt gyðingar hafi ekki verið til staðar eða hafi verið mjög fáir einstaklingar sem földu uppruna sinn.
En það er vissulega merkilegt, að litla gjaldþrota ríkið á hjara veraldar með fallegustu konurnar, sterkustu mennina og hreinasta málið verði kannski eina landið í Evrópu sem slítur stjórnmálasambandi við Ísraelsríki, vegna þess að Ísraelsmönnum mistókst að koma í veg fyrir að hryðjuverkafriðarsinnar tækist ætlunarverk sitt sem var Jihaad-sjálfsmorðsferð til Gaza, með útlendinga sem gísla.
Ég endursýni þetta myndband ef einhver vill enn syngja með á viðlaginu við gamalt morðljóð múslíma fyrir gyðingadráp: Khaibar, khaibar..... Þið getið slegið prikum ykkar í takt:
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
1.6.2010 | 10:00
Hriplekur friðarfloti
Öfgamenn á friðarflotanum sem stöðvaður var í gær, sungu um óskir sínar að kála gyðingum eins og þeir gerðu á tímum Múhameðs spámanns. Sjá: http://palwatch.org/main.aspx?fi=157&doc_id=2323
Þó svo að krimmahöfundurinn Henning Mankell tæki sjálfan Wallander með sér á hriplekan dall frá Tyrklandi og sigldi ólöglega inn í lögsögu Ísraelsríkis, myndi það ekki skapa frið. Meðan Mankell og aðrir velmeinandi gíslar öfgaíslams deila káhettu með öfgamönnum, þá er enginn friður á ferð. Meðan Ulf Carmesund frá Bræðralagi (Broderskapsrörelsen) Krata í Svíþjóð, sem eru samtök kristinna krata (já Amen!), ákveður að sigla til að bjarga Gaza, er kannski áhugavert að vita, að Bræðralagið í Svíþjóð hefur samvinnu við Bræðralag múslíma, Al-Ikhwān al-Muslimūn, sem styður hryðjuverk og hvetur til sjálfsmorðsaðgerða í Ísrael.
Þó svo að allir nóbelsverðlaunahafar heimsins flytu á fleka visku sinnar að ströndum Gaza, yrði þeim einskis ágengt, meðan að nýju "hipparnir" um borð bera vopn. Friðarboðberar gera ekki öfga-múlla, sem boðar Jiihad gegn Ísrael og afneitar því að Ísraelsríki sé til, að stýrimanni sínum. Ef hásetarnir hafa tengsl við hryðjuverkasamtök, er fullljóst að friðurinn er ekki í höfn. Friðarboðberar sem styðja stjórnvöld á Gaza, hljóta að hafa mjög afbrigðilega skoðun á friði. Friður sá sem boðaður er á Gaza, er útrýming Ísraelsríkis. Þann boðskap fá börn á Gaza í vöggugjöf.
Imperíalismi núverandi stjórnvalda í Tyrklandi er óþolandi. Ef Tyrkland telur það eðlilegt að tyrknesk skip brjóti hafréttarreglur og sigli í ísraelskri lögsögu, er það besta sem Ísrael getur gert að slíta stjórnmálasambandi við Tyrki. 10% Tyrkja telja að Tyrkland eigi að stækka og að núverandi stærð landsins beri vott um veikleika. Hvað gengur Tyrkjum til með því að senda "friðarflota" inn í lögsögu Ísraels? Tyrkland þarf á stuðningsmönnum að halda við áform sín. Þess vegna þegja þeir yfir kjarnorkuríkinu Íran og segja ekkert við Sýrlendinga, sem geyma vopn Saddams. Samviska tyrkneskra stjórnvalda er svört.
"Friðarsinnunum" á tyrknesku skipunum var boðið að sigla til Haifa og Ashod og afhenda varning sinn til Gaza þar. Ísrael bauðst til að afhenda hann á Gaza. Reynslunni ríkari verða Ísraelsmenn náttúrulega að hafa eftirlit með því sem sent er til Gaza. Yfirvöldum þar er nefnilega meira annt um að fá vopn en mat handa börnum sínum. Margsinnis hafa Ísraelsmenn og Egyptar stöðvað vopnasendingar til Gaza. Yfirvöld á Gaza, hryðjuverkasamtökin Hamas, eru þau yfirvöld sem eyðilögðu öll gróðurhús Ísraela á Gaza. Gróðurhús, þar sem hægt hefði verið að rækta mat.
En lygaherferð hinna fljótandi friðarsinna er yfirgengileg. Heimurinn vill helst heyra um hamfarir á Gaza, þótt þar líði enginn skort. RÚV, með skrímslafræðinginn Þorvald Friðriksson í broddi fylkingar, miðlar afar takmörkuðum og vægast sagt undarlegum fréttaflutningi af því sem gerðist. Ísrael er versta skrímslið sem Þorvaldur þekkir. Þorvaldur hefur enn ekki sagt okkur frá því hvaða boðskapur var hafður í frammi um borð á tyrknesku skektunum.
Utanríkisráðherra Íslands, sem virðir þjóð sína að vettugi og hendir 7 milljörðum í ESB-ævintýri sitt, hrópar svo á torgum um ástandið á Gaza án þess að vita, eða vilja vita, hvað gerðist. Hann segir hins vegar mest lítið um um ástand sinnar eigin þjóðar, sem hefði getað notað þær 7 milljarða króna sem hann kastar á fórnareldinn. 7 milljarðar sem gætu farið til heilbrigðis-, skóla- og atvinnumála á Íslandi.
Hryðjuverkamenn finnast víða og Bræðralag Krata er og verður dýrt. Össur Skarphéðinsson er samhryðjuverkamaður þeirra "friðarsinna" á tyrknesku skipunum sem sungu um óskir sínar um að útrýma gyðingum. Össur hefur brotið hegningarlög svo um munar. Ég sé ekki betur en að íslenska ríkisstjórnin hvetji til gyðingamorða í anda Múhameðs.
Farið í friði.
Það er munur að aðferðum "friðarsinna" og flota Ísraelsríkis.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
29.5.2010 | 07:02
Kjósum Æra Tobba
- Vambara þambara þeysingssprettir
- því eru svona margir sjálfstæðiskettir,
- agara gagara vinstrigrænum,
- illt er að hafa þá marga á bænum.
- Rabbabara affþíbara Kratalið
- nú vantar aftur rekavið,
- rólegan hóflegan laugardag
- allt gengur Ólafi ó í hag.
- Finn ekki sé ekki Framsóknarsokk
- helvítis djöfulsins fukking fokk,
- er borginni borgið frá því í dag
- eða ber hún aldrei sitt Gnarr eftir það.
Samþykkjum aldrei fátækt segja fulltrúar VG fyrir bæjarstjórnakosningarnar. Allir geta verið sammála um það, og þetta hljómar vissulega líka eins og útrásavíkingar í afneitun.
En eitt er greinilegt, og það er að andleg fátækt er orðin verulega útbreidd á Íslandi. Þar býr þjóð sem lætur viðgangast að stolið sé af henni aleigunni í þrígang og að ráðherra hendi 7 milljörðum á glæ vegna þess að hann vill verða attaníossi í ESB.
Andleg fátækt sýnir sig í stjórnmálum, enda ekki um auðugan garð að gresja, hvað varðar dugmikla menn. Þetta er innantómt femínistalið og sjálfofmetnir smáguttar með froðu í hárinu, fyrir utan þá sem eru með skalla og sem er illt, einstaka menn sem hafa fengið uppreist og einn og einn með Borderline heilkenni.
Því er engin furða að Reykvíkingar ætli sér að kjósa gleðifífl í stað eintómra aumingja. Það getur ekki orðið miklu verra. Fólk heimtar greinilega enn sína skemmtun. Þetta er líka drepfyndið. Íslenskt þjóðfélag í hnotskurn. Einn langur veruleikaflótti fyrir framan sápu í sjónvarpinu eða í jeppa uppi á fjalli.
Myndirnar eru af Jóni Gnarr og hundinum hans, honum Æra Tobba, sem hlakkar til að verða borgastjórafrú. Hann er af tegundinni Borderline og getur sagt Gnarr. Tobbi gerir sér von um sæti í Borgarstjórn. Kjósum Æra Tobba!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
20.5.2010 | 18:27
Mosk(v)u strax!
Ég las í Fréttablaðinu í dag, að múslímar á Íslandi vilji fá úthlutað lóð fyrir mosku. Hér og þar og alls staðar á bestu stöðum í bænum. Auðvitað eiga menn að fá úthlutað lóð undir trúariðkanir sínar. Ég stakk reyndar sjálfur upp á mosku árið 1994, og mér sýnist að ég hafi verið fyrstur til að minnast á það á Íslandi. Ég reit í Moggann, n.t. 14. des 1994, bls. 44: Það er ekki nóg að yrkja landið, fólkið verður einnig að fegra. Ég fagna þeim degi, að moska rís í Mosfellssveit eða sýnagóga á Selfossi og að bænir á Alþingi verði ekki aðeins kristnar". Ég vona að múslímar þakki mér spámannsviskuna og hugmyndina á tilheyrilegan hátt - en það verður áfram leyfilegt að teikna mig.
Það vekur undrun mína, að eins fámennur hópur og múslímar Íslands vilji reisa risamosku á besta stað í bænum. Á Degi Fjölskyldunnar (15. maí) voru hræðilega fáir múslímar í skrúðgöngunni. Palestínudeildin sendi þrjá-fjóra afdankaða íslenska komma í gönguna fyrir sig. Þegar fámennið hrjáir múslíma svo mikið, að þeir þurfa að senda varalið sitt, t.d. mann sem líktist Þorleifi Gunnlaugssyni ?? (með skegg), sem tapaði fyrir Sóleyju Tómasdóttur í kerlingasvindlkosningu VG í Reykjavík, og ágætan bókavörð og mikinn friðarsinna, Einar Ólafsson, þá er varla ástæða til að reisa stóra mosku. Sella ætti betur við. Varla eru meintur Þorleifur og Einar múslímar? En maður veit það svo sem ekki. Kommúnismi og Íslamstrú eiga nefnilega margt sameiginlegt. Mikið af öllu eða engu og blóðugu uppgjöri þegar menn eru í ham.
Mikið er nú gott að gyðingar á Íslandi hafi aldrei krafist lóðar undir trúariðkanir sínar og reist samkunduhús. Það hefði ekki boðað neitt gott. Í þýskalandi er það þannig þessa dagana, að menn hella olíu á samkunduhús gyðinga og kveikja í til að krefjast þess að Ísrael verði lagt niður. Þetta gerðist um daginn og þá grunar Þjóðverja strax öfgamúslíma, komma og nýnasista. Ekki endilega í þessari röð. Já margt er líkt með skildum, ef rétt er ályktað í Þýskalandi.
18.5.2010 | 16:56
Hin íslenska firring
Sverrir Jakobsson sýnir okkur í dag í Fréttablaðinu (bls. 17), svo um munar, hvernig sumir "menntamenn" lifa í allt öðrum heimi en almenningur. Sverrir hefur, eins og svo margir aðrir, áhyggjur af niðurskurði, t.d. í skólakerfinu og ekki minnst í heilbrigðisgeiranum, þar sem læknar eru nú sendir í 12 vikna sumarfrí til að spara. Engir mjaðmaliðir verða t.d. settir í aldrað og lúið fólk í sumar, fólk sem er búið að greiða skattana sína í 50-60 ár og skila því sem það þarf til samfélagsins. Það þarf að bíða sárþjáð svo mánuðum skiptir til að komast í lífsnauðsynlega aðgerðir, meðan Össur Skarphéðinsson fórnar milljörðum á brennslualtari ESB firringarinnar.
En aukning skatta á Íslandi mun ekki bæta ástandið eins og Sverrir Jakobsson sagnfræðingur heldur. Hvorki sá skattur sem er lagður er á almenning, né á t.d. álver.
Framleiðsla í landinu hvarf og var eyðilögð eftir að peningaverksmiðjur svindlaranna urðu nær eina von þjóðarinnar og framtíðarsýn. Helsta framleiðsla Íslendinga í áratug voru loftkastalar og veruleikafirring. Sá tími er liðinn, Sverrir Jakobsson.
Niðurskurður er því nauðsynlegur, ekki bara á útrásarvíkingum. En spyrja má, hvort hann sé nauðsynlegur á spítölum og í skólum að framhaldsskólastigi. Í stað þess að setja 90% skatta á þá hæst launuðu, sem Sverrir segir menn hafa haft frábæra reynslu af í BNA milli 1950 og 1960, eru hér nokkrar sparnaðarleiðir, sem ég tek ekkert fyrir.
1. Auknir skattar verði lagðir á hverja bifreið sem keypt er umfram 1. bíl á sérhverju heimilisfangi. Bílafloti Kreppuíslendingsins er í engu samræmi við ástandið. Hærri skattar og gjöld verði einnig á þeim bifreiðum sem sé til á heimili umfram fyrsta bíl.
2. Deildir Háskóla Íslands og annarra háskóla sem framleiða nemendur sem enda í atvinnuleysi að námi loknu verði lokað tafarlaust.
3. Fækkun prófessora og lektora . Árlegt endurmat á hæfi manna til kennslu.
4. Háskólum verði fækkað. Hér eru allt of margar menntastofnanir miðað við fólksfjölda. Hvað hefur það skilað Íslendingum? Já, útrásarvíkingum.
5. Bitlingar til fyrrv. forseta og embættismanna verði skornir verulega niður.
6. Stöðvun ESB-firrunnar. Ekki fleiri peninga í umsóknarferlið til ESB. Það er alveg eins hægt að kasta þeim peningum í ruslið, ... eða nota þá í að styrkja skóla- og heilbrigðiskerfið.
7. Fækkun ráðuneyta niður í fimm.
8. Hætta að senda fé til þróunarlanda, sem eru ríkari en Ísland.
Svo er spurningin, hvort Siggi Einars og Jón Ásgeir skili meiru flegnir og roðflettir, eins og þjóðin vill sjá þá dag. ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ DREPA KAPÍTALISMA OG VILJA HAFA HANN SAMT. Því þú getur ekki fengið 90 % skatta eins og í BNA á 6. áratugnum, Sverrir Jakobsson, nema að hafa góðan kapítalisma.
Þegar Bónus er farinn á hausinn, fá Sverrir Jakobsson og aðrir firrumeistarar minna fyrir launin sín og finna meira fyrir sköttunum, sem hann Sverrir vill svo ólmur fá yfir sig nú, til að skólakerfið, (sem hann vinnur í), haldi áfram að blómstra og heilbrigðiskerfið, (sem getur læknað firringu hans), geti tekið hann í meðferð.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 19.5.2010 kl. 17:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.5.2010 | 09:06
Ziggy Tukthouse
Fréttamiðlum er tíðrætt um endurreisn ræflarokksins í Lundúnum. Aðalstjarnan þar í augnablikinu er Ziggy Tukthouse, sem nú fer að ráðum Amy Winehouse og ræður sér lögfræðinginn Ian Burton, sem er sérfræðingur í að koma frægu fólki úr bráðum vanda.
Ziggy er eftirlýstur um allan heim án þess að honum hafi verið afhent kæra. Ziggy segir að það sé Hard-Core dauðarokkarar á Íslandi, sem vilji ná í líkama sinn, höfuð og hanakamb á silfurfat til að friðþægja æstan lýð. Það er nokkuð til í því. Sigurður spýtir á þetta og berar hér mallann til að sýna yfirvaldinu á Íslandi, að það stendur sig ekki í stykkinu.
Ziggy var nýlega á bar í Chelsea i þessum klúra bol.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
11.5.2010 | 21:36
COUNTERFEITING/FORGERY, FRAUD
Jæja, þá er gamall skólafélagi kominn á listann yfir heimsins eftirsóttustu menn, fyrir sakir þær sem nefndar eru í fyrirsögninni. Það er þó margt rangt í eftirlýsingunni á Sigga. Hann hefur t.d. aldrei verið 1,80. Siggi hefur bætt nokkrum sentímetrum við. Hann er ekki bláeygur heldur píreygur, og svo er hann ekki sköllóttur, allir geta séð það.
Þarna er illa komið fyrir ágætis dreng, sem ég þekkti nú aldrei vel og hafði lítið samneyti við, því hann var alltaf í "verri bekknum" og hafði önnur áhugamál en ég. Verst er þetta fyrir fjölskyldu hans og maður vonar að hún hafi styrk til að komast í gegnum vandamálin. Eins vona ég að Sigurður gerist ekki flóttamaður í 3. heiminum, og axli sem fyrst þá ábyrgð sem réttlátur dómstóll leggur á herðar honum á ættjörð hans.
Ef íslenska þjóðin yrði einhvern tíma eftirlýst af Interpól, yrði það líka fyrir COUNTERFEITING/FORGERY, FRAUD. Mjög fáir eru saklausir af hruninu á Íslandi. Íslendingar lifðu lengi um efni fram, og það löngu áður en Sigurður gerðist þjónn í musteri Mammons. Munum það þegar Siggi og vinir hans í veruleikafirringunni verða dæmdir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Viðreisnarklappstýran
- Tapað-fundið á DV
- Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.
- Trumpur Eyjajarl
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.9.): 0
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 44
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 37
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007