Leita í fréttum mbl.is

Börn eru heilög

 

Ævar Rafn Kjartansson, grafískur hönnuður, sendi mér línu, tengi í ritgerð sína um "barnamorð" Ísraelsmanna. Þessa sendingu fékk ég vegna þess að ég skrifaði um löngun Vinstri Grænna eftir því að koma Íslendingum í stjórnmálasamband við Hamas og aðra óbótamenn.

MYRTAR AF HAMAS

Þessi mynd er af Tali Hatuel og dætrum hennar fjórum, sem voru skotnar sundur og saman af Hamas 2. maí árið 2004. Bíll sem þær ferðuðust í hafði verið skotin frá öllum hliðum, væntanlega af ungum og glæsilegum frelsishetjum Hamas, sem Ævar og hans skoðanabræður vilja hafa samræði við. Hila (11), Hadar (9), Roni (7) og Merav (2) fundust í bílnum þar sem þær hjúfruðu sig saman. Blessuð sé minning þeirra.

Ævar og þeir Íslendingar, sem syrgja palestínsk börn, sem oft eru notuð í við eldlínuna til að koma fyrir sprengjum og bera sprengjubelti, er vitanlega fyrirmunað að syrgja þá gyðinga sem hafa misst líf sín fyrir hendi palestínskra hryðjuverkamanna. En ef til vill hefur Ævar áhuga á að lesa um það fólk við tækifæri, þegar hann er búinn að syrgja heilaþvegin börnin sem sett eru á sprengjubelti.

Schijveschuurders

9. ágúst 2001 var nær heilli fjölskyldu útrýmt þar sem hún vara að borða pizzu í hjarta Jerúsalem. Morti Schijveschuurder kona hans Tzira, og þrjú börn Ra'aya, Yitzhak, og Hemda voru myrt af sprengju sem var fyllt af nöglum, skrúfum og brotajárni. 15 manns voru myrtir í árásinni. Afi Motti Schijveschuurders var samstarfsmaður bróður ömmu minnar í Hollandi. Ég syrgi börn Motti og Tziru Schijveschuurders. Tæpu ári áður en þessi fjölskylda var eyðilögð, sat ég með konu minni og dóttur og borðaði á sama pizzustaðnum þar sem Palestínumaður tók 15 manns með sér í dauðann til að frelsa landið sitt. Mig dreymir oft óhugnarlegan draum um þennan stað.

Ævar Rafn Kjartansson, mér þykir líka leitt að börn Palestínumanna þurfi að stunda hernað í stað þess að vera í skóla. Mér þykir leitt að palestínsk börn séu misnotuð til þess að halda áfram skærum, sem hægt hefði verið að koma í veg fyrir ef fullveðja Palestínumenn hefðu haldið rétt á spilunum og viljað frið. Horfið á þetta myndskeið, þar sem heilaþvegin börn hryðjuverkakonu eru misnotuð í "Stundinni okkar" í landi Hamas. Takið eftir því að móðir barnanna drap gyðinga, ekki Ísraelsmenn! Skoðaðu þetta Ævar, þú hinn mikli vinur barnanna í Palestínu.

1132 manns hafa misst lífið vegna óeirða og hryðjuverka Palestínumanna síðan um aldamótin 2000.

Hér getið og hér  getið þið lesið meira um þetta fólk sem var tekið úr umferð vegna frelsisbaráttu Palestínumanna.


Duglegur dvergur

Bo og stórmenni

Ég fann því miður ekki stærri mynd af  Bo Elkjær, en hann er ekki mikið stærri en þetta í raunveruleikanum.

Bo Elkjær er lítill blaðamaður á Ekstra Bladet og situr jafnan í Árósum og veldur leiðindum og gerir lélegt danskt ruslablað enn lélegra. Hann hefur nú í nokkur ár nöldrað í þúsundum bréfa, sem hann hefur sent utanríkis- og forsætisráðherrum Dana. Hann heldur líka úti leiðinlegu bloggi, þar sem fólk getur lesið hve nöldurgjarn og leiðinlegur hann er. Mér er reyndar afar mikið á móti skapi að ergja fólk með því að tengja það við þetta blogg, en hér getið þið heimsótt það. "Góða" skemmtun. Ég tek ekki ábyrgð á sjálfsmorðum sem kynnu að verða framin í kjölfar lestursins.

Ef Saddam væri enn við völd í Írak, væri Bo líklega búinn að fá fullt af viðurkenningum frá fjölda hryðjuverkasamtökum fyrir Ameríkanahatur og rithryðjuverk.

Í fyrra var Bo þessi, sem er lítill, ljótur og leiðinlegur, sem væri allt í lagi ef hann væri ekki illa innrættur líka, fremstur í flokki þeirra sem skrifuðu alls kyns níðgreinar í Ekstra Blaðið um útrás Íslendinga. Bo er á því að Íslendingar séu að hrifsa til sín heimsyfirráðin.

Ég móðgaðist fyrir hönd Íslendinga, enda einn af þeim, og kærði Bo til lögregluyfirvalda í Kaupmannahöfn, sem enn eru að velta fyrir sér ósómanum, sem Bo skrifaði um íslendenska sómamenn í útrás. Evrópulög hafa nefnilega breyst dálítið og gerir það yfirvöldum erfitt fyrir að komast að niðurstöðu.

Við erum örugglega eftir að heyra meira um litla Bo.


mbl.is Fogh skal veita viðtal um Írakstríðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinstri Grænir Hamast fyrir Palestínu

Mufti says Heil

Hæl, sagði palestínski múftíinn forðum daga þegar hann heilsaði SS-sveitum múslima.

Vinstri-Grænir virðast ekki lengur hafa nein tromp á hendi. Þeir spila illilega af sér með því að gera viðurkenningu Hamas-Palestínu að sínu meginmáli að Alþingiskosningum nýloknum. Við fáum þó að sjá hversu mikið þessi flokkur elskar lýðræðið. Vinstri Grænir vilja styðja "stjórn", sem tekur sitt eigið fólk af lífi á götum úti, án dóms og laga. Það er allt annað en fallegt.

Ég held að ástæðan fyrir því að Vinstri-Grænum er svo hlýtt til Hamas sé, að þegar allt kemur til alls þá eru Vinstri Grænir samtök náskyld  Hamas. Vinstri Grænir eru í raun ekki stjórnmálaflokkur. Sem betur fer hafa þeir ekki aðgang að vopnum. Rökleysupólitík, þrætukenningar og kreddur eru aðalsmerki Vinstri Grænna, eins og Hamas. Hamas hefur bætt aðeins meiri öfgum við og hatast svo auðvitað út í Ísraelsmenn og Bandaríkjamenn alveg eins og Vinstri Grænir. Vinstri Grænir og Hamas eiga að sjálfsögðu samleið. Vafamál er hvort Hamas og Íslendingar eigi samleið.

Palestínumenn berast á banaspjót. Flestar hreyfingar þeirra eru ólýðræðislegar. Nokkrar eru hryðjuverkasamtök. Saklaust fólk er tekið af lífi án dóms og laga.  Spilling, græðgi, ómenning og valdníðsla hefur einkennt þeirra eigin lífsmáta.

En er endalaust hægt að kenna Ísraelsmönnum um allt eins og Vinstri Grænir gera?

Sjálfskaparvíti Palestínuþjóðarinnar, sem einvörðungu kennir öðrum um ófarir sínar, kemur ekki Íslendingum við. Íslendingum ber ekki að gefa ofbeldismönnum löggildingu með því að viðurkenna ríkisstjórn ofstækisfullra hryðjuverkasamtaka, sem hafa sett sér svo að segja sömu takmörk og Hitler.

Eitt einfalt ráð til Vinstri Grænna: Farið nú að sinna stjórnmálum! Þið leysið ekki vanda Miðausturlanda á Alþingi Íslendinga. Það er rangur vettvangur.

mufti_hitler

Múftíinn og Hitler á góðum degi. Útrýming gyðinga var líka á dagsskrá þá. Skrítið að Vinstri Grænir vilji feta í fótspor nasista.


mbl.is Vilja að Ísland viðurkenni heimastjórn Palestínumanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dauðinn fyrir 7586 krónur og 65 aura

 Folole

Ég hef oft heyrt ýmsa Íslendinga róma nýsjálenska lifnaðarhætti og þjóðfélagsuppbyggingu. Hér er saga um sjarmann í þjóðfélaginu þar syðra.

44 ára kona, Folole Muliaga, andaðist nýlega í Auckland.  Folole, sem er kennari og fjögurra barna móðir, veiktist illilega af hjartasjúkdómi í febrúar í ár og þurfti að dvelja í öndunarvél á heimili sínu. Einn morgun komu tæknimenn frá rafveitunni, Mercury Energy, og vildu loka fyrir rafmagnið, vegna þess að Folole skuldaði 123 nýsjálenska dali, sem eru um 7585 krónur íslenskar og 65 aurar. Engin aðvörun um lokun á rafmagnið hafði verið sett fram í kjölfarið á tveimur ógreiddum reikningum.

Þrátt fyrir að Folole hafi beði tæknimennina ásjár, og einnig sonur hennar, urðu 7585 krónurnar ofan á. Tæknimennirnir höfðu fyrirmæli að ofan - voru bara að vinna vinnuna sína o.s.f. Þeir lokuðu á rafmagnið til húss Folole Muliaga, með þeim afleiðingum að öndunarvélin varð óstarfhæf. Folole féll fljótlega í yfirlið og andaðist tveimur klukkustundum síðar.

Nú kenna menn hver öðrum um, eða reyna að finna átillur, fyrir skitnar 7585 krónur. Það er örugglega hægt að kaupa afsökun og útúrdúra fyrir minna með hjálp góðra lögfræðinga.

Hægt er að lesa meira um málið hér um leið og menn hugsa um dásemdir Nýja Sjálands.

 


Stórhættulegar fígúrur

tali-tubby

"Umboðsmaður barna í Póllandi sagði í dag að hún væri að rannsaka hvort aðalpersónurnar í bresku barnaþáttunum „Stubbarnir“ (e. Teletubbies) ýti undir samkynhneigð."


mbl.is Pólsk yfirvöld rannsaka hvort Stubbarnir séu samkynhneigðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Miðevrópumaður með líkkistu

Nosferatu

Bernhard Bechter á Egilsstöðum

Grunar menn ekki neitt. Miðevrópumaður á þjóðvegum landsins með líkkistu í eftirdragi? Enginn sem kveikir á perunni?

Vert að láta lögregluna kíkja á þetta


Menningarhjólhestur

gamla hjólið

Fyrst ég var að skrifa um reiðhjól, þá verð ég að greina frá minnisstæðasta hjólhesti æsku minnar. Ég átti ekki þýskarahjól, einhverja Möwe druslu, eins sumir sem renna sér gegnum lífið án hindrana.

Fyrsta tvíhjólið mitt, sem ég man eftir, var danskt og gulllitað og hét "Sound of Music". Því var smyglað til Íslands af einhverjum barngóðum vélstjóra á Fossunum, sem keypti það fyrir afa minn í Køben.

Vorið 1971 kom til landsins eðalhjól, DSB Apache, með stælgír á stönginni, mælaborði, löngu sportsæti og allt mjög krómað. Þetta hjól var í huga 11 ára drengs eins og Mustang Mach 1. Þeir sem voru svo vitlausir að fá Chopper druslur í 9 og 10 ára afmælisgjafir, nældu sér ekki í Apache hjól. Við sem biðum, riðum á flottustu hjólunum í bænum. Ég borgaði hjólið að mestu sjálfur fyrir skildinga sem ég hafði safnað á ýmsan hátt. Hróðugur keypti ég gripinn í verslun Fálkans og hjólaði á því heim. 

Ég notaði hjólið lengi. Meira að segja til að hjóla á í menntaskólann. Það þótti þá orðið afar púkó aðeins 5-6 árum eftir að það kom á markaðinn. Hjólið lenti svo í geymslu þegar ég flutti til Danmörku og rauk svo í vorhreingerningum móður minnar fyrir rúmum áratug síðan. Ég vona að einhver ungur drengur eða stúlka hafi getað notið gæða þessa eðalhjóls.

Nýlega fann ég hjólið aftur á veraldarvefnum. Apache hjól eru nefnilega í hávegum höfð í Noregi og er eitt slitið eintak komið á sýningu á Teknisk Museum í Noregi. Þar fann ég forláta litmynd af því. 

Ef einhver finnur apache hjólið mitt, farið vinsamlegast með það upp á Þjóðminjasafn Íslands. Apache hjól eru hluti af menningarsögu Íslands, ekkert síður en Noregs!


Frá Austurríki....

Þaðan kom Hitler líka. Hitler var mikill áhugamaður um hjólreiðar og grasæta. Strax í æsku heimtaði hann hjól og fékk:

Hitler auf fahrrad

Í Fyrri Heimsstyrjöldinni var hann í reiðhjólastormsveitunum. Hér er hópmynd frá vígstöðvunum. Hitler er lengst til hægri:

fig8_german_bicycle_troops

Þegar fram liðu stundir og þessi hvalur og kvalari var að tapa stríðinu kom hann upp úr neðanjarðarbyrgi sínu í Berlín til þess eins að hitta reiðhjólastormsveitina, uppáhaldssveitina sína. Hann gaf Hermanni Würst kinnhest vegna þess að hann var of feitur:

Hitler slær Hermann í hjólafylkingunni

Svo fór Hitler aftur niður í neðanjarðarbyrgið og tapaði stríðinu.

Fyrir nokkrum mánuðum síðan fundu þýskir fornleifafræðingar svo hjól Hitlers nærri neðanjarðarbyrginu. Mér sýnist að þetta hafi verið Möwe-drusla:

Hjól Hitlers

Hjólreiðakappinn Bernhard Bechter fær Hvalinn, vefverðlaun PostDocs, fyrir framlag sitt til austurrískrar hvalaverndunar:

hvalaverðlaun

 


mbl.is Á hjóli með líkkistu í eftirdragi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

The United States of Sizzlin' Sally

Julius og Ethel

Ég hef áður skrifað um njósnarann Jonathan Pollard, sem situr í ævilöngu fangelsi í Bandríkjunum fyrir að hafa njósnað fyrir Ísraelsríki. Pollard, sem var Bandaríkjamaður, er nú Ísraeli. Hann hefur setið í steininum síðan 1985. Nú er hann er alvarlega veikur.

Sendiherra Bandaríkjanna í Ísrael, Richard H. Jones, lýsti því yfir í fyrirlestri sem hann hélt við Bar-Ilan háskólann í Bnei Brak í Ísrael í dag, að Pollard hafi verið sýnd mikil mildi með því að fá að dúsa ævilant í fangelsei fyrir að njósna fyrir vinveitta þjóð; að bandarísk yfirvöld hefðu í raun haft í hyggju að taka hann af lífi, eða eins og senditíkin Mr. Jones frá BNA í Ísrael orðaði það: "The fact that he wasn't executed is the mercy that Jonathan Pollard will receive."

Rafmagnsstóllinn hefur áður verið síðasta sessa gyðinga, sem sakaðir voru um njósnir gegn BNA. Rosenberg hjónin, Ethel og Julíus, enduðu daga sína í honum.

Stundum er mjög erfitt að skilja Kanana. En rafmagnsstóllinn, öðru nafni Sizzlin' Sally, Old Smokey, Yellow Mama, Gruesome Gertie og Old Sparky er þeim greinilega kærari en sambandið við Ísraelsríki. Tengslin eru ekki eins náin og maður hélt, þegar allt kemur til alls.

En greinilegt er, að glæpir þeir sem BNA vilja ekki að Pollard nái að segja frá, voru stórir. En vart mun nokkur verða steiktur í stólnum ameríska fyrir þá glæpi.

Senditíkin Mr. Jones gleymdi bara einu, að það er ekki hægt að dæma menn til dauða fyrir þær sakir sem Jonathan Pollard hefur verið fangelsaður fyrir. Bandarískir embættismenn.......

Bandarísk hönnun Bandarísk hönnun


Slæðingur

  Naser_Khader

Þessa dagana er vart meira talað um í Danmörku en slæður múslíma og Nasser Khader stofnanda hins nýja stjórnmálaflokks Ny Alliance. Nýbúinn Nasser brunar áfram í skoðanakönnunum, og flokkurinn hans er kominn með meira fylgi en gamlir, rótgrónir flokkar á danska þinginu. Nasser stelur jafnt þingmönnum frá íhaldsflokkinum og gamla flokkinum sínum Radikale Venstre. Sagt er að danski forsætisráðherran, Anders Fogh Rasmussen, sé farinn að gjóta hýru auga til flokksins sem samstarfsaðila. Giftar konur yfir fertugt eru sérstaklega hrifnar Nasser. Konan mín, sem er stjórnmálafræðingur (og 26 ára), skýrir þetta fyrir mér á þennan hátt: "Hann er laglegur maður, sem hefur stjórn á skoðunum sínum og er vel talandi. Hann hefur komist á toppinn "against all odds", og hann talar fallega um gamla og veika móður sína. Svo kom hann hreint til dyranna í vitleysunni í kjölfarið á Múhameðsteikningunum".

Ég er ekki yfir mig hrifinn af Nasseri, en ég er heldur ekki kona. Ég held að hann sé dálítill refur og "nærbuxnaþjófur".

Nú er komið upp skrýtið mál með Nasser í aðalhlutverki. Fyrrverandi flokksfélagi hans í Radikale Venstre ásakar hann um að ljúga. Nasser hefur nefnilega sagst hafa séð þennan flokksfélaga sinn, Elsebeth Gerner Nielsen, á arabískri sjónvarpsstöð á hóteli sem hann gisti á í Bandaríkjunum, er hann var staddur þar nýlega. Hann segist hafa tekið þá ákvörðun að stofna nýja flokkinn Ny Alliance, þegar hann sá Gerner Nielsen í sjónvarpinu í BNA. Það eru heldur hörkuleg viðbrögð, ef Elsebeth Gerner Nielsen hefði ekki í sjónvarpsfréttaþætti leikið Mahal-módel og íklætt sig að hætti trúaðra múslímskra kvenna  Ninja til að sýna samstöðu sína með konum, sem fá lífsfyllingu með því að hylja höfuð sitt á einn eða annan hátt til að þóknast Allah  og/eða eiginmanninum sínu. Það er tíska, sem fer afar mikið í taugarnar í hinum móderata múslimi, Nasser Khader.

Slæðan

Þeir sem rannsakað hafa málið telja, að Nasser hafi ekki getað séð Gerner Nielsen í sjónvarpinu í BNA, því hótelið sem hann gisti á hafi ekki arabíska rás og upptakan með upptroðslu Gerner Nielsens með klútinn um hausinn hafi víst ekki verið verið seld amerískri sjónvarspsstöð.

Hvort Nasser hefur haft martröð á hótelinu í BNA eða segir satt, kemur í ljós á næstu dögum. En að það hafi áhrif á vinsældir hans, að hann verður tekinn í smá ósannindum um það sem hann sá á hótelherbergi i BNA, trúi ég vart. Hann lýgur vart meira heldur en margur annar í dönskum stjórnmálum.

Í morgun var skítableðillinn Sick Ekstra Bladet med æsifrétt um að einn náinn ættingi Nassers, sem er af ætt Palestínumanna, hafi verið handtekinn í Danmörku í tengslum við skotárás Bandit. Nasser er auðvitað í sjokki út af því Blush. Fyrir nokkrum árum var sonur viðskiptaráðherra Dana, Bendts Bentsens af ætt Fjóneyinga, handtekinn og dæmdur í fangelsi fyrir fíkniefnasölu Sideways, og Bendt Bendtsen (sem er Konserva(s)tívur) var meira að segja  lögreglumaður Police áður en hann fór í pólitík


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband