18.9.2010 | 04:27
Vinur minn er gyðingahatari
... og hann telur að Helförin sé tómt svindl og gyðingar séu versta og hættulegasta fólk í heimi.
Nei, lesendur góðir, þannig fólk telst vitaskuld ekki til vina minna. Slíka vini á hins vegar maður sem sagður er vera talsmaður Menningarseturs Múslíma á Íslandi, sem eru skráð trúarsamtök á Íslandi, sem nýlega hafa keypt hús undir menningarmiðstöð sína og trúariðkanir fyrir fé frá erlendum fjárfestum. Menningarsetur Múslíma er stundum kallað Menningarmiðstöð Múslíma.
Ég greindi nýverið í færslu frá þeim sem standa á bak við kaupin á Ýmishúsinu í Öskjuhlíð og tengslum þeirra við öfgasamtök í Sádi Arabíu. Slík samtök eru að mínu mati hundrað sinnum hættulegri en einfætti hnefaleikamaðurinn sem setti allt á annan endann í Danmörku hér um daginn.
Karim Askari, sem kynntur hefur verið til sögunnar sem talsmaður þeirra fjárfesta, sem setja fjármagn í menningarsetrið í Ýmishúsinu, greinir á Facebook-síðu sinni hvaða boðskap honum líkar. Honum líkar t.d. við marokkanska öfgamanninn Abdessalem Yassine, sem hatast út í gyðinga í ritum sínum og yfirlýsingum og her helfararafneitari. Sjá t.d. þessa grein: Spurningin sem vaknar, er hvort Askari og aðrir í Menningarmiðstöð Múslíma á Íslandi hati gyðinga eins mikið og Yassine? Ef svo er, höfum við vandamál á Íslandi. Ef trú sú sem menningarmiðstöð múslíma á Íslandi ætlar að boða er gegnsýrð af gyðingahatri, verður að fara fram á að þetta menningarsetur við rætur Öskjuhlíðar verði undir eftirliti yfirvalda sem komi í veg fyrir að öfgar, hatur og mannréttindabrot verði framin í nafni trúarbragða á Íslandi.
Abdessalem Yassine hefur m.a. sagt: The Jews are the enemy incarnate. They are intimately linked to many of the evils of the world from Morocco, to Palestine, to Western imperialism. The Jew personifies and exemplifies the very psychology of modern man, who bears responsibility for the abject state of the world and the Muslims.
Við höfum nýverið orðið vitni að því að fólk fer hamförum yfir biskupum og prestum, bæði lúterskum og kaþólskum, sem ekki skildu að þeir höfðu ekki heilagan rétt til að leggjast á eða ganga í skrokk á ungviðinu. En hvar eru siðapostularnir og trukkafemínistarnir, sem vart geta haldið vatni yfir ógeðslegheitum trúarbragða og sem segja sig úr kirkjunni og affermast vegna viðbjóðs, nú, þegar í ljós kemur að talsmaður nýrra eingyðistrúarbragða á Íslandi aðhyllast trúarleiðtoga sem eru annálaðir fyrir gyðingahatur og önnur mannréttindabrot? Hvar er viðbjóður ykkar, betri flokkur sannheilagra á Íslandi, þegar ljóst er orðið að talsmaður nýrra samtaka múslíma á Íslandi aðhyllist lærdóm öfgapresta sem spúa eldi og brennisteini, svo ekki sé talað um gyðingahatri og hatri á menningargildum Vesturlanda? Hvar eruð þið, þegar slíkt svínarí kemur í ljós, þið háheilögu siðvandarar hins stýfða vinstri vængs? Stafar þögn ykkar af því að þið eru samreiðarmenn öfgaíslams? Það held ég nefnilega.
Ætla íslensk stjórnvöld að sitja og láta það afskiptalaust, að umboðsmenn öfgasamtaka og menn sem aðhyllast kenningar kynþáttahatara komi að stofnun trúarmiðstöðva Íslandi? Er það meira við hæfi en prestar sem nauðga í skjóli þjóðkirkjunnar inni í kompu eða á bak við stól Páfans í Róm? Hvað segir háttvirt Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið ?
Ég spyr hér með Ögmund Jónasson mannréttindaráðherra, sem fær afrit af færslu þessari í nýja ráðuneytið sitt kennt við mannréttindi. Ætlar Ögmundur að skjóta skollaeyrum við starfssemi öfgasamtaka á Íslandi og láta það viðgangast, að talsmaður skráðra trúarbragða á Íslandi mæli með öfgaprestum eins og þeim sem ég greindi frá hér eða honum Abdessalem Yassine? Telur mannréttindaráðherra, að það séu mannréttindi að hatast út í gyðinga og gera lítið úr réttindum kvenna? Hvað segir ráðherrann? Hann er verndari mannréttinda. Hann verður að segja eitthvað og getur ekki beðið með það þangað til að hann er kominn í ESB draumlandið með meðreiðarsveinum sínum í ríkisstjórninni, því þar taka menn ekki á hlutunum með þögninni.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Mannréttindi, Trúmál, Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 05:05 | Facebook
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 80
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 51
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Sæll.
Gott hjá þér að vekja athygli á þessu máli. Íslam er orðið mikið vandamál í Evrópu og vegna fjölda múslima þar hafa þeir orðið veruleg ítök í stjórnmálum þar. Bókin "Íslamistar og naívistar" er afar þörf lesning hverjum þeim sem vill vita hvað hann talar um þegar kemur að málefnum múslima í Evrópu. Mark Gabriel hefur einnig skrifað góðar bækur um Íslam enda fyrrum múslimi. Fólk ætti að lesa sér til um þetta mikilvæga málefni enda fengu vinir okkar Danir að reyna það á eigin skinni að skoðanafrelsi og Íslam fara illa saman.
Ég tel raunar að fyrir því megi færa ýmis rök að flokka beri Íslam sem pólitísk haturssamtök en ekki trúarbrögð.
Ef ég tæki mig nú til og stofnaði trúarbrögð sem tilbiðja guðinn Gos og meðal kennisetninga þar er að leyfilegt sé að drepa þá sem ekki lúta Gos, konur eigi að sitja og standa eins og mér finnst, ekki megi gagnrýna Gos, eina örugga leiðin inn í paradís Gos sé að drepa vantrúaða, höggva skuli hendur af þeim sem stela, þeir sem leyfa sér að halda framhjá skuli drepnir, skylda sé meðal fylgjenda Gos að fara í heilagt stríð telji trúarrit okkar (sem voru "opinberuð" mér) að einhverjir séu að móðga okkur, karlar megi giftast nokkrum konum, ef fylgjendur deyja í heilögu stríði gegn vantrúuðum komist þeir í paradís og geti notið samvista margra (70) hreinna meyja.
Einhverjum finnst þetta kannski barnalegt en hliðstæðurnar eru sláandi eigi að síður.
Í súru 4:89 er múslimum sagt að drepa þá sem hafna íslam. Einnig sjá allir sem vilja að vestræn gildi og Íslam fara ekki saman.
Heldur einhver að það sé tilviljun, slys, óhapp eða vegna illgirni vesturlanda að staða mannréttinda, vísinda og lista er ekki upp á marga fiska í íslömskum ríkjum?
Stefna íslam er að ráða öllum heiminum, í íslam kemur það skýrt fram að eina raunverulega valdið kemur frá Allah (súra 5:44) og þess vegna eru trúarbrögð og stjórnmál tvær hliðar á sama pening í íslam.
Fáfræði fólks og vanþekking á þeirri hættu sem nú steðjar að vesturlöndum er sorgleg.
Fæstir kannast við Al-Qaeda Al-Faquhia úr íslömskum lögum: "Hver sá neitar sannleika íslam er vantrúaður". Um leið og menn eru orðnir vantrúaðir er búið að gefa veiðileyfi á þá.
Ég hefði viljað að Palestínumennirnir sem tekið var við nýlega uppi á Akranesi væru kristnir en ekki múslimar, múslimar sjá ekkert athugavert við að drepna fólk úr öðrum trúarhópum (slíkt gerist í múslimskum ríkjum þó það rati ekki í íslenska fjölmiðla) og því hefði verið betra að fá hingað kristna Palestínumenn og þeim meiri greiði gerður en íslömskum Palestínumönnum.
Það var gott hjá þér að benda Ögmundi á þetta en hann mun hvorki hreyfa legg né lið vegna þessa máls, því miður.
Jon (IP-tala skráð) 18.9.2010 kl. 08:44
Þakka þér fyrir þennan ágætis pistil um þetta vandasama málefni. Hættan er jú sú að við pössum okkur ekki og föllum í þessa sömu hatursgryfju í umræðu okkar um trúarbrögð annarra. Því þykir mér virðingarvert hjá þér að þú dregur líka fram ýmislegt jákvætt um íslam í ýmsum pistlum þínum, þó svo að þú veljir að gera það ekki í þessari færslu. Sú spurning sem vakir fyrir mér er líka sú hvernig okkur sem þjóðfélagi sé kleift að fræða einstaklingana um trúarbrögð og mannréttindi. Ég er hræddur um að við losnum aldrei við öfgafólk, það er til staðar í öllum trúarhópum að einhverju marki. En það sem við hljótum að geta gert er að takmarka áhrif þeirra með fræðslu til almennings. Eða hvað þykir þér?
Pétur Björgvin, 18.9.2010 kl. 08:45
Ein furðulegasta mótsögnin sem ég hef upplifað á þessu ári er að Vantrú, sem hefur á stefnuskrá sinni að vera á móti skipulögðum trúarbrögðum og boðun hindurvitna ... og er væntanlega á móti hatursáróðri þótt það komi ekki beint fram í stefnuskrá þeirra ... er ekki á móti því að hér rísi eins margar íslamskar "menningarmiðstöðvar" og menn vilja byggja.
Ég benti þeim á mótsögnina í þessu hjá þeim en fékk á móti þá skýringu að þeir bæru svo mikla ást til trúfrelsis að þeir vildu ekki vera á móti neinum bænahúsum.
Hólímólí (IP-tala skráð) 18.9.2010 kl. 08:50
“The wisest mind has something yet to learn.”Geror Santayana". Húmanisti.
Þessi orð er merk og eiga vel við þegar fólk gerir sér ekki grein fyrir muninum á Íslam og Wahabisama sem stýrir Sharía sem og Hatdiðs sem hægt er að fá = Öfgar og mannhatur.
bk.
Linda, 18.9.2010 kl. 11:02
Afsakið þetta átti vitanlega að vera George Santayana.
Linda, 18.9.2010 kl. 11:04
http://www.journeyman.tv/?lid=9035
enok (IP-tala skráð) 18.9.2010 kl. 17:42
Það er ekkert nýtt að það sé mótsögn í Vantrú Hólímólí. Þeir segjast vera á móti hindurvitnum og allri trú en eru í raun nánast eingöngu í herferð gegn kristni. Ef þessi menningarmiðstöð múslima er forystuð af mönnum sem líta upp til klerka sem eru með andgyðinglegan áróður er ekki hægt að líða það. Hitt er að andgyðinglegur áróður er stundaður nánast daglega á íslensku bloggi af vinstrimönnum án þess að nokkrar ath.semdir séu gerðar hjá stjórn Moggabloggins. Rasismi er ekki bara að vera á móti dökku fólki. Hræsni og ekkert annað.
Guðmundur St Ragnarsson, 19.9.2010 kl. 01:31
Já, það er ótrúlegt hvernig þeir haga sér þeir sem skrifa fyrir hönd Vantrúar hér á blogginu. Svo segjast þeir líka styðja mál-, tjáninga- og skoðunarfrelsi, en eyða svo út athugasemdum, hrakyrða og loka á þá sem eru ekki á sama máli og þeir.
Kristinn Theódórsson lokaði á mig fyrir að vera sér ósammála en heldur svo áfram að smána mig og ljúga upp á mig á bloggi sínu þótt ég geti ekki vegna lokunar hans svarað fyrir mig. Í gær laug hann á bloggi sínu blákalt upp á mig að ég væri að skrifa níð um hann. Þannig reynir hann að spreða um mig ósannindum til að fá fólk á sitt band. Ótrúleg framkoma sem á ekki að líðast.
Hólímólí (IP-tala skráð) 19.9.2010 kl. 03:44
Ég þakka öllum fyrir góðar athugasemdir. Ég hef því miður verið nokkuð upptekinn með annað en blogg upp á síðkastið.
Ég hef sent Ögmundi Jónassyni erindi varðandi þetta mál, og beðið ráðuneyti hans að staðfesta móttöku bréfs míns. Það hefur mannréttindaráðuneytið enn ekki gert, þrátt fyrir ítrekun.
Bréfið hljóðar svo:
Virðulegi ráðherra,
Ég fagna því að komið er mannréttindaráðuneyti á Íslandi og ætla mér að notafæra mér það sem íslenskur þegn, nú þegar mér þykir brýn ástæða til.
Ég hef sett fram spurningu til þín á opinberum vettvangi og óska eftir svörum. Spurningin er sett fram hér: http://www.postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/1096397/
Þú finnur hana neðst í færslu minni á bloggi mínu eftir röksemdafærslu mína.
Þú getur annað hvort svarað á bloggsíðu minni, eða með tölvubréfi
Virðingarfyllst,
Dr. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 26.9.2010 kl. 05:17
Sæll Vilhjálmur,
Langar bara að benda á eitt. Þeir sem keyptu Ýmis-húsið og vilja nota það sem Menningarmiðstöð Múslima á Íslandi eru frá Sádi Arabíu. Félag Múslima á Íslandi á að vissu eftir að njóta góðs af, ef þetta setur verður opnað - en það er varla hægt að tala um þá sem sama manninn. Hverning væri frekar að einblína á þá múslima sem búa á Íslandi í sátt og samlyndi við aðra Íslendinga? Þessir menn sem keyptu húsið í Öskjuhlíðinni búa ekki á landinu (að best ég veit. Biðst afsökunar ef það er rangt með farið).
Agnes Ó. (IP-tala skráð) 26.9.2010 kl. 10:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.