9.1.2010 | 10:18
Betlað á Strikinu
Næstum því þannig túlkar Politiken heimsókn Steingríms í Kaupmannahöfn í gær, í fréttaflutningi sem er mun betri en margra fjölmiðla á Íslandi, sérstaklega betri en fréttir áróðurvefs ríkisstjórnarinnar, Eyjunnar, og RÚV. Vefsíða Politikens birtir flennistóra mynd af betlaranum í hornsófa, sem á smekkleysunni lítur út fyrir að vera í einhverju horni á Íslandi.
Betl virðist vera orðið aðalstarf Steingríms og man ég ekki betur en að ég hafi skrifað blogg um betlistaf Steingríms áður, sem ekki gaf mikið í aðra hönd.
Auðvitað er Claus Hjort Frederiksen jafn illa upplýstur og venjulega, enda er þetta maður að sömu skúffu og íslenska ríkisstjórnin. Hann er þó ekki sauðakrati eða nákommi, en hann er alltaf tilbúinn að trampa á lítilmagnanum og fólki í vanda eins og stjórnin á Íslandi.
Í gær var úthlutað hinum virtu Cavling-verðlaunum til blaðamanns í Danmörku. Þau komu í hlut ungs blaðamanns hjá danska Ríkisútvarpinu, Jesper Tynell, sem gróf ofan af glæpsamlegu athæfi Hjort Frederiksens i starfi. Hjort Frederiksen segir við Politiken í gær, fullur iðrunar en fokvondur út í blaðamanninn, að það sé kraftaverk að hann siti ekki inni vegna þess máls sem blaðamaðurinn svipti hulunni. Nei, það er skandall að lagabrjóturinn og fautinn Claus Hjort Frederikssen sitji ekki inni. Það sýnir óeðli og sora stjórnmálanna í dag að svo er ekki. Lýðræðið er á undanhaldi og sérstaklega í löndum ESB. Það er ekki nema von að stjórnarliðar á Íslandi vilji ólmir inn í þann djöflasöfnuð.
Glæpamaður í ríkisstjórn: Claus Hjort Frederikssen
Öllu þessu greinir RÚV auðvitað ekki frá, þegar þeir segja frá sneypuför Steingríms. Þeir segja aðeins frá merki ráðherra í Danmörku, sem er að básúna sig um lán við nærri glæpsamlega gleyminn ráðherra á Íslandi sem er farinn að rugla óhóflega mikið. Hann segir þjóðinni eitt og stjórmálamönnum erlendis annað.
Það er óneitanlega skrítið að sjá Dana heimta að sérhver Íslendingur eigi að borga fimm sinnum meira í "skaðabætur" en hver Þjóðverki eftir Fyrri heimsstyrjöld, sérstaklega þegar þar er haft í huga að Danir slepptu Þjóðverjum óþarflega snemma úr skaðabótaskyldunni eftir Síðari heimsstyrjöld. En Danir græddu nú líka dável á skítugri samvinnu sinni við Þýskaland nasismans í því stríði. Sami hugsunarháttur og fyrir 70 árum er enn ríkjandi hér í Danmörku. Undirlægjuháttur. En þegar maður sparkar í lítilmagnann í Danmörku, sama hvort það er heima eða að heiman, þá sparkar maður rækilega!
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Fjármál, Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 10:31 | Facebook
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 2
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 62
- Frá upphafi: 1352568
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 44
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Neyðarlegt fyrir Steingrím og okkur öll og allt í boði forseta vors.
Þórdís Bára Hannesdóttir, 9.1.2010 kl. 10:38
Nei, þetta misskilur þú Þórdís. Þetta er einvörðungu neyðarlegt fyrir Steingrím og ríkisstjórnina, sem vilja virða óskir þjóðarinnar að vettugi. Forsetinn gerði aðeins það eina rétta.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 9.1.2010 kl. 10:47
Vona ég svo að þú að þú sýnir lýðræðislegan skilning og birtir athugasemdina sem ég gerði við blogg þitt rétt áður en þú gerðir þína athugasemd.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 9.1.2010 kl. 10:49
Ég er fegin að Steingrímur hefur vit fyrir þjóðinni og reynir að halda lánalínunum opnum.
Þórdís Bára Hannesdóttir, 9.1.2010 kl. 10:56
Er ekki einhver allegoría hér sem vert er að skoða?
Þjóðverjar hernámu Danmörku með friðsamlegum aðgerðum. Á hernámsárunum unnu dönsk fyrirtæki fyrir þýsku stríðsvélina, danskir embættismenn og stjórnmálamenn höguðu sér eins og hlýðnir hundar gagnavart hernámsvaldinu, allt með "þegjandi" samþykki fólksins sem lét örfáa andspyrnumenn um baráttuna gegn hernáminu.
En eftir stríð var skálduð upp saga um þjóð sem stóð saman gegn hernámsvaldinu og stjórnmálamenn og gráðugir fyrirtækjaeigendur látnir sitja uppi með skömmina fyrri samarbejdspolitikken.
Þráinn Kristinsson (IP-tala skráð) 9.1.2010 kl. 10:58
Þráinn, innrás er ekki og verður aldrei friðsamleg aðgerð, en annars er allt hitt rétt og ekkert í mótsögn við það sem ég skrifaði og hef ritað um í heilli bók. Sú hegðun sem þú lýsir svo vel einkennir ríkisstjórnina á Íslandi nú. Hvað orðspor hennar verður eftir að hún fellur veit enginn, en ég býst ekki við að það verði glæsilegt. Stjórn sem hjálpar milljónaþjóðum til að koma skuld á herða Íslendinga sem þeir eiga enga sök á, fær vart góða dóma hjá afkomendum okkar.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 9.1.2010 kl. 11:08
"Að halda lánalínum opnum". Hvað þýðir það, Þórdís? Ef Danir greiða okkur lán, þá getum við borgað 10% af Icesave skuldinni. Uffe Ellemann Jensen hefur hagfræðiprófessor við HÍ fyrir því að þegar "búið sé að rukka allt fyrir bankana "okkar" erlendis", þá verði hægt að greiða 90% af Icesave-fjárkúguninni. Ef Uffe hefur rétt fyrir sér, sem hann hefur auðvitað ekki, þá gætu Íslendingar greitt það sem eftir er, aðeins fyrir það sem Danir vilja lána okkur.
Flestir Íslendingar telja hins vegar ekki ástæðu til að greiða fjárkúgun Breta og Hollendinga. Ef svo verður leita þeir réttar síns, sem er nú orðinn frekar bágborinn, og við þurfum ekki einn eyri frá "frændum" okkar Dönum. Þeir þurfa líklega meira á peningunum að halda til að senda ungmenni sem fallbyssufóður til Afghanistan.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 9.1.2010 kl. 11:15
Þórdís er varla með fullum fimm. Ég kíkti á bloggið hennar og það er engu líkara en að hún sé í einhverjum sértrúarsöfnuði. Á einum stað fagnar hún hástöfum yfir því að 70% hafi lýst sig andvíga samningnum og telur það sigur fyrir þá sem vilja samþykkja hann. Það sé nefnilega "þögull meirihluti" sem sé sammála henni.
Hún telur líka að 15 mánaða samningaþóf hafi verið út í loftið af því að Geir Haarde hafi verið búinn að semja um þetta og skuldbinda þjóðina. Ég veit varla hvort maður eigi að hlægja eða gráta við lesturinn. Ég h ef sjaldan séð nokkuð jafn galið.
Hér telur hún það hafa eitthvað með snilli Steingríms að gera að afstaða norðurlandanna er jákvæð í okkar garð. Hún má vita að ef norðurlöndin væru sannfærð um ábyrgð okkar og skuldbindingar í þessu máli, þá myndu þau ekki virða okkur viðlits.
Hún er félagsráðgjafi. Aumingja þeir, sem þurfa að njóta ráðgjafar slíkrar manneskju. Þetta er hreint ótrúlegt.
Jón Steinar Ragnarsson, 9.1.2010 kl. 11:51
Það er svo augljóst að hún las ekki bloggið áður en hún kommenteraði. Það virðist hún hvergi gera, heldur hendir inn svipuðum sneiðum eins og hráviði um bloggið og gerir sig sjálfa um leið að fífli.
Jón Steinar Ragnarsson, 9.1.2010 kl. 11:54
Jón Steinar, ertu að segja að Þórdís sé klappstýra Steingríms og Co? En það er rétt hjá þér að mikið er um möntrur hjá henni, og það virðist orðið það eina sem stuðningsmenn Icesave-ánauðar geta látið frá sér fara.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 9.1.2010 kl. 12:56
Já Samfylkingarfólk vill greinilega láta hugsa pólitíkina fyrir sig, græða á daginn og grilla á kvöldin eins og fleiri trúarsöfnuðir.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.1.2010 kl. 13:39
,,Danir segjast vera reiðubúnir að lána Íslendingum meira fé að því gefnu að þeir standi við skuldbindingar sínar gagnvart Hollendingum og Bretum vegna Iceasave reikninganna."
Ég spyr hvað er hér á ferðinni Claus Hjort Frederiksen, fjármálaráðherra er þá búin að ræða við Steingrím eitthvað loforð er á milli þeirra sem komið er í höfn hvaða loforð?.
Claus Hjort Frederiksen ,, segist hafa fulla trú á því að Íslendingar muni standa við skuldbindingar sínar. En verði lögin felld úr gildi megi ekki skilja það öðruvísi en svo að forsendurnar hafi breyst."
Og hér hnykkir hann aftur að þessu loforði eða er einhver samningur komin í höfn ?
Síða setum maður varla svona virðulega mynd af Steingrími í þessu tilefni maðurinn breiðir úr sér eins og hann sé búinn að semja um þetta betl.
Kv. Sigurjón
Rauða Ljónið, 9.1.2010 kl. 13:41
Takk fyrir póstinn þinn Vilhjálmur Örn, vonandi stöndum við af okkur þessar óheilla krákur samanber þessa Þórdísi og flesta í ríkisstjórninni, sem vinna á móti þjóð sinni. Þjóðin verður að standa saman sem einn maður þá verður okkur ekkert að vanbúnaði.
Guðrún (IP-tala skráð) 9.1.2010 kl. 18:34
Sæll.
Ég rakst nýlega inn á bloggið þitt og líkar stórvel það sem ég les eftir þig, gaman að lesa blogg eftir menn eins og þig sem eru vel að sér.
Menn almennt séð blaðra sífellt um lán og lánalínur. Hvers vegna dettur engum í hug um að efast um alla þessa lánsfjárþörf okkar? Er ekki einmitt lærdómur undanfarinna ára sá að lán þarf að borga til baka? Veit enginn að það kostar að fá lánað og að skulda? Erum við ekki að borga um 4-5 milljónir króna á dag bara fyrir fyrsta IMF lánið sem situr bara á reikningi seðlabanka USA í NY. Robert Aliber benti á það fyrir nokkru síðan að það myndi ekkert slæmt gerast þó við afþökkuðum lán IMF. Bara vaxtakostnaðurinn af þessu fyrsta láni er í kringum 1500 milljónir á ári. Það er nálægt því sem skorið var af LSH. Svo ætlar samspillingin að henda öðrum 2 milljörðum í aðildarviðræður við ESB sem eyðir meiru í auglýsingar en Coca Cola.
Svo er annað varðandi Icesave sem Steingrímur telur mikilvægt að koma á okkur. Rökin fyrir því að veita ríkisábyrgð (af hálfu ríkisstjórnarinnar) eru m.a. þau að þá getum við hafið endurreisnarstarfið. Að segja það nauðsyn að drekkja okkur í skuldum til að hefja endurreisnarstarf er í besta falli sjálfsblekkingar og í versta falli lygi. Það veit enginn hver heildarreikningurinn vegna Icesave verður. Skrifar einhver heilvita einstaklingur upp á óutfylltan tékka eða víxil?
Jon (IP-tala skráð) 9.1.2010 kl. 20:12
Tilraun.
Theódór Norðkvist, 9.1.2010 kl. 21:48
Látum ekki Dani fjárkúga okkur.
Theódór Norðkvist, 9.1.2010 kl. 21:50
Góð og athyglisverð færsla hjá þér Vilhjálmiur.
Gunnar Skúli Ármannsson, 9.1.2010 kl. 22:43
Danskur húmor stendur alltaf fyrir sínu. Hann er þó óvenju napur húmorinn hjá þessum blaðamanni Politiken þegar betliferð Steingrím Joð er lýst sem "nordisk charmeoffeansiv".
Það er þó nokk meiri heimsbragur á þessu orðalagi en karlrembutöktum Steingríms: "bretta upp ermar, moka flórinn, stinga út úr fjárhúsunum". En honum er vorkunn. Hann þarf einhvern veginn að breiða yfir þá staðreynd að hann getur bara tekist á við eitt verkefni í einu.
Mesta furða hvað femínistunum í flokki hans tekst að líta fram hjá þessu "stórkarla" orðalagi.
Ragnhildur Kolka, 10.1.2010 kl. 10:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.