23.2.2008 | 14:27
Vísindavefurinn svarar
Tvo menntskælinga langaði árið 2006 mjög mikið til að fræðast um uppruna og aldur orðsins gyðingur. Þeir sendu þess vegna spurningu um það til Vísindavefs HÍ.
Spurningunni var beint til Guðrúnar Kvarans prófessors, forstöðumanns Orðabókar Háskólans.
Guðrún greindi ekki frá heimildum fyrir notkun orðsins gyðingur, en hafði aftur á móti þessa skýringu fram að færa:
"Neikvæða merkingin í júði á líklegast rætur að rekja til þess að gyðingar sem stunduðu viðskipti víða um heim á síðari öldum, þóttu erfiðir viðfangs, nískir okurkarlar og efnuðust oft vel. Þetta litu aðrir hornauga og farið var að nota jew, jøde, júði í neikvæðum tón um kaupsýslumenn af gyðingaættum. Hin neikvæða merking sem Jude fékk í Þýskalandi á árunum milli stríða og í síðari heimsstyrjöldinni er af öðrum toga og var tímabundin. Hún náði yfir allt fólk af gyðingaættum, ekki aðeins kaupsýslumenn"
Ég hef áður séð fræðilegar strandsiglingar á Vísindavefnum, en þetta svar Guðrúnar Kvarans er eitt svæsnasta dæmið sem ég hef séð.
Hin neikvæða merking Jude, sem nasistar gáfu orðinu, lifir góðu lífi, meðal annars á Íslandi. Á Íslandi hefur orðinu gyðingur líka verið núið um nasir danskra kaupmanna sem illyrði, þó svo að þeir væru ekki hið minnsta gyðinglegir. Svo sér maður meira að segja nokkra kolruglaða afkomendur þessara dansk-holsteinsku ætta gagnrýna Ísrael með þeim rökum að þeir megi það vegna þess þeir séu af gyðingaættum.
Þegar 80% Austurríkismanna nútímans líkar ekki við gyðinga (Juden), er víst ekki mikið sem hefur breyst frá tímum Hitlers og þeirra sem heilluðust af honum. Þegar arabar og aðrir múslímar tala enn um Yahudi og tyrkir um Musavi sem asna, svín og apa og vilja útrýma þeim er ekkert nýtt undir sólinni. Löngu áður en orðin Jude, Juif eða Jew voru tengd okurkörlum, voru kirkjufeður, biskupar og páfar búnir að kjöldraga gyðinga, svína þá til og ljúga öllu illu upp á þá í nafni trúar sinnar og heilagrar kirkju.
Það er kannski ekki nema von að velkristinn prófessor orðabókar á Íslandi sýni fullkomið þekkingarleysi á menningarsögu álfu þeirrar sem hún býr í, þegar hún er á þeirri skoðun að notkun orðanna gyðingur og júði hafi mótast af því að gyðingar hafi þótt "erfiðir viðfangs, verið nískir okurkarlar sem efnuðust vel". "Aðrir litu gyðinga hornauga" fyrir þetta segir Guðrún Kvaran. En ætli einhverjir kristnir menn hafi ekki líka verið erfiðir viðfangs, nískir okurkarlar sem efnuðust vel. Get ég nefnt nokkrar alíslenskar ættir sem ættu þess vegna að vera gyðingar, þó þær séu nú fyrst og fremst komnar af hestaþjófum úr Húnavatnssýslu og hafi jafnvel í ættgarði sínum forystumenn í Flokki íslenskra Þjóðernissinna (nasista).
"Það stendur hér Moshe, að það eigi að drepa okkur vegna þess að við erum svo nísk"
Margir þeirra sem litu gyðinga hornauga voru haldnir sjúklegri öfund í þeirra garð. Það var kennd sem taldist til erfðasyndanna. Það hefur hins vegar alltaf farið ofsögum af auð gyðinga og alla jafna voru 95% gyðinga í löndum Evrópu mun fátækari en kristnir borgarar álfunnar. Flestir gyðingar í Póllandi á 20 öld voru undir fátækramörkum. Í Hollandi var prósentan mjög há upp úr aldamótunum 1900.
Hindranir sem lagðar voru í götu gyðinga af ríkjum og kirkju, ásamt hatri og ofsóknum eru skýringarnar á því hvernig fólk talar enn á ógeðfelldan hátt um gyðinga. Þær ofsóknir ásamt kór vinstri öfgamanna, sem í raun kalla á eyðingu Ísraelsríkis þótt þeir þykist tala um frið í Miðausturlönd, valda því að eins ágætt orð og gyðingur er orðið skammaryrði meðal unglinga í ofeyðslu- og allsnægtaþjóðfélaginu á Íslandi. Ekki hjálpar það þegar Háskóli Íslands getur ekki gefið svar við einföldum spurningum án þess að framreiða gamlar rasistaklisjur.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Menning og listir, Trúmál og siðferði, Vísindi og fræði | Breytt 29.2.2008 kl. 07:27 | Facebook
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.12.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 54
- Frá upphafi: 1352551
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 41
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Ég hef orðið var við að orðið "gyðingur" er notað sem neikvætt uppnefni um fólk.
Margir kirkjufeður voru haldnir miklu gyðingahatri, og auðvitað biskupar og páfar sem fylgdu í kjölfarið, að ógleymdum mönnum eins og Lúther. Þessir menn höfðu mikil áhrif á vestræna menningu.
Í dag eru hins vegar, sem betur fer, fjöldamargir kristnir menn miklir gyðinga og Ísraels vinir, og á ég þá sérstaklega við fólk sem kemur úr ákveðinni flóru kristinna safnaða.
Sindri Guðjónsson, 23.2.2008 kl. 15:59
Getur ekki verið að þessi 80% tala sé of há? (ss 80% Austurríkismanna sé illa við gyðinga) Hvaðan er hún?
Sindri Guðjónsson, 23.2.2008 kl. 22:22
Þetta var niðurstaða rannsóknar frá 1995 og 1997. Þetta var ekki mæling á gyðingahatri, heldur var spurningin til ákveðins fjölda einfaldlega: "hvernig líkar þig við gyðinga?" Það voru að mig minni eldri borgarar sem greindust með 80% óþol gegn gyðingum.
Spiegel í Þýskalandi gerði svo svipaða könnun í Þýskalandi sem sýndi svipaðar kenndir í vissum hlutum landsins. Speigel gaf út sér blað með öllum sínum niðurstöðum, mælingum og stöplaritum.
Aðrar rannsóknir eftir 1995 og 1997 sýna að aukningin hefur verið töluverð meðal þeirra Austurríkismanna á öllum aldir sem t.d. sögðu að gyðingar hefðu of mikil völd í heiminum. 25% sögu að þeir hefðu það árið 1995 og eftir 2000 var talan orðin 40 % Austurríkismanna.
Ekki myndi það furða mig að 90% Austurríkismanna skyldu vera ánægðir með að 80% samstarfsmanna Eichmanns voru Austurríkismenn.
Austurríkismenn hafa líka verið ólmir eftir því að rannsóknir sýndu að Danir væru meiri rasistar en þeir. En enn hefur Dönum ekki tekist að skjóta Austurríkismönnum ref fyrir rass.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 24.2.2008 kl. 00:16
Hin meintu völd gyðinga eru með ólíkindum í ljósi þess að þeir eru ekki nema 0,2% jarðabúa, eða tæpar 15 milljónir, ef mér skjátlast ekki.
Hvernig hafa þeir eiginlega mannskap til þess að stjórna öllum vestrænum stjórnmálaflokkum og fjármálafyrirtækjum og fjölmiðlum, og veðrinu, og öllu því mögulega og ómögulega sem þeir stjórna. Vilhjálmur, þekkir þú ekki fullt af mold ríkum gyðingum og valdamönnum sem borga þér fyrir að skrifa þetta blogg?
Ég lenti í því nýlega þegar ég var að rífast við 9/11 hryjuverkaárásar afneitara (þessir sem segja að USA stjórnin hafi sjálf skipulagt árásirnar á Bandaríkin 11. sept, og sprengt turnanna með dínamíts sprengjum), að hann sakaði mig um að vera að rökræða við hann, vegna þess að ég væri á launum til þess frá CIA!
Sindri Guðjónsson, 24.2.2008 kl. 00:46
Ætli mál gætu nú ekki farið að sjatna eitthvað í Danmörku, eftir að sósíalistar réttu út sáttahönd til ungmenna í uppreisnarhug og vilja fá þá til að vinna innan sinna raða, í stað þess að kveikja í bílum og gámum. Ef Dönum tækist nú líka með einhverjum ráðum að setja hömlur á Hizb ut-Tahrir gætu þeir farið að anda aðeins léttar og koma betur út í könnunum á útlendingahatri. - Er ekki allt í lagi að vera bjartsýnn?
Greta Björg Úlfsdóttir, 24.2.2008 kl. 01:18
Sindri, mikið væri það nú gott ef maður gæti fengið borgað fyrir allt það sem maður skrifar. En þá er líka oft farið að stjórna því sem maður skrifar.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 24.2.2008 kl. 10:31
Come on Greta. Heldur þú að það sé mikið útlendingahatur í Danmörku? Eða réttara sagt, heldur þú að það sé meira en á Íslandi eða t.d. í Austurríki? Þessar kannanir Evrópuráðsins, sem fjölmiðlar mistúlka í ofanálag, eru svo óvísindalegar að það tekur engu tali.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 24.2.2008 kl. 10:39
Ef orðið Gyðingur er Íslenskuvæðing orðsins Jude eða Yude þá kemur það svo best sem ég veit frá ríkinu Júdeu sem var gyðingaríki sem lá sunnan við Ísrael til forna. Mörkin lágu um það bil við Jeríkó og sat t.d. Betlehem innan ríkisins. Júdear, eða Júðar festist síðan við þá Semíta sem fylgdu trúnni á YHVH.
Ég skil ekki af hverju þetta þarf á einhvern hátt að blandast saman við kynþáttafordóma gagnvart gyðingum og þeirri staðreynd að þeir stunda hlutfallslega mikla verslun.
Það á sér líka skýringu þar sem Kristlingar bönnuðu gyðingum að eiga lönd en þurftu á þeim að halda til að stunda lánastarfsemi (sem Kristlingum var bannað að stunda). Þetta þýddi að gyðingar gátu einungis komist til efna í gegnum verslun eða lánastarfsemi og tókst vel til.
Er gyðingahatur opinber stefna Háskóla Íslands, eða bara áhugamál sumra starfsmanna þerrar stofnunar?
Upprétti Apinn, 24.2.2008 kl. 20:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.