16.2.2012 | 09:57
ESB-Stjórnin, vélarvana og aflalaus með stolinn kvóta
Forsætisráðherra fór ekki á Viðskiptaþing. Er nokkur þörf á því? Þar stjórna sjóræningjar á staurfótum sem hjálpuðu dyggilega til við að setja þjóðina á hausinn. Einn þeirra vel stæðu vill ólmur fá sér evrustoð svo hann fari ekki höllum fæti í verðbréfahöllinni í Kaupmannahöfn. Þeir ríku vilja evru í stað þess á ganga á síðustu aurunum á krónustubbunum. Þarf forsætisráðherrann nokkuð að fara á Viðskiptaþing meðan viðskiptajöfrar gera sér ekki grein fyrir því hvað evran er?
Steini gamli sjóari, drukkinn í landi, er greinilega ýmsu vanur. Það er orðið aðal viðkvæði hans í hvert skipti sem mótbára skellur á skútunni leku. Hann ætlar sér þó ekki að fara í land þótt að þjófnaðarlög messadrengsins Árna Páls prestssonar hafi verið drekkt í Hæstarétti. Fyrr kaffærði Steini Hæstarétti - já og haldið svo kjafti.
Akfeitur yfir- og utanríkisbátsmaður, sem rær í því alla daga að auka hag næstfeitustu þjóðar heims (og sjálfs síns), vill nú bjarga hungrandi börnum heims. Góðhjarta er hann undir öllu spikinu, enda ráðherra í ekta norrænu velferðaríki. Þetta getur hann karlinn meðan hann stefnir að því að fá fleiri kínversk veitingahús upp á öræfi og að lifa skriffinnskusníkjulífi í ESB, þar sem litlu, grísku börnin svelta. Það verða hvorki soltnu börnin í Langtiburtistan né þau grísku sem fá íslenskan fiskinn, þegar boðið verður upp Ísland í ESB.
Meðan maður er í skipafréttunum, er gott að gæta að þeim gömlu sem ættu að vera á Hrafnistu, en eru að skellast í sólarlandaferðir með Heimsferðum. Æi já, aftur er rafmangslaust í tjaldinu hjá Imbu í Kabúl. Tímarnir voru betri hér áður fyrr hjá henni og öðrum. Eins og einn vinur hennar sagði Kosningar fáið þið, en fyrst mun ég drepa ykkur". Ætli það verði örlög Íslendinga, þeirra sem ekki verða flúnir til Noregs eftir auglýsingaherferð RÚV? Margir eru þegar dauðir úr leiðindum vegna núverandi áhafnar Stjórnarskútunnar, og sumir meðlimið áhafnarinnar viðast vera nær dauða en lífi.
Ég frétti af stjórnlausu skipi á reki í gærkvöld. Ætli það hafi verið strandhöggsskipið ESB-Stjórnin, vélarvana og aflalaust með stolinn kvóta og slitna nót?
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Óstjórn | Breytt s.d. kl. 10:39 | Facebook
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 80
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 51
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Góður. Sammála þér með þessa massívu gyllingu á útflutningi til Noregs sem RÚV er að gera að draumalandi íslendinga. Hvað er í gangi, þetta er bæði Sjónvarpinu og rás2.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.2.2012 kl. 13:31
Vanþekking og heimalningsháttur. Greinilega er miklu dýrara að búa í Noregi, og ef fólk hefur ekki vinnu er þetta gífurlegt basl. Fjölskyldan sem RÚV fylgdi til Noregs var greinilega komin í lélega íbúð, helmingi minni og helmingi dýrari en húsið sem þau leigðu og yfirgáfu á Íslandi. Atvinnumissir hjónanna (voru þau ekki bæði atvinnulaus?=neyddi auðvitað fjölskylduna sem heimsótt var úr landi, en lífið í Noregi verður ekkert betra en á Íslandi.
Það ríkir einhvers konar meinloka á Íslandi um að allt sé betra úti í hinum heimi. Það er hvergi betra að vera nema á Íslandi - fyrir Íslendinga. Þrátt fyrir ónýta ríkisstjórn, eru fáir staðir betri að lifa í en á Íslandi. Íslendingar eru alltaf að miða við lífernið fyrir hrun. Það var ekkert að marka og það kemur ekkert aftur - hvorki með ESB né öðrum gjaldmiðlum en krónunni.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 16.2.2012 kl. 14:15
Frúin var með vinnu. En mikið rétt, það er einfaldlega ekkert betra að lifa annarsstaðar bara öðruvísi. Til dæmis veit ég að fólk sem býr í blogg situr fyrir framan sjónvarpið í úlpu og með vetlinga vegna kulda. Dýrt að kynda og sennilega ekki gott að vera asmaveikur því einhver herbergi eru upphituð með timbri. Veit líka um aðstöðu í Austurríki þar er líka kynnt með timbri allan veturinn til að hita húsin því það er svo dýrt að kaupa gas og olíu.
Þetta er eitthvað sem við þekkjum ekki, og við þurfum ekki að bíða í klukkutíma eftir að komast í bað eftir að hafa þurft að kveikja á timburkyndingu í kjallarnanum. En auðvitað þarf fólk sem búið er að taka sig upp og flytja að bera sig vel.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.2.2012 kl. 14:54
Svo kunna íslendingar auðvitað ekki að höggva í eldinn og safna eldiviðnum fyrir veturinn. Hvar sem farið er um Evrópu í sumarlok, sjást fjallháir eldiviðarhlaðar í bakgörðunum.
Merkilegt nokk, hér uppi á Íslandi þurfum við að greiða sambærilegan kolefnisskatt og meginlandsbúar þótt við brennum aldrei spreki.
Þetta hljómar auðvitað eins og útúrdúr - en er það ekki í raun. Hver samþykkti íslenska kolefniskvótann í Kaupmannahöfn annar en núverandi umhverfisráðherra?
Kolbrún Hilmars, 18.2.2012 kl. 16:23
Tek undir þetta Kolbrún vegna þess að ég hef séð þetta á mínu flandri um Evrópu alla leið frá Eistlandi niður alla EVrópu allt til Serbíu. Og allir kynda með timbri meirihluta vetrar, og það liggur reykur yfir bæði þorpum og bæjum frá 4 á daginn langt fram á kvöld allstaðar.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.2.2012 kl. 18:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.