Leita í fréttum mbl.is

Gagnaugað á Árna Þór - Samsæriskenning

Eggehart
 

Eftir hina ósvífnu eggjahríð sem lenti á Árna Þór Sigurðssyni þann 9/30 2011 sl. hef ég hugsað mikið um eggið sem lenti á höfði þingmannsins, og reyndar líka höfuðið á Árna. Ég hef sannast sagna hugsað um höfuðið á Árna á hverjum degi í fríi mínu í Berlín, sérstaklega þegar ég var í Austur-Berlín. Nú er ég búinn að komast að niðurstöðu í málinu.

Menn mega kalla þetta samsæriskenningu, en ég tel þetta vera atriði sem menn verða að spyrja sjálfa sig út í. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu, að Árni hafi "feikað" lendingarstað eggsins til að gera meira úr málinu. Gagnaugað er hættulegri staður en aðrir á höfði manna, þegar hlutir eins og egg lenda þar eftir flugferð.

Ef skoðaðar eru myndir af því þegar eggið hæfði Árna og hvar Árni heldur um meiddið, þá er greinilegt er að Árni heldur ekki um gagnaugað og að eggið lendir ekki á gagnauganu. En hann sagði sjálfur í fréttum að eggið hefði hæft hann í gagnaugað. Hvernig stendur á þessu? Hefur eggið valdið heilaskemmdum í Árna? Er myndin hér að ofan fölsun? Var einhver úr vinstri grænum sem henti egginu? Það er mafíulykt af þessu.

Eins og sumir á vinstri vængnum velta vöngum og gagnaugum yfir því hver stóð á bak við 9/11 árásina, leyfi ég mér að setja fram þá ósvífnu tilgátu, (með aðstoð sönnunargagns), að Árni hafi ekki fengið eggið í gangaugað.

Árni Þór Sigurðsson þingmaður Vinstri grænna segir nú að  mögulega beri að endurskoða hvernig þingsetning fari fram í ljósi þess mikla ófriðar sem skapast hefur á Austurvelli við síðustu þingsetningar. Árni segir: „Menn eru hugsi yfir þessu. Þetta er hluti af okkar þingræðishefð, þessi athöfn þegar gengið er inn í Dómkirkjuna, en það kæmi mér ekki á óvart ef menn færu að hugsa þingsetninguna upp á nýtt,"

Ég verð fyrir mína parta að leggja til að Árni Þór Sigurðsson fái sér hjálm næst þegar hann trítlar úr Alþingishúsinu yfir í Dómkirkjuna, þessi sannkristni maður, sem greinilega skilur ekki, að "hinn mikli ófriður sem skapast hefur" er m.a. honum að kenna. Egg eru þakkir fólksins, ekki lófaklapp.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ekki bara ásjónan sem er skemmd, heldur einnig sjálfsímyndin. Hin heillega mynd af samfélagi ábyrgra einstaklinga sem sýndu hver öðrum lágmarks virðingu þó að á reyndi er rofin. Hvers konar þjóð erum við? Þjóð sem elur af sér stjórnlausa einstaklinga sem efna til múgæsings og ofbeldis gegn stjórnvöldum og lögreglu? Er sjálfsvirðingin farin? Gætir fólk ekki hvors annars lengur, að það sleppi sér ekki af reiði, skemmdarverkum og ofbeldisverkum? Það sást í dag að eggjakast er ekki meinlaus iðja. Það leið yfir Árna Þór Sigurðsson þingmann Vg eftir að hann fékk egg í gagnaugað. Manneskja sem fellur í götuna í yfirliði getur meiðst mjög illa og jafnvel hálsbrotnað og lamast, ef óheppin. Þetta er ekki litakúlustríð á leiksvæði! Reyndi enginn meðal mótmælenda að stoppa þetta?

gangleri (IP-tala skráð) 7.10.2011 kl. 15:48

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Það leið aldrei ekki yfir Árna Þór, Ættleri! Það er til læknisfræðileg skilgreining á yfirliði. Í þessu tilfelli uppfyllti Árni það ekki.

Hvers konar þjóð, spyrð þú? Ja, sama þjóðin sem hefur skrimt við als kyns aðstæður, en mestmegnis við hor og seyru gegnum aldirnar. Þjóð sem er búinn að fá nóg af herrum, sem eru puntudúkkur eins og Árni Þór, sem á yngri árum hyllti þjóðarmorð Stalíns og Maós og sem nú situr á Alþingi segir fólki að halda kjafti.

Skólabróðir minn í MH, Árni Þór, var aldrei maður fólksins eða alþýðunnar, og sosíalimi hans náði aðeins niður í eigið launaumslag.

Að örlögin réðu því að egg búrhænu lenti á litlum haus Árna, er það sem á íslensku er kölluð óheppni. Alveg eins óheppni sú, er  Íslendingar þurfa að horfa upp á fólk eins og Árna berjast meira fyrir hryðjuverkalið í "Palestínu" en Íslendinga sjálfa.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 7.10.2011 kl. 17:14

3 Smámynd: Vilhjálmur Eyþórsson

Ég er eiginlega sammála báðum, sem hér hafa skrifað. Árásir á Alþingi eiga ekki að líðast, en jafnframt blundar í mér Þórðargleðin. Þetta var nefnilega VG- maður, gamalgróðinn liðsmaður alræðis og gúlags samhliða „lýðræðis“ og „mannréttinda“- blaðri og ákafur stuðningsmaður látanna, sem kölluð eru því fáránlega nafni „búsáhaldabyltingin“. Hér kom vel á vondan. Og hvað sagði ekki kerlingin: „Oft veltir lítið egg þungum þingmanni“.

Vilhjálmur Eyþórsson, 7.10.2011 kl. 21:22

4 Smámynd: Rauða Ljónið

Þetta er nú meira bull í ykkur Villunum tveim, gagnauga á VG er stærra en á venjulega fólki lífræðið segir það, þunnur heili þunn höfuðkúpa og það sé enginn rökhugsun þar að baki bara eins og blöðkurnar á enska dráttarklárnum beint áfram og beint í fenið.

Rauða Ljónið, 7.10.2011 kl. 23:24

5 identicon

Já, maður vissi að hlutirnir færast til í höfði Árna Þórs en þegar gagnaugað er komið upp á miðjan skalla þá er um stökkbreytingu að ræða. það er uppá við á hausnum á meðan Árni hefur tekið þátt í að stökkbreyta lífskjörunum niður á við.

Menn eiga samt að hætta að henda fjöreggjum í vinstriafturhaldið og taka upp góðan skyrhræring að hætti Helga Hóseasonar, þá þurfa menn ekki að taka tillit til færanlegra gagnauga á þessum nýju homo horrorbilis, alþýðuvinunum miklu.

Sveinn Úlfarsson (IP-tala skráð) 8.10.2011 kl. 06:21

6 identicon

já flottur þetta er gaman að lesa.

gisli (IP-tala skráð) 8.10.2011 kl. 09:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband