4.7.2010 | 13:03
Auschwitz-fangi á Íslandi
Það er virðingarvert þegar fórnarlömb helfararinnar geta sagt frá hörmungum sínum á gamals aldri. Það þarf oft mikið til og oftast talar fólk ekki um þessi erfiðustu ár ævi sinnar.
Hér í Danmörku hef ég þekkt og talað við nokkra pólska gyðinga sem lifðu af vistina í Auschwitz. Einn góður vinur minn var í fjórum fangabúðum í stríðinu. Ég er að skrifa grein um hann. Ég hef skrifað bók um þá gyðinga sem Danir sendur í dauðann. Nokkrir þeirrar voru myrtir í Auschwitz. Á Íslandi hefur reyndar meira borið á mönnum sem stunduðu gyðingamorð en á gyðingum, sem flestir hafa gengið með veggjum. Einn böðlanna kom frá Eistlandi og annar maður frá Lettlandi, sem lengi bjó á Íslandi, hafði verið vörður í fanga- og útrýmingarbúðum í síðara heimsstríði.
George Berman, fæddur 1923 í Póllandi, komst lífs af í Auschwitz. Hann á son, Robert, og afkomendur á Íslandi og var í heimsókn á Íslandi á dögunum. Hann hélt um daginn fyrirlestur í HÍ um reynslu sína sem gyðingur í síðari heimsstyrjöld, og hefur RÚV gert þessu erindi hans skil (hlustið hér) og einnig Vísir.is. /Stöð2 og þetta blogg. Hlustið á Georg Berman á Stöð2 og RÚV
Það er ekki á hverjum degi að Íslendingar geta hlustað á vitni segja frá atburði, sem æ fleiri afneita eða misnota á ógeðfelldan hátt í stuðningi sínum við hryðjuverkastarfsemi gagnvart frjálsum heimi.
Myndin efst er tekin af Þjóðverja í Lodz gettóinu. Þar voru seldar bækur, en ekki vopn eins og í dag á þeim svæðum heimsins sem bandamenn hryðjuverka kalla gettó. Myndin hér fyrir neðan er af George Berman.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Gyðingdómur, Helförin | Breytt 6.7.2010 kl. 00:19 | Facebook
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 2
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 1352575
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 38
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Þetta voru skelfilegir tímar sem viðgengust vegna afskiftaleysi
Aðalsteinn Agnarsson, 4.7.2010 kl. 13:40
almennings. Almenningur horfði aðgerðar laus á þessa þróunn
gerjast í Þýskalandi. Almenningur á Íslandi á ekki að umbera eða
horfa aðgerðarlaus á Alþingi nýðast á þjóðinni.
15.000 manneskjur án vinnu, Alþingi horfir aðgerðarlaust á.
Þetta fólk lofaði frjálsum hanndfæraveiðum, látum þetta
fólk ekki nýðast á stórum hluta þjóðarinnar.
Stöndum saman sem einn maður.
Aðalsteinn Agnarsson, 4.7.2010 kl. 13:55
Sæll Vilhjálmur. Ég hef komið í Auschwitz útrýmingabúðirnar og vil segja að því gleymir maður ekki. Ég kom einnig í aðrar búðir í Póllandi sem heita Stutthof uppá þýsku og þar hélt einn starfsmaður á skrifstofu því fram við mig þegar hann fann út að ég væri íslendingur að það hefði íslendingur verið þar og sennilega látið þar lífið. Þó má vera að hann hafi verið að rugla mér við Írland því ég þurfti eitthvað að leiðrétta hann með það. Veistu nokkuð um það hvort þarna hafi íslendingur verið ?
Tryggvi Marteinsson (IP-tala skráð) 4.7.2010 kl. 17:12
Það er athyglisvert að þeir sem skrifuðu um reynslu sína í fangabúðum nazista enduðu flestir með að fyrirfara sér. Ekki af trúarlegum ástæðum heldur einfaldlega vegna þess að endurminningin var þeim óbærileg.
Þar á ég við menn eins og Primo Levi, Jorge Semprun (reyndar ekki gyðingur) og Jean Améry sem skrifaði merkilegar bók um takmörk hugans (At the Mind's Limits: Contemplations by a Survivor on Auschwitz and Its Realities). Allir reyndu að skrifa sig frá því sem þeir upplifðu; reyndu að lýsa því ólýsanlega, en að endingu náði hryllingurinn aftur til þeirra.
Ég hef fullan skilning á þjáningum almennings á Gaza og vonandi næst einhver lausn á þessu endalausa deilumáli. Það breytir því ekki að umfjöllun um deilurnar og afstaða almennings í Evrópu er á algerum villigötum þegar reynt er að líkja þessu tvennu saman.
Og villigöturnar eru pólitískar.
Ragnhildur Kolka, 4.7.2010 kl. 17:30
Helförin var endanlegur og alger hryllingur. Hvernig gat þetta gerst?Hvernig er eðlilegt líf eftir slíka atburði mögulegt? Helförin skapa'i ómældar þjáningar hjá gyðingum. Hún hefur legið eins og mara á þýskri þjóðarsál í marga áratugi. Það að lifa þetta af og hafa eðlilegt og jákvætt viðhorf til lífsins eins og Berman, það er kraftaverk.
Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 4.7.2010 kl. 20:12
Mikið rétt Ragnhildur.
En sá mikli heiðursmaður, Semprun, sem píndur var í Buchenwald er enn á lífi og greinir enn frá hryllingnum og hryllingi þess kommúnisma sem hann barðist fyrir. Hann gekk í sama skóla í den Haag og faðir minn síðar.
Sæll Tryggvi Marteinsson, ekki þekki ég sögu Íslendings í Stutthof, en þar voru Norðmenn og Danir í miklum mæli.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 4.7.2010 kl. 21:06
Þakka þér fyrir að leiðrétta mig, Vilhjálmur. Það er nokkuð um liðið síðan ég las bækur Semprun The Long Voyage og Litterature or Life og kannski eitthvað farið að skolast til á háaloftinu.
Ragnhildur Kolka, 4.7.2010 kl. 23:03
Það er í raun alveg ótrúlegt að þjóð eins og gyðingar sem hafa verið ófsóttir öldum saman, skuli ekki sýna meiri mannúð og mildi fyrir botni Miðjarðarhafs. Það er í raun ótrúlegt að þeir halda Palestínumönnum í svipuðu Gettó og þeir voru sjálfir á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar. Það er nokkuð ljóst að það er enginn alls enginn kristilegur kærlegur á bakvið svoleiðis hegðan.
Gísli Gíslason, 6.7.2010 kl. 11:24
Gísli Gíslason, merkilegt að þú skyldir minnast á þetta.
Gegnum aldirnar lokuðu múslímar gyðinga inni í hverfum og heimtuðu fyrr en kristnir að þeir gengu með gul merki á klæðum sínum.
Gyðingar og aðrir minnihlutar í arabalöndum voru 2. flokks borgarar. Á Gaza voru framin fjöldamorð og nauðganir á gyðingum gegnum aldirnar. Þjóðin sem býr þar nú vill ljúka ætlunarverki Hitlers og hefur margoft lýst því yfir um leið og hún afneitar því að Helförinni hafi átt sér stað. Ég veit ekki hvað kristileg hegðun er, enda ekki kristinn, en þú sýnir ekki slíka hegðun vinur minn. En verst er nú hvernig þú sýnir alþjóð fávisku þína.
Annars er furðulegt að sjá hve margir Íslendingar vita hvernig það var að vera gyðingur í gettói, og sumir virðast hafa þörf á því að líka sér í vandanum nú við ofsótta gyðinga.
Ég veit nokkurn veginn hvernig það var, enda búinn að taka saman bréfasafn úr gettóinu í Warszawa, sem bráðlega verður gefið út. Gettóin í Evrópu sem nasistar smöluðu gyðingum í eiga ekkert skilt við Gaza nútímans. Gaza var afhent á silfurfati fyrir nokkrum árum, og síðan hafa Hamas hryðjuverkasamtökin níðst á Palestínumönnum þar.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 6.7.2010 kl. 15:00
Þessa röksemdarfærsla, Vilhjálmur, er, því miður, frekar algeng milli vinstri manna hér á Íslandi. Ísrael var þjóð byggð eftir helförina, og því eiga gyðingar að sýna fjöldamorðssinnuðum hryðjuverkamönnum það "Kristilegan boðskap" sem HAMAS, Hezbollah og PLO eru vanir að sýna þeim. Svaraðu mér, Gísli, ertu hlyntur því að Ísraelsmenn taki Kristna trú eða væri það kanski sambærilegt og síðan viðunandi ef að arabarnir bjuggu til enn önnur "ghettó" í svæðinu austan við Jordaníu-fljótið til að kenna þeim það boðskap sem þeir eru búnir að gleyma svo hratt....??
Benjamín Kári Danielsson, 7.7.2010 kl. 15:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.