5.10.2010 | 04:13
Burt með nasistana og aðra útrunna merkjavöru af Austurvelli !
Fólk sem misst hefur heimili sín, vinnuna og jafnvel vitið vegna óstjórnarinnar á Alþingi, verður að koma í veg fyrir að nasistafífl séu að misnota það. Ekki ætla ég útiloka að á meðal nasistanna á Austurvelli séu fólk sem er lemstrað af kreppunni, en hverjum kenna nasistar um?
Troðið eggjum upp í litlu nasistasvínin eða hendið þeim í höfnina. Þeir eru tímaskekkja. Nasismi og kommúnismi eru öfgastefnur og fávitahugsjónir, sem eiga ekki við Íslendinga. "Kommana" úr Alþingishúsinu og nasistana af Austurvelli.
Ungt fólk sem vill sýna "lit", ætti ef til vill að fá sér tattú á handlegginn eins og borgarstjórinn, sem er með sama merkið á handleggnum og strætóinn sem pabbi hann ók í forðum var með á hliðinni. Hollar merkingar eru alltaf góðar, en hamar, sigð, hakakross og ESB-þyrnikrónan eru hins vegar óþörf píningarverkfæri á Íslandi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.10.2010 | 14:04
Gott viðtal við Wolfgang Edelstein
Hlustið á frábært viðtal Ágúst Þórs Árnasonar og Ævars Kjartanssonar við skóla- og miðaldafræðinginn Wolfgang Edelstein í Ríkisútvarpinu.
Í viðtalinu segir Wolfgang ævisögu sína, og meðal annars frá því, er hann fylgdist með umræðu á Alþingi um umsókn sína fyrir ríkisborgararétt. Bjarni heitinn Ben var alfarið á móti, enda margir í Sjálfstæðisflokknum og Framsókn andsnúnir gyðingum. Jón á Ökrum (Pálmason) mælti hins vegar með piltinum, sem hann þekkti sem góðan smala norðan úr Húnaþingi, þar sem Wolfgang var löngum í sveit hjá nágrönnum Jóns. Bjarni Ben var hins vegar ekki eins andsnúinn íslenskum ríkisborgararétti fyrir eistneskan stríðsglæpamanns, sem settist að Íslandi og sem sótti oft stuðning til Bjarna Ben og síðar til annarra sjálfstæðismanna.
Móðir mín var í gagnfræðaskóla og menntaskóla samtíma Wolfgang. Hún hefur sagt mér sögur frá því hvernig hann eftir nokkur ár á Íslandi skrifaði bestu stílana í skóla og var hrósað af yfirlýstum nasista, Knúti Arngrímssyni, fyrir að vera langtum klárari en íslenskir samnemendur hans. Knútur, var einn þeirra fáu manna, sem á 4. tug 20. aldar leyfði sér að fara fram á afnám prent- og skoðanafrelsis á Íslandi, var uppgjafaprestur sem skrifaði klámvísur um sóknarbörn sín, sjálfstæðismaður og loks einn fremsti talsmaður nasismans á Íslandi.
Hlustið á þetta frábæra viðtal við Wolfgang Edelstein, þar sem nefndir eru til sögunnar Max Horkheimer, Jürgen Habermas, Theodor W. Adorno og aðrir merkismenn sem Edelstein hefur kynnst.
Þátturinn um Prof. Dr. Dr. Edelstein er kafli í Íslandssöguna. Mikið hefði nú verið gott að fleiri eins og hann hefðu verið til á Íslandi.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 14:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.10.2010 | 06:21
Hulunni svipt
fyrst að neðan svo að ofan, og þá verður það ef til vill eðlilegt. Þessar stöllur í París, sem þora ekki að koma fram undir nafni, kalla sig Niqabitches, og telja sig vera að mótmæla burkubanni í Frakklandi með því að sýna á sér berar lappirnar, en hylja á sér efri hlutann fyrir framan opinberar stofnanir í Parísarborg. Ég næ ekki alveg boðskapnum. Hann er mér hulin ráðgáta. Eru ekki einhverjir sannheilagir vinstri menn, sem skilja tiktúrur Íslams, sem geta skýrt þetta út fyrir mér?
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 06:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2010 | 06:11
Hækka verð á eggjum
Öreigar landsins eiga greinilega nóg af eggjum. Þetta sýnir ömurleikann á Íslandi í hnoteggjaskurn. Það verður auðvitað að taka eggin af þessum lýð: Hækka eggjaverð, hækka skattana, loka sjúkrahúsum, hækka lyfin þeirra, taka af þeim húsnæðisstyrkinn, lækka barnabætur, hækka skatta á kexi, auka atvinnuleysið og innleiða vönun og geldingar fyrir fátækralimi. Svona fólk má ekki fjölga sér. Þá getur Jóhanna aldrei aftur farið í utanlandsferðir eða boðið Obama til Íslands.
Þegar því er lokið, er fínt að fá fleiri trúða í ráðhúsin, ráða fleiri aðstoðarmenn fyrir ráðherrana og hefja kennslu í Hí á algjörlega fjarstæðukenndum fræðigreinum eins og fornfjármálafræði, já og greiða Björgvini S. betri laun fyrir unglingavinnuna, nú þegar drengurinn er aftur farinn að genumlýsa egg í eggjabúinu við Austurvöll. Auðvitað vantar fleiri ráðherraferðir til New York, svo Össur getir rifið kjaft eins og einræðisherra frá Íran. Það er miklu mikilvægara en spítaladeildir úti á landi.
Nei, Það á ekki að láta skríl og skítapakk tjá sig um vanhæfni snillinganna í ríkisstjórninni beint fyrir framan Alþingishúsið og skapa þannig gjá á milli þings og þjóðar, sem var þar aldregi fyrir.
Mikið var nú aumt að sjá hvernig forsetafrúin sýndi pakkinu samúð, þar sem hún stóð með stór vot augun og starði á lýðinn kasta úrvalseggjum. Þetta fólk hlustaði alls ekkert á hana og ráð hennar til þjóðar í kreppu. Lýðurinn hefur ekki prjónað og heklað sig út úr kreppunni eins og hún. Eggjakastararnir geta sjálfir sér um kennt, og hana nú.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
29.9.2010 | 05:59
Lausnin liggur hjá Alþingi
Landsdómur yfir aumingja Geir, eins og hann sé einhver stríðsglæpamaður, er dæmigerður íslenskur farsi.
Meðlimir hrunastjórnarinnar allrar, sem ekki eru þegar hættir á Alþingi, eiga allir að sjá sóma sinn í að láta sig hverfa úr heimi stjórnmála á Íslandi í að minnsta kosti 10 ár.
Meðlimir hrunastjórnarinnar, Jóhanna Sigurðardóttir og Össur Skarphéðinsson sem hafa haldið áfram að skaða ímynd Íslands í núverandi ríkisstjórn, ættu alfarið að hverfa úr stjórnmálum í stað þess að gráta krókódílatárum yfir örlögum Geirs í beinni útsendingu.
Þetta er sem sagt spurning um samvisku fleiri einstaklinga en Geirs H. Haarde, og lausnin liggur hjá Alþingi. Hver þorir að bera fram tillögu um óhæfi meðlima hrunastjórnarinnar og brottvísun þeirra af þingi?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.9.2010 | 18:14
Nú er Stalín stoltur af börnunum sínum
Hann hefði ekki getað ofsótt andstæðinga sína betur en lítilmennin sem nú sitja á Alþingi.
Eini dómurinn, sem vitglóra er í fyrir hrunastjórnina, er að allir sem í henni sátu, jafnt fífl, villingar, asnar, fávitar sem flaðurmenni, verði settir af í stjórnmálum og fái ekki að sitja á Alþingi í að minnsta kosti 10 ár. Þá erum við laus við þau, og þau laus við okkur, þjóðina sem þau nauðguðu með fínu gulldrengjunum. Allir ganga þá í burtu með æruna og glóruna í heilu lagi.
En að dæma einn mann sekan fyrir það stjórnmálalega umhverfi sem var á Íslandi fyrir hrun, er út í hött. Skríllinn í þinginu er búinn að brennimerkja Alþingi, og snúa þessari 1000 ára stofnun í ómerkileg sýndarréttarhöld að hætti Stalíns. Þessi atkvæðagreiðsla er eftir að verða skráð í kennslubækur sem aðhlátursefni komandi kynslóða.
Niðurstaða sú sem kom út úr sýndarlýðræði vinstrifasistanna á Íslandi í dag, er einn ljótasti blettur á sögu landsins. Villta flugfreyjan, kollótti horbóndinn að norðan og maðurinn sem flytur ruglræður hjá SÞ ættu öll að fara í langt frí og hitt pakkið með.
![]() |
Mál höfðað gegn Geir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.9.2010 kl. 04:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
28.9.2010 | 12:43
ESB kreistir makrílinn
Hafmeyjan hálfsigna frá Agios Nikolaos á Krít, Maria Damanakis, var heldur betur berorð á fréttamannafundi í gær.
Kona þessi, sem hefur tekið miklum umbreytingum á vinstri vængnum líkt og Össur, Ögmundur og Ingibjörg Sólrún, er tækifærissinni af verstu gerð. Vanhugsuð stríðsyfirlýsing hennar í gær er eitt það vitlausasta sem sést hefur frá ESB á síðari tímum, en það sýnir nú í raun í tragikómísku grískri umgjörð, að ESB ætlar að pressa Íslendinga til blóðs og ráðast á okkur eins og mínótárinn, frændi Maríu á Krít, sem stangaði allt og alla í völundarhúsinu. Þó hún hafi verið að fara á fund í Abberdeen síðar í vikunni, var alveg óþarfi að friða skoska rugludalla með stríðsyfirlýsingu við smáþjóðir í Norðuratkantshafi.
Damanaki eins og hún sér sjálfa sig
Gaman væri að vita, hvað ESB vill eiginlega að Ísland veiði lítið af "ESB-makríl", svo þau í Fjórða Ríkinu séu ánægð. Frau Maja Kirchner, þýsk Seemädchen, sem er aðalpappírryddari fiskveiðinefndar ESB í makrílmálum, er reyndar heilinn á bak við þessa heift Damanakis, sem auðvitað veit ekkert um fisk en lærir mikið af Kirchner um þýska frekju og yfirgang, sem er orðið skrásett vörumerki í ESB.
Vestfirski freðfiskurinn Össur sendir diplómata sína undir stjórn Tómasar H. Heiðar, sem er rólyndur karfi af þýskum ættum frá Doggerbanka. Munu þeir víst halda tvo fundi með ESB um makrílmálin í október. Þeir verða að segja íslensku þjóðinni hvað þeir eru að spila um við Mariu og Maju í Brussell. Það er ekkert einkamál Össurar í biðstofu ESB. Þess verður að gæta, að sendimenn Íslands séu ekki persónulega í vasanum á starfsmönnum ESB, eins og sumum þykir líklegt - og starfi ekki eingöngu eftir boðum frá Össuri vegna ESB-gleði hans. Sem vinur óperu, og Wagners í móðurarf, ætti Tómas H. Heiðar að syngja meiri hetjutenór en hann hefur gert á undanförnum fundum um makrílinn. Hamartia Damanakis og Maja Valkyrja Kirchner með undirleik sekkjapípu er ekki mikið fyrir minn smekk. Ekki heldur íslensku þjóðarinnar.
Makrílnefndin frá ESB
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.9.2010 | 20:51
Stoðtæki eða áróðurstæki ?
Stoðtækjameistararnir, sem Össur Skarphéðinsson gerði fræga í annálaðri vestfirskri ræðu í New York, eru nú á leið til Gaza eftir að hafa borgað tollinn af ólöglegum innflutningi sínum. Sveinn Rúnar, leiðangursstjóri, hélt kannski að Ísraelsríki leyfði flutning til óvinveitts ríkis um land sitt fyrir ekki neitt. Líklega telur Sveinn Rúnar, í einfeldni sinni, að tollar séu séríslenskt fyrirbæri, en hann ætti að vita betur, maðurinn sem hefur skrifað greinina: Israel, Israel über alles. Hann getur ekki búist við öðru en smáupphæð út á það uppátæki.
Nú eru yfirvöld á Gaza líklega þegar búin að fá ljósmynd Morgunblaðsins, tekna af hirðljósmyndara blaðsins (sjálfum Sveini Rúnari), þar sem þessir ofsóttu smiðir standa hlæjandi við Grátmúrinn.
"Gyðingarnir" Óskar, Anton og Johan Snyders, sem er frá Suður-Afríku, munu örugglega fá ánægjulega dvöl á Gaza. Á Gaza eru menn nefnilega fullvissir um að Ísraelsmenn reyni að gera fólk sem fær læknahjálp í Ísrael að njósnurum. Gott er að Sveinn Rúnar er með þeim til halds og stoðar, því annars myndu Gazverjar telja stoðtækjameistarana óvinveitta njósnara Ísraelsríkis - sérstaklega þegar þeir eru búnir að sjá myndina af þeim frá Mogganum.
Starfssemi stoðtækjameistaranna hlýtur að nýtast í mjög sérstæðum tilfellum, því samkvæmt Islamic Relief, þá gerðu þeir samning við Artificial Limb Center á Gaza, stoðtækjamiðstöð á Gaza, í apríl 2009 til eins árs til að sinna öllumsem vantaði gervilimi á Gaza. Til verkefnisins voru veittar 330.000 Evrur sem komu mest frá Royal Charity - Al Bahrain.
Þess vegna hlýtur leiðangur stoðtækjameistaranna frá Íslandi að vera afar sérstakur, enda eru íslenskir limir þeir bestu í heimi - er það ekki? Og það er alltaf skemmtilegt þegar íslenskur læknir fer í hlutverk gyðingsins frá Nazaret sem fékk lama menn til að ganga, án stoðtækja. En ekki held ég að íslenski læknirinn sé eins óeigingjarn í gerningum sínum og gyðingurinn forðum. Kannski var hann bara með Jerúsalem-heilkenni?
Mér er líka nær að halda, að margir á Íslandi þurfi á stoðtækjum að halda, einhverju sem hjálpar til að styðja við heilagarminnn í þeim sem eru of auðtrúa. T.d. þarf stubb á hjólum fyrir einhverja blaðamenn Morgunblaðsins, sem enn skrifa um gervifætur fyrir Gaza, þótt í tolluðum töskum stoðtækjameistaranna hafi aðeins verið verkfæri.
Ferð þessara manna er ekkert annað en Media Stunt.
![]() |
Gervifæturnir lausir úr tolli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
27.9.2010 | 04:45
Ahmedinejad's Icelandic brother
Ögmundur og Össur eru karlar sem helst vilja ekki ræða um vanda íslensku þjóðarinnar. Þeir masa í staðinn um Gaza, en vilja ekki axla ábyrgð á vitleysunni í sjálfum sér á Íslandi. Gyðingarnir í Ísrael er ásakaðir um allt sem illa fer í heiminum til að beina sjónum manna frá svaðinu á hlaðinu heima. Meðan aflóga Imba kennir Össuri um sambandsleysið við Björgvin Sig., er Össur í New York, að spreða svartagalli eins og hann væri bróðir Ahmedinejads. Heimurinn fær þó ekki að vita, að á Íslandi er Össur talin vera válegur gripur. Líklegt tel ég þó að menn hafi séð það eins og hann belgdi sig í pontunni í allsherjarsal SÞ. Örfáum mönnum á Íslandi er þó hlýtt til hans, eins og t.d. Ögmundi Jónassyni, sem segir hann Íslandi til sóma. Ekkert er greinilega eins gott til að styrkja böndin í ríkisstjórninni eins og ærlega gott spark í Ísrael með hjálp ömurlegs fjölmiðlastunts Sveins Rúnars Über Alles Haukssonar.
Össur er svo búinn að gera Ísrael að aðalóvini Íslands á vefsíðu Utanríkisráðuneytisins í yfirlýsingu sem kölluð er "Harkaleg gagnrýni á Ísrael". Þetta er næstum því eins og í Íran. Góðvinur minn í Ísrael, sem ég talaði við í gær, sagði: "He's just like Ahmedinejads younger brother". Ég varð að leiðrétta hann: "Neeh, he is more like Ahmedinejad's older brother". Ami er nefnilega fæddur 1956 en Sómi er fæddur 1953.
Þeir Ögmundur og Sómi fárast út af gervilimum á Gaza, meðan sumt fólk á ekki í sig og á Íslandi. Þeir ljúga báðir, þegar þeir segja að gervilimina þurfi að nota á íbúa Gaza, sem hafa orðið fórnarlömb árása Ísraelsmanna á Gaza. Þeir vita vel að á Gaza eru allir sem misstu limi, og ekki líf sitt, í síðustu átökum þar, búnir að fá þá gervilimi og hjólastóla sem þeir þurfa á að halda. Allt er fullt af gervilimum á Gaza. Svo mikið er reyndar af gervilimum á Gaza, að gervilimir frá Ísrael eru afþakkaðir. Heimildir af gnægð gervilimanna kemur frá Palestínumönnum sjálfum. Ögmundur og Sómi kynna sér ekki málin, því tilgangurinn helgar meðalið. Þannig er það alltaf hjá öfgamönnum og þeim sem eru hörðustu stuðningsmenn Hamas í Evrópu.
Ég hef nýlega spyrt Ögmund mannréttindaráðherra, sem um árabil hefur borið blak af Hamas og öðrum öfgum, um álit hans á því að talsmaður Menningarmiðstöðvar Múslíma í Öskjuhlíðinni aðhyllist öfgaklerka sem breiða út svæsnasta kynþáttahatur, kvenfyrirlitningu, gyðingahatur og afneitun á helför gyðinga. Ögmundur og ráðuneyti hans vilja greinilega ekki staðfesta að ég hafi sent þeim erindið. Mér er ekki svarað af Mannréttindaráðuneytinu. Slík fyrirlitning hefur mér aldrei verið sýnd áður.
Lágmarksmannréttindi ná ekki lengur yfir mig. En ráðherrann hefur greinilega nægan tíma til að masa um Gaza og ágæti hryðjuverkastjórnarinnar þar, en hann gerir það þó á sinni eigin vefsíðu, en er ekki búinn að hertaka heimasíðu Mannréttindaráðuneytis til að sparka í Ísrael eins og Sómi Íslands notar nú vefsíðu Utanríkisráðuneytisins. Ísland er orðið eins og ráðstjórnarríki austantjaldslandanna - en með betri veftengingu. Eins og menn kannski muna, voru gyðingar og Ísrael líka aðalóvinir þeirra ríkja. Þegar fimm ára áætlanirnar fóru út af sporinu var gyðingafár sett í gang. Nýlega gerði Pútín þetta gagnvart Milliband, þegar David Milliband var að gagnrýna Rússland. Sovétvélin í Pútín fór í drif og Pútín lét skrifa óhróður um afa Milliband-bræðra, sem reyndast barðist dyggilega fyrir Rauða Herinn. Hefðinni er haldið í heiðri - líka á Íslandi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.9.2010 | 09:11
Islands udenrigsminister, Fru Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: Islandsk økonomi - Solid og fleksibel
The Blaming Game er um þessar mundir mjög vinsæll samkvæmisleikur meðal íslenskra stjórnmálamanna. Í honum kenna menn hvorum öðrum um allt milli himins og jarðar - meðan íslenska þjóðin fær enga lausn sinna mála. Það er að upplagi eðli stjórnmálamanna að kenna öðrum um. Þetta eru eins og illa siðaðir krakkar í sandkassa. Vita upp á sig skömmina, og benda á hina með horið hangandi úr nös. Það eru hins vegar borgarar þessa lands sem munu dæma þetta fólk. Það gerum best í næstu kosningum.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skilur alls ekki af hverju hún á sök í því hvernig fór á Íslandi. Hún gerir sér alls ekki grein fyrir ábyrgð sinni, enda er hún aðeins með BA próf í sagnfræði (og það frá HÍ). Vera má að hún hafi ekki leynt Björgvini mikilvægum upplýsingum, og allt sé Össuri að kenna (sem er nú afar líklegt). En hún er sek, ekkert síður en Össur og Björgvin - Ekki fyrir að baka pönnukökur í New York, þegar hún vildi komast í Öryggisráðið fyrir stórfé úr vasa íslenskra borgaranna, eftir að hún hafði gengið á línuna hjá helstu hryðjuverkaleiðtogum heimsins til að fá stuðning. Heldur ekki vegna þess að hún hefur logið svo oft að íslensku þjóðinni.
Ég held því fram að Ingigjörg hafi verið einn ötulasti talsmaður og verjandi ósómans í fjármálaumhverfinu á Íslandi. Í mars 2008 kom Ingibjörg Sólrún til Kaupmannahafnar og sat fund á Hotel Radison, og þar var líka mættur fjármálasnillingurinn Sigurður Einarsson og t.d. Sigurjón Sighvatsson. Efnið var Islands økonomi i fortidigt og fremtidigt perspektiv. Frú Ingibjörg er kannski búinn að gleyma því sem hún sagði þann dag. Dagsetningin var 11. mars 2008, kl. 15.30 til 18.00. Hún getur skoðað í vasabókina ef skammtímaminnið er farið. Þar var ekkert krepputal eða nokkur vafi í huga utanríkisráðherrans og hjartans vini hennar honum Sigurði Einarssyni Esq. of London. Heiti erindis Ingibjargar var: Islandsk økonomi - Solid og fleksibel. Ekki brothætt, heldur stöðugt og sveigjanlegt. Þetta sagðir þú sjálf, frú Ingibjörg Sólrún.
Rúmu árið fyrr, nánar tiltekið 8. - 9. janúar 2007, lét hún Valgerður heillin Sverrisdóttir, besta vinkona Ingibjargar, Svavar Gestsson halda ráðstefnu í Kaupmannahöfn í Industriens Hus i hjarta Kaupmannahafnar. Þar sátu í forsæti íslenskir fjárglæframenn og bandítar. Nefna má Sigurð Einarsson og Hannes Smárason. Íslandsvinurinn og stórmennið Uffe Ellemann-Jensen var fenginn til að stjórna sjóvinu fyrir einn laxveiðitúr til Íslands. Ólafur Ragnar, forseti vor, opnaði ráðstefnuna. Ekki vantaði nú lofið á íslenskt efnahagslíf. Það var "best", "heilbrigt", "frábært", "einstakt" og þar fram eftir götunum. Gagnrýni, sem heyrst hafði í Danmörku, "var út í hött". Ráðstefnann bar yfirskriftina: Hvorfor er islandske firmaer så innovative, og giver det anledning til forundring? Forsetinn auglýsti hana á vefsíðu embættis síns, og sömuleiðis Viðsiptaráð Íslands.
Jú, frú Ingibjörg Sólrún þú ert sek, sek um einfeldni, hroka, lygar, fordóma, ólýðræðisleg vinnubrögð og valdníðslu. Allt gallar sem einkenndu flesta stjórnarliða á Íslandi síðustu 15 árin. Dæmi: Þegar skútan skökk á Íslandi, sast þú með klappstýrum þínum á Rauðarárstígnum á gamlárskvöld 2008 og skrifaðir bréf til að skamma kollega þinn í Ísrael og það í nafni ESB. Nei, áramótaskaupið þitt árið 2008 sýnir að þú ert því líka sek um firringu.
Sagan verður dómur Þinn. Íslendingar dæma hina pólitíkusana í næstu kosningum. Við dæmum nýtt fólk inn, sem ekki ber með sér skítaarfleifðina og hrokann frá fyrri árum. Það ætla ég að minnsta kosti að vona!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Viðreisnarklappstýran
- Tapað-fundið á DV
- Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.
- Trumpur Eyjajarl
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.8.): 0
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 61
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 45
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007