8.4.2007 | 08:10
Óskir um skjótan bata fyrir Dorrit
Í gær sá ég Forsetann í sjónvarpinu segja frá slysi konu sinnar í harðfenni í Colorado og frá gróðurhúsaáhrifum. Gott að Dorrit var með hjálm! Verra með jöklana sem brotna og bráðna.
Gróðurhúsaáhrifin eru svo gríðarlega þessa dagana, að allur snjór er nú bráðnaður í Aspen, og skiltið sem lenti í árkstri við forsetafrúna er komið á minjaskrá Colorado-fylkis.
Skiptar skoðanir eru þó um, hvort þetta er í raun skiltið sem Dorrit brunaði á. Aðrir sérfræðingar halda því fram, að skiltið sé enn á kafi í snjó og líti svona út:
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 11:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2007 | 17:56
Myndir frá vígavöllum
Enginn virðist vilja kommentera franska móður Hallgrímskirkju, hér á undan. Þið um það. Ég held að þetta sé arkitektónískt skúp. Guðjón Samúelsson varð fyrir áhrifum.
Ekki býst ég við að athugasemdirnar verði fleiri við þessar myndir frá hinum stóra vonda heimi, sem Íslendingar upplifa sjaldan á eigin líkama. Myndirnar eru að mínu mati bestu fréttamyndir ársins 2006. Þetta eru eins og endurreisnarmálverk. Sterka gyðingakonan í Gaza, sem heldur fjölda lögreglumanna í skefjum og ríkir krakkar í Beirút á rúntinum á rústum slömmsins. Klikkið á myndirnar til að sjá þær stærri.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 17:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.4.2007 | 09:45
The French Connection?
Icelandic design
French design
Þeir sem að Kristí krossi senn
komu og fram hjá gengu,
hristu með háðung höfuðin,
honum til brigslis fengu,
heitorð sín hefði hann haldið lítt,
herrans musteri að brjóta,
á þremur dögum annað nýtt
efna með bygging fljóta.
2.4.2007 | 22:09
Chag Sameach Pesach!
Þessa dagana er Pesach hátíðin haldin hátíðleg. Hátíð hinna ósýrðu brauða, þegar minnst er brottfararinnar frá Egyptalandi.
Í fyrra, þegar ég dvaldist í tvo daga í sumarbústað á Akureyri, rakst ég á þessa mynd í Fréttablaðinu, sem sýnir svo ekki er um að villast, að blaðamaðurinn ruglaðist á ósýrðum brauðum og kartöflum og lauk. Hann skrifaði við myndina: Þessir heittrúuðu gyðingar voru í gær að ná sér í dágóðan skammt á ósýrðum brauðum. Brauðunum var dreift ókeypis í hverfinu þeirra.... Ekki neinn Bónus þar!
Hér er rapp um eyðimerkurbrauðið
2.4.2007 | 19:58
Jesús Jósefsson
Nýlega kom út páskabók í Danmörku eftir lækninn Niels Svensson. Bókin, sem ber heitið Det sande ansigt, fjallar um líkklæðið í Jóhannesarkirkju í Torino. Svensson er meðlimur í alþjóðlegum félagi kristinna manna, sem helst vilja trúa því, að það sem hefur myndast á líkklæðinu í Torino sé sjálfur Meistarinn frá Nazaret.
Ýmsar myndir af Jesú hafa fests á nethimnu manna. Við þekkjum vestfirska sjómanninn á íslensku altaristöflunum. Guðmundur Jaki sat fyrir hjá Einari Jónssyni. Einari þótti skriffinnskufingur Jakans tilvaldir þegar hann var að skapa hendur meistarans. Einar ku annars hafa haft Torinoklæðið að fyrirmynd þegar hann mótaði andlit Krists. Þetta sýnir okkur að klæðið er miklu eldra en Guðmundur Jaki.
Bók Svenssons er afar yfirborðskennd. Hann sniðgengur marga hluti og fer ekkert inn á það sem ég tel afsanna á afgerandi hátt, að það sé negatívan af Jesú, sem sé að finna á línstranganum í Torino.
1) Ef maður málar andlit sitt með einhverjum smitandi lit, leggur sig, og leggur klæði yfir og lætur það falla eins og líkklæði, pressar dálítið á allar hliðar andlitsins og skoðar svo þrykkimyndina. Hver er útkoman? Spegilmynd þín? Nei aldeilis ekki. Það sem fram kemur er útflatt hringlaga andlitsmynd. Ekkert í líkingu við það sem sjá má á klæðinu í Torino.
2) Látnir gyðingar voru, og eru, settir í líkklæði (sérstök föt, tachrich bitz) áður en þeir voru vafðir laki (sovev), sem mjög líklega leit ekki út eins og líkklæðið í Torino.
En kannski var Jesús bara ekki gyðingur. Palestínumaður segja sumir!
Allt virðist benda til þess að trúaðir kristnir geti alls ekki sætt sig við annað en Appolónískt útlit Guðs eða einhvern Jesús, sem gæti hafa verið fjölskyldumeðlimur þeirra eða fyrirliði í knattspyrnuliði á Skaganum.
Segðu mér hvaða Kristur hefur búið um sig í huga þínum, og ég get kannski sagt þér eitthvað um sjálfan þig?
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 22:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.4.2007 | 07:13
Álsagan er ljót
Þessir forljótu tjaldhælar þýska nasistahersins úr áli minna mig á söguna um Hitler og Göbbels sem fóru í útilegu. Þegar þeir fóru að tjalda sagði Göbbels:"hæl Hitler, hæl Hitler, hæl Hitler, hæl Hitler....". Ætli álið í hælunum hafi verið framleitta af fyrirtækjum sem síðar hvörfuðust inn í þann risa sem Hafnfirðingar höfnuðu í gær?
Í gær sigraði naumur meirihluti Hafnfirðinga yfir ALCAN. Ég verð að hæla Hafnfirðingum fyrir þetta afrek.
Í gær greindi ég frá viðskiptum álrisans ALCOA við nasista í Seinni Heimstyrjöld. Það virtist fara fyrir brjóstið á ýmsum.
En fleiri álrisar undu vel hag sínum í viðskiptum við Þriðja Ríkið. Mörg svissnesk fyrirtæki stofnuðu leppfyrirtæki í Þýskalandi, til að geta haldið áfram rekstri sínum þar í "hlutleysi" lands síns. Meðal þessarra fyrirtækja voru Nestlé, ABB Ltd. (Brown Boweri & Cie), og Swiss Aluminium Industrie AG (AIAG), sem síðar gekk undir nafninu Algroup/Alusuisse Group AG (ALIG), sem keypt var af kanadíska fyrirtækinu ALCAN. Verksmiðjur Alusuisse voru m.a. í Martinswerk i Bergheim, í Singen og Lonza. Álrisarnir eru búnir að "friða samviskuna" með því að lofa að borga skaðabætur, en maður heyrir sjaldan um fórnarlömb sem hafa notið góðs af því.
Árið 2001 kom út merk svissnesk skýrsla sagnfræðinganefndar undir stjórn Jean Francois Bergiers. Í henni er hægt að finna upplýsingar um að leppfyrirtæki fyrrgreindra og annarra svissneskra fyrirtækja í Þýskalandi hafi notast við þræla; Fólk sem nasistar fluttu nauðugt til að vinna í þýskum iðnaði. Sum svissnesk leppfyrirtæki notuðu meira að segja þræla frá Auschwitz.
Næst þegar þið "búið til súpu" úr MAGGI pakka, getið þið minnst þess að Maggi var leppfyrirtæki Nestlés í þýska ríkinu. Súpur þessar hituðu morðingjum nasista. Rétt áður en Bandaríkjaher nálgaðist þetta þrælasúpufyrirtæki árið 1944, var hakakrossfáninn dreginn niður og að húni var dregið svissneska flaggið, blóðrauðugt með hvítan kross.
Álsagan er því miður blóðug! munið það Hafnfirðingar! Og þótt breski herinn hafi leitað uppi og skráð nasista í bæ ykkar árið 1940, var þar afar lítið að finna af ljótum körlum á við það sem svissneskur iðnaður lumaði á.
Ég hvet nú yfirvöld í Hafnafirði til að hefja alvöru rannsókn á tíðni krabbameinstilfella og annarra alvarlegra sjúkdóma meðal starfsmanna ALCAN (ALÍS/Alusuisse). Einnig væri spennandi að fá að vita hvað sumir af þýsku frumkvöðlunum í Straumsvík voru að gera í verksmiðjunum í Bergheim og Singen í Seinni Heimsstyrjöldinni.
![]() |
Hafnfirðingar höfnuðu stækkun álversins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
31.3.2007 | 15:18
Álsaga Íslands - Fyrstu árin
Stóriðjudraumar íslenskra stórmenna á 20. öld
Nú hafa tæplega 6000 Hafnfirðingar kosið í álkosningu.
Álver, og það helst mörg, hljómar eins og tónlist í eyrum marga Íslendinga. Menn með mikil tóneyru höfðu einnig stórar hugmyndir um stóriðju á Íslandi. Einn þeirra var Jón Leifs.
Á síðasta áratug 20 aldar blómgaðist áhuginn á Jóni Leifs. Þá voru liðin tæp 30 ár frá dauða tónskáldsins. Þá fá menn oft endurreisn, sem þeir nutu ekki í lifanda lífi. Gerð var kvikmynd, sem þó getur ekki flokkast undir heimildamyndir. Ýmsir fræðimenn skrifuðu um Leifs og vildu hreinsa nasistastimpilinn af honum. Ekki langar mig að stimpla Leifs sem nasista, heldur aðeins greina frá örfáum atriðum, sem gleymdust hjá sagnfræðingum í meðferð þeirra á Jóni Leifs rúmum 30 árum eftir dauða hans árið 1968.
Í bók sinni Berlínarblús (1996), leggur Ásgeir Guðmundsson sagnfræðingur sig mjög fram við að hreinsa nasistastimpilinn af Jóni Leifs, um leið og hann setur þá á aðra menn. Ásgeir kennir dr. Þór Whitehead ranglega um að hafa sett stimpilinn á Leifs, vegna túlkunar hans á bréfum um járnvinnslu (stóriðju á Íslandi), sem Jón sendi til þýska utanríkisráðuneytisins árið 1939. Aðrir menn en Jón vildu ólmir gefa nasistum upplýsingar og hráefni. Íslendingur, búsettur í Kaupmannahöfn, sem taldi sig lögmætan eiganda óðala á Vestfjörðum, reyndi ákaft að upplýsa um íslenska boxítnámur og aðrar ímyndaðar auðlindir, sem gætu gagnast ef að þýskri yfirtöku landsins yrði.
Annar maður í Kaupmannahöfn, Þjóðverji, var handtekinn fyrir njósnir fyrir Þjóðverja árið 1939. Í gögnum um hann hef ég fundið fjölmörg bréf Íslendingsins með gylliboðum til Þriðja Ríkisins um auðlindir, virkjanir og álframleiðslu á Íslandi. Skrif hans þóttu svo ruglingsleg, að ekki þótti ástæða til að tengja óðul mannsins á Íslandi við ákærur á hendur þýska njósnaranum, sem síðar var dæmdur fyrir aðrar syndir.
Hvort einhver ættartengsl eru á milli vitlausa, íslenska landsölumannsins í Kaupmannahöfn og Álkana nútímans (eða Alcoa) hef ég ekki rannsakað. En hafa ber í huga að þegar Jón Leifs og landi hans i Kaupmannhöfn voru að falbjóða auðlindir lands síns í Þýskalandi nasismans, höfðu flest lönd Evrópu skapað ákveðna stefnu í auðlindamálum gagnvart Þýskalandi vegna styrjaldarhættu. Athæfi Jóns Leifs, og vestfirska álbóndans, var því á skjön við utanríkisstefnu Dana og Íslands.
Þrátt fyrir vinaleg tilboð frá Íslendingum voru Þjóðverjar árið 1939 orðnir stærri álframleiðendur en Bandaríkjamenn.
![]() |
Tæplega 6.000 Hafnfirðingar hafa greitt atkvæði í álverskosningunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.4.2007 kl. 07:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.3.2007 | 10:26
Álsambönd Hitlers
Ál Hitler
Kannski hefur það farið framhjá löndum mínum, að auður og velgengni ALCOA samsteypunnar á fyrri árum er hægt að þakka góðu sambandi fyrirtækisins og fyrri stjórnenda þess við Þýskaland Hitlers.
ALCOA var á sínum tíma ásakað um að eyðileggja fyrir uppbyggingu flugflota Bandaríkjahers i byrjun 5. árutugs 20. aldar. ALCOA hafði samvinnu við I. G. FARBEN verksmiðjurnar, sem voru m.a. með útibú í AUSCHWITZ.
Mellon fjölskyldan, sem átti stóran hlut í ALCOA félaginu, átti líka hlut í Bank of Boston, sem hafði mikil og góð viðskipti við Þýskaland nasismans. ACH SO!
Því má þó ekki gleyma, að fjöldi annarra bandarískra fyrirtækja veðjaði líka á Hitler.
En ætli Fjarðaál minnist þessa á einhvern hátt? Kannski verður hægt að festa álhausinn hér að ofan á eitthvað efniskennt í Austfjarðaálþokunni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.4.2007 kl. 09:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
31.3.2007 | 09:00
Jesús - 485.460 kaloríur
Súkkulaði Kristur í Nýju Jórvík, sem kaþólskir telja til helgispjalla, og sem ég sagði frá í gær, er ekki meira né minna en 480.000 kaloríur. Hvort einhverjir leggja sér meistarann til munns um Páska veit ég ekki, en þá verða þeir að vara sig, því að hann inniheldur 7020% meira af kólestróli en hollt þykir í daglegan skammt manns. Ekkert C vítamín er í Kristi.
"Maður lifur ekki á súkkulaði einu saman" .... Það get ég alveg.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 09:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Viðreisnarklappstýran
- Tapað-fundið á DV
- Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.
- Trumpur Eyjajarl
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.8.): 8
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 56
- Frá upphafi: 1355831
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 48
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007