22.11.2008 | 20:54
Skríllinn sér rautt
Dönskum gestum mínum, sem í dag heyrðu lögfræðinemann sem talaði á Austurvelli, varð um og ó. En kvindelig Hitler!, var dómur eins gestsins, sem þótti ræðukonan ógnvekjandi. Út frá röddinni veðjaði fólk á sextuga kommakerlingu sem héldi að draumaríki sósíalismans væri loks að koma. Ég tjáði fólkinu að þetta væri bara yngri stúdína af góðum ættum.
Hörður torfærutrúbador sagðist vera kominn með rautt armbindi. That time of the month. Hann fullvissaði þjóðina um að hann skiptu um liti á bindinu í hverri viku. Tækifærislitir í tækifærisbyltingu? Rauði liturinn hefur greinilega æst einhverja til að ráðast á lögreglustöðina. Víkingasveitin kom til varnar. Ungviðið skemmti sér við að brjóta glugga og láta öllum illum látum. Svo kom fitlarinn af þakinu, fánaberi þeirra svínbeygðu út úr steininum eins og álfur út úr hól, með hulu yfir andlitið eins og ég forðum. Einhver húmanisti hafði bailað hann út, eins og hann Billy the Kid í villta vestrinu. Djöfull eru Íslendingar nú væmnislega dramatískir.
Hvað gerðist fyrir utan allt þetta. Jú, Jón forseti var klæddur i kjól hinn bleika af einhverju kvenfélagi, sem auðvitað fékk tvo stráka til þess verks. Vá, enn listrænt. Drag-byltingin í betlararíkinu Íslandi er greinilega að ná hámarki og ég hlusta nú á „láttu mig vera og farðu svo burt" með Lúðursveit Verkalýðsins. Ágætis lag sem hægt væri að nota þegar 007 verður gagnnjósnari í þágu Norður-Kóreu og moneypeningar fara að streyma til fátæku eyjunnar okkar og við komust á flot i hriplekum evrugondóla.
Þetta var aumur dagur í sögu lýðveldisins. Það væri nær að mótmæla fyrir utan hallir auðmannanna í stað þess að brjóta saklausar rúður við Hlemm.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:02 | Facebook
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Tapað-fundið á DV
- Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.
- Trumpur Eyjajarl
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.3.): 3
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 60
- Frá upphafi: 1354137
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 54
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Ekki veit ég hvort sú góða kona Margrét Pétursdóttir verður ánægð með að vera titluð strákur.
Mér fannst hún einmitt svo fjári hugrökk að klöngrast þarna lengst uppí stiga.
Stefán Pálsson (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 21:03
Margrét er drengur góður, eins og við hinir.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 22.11.2008 kl. 21:07
Nú er öll vígi fallin, kerlingar farnar í stigamennsku utan á sverði og skildi þjóðarinnar.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 22.11.2008 kl. 21:12
Hún var ansi reið þessi ræðukona. En það var bara ágætt. Jahve var líka oft öskureiður. Og er hann ekki þinn gvöð?
Sigurður Þór Guðjónsson, 22.11.2008 kl. 21:24
Fólkið er reitt og ég er viss um að minna tilefni mun nægja, þegar loksins ventillinn brestur. Það eru mörg dæmi um það eins og þú veist. Púkaskrattarnir 10 sem mæta til að kasta eggjum eru ekki málsvarar þeirra sem eru þarna og ætti bara að flengja þá.
Ömurlegasti aulahrollurinn og hallærislegheitin voru þegar einhvejar feministabeljur misnotuðu aðstöðu sína í þessum flissklúbbi sínum til að vekja athygli á gælumálstað sínum mitt í öllu þessu og vanvirtu Jón Sigurðson með þessm fáránlega happeningi. Þær eiga enga réttlætingu til.
Ástandið er svoleiðis hér að ef löggan myndi voga sér að munda kylfu þá verður hún hrakin í sjóinn. Sjóið er bara að byrja Villi. Eina eða tvær vikur til af lygi, útursnúningum og platkaramellum á föstudögum; hroka, yfirgangi og spillingu, þá fá þessir landökumenn að vita hvar Davíð keypti ölið, sem gerði hann svona rænulausan sósíópat.
Það helvíti situr nú í blágrýtisvirkinu og segist hafa vitneskju um örsakir og eðli þessa alls, en neitar að segja hvað. Absúrd stjórnvöld kalla á absúrd hegðun. Það segir sig sjálft.
Jón Steinar Ragnarsson, 22.11.2008 kl. 21:27
Jehóva er algjört sourpuss, alltaf súr og í vondu skapi líkt og Allah og Gvöð almáttugur, en hverju reiddust Goðin, er kreppan skall á á Íslandi? Annars var konan sem þrumaði á Austurvelli engin gyðja, miklu freka gjallarhorn.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 22.11.2008 kl. 21:34
En hvað með votta Jehóvans? Þeir geta áreiðanlega vottað æði margt um þann gaur.
Sigurður Þór Guðjónsson, 22.11.2008 kl. 22:02
Og þeygi allt gott og fagurt!
Sigurður Þór Guðjónsson, 22.11.2008 kl. 22:02
Sigurður, votta kvestjón? Votta wörld!
Bjarne, írsk? Var svitalykt af henni? Ég heyrði hana bara, hef aldrei hitt hana og þori það heldur ekki. En vottað gat hún, hátt og tryllingslega.
Votta bömmer, þetta Ísland......
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 22.11.2008 kl. 23:10
Ég vil biðja bloggara að leggja sig ekki niður við að svara durtálfinum VÖV. Hann er best geymdur á socialnum hjá gömlu herraþjóðinni. Skrif þessa mannteturs eru full af mannfyrirlitningu og mannvonsku - í anda Jahve og gamla-testamentisins: Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn; þú verður "tekinn niður" VÖV.
Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 23:34
Eru þessar IP-tölur prímtölur?
Ásgeir Kristinn Lárusson, 23.11.2008 kl. 00:12
Hvað ertu að guðlasta hér, dr. Vilhjálmur? Gyðingar, sem þú ert nú í góðu vinasambandi við, kunna ekki að meta þetta. Láttu ekki Sigurð Þór spana þig upp í að breyta þessum vefþræði í ónytjutal. Mt.12.36f og blessaður!
Jón Valur Jensson, 23.11.2008 kl. 03:58
Út frá blogginu veðjaði fólk á áttræðan fasistakall sem héldi að draumaríki nasismans væri loks að koma.
Ásgeir H Ingólfsson (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 06:20
Ásgeir, Hilmar þessi Hafsteinsson á undan þér kneppir mörgum IP-tölum. Jafnvel prímtölum. Það kom óhróður og öfgar úr minnsta kosti 4 tölvum frá honum í gær. Það mætti halda að hann hefði verið í tölvuveri einhvers skóla, þar sem hann er víst kennari. Hann kennir sögu...
Jón Valur, ég var ekki að guðlasta mínum Guði, aðeins annarra. En ég skal gjarna skrifta. Ég syng 3 Maríubænir með rúnnstykkjunum á eftir, ef ég lifi af cykeltúrinn til bakarans. Hann er góður kaþólikki og vinnur alltaf á sunnudegi. En satt segir þú, Sigurður Þór er sendur úr neðra til að spana fólk upp í djöfulskap og vitleysu. Einhvers staðar verða vondir að vera og þess vegna er hann ávallt velkominn hér á bloggið með svolítinn djöfulsskap, og þú með heilagleika og Mt.12.36ff.
Ég verð hins vegar að bíða örlítið lengur til að sjá hvernig skapari minn tekur þessu. Reiðir Guðir geta víst oft haft húmor, það sagði síra Jakob Jónsson í sinni doktorsritgerð. Ég held líka að Mattheus hafi verið í einhverri valdaklíku, sem ráðlagði mönnum að þegja sem mest og vera undirgefna, því auðvitað situr Guð ekki og einhverjir njósnaraenglar hans og skrá allt ljótt sem maður segir og skrá í bók eða forrit á himnum, svo hægt sé að nota það til að opna fyrir manni himnaríki eða senda mann rakleiðis í neðra til Sigurðar Þórs og Co. fyrir lélegan djók.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.11.2008 kl. 06:50
Jón Valur! Ert þú að saka mig um að vera með ónytjungstal? Þú skalt ekki kasta steini úr glerhúsi. Vilhjálmur hefur umburðarlyndi og húmor sem þú hefur ekki en iðkar helst það að gera lítið úr öðrum einsog mér núna. Þú ert bæði guðlaus og skilningslaus.
Sigurður Þór Guðjónsson, 23.11.2008 kl. 10:36
Mt.12.36f á að nægja þér, Vilhjálmur. Svo þarftu að lesa betur Gamla testamentið, ekki sízt spámennina, til að kynnast Guði kærleikans. Lestu Jesaja, Amos, Hósea, og reyndu svo að segja Gyðingum, að Guð þeirra sé bara "Guð reiðinnar." – Sigurðar innleggi hér á undan anza ég ekki (hann skilji það eins og honum hentar, en hætti þráttan, í öllum bænum!).
Jón Valur Jensson, 23.11.2008 kl. 14:07
Ónytjutal er allt annað en ónytjungstal, Sigurður. Ég hef aldrei kallað ykkur félaga ónytjunga.
Jón Valur Jensson, 23.11.2008 kl. 14:11
Ásgeir H. Ingólfsson, sem læddi athugasemd sinni inn eftir einhverjum leiðum sem mér eru ekki kunnugar, vinnur hjá mbl.is. Hann ætti nú frekar að taka sér upp mbl.blog. Tímarnir hafa greinilega breyst. Ég tek það ekki alvarlega þegar ég fæ tóninn frá einhverjum Akureyrapésa af fínum ættum sem vinnur á mbl.is, sem vænir mig um fasisma og nasisma vegna þess að gestum mínum þótti ræðumaður á Austurvelli í gær öskra eins og Hitler og minna á gamla kommakerlingu. Ég er algjörlega sammála gestum mínum. Hópæsing og skrílslæti fasista, nasista og kommúnista hljómar næstum því eins. Ertu ekki sammála Ásgeir Moggastarfsmaður?
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.11.2008 kl. 16:10
Alveg rétt, Jón Valur, enda nefndi ég ekki Baruch Adonai. Hverju aðrir Guðir reiðast, vekur undrun mína en oft líka kátínu.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.11.2008 kl. 16:22
Góð tillaga, Hippokrates. Panta líka einn svona bol.
Jón Valur Jensson, 23.11.2008 kl. 17:43
Jæja, ég hlakka til að hitta ykkur báða í neðra.
Sigurður Þór Guðjónsson, 23.11.2008 kl. 19:29
Vertu þá í bolnum hér að ofan, og klúrri skýlu, það gefur vildarpunkta hjá andskotanum.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.11.2008 kl. 19:37
Kan denna ordväxling ha något med domssöndagen att göra? Den infaller nämligen i dag.
Annars är den judiska tron livsbejakande och inte så helvetesfixerad som den kristna, inte sant dr. Vilhjálmur?
Som jude behöver man inte tro någonting,men man måste göra saker.
Du skall ge så mycket av dig själv att du ser Gud i en annans människa ögon; man kan säga att Gud tittar tillbaka på dig.
Så titta nu varandra djupt i ögonen, go`vänner.
S.H. (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 20:42
S.H. fyrir utan Gehenna, sem voru öskuhaugar Jerúsalem, sem með tímanum urðu að einhvers konar trúarlegu víti, þá er helvíti og himnaríki ekki adressur sem gyðingar sækja mikið í. Til forna var til Sheol (í Neðra) og himinn, en ég kann ekki að segja frá þeim stöðum því ég hef aldrei verið þar. Það er Tikkun Olam (fullkomnun/betrumbót heimsins) sem gyðingar telja mikilvægara en spurningin um himnaríki og helvíti. Þú ert það sem þú gerir.
Þakka þér fyrir ábendingarnar S.H. Íslendingar gætu notað þetta ráð nú á hinum verstu og síðustu tímum.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.11.2008 kl. 21:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.