7.3.2008 | 09:10
Öryggisráðið er sirkus
Eftir árás Palestínumanns á Yeshivu (Torah-Talmud skóla) Mercaz Harav í Jerúsalem í gær, þar sem 8 ungmenni voru myrt á hrottalegan hátt fyrir frelsi Palestínu, er hægt að sjá hve mikils virði Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna er.
Þegar greiða átti atkvæði til að fordæma árásina, var það ekki hægt, því einræðis- og íslamistahreiðrið Líbýa andmælti. Líbýa hefur líka, eins og Gaza, eyðingu Ísraelsríkis á dagsskránni.
Þessu ófremdarásstandi í Öryggisráði SÞ breytir Ingibjörg Sólrún auðvitað þegar hún fer í Öryggisráðið með hirð sína. Eða verður hún strengjabrúða Ghadaffis og arabaríkjanna. Það verður hált á bónuðum gólfum friðarins í New York. Imba gæti hæglega orðið trúður í öryggissirkusnum SÞ.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sagði í Fréttablaðinu í gær að hún sæi ekki ávinninginn af því að slíta sambandinu við Ísrael, þrátt fyrir að Ísraelsmenn væru að "hóprefsa" Palestínumönnum á óafsakanlegan hátt". Fullreyna þyrfti opinberar leiðir, svo sem öryggisráðið. Og að alþjóðasamfélagið léti í sér heyra. Ráðherrann getur hér séð hvers virði öryggisráðið er.
Hvað eru árásir Hamas á Ísrael annað en hóprefsingar? Er enginn heil brú í því sem blessunin hún Ingibjörg er að gera og hugsa. Það skýtur skökku við þegar ráðherrann bíður þangað til byssurnar þagna í Darfúr http://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/294226/ .
Svo kom það fram í gær að Vinafélag Palestínumanna á Íslandi telur Hamas lýðræðislega kosna stjórn Gaza. Það er sorglegt að sjá að læknir í lýðræðisríki, Sveinn Rúnar Hauksson, álíti að hryðjuverkasamtök sem stjórnuðu "kosningum" með byssuhlaupi og ógn séu lýðræðisleg.
Palestínumenn fagna morðárásinni á rabbínanemana
Yohai Livshitz, 18 ára
Neria Cohen, 15 ára
Segev Peniel Avihail, 15 ára
Avraham David Moses, 16 ára
Yonatan Yitzhak Eldar, 16 ára
Yonadav Haim Hirschfeld, 19 ára
Roee Roth, 18 ára
Doron Meherete, 26 ára
ז״ל
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Gyðingdómur, Kynning | Breytt 8.3.2008 kl. 09:43 | Facebook
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.11.): 7
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 79
- Frá upphafi: 1352228
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 61
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Það má bæta því við að Líbýa hefur ekki neitunarvald í öryggisráðinu og málið var það að Líbýa vildi breyta fordæmingunni í tvöfalda fordæmingu; nefnilega LÍKA gegn miskunnarlausum árásum ísrael á palestínu. Það voru þrjú önnur ónafngreind lönd sem tóku afstöðu Líbýu á þessu máli og þar með var ekki fordæmingin samróma eins og tillagan gerði ráð fyrir.
Því má líka bæta við að BNA hefur ótal sinnum beitt neitunarvaldi í tillögum um fordæmingu á gjörðum Ísrael. Ekki það að Ísrael hafi nokkurn tíma látið sig samþykktir sameinuðu þjóðanna skipta máli. Þeim er skítsama, enda henta ekki samþykktir Ísrael.
Jonni, 7.3.2008 kl. 10:35
Ólíkt þér Vilhjálmur, þá fordæmi ég morðin og Gaza og ég fordæmi morðin sem áttu sér stað skólanum í gær.
Og í fyrsta skiptið er ég sammála þér, öryggisráðið er sirkus. Þér finnst það að sjálfsögðu aðeins sirkus því það komst ekki í gegn málefni sem fordæmdi Palestínumenn í þessari árás. En ef þú lýtur á söguna þá hafa Ísraelar ekkert nema grætt á ályktun öryggisráðsins og því getur þú bara ekki neitað. Jewish Library settu saman lista sem sýnir hve oft Ameríkaninn misnotaði neitunarvald sitt Ísrael í vil. Listann má nálgast hérna. (Nær frá 1972 - 2006)
Vesturlandabúar segja "Lýðræði, við viljum að þið setið lýðræði" Fólki í Palestínu er sammála og kýs sér flokk á alþingi. Þá segja Vesturlandabúar "Neinei, ekki svona lýðræði. Heldur lýðræði sem hentar okkur" og eftir það hófum við refsingar gagnvart Palestínumönnum fyrir það eitt að hafa "ranga" skoðun. Glæsilegt framtak!
Yousef Ingi Tamimi, 7.3.2008 kl. 11:16
Yousef bendir hér á hinn raunverulega skrípaleik öryggisráðsins, eins og hann hefur farið fram um alla tíð. Heimild Yousef ætti að vera að þínu skapi; Jewish Library.
Þetta er ekki skítkast og enginn áróður. Þetta er raunveruleikinn.
Ég vil biðja þig Vilhjálmur af gefnu tilefni að koma með málefnaleg svör og ekki fara í persónulegar árásir á þá sem skrifa færslur hér.
Jonni, 7.3.2008 kl. 11:26
Ég er afar þakklátur BNA og Bandaríkjamönnun fyrir að beita neitunarvaldi sínu eins oft og þeir hafa gert. Ef þeir hefðu ekki gert það, væri búið að eyða Ísraelsríki og Palestína væri enn fjarri því að verða ríki.
Neitunarvald BNA hefur margbjargað Palestínumönnum frá sjálfseyðileggingu.
Yousef, það er ekki lýðræði í neinu landi Íslams. Svo einfalt er það. Lýðræði er nokkuð vel skilgreind stærð, sem þú getur lesið þér til um í fjölda bóka eða bara með því að líta inn á Wikipedia. Lýðræði hefur fleiri möguleika og gerðir en alræðisríki, ráðstjórnarríki og trúarveldi.
Í löndum, þar sem menn geta átt á hættu að að missa höfuðið ef þeir teikna ákveðna hluti og persónur, þar sem æðstu lög, Sharía, byggja á helgri Bók, Kóraninum, sem vanvirðir önnur trúarbrögð og þjóðir, og þar sem hugtakið Jihaad getur fengið svo ógeðfellda meiningu, að ekki finnst annað eins á byggðu bóli, er og getur aldrei orðið lýðræði. Innbyrðis berjast múslímskar þjóðir eining á banaspjót. Mér þykir það afar sorglegt, en þetta er bláköld staðreynd.
Ég er ekki í vafa um að til eru Palestínumenn sem geta höndlað það sem við köllum lýðræði og ríki sem gyðingurinn Baruch Spinoza stakk upp á í trássi við trúarleiðtoga síns tíma (17. öld) en á undan sínum tíma. Heimsmynd spekinga eins og Voltaires, Rousseaus og t.d. Diderots um nútímaþjóðfélög eru örugglega þekkt meðal Palestínumanna. En ofsatrú eins og Hamas aðhyllist, öfgafullur Marxismi eins og PFLP gerir (og tilheyrandi tvískinnungsháttur) leiðir ekki til lýðræðis.
Í Ísrael er það óheillavænlegt ef trú fær meiri áhrif á þjóðfélagið þar en það hefur nú þegar. í Palestínu er Íslamisminn versti óvinurinn. Íslamisminn vill ekki bara banna múslímum að teikna ákveðin fyrirbæri. Íslamisminn vill banna öllum heiminum að teikna ákveðna hluti. Það stendur nefnilega ekki stafkrókur um það í Kóraninum sem bannar öðrum en múslímum að teikna Múhameð spámann.
Það verður ekkert friðarferli þegar hryðjuverkasamtök sem aðhyllast Íslamisma grasserar á Gaza.
Ef litið er á sorgarsögu palestínsku þjóðarinnar í heild sinni síðan 1948, vaknar spurningin: Vilja Palestínumenn nokkuð frið? Er þetta óréttmæt spurning? Hvað heldur þú, Yousef, að sjálfsmorðinginn í gær hafi viljað? FRIÐ?
Ef maður hafnar friðarviðræðum, hafnar friðarferlinu, hafnar tilvist Ísraelsríkis og hafnar að stöðva tilgangslausum árásum á Ísrael, eins og Hamas gerir, er maður ekki lýðræðissinni, og þaðan af síður friðarsinni.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 7.3.2008 kl. 13:29
Mér skilst að hér megi enginn tjá sig nema verandi sammála höfundi þannig að ég er farinn og læt skoðun mína á bullinu í ljós annarstaðar þar sem málfrelsi ríkir.
Georg P Sveinbjörnsson, 7.3.2008 kl. 14:58
Vilhjálmur, þú segir "Yousef, það er ekki lýðræði í neinu landi Íslams. Svo einfalt er það"
Tyrkland hefur verið lýðræðisríki síðan 1923.
Sema Erla Serdar, 7.3.2008 kl. 15:57
Ætlaði ekki að senda strax, en eins og ég sagði hefur Tyrkland verið lýðræðisríki frá árinu 1923, svo þessi yfirlýsing þín er röng!!
Sema Erla Serdar, 7.3.2008 kl. 15:58
Púkinn hefur nú almennt haldið sig frá umræðunni um Ísraelsríki og hernám þeirra, en það er athyglivert hversu gjörsamlega Ísraelsmenn virðast hafa tapað áróðursstríðinu.
Samúðin er einfaldlega ekki með Ísraelsmönnum lengur - það skiptir ekki máli hversu réttmæt afstaða þeirra um að þeir þurfi að verja hendur sínar er - þeim fer stöðugt fækkandi sem styðja þá.
Púkinn, 7.3.2008 kl. 17:02
Erla góða Erla, það er með semingi að ég svara þér. Þú átt það ekki skilið. En ég læt það þó flakka
Eitt er lýðveldi (republic) og annað lýðræði (democracy). Lýðveldið Türkiye var stofnað árið 1923. En í lýðveldi þar sem fyrsti forsetinn fékk titilinn Atatürk, er að mínu mati tæpast hægt að tala um eiginlegt lýðræði. Minnihlutahópar í Tyrklandi taka víst ekki undir með þér í lýðræðisskilgreiningunni.
Atatürk þýðir svona lauslega: Faðir Tyrkjanna eða Tyrkjapabbi. Ekki veit ég hvort Davíð Oddsson hafi haft í hyggju að láta kalla sig Íslandspabba, eða Frónkarl, en það hefði verið ljótt fyrir lýðræðið, ef það hefði gerst.
Í dag er lýðræðið svo sem svo í Tyrklandi. Mannréttindin eru algjörlega í lamasessi og minnihlutar landsins og ættmenn þeirra í nagrannaríkjum þurfa enn að berjast fyrir tilverurétti sínum.
Ég vona að þú þekkir betur sögu áa þinna á Íslandi en þú virðist þekkja sögu forfeðra þinna á Tyrklandi.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 7.3.2008 kl. 18:50
Vilhjálmur minn, þitt álit skiptir litlu... Tyrkland er lýðræðisríki sama hvað þér finnst...
Ég heiti Sema Erla, það er í það minnsta að kalla mann réttu nafni.
Þú ert síðan ekki að segja mér neitt nýtt varðandi lýðveldið Tyrkland sem þrátt fyrir ýmsa galla er lýðræðisríki, sættu þig við það.
Sema Erla Serdar, 7.3.2008 kl. 19:00
Púkó Púkason, eða hvað sem þú heitir. Þú ert ekki dómbær um eitt eða neitt varðandi vinsældir Ísraels og "áróðursstríðið".
Hryðjuverkaríki, sem nota morðóða bleika kanínu til að kenna börnum að fremja sjálfsmorð, og auglýsir sjálfa sig í hlutverki barnaníðinga sem spenna sprengjubelti á börn og unglinga, getur ekki lifað við miklar vinsældir. Þeir sem telja slíkan áróður merkilegan og heillast að slíku ríki, hljóta að vera meiri púkar en viti bornar mannverur.
Ríki og þjóð sem líkir sínu ástandi við örlög gyðinga í Evrópu á 20. öld en hatar, jafnhliða þeirri ímyndun sinni, gyðinga meira en allt og hefur lýst yfir vilja sínum til að útrýma þeim, og Ísraelsríki, er ekki traustvekjandi.
Sjáðu þetta áróðursstríð, er það kannski ekki dæmt til að tapast?
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 7.3.2008 kl. 19:05
Ef Tyrkir hætta að kúga Kúrda fara þeir að nálgast það að geta kallað sig lýðræðisríki, en áratugam saman eftir 1923 voru þeir kúgaðir. Brotin á þeim voru að vísu ekki sambærileg við meðferðina á Armeníumönnum 1915, en engu að síður af þeirri stærðargráðu að það er ekki hægt að tala um alvöru lýðræði í Tyrklandi.
Púkinn, 7.3.2008 kl. 19:06
Með ummælum mínum um áróðursstríð er ég ekki að lýsa minni afstöðu, heldur því að sé fréttaflutningur í mörgum löndum skoðaður er einfaldlega ljóst að samúðin með Ísraelsríki fer minnkandi.
Fyrir nokkrum áratugum hefði fáum dottið í hug að líkja Ísraelsríki við fasistaríki eða Suður-Afríku á tímum apartheid, en slíkar samlíkingar heyrast oftar og oftar í dag, samanber þær myndir sem þú bentir sjálfur á.
Þetta er það sem ég á við þegar ég segi að þeir hafi tapað áróðursstríðinu.... samúðin er að færast frá þeim yfir á íbúa hernumdu svæðanna.
Púkinn, 7.3.2008 kl. 19:12
Elsku púkinn minn, þú ert greinilega fæddur eftir að hippatímabilið var upp á sitt besta. Apartheid og Ísrael hafa verið tengd saman síðan á 7. áratugnum. Bæði á Íslandi og í hinu stóra, vonda útlandi.
Hernumdu svæðin hafa ávallt verið "gæludýr" vinstri manna.
Ísraelsríki er ekki með í vinsældakeppni við Hamas. Ísraelsríki berst fyrir tilvist sinni í heimi sem vill ríki gyðinga feigt, og reyndar margt annað. Gyðingar voru 2. flokks borgarar í mörgum þessara ríkja í aldanna rás. Ekkert hefur breyst.
Myndirnar, sem ég benti á, tengja morðingja gyðinga og þjóðríki Gyðinga á ógeðslegan hátt. En þær eru líka gerðar af fólki sem klæjar í fingurna að myrða gyðing. Það kalla ég Apartheid.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 7.3.2008 kl. 19:26
Púki, það getur vel verið að það sé deilumál hvers konar lýðræði er í Tyrklandi og hvernig það er starfandi, og ég ætla nú ekki að fara að breyta þessari umræðu í slíka, sérstaklega hér á þessari síðu.
Það breytir því ekki að Tyrklans er yfirlýst lýðræðisríki. Var einungis að leiðrétta þá staðhæfingu Vilhjálms um að ekkert ríki íslams sé lýðræðisríki.
Fékk hins vegar ekkert nema skítkast frá honum í staðinn, kemur reyndar ekki á óvart!
Sema Erla Serdar, 7.3.2008 kl. 19:26
Sema, þetta fann ég um nafnið þitt.
"It's a Turkish name. This name means: heaven; divine omen. Suitable only for girls. It is not so popular name."
Kannski er það þess vegna að ég fann það heldur ekki í Mannanafnaskrá Mannanafnanefndar.
"Sema er ekki á skrá yfir eiginnöfn stúlkna" sagði tölvan.
Láttu skrá það, áður en þú kastar þér yfir mig með fýlu og bannar mér að kalla þig hinu góða og fallega nafni Erla. Sema er líka undurfallegt nafn!
En Tyrkland er samt sem áður ekki neitt fyrirmyndalýðræði.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 7.3.2008 kl. 19:39
Þú ert nú meiri kexkakan Vilhjálmur !!!
Sema Erla Serdar, 7.3.2008 kl. 19:40
Ef þú lest aðeins betur það sem þú skrifar þá er Sema tyrkneskt nafn og því ekki að furða að það sé ekki á skrá hjá mannanafnanefnd, ekki að mér sé ekki drullusama.
Ég var ekkert að banna þér eitt eða neitt en ég efa að margir kalli þig Örn.
Sema Erla Serdar, 7.3.2008 kl. 19:46
Kexkakan Örn og Turkish delight Erla ættu nú bara að láta þetta gott heita í kvöld
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 7.3.2008 kl. 20:00
Heill og sæll, Vilhjálmur Örn og aðrir skrifarar !
Eins og nú er komið málum; sýnist mér, að heimsbyggðin þyrfti að koma sér saman um, hvar hægt væri að koma blessuðum Filisteunum (Palestínumönnum) fyrir, svo næðis mættu njóta, og gætu; hugsanlega, farið að láta af drápshyggju sinni, skelfilegri.
A.m.k., er ljóst, að Ísraelsmönnum, sem og þeim Filisteum , mun aldrei hlotnast að búa í sátt og samlyndi, nema;,............. þeim auðnaðist að kasta eingyðistrúnni, algerlega, sem og þeirri helkenningu, sem upprunnin er í Mekku, og nærsveitum, gott fólk.
Spurning; hvort ekki mætti finna Filisteunum gott jarðnæði, t.d., á einhverri lausri spildu, í Suður- Ameríku, hvar ekki væri byggð fyrir, en Gósenland nokkurt til viðveru. Mætti þá ætla, að forríkir frændur þeirra, við Persaflóann, kynnu að láta fé af hendi rakna, til öflugrar uppbyggingar þar, þeim til handa.
Kannski ofætlan; af minni hálfu, Vilhjálmur Örn, en reyna mætti þetta. Fáar raunhæfar lausnir aðrar, sýnist mér.
Má til; að leiðrétta Semu Erlu ! Tyrkland stefnir; því miður, hraðbyri í átt að ofríki klerka skratta þeirra, hverjir spila með Gul, og lið hans, þessi misserin. Óskandi væri; að tyrkneska hernum auðnaðist, að koma gildum Kemals Ataturk aftur, til þess veraldar vegar, sem þeir eiga fremur skilið, en dauða- og niðurrifs delluna frá Mekku.
Með beztu kveðjum, sem jafnan / Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 21:44
Leiðrétta hvað fyrirgefðu?
..annars er ég alveg sammála þér. Gul er það versta sem komið hefur fyrir tyrkneska ríkisstjórn í dágóðan tíma.
Sema Erla Serdar, 7.3.2008 kl. 21:51
Fjörið er alltaf í kringum þig Vilhjálmur Örn, og vinunum sem höndla ekki sannleikan fækkar.
Hræsnin og fyrirlitningin er yfirgengileg samkvæmt kommenti Björns Heiðdals hér á þessu bloggi vegna morðana.
Blessi þig, sem jafnan / G.H.
Gestur Halldórsson, 7.3.2008 kl. 23:32
Þakka þér innilega fyrir Gestur. Ég skoðaði gífuryrði Heiðdals og annarra, t.d. þetta, sem grætir mig, því þetta er skrifað af svo lítilli meðtilfinningu og sýnir að yfirlýstur náungakærleikurinn getur verið hræsni ein:
"Það er orðið löngu tímabært að við hættum að gera það sem Ísraelsmenn vilja að við gerum, það er að segja að vorkenna þeim fyrir það sem forfeður þeirra þurftu að líða í helförinni, og förum að líta raunsæjum augum á það sem þeir aðhafast í nútímanum, burtséð frá öllum ásökunum um gyðingahatur, sem þeim sem fylgja Ísrael að málum er svo gjarnt að skýla sér á bak við."
Fólk sem lifði Helförina af, fólk sem missti alla fjölskyldu sína, fólk sem var ofsótt í heimi arabanna hafa myndað ríkið Ísrael og býr þar enn, þótt margir reyni að koma þeim fyrir kattarnef. Þetta fólk og afkomendur þeirra, ættingjar þeirra víðsvegar um heim, sem og heiðvirt fólk um allan heim, sjá nauðsyn þess að Ísraelsmenn megi lifa í friði. Ísraelsmenn vilja frið við nágranna sína. En þeir fá ekki að vera í friði, því nágrannarnir hafa sífellt lýst því yfir síðan 1948 að þeir vilji ryðja Ísraelsríki á haf út.
Þessi góða kona, Greta, gerir sér ekki grein fyrir því að hún styður þetta hatur nágranna Ísraelsríkis, sem hefur sömu rót og byggir á sömu öfundinni og öðrum lágum kenndum og sem ullu Helför gyðinga í Evrópu.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 8.3.2008 kl. 09:28
Sæll Óskar Helgi, þetta með að flytja Palestínuþjóðina eitthvert langt í burtu líst mér illa á. Ég held að það myndi ekkert bæta málin. Hef reyndar aldrei hugleitt það og held að ég myndi byrja að styðja Palestínumenn ef það kæmi til tals.
Svona hugmyndir hafa verið áleitnar hjá þeim sem vildu gyðingana í burtu til Patagóníu, Úganda, Ameríku, Madagaskar, Síberíu, Alaska eða í Öskubakkann. Ég skrifaði ég um eina af þeim hugmyndum hér
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 8.3.2008 kl. 09:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.