10.6.2007 | 09:23
Siðferðisleg skylda Íslendinga?
Á miðöldum töldu menn það líka siðferðislega skyldu sína að tuska gyðinga til og einangra þá. Nú ætlar Ingibjörg Sólrún að fara að leika þann ljóta leik.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var vart búin að verma stól utanríkisráðherra meira en nokkra daga, þegar hún var farin að vasast í mikilvægasta málinu í utanríkisstefnu flokks sín. Hana langar, eins og forveranum, Valgerði Sverrisdóttur, að komast í fast samband við Hamas í Palestínu. Blessaðar konurnar vilja fylgja fordæmi Norðmanna, sem reyndar hafa ekkert gert fyrir Palestínumenn síðan þeir viðurkenndu Hamas annað en að senda peninga, sem notaðir eru til vopnaskaks og innbyrðis óaldar meðal Palestínumanna.
Oft les maður um skrítnar konur um allan heim, sem vilja giftast föngum á dauðaganginum, Death Row í BNA. Hvernig skilgreinir maður þá ráðherra sem vilja í samband við heilu hryðjuverkasamtökin? Ég er ekki sálfræðingur og ég hef því ekki klíníska skýringu á þessari áráttu kvenna taka málstað morðingja og það gjarnan fjöldamorðingja. Kannski er þetta "frumstætt" móðureðli. En ég hallast frekar að því að þetta sé stórfellt dómgreindarleysi.
Ég get ég sagt að ég hafi haft mikinn áhuga á, eða kunni góð deili á stjórnmálaferli Ingibjargar Sólrúnar, en ég tók eftir einu fyrir tæpum 15 árum síðan, sem sýndi mér, að Ingibjörg Sólrún hefur merkilega röksemdatækni og skoðanir á sögu Miðausturlanda.
Þá var hún þingmaður Kvennalistans sálugu. Hún ásakaði Ísraelsríki og stofnun Simon Wiesenthals fyrir ýmislegt ómerkilegt, þegar stofnun Símon Wiesenthals óskaði eftir því að sækja íslenskan mann til saka fyrir stríðsglæpi.
Eftir að Davíð Oddson hafði verið í opinberri heimsókn í Ísrael og Palestínu og hafði tekið á móti kröfu Símon Wiesenthals stofnunarinnar um að sækja íslenska stríðsglæpamanninn Eðvald Hinriksson til saka, var þetta haft eftir Ingibjörgu þann 26. febrúar 1993:
"Í rauninni er þessi ferð leiðindaferð, sem hefði betur aldrei verið farin," sagði hún. Um afhendingu bréfs Wiesenthal-stofnunarinnar sagði þingmaðurinn m.a. það skoðun sína að málið gæfi tilefni til að benda á að stjórnvöld Ísraelsríkis væru ekki sérstakir handhafar réttlætis þrátt fyrir hina skelfilegu helför gegn gyðingum í síðari heimstyrjöldinni. Rakti þingmaðurinn alvarleg mannréttindabrot sem hefðu fylgt Ísraelum allt frá stofnun þess og væru það hvað alvarlegust brot þeirra á Genfarsáttmálanum, sem Íslendingar væru aðilar að. Vitnaði hún m.a. í grein eftir Sölva Sölvason lögfræðing um kynningu á Genfarsáttmálanum þar sem hann segði m.a. að aðilaríki sáttmálans skuldbindi sig til að virða og tryggja helgi hans. Því bæri Íslendingum skylda til að einangra þá siðferðislega sem hefðu gerst brotlegir við sáttmálann".
Í sömu fréttaskýringu Morgunblaðsins var einnig rætt við Ólaf Ragnar Grímsson (núverandi forseta lýðveldisins Íslands), sem sýndi að hryðjuverkaleiðtoginn Abbas Mussawi (ö.n. Sayyed Abbas al Mussawi) leiðtoga Hezbullah, sem Ísraelsmenn felldu 16. febrúar 1992, var Ólafi mikill harmdauði.
Ári síðar hafði Ingibjörg Sólrún sett sig aðeins betur inn í málið (enda með próf í sagnfræði) og var hætt að kenna Ísraelsríki um kröfu Stofnunar Símons Wiesenthal. En í staðinn ásakaði hún stofnunina fyrir að vera pólitískt handbendi ísraelskra stjórnvalda og vera ótrúverðuga vegna þess að hún tæki ekki á stríðsglæpum Ísraelsmanna eins og hún tæki á stríðglæpum nasista.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir setti þannig ósmeik og ósmekklega samasemmerki á milli útrýmingarherferðar nasista á hendur gyðingum og stríðsátaka Ísraelsmanna við Palestínumenn og araba, sem sumir hverjir vilja Ísraelsríki afmáð af landakortum eins og kunnugt er.
Nú er Ingibjörg greinilega á leið til Palestínu sem utanríkisráðherra og væntanlega getur hún kennt Palestínumönnum ýmislegt um alþjóðasáttmála og mannréttindi. Hún gæti t.d. spurt hvernig stendur á því að Palestínumenn myrða sitt eigið fólk á þennan hátt án dóms og laga:
Æstur múgur ljósmyndar lík ungs, palestínsks manns sem nokkrum mínútum áður hafði verið tekin af lífi án dóms og laga af Palestínumönnum. Myndskeið af aftökunni og vanvirðingu múgsins á líki mannsins læt ég flakka hér Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og skoðanabræðrum og -systrum til upplýsingar.
En ef Ingibjörg Sólrún telur það enn skyldu Íslendinga að einangra Ísraelsríki siðferðilslega eins og hún ætlaði sér árið 1992, þegar í ljós kom að íslendingar hafði verið stríðsglæpamaður, er vert að mæla með því að Ísraelsríki hugsi sig tvisvar um áður en að á móti henni verður tekið.
Mæli ég með því að allir lesi þessa grein Ingibjargar, því hún veitir skilning á frelsisást og vináttuböndum þeim sem Ingibjörg Sólrún vill eiga við hryðjuverkasamtök.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Kynning, Menning og listir, Trúmál og siðferði, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 09:30 | Facebook
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 2
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 1352575
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 38
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Man nokkur eftir fréttamyndinni af þeim Halldóri Ásgrímssyni og Yasser Arafat, þegar þeir kysstust ! Er hægt að hugsa sér nokkur ógeðslegra og hefur nokkur þjóðarleiðtogi orðið sér jafn rækilega til skammar ? Hér er skemmtilegur endurflutningur Spaugstofunnar á þessum atburði: Halldór og Arafat
Ingibjörg Sólrún á örugglega eftir að verða þjóðinni til skammar, en á hún eftir að ganga jafn langt og Halldór í þjónkun við múslima ?
Loftur Altice Þorsteinsson, 10.6.2007 kl. 12:16
Þakka ykkur fyrir heiðursmenn. Ég kvitta fyrir Spaugstofuskemmtunina með sögu af myntfræði Steingríms Hermannssonar. För hans til Túnis árið 1990 var einnig farin í miklu dómgreindarleysi!
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 10.6.2007 kl. 17:32
það er gengi innan SF sem er að þrýsta á þetta, gengi sem tengt er Ísl Palest, Þórunn Sv hefur löngum eldað grátt silfur við Ísrael. Merkilegt hvað menn eru gjarnir á að horfa ekki á verk Arabana, td í Shabra og shattilla þegar Sýrlendingar stóðu á bakvið fjöldamorð þar aldrei minnst á það , eða fjöldamorð palestinumanna á kristnum Líbanon
það sem alvarlega er að hamas og fatha eru í stöðugum vígaferlum í Gaza , þannig hvað ætla þau að styðja????????????????????
http://www.liveleak.com/view?i=9fa_1181326879 múslímar í evrópu virða kristni, tja nema í kosovo
ehud (IP-tala skráð) 10.6.2007 kl. 17:32
Inga sól ....úúff ég ætla ekki að eyða orðum í það kvendi.
Linda, 10.6.2007 kl. 18:27
Þvílík steypa kemur frá þér Linda. Það voru ÍSRAELSMENN en ekki Arabar, sem stóðu fyrir fjöldamorðunum í Shabra og Shattilla flólttamannabúðunum. Þeir notuðu kristna Falangista til að aðstoða sig við þetta og láta líta svo út fyrir að það hefðu verið þeir, sem stóðu fyrir þessu. Það voru Ísraelar, semhleyptu vel vopnuðum Falangistunum inn í flóttamannabúðirnar meðan þeir umkringdu þær og sáu til þess að engin gætu sloppið undan fjöldamorðingjunum. Þeir lýstu búðirnar upp þær tvær nætur, sem fjöldamorðin stóðu yfir með blysum svo morðingjarnir gætu séð til verka. Margt bendir til þess að þeir hafi séð um að flytja lík út úr flóttamannabúðunum og láta þau hverfa.
Sumir þeirra, sem lifðu það af að vera skotnir hafa sagt að sumir fjöldamorðingjanna í búningum Falangista hafi talað saman á Hebreskuj. Vitnisburður vestrænna hjálparstarrsmanna á vetvangi bendir einnit til sektar Ísraela. Til dæmis vitnaði Norskur hjálparstarfsmaður að það hafi verið búið að stilla honum upp til aftöku ásamt nokkrum fjölda Palestínumanna þegar ísraelskur hershöfðingi kom og sagði við morðingjana að þeir mættu ekki taka vestræna menn af lífi. Þá var Norðmaðurinn fjarlægður og aftökur á Palestínumönnum hélt áfram.
Þarna voru um þrjú þúsund manns, aðallega konur börn og gamalmenni, strádrepin af Ísraelum og kristnum Falangistum. Vopnfærir karlmenn úr flóttamannabúðunum höfðu verið þvingaðir til að fara til Túnis. Þetta er því stríðsglæpur/hryðjuverk af svipaðri stærðargráðu og árásirnar á tvíburaturnana í Bandríkjunum og fórnarmömbin jafn sakalus. Það er því blettur á Sameinuðu þjóðunum að hafa ekki stofnað stríðsglæpadómstól vegna þessa glæps eins og margra annarra. Það er meiri háttar hræsni að stofna stríðsglæpadómstól vegna morðsins á Hariri en ekki vegna þessara fjöldamorða. Það virðist hins vegar vera með þetta eins og svo margt annað að það er ekki umfang glæpsins, sem skiptir máli heldur hver drepur hvern.
Hvað varðar grein Ingibjargar Sólrúnar þá er hún vel skfiruð og kemur að kjarana málsins. Með því að vera málpípa ísraelskra stríðsglæpamanna minnkar trúverðugleiki hennar í eltingaleik við stríðsglæpamenn nasista verulega. Ýmsir ráðamenn Ísraels í gegnum tíðina eiga síst minna erindi fyrir stríðsglæpadómstól og sumir þeirra, sem Simon Visental stofnunin er að eltast við. Þar ber strax á góma illmennið og fjöldamorðingin Arile Sharon. Því miður virðist ætla að verða það sama með hann og Idi Amin. Hann mun aldrei þurfa að gjalda illvirkja sinna.
Ef Haldór og Steingrímur hafa sýnt dómgreindarleysi við það að tala við Jasser Arafat þá hafa þeir, sem hafa talað við Ariel Sharon og aðra stríðsglæpamenn hins grimma hernámsríkis Ísrael sýnt enn meira dómgreindarleysi. Við hliðina á mönnum eins og Ariel Sharon er Jasser Arafat eins og sunnudagaskóladrengur.
Sigurður M Grétarsson, 21.6.2007 kl. 21:20
Sigurður, af hverju setur þú þig ekki betur inn í efniviðinn áður en þú skrifar um vinaþjóð þína.
"Illmennið Sharon" endaði reyndar búsetu gyðinga á Gaza. Sjáðu svo hvað gerðist Sigurður. Sjáðu hvað gerist þar nú. Þú virðist styðja hvaða skálmöld sem er og þú ert samt yfirlýstur búddisti sá ég einhvers staðar.
Ásakanir þínar í garð leiðtoga Ísraels eru út í hött og þú hefur greinilega lesið allt of mörg "lygarit" Palestínumanna.
Það eru allt of margir staðlausir stafir í þessum pistli þínum. T.d. um Norðmanninn, sem á að hafa verið stillt upp til aftöku. Þú ert væntanlega að tala um blaðamanninn Flagstad, sem ekki telst til trúverðugustu manna. Vitnin sem heyrðu hebresku talaða í flóttamannabúðunum er hreinn tilbúningur.
Mikil gleði braust hins vegar út þegar 12000 ofbeldisseggir Palestínumanna sigldu til Túnis og var ekið til Sýrlands, enda höfðu þeir í áraraðir herjað á aðra íbúa Líbanons, sem ekki vildu vera undir járnhæl ofbeldisríkisins Sýrlands. Ofbeldisverkin í Sabra og Shatila voru verk kristins hóps sem var búinn að fá nóg af ofbeldi Palestínumanna, en valdi að berjast þegar meginþorri "vopnfærra" Palestínumanna hafði verið fylgt út úr Beirút af Bandaríkjaher og Frökkum. Hver vegna kennir þú ekki BNA og Frakklandi um afdrif fórnarlambanna í Sabra og Shatila?
Nú er kynslóðin sem send var frá Beirút til Túnis og börn þeirra að berjast innbyrðis á Gaza. Það er, samkvæmt þínum bókum, Sigðurður, auðvitað allt Sharon að kenna, sem afhenti þeim landið í fyrra.
Gleymdu svo ekki, Sigurður, að Jórdanir slátruðu bræðrum sínum "svarta septemberdaga" árið 1970 og héldu slátruninni áfram fram á næsta ár. 7000-8000 Palestínumenn féllu í valinn, drepnir af "bræðrum" sínum, sem líka voru búnir að fá nóg af yfirgangi þeirra og ribbaldahætti í Jórdaníu. Ertu búinn að gleyma því að Palestínumenn reyndu að steypa Hussein konungi af stóli? Svar Husseins var hálfgerð "útrýmingarherferð" sem þú getur ekki kennt Ísraelsmönnum og gyðingum um. En þið sem eru á mála hjá Hamas, viljið gjarna gleyma Svarta September!!
Hjá ykkur er ALLT Ísraelsmönnum og gyðingum að kenna, og þið eru svo óprúttin, að líkja Ísrael við það ríki sem skipulega reyndi að útrýma gyðingum fyrir 60 árum síðan. Gyðingum sjálfum er jafnvel kennt um Helförina. Í heimi "sameinaðra" araba er Gyðingum líka kennt um Twin Towers hryðjuverkið, skyldi það hafa farið fram hjá þér. Stuðningur þinn við hryðjuverk er alvarlegur og þú ert komin nærri því að vanvirða landslög með stuðningi þínum við yfirlýst hryðjuverasamtök.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.6.2007 kl. 08:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.