27.12.2008 | 15:45
Þegar Hamas rændi jólunum
Hér er mynd af liðsmanni Hamas í jólasveinabúningi. Nú eru þeir sem hafa eyðingu Ísraels á stefnuskrá sinni komnir út úr skápnum sem algjörir jólasveinar.
Þegar þolinmæði Ísraels er að þrotum komin, rignir sprengjum Ísraela á "eymdina" í Gaza. Fréttastofur keppast náttúrulega við að kenna Ísraelsríki um að hafa rofið vopnahlé. Vopnahlé, sem reyndar hefur verið brotið á degi hverjum af hryðjuverkamönnum Hamas, meðan að það "stóð yfir". Í gær var 80 eldflaugum skotið frá Gaza á Ísrael. Sumar lentu á saklausum palestínskum börnum og urðu þeim að bana. En sjálfsmorð og barnamorð réttlæta auðvitað líka góðan málstað?
Ég horfi nú á sjónvarpsmyndir fra Gaza. Hetjurnar aka um á nýjum Range Rover, Benzum. Bílarnir og sprengjurnar er greinilega miklu mikilvægari en matur handa börnunum. Keyrði Hamas þessum Range Rover bíluum gegnum göngin sín við landamæri Egyptalands?
Júðahrellir var sonur Múhameðs og Grýlu
Og þessu líkja sumir Íslendingar við gettó þau sem gyðingar voru lokaðir inni í um gjörvalla Evrópu, áður en þeir voru leiddir til slátrunar af forverum ESB-ríkisins. Mikið ógeð hef ég á fólki sem ekki getur séð í gegnum þessa fréttagjörninga hryðjuverkahópa og meðsekra aðstoðarmanna þeirra.
Ef fólk er ekki farið að sjá í gegnum fréttaskrum og svikamyllur Palestínumanna, er ekki nema von að útrásavíkingarnir gætu blekkt vinstri menn á Íslandi.
Hér er hægt að lesa meira um áróðurshernað Palestínumanna fyrr á árinu og hér. Hérer hægt að sjá markaðsborð á Gaza full af mat í desember 2008. Þorvaldur Friðriksson hjá útvarpinu fullvissaði okkur um daginn að það væri enginn matur á Gaza. Hvaðan fær Þorvaldur fréttamaður og skrímslafræðingur á RÚV þær upplýsingar. Hann lætur greinilega ljúga að sér fleiru en sögum af drekum og gömlum dínó saur.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:46 | Facebook
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 81
- Frá upphafi: 1352296
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 53
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Það er auðvitað bara óskhyggja ef einhver heldur að hægt sé að semja frið við múslíma. Gleymið því strákar, það er ekki til í Kóraninum, nema að múslímar þurfi sjálfir frið til að vopnast og vígbúast og gera klárt í næstu atlögu að kafírunum.
Ísraelar áttu að gera árásir sínar í gær auðvitað, og taka nokkrar moskur með í leiðinni, en því miður tóku þeir bara nokkrar lögreglustöðvar og örfá önnur skotmörk. Það verður auðvitað að taka hendi betur til á svæðinu ef hægt er að búast við vopnahléi hjá þessum oföldu alþjóða sveitaómögum og betlikerlingum á Gaza.
MBK
Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 27.12.2008 kl. 16:22
Forsetahjónin á næsta flug til Ísrael
Nú þarf Ólafur Ragnar Grímsson annaðhvort að rýma Bessastaði og hleypa friðarsinnum í stól forseta, eða taka upp annarsskonar útrás.
Ef einhver smá samkennd er í forsetanum með því fólki sem nú er að missa sína nánustu og heimili sín í Palestínu, þá auðvitað tekur hann sína frú í hönd á næsta flug til Ísrael. Ræðir þar við ráðamenn um þeirra illráðnu aðgerðir og kynnir aðrar og friðsamlegri leiðir. T.d. hugmynd Friðar 2000 um Alþingi Jerúsalem.
Ég hef ítrekað, í meira en áratug, reynt að vekja athygli forseta Íslands og nú síðast einnig forsetafrú Íslands á nauðsyn þess að þau nýti aðstöðu sína og áhrifamátt forsetaembættisins til að leggja sitt af mörkum til að leysa ófriðarbálið í Mið-Austurlöndum og kynna þar nýja hugmyndafræði. Hvorugt þeirra svarar erindum mínum.
Eiginkona forsetans er af gyðingaættum og fjölskyldan býr meira og inna í Ísrael. Hún er því hugsanlega í betri aðstöðu en margur annar að beita sér í þessu máli, ef hún bara gæti litið uppúr glingursteina viðskiptum sínum og látið af trylltum dansi sínum um gullkálfinn. Það er óhugnarlegt hvernig fjölskyldan á Bessastöðum hefur verið virkur þátttakandi í fjárglæfrunum og kennitöluflakkinu sem setti Ísland á hausinn.
Hér er bréf sem ég sendi Frú Dorrit Mousaieff þann 23 júní s.l.:
Frú Dorrit Mousaieff
Bessastöðum. - FAX: 5624802
Lykillinn er í yðar höndum
23. júní 2008
Æruverðuga forsetafrú,
Um árabil hef ég kynnt Íslensku þjóðinni hugmyndir að því hvernig
embætti Forseta Íslands gæti verið lykillinn að breyttum áherslum í
alþjóðamálum og valdið straumhvörfum í friðarmálum með því að kynna
nýjar og breyttar áherslur í alþjóðamálum. Mig langar að kynna yður
þessar hugmyndir þar sem ég tel að þér haldið nú um þennan lykil.
Ég hef í meira en 12 ár séð það fyrir, að ástandið í Mið Austurlöndum
þróaðist í mun víðtækara styrjaldarástand með hruni alþjóðlegra
fjármálamarkaða og yfirvofandi heimskreppu. Jafnvel mögulegri 3ju
heimsstyrjöldinni á næstu árum. Heimurinn er nú þegar að sjá upphafið
af þessu með ört hækkandi olíuverði, hruni peningastofnanna og
fjármálamarkaða, aukinni spennu milli trúarbragða og fleira.
Mið Austurlönd eru í dag eins og púðurtunna sem getur sprungið
hvenær sem er af minnsta tilefni, með þeim gífurlegum afleiðingum,
sundrungu meðal þjóða heims og enn frekari hernaðaruppbyggingu milli
austurs og vesturs. Mögulegt er, að stórþjóðir í austri myndu styðja
islamskar arabaþjóðir gegn vesturlöndum í slíkum átökum.
Ef við leyfum málum að þróast til stríðs verður erfitt að snúa til baka.
Hætta er á notkun kjarnorkuvopna. Stríð gæti kostað tugi milljónir
mannslífa og orðið til að útrýma þjóðlífi okkar og menningu.
Nýlegar yfirlýsingar frá Ísrael og fréttir af hernaðaræfingum valda miklum
áhyggjum. Enginn getur spáð fyrir um afleiðingarnar ef Ísrael gerir
loftárásir á Íran. Raunveruleg hætta er á að slík árás myndi kveikja í
púðrinu og koma allri heimsbyggðinni í uppnám á stuttum tíma. Líkleg
fyrstu viðbrögð eru hrun á fjármálamörkuðum vegna snarhækkunar olíu
og margföldun hryðjuverka. Í framhaldinu sundrung þjóða og
hernaðarleg blokkamyndun sem þróast til heimsstyrjaldar m.a. undir
formerkjum trúarbragðastríðs milli islam og kristinna manna.
Við getum ekki leyft málum að þróast í þessa átt án þess að gera allt
sem í okkar valdi stendur til að beina orkunni í Mið Austurlöndum til
friðar og velsældar í stað styrjaldar og upplausnar. Með höfðun til
uppruna yðar í Ísrael og núverandi þjóðfélagsstöðu á Íslandi, teljum við
hjá Friði 2000 að þér séuð í lykilstöðu til að koma á viðræðum við Ísrael
og bera fram hugmyndafræði Friðar 2000 til lausnar á vandamálunum.
Friður 2000 býður fram aðstoð við verkefnið, m.a. þróun og framsetningu
hugmyndafræðinnar. Við biðjum yður að nota þá sérstöku aðstöðu sem
þér hafið á Bessastöðum til að virkja embættið og Forseta Íslands til að
reyna að afstýra stærsta menningarslysi mannkynssögunnar.
Virðingarfyllst,
Alþjóðastofnunin Friður 2000
Ástþór Magnússon
Ástþór Magnússon Wium, 27.12.2008 kl. 17:07
Ég spyr: Ef þú ert á gangi um sódómuna í miðbænum aðfaranótt sunnudags og sérð tvo menn í slag, gengurðu þá á milli þeirra og spyrð hver byrjaði? Stúdarðu svo þeim sem lýðurinn í kring bendir á og býður hinum í kakó?
Segjum sem svo að þú hafir gengið út frá því sem vísa að á milli þeirra hafi ríkt „vopnahlé“ og það hafi þannig verið rofið af manninum sem byrjaði. Þannig er maðurinn sem byrjaði sekur um að hafa rofið þetta „vopnahlé“ og hinn maðurinn er þannig fórnarlamb þess að sá sem byrjaði rauf „vopnahléið“.
Með þetta „vopnahlé“ til hliðsjónar er þannig hægt að fella alla sök bardagans á annan manninn en sýkna hinn af öllu.
Ég spyr: Er þetta rétt? Er rétt að fella alla sök á Palestínumenn því þeir rufu þar til gert „vopnahlé“?
Vopnahlé er asnalegt hugtak sem mig grunar að sé notað akkúrat til þess að réttlæta það að í stríði (ofbeldismáli) sé allt einum að kenna. Annar rífur vopnahléið, allt er honum að kenna. Þannig spyr ég ennfremur: Ef það er friður, er þá vopnahlé? Með orðinu vopnahlé er gengið út frá því sem vísu að ef það væri ekki hlé, þá væri stríð. Eða ölluheldur að núna sé bara smá pása frá stríðinu, smá hlé og svo sé farið að berjast aftur því ófriðurinn er náttúrulögmálið sem gildir og vopnahléið er tímabundin leið útúr þessu náttúrulögmáli.
Auðvitað er viðvarandi ofbeldi milli tveggja saknæmt milli þeirra sem viðhalda því. Ofbeldi Ísraelsmanna er ekkert réttlætanlegt því „Palestínumenn rufu vopnahléið“ jafn mikið og að ofbeldi Palestínumann er ekkert réttlætanlegt því „Ísraelsmenn kúga þá“
Eða, enn spyr ég: Hvenær er ofbeldi réttætanlegt, hver má beita því og hvenær?
Rúnar Berg Baugsson (IP-tala skráð) 27.12.2008 kl. 17:55
Ástþór Magnússon Wium, forsetaefni m.m. Ef þú sendir áfram svona dulbúnar auglýsingar í formi athugasemda, verð ég að rukka þig.
Ástþór, mér sýnist á öllu, að þú eigir eitthvað óafgreitt við forseta Lýðveldisins Íslands og eiginkonu hans. Þú ert líka með greinilega fordóma gegn forsetafrúnni okkar. Bréf þitt er ekki málefnalegt og langt frá því að vera friðsamlegt. Ekki getur það nú verið málstað þínum til framdráttar.
Jólasveinarnir á Gaza hafa þó aldrei verið á þínum vegum? Þeir minna dálítið á karlinn sem þú fórst með til Bagdað um árið.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 27.12.2008 kl. 18:03
Afhverju er það fjöldamorð ef að Ísraelsmenn verja sig, en Hamas og fleiri hryðjuverkasamtök stunda "frelsisbaráttu "
Takk fyrir þína mörgu fróðlegu og góðu pistla hér Kv. Sif
SIf Gylfadóttir (IP-tala skráð) 27.12.2008 kl. 20:20
Hvað er að fólki. Það eru nokkrir menn á Gaza að skjóta rörum fylltum með saltpétur á skotmörk sem eru óvart Gyðingar sem búa á svæðum sem þeir eiga ekkert í heldur eru landtökufólk í boði Ísrael. Þessu er svarað með öflugustu spengjum sem völ er á í heiminum og allt í boði USA. Og fólki finnst bara í lagi að fjöldi barna og fólk sem ekkert hefur með þetta að gera verði fyrir þessu. Minni á að í Ísrael dó ein manneskja í dag vegna hryðjuverkamanna í Hamas. Fyrir daginn í dag er langt síðan einhver dó í Ísrael. Og hvenær ætla menn þarna í Ísrael og USA að læra að börnin í Palestínu læra það sem fyrir þeim er haft. Þe. að Ísrael sé andstæðingur sem kemur reglulega þegar að fólk er farið að sjá fram á frið og sprengir allt til andskotans. Þetta er líka leið sem Ísrael notar til að þurfa ekki að skila landi til baka og tryggja ríkinu vopn og peninga frá USA.
Er einhver svo vitlaus að land sem Ísrael er búið að kljúfa í mörg hundruð parta með veggjum og landtökubyggðum verði einhvertíma tilbúið í samninga um núverandi ástand. Það dóu fjöldi barna og saklausra í Palestínu í dag. Og skólafélagar barna sem dóu læra að hata Ísrael en heitar. Þetta land sem hefur einn öflugast her í heimi beitti í dag fádæma hörku.
Magnús Helgi Björgvinsson, 27.12.2008 kl. 20:35
"Ef fólk er ekki farið að sjá í gegnum fréttaskrum og svikamyllur Palestínumanna, er ekki nema von að útrásavíkingarnir gætu blekkt vinstri menn á Íslandi."
Og dettur þér í hug, kæri Vilhjálmur, að þér takist að sannfæra okkur um að þú sért ekki litaður af áróðursmaskínum, fréttaskrumi og svikamyllum Ísraela? Af greinum þínum og bókum hér til hliðar er nú ekki að sjá að þú sért alveg hlutlaus í þessum málum.
Það er enginn saklaus í þessu stríði frekar en öðrum, hvorki Hamas né Ísraelska ríkisstjórnin. Eymd almennings á Gaza er hins vegar staðreynd og þarfnast engra gæsalappa, þó einhver Hamas foringi eigi Range Rover eða Benz, og réttlætir ekki neitt.
Hjörtur Smárason (IP-tala skráð) 27.12.2008 kl. 20:39
Magnús Helgi, sprengjur Hamas í Gaza lenda á lýðveldi sem er viðurkennt af SÞ. Þú ert greinilega ekki staðkunnugri en meðaljóninn á Íslandi, sem er að tjá sig um eitthvað i Miðausturlöndum þegar þeir eru ekki að barma sér út af vitleysunni sem þeir létu fúsir ganga yfir sig í sínu eigin landi. Negev tilheyrir Ísrael!
Þeir sem kasta sprengjunum eru bæði í samstarfi við eða í samfloti við ógnarstjórnir sem lýst hafa yfir ætlun sinni að útrýma Ísraelsríki. Ætlunarverk sumra þessara hópa er líka útrýming menningu hins vestræna heims. Ætlunarverkið er í mörgum tilfellum íslamistískt alheimsríki.
Landið Ísrael hefur einn öflugasta her sem til vegna þess að vinstri menn á vesturlöndum, og þar með talið samfylkingarpésar á Íslandi, eru stuðningsmenn útrýmingar gyðinga. Þegar nasistar og annað soralið í Evrópu reyndu útrýmingar á gyðingum síðast, var ekki til nógu góður her gyðinga. Nú er hann til og hann vinnur vinnu sína eins og þú og ég.
Ísraelski herinn getur lítið gert af því að Hamas hreiðri um sig innan um saklaust fólk á Gaza. Vill fólk láta taka sig sem gísla, verður það líka stundum að taka afleiðingum þess.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 27.12.2008 kl. 20:55
Tad er mikil spenna her Jerusalem. Hrydjuverkamenn a Gaza-svaidunu hafa sent um 5000 eldflaugar yfir til Israels fra arinu 2005.
M¢rg heimili hafa verid l¢gd i rust. Fj¢ldi hefur turft ad leita hjalpar vegna st¢dugan otta vid tesar ognir. Fj¢ldi saklausra hafa slasast og sprengjurnar ordnar kraftmeiri en adur. Israel hefur gert allt sem haigt er til ad fa Hamas til ad st¢dva tessa glaipi, an arangurs.
Islenskir fj¢lmidlar hafa greinilega enn einu sinni afhjupad skodun sina og andud a Israel.
Palestinu/arabar hafa tad hvergi eins gott eins og her i Israel.
Margir spyrja nu, hversvegan hefur Israelska varnarlidid ekki svarad tessum glaipsamlegum arasum a saklausa borgara?
Tad er ekki haigt ad semja frid vid ta sem hafa tad a stefnuskra sinni ad eyda landi og tjod i Israel.
Mer finnst tessi adf¢r i morgun dalitid taknrain, tar sem enn er Hanukkah hatid. Vid rifjum upp, hversvegna hatidin er haldin...
Shalom kvedja fra Zion
olijoe
Ólafur Jóhannsson, 27.12.2008 kl. 20:55
Hjörtur Smárason, í greinum mínum hér á síðunni skrifa ég það sem ég get fært rök fyrir. Ég er yfirlýstur síonisti og náttúrulega litaður af því, en stuðningur minn við tilvist Ísrael byggir ekki á geðþóttahugaburði, tískuduttlungum og hatri í garð palestínumanna líkt og hjá sumu fólki á Íslandi sem ekkert veit um ástandið í Miðausturlöndum og er drifið áfram af hatri í garð gyðinga frekar en kærleika til Palestínuþjóðarinnar. Stundum gengur þetta í arf. Afkomendur nasista á Íslandi eru oft miklir stuðningsmenn Hamas. Farðu og skoðaðu hvað leiðtogi múslíma á Íslandi, Palestínumaðurinn, skrifaði um mig á bloggi sínu. Þá sérð þú kannski muninn á meðölum manna.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 27.12.2008 kl. 21:14
Mér finnst, - einhvernveginn, - að Vilhjálmur, Sif og fleiri, skildu betur biturleika Palestínumanna og "tilhneygingu" þeirra til sjálfsvíga - ef þau (sjálf) ættu langömmur, langafa, ömmur, afa, mæður, feður - o s frv - sem ALDREI hefðu fengið að lifa eðlilegu lífli, frekar en þau sjálf, vegna "gjafmildi" Breta við gyðinga´1947! Bretar "gáfu" - vel að merkja, - nþað sem þeir áttu ekki, frekar en þorskinn á Íslandsmiðum.
Svo var nú það!
Hlédís, 27.12.2008 kl. 21:17
Þakka þér fyrir innlitið Ólafur Jóhannsson. Hanukka Sameach! Íslenskri fjölmiðlamenn sem tekið hafa að sér að miðla fréttum frá Landinu helga, ganga flestir erinda öfgaafla.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 27.12.2008 kl. 21:17
"Hlé-Guðm". þú hefur kannski tölu á ættmennum þínum sem lentu í gasklefum Þjóðverja og aðstoðarmanna þeirra? Ef þú værir í þeim sporum, myndir þú þá skilja betur sjálfsmorðsárásir fólks sem lýst hefur vilja sínum til að halda áfram útrýmingunni sem Evrópuþjóðir byrjuðu á?
Bretar gáfu gyðingum ekki það sem Bretar áttu ekki. Það var ekki til neitt ríki Palestínumanna fyrr en hryðjuverkahópar þröngvuðu þeirri meinloku upp á heiminn löngu eftir stofnun Ísraelsríkis. Ekkert ríki var tekið frá "Palestínumönnum". Palestína er heiti, sem þröngvað var upp á land gyðinga löngu áður en Þjóðverjar og hjálparhellur þeirra myrtu milljónir manna í Evrópu fyrir rúmum 60 árum. Forfeður þeirra Palestínumanna sem nú búa fyrir botni Miðjarðarhafs, og sem ekki eru komnir af gyðingum sem neyddir voru undir Íslam, voru ekki komnir á svæðið þegar Rómverjar kölluðu land gyðinga Palestínu.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 27.12.2008 kl. 21:34
Vilhjálmur! Nota þú gasklefa hóflega til varnar ísraelskum ofbeldismönnum! Ég efa mjög að fjölskyldu-tengsl þín við gyðinga sem sátu í útrýmingabúðum séu meiri en mín. Söguþekking þín um stofnun Ísraelsríkis getur og verið fengin frá nokkuð hlutdrægum aðilum..svo ekki sé meira sagt.
Hlédís, 27.12.2008 kl. 23:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.