Leita í fréttum mbl.is

Eurovision-hatur

 

Lafhræddur 24. vetra gyðingadrengur frá Tyrklandi, Can Bonomo, mun syngja fyrir hönd Tyrklands í Eurovision í Baku. Can Bonomo vill ekkert tala um gyðinglegan uppruna sinn, gyðingafordóma í Tyrklandi eða neitt það sem varðar gyðingdóm.  Fjölmiðlar fá ekkert upp úr honum um það. Trúarleg ofstækisblað í Tyrkland og gyðingahatarar meðal bloggara ásökuðu Bonomo fyrir að vera útsendara frímúrara og síonista. 

Í sjónvarpsþættinum Aksam í Tyrklandi var gefið í skyn að hann að fólk héldi að hann hefði verið valinn vegna þessa að Tyrkland vildi hafa betri sambönd við ísraelska "lobbyhópa".  Þetta hræddi Can Bonomo, sem sagðist syngja fyrir hönd Tyrklands sem Tyrki og vildi ekkert frekar ræða um trú sína, minnihlutahópa eða önnur gyðingamál. Menn hafa verið drepnir fyrir minna í þeim heimshluta sem hann býr í. Sjá frekar hér.

Ég veit nú ekki hvort Bonomo geti unnið með lagi sínu og rödd, en mér finnst lagið svo sem ágætt. Einhverjum stelpum og strákum þykir Can þessi líklega nógu sætur til að gefa honum stig. En nú er svo komið að það eru hommar og Tyrkir sem mest ganga upp í Eurovision.

Mér þykja þó fallegri fornir söngvar frá fæðingarborg Can Bonomos, borginni Izmir (Esmirna, Smyrna), þar sem söngvar á gamalli gyðingaspænsku, ladino, og grísku hafa verið sungnir í 500 ár og gætu alveg eins vel unnið í dag í Eurovision, sem er orðið frekar þreytt fyrirbæri, ekki satt Páll Óskar?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband