Leita í fréttum mbl.is

Stuðningur við hryðjuverk er morð

 

meir_hai_killed

Fólk sem styður hryðjuverk telur sig oft þekkja muninn á "myrtum" mönnum  og "felldum", enda hlýtur einbeittur stuðningur við hryðjuverk að hafa í för með sér ákveðna sérfræðiþekkingu á dauða og þjáningu.

Ríkisstarfsmaður einn, Sigurður M. Grétarsson, hefur á síðustu árum árum ítrekað og opinbert lýst yfir stuðningi sínum við hryðjuverkasamtök í Miðausturlöndum og það  jafnvel á bloggum annarra manna í miðjum vinnutíma sínum á kostnað skattborgaranna. Hann er að eigin sögn bara venjulegur Krati sem styður flokkinn sinn, Jóhönnu, Imbu, Icesave og ESB.

Nú fárast hann yfir því að Morgunblaðið upplýsi, að Palestínumenn hafi verið felldir og Meir Avshalom Chai, sem var 45 ára og rabbí, hafi verið myrtur.  Hefur Sigurður M. Grétarsson það fyrir víst, að ekki hafi verið sannað upp á Palestínumennina, sem felldir voru, að þeir hafi átt þátt í drápi Rabbí Meir Chai, sem myrtur var í bifreið sinni. Greinilegt er, að Sigurður M. Grétarsson telur víst að morðingjar Meir Chais hafi verið myrtir, og jafnvel er líklegt að Sigurður telji Chai hafa verið réttdræpan, þar sem hann er Gyðingur sem leyfði sér að búa á landi Palestínumanna.

Sigurður veður í villu að vanda. Palestínumennirnir sem felldir voru, voru meðlimir Al Aqsa hryðjuverkasamatakanna. Þeir veittu mótspyrnu við handtöku og þeir hafa allir áður tekið þátt í hryðjuverkum. Vopn sem fundust í fórum þeirra sem  felldir voru sýna við rannsóknir Ísraelshers, að þau voru notuð til að myrða Rabbí Meir Chai, sem aðeins vann sér það til saka, að vilja búa í landi forfeðra sinna, í bænum Shavei Shomeron, örskammt frá rústum hinnar fornu borgar Samaríu.  En Palestínumenn reka eins og kunnugt er Apartheidstefnu gegn gyðingum sem búa vilja á landi forfeðra sinna. Apartheidstefnu þessa styðja margir á Íslandi - og þar með morð.

20091225023847

Þrír synir Meir Chais við útför hans í dag


mbl.is Sex féllu í aðgerðum Ísraelsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Rétt hjá þér Villi.

Grimmd eða viðbjóður glæpsins kallar ekki fram sjálfkrafa fordæmingu þessa stórundarlega pólitískska/trúmála hóps, heldur er fordæming hópsins háð því hver, og AÐEINS hver, framdi glæpinn... þetta eru veikustu/heimskustu rök/hugmyndafræði sem ég hef séð og hver sem ástæðan kann að vera, þá koma ætíð svona andvana fæddar  rökleysur úr röðum vinstri glópanna.

Það gefur manni það að þessi hópur er vart fær um frjálsa umgengni meðal okkar hinna, í það minnsta ef miða skal við "tilgangurinn helgar meðalið" réttlætiskennd þessa cult safnaðar.

runar (IP-tala skráð) 27.12.2009 kl. 17:37

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Hvað dóu mörg palestínsk börn meðan á útförinni stóð? Málflutningur þinn er einkar ógeðfelldur svo ekki sé meira sagt.

Finnur Bárðarson, 27.12.2009 kl. 20:40

3 identicon

Og Ísraelsríki eru stærstu hryðjuverkasamtök í heimi

Ólafur Magnússon (IP-tala skráð) 27.12.2009 kl. 20:51

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Dóu einhver palestínsk börn, meðan á útförinni stóð?

Finnur, upplýstu okkur fáfróða!

Jón Valur Jensson, 28.12.2009 kl. 00:03

5 identicon

þessi færsla er viðbjóður eins og allt sem frá Vilhjálmi kemur.  Ekki svaravert - allir vita að öflugustu hryðjuverkasamtök heimsins og þau svívirðulegustu er ísraelstjórn.  Al Queda er eins og skátafélag í samanburði við þessa mannhatara og villimenn. 

One (IP-tala skráð) 28.12.2009 kl. 02:30

6 identicon

Þykir engum athugavert að í þessum aðgerðum hersins voru tveir óvopnaðir menn skotnir til bana vegna aðildar að morði? Er það ekki hlutverk dómstóla að skera úr um það hvort að mennirnir voru sekir? Er það ásættanlegt að maður grunaður um morð sé ,,felldur" með þessum hætti? 

Þar sem tveir þessara manna voru óvopnaðir hefði mér þótt eðlilegast að þeir yrðu handteknir og dæmt í þeirra máli en ekki skotnir á staðnum. 

Auk þess segir í fyrirsögninni að sex hafi fallið í aðgerðum Ísraelsmanna. Það var því ,,aðgerð" af hálfu hersins að drepa þrjá menn fyrir að nálgast öryggisgirðinguna. 

Hvað Apartheidstefnuna varðar þá eru það Ísraelar sem hana reka gegn Palestínumönnum. Ágætt dæmi er öryggisgirðingin (eða aðskilnaðarmúrinn) sem verið er að smíða af Ísraelum til að skilja að þjóðirnar tvær en eins og allir vita var hún úrskurðuð ólögleg af alþjóðadómstól Sameinuðu þjóðanna. 

Eyþór (IP-tala skráð) 28.12.2009 kl. 04:15

7 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Nafnleysingar setja hér óhróður á eigin ábyrgð. Mig langaði til að vita hver hinn orðljóti ONE, sem ekki þorir að skrifa undir eigin nafni, er:

svordtail@yahoo.com| IP-tala: 88.149.119.238 = "One" sem hér skrifa svo málefnalega.  Hostname hans er: dsl-149-119-238.hive.is,

Þegar leitað er af tölvufangi þessu kemur þessi upplýsing: Auglýsing - Suzuki Jimny árg. '99 ek. 154 þ. km - mbl.is  - [ Oversæt denne side ]

'99 ek. 154 þ. km. Skoðaður og í ágætu standi. Nýtt pústkerfi og bremsudiskar. Nýleg tímareim. Verð 290 þús. Óskar s. 8920301 svordtail@yahoo.com.
Var Óskar að selja bílinn sinn? Eða var það ONE?
En svordtail hefur líka skilið eftir sig annað, http://www.youtube.com/user/svordtail#p/u/3/B1cmxlPf_H8 , sem sýnir að hann er 45 ára og hér er hann í Pattaya http://www.youtube.com/user/svordtail#p/u/5/iaZT4YOYzug og greinilegt er að hann heitir Óskar.
Óskar, you are the ONE!

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 28.12.2009 kl. 10:19

8 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Eyþór, úrskurður Alþjóðadómstólsins í Haag lýsir gyðingahatri. Veggurinn/girðingin, sem Ísraelsmenn hafa reist af illir nauðsyn, kemur í veg fyrir morð á óbreyttum borgurum í Ísrael. Þegar menn telja vegginn ekki eiga rétt á sér, eru menn um leið að segja að gyðingar eigi ekki rétt á því að lifa.

Fatah hefur nú lýst því yfir að samtökin ætli að hefja 3. intiföduna. Henni verður beint gegn Stjórnvöldum á Vesturbakkanum. Múrinn/girðingin/veggurinn kemur í veg fyrir frekari meir háttar blóðsúthellingar í Ísrael.

Ætlarðu ekki að taka þátt í 3. intifödunni Eyþór?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 28.12.2009 kl. 10:42

9 identicon

Vilhjálmur ef þú heldur að þú dragir tennurnar úr mönnum með því að birta allar upplýsingar um þá á vefsíðunni þinni þá er það misskilningur.  Ég hef lesið blogg eftir þig þar sem þú verð fjöldamorð, barnamorð og álíka viðbjóð í gegnum árin og stend við allt sem ég sagð hér- enda gerir þú enga tilraun til að svara með rökum.

Að sjálfsögðu svarar þú heldur ekki spurningu Eyþórs um hversvegna vopnlausir menn eru skotnir án dóms og laga.  Einhverntímann hefði slíkt verið kallað hryðjuverk en þegar Ísraelsher á í hlut, ónei!  Þegar Ísraelsher sprengir upp fjölskyldur á baðstrond - ekki hryðjuverk!  

Kveðja

Óskar

One - Óskar (IP-tala skráð) 28.12.2009 kl. 11:13

10 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sæll One/Óskar. Ísraelsher hefur ekki sprengt upp fjölskyldur á strönd.

Fjölskylda sú, sem ég tel að þú sért að minnast á fórst annað hvort vegna jarðsprengju sem var í sandinum eða af sárum vegna eldflaugar Hamas manna sem "villtist" af leið. Það var aldrei neitt Ísraelskt herskip eða bátur úti fyrir ströndum Gaza þegar þessi atburður átti sér stað. Neðri hluti líkama fórnarlambanna var skaðaður en ekki efri hlutinn. Það bendir ekki til árásar af hafi eða himni.

Hins vegar hafa Palestínumenn ráðist á saklausa borgara Ísraels í hryðjuverkaárásum á strendur Ísrael og Palestínumaður myrti tugi manns á diskóteki á Tel Aviv strönd fyrir fáeinum árum.

Ísrael á í stríði við hryðjuverkasamtök, sem lýst hafa gyðinga réttdræpa. Meðlimir hryðjuverkasamtaka búast væntanlega ekki við annarri meðferð af gyðingum en þeirri sem þeir ætla gyðingum?

Spurðu frekar um réttindi andstæðinga Hamas og Fatah. Þessi samtök framkvæma aftökur á götum úti. 

Allir þrír Palestínumennirnir sem felldir voru hafa framið hryðjuverk í Ísrael. Allt voru þetta morðingjar, sem héldu áfram iðju sinni. Morðvopnið fannst hjá einum þeirra. Þeir unnu saman.

One/Óskar, það er greinilegt að þú styður morðárásir á Ísraelsmenn. Þú skalt ekki halda að þú sér velkominn á bloggsíðu mína!

En nú vita allir hver ONE er. Það er bara enn einn Skarinn.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 28.12.2009 kl. 11:42

11 Smámynd: Rauða Ljónið

Það er með ólíkindum þegar Vilhjálmur skrifar eitthvað um hryðjuverk og reynir að skíra út staðreyndir málsins um mannfall og þá sem látast í þessum árásum og þá sem verða fyrir tjóni fjölskyldur sem liggja í sárum.
Hér skrifar hann um rangfærslur og sögufölsun Sigurður M. Grétarsson og hvað gerist, já sjálfskipaðir riddara svartnættisins vinir dauðasveitanna geysast fram á ritvöllinn hampa dauðasveitum sínum í þeim anda sem pólitískir vinir þeirra já sannleikurinn má ekki koma í ljós pólitískir vinnir þeirra mega ekki verða fyrir tjóni ryk má ekk falla á þá, þá skal hefja upp til skýjanna og verja hryðjuverka þeirra á allan hátt og þá helst með ósannindum, morð skipta þá engu máli tilgangurinn að verja hryðjuverkin helgar meðalið sál og anda þessara manna hana skapa þeir sjálfir.

Hafið skömm fyrir:.  Finnur Bárðarson,  Ólafur Magnússon,  One (IP-tala skráð), Óskar.

Kv. Sigurjón

Rauða Ljónið, 28.12.2009 kl. 13:35

12 identicon

Vilhjálmur, ég hef engan áhuga á að taka þátt í þeim átökum.

Svo þykir mér full djúpt í árinni tekið að halda því fram að úrskurður alþjóðadómstólsins byggist á gyðingahatri. Ég viðurkenni fúslega að ég er í meginatriðum ekki sammála utanríkisstefnu ísraelskra stjórnvalda en það væri fáránlegt að stimpla mig sem gyðingahatara. Ég hef ekkert á móti gyðingum né Ísraelum. Á sama hátt er ég oft ekki sammála íslenskum stjórnvöldum en ég hata samt ekki Íslendinga. 

Fólk hefur misjafnar skoðanir á þessari deilu og fjölmargir standa með Palestínumönnum en samt er ég fullviss um þeir séu örfáir sem beinlínis hata gyðinga. Skoðun þeirra sem það gera hefur auðvitað ekkert vægi í þessari umræðu.

Nú er það mín skoðun að þessi veggur eigi ekki rétt á sér enda rýrir hann lífsgæði Palestínumanna til muna og kyndir undir fjandsemi og hatur á báðum vígstöðvum. Ég vona samt að öllum sé ljóst að ég sé ekki að segja að gyðingar eigi ekki rétt á því að lifa. Auk þess treysti ég því að þetta mál hafi fengið sanngjarna umfjöllun hjá alþjóðadómstólnum og er ekki tilbúinn að kyngja því að velmenntaðir dómarar hans séu ekkert nema gyðingahatarar sem byggi úrskurði sína á geðþótta ákvörðunum.

Svo stend ég ennþá við þá skoðun mína að það séu slæleg vinnubrögð af hálfu ísraelska hersins að drepa tvo óvopnaða menn. Hvergi í heiminum er það ásættanlegt. Glæpamenn á að handataka og draga fyrir dómstóla. Það sama á við um þremenningana sem þóttu komu of nálægt múrnum. 

Eyþór (IP-tala skráð) 28.12.2009 kl. 18:27

13 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Eyþór, múrinn er til kominn vegna Palestínumanna sjálfra, gerða þeirra og algjörs áhugaleysi á friði, sem hefur verið boðinn þeim ítrekað.

Þegar Alþjóðadómstóll dæmir gegn aðilum sem reist hafa múr sér til varnar, þá er eitthvað að. Ef einn aðili má ekki verja sig þá hlýtur dómstóllinn að telja þennan aðila réttdræpan, líkt og andstæðingar hans gera. Það er ekkert annað en gyðingahatur.

Þremenningar nálægt múr? við Gaza? Egyptar eru að reisa vegg sem nær lengra niður í jörðina en upp úr, við Rafah.  Áður var þar veggur úr járnþili sem Egyptar reistu. Hamas sagaði hann niður  og sprengdi í fyrra, annars er ekki  neinn veggur heldur landamæragirðing.  Þeir drepnu voru á bannsvæði, sem hefur orðið til vegna þess að Hamas hefur lýst yfir vilja til útrýmingar Ísraels. Þessir þrír menn sem fóru inn á þetta svæði voru ekki að leita að brotajárni - um miðja nótt.

Annars virðist þú alvarlega heilaþveginn af þeim smábrotum af fréttum sem berast Íslendingum um þessi mál. Vissir þú t.d. að 10000 íbúar á Gaza hafa verið fluttir til hjúkrunar á sjúkrahús í Ísrael eða á svo kölluðum Vesturbakka, árið 2009? Þakklætið fyrir það eru ásakanir um líffæraþjófnað.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 29.12.2009 kl. 08:31

14 identicon

Sæll. 

Styður þú ekki lengur ETA? Er þú ekki með þeim?

Hvað velður að þú er á móti hryðjuverk? 

Þvilikur rugl sem kemur frá þér.

José A. Rodriguez (IP-tala skráð) 31.12.2009 kl. 03:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband