Leita í fréttum mbl.is

Vinur Uffes gefi sig fram!

uffe-ellemann-jensen

Uffe Ellemann-Jensen hefur skrifað á bloggið sitt, að hann telji að Íslendingar séu að melda sig út úr samfélagi manna.

Karlskömmin hélt því fram á fréttaskýringu á TV2 í dag, að hann hefði talað við prófessor einn, vin sinn á Íslandi, sem hefði fullvissað sig um að 30 milljarðarnir (í dönskum krónum), sem hann segir Icesaveskuldina hljóða upp á, sé aðeins 100.000 danskar á mann. Hann sagði að íslenski prófessorinn hefði fullvissað sig um að þegar allar eignir bankanna hefðu verið gerðar upp, yrði þetta ekki nema svona 10.000 danskar á hvert mannsbarn í landinu. Gaman væri að fá nafnið á þessum stórfenglega vini Uffsa og hvað hann hefur fyrir sér í þessu. Gefðu þig fram og vinn fyrir launum þínum prófessor. Þýddu þetta blogg og sendu Uffe. Ef þetta er rétt, ætti það sem Danir ætluðu að lána Íslendingum að hafa nægt. Dönum veitir víst ekki af þessum peningum sjálfum.

Uffe hélt því líka fram, að viti bornir menn bæru ekki smámál „eins og skattamál" undir þjóðaratkvæði. Uffe gerir sér greinilega ekki grein fyrir því að Icesave er ekki skattamál.

Dómgreind Uffe Ellemanns-Jensen gef ég ekki mikið fyrir. Þetta er uppblásinn og ofmetinn blaðamannsgarmur, sem því miður fór út í stjórnmál með herfilegum afleiðingum. Hann var þekktur fyrir að fara út fyrir lýðræðislegan ramma og fékk allmargar pólitískar ávítur í starfi, það sem Danir kalla næser.

Það sem hann skrifar á bloggi sínu í dag, sýnir ekki hatur í garð Íslendinga eins og sumir kjánar sem skrifa þar andsvör. Uffe elskar að veiða á Íslandi, en hann elskar víst dauðan lax meira en lifandi Íslendinga. Uffe er fyrst og fremst bara svona vitlaus og hefur enn vitlausari íslenska heimildarmenn, eins og margir aðrir erlendis þessa dagana, heimildamenn sem ekki eru með fullum dönskum eftir að Ólafur Ragnar Grímsson sýndi ekta lýðræði.

Uffe Ellemann-Jensen er ekki lýðræðissinni og skilur þess vegna ekki það sem Ólafur Ragnar Grímsson gerði. Uffe gaf í skyn í viðtalinu á TV2 í kvöld að fyrrverandi pólitískir andstæðingar Ólafs Ragnars væru nú í stjórn. Hann sagði Ólaf hafa verið yst á vinstrivængnum. Byrjaði ekki Óli í Framsókn, systurflokki Venstre, sem ranglega hefur hýst Uffe Ellemann-Jensen.

Fyrir nokkrum árum lýsti Uffe yfir virðingu sinni fyrir dönskum Waffen SS-mönnum við minnismerki um þá í Eistlandi og sagði þá vera góða hermenn í bréfi til mín þar sem hann hafði í hótunum. Maður sem lýsir morðsveitum sem góðum hermönnum er að mínu mati ekki marktækur á nokkurn skapaðan hlut.

Uffe Ellemann Jensen in Estonia

Maður eins og Uffe, sem mært hefur SS-liða, er ekki dómbær á lýðræðiskennd Íslendinga.  Það hefði verið óskandi að þetta danska fyrirbæri hefði sagt Hollendingum að borga gyðingum skaðabætur á tímabilinu 1945-1996. En svo lengi drógu Hollendingar að greiða aftur það sem þeir stálu eða hjálpuðu Þriðja ríkinu að ræna af gyðingum. En greiðslurnar komu auðvitað ekki í stað allra mannslífanna. Mikill meirihluti gyðinga í Hollandi var myrtur. Það tók Hollendinga 50 ár að punga út til að friða vonda samvisku sína. Fjöldi hollenskra krata var samt á móti greiðslu þessara skaðabóta sem runnu til stofnanna gyðinga og ýmissa góðra málefna.

Nú heimta hollenskir kratar að Íslendingar borgi strax fyrir glapræði Hollendinga sem trúðu því að Íslenskir bankaglæframenn myndu gefa betri arð en bankar í Hollandi eða í Arabalöndunum. Að því er ég best veit dó enginn Hollendingur vegna Icesave. En sú nánasastjórn, sem nú er við völd í Hollandi, hagar sér eins og Íslendingar hafi myrt Hollendinga.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæll. Var að lesa um karl Ugluna í dag, man nú eftir ruglinu í honum hér á  árum áður hefur ekkert þroskast mun ekki gera það, þetta er náttúrulega hauga lygi í honum um 10.000 dkr ef hann hefur talað við Íslenskan prófessor þá kemur engin til greina nema Sólan Íslandus hann er víst dauður.
Held að Uglan sem best geymd niður á 6 fetum.

Kv. Sigurjón

Rauða Ljónið, 7.1.2010 kl. 21:45

2 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Úff. Þessi Ellemann hlýtur að vera afkomandi Trampe greifa (var hann ekki danskur annars) eða einhvers amtmanns sem Íslendingar hafa farið illa með. Af hverju þetta Íslandshatur í þessum gæja?

Guðmundur St Ragnarsson, 7.1.2010 kl. 21:53

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Þakka ykkur yfir herramenn. Ég held ekki að þetta sé hatur. Þetta er fáfræði og vanþekking. Uffe er eins og margur stjórnmálamaðurinn, kominn úr röðum blaðamanna. Við höfum séð til nokkurra af þeirri gerð á Íslandi og hvað þeir hafa leitt af sér.

Ég er búinn að senda færslu mína til Uffe, og biðja hann að fá prófessorinn, heimildamann sinn á Íslandi, til að vippa henni yfir á Íslensku.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 7.1.2010 kl. 22:05

4 Smámynd: Aðalbjörn Leifsson

Uffemand hefur verið búinn að fá sér of marga Carlsberg 47.

Aðalbjörn Leifsson, 7.1.2010 kl. 22:24

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Kannski er þessi bægslagangur út af því að honum hefur ekki verið boðið í ókeypis lax í lengri tíma. Þessi maður rómaði útrásavíkingana okkar lengur er eðlilegt var.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 7.1.2010 kl. 22:38

6 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Lítum á "Nei" forseta Íslands sem tækifæri, í stað þess að fórna höndum, og álykta að nú fari allt til fjandans. Ísland, er nú aftur í erlendum fjölmiðlum, og það akkúrat getur einnig verið tækifæri!

Vil vekja athygli á þessu:

Hver íslendingur þarf að bera 2,4 milljónir Kr. á meðan að hver hollendingur eða breti þarf að borga 10 þúsund Kr. per haus - ef þeir bera kostnaðinn.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 7.1.2010 kl. 23:36

7 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Var ekki talað um að karluglan væri Íslandsvinur ? Mér sýnist lítið eftir af þeirri vináttu, enda hafa boðsferðir hans til Íslands fallið niður. Núna nefnir hann Ísland bananalýðveldi og segir ódýra brandara á okkar kostnað.

 

Þessi fyrrverandi Íslandsvinur hefur greinilega verið mataður af aula-hirð Jóhönnu og étið það sem að honum hefur verið rétt. Þetta bull í honum er allt á sömu bókina lært, ekki vottar fyrir viti eða þeirri vináttu sem fíflið þykist hafa borið til Íslendinga. Farið hefur fé betra !

 

Loftur Altice Þorsteinsson, 7.1.2010 kl. 23:37

8 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Hljómar eins og, að einhver hafi notað upphæðina 300 miljarðar og svo deilt í með 300þús.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 7.1.2010 kl. 23:46

9 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður

Slæmt að karlinn sé að eitra málstað okkar. Ef skuldin væri svona lág eins og hann væri þetta yfirstíganlegt. En svo er spurning um hver á þessar skuldir Íslendingar eða Björgólfsfeðgar?

Guð veri með þér

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 7.1.2010 kl. 23:57

10 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Það er ekki eiðandi orðum á svona menn

Eyjólfur G Svavarsson, 8.1.2010 kl. 00:10

11 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hann fær ekki að fiska bröndu hér meir. Það er allavega ljóst að við þurfum ekki óvini, þegar við eigum svona "Íslandsvin."

Það er svo undarlegt mat hjá honum að hér ríki pólitískir andstæðingar Ólafs Ragnars. Hér er "tær" vinstristjórn. Afsprengi Alþýðubandalagsins og Alþýðuflokksins, sem ég veit ekki betur en að hann hafi verið orðaður mest við. 

Raunin er bara sú að Óli hefursýnt það að sannað nú að hann er meiri málsvari alþýðunnar en það fólk verður nokkurntíman.

Það má vel vera að telji sig vin Íslendinga, en Íslendingar eru ekki vinir hans. Grein hans er ein öfugmælavísa út í gegn. 

Jón Steinar Ragnarsson, 8.1.2010 kl. 05:21

12 identicon

Vinur er sá sem til vamms segir.

En flestir eiga erfitt með að skilja þessi speki fyrr en kannski þegar þeir eru endanlega búnir að skíta upp á bak...ég minni á viðtökurnar sem dönsku hagfræðingarnir tveir fengu 2006 þegar þeir drógu þá ályktun að veruleg hætta væri á þjóðargjaldþroti - hroki, frekja,þjóðernisdramb og vanþekking komu okkur í þessi vandræði í upphafi - er ekki kominn tími til að hætta að rífa kjaft og hlusta á aðra?

En nei nei látum Hollendinga og Breta greiða skuldbindingar þær sem Íslenskar ríkisstjórnir steyptu þjóðinni í.

Réttast væri að skipa sérstaka samninganefnd og reyna að semja um að þeir greiði líka tapið vegna gjaldþrot Seðlabankans...það er óþolandi að við séum að greiða fyrir tap sem íslenskar ríkisstjórnir sem höfðu meirihluta þjóðarinnar á bak við sig báru ábyrgð á.

Þráinn Kristinsson (IP-tala skráð) 8.1.2010 kl. 08:34

13 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hverjar eru þessar skuldbindingar Þráinn?  Hvað erum við skuldbundin til að gera í þessu máli? Geturðu smellt því fram, svona til glöggvunnar eða er þetta bara eitt samfylkingarsándbætið á borð við "alþjóðasamfélagið" og fleira álíka djúprist.

Jón Steinar Ragnarsson, 8.1.2010 kl. 11:44

14 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Rifjaðu svo upp hverjir létu hæst í að afneita aðvörunum dana og fleiri þjóða á sínum tíma og gengu svo langt að stinga skýrslum og skriflegum viðvörunum undir stól.  Hringir nafnið Ingibjörg Sólrún einhverjum bjöllum?

Jón Steinar Ragnarsson, 8.1.2010 kl. 11:46

15 identicon

Bíddu ertu að klína smjörklípum?

Ég ber ekki blak af stjórnmálamönnum, hvar í flokki sem þeir standa. Þannig að Ingibjörg Sólrún hringir eiginlega engum bjöllum hjá mér. Jafnvel ef Vilhjálmur grefur upp ástæðu til að væna ingbjörgu um stuðning við nasisma myndi ég bara geispa og halda áfram að horfa á True Blood.

Þeir sem létu hæst og vildu ekki hlusta voru Forsætisráðuneytið og viðskiptaráð...og ingibjörg og haarde létu bjóða sér að vera teymd á eftir útrásarvíkingum eins og hundar í bandi út um allan heim að sannfæra alla um að á Íslandi væri allt í lagi.

Því segi ég er ekki kominn tími til að hætta að rífa kjaft og kenna öllum öðrum um og hlusta á t.d. einstaklinga eins og Uffeman sem hefur alltaf verið vinur íslensku þjóðarinnar - helduru að Uffeman viti ekki hvað hann er að tala um?

Þráinn Kristinsson (IP-tala skráð) 8.1.2010 kl. 20:11

16 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Kannast einhver við þennan mann?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 9.1.2010 kl. 08:38

17 Smámynd: Þórður Bragason

Þakka góðann pistil Vilhjálmur.

Þráinn, þú spyrð hvort "Uffeman" viti ekki hvað hann er að tala um.  Ég held að hann viti það ekki, en ég tala að sjálfsögðu bara fyrir mig og tek fram að ég hef ekki lesið greinina hanns.

Annars hef ég verð að lesa erlenda fjölmiðla undanfarna daga og því miður er talsvert um dangværslur, einkum vegna þess að fréttaritarar og bloggarar hafa ekki betri upplýsingar.

Vilhjálmur, ég kannast við manninn á myndinni en man ekki nafn hanns.  Leyfðu mér að giska, er maðurinn"prófessor"?

Þórður Bragason, 10.1.2010 kl. 01:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband