15.6.2008 | 07:04
Íslendingar eiga ekki Ísland
Ef einhverjir halda að Íslendingar eigi Ísland, þá skjátlast þeim hrapalega. Allir aðrir sem leggja leið sína til Íslands eiga líka Ísland. Danir eiga Ísland, Norðmenn eiga verulega mikinn hluta af Íslandi, Pólverjar eiga að sjálfsögðu Ísland og jafnvel hollenskir eiturpésar sem koma með húsbílinn hlaðinn af eitri handa frumbyggjunum, er líka Íslendingur og velkomnir að eyða almannafé í yfirfullum fangelsum landsins.
Við verðum að vera opin og gera okkur grein fyrir því, að þegar því var lýst yfir á sínum tíma, að Ísland væri íslenskt ríki fyrir Íslendinga, var það lykillinn að endalokum Íslands.
Þegar forseti vor talar í sífellu um hlutverk Íslands á meðal þjóðanna, er hann að sjálfsögðu að tala um að Ísland tilheyri öllum. Við skuldum líka allt sem við "eigum", svo það er best að sætta sig við að við eru í sameign.
.........Vonandi hef ég sært einhvern með þessum orðum mínum, móðgað fjöldann, kallað yfir mig hatur og fyrirlitningu.
Það gerði fjölmiðlatrúðurinn Avraham Burg í Ísrael nýlega , þegar hann lýsti því sama yfir um Ísrael. Burg er aflóga stjórnmálamaður á ísraelska vinstrivængnum, sem vinstri menn á Íslandi vitna gjarnan í. Hetja mikil.
Skrítið er, að til eru Íslendingar og aðrir, sem telja allt í lagi að Ísrael sé einhver sameignarkólónía alls heimsins undir stjórn Palestínumanna, sem ekki virðast vita eða geta gert sér grein fyrir því hvað lýðræði er. Þeim þykir heldur ekkert athugavert við það að Palestínumenn banni gyðingum að búa í "Palestínu".
En þessir sömu Íslendingar ærðust örugglega líka, þegar þeir lásu orðu mín um að Ísland sé ekki íslenskt ríki fyrir Íslendinga. Því ef einhverjir Íslendingar eru "hardcore" þjóðernisfasistar, þá eru það vinstri menn.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Menning og listir, Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 11:25 | Facebook
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 7
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 86
- Frá upphafi: 1352301
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 56
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Hehehehhe, góður, manstu eftir bókinni "Stubbur vill verða stór" ?. Íslenzkt samfélag liðinna ára minnir mig oft á þá bók. Með beztu kveðju.
Bumba, 15.6.2008 kl. 07:24
ég sé að danaveldi er búið að gelda þig og nú ert þú bara geldingur einn af fjöldanum í vinstri landi.
Íslendingar eiga Ísland og það getur enginn breytt því nema stjórn eins og í Danmörku "Vinstri" Við verðum að standa vörð um okkar þjóð og land, annars lendum við í sömu vitleysu danir og fleiri nágrannaþjóðir. við eigum að læra af mistökum dana og annara þjóða sem opnuðu dyrnar fyrir fólki af Arabískum uppruna. Þetta fólk er búið að vera til vandræða í allri evrópu og á ekki heima í vestrænum heimi. Við erum bara of ólík til að geta búið saman.
Gunnar (IP-tala skráð) 15.6.2008 kl. 11:20
Hér eru Bumba og Erlingur að kommenta og ég vil endilega vera með: Ég er æstur vinstri maður en er enginn hardcore þjóðernisfasisti. Ég held að þú sért nú bara andskotans hardcore dóni sem særir mig alveg ofan í rassgat.
Sigurður Þór Guðjónsson, 15.6.2008 kl. 12:22
Ja hérna, heitar tilfinningar, alveg til enda. Ertu ekki bara vinstri fakír, Sigurður, sem er kominn með rasssæri á því að vera alltaf á réttri skoðun.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 15.6.2008 kl. 13:10
Sæll.
Ég er nú lítið fyrir að tjá mig á annarra manna bloggum, en mátti hreinlega til eftir að ég sá þetta:
"skrítið er, að til eru Íslendingar og aðrir, sem telja allt í lagi að Ísrael sé einhver sameignarkólónía alls heimsins undir stjórn Palestínumanna, sem ekki virðast vita eða geta gert sér grein fyrir því hvað lýðræði er."
Í fyrsta lagi skil ég ekki einu sinni hvað þú ert að reyna að segja, þetta virkar á mig eins og bull, en hitt að segja að Palestínumenn virðist ekki vita eða "geta gert sér grein fyrir því hvað lýðræði er" sýnir einfaldlega að þú ert ekki vel gefinn og vilhallur undir Ísrael.
Síðast þegar Palestínumenn nýttu sér lýðræðislegan rétt sinn til að kjósa sér þjóðstjórn var þeim refsað af Vesturveldunum fyrir að kjósa "rangt". Ég held þeir hafi bara ekki tröllatrú á lýðræðinu.
Arnar Steinn , 15.6.2008 kl. 13:19
Ári ertu líkur Noam Chomsky, Arnar. Heilögum Chomsky, dýrlingi einfeldninnar.
Ef þú kallar það lýðræðislegar kosningar, sem við höfum séð í Palestínum, þá þætti mér áhugavert að vita hvernig ástandið er hjá þér. Er ekki allt í lagi heima hjá þér?
Hjá körlum eins og þér eru menn illa gefnir ef þeir eru vilhallir undir Ísrael. Hjá mér er þessu öfugt farið. Ef menn eru hallir undir hryðjuverkahópa, sem halda sýndarkosningar, þá geta menn alveg verið vel gefnir ... en þeir nota bara ekki gáfurnar sem skyldi.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 15.6.2008 kl. 13:47
Heitar tilfinningar alveg niður í botn!
Sigurður Þór Guðjónsson, 15.6.2008 kl. 14:07
Það er algjörlega réttmætt, að bera saman Ísland og Ísrael. Bæði löndin eru þjóðríki og all tal um fjölmenningu í sambandi við þau er hrein vitfirring. Að tilheyra þjóð með eigið tungumál, eigin sögu og sameiginlegan uppruna er öllu öðru dýrmætara.
Á hinn bóginn er fjölþjóðleg samsuða hið versta umhverfi sem hugsast getur. Ef gildismat fólks er mjög mismunandi og tjáning þess óviss, er nærsta öruggt að misskilningur og árekstrar einkenna samfélagið. Hvers vegna margt "vinstra" fólk telur svona umhverfi æskilegt, held ég að megi heldst útskýra með kleyf-hyggju. Þegar á reynir, eru vinstri-sinnar oft fyrstir til að sína öðru fólki yfirgang. Vilhjálmur stimplar þá sem "þjóðernis-fasista" og skot hans er ekki langt frá marki.
Skýringa á erfiðleikum Arnars, við að skilja pistil Vilhjálms, held ég að verði að leita til andlegs atgerfis Arnars.
Svo fáum við að heyra barnalegt hjal, um að eina krafa lýðræðis sé að halda beri kosningar. Er það hluti af Arabisku lýðræði, að sá flokkur (Hamas) sem fær meiri-hluta í kosningum megi myrða minni-hlutann (Fatah) ?
Er ekki rétt og sanngjart að senda Arabana í Palestínu aftur að Rauða-hafinu og lofa þeim að siðvæðast þar í sama umhverfi og ríkti fyrir 1400 árum ? Heimsbyggðin myndi fagna, ef mistökin með Muhundinn yrðu þurrkuð úr sögunni.
Loftur Altice Þorsteinsson, 15.6.2008 kl. 15:36
Hlynur, mikil loftgusa er þetta. Ertu Þingeyingur.
Að vera vel menntaður bjáni, er það betra eða verra en að vera illa menntaður bjáni?
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 15.6.2008 kl. 15:38
Þetta minnir mig á eitthvað sem sem Amal Tamimi sagði um Ísland og Íslendinga. - Mig minnir að hún hafi skrifað eitthvað um að það væri ekki til neitt sem heitir Íslendingur því við erum öll frá erlendum uppruna. Mér fannst þetta vera dálítið kaldhæðnislegt komandi frá manneskju sem neitar að viðurkenna tilvist Ísraelsríki.
Sigurður (IP-tala skráð) 15.6.2008 kl. 17:48
Góð grein hjá þér, Vilhjálmur. Heimurinn er á óstöðvanlegri leið með að verða eitt land, eitt ríki, og því fyrr sem menn gera sér grein fyrir því, því betra.
Eftir mikil átök og hörmungar mun þetta rætast: "Það verður ein hjörð og einn hirðir."
ÆvarAndi (IP-tala skráð) 15.6.2008 kl. 19:01
Hlenur minn, ekki kallaði ég þig rasista! Hvar lastu það?
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 15.6.2008 kl. 19:27
Halló halló, rjúkið nú ekki út þetta horngrýtis ofstæki strákar. Þeir sem skrifa neikvæðast eru yfirleitt þeir sem minnst vita um hlutina. Höldum áfram að þegja eins og við gerðum í gamla daga og þá létum við ekki skoðun okkar í ljós fyrr en við vissum alla málavexti. Nú er öldin önnur, því miður. Allir hafa vit á öllu nú til dags, og fólk básúnar og beljakast út í loftið oft á tíðum án þess að hafa nokkuð vit á því sem það er að segja. Þess vegna er oftsækið svo mikið í íslenzku samfélagi í dag. Með beztu kveðju.
Bumba, 15.6.2008 kl. 19:34
Villti, tryllti Villi strikes again. Eins og Svarthöfði.
Snorri Bergz, 15.6.2008 kl. 22:34
Hvað á fólk að halda, Hlynur á græna Bronkónum? http://hlynurs.blog.is/blog/hlynurs/entry/568307/#comments´
Þú skrifaðir nefnilega:
"Gott að Bandaríkjamenn viðurkenna að eitthvað af vandamálum Palestínu sé gyðingunum að kenna.
Sannleikurinn er svo auðvitað sá að öll vandamál Palestínu eru gyðingum og þeim sem stálu Palestínu af íbúunum og gáfu gyðingum að kenna. Spurning hvenær það verður opinberlega viðurkennt?
Eina lausnin er að senda gyðingana til síns heima og segja þeim að aðlagast þeim samfélögum sem þeir búa í, rétt eins og allir innflytjendur ættu að gera."
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 16.6.2008 kl. 06:14
En nú ertu, eins og Einar Einarsson bendir réttilega á , búinn að fjarlægja einföldu lausnina, Entlösung Hlyns fyrir gyðingana. Þú ert nú meiri sveitamaðurinn Hlynur, fyrir utan að vera útlendingahatari. Fjarlægðu frekar yfirlýsinguna á síðu þinni um að þú sér hógvær og kurteis, og biddu sveitaprestinn þinn að kenna þér þær kenndir aftur!
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 16.6.2008 kl. 13:37
Ég hef í talsverðan tíma fylgst í forundran með bloggfærslum þínum um málefni Ísraels og Palestínu. Ég er sjálfur mikill aðdáandi Gyðinga. Mjög margir af fremstu listamönnum, vísindamönnum og stjórnmálamönnum heimssögunnar hafa verið Gyðingar.
En mér er ekki mögulegt að verja framkomu forystmanna Ísraelsmanna gagnvart Palestínumönnum. Í upphafi var Gyðingum úthlutað af Sameinuðu þjóðunum ca. 55 % af landi Palestinu. Núna eru þeir búnir að sölsa undir sig meira land og komnir í ca. 80 % og eru enn að reisa nýjar landnemabyggðir. Hver er réttur Palestínumanna eftir að búið er að ræna þá landi sínu sínu? Að mínu mati er Ísraelsríki orðið að krabbameini hins vestræna samfélags.
Ég geri ráð fyrir að við séum sammála um að Íranar ættu ekki að eignast kjarnorkuvopn. En hver er skoðun þín á kjarnorkuvopaeign Ísraelsmanna?
Það er margt sem mér liggur á hjarta í þessu máli , en það má bíða betri tíma.
Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 16.6.2008 kl. 16:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.